Heimskringla - 31.07.1929, Blaðsíða 2
2. BLAÐSÍÐA
HEI MSK.RINGLA
WINNlt'EG, 31. JtJLÍ, 1929
Færist Ameríka
yestur á bóginn?
Eftir mag. S. A. Anderson.
Við nýjar mœlingar á afstöðu
Grœnlands við Evrópu, sem nýlega
voru gerðar, tókst að sanna, að
Grœnland fœrist vestur á bóginn. Hér
er stuttega gerð grein fyrir kenningu
þýska jarðfrœðingsins A. Wegeners,
um það að landaflutningur eigi sér
stað, en þessi flutningur Grœnlands
er álitinn sanna kenningu þessa.
Fæstar af hinum víötæku vísinda-
legu kenningum eru þess eölis, að
hægt sé að útskýra þær fyrir þeim,
sem hversdagslega hugsa ekkert um
þau viðfangsefni, er kenningunni er
samfara. Þannigeru þeir teljandi, er
vita, hvað Einsteins-kenningin er, hvað
þá heldur að þeir viti, hvað hún hefir
sér til ágætis, eða hvaða munur er á
heimsmynd hennar og heimsmynd
Nevvtons. Með Wegeners-kenning-
una er alt öðru máli að gegna,_þar eð
aðalatriðin eru feykilega einföld, svo
einföld, að vísindamönnum hætti til
í byrjun að gera lítið úr kenningunni,
og það var fyrst eftir aðihún gat skýrt
ýms algeng fyrirbrigði á einfaldari
hátt en áður, að farið var að veita
henni tilhlýðilega athygli.
Þúsundir vísindamanna sitja dag-
lega við að safna athugunum, setja
þær saman, mynda kerfi, án þess þó
að hægt sé að skilja samhengið, eða
steypa öllu í stærra mót og safna því
undir allsherjarlögmál. En við og
við lyftir vísindamaður sér út yfir
athuganir sínar og annara, því að
hann hefir fundið samhengið, alls-
herjarlögmál, sem skýrir ýmislegt tor-
skilið á einfaldan hátt. Ef hugmynd-
in er ófullkomin, nefnist hún tilgáta.
Tilraunir munu þá annað tveggja
hafna henni, og er hún þá ómerk,
eða þær munu staðfesta hana, og er
hún þá nefnd kenning, er síðar verð-
ur fyllilega sönnuð og talin með sta$-
reyndum.
öll þessi stig hefir kenning
Wegeners farið yfir. Eniglendingur,
Green að nafni, kvað árið 1857 upp
úr með þá tilgátu, að lilutar jarskorp-
unnar fljóti í kjarna, og 1880 se£ir
Svisslendingurinn Wettstein, að það
sé ekki nóg, að löndin fljóti í vestur,
heldur breyti þau einnig lögun.
Pickering bendir á það 1907, að af
því hve austurströnd Suður-Ameriku
sé lík vesturströnd Afríku, megi
draga þá ályktun, að Ameríka hafi
slitnað frá Afríku, þegar tunglið eftir
tilgátu G. H. Darwins, hafi kastast
út úr jörðinni, á þeim stað, þar sem
nú er Kyrrahafið.
En árið 1910 setti W»egener fram
kenningu sína, óháða hinum óvissu
tilgátum fyrirrennara sinna. Hann
komst að þessari niðurstöðu með því
að athuga strendur báðumegin At-
lantshafs, og með því að athuga þær
niðurstöður, er menn höfðu komist
að um bygging jarðarinnar. Á nokk-
rum árum hafði hann safnað svo
miklum gögnum, að kenning hans
mátti teljast á ágætum rökum bygð,
og loks hepnaðist Dönum að sanna
kenningu hans, þannig að nú má það
teljast staðreynd, að löndin færist
yfir yfirborð jarðar.
Til þess að útskýra, hve frábrugðin
þessi kenníng er eldra áliti, er nauð-
synlegt að skýra Htið eitt frá því. Frá
alda öðli hafa menn greint í sundur
meginlönd og höf, og álitið, að það
útlit, sem jörðin hefir nú, hafi hún
ætíð haft, en eftir því, sem jarð-
fræðinni fleygði fram, kom í ljós, að
lögur og láð voru miklingum breyt-
ingum undirorpin. Þareð víst var, að
jörðin hafði fyr verið miklu heitari,
lá skýringin um samdrátt jarðskorp-
unnar afar nærri. — Allir þekkja
þessa skýringu og ef hugsað er um
hana nánar er ein mikil veila i henni
þ. e. a. s. það hvernig hriíkkurnar
gátu orðið jafn misjafnar ag þær eru,
þannig að jafnstór höf og Atlantshaf
Qg Kyrrahaf gátu myndast, og það
að fjöllin voru á einstökum
stöðum á jörðinni, en ekki
jafnútbreidd. I Suður-Evrópu
eru fjallgarðar, sem ekki halda á-
fram út í hafið, sem við mætti búast,
ef sama efni væri í landinu þar og
hafsbotninum. En ef reiknað væri,
hve jörðin hefði þurft að vera heit
fyr, til þess að Alparnir gætu mynd-
ast við fellingar jarðskorpunnar,
kemur út, að hún þyrfti að hafa verið
a. m. k. 3000 gráðum heitari, en það
kemur ekki heim við þá staðreynd
að í þeim hita myndu allar steinteg-
undir hafa verið fljótandi, en ekki
fastar. Þar að auki er upplýst, að
hitabreytingar hafa ekki orðið miklar
siðan á elstu jarðöldum er taldar eru.
Frá elstu jarðfræðitímum finnast
menjar um ís, en það sannar, að hit'-
inn hefir á ýmsum stöðum verið fyrir
neðan 0..
Af rannsóknum á dýralifi fyr á
tímum, plöntulífi og i jarðfræði, hafa
menn komist að þeirri niðurstöðu, að
Ameríka hafi í fyrndinni verið sam-
vaxin Evrópu. Lá þá rrærri að haida,
að hafsbotninn hafi si'gið síðan þá, en
á móti því mælir þaö, að jafnvægið í
jarðskorpunni myndi þá hafa raskast,
en slikt hefir ekki átt sér stað. Hafs-
botninn í Atlantshafi hefði orðið of
þungur og hann hefði r'askað jafn-
vægi jarðarinnar. — Deilur risu út af-
þessu. Héldu sumir fram, að spöng
hefði verið milli landanna, en- aðrir
að ekkert slikt hefði getað átt sér
stað. Deilunni varð aðeins skorið úr
með nýrri kenningu, er sannaði, að
báðir hefðu nokkuð til síns máls.
Þessa spurningu leysti Wegeners-
kenningin algerlega. Hún heldur
því fram, að fyrrum hafi Ameríka
legið upp að Evrópu og Afríku. Dýr
og plöntur hafi því hæglega breiðst
jafnt í báða heimshluta.
lantshafs hefir þá verið undirstaða
Ameríku, en Ameríka hefir flotið
burtu, eftir að hún slitnaði frá megin-
landinu.
Wegener álítur eins og ihér hefir
verið lýst, að löndin fljóti eins og
granitflögur í basalti, sem að mestu
leyti er undirstaða landanna. Það
mætti líkja þessu við ís, sem sígur
niður,- þegar stígið er ofan á hann, en
rís upp, ef farginu er létt. Löndin
síga undan t. d. jöklum, og hefjast
aftur upp, er jöklarnir bráðna.
þyngra efni. Þannig færist Ameríka
í vestur, en af því leiðir, að vestur-
strönd 'hennar er há og brött að sjó,
þar eð svo mikil mótstaða mæðir á
henni. Hækkun vestur strandarinnar
hefir leitt af sér mikil umbrot, svo
sem jarðskjálftann 1906, þegar mestur
hluti San Francisco eyðilagðist, og
við jarðskjálfta 1899 hófst ströndin
norðanverð um næstum 16 metra. 1906
hófst jtrönd Chile um 60 metra við
jarðskjálfta. A sama hátt er mest
hafdýpi í Kyrrahafi við strönd Suður-
Ameríku.
Suður-Ameríka færist því vestur á
bóginn, og hefir áður legið fast við
Afríku. Það er afar auðvelt að finna
hve strandlínurnar eru líkar. Nálægt
suðurodda Afriku er fjallgarður,
sem liggur frá austri til vesturs. Sá
fjallagarður á sér framhald við
Buenos Aires í Suður-Ameriku.
Þetta hefír jarðfræðingur frá Af-
ríku sannað. —■ Hann var gagnkunn-
ugur fjöllunum í Suður-Afríku, og
þegar hann kom til Suður-Ameriku,'
fanst honum, sem 'hann væri að rann-1
saka Afríku-fjöllin, svo lík voru jarð-
lögin. Slíkt væri óhugsandi, ef löndin
hefðu *tíð staðið eins af sér.
Ef vér hugsuðum oss, að hinar
miklu fellingar, sem eru í Himalaya-1
fjöllunum, yrðu flattar út, þá mundi
Vestur-Indland ná alla leið að eynni
•Madagaskar við austanverðan odda
Afríku. Þetta skýrir það, hve Mada-
Bötn At- gaskar minnir að mörgu leyti á Vest-
ur-Indland, enda þótt hún liggi uú 10 1
sinnum lengra frá V.-Indlandi en
Afríku. Ennfremur er álitlð, að
Ástralía hafi legið nálægt Suður-
Afríku, en milli hénnar ag Suður-
Ameríku hafi legið meginland það,
sem nú liggur við Suðurpólinn. Við
slíka röðun á meginlandinu má benda
á öll þau lönd, þar sem spor finnast
eftir ís, og liggja þau þannig saman,
í stað þess að nú eru þau dreifð um
helming hnattarins. Þessi spor hafa
fundist í austanverðri Suður-Ameriku
fimm ár, sem liðið höfðu, en það ér
að meðaltali 36 metrar á ári. Hér
var fengin óræk sönnun fyrir kenn-
ingu Wegeners, og hún má því tel-
jast með staðreyndum.
Lík mæling var nýlega gerð á fjar-
lægð Washington frá Paris. Sú til-
raun sýndi, að fjarlægðin óx um 32
cm. á ári.
Eftir kenningu Wegeners hefir þró-
un jarðarinnar farið fram án mikillar
kólnunar. Sá hiti, sem jörðin með-
tekur frá sólinni, geislar aftur út í
geiminn, en sá (hiti, sem iður jarðar-
innar hafa geymt, hefir ekki farið
forgörðum. ísflákar, eins og Græn-
landsjökull, hafa ætíð verið einhvers-
staðar á jörðinni..
Það má glögt sjá, hvernig byrjunin
að ‘Atlantshafinu hefir litið út, með
því að athuga Austur-Afriku. Frá
Dauðahafi i Palestinu 'gegn um
Tanganjika-vatn og Njassa-vatn,
gengur mikill klasi af brotalínum, er
bendir á, að landflutningur sé þar í
undirbúningi. Slíkt hefir þegar átt
sér stað í Rauðahafi, því að Arabía
og Afríka hafa fjarlægst hvor aðra
um nokkur hundruð kílómetra—
Eftir nokkrar miljónir ára má gera
ráð fyrir, að austurhluti Afríku verði
orðinn eyjaklasi, sem skilinn sé frá.
meginlandinu með djúpum álum.
Lesbók Mbl.
Á ísöldinni hvíldi feikna ísfarg á ' Suður-Afríku, • Vestur-Indlandi
Norður-Evrópu, og ætla má, að það
hafi þrýst jarðskorpunni mikið inn,
enda er það staðreynd, að síðan hefir
það land sífelt verið að hefjast upp.
Mest hefst landið við Kyrjálabotn.eða
á miðju ísaldarsvæðinu, þar sem menn
hafa 'gengið úr skugga um, að landið
hefst upp 1 cm. á hverju ári, og hefir
alls hækkað um 275 metra.
Við tilraunir um aðdráttarafl jarð-
arinnar, hafa menn komist að þeirri
niðurstöðu, að það er minst í f jöllum,
meira í láglendi, en mest yfir hafinu.
Þetta sýnir, að jarðskorpan er þyngst
í höfunum, léttari á láglendi en létt-
ust á fjallasvæði. Af þessu má sjá,
að hinn þungi hafsbotn, hefir tæplega
getað verið land áður, þar eð öll meg-
inlönd eru samsett úr léttum bergteg-
undum, og skaga því upp úr hinu
þyngra efni hafsbotnslns.
Kenning Wegeners skýrir ennfrem-
ur það, að dýpt hafsins er ákaflega
jöfn, samanborið við yfirborð megín-
landsins. Venjulega er dýpst næst
landi, en kenningin skýrir það þannig,
að hafsbotninn er úr seigu efni, sem
þjappast niður, er löndin fljóta yfir,
og verður lægri við strendurnar. Til-
raunir hafa sýnt, að meginlandið er
hér um bil 60 km, að þykt. lætta
kann að virðas; afar mikil þykt, en
samanborið við víðáttu, er hún ekki
mikil. Hún er t, d. ekki nema einn
hundraðasti hluti úr breidd Suður-
Ameríku.
Aðalatriðið í kenníngunni er samt
það, að meiginlandsflögurnar halda
ekki kyrru fyrir, heldur fljóta á hinu
°g
vestanverðri Ástralíu, og hefir þvi
Suðurpóllinn að líkindum legið á
þessu svæði. A sama hátt lendir hin
þáverandi miðjarðarlína yfir mestu
kolalöndin, svo sem Bandaríkin
England, Frakkland, Þýzkaland,
Pólland, Rússland og Kína. Þessi
lönd virðast í þann tíma hafa haft
hitabeltisloftslag-.
I lok krítartimabilsins hefir Suður-
Ameríka losnað frá Afríku og flotið
vestur á bóginn. Nokkru síðar hefir
svo Norður-Ameríka losnað frá Ev-
rópu, en virðist þó fram yfir ísöldina
hafa verið landföst við hana á Græn-
landi. Þetta sannar sú staðreynd, að
ísmörkin í Norður-Ameríku liggja á
líkum stöðum og í Evrópu.
Eftír þessu a^i dæma, er Grænland
sá hluti Ameríku, sem síðastur losnaði
við meginlandið, og sé borin saman
fjárlægð landsins frá Evrópu (1780
km.) og sá tími, er það tók að fjar
lægjast (50—100 þús. árý, kemur út
hinn árlegí flutningur, 18—36m. Slíkt
ættí að koma fram á hinum hárfínu
verkfærum, sem nú eru notuð, og
það konj í Ijós við fyrri niælingar á
Grænlandí, að mælingaskekkjur bentu
á. að landið færíst vestur á bóginn.
Þar eð þarna var fenginn möguleiki
til að sanna kenníngu Wegeners, á
kvað Geodætisk Institut í Kaup-
mannahöfn að mæla Iandið nákvæm-
lega, með fimm ára millibili, til að
ganga úr skugga um þetta. Fyrri
mælingin var gerð 1922, endiin síðari
1927, og sannaðist þar með, að land-
ið hafði færst 180 metra í vestur þau
HYGGINDI
Vitrir menn bera fyrinhyggju
fyrir framtíðinni. Þér skulið
byrja að leggja inn í sparisjóð
hjá oss, meðan þér eigið enn-
þá óskerta krafta, til að afla fjár
A IV/
4 2/0
vextir árlega, scm batt er við
höfuðstólinn ár hálfsárs fresti,
munu láta sparifé yðar vaxa
óðfluga.
Engir sparisjóðir eru settir í
veð heldur í glæsilegustu
skuldabréf og hlutabréf.
Innborgaður höfuðstóll:
$6,000,000
Eignir og varasjóðir yfir
$7,500,000
A. R. McNICHOL LTD.
WINNIPEG
Aðal skrifstofa:
288 PORTAGE AVE.
Phone 80 388
North End Branch:
925 MAIN STREET
Phone: 56956
Hin nýjasta allra rafhljóm
véla — Victor Radio með
Electrola, nýfundin upp
er eitt hið merkilegasta á-
hald nútímans og ári á
undan öllu öðru á markaö-
inum. Þú þarft að heyra
hana til að geta öðlast
hugmynd um hina óvið-
jafnanlegu hljómfegurð.
$375.00
$25.00 niðurborgun og 20
mánaða afborganir
Vægustu skilmálar
í Canada
gMsMUl
gar^ent Ave. at ^herbroolt
MACDONALD’S
Eitte Cut
Bezta tóbak í heimi fyrir þá,
sem búa til sína eigin vindlinga.
Gefinn með
ZIG-ZAC
pakki af vindlingapappír
ASK FOR
DryGincerAle
OR SODA
Brewers Of
COUNTHYCLUB'
BEER
GOLDEN GLOW
ALE
BANQUET ALE
XXX STOUT
BR E W E R.Y
OSBORN E & M U LVEY - Wl N NIPEG
PHONES 4I III 4730456
PROMPT DELIVERY
TO PERMIT HOLDERS
FLEST FYRSTU VERÐLAUN
f BÖKUNAR SAMKEPPNt
f KANADA UNNIN MEÐ
RobinHood
FLOUR
LUMBER
THE McARTHUR LUMBER & FUEL CO.. LTD.
Winnipeg
Manitoba
ÞJE R S E M NOTIÐ
TIMBUR
KAU PIÐ A F
The Empire Sash and Door
COMPANY LIMITED
Birgðir: Henry Ave. East Phone: 26 356
Skrifstofa: 5. Gólfi, Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ÁNÆGJA.
Stofnað 1882.
Löggilt 1914.
o
í
D. D.Wood& Sons, Ltd. j
VICTOR A. WOOD
President
HOWARD WOOD
Treasurer
LIONEL E. WOOD
Secretary
< Piltarnlr MPin ölluni reyna a ö ]»óknast)
Verzla með:-
HALDIÐ SAMAN MYNDASEDLUNUM
BYGGINGAREFNI — KOL og KOK
Búa til og selja:-
SAND-LIME BRICK — CONCRETE TILE
SAND — MOL OG MULID GRJOT
Gefið oss tækifæri
SÍMAR 87 308 — 87 309 — 87 300
Skrifstofa og verksmiðja:
1028 Arlington Str. (milli Ross og Elgin) Winnipeg.