Heimskringla - 23.01.1929, Page 1
FATALITUN OG HREINSUN
■Um Are. aad Slmcoe Str.
8(ml 37244 — tvær llnnr
Hattar hreinaatUr o£ endurnýjatitr.
Betrt hretnana Jafnödýr.
NÚMER 17
XLIII. ÁRGANGUR
WINNIPEG MIÐWKUDAGINN 23. JAN., 1929.
Ágætustu nýtízku lituaar og fatnhr.ln.-
unarstofa í Kanada. Vark unniV 4 1 ð«cL
ELLICE AVE., and SIMCOE STR.
Wlouipeg —:— Man.
Dept. H.
S06090sc09000ð000»60000ccs0se00000060s000000050000s«
I FRÉTTIR {
0508090C0999956000008090Scae0800060080BOSOeG860089BC«
KAN A DA
Agnes Jónatanssdóttir
Finnbogason
Fædd 6. júní, 1855 — Dáin 18. des., 1928
Foldina hylur fölið mjúkt.
Frosið er vatn við sand.
Und fölinu hvílast flestir þeir,
sem fyrstir hér námu land.
En uppi í mannlreimum eru jól.
Enn þá hækkar sól,
En ofar og fjær eru englar þeir,
sem oss buðu fyrstu jól.
Hvar er vort íslenzka æfintýr,
sem ólifað dreymt var hér?
Móðir jörð breiðir sitt bjarta lín
á barnið í faðmi sér.
Ármorgni lífs er í aftan breytt,
aftni í næturgrið,
gullbrúðkaups sálmi í andláts orð
og andláti’ í jólafrið.
Þótt gengin séu gleðileg jól
og gamlárið horfið sýn,
byggðin og vinimir ár eftir ár
í ást sinni minnast þín.
Sigurinn okkar og æfilaun,
er allt það, sem dreymt var bezt,
hvort var það í ástum, í verki, í trú,
það verndaði hjartað mest.
Og draumurinn þinn og dýrðin lífs
til daganna enda var
að hjálpa og græða — að gleðja.hvem,
sem grátinn í hjarta bar.
Við bjóðum þér dýrðlegt annars lífs ár,
Agnes, og kveðjum þig hljótt,
og þökkum öll gömlu’ árin gengin á jcrð.
í guðsfriði — sofðu rótt.
Þ. Þ. Þ.
J
FYLKISSTJÓRI LÁTINN
Á föstudagskveldið var, skömmu
fyrir miönætti, andaSist á almenna
sjúkrahúsinu hér í bæ Hon. Theo-
dore A. Burrows, fylkisstjóri i Man-
itoba. Haföi hann gengið undir
holdskurð viS botnlangabólgu rúmri
viku áöur og var orðinn svo hress,
að búist var viö, aö hann færi heim
í þessari viku. Dó hann snögglega
af hjartaslagi, er orsakaðist af blóö-
tappa. Hann varð 71 árs aö aldri.
Við fylkisstjóraembætti tók hann 8.
október 1926.
Jaröarförin fór fram í ‘gær með
mikilli viðhöfn á kostnað fylkisins.
Meðal annars fylgdu fulltrúar ríkis
stjóra, forsætisráöherra ríkisins, fylk-
isstjóra og forsætisráðherra Mani-
toba, er enn liggur sjúkur; aðrir
fylkisráðherrar, háyfirdómarar. dóm
arar, herforingjar, o. fl., o. fl.
* * *
Eftirmaður fylkisstjóra verður
rnjög bráðlega skipaður, með því að
jafnan verður staðgengill konungs,
að veita stjórnarvöldum forstöðu,
hvort heldur er að ræða um fylki
eða sambandsríkið. J. Y. Reid
hersir hefir verið tilnefndur sem
sennilegur eftirmaður Mr. Burrows.
Frá Ottawa er símað að með til-
liti til hinar stórvaxandi námafram-
leiðslu í norðurhéruðum Manitoba og
Sask.fylkja og í norð vestur héruð-
■unum, hafi innanríkisráðherrann,
Hon. Charles Stewart gefið út tilskip-
anir um námuréttindi á þessum svæð-
um.
Námuleyfi gilda eitt ár í senn, og
til 31. marz ár hvert. Námuleyfi
eru ónauðsynlag eftir að leyfishafi
hefir öðlast fullnaðarréttindi á land-
námi sínu. Leyfishafi má nema og
skrásetja þrjár námaspildur fyrir
sjálfan sig og þrjár fyrir hvorn af
öðrum tveimur leyfishöfum, eða níu
alls, í hverri námuhéraðsdeild. sem
þessum fylkisnámuhéruðum verður
skift í, og helmingi fleiri í norð-
vesturhéraðsdeildunum. Mé hver
leyfishafi taka sér námurétt á 450
ekrum í hverri fylkisdeild og 900 ekr-
um í norð-vestur-deildunum.
Þegar staurað er fyrir landi, skal
nota fjögra staura aðferðina. Þar
sem skóglaust er má nota málmhólk,
sex þumlunga langan, eða jafnvel
blikkílát í staðinn fyrir lögmætan
staur. Vísitöluspjöld, til að merkja
landnámið, fást hjá því opinbera.
Aður en leyfishafi fær endanlegt
afsalsbréf fyrir landnáminu, verður
liann að vinna 200 dagsverk í hverju
landnámi á fimm árum eða skemmri
tíma, og eigi skemur en 40 daiga á
ári hverju eftir skrásetninguna. I
Norðvesturhéruðunum er mönnum
eíinn 18 mánaöa frestur, en eigi
lengri, til þess að ljúka lögboðinni
vinnu hins fyrsta árs.
Eftir að leyfishafi hefir látið
vinna 200 dagsverk á tilteknum tíma
í hverju landnámi og uppfylt viss
skilyrði önnur, á hann rétt umbóta-
skírteini (certificate of improve-
ments) og borgi hann þá leigu og
skrásetningargjald innan þriggja
mánaða, á hann heimtingu á leigu-
bréfi, er gildir í 21 ár. án frekara af-
gjalds, og rétt til þess að endurnýja
það, að þeim tima liðnum, fyrir jafn-
langan tíma, gegn afgjaldi.
Um starfræksluafgjald eru ný fyrir
mæli. I stað þess að greiða 2yí
per cent. af söluverði framleiddra
afurða, skal afgjald greitt af ágóða,
er nemur meira en $10,000 á ári. Af
þeim ágóða og allt upp að miljón
dölum, skulu greidd 3 per cent.; frá
einni og upp í fimm miljónir 5 per
cent.; frá fimni og upp i tiu miljón-
ir 6 per cent, og síðan 1 per cent. að
auki fyrir hverjar fimm miljónir þar
yfir. Þetta afgjald skal greitt 1.
október ár hvert. Verða og leyfis
hafar að gera stjórninni aðvart, er
þeir hefja námsstarfsemi, eða hætta
henni.
Á fimtudaginn var féll dómur í
máli er einna lengst allra mála mun
hafa verið fyrir rétti hér í Manitoba.
Voru frændur tveir. William Thomas
Alexander og Frederick H. Alex-
ander ákærðir fyrir “samsæri, svik,
falsaðar skýrslur og falsaða reikn-
iniga,” í sambandi við ráðsmennsku
þeirra á “Great West Permanent
Loan Co.;” “The Imperial Canadian
Trust Co.,’’ og “The Canada National
Fire Insurance Co.”
131 stefna hvíldi á þeim írændum.
Fann kviðdómurinn þá seka um allar
ákærur eftir að hafa setið á rökstól-
um frá því kl. 5.45 síðdegis á mið-
vikudaginn þangað til kl. 11.15 fyrir
hádegi á fimtudagsmorguninn. Kil-
gour dómari dæmdi W. T. Alexander
í þriggja ára tugthússvist og F. H.
Alexander í tveggja ára tugthússvist,
í Stony Mountain tugthúsi.
Um fjöigur miljón dalir höfðu horf
ið af innstæðufé almennings i þessum
fyrirtækjum, er þeir frændur veittu
forstöðu, og verður á engan veg séð
hvernig allt það fé hefir farið í súg-
inn.
Manitobafylki festi á fimtudaginn
kaup á landspildu mílu vestur af
Headingly, 506 ekrum alls, fyrir
hegningarhús og bújörð því tilheyr-
andi. Kostaði þessi spilda $25,600.
Er ætlun stjórnarinnar að byggja
hegningarhús þarna í sumar. og skal
það fullgert í haust, svo að hægt verði
að flytja fanga þangað úr hegningar
húsinu við Vaughan stræti, er flesf-
um hefir lengi verið þyrnir í augum,
þótt ekki væri nema nálægðar þess
við háskólann.
Á ársþingi U. F. M. í Brandon er
nýlega fór fram, var samþykkt, að
félagsskapurinn skyldi mega þiggja
fjárhagshjálp af samvinnukaupfél-
ögum, þó að því til skildu, að sam-
vinnukaupféflögin mættu ekki fyrir
því á nokkurn hátt fá áhrif eða sér-
stök réttindi gagnvart U. F. M. —
Voru sumir á því, að eigi bæri að
þiggja þessa hjálp nema eitt ár,
meðan verið væri að losna úr verstu
kröggunum, og skyldi skipa nefnd
til þess að útvega nýja meðlimi i U.
F. M., svo að félagið mætti á þann
hátt verða efnalega sjálfstætt. Fengu
þessar hugmýndir eigi byr, því mik-
ill nieiri hluti var á þeirri skoðun.
að U. F. M. gæti vel þegið þenna
fjárstyrk, sem uppeldis Qg| fræðslu-
félagsskapur fyrir allskonar sam-
vinnufélagsskap.
Forseti félagsins var endurkosinn
Thomas Wood, frá McDonald. Vara-
forseti var kosinn J. M. Allan, frá
Brandon.
Fregn frá Ottawa hermir, að samn-
ingur um aukna vatnsleiðslu til orku-
framleiðslu frá Niagarafossunum,
hafi fyrripart þessa mánaðar verið
undirritaður af forsætisráðherra Kan-
ada, W. L. MacKenzie King og
sendiherra Bandarikjanna í Kanada,
William Phillips. Samkvæmt gamla
samningnum,er um orkuvatnsleiðsluna
var gerður 1905, voru Kanada leyfð
36,000 teningsfet á sekúundunni, en
Bandaríkjunum 20,000 teningsfet.
Leyfir þessi nýi samningur hvoru
ríkinu fyrir sig 10,000 teningsfet
meira.
Ennfremur er í þessum samning
gert ráð fyrir fjárframlögum frá
báðum ríkjum til þess að fegra foss-
ana; aðallega með því að gera þrær
í strengjaflúðirnar fyrir ofan foss-
ana, til þess að veita meira vatni frá
álnum út yfir grynningaflesjurnar,
svo að á öllum tímum árs flæði þar
nægilegt vatn yfir til þess, að hylja
snasir, er koma upp úr fossbrúninni
þegar minnst er í fljótinu, svo að
óslitnar fossbrúnirnar megi eygja
landa á milli. — Er gert ráð fyrir að
þetta kosti Kanada -300,000, en
Bandaríkin -1,450,000.
Nokkrir læknar í Toronto hafa ný-
lega lokið við lækningu, er hér vestra
að minnsta kosti er talin einstæð í
annálum læknisfræðinnar.
I fyrrasumar brann inni fjölskylda
þar eystra, svo að aðeins einn drenig
ur, Morris Klianman, náðist með
lífsmarki, en svo skaðbrenndur að
öll húðin var af lendum og mjöðm-
um og holdiö brunnið sumstaðar, og
var óttast fyrst að brunagat væri inn
í kviðarholið. Til þess að koma í
veg fyrir ígerð og blóðeitrun, segir
fregnin, tóku læknarnir það ráð, að
dæla sútunarsýru á drenginn allstað-
ar þar sem einhver vottur af húð
var eftir. svo að hún yrði hörð sem
leður. Ennfremur dældu þeir salt-
vatni óslitið í æðar hans (“contin-
uous intravenous saline solution”)
til þess að stilla áhrif brunaskemd-
anna. Og svo var náttúrlega ný
húð grædd á brunablettina eftir því
sem liægt var. Lá Morris litli í
hálfan mánuð milli heitns og helju,
en á endanum reyndist þessi nýstár-
lega “sútunarlækning,” eða hvað menn
vilja kalla það, brunasóttinni yfir-
sterkari. Fullyrðir fregnin, að hún
og hin “'Stöðuga saltvatnsdæíling”
hafi vakið mikla eftirtekt meðal am-
erískra lækna.
Eins og eðlilegt er hefir oft verið
haft orð á því, að þegar Hudsons-
flóabrautin væri fullgerð, þá þyrfti
Winnipeg að fá beinna brautarsam-
band við hafnarstaðinn við Hudson
flóann en hún fær með þeirri braut
er nú er verið að ljúka við.
A fimtudaginn var, flutti J. T.
Thorson, M. P. erindi um þetta efni
fyrir “Greater Winnipeg Liberal
Association.” Gat hann þess, að
fjórar leiðir hefðu komið til orða:
gagnbraut frá Mafeking til The Pas;
framlenging Gypsumville brautarinn
ar um Stórfossa (Grand Rapids) og
norður á meginbrautina; vatnaleið-
in frá Winnipeg og eitthvað norður
í Nelsonfljót og svo járnbraut frá
þeim lendingarstað, norður á megin
brautina, og bein braut annaðhvort
frá Emerson eða Winnipeg til Fort
Churchill austan við Winnipegvatn.
Er það stytzta leiðin og þótti Mr.
Thorson hún æskilegust, án þess þó
hann vildi endilega staðhæfa það að
svo stöddu. —
Aðal hlunnindin, við þessa braut,
er væri lífsspursmál fyrir Manitoba
fylki, hluta af Saskatchewan og fjög-
ur nágrannaríki í Bandaríkjunum,
benti Mr. Thorson á að væru þessi:
1J Hagnaður fyrir kornyrkjumenn
í Manitoba og suð-vestur Sask., að
fá þarna 300 mílum styttri leið á
hafnarstöð fyrir framleiðslu sína
2f Hagnaður fyrir gripabændur,
þar sem Winnipeg liggur sem ákjós-
anfpgast fyrir stórkostlega gripa-
verzlun.
3) Möguleikar fyrir miklum farm-
flutningum frá Bandaríkjunum til
E' ópu, sérstaklega haganlegt fyrir
Norður og Suður Dakota, Minnesota
og Wisconsin.
4) Líkindi fyrir brezkri viðskifta-
ívilnun sökum vaxandi innflutninga
frá Stórbretlandi. —
5) Áreiðanleg iðnaðarmiðstöð í
Winnipeg.
6) Efling sjávarútvegs við Hudson
flóann, sem færði brautinni í aðra
hönd farm aftur til Bandaríkjanna.
7) Aukiiir möguleikar fyrir mjólk-
urafurðir vesturlandsins, er óðum
væru að ryðja sér til rúms á Bret-
landi.
8> Fullvissa um stóraukna náma-
framleiðslu í héruðunum austan við
Winnipegvatn, svó að ónfögulegt
væri að gera sér fulla grein fyrir.
Hinn frægi þjóðmálafræðingur,
rithöfundur og fyrirlesari frá Banda-
ríkjuntim, Scott Nearing prófessor,
hélt fyrirlestur á sunnudaginn í
Dominion leikhúsinu er hann enfndi
“sundurliðun alríkisins brezka’’ (“The
Crumbling British Empire”). Hélt
hann því fram, að Stórbretaland hefði
í raun og veru stofnað til styrjaldar-
innar miklu í hagsmunaskyni fyrir
aúðvald sitt.
Hann kvað árin, er liðin væru síðan
friður komst á, ekkert vera annað en
undirbúningsár ófriðar milli Banda-
ríkjanna og Bretlands. Spáði hann
algjörðum sigri Bandaríkjanna, er
sennilega myndi gerbreyta stórvelda-
skiftingu Evrópu, eða réttara sagt
eyðileggja alla stórveldamyndun þar,
því Bandaríkin myndu siigra, ráða og
ræna allri jörðunni.
Á Stórbretalandi væri allt í sífelldum
handaskolum og ógöngum sökum kyr-
stöðu í iðnaði, sem stafaði af hags-
munamótsögnum kapítalisma og im-
perialisnta.
Stríðinu mikla líkti hann við
hundabardaga, þar setn Þjóðverjar
og Englendingar hefðu bitið hvorti
annan á barkann, meðan Bandaríkin
glefsuðu frá þeim beinið, sem barist
var um: einokum í alþjóðaviðskiftum.
Verkantenn á Stórbretalandi bitu
hver aðra á barkann til þess að skera
úr því hvort brezku eða þýzku al-
veldissinnarnir og auðvaldssinnarnir
ættu að verða ofan á.
Bretland ætti í endalausum styrj-
ölduni, en styrjaldir væru eina að-
ferðin, er auðvaldið þekkti til þess
að skera úr viðskiftaágreiningi. Hefði
það aldrei enn brugðist, að ófriður
færi t kjölfar alvarlegrar við-
skiftasamkeppni þjóða á milli. • Væri
einmitt ágætt dærni fyrir höndum
hvernig Bretar hefðu á þann hátt
bolað Þjóðverjum frá alþjóðlegri við-
skiftasamkeppni; en nú myndi eigi
líða á löngu þangað til að Bandaríkin
færu eins með Bretland. En síðan
myndu þau fara eins með Evróptt.
“stappa hana í mauk,” og gera sér
hana skattskylda.
I lok ræðu sinnar benti hann á
Rússland til eftirdæmis.
“Verkamennirnir á Bretlandi finna
nú álögurnar af því að þar er allt
að fara um hrygg, en í Sovjet Rúss-
landi verða þeir varir við örvun
framþróunarinnar.”
“Mr. Bowrnan, starfsmaður Dom-
inion Unemployment Service hér í
bæ, segir að sumir af þeim 600 at-
vinnuleysingjum, er stöðugt leiti til
skrifstofu hans um vinnu, þjáist
hreint Oig beint af hungri. Hann
segir að sumir af þeim séu svo
beygðir og úrvinda af stöðugri ár-
angurslausri atvinnuleit, að þegar
þeir komi inn til hans, þá setjist þeir
niður hágrátandi af vonleysi og ein-
stæðingsskap. Það virðist ótrú-
legt að þetta skuli eiga sér stað
hvern veturinn á fætur öðrum, svo að
engin vegur sé enn fundinn til þess
að sjá þessum mönnum farborða.
En frásögn Mr. Bowman er órækur
vottur.” — Free Press, 12. jan. 1929.
Fjármálaráðhérra Sask.-fylkis, Hon.
W. J. Patterson, tilkynnti í fjárhags-
ræðu sinni, að fjárhagsárið 1927—
28 hefðu tekjur fylkisins numið $13,
495,642 en gjöld 13,449,632.'— $600,
000 hefðu komið inn fyrir áfengis-
söluna, eða jafn mikið og í fyrra.
-------x-------
BANDARfKIN
Hoover forsetaefni brá sér til
Florida á sunnudaginn, og væri auð-
vitað ekkert frásagnarvert um það,
ef ekki hefði staðið svo á, að for-
vitnir höfðu fastlega vonast eftir því,
að hann igerði eitthvað uppskátt um
það hverja hann myndi kjósa í ráðu-
neyti sitt, áður en hann færi þangað
suður. F.n þær vonir brugðust.
Mr. Hoover fór til Florida þögulli
um þau efni en fiskurinn í sjónum.
Ekki skortir hann þó frambjóðend-
ur í þau embætti, fremur en önnur,
að því er hermt er. Telja fróðustu
menn þar um, að hann eigi þar kvöl-
ina sem völina, flestum forsetaefnum
fremur, af því að í svo mörg horn
sé að líta. Fyrst og fremst séu
hinir gömlu orustujálkar flokks hans,
er enn hafa eigi fengið ráðherrastöðu
sem umbun verka sinna. I öðru
lagi séu háskólabræður hans, þ.e.a.s.
þeir, sem á ýmsan hátt hafa ska'rað
fram úr; álitlegur hópur, en Hoover
drengur góður og vinfastur, eins og
þar stendur Og í þriðja lagi sé að
velja úr stórum hóp aðstoðarmanna
hans, þeirra er mest sköruðu fram úr
við líknarstarfsemina í Belgíu og á
Rússlandi.
Helzt hafa menn getið sér til. að
Andrew Mellon muni eiga að gegna
fjármálaráðherraembættinu eitt ár
enn og er það talið stórþóknanlegt
auðvaldshringum og stóriðjuhöldum
í Bandaríkjunum. Er þá og talið
sennilegt, að varamaður Mellons, Og-
den Mills, eigi að verða eftirmaður
hans, er Mellon lætur af embætti.
Þá hefir þess og verið getið til, að
Wilbur,, rektor Stanford háskólans,
er Hoover stundaði nám við, muni eiga
von á ráðherrasæti, ef hann óski.
Gaf hann Hoover mörgum sinnum
fagran vitnisburð meðan á kosninga-
hríðinni stóð. —Tveir menn hafa rétt
undanfarið öllu líklegri verið taldir
til ríkisráðherrastöðunnar en Borah
öldungaráðsmaður, en það eru þeir
Alonzo B. Houghton, fyrverandi
sendiherra Bandaríkjanna í Lundún-
um, og Dwight Morrow, sendiherra
Bandaríkjanna í Mexico. —
Frá Washington er símað að nafn-
kunnur líffræðingur við Smithsonian
Institute, Dr. Austen H. Clark, hafi
nýlega varpað gríðarlegri sprengi-
kúlu í herbúðir stéttarbræðra sinna
með því að fullyrða, í grein, er hann
hefir ritað í ársfjórðungsrit líffræð-
inga, að maðurinn sé til eingöngu
fyrir dutlunga náttúrunnar, og sé
jafn vitlaust að halda því fram, að
hann hafi þróast af lægri dýrum eins
og þvi, að hann hafi verið skapaður
úr leirkekki.
Maðurinn segir dr. Clark að hafi
skyndilega komið fram á jörðunni á
Pliocene tímabilinu, rétt fyrir ísöld-
ina, og þá að mestu leyti í sömu
mynd og hann er enn þann dag í dag,
fær um að ganga og hugsa.
Arangurslaust væri að leita að hin-
um “týnda hlekk.” Hann hefði aldrei
verið til. — Breytiþróunarmenn og
sköpunarsögumenn ræðu jafn mikinn
sköpunarsögpimenn væðu jafn mikinn
ættu ekkert skylt við ólífræna hluti.