Heimskringla - 17.04.1929, Blaðsíða 6

Heimskringla - 17.04.1929, Blaðsíða 6
6. BLAÐSIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 17. APRÍL, 1929 svívirðilegir að skaða guð og hans heilaga menn.” Simon Bardo brosti með meðaumkun. "Það væri betra fyrir þig að gerast fjár- hirðir og drekka kamómilblöndu, þú, sem ætlar að skrifa Húnunum sannfærandi bréf. Ó, hví tók ég ekki Kredenos, gamla eldskeyta smiðinn minn, með mér yfir Álpafjöllin! Þá skyldum við varpa birtu yfir fjandmennina, miklu bjartari en milda tunglsljósið í litla garðinum, sem vakti í brjósti Walafrid ábóta svo ljúfar minningar um fögru vinkonuna hans. Við hefðum getað sökt fáeinum bát- um þarna við höfðann, og fáeinum í viðbót á höfninni, og spúið úr eldpípum okkar yfir alla ströndina! Nafta-eldurinn hefði rignt ýfir allt, eins og stæði hann fram úr drekanösum, og gjöreytt öllum óvinunum. En hvað vitið þið urn gríska eldinn! Ó, Kredenos, ágætast- ur allra eldsskeyta-smiða, Kredenos!’’ Ekkehard hélt beint til klaustursins og spurði eftir ábótanum. Leikbróðir leiddi hann inn í einkastofu ábótans, en hann var þar þá ekki, og þeir gátu hvergi fundið hann. “Hann er ef til vill í vopnabúrinu,” sagði munkur er fram hjá gekk. Leikbróðirinn fór þá með Ekkehard inn í vopnabúrið, sem var uppi yfir kornhlöðunni, og var vel útbúið af vopnum og herklæðum handa mönnum þeim, sem klaustrið átti að sjá um í landvarnarliðið. Waxmann ábóti reyndist vera þarna, hálfhulinn í rykskýi. Her klæðin höfðu verið tekin niður af veggjunum og hann vár að skoða þau. Rykið og riðið, sem var á flestum hlutum var þess merki, að langt var síðan það hafði verið notað. Á- bótinn hafði ekki gleymt sjálfum sér við þessa skoðun. Yfirhafnarföt hans lágu á gólfinu, en ljóshærður drengur úr klaustur- skólanum hafði hjálpað honum til þess að klæðast í hringabrynju. Hann var einmitt nú að teygja úr handleggjum sínum til þess að aðgæta hvort brynjan væri hæfilega snið- in fyrir sig. “Komdu nær!” hrópaði hann til Ekke- hard. ‘‘Kæmirðu á öðrum tíma, yrðu við- tökurnar aðrar.” Ekkehard bar fram boð hertogafrúarinn- ar. "Eg hefði sjálfur beðið um hæli í Hohent- wiel,” mælti ábótinn, “ef þú hefðir ekki kom ið.” Hann greip sverð í hönd sér, og hjó út í loftið með því, svo að Ekkehard hrökk nokk- ur skref til baka. Það hvein í sverðinu á f’uginu. Sýnilega var það enginn viðvan- ingur, sem hélt á því. ‘‘Já,” mælti hann, ‘‘þetta verður alvar- legt. Húnarnir eru þegar komnir til Alt- dorf í Schussental, og við sjáum bráðlega end- urskinið frá bjarmanum af Lindau í logum á vatninu. Kærir þú þig um að velja þér her- klæði. Þetta þarna með sverðsbeltinu er eins góð vörn gegn höggum og lögum eins og nokkur skyrta, sem spunnin hefir verið af meyju á jólum. Ekkehard afþakkaði boðið, og þeir gengu báðir samt út úr vopnbúrinu. Ábótinn virtist ánægður með herklæði sín. Hann varpaði brúna kuflinum sínum yfir þau og gekk síðan út í garðinn til órólegra bræðranna, eins og hann væri sannarlegur riddari drottins. “St. Markús birtist við rúm mitt í nótt og benti til HJohentwiel,” hrópaði hann. ‘‘Flytjið þangað bein mín, svo heiðnar hend- ur fái eigi saurgað þau,” mælti dýrlingurinn. ‘ ‘Til starfa og búið ykkur af stað! Með föst- um og bænum hafa sálir yðar barist góðri baráttu gegn hinum illa, en nú verða hnefar yðar að sýna, að þeir geti eigi síður barist. Því að þeir, sem gegn yður koma, eru synir djöfulsins. Galdranornir og árar hafa fætt þau úti á auðnum jarðarinnar. Verk þeirra eru djöfulleg og er dagar þeirra eru á enda, munu þeir hverfa til helvítis, þaðan sem þeir komu.” Þessi orð ábótans vöktu þá meðvitund, að hættan væri mjög yfirgnæfandi, jafnvel í þeim, sem minstar höfðu haft áhyggjurnar. Ánægjuhróp heyrðust um allan hópinn, því þótt þeir létu sér ant um lærdóminn, þá voru þetta engir væsklar, og þeir gátu enn hugsað til bardaga sem ánægjulegrar tilbreytingar. Rudimann byrlari hállaði sér upp að eplatré og ygldi. brýrnar í djúpum hugsunum. Ekkehard varð litið á hann, gekk tafarlaust ti! hans og ætlaði að faðma hnn að sér sem vitnisburð þess, að sameiginleg hætta hefði þurkað út allar gamlar deilur. Rudimann benti honum að fara frá sér. “Meðan hestar Húna traðka þýzka jörð skal óvinátta slitin úr hjarta mínu, eins og ég ríf þennan þráð úr fötum mínum,” mælti hann. “En verðum við báðir á lífi eftir þessa baráttu, þá skal einnig allt vera, eins og það áður var. Þetta er rétt og viðeig- andi.” Að svo mæltu hraðaði Rudimann sér til kjallara síns til þess að sinna þar mikilvægum störfum. Stórar tunnurnar stóðu í löngum röðum í hvelfdum kjallaranum, eins og fylk- ing, búin til orustu, og ekki var tómahljóð í neinni þeirra, er á var barið. Rudimann ' hafði sent eftir nokkurum steinsmiðum og nú lét hann ryðja til í litlu framherbergi, sem notað hafði verið til að geyma í matjurtir og ávexti, og útbúa eins og það væri vínkjallari klaustursins. Þangað voru settir tveir kút- ar og ein gríðarmikil áma. “Finni fjand- mennirnir ekkert vekur það grunsemd þeirra,” sagði byrlarinn við sjálfan sig, ‘‘en geri þetta Sipplingen vín, sem ég er að fóma, skyldu sína, þá ætti það að verða erfitt fyrir marg an Húnann, að komast héðan ríðandi.” Steinsmiðimir voru nú tilbúnir með hnullunga sína ^til þess að búa til vegg fyrir innri kjallarann, er Rudimann brá sér enn einu sinni in^i fyrir. Hann helti úr gömlum kút í bikar sinn, lyfti honum með þunglyndis svip upp að vörum sínum og drakk í botn. Því næst krosslagði hann hendurnar á brjósti sér, eins og hann væri að biðjast fyrir. ‘‘Megi guð varðveita þig, göfuga vín frá Meersburg!" sagði hann og voru tár í aug- um hans. Alit var á ferð og flugi í klaustrinu. Vopnum var skift milli manna í vopnabúrinu og reyndust þau ekki nægilega mikil. Haus- arnir voru margir en hjálmarnir fáir, og um leðurvarnir reyndist svo, að margt var orðið slitið og þurfti bóta við. Ábótinn hafði umsjón með því í skrúð- húsinu að gengið væri vandlega frá dýrgrip- um öllum og helgum munum fyrir ferðina. Margar kistur voru fylltar, gullni krossinn með blóðinu helga, hvíta marmarakerið, sem eitt sinn geymdi vínið í brúðkaupinu í Kana, skrín, sem, voru dómar helgra píslarvotta, stafur ábótans og oblátuskrín, um allt var vandlega búið og það síðan borið ofan í bát- ana. Nokkurir munkamir báru nú fram hinn mikla, græna, gagnsæja emerald. Hann var tuttugu og átta pund á þþyngd, en ábót- inn mælti: “Þetta megið þið skilja eftir.” ‘‘Skilnaðargjöf hins mikla Karls keisara, sem ekki á sinn líka í innstu iðrum jarðarinn- ar!” hrópuðu munkarnir. “Eg þekki glerblástursmann í Feneýjum, sem getur búið annan til fyrir mig, ef Hún- arnir skyldu taka þennan,” svaraði ábótinn kæruleysislega. Svo að þeir settu hinn mikia gimstein aftur í skápinn.* Um náttmál var allt reiðubúið til farar- innar. Ábótinn skipaði svo fyrir, að allir skyldu safnast saman í klausturgarðinum. Allir komu nema einn. "Hvar er Heribald?” spurði ábótinn. Heribald var guðhræddur munkur, sem oft hafði komið brosi fram á varir jafnvel hinna alvarlegustu bræðra sinna. Þjónustu stúlka hafði eitt sinn mist hann ofan á gólf, er hann var enn smábarn, og hann var ávalt dálítið ringlaður síðan; en hann var glaðlynd ur að eðlisfari, oug naut tilverunnar fullt eins mikið og þeir, sem meiri höfðu vitsmunina. Einhverjir munkanna fóru að leita að honum og fundu hann í klefa sínum. Gul- bröndóttur klausturkötturinn hafði ert hann til reiði á einhvern hátt, og hafði hann því bundið mittisbandi sínu utan um köttinn og hengt hann upp á nagla í loftinu. Vesalings kisa dinglaði þarna í lausu lofti, mjálmaði og emjaði ámátlega, en Heribald sveiflaði henni hægt til og frá og þuldi yfir henni latínu. ‘‘Áfram Heribald!” kölluðu þeir til hans. ‘‘Við verðum að yfirgefa eyjuna.” “Sá flýi, sem vill,” svaraði hálfvita munk- urinn, ‘‘Heribald fer ekki með honum.” “Vertu nú skynsamlegur, Heribald, og komdu með okkur. Ábótinn skipar það.” Heribald dró af sér skóinn og rétti að þeim. “Þessi skór var rifinn í fyrra,” sagði hann,” og Heribald fór til brytans og sagði: ‘‘Gefðu mér minn skerf af leðri fyrir árið, svo ég geti búið mér til nýja skó;’’ en brytinn svaraði: ‘‘Þú myndir ekki slíta skónum svona ef þú gengir þá ekki alla skakka.” Og hann neitaði að gefa mér leður, og þegar Heribald EKKEHARD Saga frá 10. öld. eftir I. von Scþefíel. 12. KAPÍTULI Húnarnir færast nær ‘‘Öldungurinn hefir rétt fyrir sér,” mælti hertogafrúin, er Ekkehard hafði skýrt henni frá því, er við hafði borið í ferð hans. “Er fjandmaðurinn nálægist, bú þig undir; þegar hann ræðst á þig, kljúf hann í herðar niður. Þetta er í raun og veru svo einfalt, að ástæðu laust er að spyrja um ráð. Eg er hræddur um að hinn fúli fjandi vor hafi sáð vananum að hugsa sig lengi um og vega í huganum, eins og illgresi í þýzka jörð. Sá, sem hikar, er naér falli, og sá sem lætur tækifæri úr greipum ganga, grefur sína eigin gröf. Vér skulum vera viðbúin!” Ástæður ailar voru næsta örfandi, og gátu brátt orðið hættulegar, og þær urðu hin mesta hvatning fyrir hertogafrúna. Sil- ungurinn er heilbrigður og fjörmikill í renn- andi lælcnum, er hann stiklar yfir kletta og steina, en missir mátt og líf í hreyfingarlausu vatni. Og dáðríkt fordæmi og hugrekki þeirra, sem með völdin fara, er ávalt hin á- gætasta uppörfun. Ekki leið á löngu, þar til hver maður var önnum kafinn við undir- búninginn að taka á móti fjandmönnunum. Ófriðarfáninn blakti frá hæsta turninum á Hohentwiel og sást það nær og fjær. Her- lúðurinn gall við í skógum og á engi og heyrð- ist inn til fjarlægustu dalabýla. Og þessu kalli varð sérhver maður að hlýða ;ekkert nema fullkýomið allsleysi eitt gat veitt mönnum lausn undan herþjónustu. Hver sá, er átti meir en tvær álmur lands, varð að koma tafar- laust við fyrsta kall, vopnaður og reiðubúinn. Hohentwiel átti að verða aðalstöðin: náttúr- an hafði sjálf gert það að vígi. Hraðfara sendimenn fóru um alit Hegau-héraðið og öll landsbyggðin komst í uppnám. Langt inn í myrkum furuskóginum söfnuðust kola- gerðarmenn saman; einn sveiflaði stórum skörung. I ‘‘Þessi ætti að duga,” sagði hann. Sendimennirnir börðu að dyrum sóknar- prestanna, öldunga og máttvana. “Þeir, sem ekki geta barist með oss, geta beðið fyrir oss.” Um landið allt barst orðið, og yfir vatnið að hliðum St. Gall klaustursins. Ekkehard fór, samkvæmt fyrirmælum hertogafrúarinnar, út í hina friðsömu Reich- enaueyju. Hefði erindið verið annað, hefði honum ekki verið slík ferð ljúf. Hann var sendur með boð til bræðrafélagsins að koma til Hohentwiel kastalans og dvelja þar, þar til hættan væri urn garð gengin. Það var allt í uppnámi þar, er hann kom þangað. Meirihluti bræðranna gekk fram og aftur hjá brunninum í garðinum, og var mjög órótt. Þetta var mildur vordagur, en eng- um datt í hug að reyna að njóta góðviðrisins Þeir voru að ræða um hörmungardagana, sem fyrir dyrum stæðu og reyna að ráða ráðum sínum. Þeir áttu erfitt með að hugsa til þess að yfirgefa friðsæla klefa sína. ‘‘Heilagur St. Markús,” mælti einn þeirra, ‘‘mun vernda lærisveina sína, ljósta óvinina með blindu, svo þeir ríði framhjá og sjá oss ekki, eða láta öldur Bodensvatnsins rísa upp og gieypa þá, eins og Rauðahafið fór með Egyptana.” En Simon ganiii Bardo svaraði— “Eg held naumast að vert sé að reiða sig á þennan útreikning, og ef ekki er um frekari vörn veggja eða vígturna að ræða, þá tel ég ráðlegra að hörfa undan. Því hvar sem nokkuð er til, sem er virði eins silfur- penings, þar mun enginn Húni ríða framhjá. Þótt hann væri dáinn og grafinn, en gull- peningur væri lagður á gröfina, þá myndi hann rétta hendina upp úr jörðinní til þess að hremma hann.” “Heilagur Pirmin!” hrópaði bróðirinn.sem átti að sjá um jurtargarðinn. “Hver lítifr þá eftir rófunum og kálmetinu, ef við verðum að flýja?” "Og hvað verður um alifuglana,” mælti annar, sem ekki átti sér meiri ánægju en að sinna fugiunum. “Fluttum við þá þessar þrjár tylftir af hönum frá ítalíu til þess að skilja þá eftir í höndum óvinanna?” “Ef þeim væri nú ritaður sannfærandi pistill, þá trúi ég því ekki, að þeir yrðu svo *Öldungurinn í hellinum var Karl feiti Þýzkalandskeisari, sem settur hafði erið af og ailir töldu fyrir löngu dauðann. ‘Eg veit hvað þér er í hug,” sagði hann og dró þráð út úr saumnum á kufli sínum. kastaði honum á jörðina og steig á hann með fætinum. *Það m ásjá þennan svokallaða “erner- ald” enn í sóknarkirkjunni í Mittelzell í Reichenau. kvartaði undan þessu við ábótann, þá sagði ábótinn: ‘‘Svona fífl eins og þú, getur geng- ig berfættur;” og nú hefir Heribald engan sæmilegan skófatnað og hann fer ekki út á meðal ókunnugs fólks í rifnurn skóm.” Það var ekki auöhlaupið að því að svara svona góðri röksemdaleiðslu. Bræðurnir gripu hann því höndum og ætluðu að leiða hann burt með valdi, en hann sleit sig af þ‘eim í göngunum og þaut eins og byssubrend - ur inn í kirkju og upp stigann, alla leið upp í klukkuturninn. Þegar þangað var komið. kippti hann léttum tréstiganum upp á eftir sér, og var nú öruggur. Munkarnir færðu ábótanum þessi tíð- indi. “Skiljið hann eftir,” sagði ábótinn. “Yf- ir börnum og hálfvitum vaka sérstakir vernd- arengiar.” Tveir knerrir lágu við ströndina og biðu flóttamannanna, vel smíðaðir bátar með ár- um og seglum. Leikbræður og aðrir íbúar eyjarinnar höfðu farið út í smærri báta og tekið allt með sér, er þeir gátu. Var þetta hin furðulegasta þvaga. Einn báturinn, sem í voru þjónustumeyjar undir forystu Kerhild • ar, hafði þegar sett upp segl, en ekkert vissu stúlkurnar hvert ferðinni væri heitið. Hræðsl- an var sterkari þennan dag en forvitnin. Munkarnir héldu í hóp ofan til strandar, og var það hin myndarlegasti skari. Flestir voru með vopn, sumir sungu helgiljóð, aðrir báru skrín Markúsar. Ábótinn og Ekkeliard genugu saman, en sveinarnir úr klausturskól- anum á eftir þeim. Þeir litu enn með söknuði heim til hæl- isins, sem þeir höfðu hafst við í um svo mörg ár, en stigu síðan á skipsfjöl. Ekki hafði fyr verið lagt frá landi, en all- ar klukkurnar tóku til að hringja. Hálfvitinn Heribald var að senda þeim kveðju sina. Svo kom hann sjálfur í ljós efst uppi á klrkjuturn- inum og hrópaði til þeirra hárri röddu: "Dom- inus vobiscum!” og einn og einn munkurinn tók undir á venjulegan hátt: “Et cum spiritu tiuu !” Stinningsgola ýfði öldurnar á vatninu. ‘Vetrarísinn var aðeins fyrir skömmu bráð- naður og enn voru stórir jakar á floti. Var oft erfitt að koma bátunum á milli þeirra. Munkarnir, sem gættu kistu St Markúsar, hnipruðu sig saman, því öldurnar skvettu látlaust á þá. En Wazmann ábóti stóð upp- réttur, hár og föngulegur, en skikkja hans blakti í vindinum. ‘‘Drottinn fer fyrir oss,” mælti hann, ‘‘eins og hann fór á undan ísraelsþjóðinni sem eldstólpi. Hann er með oss í baráttu vor- ri, og hann mun verða með oas, er vér snúum fagnandi heim.” Munkafylkingin kleif hæðirnar upp á Hohentwiel í tunglskininu, og var alt viðbúið þar, til þess að taka á móti þeim. Skrín St. Markúsar var sett inn í klrkjuna, og sex munk abræðrum var skipað að standa á verði um- hverfis það. Kastalagarðurinn breyttist á fáeinum næstu dögum í glaðværar herbúðir. Nokkur hundruð vopnaðra kastalaþegna höfðu þegar búið um sig þar, og með munkunum frá Reichenau bættust níutíu vopnfærír liðsmenn í hópinn. Allir voru önnum kafnir við undir- búning fyrir orustuna. Hamarshögg smið- anna vakti menn af svefni fyrir sólaruppkom u. Örvaroddar og spjótsoddar voru dengdir. og ryðguð sverð voru skerpt á stóra hverfi- steininum, sem stóð við garðbrunninn. Gamli körfuriðarinn frá Weiterdingen hafði verið sóttur til kastalans, og hann sat nú með svein- um sínum undir linditrénu mikla. Þeir bundu þétt riðnar viðartágar á langa flekana, sem áttu að verða skildir, svo sútað skinn yfir og var þá skjöldurinn kominn. Aðrir menn sátu umhverfis eld, sem logaði glatt undir bræðslupottum, og bjuggu til beitt skeyti fyr- ir slöngnr. Kylfur og barefli úr eskivið voru liert í loganum. “Ef eitt af þessum berði að dyrum á hauskúpu heiðingjans,” sagði Rudimann, og sveiflaði vopninu yfir höfuð sér, “þá ætti það að geta látið ljúka upp fyrir sér!” Allir, sem áður höfðu eitthvert sinn ver- ið hluti af landvarnarliðinu, voru nú settir undir stjórn Símonar Bardó, hins gríska hers- höföingja. “Sá, sem langar til að eyða efri árum sínum í friði og spekt, ætti að koma hingað til ykkar í Þýzkalandi,” sagði hann í gamni við hertogafrúna. En sannleikurinn var sá, að vopnabrakið hresti hann og styrkti, eins og það væri drykkur af gömlu Rínarvíni. Hann æfði með óþreytandi elju óvana menn- ina í vopnaburði, og steinhellurnar í garðin- um kváðu við undan munkafylkingunum, er tömdu sér listina að gera árás með spjótum.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.