Heimskringla - 27.03.1929, Blaðsíða 8
«. BLAÐSIÐA
HEIMSKRINCLA
WINNIPEG, 27. MARZ, 1929
Fjær og nær.
FYRIRLESTUR
Heldur dr. Rögnv. Pétursson
mánudagskveldið 1. apríl kl. 8
í Sambandskirkjunni á horni
Sargent ave. og Banning str.,
um ferðina til fslands í vetur og
undirbúning undir Alþlngishá-
tíðina 1930. Aðgangur 35c.
MESSUR
Séra Þorgeir Jónsson messar
næsta sunnudag, páskasunnu-
daginn, 31. marz, að Gimli, kl. 3
síðdegis.
Jóns SigurSssonarfélagiö heldur
hátíðlegan 14. afmælisdag sinn, aö
heimili Mrs. P. Anderson, 808 Wolse-
ley avenue. Tilkynnir félagsstjórn
in aö allir. er vilja, séu velkómnir í
sfmælisíagrtaðinn.
Sérstök guSsþjónusta veröur hald-
in með sunnudagaskóla Sambands-
safnaðar páskadagsmorguninn á
venjiílegum skólaiííma. Er þess
aeskt að foreldrar og aðrir er láta
sér annt um skólann sýni velvild
sína með nærveru sinni.
Barna- og unglingasöngæfing
verður haldin á föstudaginn, kl. 7 síð-
degis.
Miðvikudaginn 20. marz andaðist
að heimili sínu í Pembína, N. Dak.,
ekkjan Sigríður Pálsdóttir Burns.
Fyrir 6—7 árum fékk hún slag og
náði aldrei heilsu aftur eftir það.
Hún var búin að vera mjög lengi í
Pembína. Manninn misti hún áður
en hún flutti þangað. Af níu börn
um sem hún átti, lifir aðeins einn
sonur, Jóhann, sem annaðist móður
sína í hinu langa sjúkdómsstriði
hennar, með frábærri snild. Sigríður
var ættuð af Norðurlandi á Islandi.
Hún var þrekmikil dugnaðarkona
með sterka trú. Hún var jarðsung
in laugardaginn 23. þ. m. Fór at-
höfnin fram i kirkju Pembína safn-
aðar. Voru þar viðstaddir flestir
Islendingar i Pembína og nokkrir
aðrir. Séra Rúnólfur Marteinsson
jarðsöng.
Mr. Arinbj. Bardal og Mrs. Helga
Thorbergson fóru héðan í gær suður
til Minneapolis til þess að vera við-
stödd jarðarför Mrs. Lárusson, syst-
ur Mrs. Thorbergson. —
Enginn fundur í stúkunni Heklu
næsta föstudag (föstudaginn langa).
Félagar eru beðnir að veita því at-
hygli.
Héðan fór heim til Wapah Man.,
•á föstudaginn hr. Gísli Jónsson, er
•dvalið hefir hér undir læknishendi
síðan um Þjóðræknisþing. Mun
hann hafa fengið bót við því sem að
var.
Hingað til bæjarins komu í gær-
•dag í bíl Mr. Thor Lífman og Mr.
Davið Guðmundsson frá Arborg.
Sögðu þeir brautir að norðan eigi
vel góðar af hörsli, en þó slarkfær-
ar.
Mr. Hannes Pétursson er nýlega
kominn til borgarinnar frá Los An-
geles.
Bruce Sanders
Nú þrengir að þjóðerni voru
með þennan aumingja mann,
svo við þurfum lögmenn og lækna
að láta þá skoða hann.
—Smyrill.
Þegar nefndin bœtti í sjálfa sig
(Sbr. ritstj.gr. í Lögbergi)
Oft má Herrans úrvalslið
eymd og raunir kanna.
Ctvöldum er illa við
unislátt Spenamanna.
í>að er verst, að vita þá
velta í alfögnuði
meðan hinir horast á
hjálpinni frá Guði.
—Smyrill.
Mr. Ásmundur Johnson frá Sin-
clair, Mán., fór heim til sín fyrra
mánudag, eftir að hafa dvalið hér í
bænum s'iðan í haust. Kona hans
og sonur þeirra hjóna dvelja enn um
stundarsakir hér í bænum.
Nokkrir söngelskir íslendingar
hér í bæ hafa tekið sig saman um að
reyna að koma á fót úrvals sön£-
flokk karla. Hafa þeir beðið
Björgvin Guðmundsson tónskáld, A.
R. C. M., að stjórna söngæfingum,
en um samhald flokksins annast
sennilega nefnd manna, er til þess
verður kosin. Mun^ verða reynt að
velja raddir i þenna flokk og hafa
hann þá heldur minni, en svo vel
skipaðan, sem kostur er á. Eru vafa-
Iaust nógu margar góðar karlmanns-
raddir meðal Islendinga hér í bæ
til þess að ekki þyrfti það að standa
flokknum fyrir þrifum.
Skáldkonan, frú Laura Goodman
Salverson flytur erindi um “Influence
and Charm in Scaridinavian Let-
ters,” í fyrstu lútersku kirkju á Vic-
tor stræti, miðvikudagskveldið 3.
apríl, kl. 8.15. Hin ágæta song-
kona, Mirs. S: K. Hall, syngur í ís-
lenzkum búningi skandinaviska þjóð
söngva, enda verður þar meiri músík
til skemtunar.
Lestrarfélagið á Gimli heldur sam-
komu i samkomuhúsinu á Gimli 19.
apríl n. k.
Eimreiðin, 1. hefti þessa árgangs,
kom á tollhúsið hér fyrir fáum dög-
um; en fyrir það, að þeirri póstsend-
ing fylgdi ekki vöruskrá (Invoice),
þá hefir verið skrifað heim eftir
henni, og kaupendur ritsins þvi
beðnir að hafa biðlund þann tíma,
sem áminnst yfirsjón veldur.
Miðvikudaginn, 20. marz voru þau
Jón Agúst Kjartansson og Kristjana
Grimólfsson, bæði frá Hekla, Man.,
gefin saman í hjónaband af séra Rún-
ólfi Marteinssyni, að 493 Lipton
stræti.
Laugardaginn 9. febr., 1929, and-
aðist úr lungnabólgu að heimili sínu
í Langruth, Man., Árni Helgason.
Hann var ættaður úr Skagafirði á
Islandi. Fluttist af íslandi til Win-
nipeg árið 1890 og var þar hálft
annað ár. Verustaðir hans eftir
það voru: N. Dakota, Marshland,
Beaver og Langruth í Manitoba.
Hann var kvæntur Sigríði Jónsdótt-
ur, sem lifir mann sinn. Þau eign-
uðust eina dóttur, Jórunni Signýju,
er átti heimili með foreldrum sínum
og er nú með móður sinni. Eina
hálfsystur átti Árni: Mrs. Sigur-
björgu Teitson í Blaine, Wash. Árni
var sannkristinn maður, trúr og dygg
ur yfir öllu verki, félagslyndur og
ágætur heimilisfaðir. Hann var jarð-
sunginn í grafreit Westbourne-bæjar,
af séra Rúnólfi Marteinssyni, þriðju
daginn 12. febrúar.
Dr. Rögnvaldur Pétursson fór um
helgina vestur til Wynyard, Sask.
Gerði hann ráð fyrir að koma hing-
að aftur um næstu helgi.
Aðfaranótt mánudagsins 25. marz
andaðist að heimili sinu í Minneapol-
is. Mrs. Hjörtur Lárusson. Barst
systur hinnar látnu, Mrs. Helgu Þor-
bergsson, Beverley str., Winnipeg,
símskeyti um þetta síðastl. mánudag.
Hinnar látnu verður nánar minnst
siðar. Hkr. vottar aðstandendum
•
dýpstu hluttekningu sina.
WONDERLAND
Hvernig að Jack Holt getur leikið
sum atriði myndarinnar “Submar-
ine,” er víst flestum ráðgáta. En
á Wonderland sérðu nú, ekki einung-
is hvernig hann leikur þetta erfiða
hlutverk, heldur jafnframt hve að-
dáanlega hann gerir það.
I næstu viku er sögu frá Yukori
brugðið upp á léreftið. Skiftast þar
á ást og hatur, hrekkvísi og dreng-
Iyndi, vinnuákafi og slæpingsháttur,
peningaspil og slagsmál.
ÞAKKARÁVARP
Innilegt þakklæti vil ég af heilum
hug tjá öllum þeirn, er auðsýndu
mér og systkinum hinnar látnu dóttir
minnar, Halldóru S. Goodman, hlut-
tekningu og hjálpsemi í sambandi við
hina langvinnu sex ára og tveggja
mánaða þungu sjúkdómslegu og
fráfal) hennar. Já, ég endurtek
ástkært þakklæti til allra þeirra
mörgu vina, er sýndu mér og dóttur
minni elskulegri velvild og aðstoð á
öllum þessum langa hörmungar sjúk
dómstima á svo margan hátt.
Einnig þakka ég þeim, sem komu
í hús mitt og glöddu hana og mig
með gjöfum og nærveru sinni, því
það var hennar lífsgleði og fró þeg-
ar einhver kom að sjá hana, þó hún
gæti ekki látið það sjást nema með
sínu blíða brosi til síðustu stundar,
þar sem guði þóknaðist að svifta
hana málinu; það var blíða brosið
sem auðsýndi þtikklætistilfinningar
hennar til þeirra er komu að sjá
hana. Sömuleiðis þakka ég öllum
skyldum og vandalausum vinum, öll-
um sem viðstaddir voru við útför-
ina og gáfu hlómkransa á kistu henn
ar. Já, ég vissi að ég og dóttir
min sálaða áttum marga vini og
kunningja á meðan á sjúkdómsstríði
hennar stóð. Enda sýndi sá mikli
vinahópur, sem fylgdi henni til graf-
arinnar, að hún átti marga vini.
Sömuleiðis þakka ég af einlægu
hjarta þeim góðu og gömlu kunn-
ingjum mínum í Keewatin, sem tek-
ið hafa þátt í sorg minni, erfiðleik-
um, ástvinamissir, nú sem fyr, og nú
síðast með því að senda mér fimtán
dollara.
Að endingu bið ég algóðan guð
að launa fyrir mína hönd og hinnar
framliðnu ástkæru dóttur minnar,
öllum okkar vinum og velgeiðar-
mönnum. Drottinn sé þeim alla
tima nálægur og þeirra aðstoð þeg-
ai þeim mest á liggur.
[>ess óskar af alhug, V
Móðir og systkini hinnar látnn.
----------x------------
Teflið um Halldórsons Bikarinn
Nú er að þvi komið að teflt verði
um Halldórsons bikarinn — dýrasta
og fallegasta taflbikarinn sem Win-
nipegborg á. Einnig verður kepot
um fyrstu, önnur og þriðju verð-
laun.
Allir Islendingar, sem því geta við
kcmið, mega taka þátt í samkeppn-
inni. Gefið ykkur fram á fundi tafl-
félagsins “ísland” á fimtudag i
þessari viku eða tilkynnið á einhvern
hátt skrifara félagsins A. R. Magnús-
son að 637 Home str.—sími 71234.
Öll nöfn ættu að vera í höndum
skrifarans ekki siðar en laugardags-
kveld í þessari viku.
—M.
Mikla þjóðmenrtingarsýning hélt
C. P. R. í Regina nú um helgina.
Voru þar samankomnir menn og
konur af ýmsum þjóðflokkum er
sungu, dönsuðu og léku ýmsar list-
ir sinnar þjóðar. Auk þess var
þarna sýndur margvíslegur þjóðlegur
iðnaður.
Af hálfu íslendinga fór á þetta
mót tví-kvartett karla og kvenna héð-
an frá Winnipeg. Var röddum svo
skipað: soprano; Mrs. S. K. Hatl
og Mrs. Lincoln Johnson. alto: Miss
Ruth Bardal og Miss Mattie Hall-
dórsson. tenor: Dr. Á. Blöndal og
Mr. Jón Bildfell yngri. Bassa Mr.
Halldór Þórólfsson og séra Ragnar
E. Kvaran.
Héðan fór söngfólkið á föstudag-
inn var og söng í Regina á laugar-
daginn. Mun söngurinn hafa tekist
mjög vel. Ekki hefir það óprýtt
framkomu á söngpallinum að kon-
urnar voru i íslenzkum þjóðbúriing-
um, tvær i skautbúningi en tvær í
upphlut.
Aftur á móti hafði ísland verið
illa sett að vígi á hinni þjóðlegu
iðnsýningu; sýnd aðeins fremur lít-
ilfjörleg sýnishorn og eins og reitt
saman af handahófi. Enda er
sennilegt að félagið hafi því miður
enga íslendinga fengið til þess að
standa fyrir þeim hluta þátttökunn-
ar.
Island
Dánarfregnir
Reykjav. 2. marz
Jónas Sigurðsson andaðist að
Helgafelli í Helgafellssveit 15. f. m.
í hárri elli. Hafði lengi búið þar
sæmdar búi.
Sigurður Þórólfsson fvrrum skóla
stjóri á Hvítárbakka andaðist aðfara
nótt 1. þ. m. eftir langvinn veik-
indi.
Árni Jónsson verkstjóri í Kveld-
úlfi varð bráðkvaddur í fyrrinótt.
Þá hafa þau hjónin ólafur Kvar-
an símastjóri og frú hans orðið fyrir
þeirri sorg að missa dreng 4 ára.
Gunnar Benedikt aö nafni.
85 ára
varð P- Nielson fyrrerandi verzlun
arstjóri á Eyrarbakka 27. f. m.
Mr. Entilc Walters.
Vestur-íslenzki málarinn, er ný-
lega kominn hingað til bæjarins á-
samt frú sinni, Thorstinu (Jackson).
I Grœnlandi
hefir veðrátta verið svo hlý í vet-
ur, að til vandræða horfir — þó und-
arlegt megi virðast. Firðirnir eru
auðir og snjólaust i byggðunum og
af þessum ástæðum hafa Grænlend-
ingar ekki getað stundað veiðiskap
með þeim aðíerðum, sem þeim eru
tamastar. Er því víða mjög bjarg
arlítið og sumstaðar svo að horfir til
vandræða.
—Vörður.
-------x-------
Sigríður Dagsson
1845—1929
Eins og áður var getið um. and-
aðist Sigríður Eggertsdóttir, eigin-
kona Bjarna Dagssonar, að heimili
sínu í Eyfordbyggð, N. Dakota, 12.
janúar þ. á. Hafði hún um langt
undangengið skeið verið mjög biluð
á heilsu. Hún fæddist á Heggstöð-
um við Miðfjörð í Melstaðarsókn í
Húnavatnssýslu, á íslandi. 20. sept.
1845, og var því 83 ára að aldri, er
hún lézt. Foreldrar hennar voru
Eggert Eggertsson og Steinvör
Bjarnadóttir. Snemma missti hún
föður sinn, en ólst ttpp með ntóður
sinni til fullorðinsára.
Sigríður giftist eftirlifandi manni
sínurn, Bjarna Dagssyni frá Snæ-
fellsnesi í Húnavatnssýslu árið 1872.
Bjuggu þau hjón fyrst tim sinn þar
i sveit, en fluttust vestur unt haf
árið 1883, og þá til Eyford-byggðar
i N. Dakota, og hafa þau ávalt síðan
búið þar í byggð, og búnast hið allra
bez‘a. Börn eignuðust þau hjón
fimm, en þrjú dóu í æsku. Eru að-
eins tvær dætur á lífi. —Steinvör,
ekkja Þorsteins Sigfússonar, sem býr
með sonum sínum í VVrynyard, Sask..
og Guðný, kona Siglaugs Sigfússon-
ar, og búa þau í Nipavvin, Sask.
B-jarni og Sigríður tóku einnig til
fósturs dætursyni sína tvo, þá Bjarna
(Þorsteitisson) Sigfússon og Bjarna
(Sigurlaugsson) Sigfússon, sem báð-
ir eru nú kvæntir og búa hér.
Bjarni Dagsson er enn við dágóða
heiisu, þó nú séu ár hans orðin 84.
En ásamt með börnutn og barna-
börnum og öðrum vinum, saknár
hann mjög sárt hinnar ágætu konu,
er slóð við hlið hans með dugnaði,
prýði og trúmensku, um 56 ára skeið.
Sigríður sál. var hraust kona þar
til er hún árið 1918 veiktist af in-
flúenzu. Lagðist sú veiki þungt
á hana og eftir það náði hún aldrei
heilsu, þó hún lifði rúm 10 ár, og
hefði enda fótavist nokkuð af þeim
tíma. En þann kross bar hún með
mikilli hugprýði, í djúpu trausti til
föður síns og frelsara. Komu oft
nágrannar og vinir til hennar á því
tímabili, svo sem áður hafði verið.
og mætti hún þeim sífellt með sama
glaðværa og góða viðmótinu, jafn-
vel þegar hún var rúmföst. Var
hún þannig fram í andlátið róleg og
hugprúð, og beið d^uðans ókvíðin í
styrk þeirrar trúar á Drottinn sinn,
sem oft hafði verið henni hinn bezti
styrkur á langri æfileið.
Æfiferill hinnar látnu góðu konu
er að mestu leyti allur bundinn við
tvö heimili, — heimili móðurinnar,
sem snemma missti eiginmanninn, og
heimilið hér, sem hún um margra
ára skeið veitti svo góða og rögg-
samlega forstöðu.
Má segja að helztu einkenni hinn-
ar látnu hafi verið glaðlyndi og trú-
inenska i meðferð þeirra hlutverka,
er henni féllu í skaut. Hún var
mjög heimiliselsk og störf hennar
stóðu því ávalt mest í sambandi við
heimilið og fóru kyrlátlega fram.
En hún var fjölhæf og velvirk í
öllu sinu starfi. Trygglyndi henn-
ar leiddi það af sér, að hún átti
góða og einlæga vini, því þannig
hafði hún reynst sjálf. Nú verða
því margir er sakna hennar, og minn
ast þess með hlýhug, hve vel hennar
æfistarf var af hendi leyst. Einkum
verður þó söknuður ástmennanna sár,
því bezt þekkja þau feril þeirrar
glaðværðar, góðsemi og trúmensku,
sem hún þræddi, og verður söknuð-
inum samfara innilegt þakklæti.
Eiginmaður hinnar látnu og ástmenni
öll, eru líka innilega þakklát öllum
sem auðsýndu þeim samúð nú við
fráfall hennar. Ekki síst þakka
þau öllum sem heiðra vildu minning
hinnar látnu með nærveru við jarðaf
förina og á annan veg.
Jarðarförin fór fram frá heimilinu
og kirkjunni í Eyfordbyggð 18. jan-
úar, og stýrði séra H. Sigmar út-
til grafar, þrátt fyrir kalt veður og
erfiða færð. Bar það meðal ann-
ars vott um hlýhug og vinarþel til
hennar og heimilisins.
H. S.
Nokkrar huglelðingar
Til íngólfs JóhannSsonar
1 sambandi við bréf þau sem Lög-
berg hefir verið að burðast með frá
manni þessum vildi ég þetta segja:
Maður þessi er náfrændi hins marg-
umrædda Ingólfs Ingólfssonar. Hugs
unarháttur þessa skriffinns er fremur
ógeðfeldur skætingur, kryddaður fá-
vizku. Ber það allt að einum
brunni. Hnjóðsyrðin í garð Þjóð-
ræknisfélagsins er það eina sem hann
finnur sig knúinn til að láta í té
til félagsins fyrir að bjarga frænda
hans frá gálganum. Einu má gilda
hvort Ingólfur þessi skrifar bréfin
sjálfur, eða aðrir gera það fyrir
hann, og með hans leyfi; svo mikið
ætti hann þó að vita, að það var
Þjóðræknisfélaginu að þakka, að
hann á þennan sinn frænda í lifandi
manna tölu þann dag í dag. Óþarft
er að telja uþp hnjóðsyrði Ingólfs
^J óhannssonar i garð félagsins. Hitt
er okkur ljóst, sem sátum á Þjóð-
ræknisþinginu ný-afstaðna, að undir
kringumstæðunum muni Ingólfur
Ingólfsson vera bezt kominn þar
sem hann er.
förinni. Margir fylgdu hinni látnu Sigurgeir Sigvaldason.
.
TILKYNNING!
Hér með tilkynnist, að, í dag, þann 28. þ. m. opna ég á ný
matvöruverzlun mina, The West End Food Market, á sama stað
og áður var, corner Victor and Sargent. Er búðin að fullu
endurbætt eftir brunann, og með öllum nýtízku áhöldum.
Auk venjulegra vörutegunda, -áel ég fyrir páskana, hangi-
kjötið viðfræga frá Selkirk.
Vænti ég að hinir gömlu viðskiftavinir mínir heimsæki
búð mína tafarlaust, og að margir nýir bætist í hópinn.
WEST END FOOD MARKET
Sími 30494 Steindór Jakobsson, eigandi.
Nýar Vor
Yfirhafnir
Vér höfum til sýnis undursamlegt úrval af því
allra nýjasta og bezta, og verðið erum vér
vissir um að yður muni geðjast að.
Komið og sjáið, og þér munu, sannfærast
Verð
$18 " $45
Stiles & Humphries
Winnipeg s Smart Mens Wear Shop
261 Portage Ave.( Next to Dingwaila)
\/y/ONDERLANQ
THEATRE
Continuous Daily 2—11 p.m. Sat. Show starts 1 p.m.
THIR—FRI—SAT., THIS WEEK
“Submarine’ ’
A MICiHTY DRAMA OF THE SEA
Starr/ng Jack Holt wlth
Dorothy Revier, Ralph Graves
COMEDV AND “MYSTEHY RIDER” CHAPTER 8
MON—TUES—WED., 2 HIG FEATURES
JACK MULHALL in
“THE BUTTER AND EGG MAN”
and “THE GRIP OF THE YUKON”
with Neil Hamilton — Francis X. Bushman
ALSO — OSWALD THE LUCKY RABBIT
»oocccccccccooocosoocccccccccccccccccoccccoccoococo
§