Heimskringla - 29.08.1928, Qupperneq 1
Rov. R. Pétursson x
45 IIoiiib St. — CITY.
V«r ðnnumn vltlikKH vl* uUnb*jarm<
rarB mik.il 11 nlkvæmnl og: flýti.
f.
ELLICB AVE., and SIMCOE STR.
Winnlpeg; —:— Man.
Dept. H.
PATALITUN OG HREIM9UM
Kiiicm Ave. aad Simcoe Str.
9
jnmu jjiaj — +YZLZ P"IS
Hmttar krrinaafilr og endurnýjatiir.
Betri hreinsnm jafnddýr.
XLII. ÁRGANGUR.
WINNIPEG, MAN., MIÐWKUDAGINN 29. ÁGÚST 1928
NÚMER 48.
HVAÐANÆFA
Miöstjórn Hveitisamlagsins í
' Caiiada auglýsir frá E. B. Ramsay,
ritara og framkvæmdarstjóra, aö
fyrsta niöurborgun fyrir uppskeruna
1928—29 verði 85 cent á mælinum,
miðað við No. 1. Northern í Ft.
Wliliam. Kvað Mr. Ramsay þetta
vera í santræmi við starfsemi fél-
agsins frá byrjun. Alberta sam-
lagið hefði greitt 75 cent á mælin-
um er það byrjaði 1923, og næstu
fjögur árin var niðurborgunin $1.00.
Hefir hún alltaf verið miðuð við
maúkaðsverð í Ibyrjun uppskeruárs-
ins, en kemur að engu leyti undir
því hvað samlagsfélagar fá að lok-
um fyrir mælirinn.
Mr. Ramsay segir ennfremur:
“Vér byrjum árið með hérumbil all-
ar birgðir seldar. Lausafregnir,
sem bornar hafa verið út í sumar, á
þá leið að samlagið lægi enn rheð
miklar birgðir eru algerlega ósann-
ar.
Hin nýgreidda borgun til samlags-
félaga, er kom verðinu fyrir hveiti
þeirra árið sem leið upp í $1.40, er
þeir þegar hafa fengið á mæHrinn,
ætti að hafa sýnt hvílík fjarstæða
þessar fregnir eru. Sá mikli meiri
hluti bænda í Vestur-Canada seni
endurnýjað hefir fimm ára samning
sinn við samlagið, er full sönnun
þess, að trú meðlima á samlaginu,
sem ábyggilegum vörumiðli, er óbif-
anleg.
Sökum auglýsinga er blaðinu bár-
ust á síðustu stundu verður margt,
er fullsett var að bíða næsta blaðs.
Mr. og Mrs. Bergsveinn Long fóru
á föstudaginn kynnisferð suður til
Chicago, til þess að heilsa upp á
son sinn George Long rafmagns-
verkfræðing, er þar er búsettur.
Hin nýkosna stjórnarnefnd Fiski-
samlags Manitoba, átti fund með sér
þegar á laugardaginn var til þess að
kjósa sér stjórn. Var Paul Reyk-
dal fyrrum kaupmaður að Lundar
kosinn forseti, Guðmundur F. Jónas-
son, kaupmaður frá Winnipegosis
kosinn aðal framkvæmdarstjóri (gen-
eral manager) og E. Walker, fyrrum
fiskikaupmaður frá Winnipeg kosinn
ritari. , s (
Sjö-systra fossarnir íiafa tverið
mjög á döfinni undanfarið. Kom
Stewart innanríkisráðherra til fund-
ar við Bracken forsætisráðherra
Manitobafylkis nýlega, en ekki gekk
saman með þeim, um afhendingu
fossanna. Bæði Thorson og Mc-
Diarinid mótmæltu enn við Stewart,
að fossarnir yrðu fengnir í hendur
strætisvagnafélaginu. En vafalaust
er talið, að endanleg ákvörðun verði
tekin þessa viku.
Mánudagsmorguninn 20. þ. m.
vOru gefin saman í hjónaband í St.
Mary’s kirkjunni hér í borginni
Miss Anna Thordarson og Mr.
Ferdinand J. Fectean. Svo höfðu
brúðhjórtin og nokkrir boðsgestir
morgunverð hjá Mr. og Mrs. M.
Peterson í Norwood , og að því
búnu fóru hin nýgiftu hjón með
Kyrriahafslestinni vtestur til Van-
couver, Seattle og Portland, og Það-
an til Chicago og Toronto, en í
síðastnefndri borg verður framtíðar
heimili þeirra. Vinir og vandamenn
óska hinurn ungu hjónum allrar gæfu
og blessunnar.
M.
p. t. Winnipeg,
28. ágúst, 1928.
Sökum þess að ég er á förurn heim
til Islands, þá finn ég mér það skylt,
að þakka Vogar- og Siglunesbúum
við Manitobavatn, er komu sarnan á
einu myndarheimili byggðanna,
sunnudaginn 29. júlí, og afhentu mér
þar að skilnaði vandaða ferðatösku.
Já, ég þakka ykkur Öllum fyrir sam-
veruna. og það er áreiðanlegt, að ég
gleymi engu : ykkar, eða byggðinni
okkar góðu.
Sigurður Frceman.
----------x-----------
Fjær og nær*
Vér viljum vekja athyggli les-
enda á auglýsingu sem hér er í
þðrum stað frá Björgvin Guðmunds-
syni A.R.C.M. An þess að litið sé
til meðfæddra gáfna Mr. Guðmunds
son, þá hefir hann nú fengið þá
mentun á sviði hljómlistarinnar, sem
sjaldgæf er meðal Islendinga.. Sam-
vizkusemi hans er alkunnug ollum
sem til hans þekkja.
Vér viljum beina athygli lesenda
að auglýsingu á öðrum stað hér í
blaðinu frá Miss Þorbjörgu Bjarna-
son, L.A.B., um tilsögn, er hún veit-
ir í pianoleik og hljómfræði. Miss
Bjarnason hefir með réttu unnið sér
mikið álit fyrir pianoleik sinn og
ágæta músíkhæfileika og þekkingu
yfirleitt.
Yfirlýsing !
Fyrir neðangreindar ástteður til-
kynnist hérmeð öllum Vestur-Islend-
ingum, að sjálfboðanefndin No. 2.
segir af sér, og starfar ekki frarn-
ar að heimferðarmálinu.
1. Þareð próf. Jónas Pálsson er
orðinn sáttasemjari, eins og sjá má
af hinni hugnæmu, sannleiksrænu,
etc., etc. grein hans í síðasta Lög-
bergi.
2. Þareð Cunard línan er búin að
setja fast allt skyr, hangikjöt og
kaffi í næstu þrjú ár, og engin tök
fyrir aðra að ná í spón, bita eða
baun; er þetta fyrsta og æðsta skil-
yrði til þess að Vestur-Islendingar
uni hag sínum á heimferðinni.
Þareð téð CunarldMína deyfir
væntanlegum Islands-förum að velja
um þrjú farrými, fyrir ekki hærra
fargjald en öðrum.
4. Þareð heimfararnefndin sjálf
er í bréfasambandi við hátíðarnefnd.
heirna á Islandi, og er að sjálfsögðu
búin að panta alla skötustöppu, skyr-
hákal, súrsaða sundmaga og annað
góðgæti, sem mestu varðar.
5. Þar eð Maíkkensi Kongur
kveðst þurfa sjóflotans með, sum-
arið 1930, til þess að halda friði á
hafinu, milli íslenzkra óróaseggja.
(Hann hvað vera á förum til að
skrifa undir Kellogg-samninginn).
Allra þessara hluta vegna og
margra fleiri, leggur nefndin niður
starf sitt; en þakkar öllum þeim.
sem hafa sótt um farbréf á drekun-
um, fyrir tiltrú þeirra í garð nefnd-
arinnar.
Fyrir hönd sjálfboðanefndarinnar
No. 2.,
J. P. Pálsson.
Sétta Ársþing
(Frh.)
v^ð kveldinu (laugardag) héldu
fulltrúar Sambandskvennfélaganna
ársfund sinn. Að honum loknum
flutti frú G. Johnson erindi um
“Islcnzkan heimilisiðnað og hann-
yrðir,” menningargildi þeirra og
möguleika austan hafs og vestan.
Ennfremur skemtu þar tveir list-
hornleikarar Ný Islands, með ágætu
tvíspili.
4. Fundur
Fjórði þingfundur settur af for-
æta sama dag og sama stað, kl. 10.
30 að kveldi. Með eimlestinni
höfðu þinginu bæzt fleiri gestir, þar
á meðal Dr. Rögnvaldur Pétursson.
I tilefni af komu hans fór forseti
nokkrum orðum um þann heiður, er
Meadville GuðSfræðisskóIinn, <—Sam
bandsskóli Chicago háskólans —
hefði auðsýnt þessum mæta vini og
frumherja frjálslyndra íslenzkra trú-
mála vestanhafs, — er hann var
sæmdur þar doktorsnafnbót í guð-
fræði, síðastliðinn 12. dag júnimán-
aðar. Samfagnaði þingheimur dokt
ornum, með því að rísa úr sætum.
Séra A. E. Kristjánsson bar þá
fram tillögu, er margir studdu, þess
efnis, að votta fulltrúum kvennfél-
aganna virðingu og þökk þingsins
fyrir ágæta þátttöku í þinginu, með
sérstöku tilliti til hins snjalla erind-
is er frú G. Johnson hafði flutt
Risu safnaðarfnlltrúar úr sæti til
samþykkis með lófaklappi.
I stuttu fundarhléi, meðan beðið
var fundarbóka, gerði dr. Pétursson
grein fyrir árangrinum af fyrirlestra
för Dr. Auer, til Islands síðastliðið
haust. Kvað hann Dr. Auer mjög
ánægðan yfir dvöl sinni á Islandi, og
áhugasamann um það, að við há-
skóla Islands verði sem fyrst stofn-
aður, vestan um haf, fastur kenn-
arastóll í vísindalegri guðfærði.
Benti Dr. Pétursson á nauðsyn þess,
að afla fjár til fyrirtækisins, og
taldi líkur á því, að féð næðist sam-
an.
Þá las forseti inntökubeiðni frá
Mímissöfnuði við Dafoe, Sask. Var
beiðnin samþykt með fagnaðarlátum.
Varaslkrifari las þá upp fundar-
gjörð síðasta fundar. Var hún
samþykt með öllum greiddum atkvæð
um.
Alit útbreiðslumálanefndar lá þá
fyrir til umræðu. Séra G. Árnason
hafði orð fyrir nefndinni og las á-
litið svohljóðandi:
“Nefndin leggur til:
1. (a) Að, reynt sé að nota íslenzku
vikublöðin eins mikið og unt er, til
útbreiðslu mála vorra, með því að
birta þar ræður og ritgerðir, um
frjálslynd mál, og vill sérstaklega
hvetja presta félagsins og aðra
ritfæra menn til þess að vinna að
þeesu, eftir því sem t'tmi og kring-
uínstseður frekast leyfa.
(b.) Að, væntanleg stjórnarnefnd
kirkjufélagsins revni að komast í
sanfband við útgefendur tímarits-
ins “Straumar,” í því skyni að fá
þá til þess að stækka ritið, og
taka í það ritgerðir héðan að vest-
an, með því skilyrði að hún vinni
að aukinni útbreiðslu þess meðal
Vestur-Islendinga.
2. (a) Að reynt sé að koma á presta
skiftum við og við, nteð vilja allra
hlutaðteigenda> er efaliaust myndj
S^æða áhuga og aðsókn, samúð og
samvinnu innan kirkjufélagsins, og
sjái félagið um greiðslu nauðsyn-
legs ferðakostnaðar í þessu sam-
bandi.
(t>)Að prestar og leikmenn kirkju-
félagsins geri meira en igert hefir
verið hingað til til þess að útvega
söfnuðunum nýja meðlimi, og leiti
yfirleitt meiri stuðnings fyrir mál
vor nieðal utans(afnað|armanna.
3. Nefndin mælir fastlega með því,
að bygðir Islendinga, sem enn
hafa ekki notið prestsþjónustu af
vorri hálfu, verði heimsóttar af
prestum •kirkýufólagsins eins oft
og þeim er unt, og vill hún sér-
staklega benda á bygðirnar fyrir
norðan Ameranth, Reykjavík og
Lonely Lake, Steep Rock, Hay-
land og Siglunes, Swan River.
Mikley, Winnipegosis og North
Dakota. Gæti þetta orðið til þess,
að síðar meir yrðu söfnuðir stofn-
aðir i einhverj*ru þessum bygðar-
lögum, samkvæmt skýrslum þeim,
er heimsækjendur gæfu til stjórn-
arnefndar.”
Samþykt að taka nefndaráfitið
lið fyrir lið.
Um 1 (a)-lið tóku til máls dr. Pét-
ursson, séra G. Arnason, P. K. Bjarna
son, séra A. F. Kristjánsson, G. O.
Einarsson og J. Sigvaldason. Séra
Friðrik A. Friðrilcsson lagði til, frú
Swanson studdi, að liðurinn væri
samþyktur. Samþykt.
Um 1 (b)-lið urðu miklar umræð
ar. Ræðumenn: Séra G. Arnason,
séra Þorgeir Jónsson, séra A. E.
Kristjánsson, B. B. Olson, séra Fr.
A. Friðriksson og dr. Rögnv. Pét-
ursson. En þar er áliðið gerðist
kvelds, þótt sýnt að fundurinn gæti
ekki afgreitt nefndarálitið að fullu.
Tillaga frá dr. Pétursson, studd af
frú F. Swanson, að fresta aígreiðslu
1 (ti^-liðs og nefndarálitsins í heild
til næsta fundar, næstkomandi mánu-
dag, kl. 10 f.h.
Fundi slitið.
*
K irkjuví gslan
Sunnudaginn 8. júlí kl. 2 e.h. hófst
vígsla hinnar nýsmíðuðu kirkju
Sambandssafnaðarins í Arborg. Var
mun meira fjölmenni viðstatt, en
búist var við. Mjög árla um morg-
uninn byrjaði að rigna, og rigndi
uppstyttulaust þangað til síðari hluta
dags. En, þegar undanfarna daga
voru brautir orðnar lítt færar eða
ófærar. Kirkjan var þó furðulega
fjölsetin. Og á því höfðu menn
mjög orð, á eftir, að yfir þessari
vígsluathöfn og guðsþjónustu hefði
hvílt einkar fagur og innilegur blær.
Þótti stundinni og fyrirhöfninni vel
varið, og höfðu þó sumir komið
gangandi í regninu og ófærðinni 6
mílna leið.
Vígsluræðuna hélt forseti Kirkju-
félagsins séra Ragnar E> Kvaran.
Sem fulltrúi fyrir “American Uni-
tarian Association,” er fjárhagslega
studdi söfnuðinn til kirkjubygging-
arinnar, talaði dr. Rögnv. Pétursson.
Þá kom fram fyrir hönd safnaðar-
ins, forseti hans dr. S. E. Björnson
og lýsti yfir réttindum safnaðarins
og skyldum í sambandi við kirkjuna.
Séra Friðrik A. Friðriksson flutti
kirkjuvígslusálm. Þá hélt séra
Þorgeir Jónsson, prestur safnaðarins
ræðu, og að síðustu ávarpaði séra
ÆTTGEIGUR
Pévon hefir flest oss bættt,—
Fjölgi í snauðra sjóði:
Þrælamál og þrælasett
Og þrælslund — allt er gróði.
Mansal fomt er minnistætt,'—
Manngjöld, blóði ötuð.
Þó er verra ef þrælaætt
Þjóðin sjálf er glötuð.
Trega eg bæði leynt og ljóst:
Lýð minn brestir kúga,
Og — ef þraalar íslenzk brjóst
Einhvern tíma sjúga.
Mér finst dauði sjálfa sál
Sveipi grafar þunga,
Þegar blessað móðurmál
Mælir engin tunga.
Jónas A. Sigurðsson.
5. Fundur
Mánudaginn 9. júlí, kl. 11 f. h.
var fimti starfsfundur Kirkjufélags-
ins settur af forseta, sama stað og
áður.
1 (b) -liður Utbreiðdlumáflanefndar-
álits lá fyrir til agreiðslu. Tillaga
kom frá séra A. E. Kristjánssyni,
Mr. S. Eldjárnsson studdi, að sam-
þykkja liðinn. Um tillöguna ræddu
dr. R. Pétursson, séra A. E. Kristj-
ánsson, B. B. Olson, séra Fr. A.
Friðriksson og séra G. Arnaslon.
Séra R. E. Kvaran mælti með því
að Kirkjufélagið gæfi út sitt eigið
tímarit. Séra Þorgeir Jónsson
lýsti afstöðu útgefenda “Strauma”
og taldi þá fúsa til samvinnu. Séra
Fr. A. Friðriksson bað þingið að
gera sér þess grein, að frjálslyndir
Islendingar austan hafs og vestan
væru í stórri skuld þakkar og viður-
kenningar við útgtefendur “Strauma.’’
Einarðlega og vel hefðu þeir staðið
gegn fyrirgangi íhaldsguð,fra?tðinnar
og þeirri tilslökunar- og úrkynjunar-
stefnu, er í seinni tið hefði rekið
upp höfuðið í herlbúðum íslenzkrar
nýguðfræði. Hvatti hann til, að
þótt ekki yrði af samningum, né
beinni, verulegri samvinnu við
“Strauma” að útbreiða þá hér vestra
eftir megrtj. Breytingartillaga sr.
G. Arnasonar, studd af B. B. Olson,
að vísa þessum lið álitsins aftur til
nefndarinnar, var samþykt.— Til-
laga kom frá dr. R. Péturssyni, dr.
S. E. Björnsson studdi, a‘ð samþykkja
2 (a)-lið. Samþykkt umræðulaust.
Tillaga frá S. Eldjárnsyni, studd af
G. O. Einarssyni, að samþykkja 2
(b)-lið, var saníþykkt umræðulaust.
I sambandi við 3 lið bentu rnenn á
að sjálfsagt væri ástæða til að heim-
sækja fleiri bygðir en nefndar væru
í nefndarálitinu. Tillaga G. O.
Einarssonar, studd af dr. S. E.
Björnsson, um að samþykkja liðinn,
var samþykt.
Gjaldkeri lagði þá fram fjárhags-
skýrslu sína fyrir líðandi starfsár:
Tckjur og eigur:
Peningar í ahn. sjóði,
” Piney .. 20.00
L/ » Riverton ■ - 25.00
» Shoal Lake and Otto . .. 10.00
>» Winnipeg .. 75.00
»» Wynyard .. 25.00
Tuckerman School-sjóður
Frá Árborgarikvenrtfél . 10.00
»» Árnessöfnuði .. 25.00
Gimli Kvennfél. —■ .. . 15.00
»> Langruthsöfnuði .. 35.00
»> Mary Hill söfn .. 15.00
»* Oak Point söfnuði .. 10.00
>> Piney söfnuði *. .. 5.00
>> Riverton söfnuði .. 20.00
» Winnipeg kvennfél. .. 50.00
V ” (Aldan) .. 25.00
Safnað af séra Fr. A. Fr. .. .. 57.00
AIls - - 888.65
Vtgjöld
Ferðakostnaður ......
Sunnudagaskólabækur
Tuckerman-skólinn ....
Rentur af láni —- ....
I sjóði .............
Alls
$47.65
147.60
350.00
4.35
339.05
888.65
Albert A. Kristjánsson viðstadda á 18. júní 1927 .... $159.15
enskri tungu. Stór og vel undir- Vtbreiðslusjóður 43.50
búinn kirkjusöngflokkur aðstoðaði Tímaritssjóður (frá fyrra ári 43.00
við athöfnina. (safnað af J. M.
Hin nýja kirkja í Arborg er, ytra Melsted, Wynyard 21.00
og innra séð, hið viðfeldnasta og Tckjur af Sunnudagaskóla-
vistlegasta hús, og vitanlega smðin bókum 95.00
eftir þörfum hérlends safnaðarlifs Iðgjóld safnaða Frá Arborg
til guðsþjónustu- og samkomuhalds. Er ástæða til að óska Sambandssöfn . 15.00
uðinum hjartanlega til hamingju með ” Arnes . 10.00
’þetta nýja, góða heimili sitt, og ” Gimli . 30.00
þann trúarlega hreinlyndisáhuga, er ” Langruth —- .. 20.00
vakið hefir safnaðarhreyfinguna og ” Mary Hill .. 20.00
hennar verklegu framkvæmdir. ’’ Oak Point .. 10.00
Yfirskoðuð af B. B. Olson og G.
O Einarson var skýrsla gjaldkera
fundin rétt að vera. Lögðu yfir-
skoðendur til að skýrslan væri sam-
þykt. Sarrtþykt umræðulaust.
Gjaldkeri tilkynnti þá, að Kirkju-
félagið skttldaði Tuckerman skólan-
um $195.00, og lagði til að sú skuld
yrði greidd úr kirkjufélagssjóðí,, í
stað þess að leita frekari samskota.
Frú F. Swanson studdi. Samþykt
í einu hljóði.
Fundi slitið.
6. Fundur
Sjötti þingfundur settur sama stað
og sama dag kl. 2 e. h.
1 (b)-liður útbreiðslumálanefndar-
álits var tekinn til umræðu, endur-
skoðaður af nefndinni, svohljóðandi:
“Nefndin leggur til að stjórnar-
nefnd Kirkjufélagsins geri fullnaðar
rannsókn á því, hvort unt verði fyrir
kirkjufélagið, að gefa út tímarit, og
verði niðurstaðan jákvæð, þá verði
því hrundið í framkvæmd, eins fljótt
og unt er.”
(Frh.)
Bræðrakveld verður í St. Heklu
I. O. G. T. núna á föstudaginn 31.
ágúst. Allir G. T. velkomnir.
Einnig hefir verið ákveðið að halda
Tombólu stúkunnar mánudaginn 17.
september. Nánar auglýst síðar.