Heimskringla - 21.12.1927, Side 4

Heimskringla - 21.12.1927, Side 4
8. BLAÐSIÐA HEIMSKRIN Q L A WINNIPEG 21. DES. 1927 (StofnuT) 188«) Kfmnr lt á hverjtim mlOvlkDdegrl. EIGKNDUR: VIKING PRESS, LTD. 8.%3 Ogr 855 SARGBNT A VE , WINNIPEG TAI.SIMI: SÖ 537 V«rt5 blaTJslns er $3.00 árgangurlnn bor*- lst fyrlrfram. Allar borganir sendist — - ---------PRESS THE VIKING LTD. 8IQFÚS HALLDÓRS Irá Höfnum Rltstjórl. Utanámkrfft tll hlabntna: THFJ VIKI\G PIIESS, Ltd., Box 3105 ('tflii A»krlft tll rltntjdrantfi BDITOR IIEIMSKKINGLA, Box 3105 WINNIPEG, MAN. “Heimskringla is published by The Vlklnif Prew Ltd. and prlnted by CITT PRINTING A PUBLISHING CO. W53-S55 Saraent Ave.. Wlnnlpe*, Man. TelepAione: .86 53 7 WINNIPEG, MAN., 21. DESEMBER 1927 Jólin >Þau eru. eins og annarstaðar er tekið fram hér í blaðinu, langelzta fagnaðar- ihátíð norrænna manna. Löngu áður en forfeður vorir lærðu að marka til stafs, á steini eða tré, hafði heilinn mark- að tímatalinu blaðsíðu í meðvitund þeirra. Fyrsti haustdagurinn, sem bar slúðvinda og hretstorma frá úfnum og sollnum sjó inn yfir strendur og blóm- lendur Norðurlanda, og dró kuflhettu hríðarkólgunnar yfir háfjöllin og fyrsta sveljandi kafaldssúginn inn í dalina, varp. aði sölnunarblæ yfir hugskot manna, eins og yfir blöð og lauf blóma og lífgrænna jurta. Eftir því sem myrkrið og kuldinn óx á norðurhveli, eftir því óx myrkrið og depran í hjörtum hinna fyrstu forfeðra vorra, er þar höfðust við, og ráfuðu um hræbarðar merkur og stirðnaða auðn, eða leituðu sér hælis í jarðholum og hellis- skútum, í hnipri um daufan eld í döprum reyk og sótmuggu. Kynslóð hvarf eftir kynslóð, í ár og vötn, í fen og foræði, fyrir klóm og kjafti kylfu og steinexi keppinautanna: villi- dýra og fjandmanna; allt lék á hverfanda hveli: vinátta og velmegun, hjörtu kvenna og hreystin sem með garpnum bjó í dag. En eitt breyttist aldrei: Daginn er vér merkjum nú sem 23. dag desembermán- aðar, brá svo til að sólin dvaldi fáeinum andartökum lengur fyrir ofan sjóndeildar hringinn en daginn áður. Vér köllum jafnlengd þessa augnabliks mínútu, og finnst hún jafnaðarlega engu nema. En forfeðrum vorum voru þessi andartök fleytifull eilífð af fagnaðarboðskap. Undr. ið var skeð. Kraftaverkið í allri sinni dýrð, óskeikult eins og handbragð yfir- loddarans fyrir augliti bama; óbrigðult merki þess, að nú sneri herra lífs og dauða, hinn mikli alvaldur ljóss og lífs og hita, ásjónu sinni til norðurs, nálgaðist norðurregu, báiandi af líkn og náð. Um sama leyti áttu fjarskyldari frænd- þjóðir vorar sunnar í Norðurálfu, sér fagnaðarhátíð; hvíldust, léku og dönsuðu í skógarlundunum, eða í laufskálum. prýddum kornbindunum og sólþrútnum vínberjaklösum, og þökkuðu vínguðnum og korngyðjunni, helztu fulltrúum lífgjaf ans, fyrir undanfama gæzku, og fögnuðu um leið afturhvarfi hans að sunnan, í nýrri tilhlökkun, að sjá brosgeisla hans enn falla í náð yfir kornstangamóður og svignandi víndrúfnagreinar. Og öldum síðar þegar hann fæðist, er • hefir þann boðskap að flytja. er líknað hefir og svalað langflestum þeim, sem “ ekki treysta sér hjálparlaust gegnum kuldahret og myrkratíð mannlegra hörm unga, þá er sá atburður ósjálfrátt settur í samband við vonir og bið forfeðranna eftir afturhvarfi lífs- og ljóssgjafans til mannheima. Og þannig rennur stein- aldargömul ljóss.fagnaðarhátíð forfeðr- anna, saman við endurminningarhátíðina um fæðinguna í Betlehem. Vér höldum þann sið enn í dag. Og hann er svo vaxinn, að vér getum öll sam einast um þaðt hversu margt sem á bját- ar, að bjóða hvert öðru: Gleðileg jól! Heimskringla óskar öllum gleðilegra jóla; ekki síður þeim, er hún hefir minnst get- að orðið að liði, en hinum, er fært hafa henni vott um sívaxandi alúð og tryggða- vináttu. Og vitanlega ekki sízt þeim, er nú og áður hafa auðsýnt henni þá miklu vináttu, að leggja sinn skerf til þess að ritstjóri hennar gæti gert hana betur úr garði á þessum tímamótum. en í valdi hans hefði staðið, eí þeir hefðu ekki hlaup ið undir bagga með honum. Emile Walters (Frh. frá 1. bls.) Um þetta leyti, eða nokkuru seinna, fluttu fósturforeldrar hans suður til Da- kota og settust að við Garðar. Fluttist Emile þá með þeim, og með því að hann var enn á barnsaldri, var hann látinn haida áfram námi við barnaskólann þar. En litlu gekk honum námið greiðara þar en í Winnipeg. Honum leiddust lesbæk- urnar og allar bækur er við skólanh voru notaðar nema helzt landafræðin. Hún var með myndum af ýmsri gerð, lit- prentuðum. — Það. var skemtilegasta bókin. Fjórtán eða fimtán ára gamall byrjaði hann að vinna á sumrin við hjásetu og nautgripagæzlu, er drengir voru þá látnir gera. Féll honum verkið vel. Hann gat verið úti og átt hugsanir sínar sjálfur. Hafði hann þá með sér sögur og ljóða. bækur, er honum voru hugstæðari en þær er fyrirskipaðar voru í skólanum. Frá þessum árum minnist hann einkum Grett issögu, Ben Húr, ljóðmæla Þorsteins Er- iingssonar og Hallgrímskvers. Tveim árum síðar kemst hann í vinnu hjá málara, hr. Snæbirni Pálsson, er þá var í byggðinni, og kunnur er sem lista hús- og veggtjaldamálari, er K. N. orti kvæði um og kallaði “Málfræðing”. og þessi yísuhelmingur er í: “Hann var að mála hús og fjós, hugur máli fylgdi.” Ekki þorði hann þá að láta neinn vita hve mikla löngun hann hafði til þess að leggja fyrir sig málaralist. En til þess- arar vinnu hugði hann gott, er var þó aðaliega fólgin í því að mála utan “hús og fjós.” Og svo hrifinn varð hann af Snæ birni, er endur fyrir löngu varð fyrir slysi svo hann hefir gengið haltur æ síðan, að áður en hann vissi af var hann farinn að taka upp göngulag lians, og ganga haltur líka eins og hann. Um þetta leyti komst hann yfir skýrslu listaskólans í Chicago. Rýndi hann í hana á kvöldin, las hana aftur og aftur og einsetti sér að draga saman kaup sitt og komast á skólann. Safnaði hann nú saman af launum sínum er liann gat, en er hann virtist vera að nálgast takmark. ið, að komast á skólann, varð hann snögg lega veikur var fluttur til Grand Forks, skorinn þar upp og þar fóru peningarnir. Varð nú ekkert ýr Chicagoförinni í bili. f luttu nu líka fosturforeldrar hans til Saskatoon-bæjar, er þá var í mifdum uppgangi, fór hann með þeim, og seinna til Winnipeg. í Saskatoon tók hann ým. islegt fyrir, fasteignaverzluiy verzlunar námsskeið og fleira, er öllu lauk með því að hann hvarf aftur að málaravinnunni í Winnipeg fór á sömu leið. Vistaðist hann sem ritari við banka, en var sagt upp vistinni að degi liðnum. Komst hann þá aftur að stöðu við að mála og var við það er stríðið mikla skall á sumarið 1914. Var hann þá við hina miklu gistihöll Cana- diska Kyrrahafsbrautar félagsins, Hotel Royal Alexandra. Eftir að byrjað var á Iiðssafnaði, var aiiri vinnu hætt, er kom- ist varð hjá annari en þeirri, er laut beint að herbúnaði. Fór Emile því um haustið úr Winnipeg og vestur til smá. bæjar er Waldheim heitir í Saskatehé wan. Vann hann þar um tíma sem mat. reiðslumaður á greiðasöluhúsi, og í hjá stundum átti hann að skenkja á við drykkjuborðið. Biandaði hann þá mjöð- ina, er menn gerðust ölvaðir og fyllti staupin að mestu með vatni. Eftir ailnokkra #dvöl á ýmsum stöðum, Saskatoon, Waldheim og hjarðbýli við Rush Lake, hafði honum safnast svo fé að hann komst til Chicago og innritaðist þar við listaskólanji. Meðan á náms. tímanum stóð, vann hann fyrir sér með ýmsum smásnúningum, er til féllust. Á nxorgana frá kl. 7 til 9 veitti hann tilsögn í skólanum. Þrjú kvöld í viku vann bann við að ræsta skólann. Tvö misseri fékk hann vinnu við að vísa til sætis, á kvöidin kl. 8 til 11, f Grand Opera leik húsinu, en um miðdaginn við að ganga um beina í matsöluhúsi þar í grend- inni. í þrjá vetur dvaldi hann í Chicago, en a hverju sumri fór hann til Saskat- ehewan í kaupavinnu. Við skólann lagði hann aðaistund á teikningu af allskon.. ar tæi, eftir iifandi og dauðuny fyrirmynd um, en hlýddi þó jafnframt á marga og agæta fyrirlestra. Á sunnudögum sótti I hann hljómleika, því þá var aðgangur ó dyrastur, aðeins lOc. Lét hann það sér ,naagja með öðrum 10 centum, er hann lagði út fyrir kaffi og brauð á hinum ódýrari matsölustöðum; lauk svo deg- inum inni á listasafninu. Á þessum ár- um kynntist hann Hirti rafmagnsfræð- ingi Thordarsyni, er lagði honurn mörg heilræði, og kynnti hann íslenzkum fræð- um. Sumarið 1916 heimsótti hann Elverhöj, listamannanýlenduna við Milton.on-the Hudson, í New York ríki, meðfram í þeini tilgangi að komast þar að sem vikapiltur og fullkomna sig í málaraíþróttinni. Eru þar saman komnir menn úr ýmsum átt um, er leggja fyrir sig allskonar lista- smíði úr gulli, silfri og dýrum málmum, bókband. skrautdrátt, skartgripasmíði o. fl.. Varð hann mjög heillaður af þessu starfi þeirra og beiddist að mega nema af þeim. Létu þeir það eftir honum, og byrjaði hann nú á því, sem auðveldast var svo senx að hvolfa koparskálar og fleira þess háttar. Lærðist honunx smíðin von unx framar og vann hann nú fyrir sér með þessu. Á kvöldin sat hann við að teikna, það vildi hann ekki leggja niður hvað sem í boði var. Árlangt dvaldi hann þarna I nýlendunni, en að þeinx tíma liðunx kom fornxaður ný'Lendunnar honum fyrir til þess að læra gullsmíði hjá einum stærsta skrautgripasmið Chicagoborgar, John Petterson. Var hann hjá honum í tvo vetur en á sunxrin í nýlendunni. Stigu nú laun hans, svo að hann gat unnið sér inn meira fé á skemnxri tíma en áður. En því fylgdi líka sá kostur, að þá gat hann gefið sig meira við málaralistinni en áð- ur. Tímann, sem hann dvaldi í listamanna nýlendunni, kyntist hann Einari mynd- höggvara Jónssyni, er dvaldi þar lengi sumars við að undirbúa steypu Þorfinns karlséfnis, er reist var í Fairnxont Park í Philadelphia þá um haustið. Getur hann þess að Einari eigi hann meira að þakka en hann fái með orðum lýst, fyrir hvatn. ing hans og leiðbeiningar. Var hann sá eini, er lét sér annt um hann og tók þátt í kjörum hans. Með því að löngun hans varð ákveðn- ari að fylgja þeirri köllun, er hann hafði vaiið sér sem málari, skrifaði hann The Pennsylvania Academy of Fine Arts, þá um veturinn, og spurðist fyrir um það, hvort eigi væri unnt að hann gæ-ti haldið áfram námi, hálfan daginn og unnið fyr- ir sér hinn hlutann. sem eftir væri. Var þessu ráðstafað fyrir hann af forstöðu- möjnmum skólans. Um vorið er ha.nn kom til Philadelphia, hafði hann eina $10.00 í vasanum. Dvaldi hann þá um kyrrt í viku hjá Einari og konu hans, er hvöttu hann mikið til þess að halda nám- inu áfram. Er harm kvaddi þaa, rétti Einar honum lokað bréf — í því voru tveir $50.00 seðlar, gjöf frá þeim hjónum, $50 frá hvoru um sig. Peninga þessi geymdi Emile þangað trl í nauðir rak. Sökkti hann sér nú niður í námið við skóiann, eftir því sem ástæður leyfðu. Sat hann við teikningar fyrri hlut dags- ins, en eftir hádegið vann hann við gras- skurð á skólavellinum, eða annað er hon- um var fengið að gera. Það að hann var tii neyddur að nota morgunstundina til að teikna, hefir ef til viil orðið honum til láns, því þá er birtan bezt og biæfegurst, og eigi því líkt eins hörð og skerandi og hún verður er líður fram um hádegið. Við skólann dvaldi hann árlangt; en varð að því búnu að hætta sökum e’fna. skorts. Bauð skóiinn honum þá $150.00 námsstyrk, en eigi treysti hann sér til að taka þvf. Leigði hann sér nú vinnustofu í þorp- inu Derby Creek í Pennsylvania, í féiagi við kunningja siiin einn frá Wa’shington Gróðafyrirtæki var það ekki, og innan iítils tíma varð annara bragða að neyta. Fór Enxile þá til New York og komst að svonefndri brpta-vinnu hjá myndablaðinu aikunna “Pictorial Review”. En það er kölluð brota-vinna, að margir eru settir við að teikna sömu myndina, einn teikn ar hendur, annar fa-ttur, þriðji höfuð og axlir o. s. frv.. Emile átti að teikna bakgrunn myndanna, er útheimti sérstaka ‘stærðfræðilega æfingu. Eigi urðu hús. bændur hans ánægðari með verkið en svo að eftir vikuna var hann rekinn. Fór han þá til Philadelphia vita félaus. Vildi honum það þá til happs að hann hitti einn kennaranna frá The Pennsyl- vania Academy of Fine Arts er hafði með ferðis bréf frá gullfangasalanum alkunna Mr. Tiffany, er beðið hafði þenna kenn- ara að benda sér á einhvem þann ungan nxann, er honum þætti þess maklegur að njóta námsstyrks við hina nýju Tiffany. listastofnun við Oyster Bay í New York. Lagði nú Academíið með Emile og hlaut hann, námsstyrkinn. er nam $2000.00. Var hann sá fyrsti, er þann heiður- hlaut. Eftir samtaliö við kennarana, hélt Ihann til New York aftur, og hafði nieð sér smíðisgripi sina pg mynd- ir. Meðan liann beið eftir úrskurð- inum um námsstyrkinn fékk ihann sér verustað í súðherbergi nokikru, svaf þá í öllum fötum og hafði yfirfrakk- annn ofan á sér. Var ihonum þá til- kynnt að veittur ^væri honum náms- styrkurinn, en með því að verið væri að koma stofnuninni í lag, hlyti það að dragast óálkveðið að skólinn gæti tekið til starfa, á meðan yrði hann að bíða. Fór hann þá til yfirmanns stofnunarinnar og beiddist leyfis um að mega hjálpa til við að koma skóla stofunum í lag, mála þær innan og skreyta eftir því sem ákveðið væri. Var honum veitt það, og komst hann á þann Ihátt í kynni við Mr. Tiffany. Hélt hann nú til hjá honum eða var á hans vegum meðan á þessu stóð. Tók Mr. Tiffany mikinn þátt í kjör um hans og hvatti hann til þess að halda áfram við gullsmíðina, en Emile tregðaðist við og vildi ógjarna hætta við málaraíþróttina. Varð þetta þeim að ágreiningi, en sem betur fór, eiigi til ósáttar, iþótt sinn væri á hvoru máli. Lagði nú Emile alla stund á málningu í hjástundum sínuni. Um veturinn fór Mr. Tiffany til Florida. Notaði Emile tímann á meðan til þess að ljúka við þær myndir, er hann * hafði í smíðum, og gat nú sýnt Mr. Tiffany allmargar myndir um vorið, er hann kom til haka aftur. Leizt Tiffany svo vel á, að eftir það varð hann því aflhuga að gera úr honum gullsmið, en hvatti hann til að halda við málaraíþróttina og hét honum aðstoð sinni. Varð Emile þetta til hins mesta gagns, og komst hann nú á þann hátt í kynni við ýmsa ihelztu menn þar um slóðir, þar á meðal við ekkju og sonu Roosevelts forseta, er hjuggu við Oyster Bay, í námunda ið málaraíþróttina og hét honum myndagerð sína í grend við Saga morehæð, kom Mrs. Roosevelt til hans, spjallaði við hann um heima °g geima, og lagði honum að lokum ýmiskonar móðurleg heilræði. Fram til þessa hefir Mr. Tiffany haldið try£gfi við hann og boðið honum til sin oft og mörgum sínnum, á hið ríkmannlega setur sitt á Long Island. Síðastliðið ár var Emile tekinn upp ■ hið svonefnda Tiffany-gildi, og he'fir aðeins fjórum mönnum hlotn- ast sá heiður hingað til. Vorið 1922 fer Emile a/ftur að Pennsylvanía Academíinu, málar þar um sumarið. Semur hann þá við Pennsylvania State College, að kenna dráttlist við sumarnámsskeið skólans. Jafnfranif vann hann af kappi við málverk sín. Leigði hann sér þá afar mikið kjallarajherbergi, til þe6s að geta komið verki sínu betur fyrir, er áður hafði verið notað fyrir hitun- arvélar i byiggingunni. Var það eig inlega ekiki aðlaðandi staður fyrir væntanlega viðskiftavini. Þó rötuðu þar á hann ýmsir listavinir, og þar á meðal unga stúlka að nafni Miss Norris, dóttir miljónamærinigsins Dr. Henry Norris, í Chapel Hill í Nortth Carolina. Skoðaði Ihún myndasafn hans og dáðist einkum að einni mynd lnni’ er hann nefndi “Snjókoman”. Fékik hún föður sinn til þess að kaup i myndina og borguðu þau honum $200 fyrir. Var þetta fyrsta mynd- m er hann þanni^ seldi. Fór nú að rakna fram úr fyrir ■ honum eftir l>etta, ogj má segja að þetta yrði byrjunin að þeirri viðurkenningu, er hann hefir hlotið. Kennarastöðunni við The Pennsyl- vama State College Jheldur hann enn. Kenmr hann teikningu 0g gullsmíði. Hefir aðsókn vaxið svo, að tveir aðstoðarkennarar hafa verið skipað- ir honum til léttis. . Meðal þeirra manna er Emile segir, að hafi stutt sig einna bezt á listamannsibrautinni, nefnir hann Einar myndhöggvara Jónsson fyrst- ann. A þeim tímamótum er erfið- ust hafi verið á æfi sinni, segir hann að Einar hafi styrkt sig og hug- hreyst fram yfir alla aðra. Þá getur hann og þeirra hjóna, Mr. og Mrs. W. J. Johnson í Uniontovvn, Pennsyl- vama, er ei,ga eitthvert hið fullkomn- asta listasafn eftir ameníslka lisla- menn, sem til er í einstaWa manna eigu í Bandaríkjunum. Tóku þau hann undir sinn verndarvæng, er landslagsmyndir hans fóru að vckja DODD’S nýmapillur eru bezta nýrnameðalið. Lækna og gigt, bakverki, hjartabilun, þvag- teppu, og önnur veikindi, sem stafa frá nýrunum. — Dodd’s Kidney Pills kosta 50c askjan, eða 6 öskjur fyrir $2.50, og fást hjá öllum lyfsögum, eða frá The Dodds Medicine Co., Ltd. Toronto, Ontario. eftirtekt listfróðra manna í Ame- ríku. Hafa þau sýnt honum ,hina stökustu alúð og umhyggjusemi, og komið honum í kynni við menn, er leggja sérsta/ka stund á að safna listaverkum, sem ekki er ónýtt um- komusnauðum og fátaékum listanianni,. Hafa ýmsir orðið til þess að kaupa af honum myndir, bæði fyrir listasöfn og menntastöfnanir. Hefir þannig ó- skiljanlegur fjöldi mynda ihans dreif ;t út og það á skömmum tíma. Fjöldi þessara mynda hafa verið' hafðar vnðvetgar á mynidasýningum og hlotið verðlaun. Má sérstaklega geta einnar, “Full Bloom’ er nú er r Reykjavík. The National Academy of Design í New York úthlutaði hon um The J. Francis Murphy Memorial Prize, fyrir þá mynd, og er Einile annar Islendingurinn, er hlotið hefir viðurkenningu þessarar stofnunar; hinn er Albert Thorvaldsen. Sem ýmsum lesendum Heims- kringlu mun kunnugt, hefir Emile að allega lagt fyrir sig aö mála lands- lagsmyndir. Segja listfróðir menn að hann sé snillingur við lithlöndun. Eru það einkum hin fögru blæbrigði morgunljóssins, er koma hvað bezt fram í niyndum hans. Flestar eru myndirnar teiknaðar í Ný-Englands ríkjunum og á Long Island, og efn- ið fengið þaðan.” Með þessu lýkur æfisöguágripinu. Með línum þessum hafði eg hugsað mér að birta nokkrar eftirlíkingar, af myndum hans; en við frekari iihug un hætti eg við það. Gefa slJkar blaðamyndir enga hugmynd um mynd irnar sjálfar, þars ekki er unnt að birta þær í litum. Læt eg því nægja að birta aðeins mynd listamannsins sjálfs, er flestir nuinu kannast við. Fyrstu erfiðleikarnir virðast vera yfirstígnir. Hefir hann barist góðri baráttu og sigursælli. Hvað hans bíð ur hér eftir fær framtíðin ein íeyst úr, en Hkindi eru til að hinu erfið- asta sé lokið. t hvaða áliti hann er hjá Banda- ríkjaþjóðinni, má nokkuð ntarlka af því, sem unt hann\ stendur í átbók- (Fih. á 12. bls.) Fingratöfrar (Fnh. frá 5. bls.) hann vsari að telja á sér fing- urna, en niisteldist altaf. Eg sneri hurðarsnerlinunx, lauk UPP og gekk inn. En við að heyra marrið í hurðinni, greip Týri hamar sinn í skyndi, og var farinn að negla hæla á skó, þegar eg var kominn inn á niitt gólfið til hans. Eg Iét auðvitað á engu bera, fékk hon- um skóna, settist, óg tók að ræða við hann á víð og dreif, eins og géngur. Tók hann því vel, en vann þó að mestu með- an hann rabbaði við mig. Mér hafði alveg veriö úr minni lið- ið samtal okkar um fonxmenn- ina, fingurna og ræðugarpana, xangað til eg sá til hans þetta kvöld inn um gluggann. Ein- hvern veginn minti það mig á kvöldið fyrir hálfu öðru ári síð. an, og einhvern veginn gat eg ekki annað en sett það í sam- band hvað við annað. Eg leiddi samtalið að ræðumönn- um með hægð, og spurði hann

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.