Heimskringla - 31.07.1929, Side 8
8. BLAÐSÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 31. JÚLI, 1929
Fjær og nær
Messa á Langruth 11. ágúst n. k.
séra Þorgeir Jónsson prédikar.
Cand. theol. Philip Pétursson flytur
guSslþjónustu á ensku í kirkju Sam-
bandssafnaSar í Winnipeg næstkom-
andi sunnudag kl. 11 f.h.'
Mr. Hannes Kristjánsson, frá
Wyrryard, var í bænum um helgina
sem leiö í heimsókn til ættingja og
vina. iHafói hann af góðum upp-
skeruhorfum aS segja, en ekki annaö
tíðinda.
Fyrir nokkrum dögum kom hingað
til bæjarins Mrs. D’Arcy Goodrich meö
ungan son sinn frá San Fransisco,
Calif. Er hún á leið til manns síns,
sem er skrifstofu stjóri í Detroit,
Mich. Mrs. Goodridh, fædd Magnea
Halldórsson, er dóttir Mr. og Mrs. B.
B. Halldórssons í San Fransisco en
bróöur dóttir Dr. Halldórssons.
Lika var hér á ferö í fyrri viku Mr.
Viggo Sölvason miðskólakennari frá
Centralia, Calif. Var hér að heim-
sækja, frændur og forna vini. Hann
er fóstursonur Sveins læknis Sölva-
sonar, sem fyr meir bjó lengi skamt
frá Mountain N. D. Valmenni hið
mesta.
Nýdáin er í Árborg. Mrs. Guðrún
Reykdal, fædd Skaptason, en ekkja
Andrésar Reykdals sem lengi bjó hér
í Winnipeg og síðar í Árborg. Hún
var dóttir Björns Skaptasonar frá
Hnausum og Margrétar konu hans en
systir Capt. Joseps Skaptasonar í
Selkirk og þeirra systkina. Jarðar-
för hennar fór fram á miðvikudaginn
24. júlí frá útfararstofu A. S. Bardals.
iHinn 18. júní voru þau Runólfur
Sigurdson og Winnifred Rachel Holi-
day, bæði til heimilis í Winnipeg gefin
saman í hjónaband af séra Runólfi
Marteinssyni að 493 Lipton St.
Heimili þeirra verður framvegis í
Winnipeg.
Hingað kom á sunnudaginn var
bílleiðis frá Jackson, Mich. Mrs. og Mr
Jón J. Pálmi á Ibrullaupsferð. Höfðu
þau verið 12 daga á leiðinni, ferðast
gegn um Ontario og komið víða við.
Mrs. Pálmi, fædd Sophie Stankewitz,
er af pólskum ættum, náskyld skáldinu
Henryk Sienkiewicz. Varð fiöl-
skyldan landflótta frá Póllandi og
skifti því um nafn er hingað kom.
Mr. JónJ. Pálma þekkja margir vegna
verðlauna þeirra, sem hann hefir gefið
til hringhendu samkepni hér í blaðinu
og sem útbýtt verður hér á íslendinga-
deigiinum i Winnipeg. Ætlar Jón J.
Pálmi, að vera viðstaddur og ef til vill
að taka þátt í glímunum, því hann er
glímu maður mikill.
SAMKOMUR:
Tryggvi Björnsson efnir til piano-
hljómleika á eftirfarandi stöðum.
Árorg 5. ágúst.
Riverton 7. ágúst.
Lundar 12. ágúst.
Glenboro 14. ágúst.
Baldur 16. ágúst.
Gimli 19. ágúst.
Heimskringlu hafa borist mjög lof-
samleg ummæli um þennan efnilega
.pianó-leikara úr “Cavalier Chronicle’
N. D.
Nýlega hafa tekið próf við Toronto
Gonservatory of Music, allar með
First Class Honors:
Elementary: Liney Björnson og
Margrét Chatterton.
Introductory: Elisabet Björnson.
Eru þær nemendur Mrs. L. G. How-
ard, fædd Elín Ásmundson, Selkirk.
TIL ÓTEINS H. DOFRA
Frá séra Friðrik A Friðrikssyni $5.00
Séra Fr. A. Friðriksson frá Wyn-
yard, flutti messu að Piney sunnud. 21.
þ.m. Var þar ein hin fjölmennasta
messusamkoma er hafist hefir meðal
Islendinga hér í byggð. Sótti hana
flest byggðarfólk og nokkrir sunnan
landamæra. Mun ræða prestsins hafa
vakið andlegt líf áheyrenda og áhuga
á málum kristindómsins, því flutt var
hún í anda friðar og kærleika til allra
manna.
Næsta dag heimsótti séra Friðrik
allmörg fjölskyldu heimili og- mun
hvarvetna hafa 'þótt kærkominn gestur.
Piney, 23. júlí, 1929.
S. J. Magnússon.
Þeir feðgarnir Jón M. Olafsson og
! Steingirímur Ölafsson frá Glenboro
komu á bíl hingað til bæjarins í gær
og héldu aftur heimleiðis dag. Töldu
þeir útlit mjög ískyggilegt með hveiti-
uppskeru þar um slóðir.
Jarðskjálftar á fslandi.
Samkvæmt skeyti frá Reykjavík ti!
Daily Mail London þann 23. júlí síð-
astliðin, urðu meiri jarðskjálftar á
suðurströnd íslands þann dag en kom-
ið hafa í fimtíu ár. Knappastir höfðu
jarðskjálftakippirnir verið í kring um
Heklu. I höfuðstað landsins höfðu
steinhúsin riðað á grunni, svo að fólk
flýði út óttaslegið. Þó er eigi getið
um neinn mannskaða eða verulegar
skemdir nema steinveggir höfðu
sprungið og strompar hrunið.
ROSE
Myndin “Thé Shopy,orn Angel,”
sem sýnd verður á Rose næstu þrjá
dagana er rómantísk saga af Broad-
!yvay hispursmey ogi feimnum sveita-
pilti. Paul Lukas fer vel með hlut-
verk sitt í þessari mynd, sem tekin
er eftir sögu eftir hin vinsæla sagna
höfund Dana Burnet.
Fréttabréf til
Heimskringlu.
San Diego, Cal.
15. júlí, 1929
Mér datt í hug, vegna þess að ég er
nokkuð pennalatur maður og ég
skulda svo mörgum vinum minum
bréf, að biðja þig að birta iþetta ibréf
í Heimskringlu, svo að kunningjar
mínir og vinir geti vitað líðan mína.
Af mér er það að í fréttum að
segja, að mér líður bara ljómandi
vel. Eg kann betur við mig eftir því
sem ég er hér lengur og það hefir
mikið að segja fyrir mann sem verður
að sæta útivinnu árið um kring.
Blessuð sumartið, sem vér höfum
hér árshringin! Austur í ríkjum er
talað um Caiforníu sem heilsu-bæt-
andi land og veður blíðu, og svo koma
menn hópum saman til Californíu, en
þegar til Californiu kemur, þá er tal-
að um San Diego sem heilsu besta
staðinn og er óg viss um það að það
er satt, því að hér er svo mátuleg tíð
hvorki of kalt á vetrum eða of heitt á
sumrum. Það eina, sem að er hér, er
að við fáum aldrei skúr úr lofti alt
sumarið frá mai byrjun til september
loka og skrælnar þá jörð öll upp og
vex ekkert á sumrum, nema það sem
hefir vatnsveitu, en vatn er hér
mjög dýrt og í mörgum tilfellum
stenzt varla á kostnaður og ábati að
yrkja jörðina í mörgum plássum hér.
En svo er nú búist við í nálægri
framtið að það verði ráðin bót á
þessu vatnsleysi, því að stjórn Banda-
ríkjanna samþykti í vor sem leið að
gjöra annað mesta stórvirki, sem
Bandaríkin hafa ráðist í síðan að
Panama skurðurinn var gerður og
það er að veita svo kallaðri Colorado
á eða gjöra Boulder Dam svo kallaðan
og þegar það stóra mannvirki er kom-
ið í kring, þá verða 7 ríki, sem hafa
ómetanlegan hagnað af því; og við
hér verðum í stórum hagnaði með
vatnsleiðslu og mun þá verða alt ann-
ar blær á landbúnaði hér, þegar það
er komið í kring.
Á öðru stórvirki er verið að byrja
hér í San Diego, er verið að grafa
keyrslubraut .undir fjörðinn út í Cor-
onado, og er búist við að það taki 5
ár að fullkomna það verk. Hér eru
heldur daufir tímar, þó stækkar bær-
inn töluvert og flæmist út, en það er
margur um vinnuna af hvarflandi
verkalýð, sem kemur hin'gað á haust-
in og hverfur á burtu á vorin.
öllum Islendingum líður hér held-
ur vel og allir hafa þeir eitthvað að
gjöra. 23. júní urðum við fyrir
þeirri sorg að missa úr okkar fá-
menna hóp heiðursmanninn.Sumarliða
Kristjánsson. Hann dó á almenna
spitalanum hér. Átti hann heima að
3986 Gamma St. hér í borginni. Hans
er sárt saknað af öllum sem hann
þektu, því hann var besti drengur.
Hann lætur eftir sig aldraða ekkju
Margréti að nafni, heimilisfasta hér
að 3986 Gamma St. og einn son gift-
an og búsettan í Seattle, Wash.
Eg hefi orðið töluvert að gjöra með
“truck” og svo er ég nú farin að
byggja mér hús, því að ég er fast-
ráðinn í því, að láta hér fyrir berast
og bera hér beinin. Og ég býst við
að ég sé hér eins nálægt himnaríki
eins og eg kemst á þessari jörð. Enn
er það eitt, sem ég ætla að biðja ykk-
ur kunningja mína. Þegar þið takið
ykkur upp til að ferðast til Californíu
að stansa ekki allir í Los Angeles,
heldur að halda áfram alla leið til
San Diego, ykkur mun ekki iðra Iþess,
því að það er fallegasti bærinn á suð-
ur parti strandarinnar.
Svo kveö ég ykkur öll og alla gamla
vini og kunnimgja, og bið góðan
guð að vernda ykkur og blessa.
Það mælir af alhug,
Sigfús Paulson.
R. 3, Box 538.
ROSE Theatre
Sargent at Arllngton
The West End’s Finest Theatre
THUR.—FRI.—SAT. (This Week)
Whoopee!! Don’t Miss it
The Shopworn Angel
With Nancy Carroll, Gary Cooper
and Romance
A Part Talking Picture
ALSO A 100% Featurette
Hobart Bosworth
—“THE MAN HIGHER UP”—
MON,—TUE—WED. (Next Week)
Monte Blue in
Greyhound Limited
A Part Talking Picture
and a Great Railroad Melodrama.
VEITIÐ ATHYGLI!
Eg bý til beztu “Caboose” tjöld af
ýmsu tagi, einnig fiskmanna tjöld.
Góð kjör. Bezta efni notað. Póst-
pantanir fljótt og vel afgreiddar.
R. JACOBSEN,
215 James Street
Sími 28 602 Winnipeg Man.
Nú er heitt í veðri
En óþarfi er að þjást af hitanum. Því að svali sá, sem
kemur af raf-dælum vorum er hressing, sem þér
ættuð ekki að vera án.
Verðið er mjög lágt.
Loftdæla, til að fjarlægja matarlykt er önnur þægindi
fyrir húsmóðurina. Auðvelt að flytja með sér og koma
fyrir í efra gluggafaginu. Vér skulum sýna yður að-
ferðina. Hvorttveggja selt gegn lítilli niðurborgun og
vægum afborgunar skilmálum.
Til sýnis í hinni nýju áhalda búð vorri.
WIWWIPEC BLECTRIC COMPAWY
“Your guarantee of Good Service'’
THREE STORES:
Apþliance Department, Power Building;
1841 Portage Avenue, St. James;
Cor. Marion and Tache, St. Boniface.
WONDERLAND
Á fimtudaginn, föstudaginn og
laugardaginn þessa viku sýnir leikinn
“Gentlemen Prefer Blodes.” Það er
regluleg kvennmynd og trúum vér ekki
öðru en kvenfólkið hafi gaman af að
sjá hversu auðvelt er að leika á karl-
mennina. Þá verður og sýndur leik-
urinn “The Branded Man.” Fyrri
hluta næstu viku verður sýnd myndin
“Ships of the Night” þar sem Clara
Bow leikur aðal hlutverkið.
Frá Norður
(Frh. frá 1. síðuj.
G. Oddleifsson, bóndi í Haga í
Bifröst.
S. Thorvaldsson, kaupmaður og
sveitaroddviti í Riverton.
G. Sigmundsson, kaupmaður á
Hnausum.
—Þetta eru aðeins sex nöfn af 20
manna nefnd, en því miður veit ég
ekki að greina nöfn hinna en engum
efa mun það ibundið að það eru
alt ágætis menn. Þó býst ég við því,
sem í raun og veru er eðlilegt, að
ýmsar verklegar framkvæmdir lendi að
meira og minna leyti mest á þeim, er
næst búa vettvangi, sem er hr. Gísli
Sigmundsson á Hnausum, fyrverandi
WONDERLAND
Winnipegs Coziest
Suburban Theatre
THUR.—FRI.—SAT. (This Week)
“ANITA LOO’S”
—in—
“GENTLEMEN
PREFER BLONDES”
added feature
“THE BRANDED MAN”
also lst Episode
“THE FINAL RECKONING”
MON.—TUE.—WED. (Next Week)
CLARA BOW
—in—
THREE WEEK ENDS
helmingur þess þakinn fögrum greni-
skógi. Norðurjaðar eða nærfelt
helmingiur, er slétt grund, og er þaðan
mjög fagurt útsýni norður eftir
Breiðuvíkinni og svo blasir við Mikl-
eyjan. Þennan stað hafa bygðarmenn
valið fyrir skemtistað (park) fyrir
framtíðina, og þeir hafa ekki keypt
“köttinn í sekknum.”Fegurri stað fyrir
skemtigarð hygg ég að erfitt muni að
finna, á vesturströnd Winnipegvatns,
alt frá Rauðárósum til Sandy Bar.
Byrjað er á því nú þegar, að byggja
og 'hreinsa. Því að þar verður hald-
inn Islendingadagurinn 5. ágúst næst-
komandi, og þarf enginn að efa, að
með þeim mönnum, sem Park-nefnd
þar skipa, verður miklu hrundið í
framkvæmd af því, er gera þarf fyrir
þann 5., þótt það sé í raun og veru
aðeins byrjun á því, sem gert verður í
framtiðinni.
Því miður veit ég ekki nöfn allra
nefndarmanna, en þessa get ég til-
nefnt svo að fólk, sem kunnugt er, sjái
að ekki hefir verið valið þar af lakari
endanum, heldur valinn maður í rúm
hvert. Þeir eru þessir :
Dr. Sv. E. Björnsson, Arborg.
G. Einarsson, verzlunarstjóri,
Árborg.
G. Magnússon, bóndi í Framnes-
ibygð.
sveitarráðsmaður, og sem alþektur er
fyrir dugnað og framkvæmd og valin-
kunnur að vinsældum, og með slíkan
mann til meðstöðu sem Mr. Svein
Thorvaldsson í Riverton, mun fram-
tiðin leiða það í ljós, að þessi skemti-
staður verður bæði byggðarblómi og
bygðarsómi, og ef að þeir, sem ein-
hverra ástæðna vegna ekki geta farið
næsta ár til gamla landsins, en vilja
samt halda minningu 1000 ára lög-
gjafarþings íslands ihér, þá er hvergi
betri stað' að finna, en þennan umtal-
aða skemtistað, og ber margt til þess,
fyrst, að það er fyrsta ísl. nýlenda
vestan hafs, — annað, Islendingar eiga
landið, og þriðja, það er á vatnsströnd
sem minnir á hafið heima.
Nú ber Islendingiadaginn upp á 3.
ágúst í Winnipeg, en þann 5. á Hnaus-
um. Mjög finst mér að það væri
æskilegt, að hvorir sæktu aðra heim ef
þurviðri helst, svo að brautir séu góð-
ar. Það ætti að vera ánægja samfara
skemtuninni, auk þess sem það mundi
styrkja samúð og bræðrabönd nábú-
anna nefnilega Winnipeg íslendinga
og Ný-lslendinga. Eg get fullvissað
Winnipegbúa um það, að það sem hér
að framan er skráð, plássinu viðvíkj-
andi, er satt. Eg hefi verið þar að-
eins stuttan tíma að þessu sinni, en
vona að koma þangað síðar og hafa þá
lengri dvöl.
I
Okkar verð
er lœgst
Astæftan er sú, at5 alllr eldri bíl-
ar eru keyptir þanntg aS vér
getum stabist samkeppni hinna
undursamlegu nýju Ford Bíla,
sem seldir eru svo ódýrt.
BeritS saman þetta vertS vitJ
þatS sem atSrir bjótia:
FORDS
1928 Light Delivery ....$550
1927 Light Delivery ...$300
1925 Light Delivery ...$210
1928 Sedan ............$750
1922 Touring............$ 95
1924 Coupe .............$145
1926 Touring ..........$260
1928 Touring ...........$500
1926 Coupe ............$325
1927 Coupe.............$375
VÆGIR SKILMÁLAR
DOMINION
Motor Co. Ltd.
FORT & GRAHAM 87 316
EVBSÍIJÍGS 87411
Bið ég svo þá, sem þessar línur lesa,
að virða til betri vegar, hvernig þær
eru í stíl færðar.
151 Kingston Row,
St. Vital, 29. júlí, 1929.
N. OttenSon.
! í
! i
íi
n!
11
í
(I
!
í
í i
í'
í
í
A
I
í
í!
i'
í
Islendingadagurinn
Fertugasta ÞjóÖhátíð Yestur-Islendinga
Haldinn í
River Park, Winnipeg
Laugardaginn 3. Ágúst 1929
Byijar kl. 9.30 árdegis Inngangur 50c Börn innan 12 frítt
• ----------------------------------------------------
Skemtiskrá:
Ræðuhöld byrja kl. 2 síðdegis menn, aldraðar konur og aldraðir menn, “Boot
J. J. SAMSON and &hoe race’” Three legged race.”
forseti dagsins Börn öll, sem taka vilja þátt í hlaupunum,
verða að vera komin á staðinn stundvíslegia kl.
FJALLKONAN árdegis. Sælgæti handa börnunum.
Miss Margrét Backman || þATTUR
“Ö, guð vors lands”.......Lúðrasveit Byrjar kl. 1 e.h.
Avarp ............v:.. íorseti daSsins Verðlaun: gull- silfur og bronzemedalíur.
100 yards; Running High Jump; Javelin;
Avarp Fjallkonunnar .... Þorskabítur 880 yards; 220 yards; Shot Put; Running Broad
■^varP ..........Leifur hepni Eiríksson Jump; Hop, Step and Jump; 440 yards; Discus;
Avarp ............ Egill Skallagrímsson Standing Broad Jump; einnar mílu hlaupj
Luðrasveitin Running Broad Jump> ^
*
MINNI ÍSLANDS Fjórir umkeppendur minst verða að taka þátt
Ræða ........ séra Benjamín Kristjánsson í hverri þrótt.
Kvæði ......... Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
Lúðrasveitin — Verðlaun: Silfurbikarinn gefinn þeim, sem
fesu ^.nn.nga (tj] e.ns _ s^jöldur.nn
MINNI CANADA KnnÍSíÍfSííí T* fleSta vinninea hefir- -
Hannessons beltið fær sa, sem flestar glimur
Ræða ........./....... séra H. J. Leó vinnur.
Kvæði ..... Jónas Stefánsson frá Kaldabak
Lúðrasveitin
III. ÞÁTTUR
MINNI VESTUR-fSLENDINGA Byrjar kl. 4.30 síðdegis
Ræða ............ Dr. Sv. E. Björnsson
Kvæði ............... Jón Jónatansson Glímur, (hver sem villj; gull- silfur og
Lúðrasveitin bronzemedalíur eru veittar.
I. ÞÁTTUR Verðlaunavalz byrjar kl. 8 síðdegis, aðeins
Byrjar kl. 9.30 f. h. fyrir Islendinga. Verðlaun : $8.00, $6.00, $4.00
Hlaup fyrir unglinga frá 6 til 16 ára — ógift Lúðrasveitin spilar á undan og á milli ræðu-
kvenfólk, ógiftir menn, giftar konur og giftir haldanna.
ForstöSunefndin:
J. J. Samson, forseti; Sig. Björnsson, ritari; H. Gíslason, féhirðir; S. Einarsson, E. Haralds, N.
Ottenson, Einar P. Jónsson, O. Pétursson, Sigfús Halldórs frá Höfnum, G. P. Magnússon, Ben.
Ölafsson, B. A. Bjarnason, Jón Asgeirsson, W. J. Lindal.
I
i!
i
5