Heimskringla - 07.08.1929, Blaðsíða 2
2. BLAÐSÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 7. AGÚST, 1929
Minni
flutt á Islendingadegi í Winnipeg
3. ágúst 1929.
Minni íslands.
I dýrð sinni skapandi drottinn leit
um dimman og auðan geim;
af efniviSunum átti hann nóg,
en eftir aS raSa þeim.
Hann augunum rendi af staS á staS,
því stöSvar hins bezta lands
hann ætlaSi’ aS velja sem óSalsblett
hins ándlega stærsta manns. —■
— Og Island varS hugsjón hans.
En framþróun öll er svo undur sein,
og eins er meS drottins verk,
þó mund hans sé bæSi mikilvirk
og máttug — Já, reginsterk. —
Hann hefir ei skift um skoSun enn
viS sköpun hins bezta lands,
og enn ekki hætt aS auSga sál
hins an'dlega stærsta manns.
— Nei, Island er hugsjón hans.
Því helgara boSorS en önnur öll
skal ávalt hins frónska manns
— hins andlega stærsta manns —
aS velja og skilja sin skyldustörf
viS sköpun sins föSurlands
— viS sköpun hins ibezta lands —
En viS sem í dreifingu dveljum hér?
Oss dreymir til átthagans.
Hve sælt væri aS eiga þar sonarskerf
í samvinnu skaparans
aS fullkomna hugsjón hans.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Minni Canada.
Hver flótta-maSur — frjálsa land!
sem flýSi ok og þrældómsband
mun ávalt unna þér.
Þær þúsundir, sem þreyttu skeiS
en þrotlaust stríS og hungur beiS
uns ‘hingaS vestur lögSu leiS
fá ljúfust kynni hér.
Þú margra þúsund mílna land,
sem miljónanna beislar gand
er gulliS gefur þér,
þú svalar ætíS útþrá hans
hins unga, sterka og hrausta manns.
Hér framsókn djarfa fullhugans
á frjálsum grunni er.
Hér gamla heimsins glæfra menn,
sem glapráS unnu tvenn og1 þrenn.
oft fundu friS og skjól.
— ÞaS góSverk hafSi gildi þrenn.
Þú geröir úr þeim nýta menn.
Þú mörgum fáráS ornar enn
viö yl af manndóms sól.
* * *
I fornöld beiöstu ótöld ár •
meö ægisljóma um hvelfdar brár
— aS kongson kæmi aS strönd,
því Indiána aldrei þú
gast alla þína gefiö trú
—frá örlaganna alheims brú
þín einvöld stýröi hönd.
Einn sunnudaginn sigling iglæst
meS sigurfána á stöngu hæst
sást hylla hafs viS rönd
þar Leiíur heppni í lyfting stóS
og létti’ hjálm mót sólarglóS,
en drekinn bláar öldur óö
aS Ameríku strönd.
Þeim fagra og unga farmanni,
Því loksins eftir öld og ár
hinn útvaldi meS gullbjart hár
var kominn yfir unnir blár
aS unnustunnar strönd.
sem festum rendi á höfninni
þú réttir hægri hönd.
Af heimþrá Leifur heppni brann
á hafiö vildi sigla hann
og forna frændur sjá.
Þá fanstu víst í fyrsta sinn
hve furöu sár var harmurinn
er Island væni vinurinn
þér vildi hverfa frá.
Þú kvaddir Leif Qg kappa fans
og klökk þú ennþá minnist hans.
—A hafiö hurfu þeir — !
En hörS þér reyndist hugraun sú
því honum gafstu ást og trú.
Um margar aldir unnir ;þú
en aldrei sást hann meir!
* * *
Og löngu seinna lentu hér
og landnámsstarfiS tóku aS sér
— þeir kristnu og hvítu menn —
— Þú unnir Leifi’ af alhuga
og aldrei fanst hans jafningja
á meöal þeirra miljóna,
sem meö þér dvelja enn.
En eitt er víst aS íslending
þú ætíö gefur sigurhring
í hverjum kappleik hér.
Þú þekkir islenskt ættarmót
meö augu blá og hugtök skjót,
og Leifi heppna líkist sjót
sem lang er kærust þér.
* * *
Nú Canada sér kveöur hljóös
og kallar hátt i nafni óös
á alla íslands þjóö !
“Ö, gullhæröan mér geföu Leif,
sem gæfuleysiS frá niér hreif
og friö minn upp meö rótum reif
og rændi hálfum ntóö !
“Og þó þaS kosti þúsund ár!
og þúsund mein og blóöug tár !
Þú má*t ei bregöast mér !
En ef ég fæ hann alt er falt —
og útvöld þjóS þú verSa skalt,
og láta mun ég alt — já alt
sem upphefö veitir þér !
Jónas Stefánsson, frá Kaldbak.
Minni Vestur-íslendinga.
I sólarlagsins landi
í lista og þjóSablandi
og hljómi hjáræms máls,
er okkar iból og byögir
hvar blómgast flestra dygöir
í glaumi gulls og stáls.
Þér íslendingar ungu!
sem eigiö frægsta tungu
ogi skýrast skálda mál
og hugsjónirnar hærri
og hjartans óskir stærri
og sólskin mest í sál.
Ef málmsins hvelli hljómur
er hæstur lífsins dómur
en hugsjón hædd og grýtt,
til einkis er þá barist
til einkis sótt og varist
og lífiö lítils nýtt.
I elfu tímans unga
í undirstraumnum þunga
býr meinvætt mörg og ljót
sem hvoft og glirnur glennir
og gildru marga spennir
og æpir öllu mót.
En, til hvers var aS vinna
ef verkum feSra þinna
er þeytt í þennan straum,
og erfSir æöri kenda
í opinn kjaftinn lenda
á iþessum rama raum.
I nafni okkar ætta
og allra góöra vætta — *
til hafs og lofts og lands,
vér strengjum heit í huga:
i hildi lífs aS duga
og halda’ upp’ merki manns.
I sólarlagsins landi
ef lækkar flug þinn andi,
á austrjö ennþá skjól
hvar árdagseldar glóöu,
úr aldablárri móöu
rís Island upp meö sól.
Jón Jónatansson.
Æfiminning.
Stefanía Sigfússdóttir Johnson
Hún andaSist aö heimili sínu,
Vestfold, Manitoba, 22. janúar síSast-
liSinn.
Stefanía sál. var fædd aS Gilsár-
vallahjáleigu í BorgarfirSi í NorSur-
múlasýslu á Islandi áriö 1848. For-
eldrar hennar voru Sigfús bóndi
Pálsson og kona hans Sigríöur
Stefánsdóttir.
Stefania ólst upp hjá Skúla bónda
í Brúnavík í BorgarfirSi og fluttist
meö honum aö ÁsgirímsstöSum í
Hjaltastaöaþinghá i sömu sýslu. Þar
kvæntist 'hún fyrri manni sínum, Jóni
Torfasyni og bjuggu þau þar til
dauSadags hans. Sex börn eignuöust
þau, og eru þau öll dáin nema eitt,
Mrs. Ágústa Olson, kona Fred Olsons
bónda og sveitarráSsmanns aö Vest-
fold. Á Ásgrimsstööum giftist
Stefanía einúig síöari manni sínum,
Birni Jónssyni frá VíöistöSum í
sömu sveit. Héldu þau áfram bú-
skap á Ásgrímsstööum unz þau flutt-
ust vestur um haf áriö 1892. Settust
þau fyrst aö í Whitesand River vestur
í landi og dvöldu þar hálft annaö ár.
Þá fluttust þau í GrunnavatnsbygS-
ina og þar dvaldi Stefanía sál. upp
frá því á sama staö til dauSadaigis,
rúm 35 ár.
Börn þeirra Björns og Stefaniu
voru fjögur. Eitt þeirra dó kornungt
og dóttur uppkomna mistu þau fyrir
9 árum, GuSrúnu Björgu aS nafni,
mestu myndar stúlku. Þau tvö, sem
á lífi eru, eru Einar, bóndi á Oák
Point og Jónína Kristín, sem dvelur
heima meö jööur sínum. Einn hálf-
bróöir Stefaniu er hér, Sigfús Borg-
f jörö á Oak Point og auk hans margir
fjarskyldari ættingjar i Winnipeg og
viöar hér i landi.
Um Stefaníu sál. mætti rita langt
mál, því hún var ein hin ágætasta
kona um allar þessar bygöir. Heimili
hennar var fyrirmynd aS allri regilu-
semi, enda voru þau hjón bæöi, Björn
og hún samtaka í prýöilegri umgengni
bæöi utan 'húss og innan. Efnahag-
ur þeirra var lengst af dágóSur og
var þaö eingöngu aö þakka dugnaSi
þeirra og sívakandi áhuga i öllu sínu
starfi. Af því Ieiddi þaö aö þau gátu
oft veitt nágrönnum sinum aöstoS
framan af meöan erfiöleikar frumibýl-
ingisáranna voru hvaS mestir. Ekkert
var húsmóöurinni kærara, en þaö að
veita gestum beina. Bar þar og
margan aö garSi, hæSi bygSarmanna
og lengra aö. Var öllum tekiS meS
sömu alúS, hvort sem þeir voru ná-
komnir ættingjar eða alókunnugir
menn. Heyrt hefi ég haft eftir manni,
sem nú er nafnkendur meSal Vestur-
Islendinga og víöar, aö þaö heföi
veriö gott fyrir svanga skólapilta aS
koma á heimili Björns og Stefaníu.
Sömu sögu hafa og víst allir aSrir aö
segja, sem þar komu. En þaö var
ekki gestrisnin ein sem geröi mönn-
um komur sínar þar svo eftirminni-
legar, því ekki er þaS óvanalegt meSal
íslendinga aö gestum og gangandi sé
beini veittur, heldur velvildin og alúö-
in, sem þar voru ávalt fyrir. Sá,
sem þessar línur ritar, minnist sér-
staklega einnar komu sinnar þar um
miðjan vetur í mjög köldu veöri. ÞaS
var líkast og aS koma heim í forekfra
hús eftir langa burtveru. Umhygg-
jan um aS manni liöi vel var svo
móöurleg aS hún getur ekki gleymst.
Stefanía sál. var ein þeirra kvenna,
sem helga heimilinu alla starfskrafta
sína. Hún lét ekki mikiS á sér bera
út á viS, en heima fyrir var umhyggju
semi hennar sú kærleiksuppspretta,
sem allir nutu góös af, er hún náSi
til. Alveg fram á síSustu daga lét
hún sér umhugaö um húsdýrin, ekki
af því aS þaS væri nauSsyn, heldur af
því að samhygS hennar náöi til
þeirra eins og til mannanna, og hún
kunni ekki viö annaö en aö vera sí-
vakandi yfir öllum hag heimilisins.
I daglegri umigengni var hún engin
orSrófs manneskja en ávalt glöS í
bagSi og Ijúfmannleg.
Daginn, sem hún var grafin var
bitrasti kuldi. Samt komu ekki aö-
eins allir nágrannar heldur og fólk
úr allmikilli fjarlægö til þess aS
fylgja henni til grafar. Þau síSustu
vináttumerki átti hún margfaldlega
skiliö. Ogl mun minning hennar
seint fyrnast þeim, sem henni kyntust
og nutu góSvildar hennar.
G. A.
Frá Islandi.
Vinnudeilurnar í Siglufirði.
Siglufirði, 3. júlí.
Þrjú herpinótasíkip lögðu út frá
Akureyri í gær í síldarveiSar. Verka-
lýössambandið telur þau hafa lagt út
í ibanni sínu, meðan ekki hafi samist
um kaupkjör skipverja, og hefir látiö
Verkamannafélag Siglufjarðar í dag
auglýsa verkbann á þær sildarbræðslu-
eða söltunarstöðvar, sem kynnu að
vilja taka á móti sild af þeim.
Þrjú herpinótaskip komu inn á
laugardag með 50 — 400 tunnur.
Norsk línuskip segja hafís 20 sjó-
mílur undan Straumnesi viö Isafjörö.
TiS hér afarköld. Snjóað í fjöll
nærfelt hverja nótt. Reknetasíld
enginn og beitutregöa. Þorskaveiöi
í dag 3—7000 pund á bát.
Afli samtals hér í júnímánuði 5832
skippund, miöað við verkaSan fisk.
Sogsvirkjunin.
Rvík. 5. júlí.
Á bæjarstjórnarfundi i gær voru
svohljóðandi tillögur rafmagnssstjórn-
ar um virkjun á Soginu samþyktar:
1...Að hún ákvarði nú þegar að
byggja 10 þús. hestafla stöð við
Efra-fatlið í Soginu, samkvæmt
fyrirliggjandi endurskoðaðri á-
œtlun Rafmagnsveitu Reykjavik-
ur, enda fáist viðunandi lánskjör.
2. Að hún feli rafmagnsstjórn að
leita tilboða um lántöku til virkj-
unarinnar, gera útboð um bygg-
ingu stöðvarinnar og framkvœma
annan nauðsynlcgan undirbúning,
svo að unt verði að hefja bygg-
ingu stöðvarinnar vorið 1930 og
byrja starfrækslu hennar fyrir
haustið 1932.
Fyrri liður tillögunnar var sam-
þyktur meS 9 atkv. (tveir greiddu
ekki atkv.J og síöari liöurinn meö 8
samhljóSa atkvæSum. Á fundinn
vantaði 5 bæjarfulltrúa.
Rvík. 5. júli.
Sambandsþing ungmennafélaga Isl.
var haldið í Þrastaskógi — Iandeign
félaganna — dagana 18., 19. og 20..
júní s.I. Sóttu þingiö 22 fulltrúar
víðsvegar að. — Viðfangsefni þing-
sins voru mestmegnis þau mál, er aö
einhverju leyti snertá AlþingishátíS-
ina. á Þingvöllum næsta ár. Þar á
meSal, aS ungmennafélögin gangist
fyrir og undirbúi aS haldin verði þar
bændaglíma aS fornum siS, aS þjóS-
dansar (vikivakar) verSi þar sýndir,
stuölaS að því, að sem flest fólk beri
þar íslenska þjóðbúninga o. s. frv.
Rætt var og um íþróttir almént (undír
umsjón Iþróttasamb. Isl.J, heimaiSju,
skógrækt o.m. fl. Stjórnarkosning fór
ekki fram meS þvi aS þingiö var auka-
þing. Sitja hinir sömu menn í stjórn-
inni áfram (Kristján Karlsson sam-
bandsst., GuSm. Jónsson frá Mosdal
og SigurSur Greipsson). — GistihúsiS
“Þrastalundur,” sem Elín Egilsdóttir
veitingakona hefir bygt í Þrastaskógi,
eftir samningi viö sambandsstjórn, er
vænt hús og hiS ásjálegasta. Var
samibandsþingiiS haldiS þar í húsinu
og þótti vel hlýða. — Sem gestir
heimsóttu þingiS Simun av SkarSÍ,
lýöskólastjóri úr Færeyjum, Jóhannes
Velden prófessor í hljómlist frá
Tekkóslóvakíu, Freysteinn Gunnars-
son, kennari, Jón Helgason, og nokk-
urir ungmennafélagar, aöallega úr
Reykjavík.
Kaupagjald kaupafólks. ASal
fundur BúnaSarsambands Suðurlands
samþykti svohljóðandi tillögu við-
víkjandi kaupgjaldi viS iheyvinnu:
“Fundurinn lýsir yfir þvi, aS hann
telji káupgjald kaupafólks í sumar,
meS tilliti til afurðasölu á Sambands-
svæöinu, hæfilegt fyrir karlmenn 40
kr. á viku og fyrir kvenmann 23 kr.
á viku, hvorttveggja miðaS viS meS-
alkaup.”
HYGGINDI
Vitrir menn bera fyrirhyggju
fyrir framtíðinni. Þér skuliS
byrja aö leggja inn í sparisjóS
hjá oss, meöan þér eigiS enn-
þá óskerta krafta, til að afla fjár
vextir árlega, sem bætt er við
höfuðstólinn á hálfsárs fresti,
munu láta sparifé yðar vaxa
óðfluga.
Engir sparisjóðir eru settir í
veS heldur í glæsilegustu
skuldabréf og hlutabréf.
Innborgaður höfuðstóll:
$6,000,000
Eignir og varasjóöir yfir
$7,500,000
A. R. McNICHOL LTD.
WINNIPEG
Aðal skrifstofa:
288 PORTAGE AVE.
Phone 80 388
North End Branch:
925 MAIN STREET
Phone: 56 956
Hin nýjasta allra rafhljóm
véla — Victor Radio með
Electrola, nýfundin upp
er eitt hið merkilegasta á-
hald nútímans og ári á
undan öllu öðru á markad-
inum. Þú þarft að heyra
hana til að geta öðlast
hugmynd um hina óvið-
jafnanlegu hljómfegurð.
$375.00
$25.00 niðurborgun og 20
mánaða afborganir
Vægustu skilmálar
i Canada
Rvík. 5. júlí.
Margir bílar hafa fariS alla leiS
norSur aS Akureyri í sumar. Er
vegurinn víðast hvar slarkfær, nema
yfir Grjótá á Ö'xnadalsheiSi hefir
veriS afleitt aS fara. Hafa bilar
legiö þar drjúgum í og tafist mikiö.
Rvík., 5. júlí.
Að Reykjanesi eru nú eins margir
gestir aS staSaldri og húsrúm leyfir,
og vilja þó miklu fleiri komast þar aö,
sem von er. SíSan Ölafur vitavörS-
ur ibjó þar til sundlaugina góðu, er
þar komiS besta hressingarhæli þessa
lands, þótt í smáum stíl sé. — Seinna
verður Reykjanes frægasta og eftir-
sóttasta “Kurbad” í Evrópu. Nú
þegar er komiS svo, aS þaS er ekki aS-
eins straumur innlendra manna, sem
beinist þangaS, heldur koma þang’aS
einnig útlendingar, sem einhvernveg-
in hafa heyrt getiS um þennan dýr-
mæta staS . — Ölafur hefir brotið
hrauniS milli Reykjaness og Grinda-
víkur og í fyrra komust bílar alla leiS
úr Reykjavík til Reykjaness. Nú
hefir vegurinn veriS bættur og milli
Grindavíkur og Reykjaness fara bílar
nú fyrir 15 krónur.
Rvík., 9. júlí
Sundlaug, yfirbygöa steinsteypu-
laug ,hafa ungmennafélögin báSu-
megin HrútafjarSar reist aS Reykj-
um, austanmegin fjaröarins. Er
laugin stór og vönduS, meö íbúð fyrir
sundkennara og kostaði um 8 — 9
þús. kr. Sundkennari viS laugina er
Helgi Tryggvason hraöritari frá
Kothvammi.
LUMBER
THE McARTHUR LUMBER & FUEL CO.. LTD.
Winnipeg — Manitoba
ÞJER SEM NOTIÐ
TIMBUR
K A U P I Ð A F
The Empire Sash and Door
COMPANY LIMITED
Blrgðir: Henry Ave. East Phone: 26 356
Skrifstofa: 5. Gólfi, Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ÁNÆGJA.
StofnaS 1882.
Löggilt 1914.
D. D.Wood& Sons, Ltd.
VICTOR A. WOOD HOWARD WOOD LIONEL E. WOOD
President Treasurer Secretary
(Piltarnir sem tilluin reyna að þAknnat)
Verzla með:
BYGGINGAREFNI — KOL og KOK
Búa til og selja:-
SAND-LIME BRICK — CONCRETE TILE
SAND — MOL OG MULID GRJOT
Gefið oss tækifæri
SfMAR 87 308 — 87 309 — 87 300
Skrifstofa og verksmiðja:
1028 Ariington Str. (milli Ross og Elgin) Winnipeg.
a worni
S,1EA wwnHto Boi>'noíl"f,ns
In a Quality Race
IsWlNNER
Shea’s Winnipeg Brewery Ltd.