Heimskringla - 27.10.1926, Síða 1
WINNIPEG, MAN, MIÐVIKUDAGINN, 27. OKTÓBER 1926.
NÚMER4
i Rih'
- ir,
Ií. Péturííon x
Honœ >St. tTl’V.........—
XLI. ÁRGANGUR.
\
..m^mommmo-mmmommmo-mmm O
C A N A D A I
ÖtíÖin hefir haldiS áfram sleitu-i
laust aÖ kalla íná. Nokkuö mun hafa
veriö þreskt hér í fylkinu fyrri part
siöustu viku, en á föstudag versn-
aði veður aftur og gekk í snjó yfir
helgina . Mjög ‘lítið af korni hefir
verið bólstraö, en úr drílunum lítið
hægt að þreskja.
Aö því er skýrslur frá landbúnaö-
arráðuneyti Manitobafylkis herma, er
ástandið í fylkinu eitthvað á þessa
leið:
I Rauðárdalnum þreskt uni 85—
50% af uppskerunni. Vatnselgur
mikill á því svæði og tvísýnt um,
hvaö verður um afganginn.
I suðurhluta fylkisins yfirleitt 80%
þreskt eða vel það, og góðar likur j
til að hægt verði að þreskja alt fyrir
veturinn, ef’ nú stillir um tíöarfar.
Fyrir noröan C. P. R. brautina er
meira óþreskt. sennilega •uni 30%
milli brautarinnar og Riding Moun-
tain. Mest er óþreskt í norövestur-
hluta þessa svæðis, sérstaklega í Rus-
se'‘. Rossburn, Rinscarth, Miniota og
McAuley.
1 Swan River dalnum er aftur
ögn skárra. En í öllu fylkinu er á-
standið sagt verst fyrir vestan Dau-
phin, sérstaklega í Gilbert Plains,
Grandview og Roblin. Er sagt að
þar séu aöeins urn 30—40% af upp-,
skerunni þreskt, og öll dríli undir
snjó. En engar skýrslur eru um það
hve miklar skemdir séu norður þar
á korninu, sem óþreskt er.
5Iikið\af' því korni, sem þreskt
h.efir verio, er flokkað sem “seigt”
og rakt” (tough og damp). Ög mest |
ar líkur fyrir þvi, að svo fari um
alt það korn, sém enn er óþreskt.
Kartöfluuppskeran hefir verið |
góð , og er því nær öll komin í ló. j
úm 23. september frysti illa, og kól J
þá gras og þær kartöflur er grynst |
var á. Verð hefir verið fremur
gott.
Heyskapur hefir orðið með minna j
móti, vegna vorþurka og haustrign-
mga.
A mánudaginn var Hon. T. A'.
Burrows hátíðlega settur i fylkis-
stjóraembættið i Manitoba. Fór sú j
athöfn fram í þinghúsinu að við-
stöddu margmenni.
Svo virðist sem kirkjan hér hafi i
huga að láta eitthvað til sin taka um
vinsölulögin í Manitioba. |Kom í
ljós sú skoðun á klerkamóti, er hald
ið var hér i Young kirkjunni á fimtu-
daginn, að flestir prestar, er tóku
til máls, voru á þeirri skoðun. Töldu
þeir óhjákvæmilegt, ef kirkjan ætti
að ná tilgangi sínum, að hún léti sig
slík opinber mál enhverju skifta. Og
allir voru sanuuála um að hún ætti að
nota alla krafta sina til þess að
fremja. virðingu fyrir • lögunum og
framkvæmdum þeirra, hver sem í
hlut ætti. Og ótvírætt var það gefið
í skyn, að kirkjan ætti að vera hlið-
holl bannmönnum.
Ofsastormur og steypiregn geisaði
yfir héraðið í kringum Montrealborg
í Quebec, í fyrradag, og yfir
suðausturhluta fylkisins og Strand-
fylkin. Varð stormurinn tnanni að
bana í Montreal, og meiðingar urðu
þar nokkrar. Og hræddir eru menn
um að skipskaðar hafi orðið i Strand
fylkjunum.
Vprkfall hefir staðið yfir um hríð
í heldsölubúð Elias Reich félagsins,
grávörukaupmanna hér í Winnipeg.
Hefir litið gerst sögulegt fyr en í
fyrradag og gær, að til bardaga kom
meðal verkfallsmanna og “verkfalls-
brjóta”, er félagið hafði fengiö til
þess að vinna fyrir sig. A mánudag-
inn börðust karlmenn einir, og varð
ekki mjög sögulegt, en. í gær gengu
konur einnig til víga, og harðnaði
þá á dalnum, enda er kunnugt, að
"the fentale of the species is dead-
lier than the male", eins og Kipling
segir. Skorti þar ekki pústra og
hrindingar, hárreitingar né glóðar-
augu. Einhverjum blæddi, en ekki
mun þó hafa dreyrt nema úr nös-
um, eða undán þjalsorfnum og all-
hvössum nöglum. Fóru svo leikar,
að fjórar hinar vöskustu konur og
tveir karlmenn voru sett í bönd, eft-
ir frækilega framgöngu, og síðan far
ið með þau í steininn.
ætlaði að vera á mótinu og taka
þátt í því. En þrem dögutn áður en
mótið átti að hefjast, sendi páfinn
út tilkynningu um það, að “vegna
óvenjulega alvarlegra ástæða, hefði j
hann ákveðið að rnótinu væri frest-1
að um óákveðinn tíma. Astæðan er
sú, að ofsi Fascistanna gerist nú svo
mikill, að þeir láta sér ekki nægja
að hafa kúgað alla pólitíska mót-
stöðumenn, hafa slitið öllum félög-
um verkamanna og isundrað öllum
kaupfélögum; nú hafa þeir og kast
að reiði sinni á unglingafélög ka-
þólsku kirkjunnar. Hafa verið skær-
ur út af því, sem upp á síðkastið
hafa endað með blóðsúthellingum.
Var þaö eitt slíkt fyrirbrigði, sem
olli því að páfinn frestaði skólapilta-
mótinu. — Fascistar höfðu ráðist á
kaþólsk ungmennafélög á Norður-
Italíu, gert eignir þeirra upptækar,
misþyrmt foringjunum og því næst
látið banna þenna félagsskap á stórir
svæði. — Itölsku stjórninni brá mjög
við þessa yfirlýsingu páfans, gerði
itrekaðar tilraunir til þess að fá
henni breytt og bauðst til að tryggja
fullkomlega öryggi þátttakenda móts-
ins. En Píus páfi sat fastur við
sinn keip. Og þá er foringi ka-
þólsku ungmennafélaganna frönsku
spurðist fyrir um það, hvort iransk-
ir ungmennafélagar kaþólskir mættu
ekki koma pílagrímsferð til Róms,
þá svaraði páfinn ákveðið neitandi,
og lét opinberlega þau vtmmæli
fylgja, sent vekja munu eftirtekt um
allan heim: “Astandið er altof al-
varlegt til þess að eg ntegi leyfa
þetta,” sagði páfinn. Þótt ítalska
stjórnin hefði fullan viljá á að
tryggja öryggi gestanna, þá er hún
máttvana í því efni. Hún er i raun-
inni fangi Fascistafélaganna. Blöðin
ítolsku geta ekkert sagt. Þau eru
múlbundin. Utlendingar vita ekk-
^rt hvað við ber á Italíu, þar sem' her
vald Fascista beitir kúgunarvaldi sínu.
Stjórnin er máttlaus og er alveg á
valdi félaga þessara. Páfastóllinn
mun veita ósveigjanlegt viðnám gegn
því, að ungmerúiafélögin kaþóisku
séu kúguð undir ofurvald Fascistanna
— “Ejr vil láta heiminn vlta það,”
sagði páfinn að lokum, “að ka-
þólsku félögin eiga ekkert skylt við
hervald Fascista.”
Er ekki vafi á því, að þessi um-
mæli Píusar 11. um stjórnarfarið
ítalska munu hafa hin mestu áhrif
á miljónir manna um heim allan.
(Tírninn 25. sept.)
Erlendar
Frá Italíu
Merkur Islendingur* hefir nýlega
eins og alkunnugt er, lokið miklu lofs
oiði á Mussolini og stjórn hans á
Italiu. En þaðan berast og margar
aðrir frásagnir. I merkasta ílialds-
blaðínu danska, Berlingske Tidende,
stendur t. d. alveg nýlega eftirfarandi
Básögn, sem gefur lítt glæsilega
rnynd af réttarfarinu ítalska: Sænsk
nr kaupmaður, að nafni Bengt Dahl-
mann, var á ferð á Italíu í verzlun-
nrerindum. Austurrísk kona var í
sama járnbrautarklefa og hann, en
Fascistar voru i næsta klefa. Sýndu
teir konunni mikla ókurteisi, er hún
lór úr lestinni. Þá er lestin hélt á-
fram, kom einn -af Itölunum inn til
Faupmannsins og fór að spyrja um,
hvernig honum geðjaðist að Musso-
lini. Svíinp svaraði að sér geðjað-
ist ekki vel að Italíu. Væru ferða-
’ttenn sviknir og stolið frá þeim, en
uni Mussolini og stjórnmál gæti hann
ekkert sagt. Hann bætti ennfremur
v iÖ nokkrum orðum um framkomu
m ”l anna gagnvart austurrísku kon-
nnm. —. Þegar lestin nam staðar,
kom lögreglan, tók sænska kaupmann
111,1 Iastan og flutti hann í varðhld.
i Stgr, læknir Matthíasson.
Ritstj.
fréttir.
I hálfan annan mánuð var honum
haldið í varðhaldinu, án þess að mál
hans væri tekið fyrir. Loks var hann
látinn koma fyrir dómarann, o g voru
þá handjárn á harn sett. Hann var
dæmdur í 7 mánaða og 20 daga fang
elsi og 700 líra sckt, enda báru Ital-
arnir samhljóða vitni um það, að
hann hefði sagt að Italir væru glæpa-
menn og Mussolini væri ekki heið-
úrsmaður. Svíinn áfrýjaði máli
sínu til yfirréttarins í Triest. Mánuð
beið hann i fangelsjinu, að han.n
væri fluttur þangað, og á leiðinni
þangað var hann látinn bera hand-
járn. og var hlekkjaður við al-
ræmda morðingja ítalska. Var hon-
um nú enn haldiö um hríð í mjög
skítugu og óvistlegu fangelsi. Triest-
rétturinn stytti fangelsisvistina í 5
mánuði og 20 daga, og lækkaði sekt-
ina í 40 líra. Enn lenti þessi sænski
kaupmaður í margföldum vandræð-
um, áður en það tókst, með aðstoð
sendiherrans sænska, að fá náðun. —
Komst hann loks heim til Svíþjóðar
um síðustu mánaðamót.
— Hinn 2.-6. þ. m. átti að halda
geisilega fjölment mót fyrir ka-
þólska lærisveina í Rómaborg. ■ Attu
þeir að korna frá langflestum löndur
Norðurálfunnar, t. d. 1600 frá Frakk
landi. Alt var undirbúið til mótsins
og sjálfur hinn heilagi faðir, páfinn.
Sú fregn er símuð frá Stokkhólmi.
að- Nobelsverðlaunanefndin hafi veitt
prófessor Fibiger í Kaupmannahöfn
Nobelsverðlaun. þessá árs fyrir upp-
götvanir í læknisfræði. Er það fyrir
krabbamejnsrannsóknir, sem prófes-
sor Fibiger fær verðlaunin. — Pró-
fessor Fibiger er löngu frægur orð-j
inn fyrir krabbameinsransóknir sínar
og af mörgum álitinn fremstur vis-
'indamaöur í þeirri grein.
Frá New York er símað á laug
ardaginn, að afskaplegur jarðskjálfti
hafi riðið yfir Armeníu aðfaranótt
laugardagsins. Er talið að 600 manns
hafi að minsta kosti beðið bana, en
mörg þúsund 'orðið fyrir meiðslum.
Einna verst er sagt að borgin Lenin-
akan, sem nefnd cr svo til minningar
um Lenin hinn rássneska, hafi orðið
úti.
Afskaplegur fellibylur, nálega jafu
skæður ’þeim, er nýlega gekk yfir
Florida, æddi yfir eyjuna Cuba og
nærliggjandi eyjar á miðvikudáginn
var. Er sagt að um 650 manns muni
hafa farist, 6500 rnanns séu heimilis
lausir og að skaðinn muni nema
$100,000,000. Einna verst varð borg
in Havana úti. Er talið að um 200
manns hafi farist þar, um 1600 meiðst
og um 3200 séu þar heimilislausir.
Töluverðir jarðskjálftar gengu yfir
Californiaríki á íöstudagsmorguninn
var. Harðastir voru kippirnir í Saji^
Francisco og 'héraðinu þar i kring.
Urðu menn þar 'ákaflega hræddir,
sem von var, því enn er jarðskjálft,
inn mikli 1906 flestum í fersku.
minni. Þó mun mannskaði ekki hafa
orðið, en ýmsar byggingar og hús
skemdust að nokkru leyti, að Eetmt
er.
Símskeyti kom í gærmorgun. frá
Kaupmannahöfn og London. þess
efnis, að töluvert tjón hafi orðið
á Islandi af jarðskjálftum aðfara-
nótt mánudagsins. Er svo að sjá á
skeytunum senr jarðskjálftkippirnir
hafi ’verið harðastir á Reykjanesi,
eða í grend við Reykjavík, en ekk-
ert hefir nákvæmar frézt um skaðann
er orðið hafi.
AIl^ síðustu simfréttir frá Eng-
landi herma, að nú sé útlit fyrir þvi
að eitthvað kunni að skipast til urn
kolaþrætuna. Nefnd, er ganga skal á
milli á að ganga á fund Baldwins
forsætisráðherra í, dag, og hitta full-
trúa námumanna á morgun.
Annars virðist óánægjan með að
gerðaleysi - stjarnarinnar Sara sí-
vaxandi, enda þykir flestum bersýni
legt að hún dragi taum námueigenda.
Afskaplega illa mæltist fyrir um dag
inn, að kona með barn á brjósti var
sett í fangelsi fyrir eggjunarræðu.
Þá var og í ráði hjá stjórninni að
rnýla A. J. Cook, banan honum al-
gerlega að tala, ogjhefir hann þó
hvergi eggjað til uppreisnar. En sú
fyrirætlun mæltist svo illa fyrir,
jafnvel hjá mörgum málsmetandi
mönnum, sem er litið um Cook, að
stjórnin mun hafa séð sitt ráð ó-
vænna.
/. M. Dcnt
útgefandi hins víðkunna “Every
Man’s Library” lézt þann 9. maí þ.
á. í South Croydon, 77 ára að aldri.
Hann lagði stund á það, eins og
flestum enskulesandi mönnum er
kunnugt, að gefa út vandaðar bæk-
ur og selja ódýrt. Hann settu sér
ungur það mark, að í Everyman’s
Library” skyldu vera 1000 bindi. —
Þegar hann dó, voru 780 bindi komin
út. Yfir 20 miljónir eintaka af
þessum bókurn hafa verið seld.
Mr. Dent var aldrei heiðraður op-
inberlega fyrir hið mikla og þarfa
starf sitt. /
----------x---------
Frá íslandi.
Rvík 5. okt.
La ndsst mmfmæliS var hátíðlfcgt
haldið með veglegri veizlu að Hotel
Island kvöldið 29. f. m.. Sátu hana
um 130 manns. Ræður fluttu auk
landssímastj óra, atvinnumálará^iherr-
ann Magnús Guðmundsson, fyrir
landssímastjóra, Gísli J. ölafsson
fyrir landssímanum, G. Björnson
landlæknir fyrir minni H. Hafstein,
Klemens Jónsson fvrir minni Islands,
Andrés G. Þormar fyrir minni
kvenna, G. Hlíðdal bar frarn þakkir
til ýmsra starsmanna símans fyrir
Forberg landssímastjóra, sem ekki
treysti sér til langra ræðuhalda sök
um vanheilsu. Gaf Forberg elzta
simastarfsmanninum, Björnes verk-
stjóra, gullúr, og hressingarhæli síma
manna gaf hann 1000 kr. Starfsfolk
simans gaf landssimastjóra mynd, er
máluð hafði verið af honum og af-
henti hana ungfrú Soffía Danielsson.
Ymsir fleiri töluðu og fór samsætið
vel franr og fjörlega.
Mannmœlingarit próf. Guðmundar
Hannessonar er nú komið víða með-
al erlendra fræðimanna, og hafa
ýmsir þeirra skrifað um það i sér-
fræðirit og yfirleitt mjög lofsamlega.
Einhver hinn fróðasti maður urn
þessi efni, Halfdan Bryn, hefir t. d.
skrifað um bókina alllanga grein .
septemberhefti Nörsk Magasii^ fofr
Lægevidenskapen. Segir þar m. a.:
"Það er mjög mikið og gott starf,
senr prófessor G. H. hefir hér af
höndum int. Það'er sem sé enginn
hægðarleikur að safna svo miklu
mannfræðaefni á Islandi, Hér i
Noregi þarf aðeins að fá herforingja
leyfi, og er þá úr að velja eins
mörgum þúsundum manna og óskað
er. G. H. hefir orðíð að leita á
náðir góðviljaðra borgara. Hann
hefir að nokkru leyti orðið að sækja
efnivið sinn út á götur og gatnamót,
inn í samkomusal Alþingis ög á
marga aðra staði. Honum hefir tek-
ist að safna efni, sem er einstakt
í sinni röð, og honum hefir tekist að
vinna úr því á þann hátt, að það mun
vissulega verða athugað með áhuga
um öll lönd og mun halda gildi sínu
um alla tíma. Væri óskandi að aðrir
fylgdu dæmi hans annarsstaðar á
Norðurlöndúm.’’ — Annar vísinda-,
maður, van Gennep, hefir einnig n.ý
lega skrifað um bókina í franska
tímaritið Mercure de France. Segir
hann þar meðal antiars, að í bókinni
sé ekki einungis eftirtektarverð sam-
vizkusemi og nákvæmnin í meðferð
efnisins frá sjónarmiði hreinnar
mannfræði, þjóðfélagsfræði og ætt-
fræði, heldur einnig varúð höfundar
og gætni í ályktunum. Ritgerðin er
svo samvizkusamleg, segir Gennep
ennfremur, og unnin þrátt fyrir svo
marga erfiðleika og ber vott um svo
mikla þekkingu og natni, að eg er
hikandi við að setja fram nokkur
mótmæli.
. (Lögrétta.)
Fjær og nær.
Séra Ragnar E. Kvaran
flytur erindi um Islandsferð að Ar-
borg á föstudaginn kemtir, 29. þ. m.
kl. 8 síðdegis. Hann heldur og guðs
þjónustu á sama stað sunnudaginú
31. þ. m., kl. 2 e. h.
Jakobina Johnson • skáldkona frá
Seattle flytur ljóð sín á samkomu,
sem efnt er til * Fyrstu lútersku
kirkju þriðjudagskvöldið 2. nóvem-
ber. Mikitl fjöldi Islendinga héj; i
borg hefir enn ekki notið þeirrar
ánægju, að hlýða á ljóðalestur frú
Jakobinu. Kvenfélagið í Fyrsta lút-
elska söfnuði gengst fyrir þessari
samkomu frúarinnar, og vonast til að I
sem fæstir þurfi að fara á mis við
þá gieði, sem ljóð frú Jakobínu hafa 1
að færa sálum mannanna. Þau hjón
prófessor og Mrs. S. K. Hall skemta
með hljóðfæraslætti og söng milli
ljóðaþáttanna. _Aðgangur að sam-
komunni verður ókeypis, en hver og
einn lætur af mörkum eftir eigin vild
þakklætisvott til skáldkonunnar, fyr-
ir komuna hingað og skemtunina. —
Samkoman byrjar kl. 8.
Að því er islenzk blöð herma, varð
ekkjufrú Kristjana Hafstein 90 ára.
20. september síðastliðinn. Flestum
mun vera kunnugt, að hún er ekkja
Péturs amtmanns Hafstein, og móð-
ir Hannesar heitins ráðherra. —■ Frú
Kristjana er ern við góða heilsu,
eftir því senr búast niá við af svo
gatnalli manneskju og heldur óskert-
urn sál.^rkyöftum. Hún hefir |alla
æfi verið fágæt kona, að þreki,
drenglyndi ’og tilgerðarlausum höfð-
ingsskap, svo sem fleiri hennar ætt-
menn,_gn hún er dóttir séra Gunnars
í Lau t’ás’i og systir Tryggva banka-
stjóra 'Gunnarssonar.
— Sarna dag varð Tónas Kristjáns
son læknir á Sauðárkróki 56 ára gam"
all. Heyrst hefir að hann myndi
koma hingað vestur í vetur, og er
hann sjálfsagður aufúsugestur Vest-
ur-Islendinga sem fyrri.
’ Vcitið athygli.
Þjóðræknisdeildin “Frón” heldur
fyrsta fund sinn á hinu nýbyrjaða
starfsári mánudagskvöldið 1. nóvem-
ber, í neðri sal Goodtemplarahússins.”
Fundurinn byrjar kl. 8.30 e. h. —
Mörg mikilsvarðandi mál liggja fyr-
ir fundinum, svo sem íslenzkukenslu-
PRÖFESSOR SKUIJ JOHNSON
var á laugardaginn skipaður aðstoð-
arprófessor í fornmálúnum við Mani-
tobaháskólann, í stað prófessors H.
J. Tracy, sem fluttist til Queen’s há-
skólans. Sem stendur er prófessor
Johnson forseti tungumáladeildar
(dean of arts) við Wesley College;
hefir hann verið það síðan 1920, að
hann tók við því enibætti af próf.
W. T. Allison.
Hann hefir verið í skólaráðinu við
Wesley College •siðan árið 1915, og
kom þá frá St. John’s Technical
School. Arið 1917 var hann skip-
aður prófessor í fornmálunum viö
Wesley College. Auk þess hefir
hann skipáð prófessorssætið í ís-
lenzku við Manitobaháskólann siðan
1915, og verið prófdómari -hins op-
inbera við íslenzku- og fornmálapróf
in við háskólann síðan 1915.
Prófessor Skúli Johnson er Hún-
vetningur að uppruna. Hann er fædd
ur í Hlíð á Vatnsnesi 6. september
1888. Foreldrar hans voru Sveinn
óðalsbóndi Jónsson, er þar bjó. í>g
kona hans Kristin Sigurðardóttir frá
Flatnefsstöðum á Vatnsnesi í sömu
sýslu. Fluttu þau hjón vestur um
íiaf í júlí 1889. Andaðist faðir hans
skömmu fetir komuna vestur. Olst
Skúli upp hjá frænda sínum Jóni
Þorsteinssyni, er nú er gestgjafi að
Gimli, Man.
Skúli er framúrskarandi námsmað-
ur og hlaut hann Rhodes verðlaunin
fyrstur Islendinga, og hefir raunar
aðeins einn Islendingur fengið þau
siðan, Joseph Thorson, fyrv. Iaga-
skólastjóri, eins og- áður hefir verið
getið um í Heimskringlu. A Rhodes
verðlaununum fór Skúli til Oxford,
sem lög gera ráð fyrir. lnnritaðist
hann þar við Oriol College og las
fornmálin, sögu og heimspeki, og
lagði sérstaklega stund á að kynna
sér sérstök tímabil í sögu Grikkja
og Rómverja, og vissar hliðar heim-
spekinnar.
Hann sneri aftur frá Oxford 1913,
sökum heilsubrests. En síðar lauk
hann B. A. prófi með fyrstu ágætis-
einkunn og því næst meistaraprófi
(M. A.), með sömu einkunn. —■-
Aúk kenslustarfa liggja töluverð
ritstörf eftir hann : þýðingar íslenzkra
kvæða á ensku, greinar og ritdómar
í blöðum og tímaritum.
Prófessor Johnson er einnig ágæt-
ur iþróttamaður. Hefir hann verið
einn af langbeztu knattspyrnuleikur-
4?m hér í fylkinu, skautamaður ágæt-
ur og “golf’’-leikari. Drengur er
hann hinn bezti og kynnist hverjum
manni vel.
málið, kosning embættismanna o. fl.
Miss Aðalbjörg Johnson hefir góð-
fúslega lofast til að flytja erindi.
Þarf ekki að orðlengja néitt um
hana eður hæfileika hennar í þeim
efnum, hún er nú þegar kunn öllum
Islendingum i þessum bæ. Vona eg
að allir Islendingar hér finni hvöt hjá
sér trl að koma á fun>tl þenna og
starfa með okkur eftir mætti. Fjöl-
mennið — styðjið þar með yðar eig-
in heill.
P. Hallsson,
ritari.
i