Heimskringla - 23.01.1929, Page 7
WINNIPEG, 23. JAN., 1929.
HEIMSKRINCLA
7. BLAÐSIÐA
MRS. KARLEBY
(Frh. frá 3. bls.)
leiðsluna og vilja borga fyrir hana.
Þetta síðasta er mestu varSandi i
þjóSfélagi meö vinnuskiftingu. Á-
vextir vinnunnar” eru ekki annars
virSi en þess, sem fyrir vinnuna fæst
á markaSinum.
ÞaS er heldur ekki ætlunin aS
þetta eigi aS skiljast svona, þaS væri
sama og aS viSurkenna þaS ástand.
sem nú ríkir í þjóSfélaginu. Þegar
menn athuga tniliónir Rockefellers
reiSast menn máske og tala um fjár-
kúgun. En þaS er ekki hægt aS
neita því, aS Rockefeller byrjaSi
meS tvær hendur tómar og hefir
grætt auS sinn meS því aS koma á
olíunotkunina skipulagi, sem var betra
fyrir neytendurna, en .gamla skipu-
lagiS. Hann hefir meS öSrum orS-
um grætt á vinnu sinni. Þótt hann
hafi grætt á þessu margar miljónir,
hafa olíunotendur vafalaust sparaS
ennþá fleiri miljónir. Rockefeller
hefir því fengiS miklu meira fyrir
ávöxt vinnu sinnar en menn fá al-
mennt, og sjálfsagt miklu minna en
sem svarar “verSmæti” vinnunnar.
Þetta er rökrétt afleiSing af kenningu
sumra jafnaSarmanna um þaS. aS
hver og einn eigi aS fá fullan arS
af vinnu sinni. En forsendan er
skökk. I staS þess aS segja, aS
“ávöxtur vinnunnar eigi aS lenda
hjá þeim, sem vinnur,” væri sönnu
nær aS segja, aS endurbótastarf þjóS-
félagsins væri í því fólgiS, aS finna,
hversu miklu af ávöxtum vinnu
þeirra væri unt aS svifta einstakl-
ingana o£ gera þá aS almenningseign,
án þess aS eySileggja þjóSfélagshag-
inn.
Ein mannsæfi er allt of lítiS sjón-
armiS til þess aS geta metiS úrlausn-
arefni þjóSfélagsins. AuSur og
eignavextir eru tákn hagsmunabands
milli fortiSar, nútíSar og framtíSar.
Spurningin er sú, hvernig þessi auS-
ur verSi hagnýttur í þágu kynslóS-
anna. ÞaS er engan veginn neitt
aSalatriSi, hvaSa afskifti þjóSfélag-
iS hefir af þessu, heldur hvaS ein-
staklingarnir gera. Þvi þjóSfélag-
iS er ekki annaS en einstaklingar og
starfar eingöngu í þeim og fyrir þá.
* * *
)
Eignarréttur og ein-s ta klingsfra mt a k
og jafnaðarstefnan.
Eitt af því, sem hinir nýju endur-
skoSendur jafnaSarstefnunnar leggja
mikla áherzlu á, er rannsóknin á af-
stöSu ríkis og einstaklinga og áhrif
þeirra á skiftingu auSsins. Hér á
undan var skýrt frá því, aS Karleby
benti á þaS sern grundvallaratriSi
þjóSskipulagsins, aS þjóSfélagiö væri
einungis til fvrir einstaklingana og
gæti ekki starfaS öSruvísi en fyrir
þeirra tilverknaS. Af þessu leiSir
hann einnig þaö, aö þegar talaö sé
um, aö þjóSfélagiö ei.gi aS fá arSinn
af einhverri atvinnugrein, þá sé þetta
í rauninni villandi oröatiltæki. Þvi
þaS. sem aÖ er stefnt og þaS sem
skeöur er önnur og ný skifting tekn-
anna milli einstaklinganna. Sumir
fengu of mikiö, frá þeim er tekiS og
skift milli annara og fleiri. AnnaS
skeSur ekki. Eins er um “gjöldin
til þjóðfélagsins.” 1 sameiginlegan
sjóS eru heimtir fjármunir frá viss-
um einstaklingum til þess aS fá oSr-
um einstaklingum, til þess aS koma
á annari skiftinign auSsins. ÞjóS-
félagiö sem “einstaklingur” getur
hvorki haft tekjur né gjöld. Hugmynd
in um þjóðfélagiS eöa ríkiS sem
eitthvað sjálfstætt og óháð þjóSfél-
agsborgurunum, er skökk og háskaleg.
Hún gabbar hugsunina til þess aö
staSnæmast þar, sem veruleiki úrlausn
arefnisins byrjar.
HvaS er eignarréttur? Er hann
rétturinn til þess aS nota og mis-
nota, eins og Marx sagSi aS væri
grundvölSur borgaralegs þj.óðfálags,
svo djúpt þorir enginn aS taka í ár-
inni opinberlega. Einfaldast er og
augijósast að eignarréttur er ákveðið
form fyrir umráðum yfir hlutum sem
ríkiö ákveður meS löggjöf. Eign-
arréttur er ekki kominn undir ein-
staklingnum einum,, hann er ekki ein
göngu samband milli einstaklingsins
og eignarinnar. Hann er þvert á
móti eitthvaS, sem þjóSfélagiS eSa
ríkiS ráSstafar, ekki meS því aS
“skerSa’’ þaS heldur meS því aS um-
mynda það. AS vísu getur þaS
veriö réttmætt aS tala um “skerðingu
eignarréttarins,” en þaS á aðeins við
það, aS ólögiega sé gripiS fram í
ríkjandi umráðaástand. Eignarrétt-
'ur er blátt áfram þær reglur, sem
settar hafa veriS vegna sameigin-
legra hagsmuna einstaklinganna til
ákvöröunar á því, aS hver þeirra um
sig ráði yfir ákveðnum hluta af sam-
eiginlegum foröa og auðsuppsprettum.
Gildi eignarréttarins fyrir einstakl-
ingana veltur á því einu, hvaöa gagn
þeir geta, meS hans aSstoS, haft af
þeim hlutum, sem þeir hafa umráS
yfir. Þetta er sú sanna skoðun jafn-
aSarstefnunnar á eignarréttinum.
En þessa skoSun má framkvæma á
ýmsan hátt. FormiS skiftir litlu,
heldur efniS. En hinsvegar getur
veriS munur á því hversu hagkvæmar
aSferðir eru í framkvæmdinni. En
alltaf er verið aS breyta eignarrétt-
inum, með ýmiskonar löggjöf. Átta
stunda vinnudagur og sjúkratrygg-
ingar eru til dæmis breytingar á
eignarrétti. En þaS er misskilningur
aS halda að þessi eignarréttarbreyting
þurfi óhjákvæmilega að lenda í ein-
hverskonar þjóönýtingu. Þess eru
mörg dæmi að í “þjóöfélags”-fyrir-
tækjum hafa kjör verkamanna veriS
verri en annarsstaðar og ver séS fyr-
ir hagsmunum neytenda.
Ekkert er þeirri hugsun til fyrir-
stöðu. aS “einstaklings framtak” og
“einka eignarréttur” geti, meS skvn-
samlegum ráSstöfunum, orSiS heill
heildarinnar til hagsmuna, ekki ein-
ungis í borgaralegum skilningi orSs-
ins, en einnig samkvæmt skilningi
verkamanna. Því þegar öllu er á
botninn hvolft, þá er þaS sama hagn-
aSarlöngunin, sem knýr menn til
starfa, hvaöa skipulag sem á starfi
þeirra er. Menn myndu ekki vinna
af neitt öSrum eða æðri hvötum eða
fínni en nA þótt menn ynnu undir
skipulagi jafnaSarstefnunnar, en
skipulagið sjálft yrði skynsamlegra
á ýmsan hátt.
Margt af þessu, sem nú hefir ver-
*
íð sagt, mun morgum þykja sjálf-
sagt og einfalt mál, eins og það er.
En undir eins og farið er aS nota
einhver dularfull orðatiltæki eins og
“þjóðnýtingu,” þá rísa þeir öndverð-
ir. Sama hugsunin getur tekið sig
mjög misjafnlega út, eftir því hvern-
ig hún er orðuS. Það er einnig mjög
algengt aS heyra jafnaðarmenn segja,
að ekki sé unt að ráða fram úr þessu
eða hinu úrlausnarefninu á grund-
velli þjóöskipulags auðvaldsins. En
þetta er meiningarlítið. Ef ein-
hverju á aS breyta, þarf eittlivaö að
aðhafast. Ef sú athöfn verður til þess'
að framkvæmd sé einhver hugmynd, til
dæmis frá jafnaSarstefnunni. þá er
auSvaldsskipulaginu þar meS breytt.
þótt í smáu sé. Þeta er sú skyn-
samlegasta og hagfeldasta breytinga-
leiS, sem hægt er aS fara. ÞaS getur
vel verið, að slíkar breytingar verði
að formitru til eitthvaS ööru vísi en
einhver kredda hefir hugsaS sér.
En þáð sem máli skiftir er ekki
formið heldur efniS. Lífið er miklu
fjölbreyttara og frjósamara en ímynd
unarafl þeirra, sem sitja við skrif-
borðið sitt og búa til nýtt þjóöskipu-
lag. Þessir kredduföstu menn tala
eins í dag eing og þeir töluðu fyrir
heilli öld. Þeir tala éins og enn sé
við lýöi sama auSvaldsskiptilagið
eins og, þá. Þeir sjá ekki hvaS aS-
stæSurnar og ástandið hefir breytzt.
Þeir sjá þaS elcki, aS þótt hinn gamli
einstaklings eignarréttur sé enn í
gildi að forminu til, þá er hann
breyttur og IreygSur af hverri lö,g-
gjafaráðstöfun sem frarn hefir farið
i þágu verkamannalýðsins eða fyrir
hans tilstilli. En það hefir haft
það í för meS sér, að aðstaða verka
manna er orðin allt öntiur en áður.
I hinu ósvikna auSvaidsskipuIagi er
verkamaðurinn eignalaus, einangraSur
og hjálparvana öreigi, sem ekki nýtur
neinnar verndar ríkis eða félags, er
viljalaust verkfæri í höndum fram-
leiðandans. Nú hafa verkamenn
Laugaryatns^
skólinn
Hann var vígöur 1. þ. m. Ætlaöi
kennslumálaráSherrann, Jónas Jóns-
son, austur til þess aS framkvæma
vígsluna og hafSi boðið með sér
nokkrum mönnum héðan úr bænum.
En vegna rigningar um morguninn
fórst sú för fyrir. Veður var þó
gott er leiS á daginn, o,g kom fjöldi
manns að Laugarvatni, til þess aS
vera viS vígsluna. Var hún fram-
kvæmd af formanni skólanefndarinn-
ar, BöSvari Magnússyni bónda á
Laugarvatni, en auk hans fluttu þar
ræður Magnús Torfason sýslumaSur,
séra Jakob Ö. Lárusson skólastjóri,
Aöalsteinn Sigmundsson skólastjóri
á Eyrarbakka, Jörundur Brynjólfs-
son alþm. og Gísli Jónsson sýslu-
nefndarmaöur á Reykjum. í
6. þ. m. fór kennslumálaráöherrann
austur með menn þá héðan, sem
áSur höfðu veriS boSnir til þess að
sýna þeim skólann. Þeir voru um
tuttugu. Var lagt á stað kl. 6.30
og komiö til Laugarvatns seint um
kvd'.dlð.. Var þá komiS nokkurt
frost, en vegurinn frá Grímsnesbraut
inni upp aS Laugarvatni er ekki vel
fær bílum enn nema í þurkum eða
‘rosti. VeSur var gott. heiðskírt
loft með miklum norðurljósadansi.
A Laugarvatni tók Jakob skólastjóri
á móti gestunum; var þeim veittur
beini í skólanum og ^váfu þeir þar
nm' nótlina. Daginn eftir boðaði
kennslumálaráðherrann til fundar í
samkomusal skólans. Komu þar
saman allir námsmennirnir, ýmsir
menn úr nágrenninu og gestirnir úr
Reykjavík, en fundarstjóri var Böö-
var bóndi, formaður skólanefndarinn
ar. Var fyrst sungiS vígslukvæSi
skólans, eftir ritstjóra þessa blaðs,
Þá flutti kennslumála r á ð-
herrann ræðu, sagSi frá stofnun skól-
ans, lýsti ætlunarVerki hans og þakk-
aði þeim, sem stutt höföu aS vali
skólastaöar þarna og öllum, sem lagt
höfðu hönd aS verki til framkvæmd-
anna. Hann hrósaSi áhuga liins
unga fólks, karla og kvenna þar í
ærsveitunum, sem igerst höfðu sjálf-
boðaliðar við byggingarstarfiS. En
sérátakega þakkaði hann BöSvari
fvrir baráttu sína öölast raunveruleg
an samákvörðunarrétt yfir því hvern
ig einka-eignarrétturinn er notaður,
svo að framleiSandinn getur ekki
einsamall beitt valdi sínu nema innan
þröngra takmarka, móts viö það sem
áður var. Þar að auki hafa verka-
menn meS félögum sinum, öðlast
samákvörSunarrétt yfir vinnuskilyrS-
unum, en þann rétt vantaði þá ger-
samlega áður fyr.
Sannleikurinn er sá, aS þær lög-
gjafabreytingar, sem fram hafa far-
ið á síöustu árum í þjóðfélagipu,
einmitt á grundvelli þjóðskipulags
auðvaldsins — hafa beinlínig upp-
hafiS sjálft þjóSskipulag auövalds-
ins á mikilsverðum svæðum, svo að
afstaSa verkalýðsins í þjóðfélaginu
og framleiðslunni hefir gerbreytzt.
Það er þess vegna misskilningur og
óþarfi, en mjög algengt. þegar jafn-
aöarmenn eru að afsaka þátttöku sína
í praktisku endurbófastarfi í þjóS-
skipulagi auðvalds nútímans á þing-
ræSislegan hátt, Það er látiS eins
og hið sanna jafnaSiarmensíkiístarf
eigi aS fara fram einhversstaSar í
fjarlægri framtiS. en í nútíðinni veröi
menn því miSur aðeins að láta sér
nægja endurbætur á auðvaldsskipu-
laginu. En þaS, sem nú þegar hefir
áunnist. má ekki kalla jafnaðarstefnu.
Það er kallaður “vísir” til hennar.
eöa “í áttina’’ til hennar. En þetta
er skakt og hálfvelgjulegt, segir
Karleby. Eitthvað getur mistekist
í jafnaðarskipulagi verkamanna. eins
og í áuSvaldsskipúlagi borgaranna.
ÞaS er ekkert aöalatriði undir hvaða
nafni eSa í hvaða formi endurbæturn-
ar gerast, heldur þaS, aS þær gerist
og þær hafa gerst og gerast \ svo
kröftuglega, að nýtt þjóöskipu'lag
jafnaSarstefnunnar er þegar komið
á í mörgum greinum.
—Lögrétta.
Magnússyni,. sem staðiö hafði fyrir
öllum aSdráttum á efni, og lofaöi
dugnað hans og útsjónarsemi. Guðjón
Samúelsson húsameistari sýndi teikn-
ingu af skólahúsinu, eins og þaS á
að verða fulbúiö, og lýsti herbergja-
skipun, hitaleiSslu. o. s. frv. GuS ■
mundur Björnsson landlæknir talaSi
um unglingaskóla til sveita í sambandi
viö heilbrigSismál landsins og vænti
mikils gagns af þeim á því sviöi.
Hann kvaSst ætla, að Jónas ráSherra
myndi hljóta þakkir, er fram HSu
stundir. fyrir aS hafa hrundið áíram
þessari skólastofnun. Ásgeir Ás-
geirsson fræöslumálastjóri talaSi um
fjörgandi afl fyrir sveitalífið, sem
unglingaskólar, eins og þessi. gætu
orðiö og mvndu verða, er þer risu
upp til og frá um landiS. Lýsti
hann ánægju sinni yfir skólastofn-
uninni og staðarvalinu. GuSmund-
ur Finnbogason landsbókavörSur
skeminti mönnum meS tangri ræðu,
sem kom víöa við. GuSbrandur
Magnússon ávarpaSi skólastjóra, og
minntist þess, hve mikinn áhuga hann
hefSi frá æskuárum haft á uniglinga
fræðslu: HafSi þaS eitt sinn fyrir
mörgum árum, komið til tals, að þeir
skólastjóri og ræSumaSur keyptu
Reyki í Ölfusi og stofnuöu þar ungl-
ingaskóla. Séra Jakob Lárusson
svaraði og þakkaöi, og aö lokum mælti
fundarstjóri nokkur orö til gestanna
og þakkaði þeim þomuna. Lögðu
þeir svo á staS heimleiðis nál. kl. 3.
Þennan dag var sólskin og bezta
veður. Er fagurt umhorfs á Lauig-
arvatni, svo sem kunnugt er, og létu
allir i ljósi, sem á það mál minntust
aö þeir teldu Laugarvatn mjög svo
heppilega valinn staS fyrir skólann.
LeiSin um Þingvelli var nú valin til
heimferöarinnar og er hún vel fær
bílum, enda þótt nokkur farartálmi
sé á brautinni yfir Hrafnagjána og
1 Holtunum þar fyrir austan. A
Þingvöllum var staSið viö um hríS.
Er nú verið aS vinna þar að vega-
gerö og brúargerS í undirbúningi
yfir Öxatá úr suSurodda Þingvalla-
túnsins. Kl. nál. 8 um kveldiS
komu menn heim, og hafSi ferðin
veriS hin skemtilegasta. NumiS var
staðar innan viö bæinn, hjá Tungu.
og þar kvöddust menn Oig þökkuðu
hver öðrum fyrir samferðina, en all-
ir kennslumálaráSherranum fyrir
boSið.
* * *
SkólahúsiS á Laugarvatni er ekki
nærri því fullgert enn. Þa'S á aS
veröa löng bygging meö kjallara og
stofuhæS, en þar yfir 6 burstir, sem
snúa frá fjallinu niöur til dalsins.
Er miðkafli hússins nú reistur, meö
2 burstum. I kjallara er eldhús og
borösalur fyrir um 70 manns. Stofu-
hæðin er einn salur og á aö skifta
honum meS lausaþiljum sundur í
kennslustofur. Þar fyrir ofan eru
íbúöarherbergi og svefnherlærgi, en
á efsta ofti tvær baSsjtofur undir súö
og 8 rúmstæöi í hvorri um sig. Allt
er húsið hitað meS vatni frá hver,
sent er spölkorn fyrir neðan húsiS,
en köld vatnsleiðsla hefir veriö lögö
ti! þess úr á, sem fellur niður fjallið
þar skammt frá. Hita miðstööin er
niðri í hvernum og rennur kalda
vatniö frá húsinu þangaö, hitnar þar
og rennur svo þaöan upp aftur í
húsiö. Gufa er einnig leidd frá
hvernum upp í húsið á þann hátt, að
allstórum blikkkassa er hvolft yfir
nokkurn hluta hversins og safnast í
hann gufa, er síöan leitar upp til húss
ins um pípur. sem liggja þar á milli.
Er sá hiti notaður til suöu o. fl. Þessi
umbúnaður hefir veriö i góðu lagi og
reynst vel.
Kennslumálaráðherrann gat þess í
ræSu sinni, aS hann hefði hugsaS sér,
að skólinn gæti orSiS eftirsóttur
dvalarstaSur fyrir gesti frá Reykja-
vik áS sumrinu og samkomustaður
fyrir héraðsmenn og jafnvel fleiri, t.
d. lækna landsins, er þeir héldu mót
sin. Gæti oft svo veriö, er slík mót
væru haldinn aS sumri til, aS menn
kysu aÖ halda þau á þessum stað.
—Lögrétta .
Rcykir í
Mosfellssveit
Bjarni alþingismaöur Ásgeirsson
hefir, sem lesendum “Freys” mun
kunnugt, rekið garðyrkju i stærri
stil á eignarjörS sinni Reykjum. Um
nokkur undanfarin ár hefir meSalt'als
uppskeran af jaröeplum veriS upi
300 tunnur og af rófum 200 tunnur.
Auk þess heíir veriS ræktafr til sölu
í heitum jarðvegi, gulrætur, blóni-
kál, hvítkál. rauökál, salat, spínat,
’örvel. hreðkur, rauSrófur og næp-
ur.
Nú eru 3 stórir ^róörarskálar á
Reykjum er Bjarni hefir reist. I
þeim eru ræktaöar tómötur, agurkur,
tröllepli (melonur) og auk þess mikiö
af blómum. Nú i ár hefir Bjarni
látiö byggja á jöröinni fjós er rúm-
>r 40 nautgripi, og hesthús yfir sex
hesta áfast viö fjósiS, ennfremur
hlöðu er tekur 2000 hesta og áburöar
hús yfir áburð frá þeim gripum er
húsin rúma. Byggingarnar eru úr
steini. Ibúöarhúsin, fjós og gróSrar
skálar allir eru hitaðir upp með jarö
hita frá laugunum sem eru rétt hjá ,
Reykjum.
Framkvæmdirnar á Reykjum á sviði
garSræktarinnar eru glöggur vottur
þess hvaö hægt er aS gera á þeim stöS
um þar sem jaröhiti er fyrir hendi.
ÞaS er hægt aö rækta hér um hávet-
urinn túlipana og hyacintur og cro-
cusa og fl., laukplöntur, og aö sumr-
inu matjurtir er annars væri óhugsan-
legt að næðu hér nægum þroska án
hitans svo sem, melonur, tómata o. fl.
Þaö var eitt sinn framsýnn andi
er mælti þeim orSum: "Far þú og
segSu bræðrum þinum aS jörðin þín
sé frjósamari og himinbeltiö hag-
sælla en þeir ætla.” — Reykjarlandiö
er talandi vottur um þaö aö þessi orð
eru sannleikur.
Pálmi Einarsson.
—Freyr.
--------X-------
I
Frá Islandi
Borgarnesi 8. des. F.B.
Heilsufar og Mannlát
Nýlátinn er piltur á Kvígsstööum
í Andakílshreppi, AuSun að nafni,
sonur Vigfúsar bónda þar.
Inflúensa gengur, bæði í Borgarnesi
og eins upp um sveftirnar.
I Stafholtsey hefir komiS upp tauga
veiki. Lágu 3 menn í henni. Eru
á batavegi.
Tíðarfar óstöSugt. Slæmt á hög-
um.
Bráðapcstar hefir oröiö vart á
stöku staS, en menn hafa ekki misst
nema eina og eina kind úr henni,
nema á Hamraendum, SigurSur bóndi
þar mun hafa misst um 20 kindur úr
bráðapest.
* * *
SeySisfiröi 9. des. F.B.
Bæjarstjórnarfundur samþvkkti í
gær tillögu borgarfundarins í FjarSar
heiðarvegarmálinu, þannig, aö bærinn
skuldbindi sig til þess aö greiöa 40
þúsund krónur gegn því, aS byrjaS
verSi á veginum ekki seinna en 1930
og honum haldið viöstöSulaust áfram
Og fullgeröur á fimm árum.
Á því tímabili greiði bærinn meS
jfnum greiðslum tillag sitt.
* * *
Islands-mynd
Lofts GuSmundssonar er veriö aS
sýna um þessar rnundir í Kaupmanna-
höfn. Konungur vor, drotning og
prinsarnir, sendiherra Islands, kon-
ungsritari og margt stórmenni annaS
var viðstatt fyrstu sýninguna. SíSar
hefir Lofti GuSmundssyni borist
heillaóskaskeyti frá ungfrú Emmy
Landberg og dr. Knud Rasmussen í
tilefni af þeim ágætu viStökum, sem
myndin hefir hlotið. — Ungfrú Lang
berig tók kvikmynd af GrænlandsleiS-
angri Rasmussen’s og kann því vel
aS meta góðar kvikmyndir.
-----------x-----------