Heimskringla - 21.08.1929, Side 2

Heimskringla - 21.08.1929, Side 2
2. BLAÐSlÐÁ HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 21. ÁGÚST, 1929 Minni Vestur-Islendinga —flutt af— dr. Sveini E. Björnsson & Islendingadegi í jWinnipeg 1029 Heiöraöi herra forseti! Kæru Vestur- Islendingar ! Konur og Menn! Þegar ég var beíSinn aö tala hér fyrir minni Vestur-Islendinga, var ég í æði miklum vafa öm hvort ég myndi vera þvi verki vaxinn. En svo barst mér á einhvern hátt sú vitran, annaöhvort ofan aö, eöa þá í gegnum sögu þeirra manna og kvenna sem ég á nú að tala um, að ÖLL réttmæt áreynsla er gróði og aö þetta yröi þá aö skoöast sem tæki- færi fyrir mig, sem mér bæri síst aö láta ónotað. Eg leyfi mér því að heilsa hér í fyrsta — ef til vill síö- asta — sinn Vestur-Islendingum opinberlega nú, eftir fjóröungs aldar veru mína hér í Vesturheimi. Og ég vil byrja meö því að þakka nefnd þeirri, sem nú stendur fyrir þessu há- tíöarhaldi fyrir þá tiltrú sefn hún sýndi mér meö því að biöja mig að mæla fyrir þessu minni. Ekki skal ég þreyta yöur á því að rekja, liö fyrir lið, landnámssögu Islendinga hér, enda naumast mitt meöfæri. Þó mun ég á hana minn- ast og ýmsa erfiðleika, sem iandnám- inu voru samfara. En i þetta sinn held ég að ekki ætti illa við aö minn- ast þess fyrst aö í dag eru 40 ár liðin síðan fyrsti Islendinigadagur var hald- inn í Vesturheimi. Sá atburður skeöi og hér í Winnipeg, laugardag- inn 2. ágúst 1890. Þaö er ekki ófróðlegt fyrir þá sem hér búa nú, og eru hér samankomn- ir, að rifja upp nokkrar endurminn- ingar frá þeim tíma, sem hér um ræðir, og þá að sjálfsögðu sögu hátíðahaldsins sjálfs. Vil ég því leitast við aö draga fram ofurlitla mynd af því sem fram fór þann dag. Heimskringla, dagsett 7. ágúst 1890, getur Islendingadagsins meðal annars á þessa leið: “íslendingadagurinn laugardaginn 2. ágúst rann upp heiðskír og fagur þrátt fyrir öll ósköpin sem gengu á nóttina fyrir, meö húðarigningu, þrumum og eldingum. Eftir kl. 9.30 f. m. fóru menn að safnast saman á vellinum fyrir sunn- an kirkju Islendinga, bæöi karlar og konur. Forstöðunefndin haföi fengiö loforð fyrir öllum leiguvögnum bæjarins handa kvenfólkinu.— Þar á vellinum fylktu marskálkarnir karlmannalið- inu í fjórar fylkingar. Tæpri 1. og hálfri klst. fyrir hádegi var lagt á stað. Fyrst fór lúðrafokkur her- mannaskólans, sem spilaði lög á allri göngunni. Síðan komu karlmenn í fjórum fylkingum, hverri á eftir ann- ari, og var merki borið fyrir hverri um sig; fyrst enski fáninn og síðan þrír fánar íslenzkir. (Hvít stjarna í bláum feldi ag danska merkið í efra horninu viö stöngina). Þar á eftir kom kvenfólkið í pm 40 vögnum. Leiðin var nú lögð um Ross stræti, Maint st., Rupert st. og inn í Vic- toria Garden.— Um kl. 2 streymdu allir Islending ar hér í bænum sem vetlingi gátu valdið, og margir sem engum vetlingi gátu valdið heldur sátu á handlegg móöur sinnar út til garðsins. Fyrstur af öllum heiðursigestunum kom fykisstjóri (Lieut. Governor) Schuíts, siöan komu þeir sambands- þingmenn Scarth, konsúll Banda- rikjanna, Taylor konsúll Þjóðverja, Hespeler, konsúll Dana, Green toll- heimtustjóri i Winnipeg, ofursti Thonias Scott, fylkisþingmaður fyr- ir Kingston, Ont., /. H. Metcalfe, bókavörður /. P. Robertson, yfir- innflutningastjóri i Manitobafylki Bennett, fylkisþingmaður í Mani- toba Isaac Campbcll, o. fl.— Þegar klukkan var nærri 3 setti foseti hátiðahaldsins, W. H. Paulson, —til þess kosinn af forstöðunefnd- inni — samkomuna með ræðu. Bað hann alla velkomna og gat þess að þetta væri hin fyrsta þjóðhátíðarsam- koma sem haldin væri af Islending- um í Vesturheimi, þegar þjóðhátíðin í Milwaukee 1874 væri undantekin. Svo spilaði' lúðraflokkurinn “0 Guð vors lands.” Eftir það var sungið minni Islands eftir Jón Ölafs- son: “Já, vér elskum Isafoldu.” Þá talaði Jón Ölafsson minni Islands, fyrir hönd Gests Pálssonar, sem var lasinn þann dag og treysti sér ekki til að tala svo að til sín heyrðist.”— Eg ætla aö leyfa mér aö fara hér með fjögur erindi sem Gestur Páls- son orti fýrir minni Vestur-Islend- iniga viö þettja tækifæri. Kvæðiö skýrir sig sjálft, og ég hygg að þó þaö sé nú 40 ára gamalt aö það geti enn hljómað í eyrum vorum sem boðskapur sígildur og lifandi. Og ég hygg að því fleiri sem koma auga á slík leiftur frá fortíðinni, því bjartara verði á gönigunni framund- an, ekki einungis fyrir stundina sem er að líða, heldur um alla ókomna tíð. Minni V.-lsendinga, eftir G. P. Vér nú í nýju landi, oss numið höf- um byggð Meö hlýju bróöurbandi sú' byggðin skyldi tryggö Meö rækt þess rétta og sanna og rækt við fósturmold Með ást til allra manna og ást við þessa fold. Því allt hið göfga og góða sem gróð- ursett ég veit Við yndi æskuljóða í okkar hjarta- reit Skyldi aldrei líða úr lundu, en laga allan hug Og hefja á hverri stundu enn hærra vængjaflug. En sundrung öll hin illa, á oss ei vinni svig Né hjáræn heimsku villa sem heldur vissu sig 1 sundrung fræ er falið sem fljótum þroska nær Og heimskan aöeins alið sér um- skiftinga fær. Ogt þá er lán í landi og lifsins byr á skeið Er frjáls og framgjarn andi hver fylgist sömu 'leiö. Og þá mun þjóölíf dafna hjá þessum unga lýð Og andans aröi safna mun okkar nýja tíð. Eg vil benda á í sambandi við þetta kvæöi, að til er gott lag við það eftir H. T. H. Thingholt, og væri vel viðeigandi að þetta væri sem oft- ast sungið hér á vorum Islendinga- döigum. Líklega hin fegursta ræða, sem haldin hefir veriö hér fyrir minni Vestur-íslendinga, var haldin á þess- um fyrsta Islendingadegi af Einari Hjörleifssyni. Höfðu þá Islendingar aðeins dvalið hér um slóðir ein 14 ár, og höfðu því ekki langa sögu. En þó áttu þeir merkilega sögu eft- ir þessi 18 ár eða meir, sem þeir höfðu dvaliö í landinu. Kjarninn úr ræðu Einars Hjörleifssonar er á þessa leið. “Það er að ýmsu leyti varhugavert að tala um sjálfan sig. Við erum fáir, fátækir, smáir og höfum ekki afkastað neinum stór- virkjum öðrum, öðru en að bisa og strita. Trúlofað eöa nýgift fólk er ekki búiö aö gera mjög mikið í sam- veru sinni, en þó hefir það ávalt nóg til að tala um. — Vonif sínar.— Eg þekki ung hjón sem komust í standandi vandræði með að ráðstafá öllum auön- um sem þeim myndi hlotnast í Am- eríku. En þegar þau slitu talinu urðu þau þess vör að þau höfðu enn ekki fengið neina atvinnu, og áttu eigi til næsta máls. íslendingar áttu ímyndunarafl svo mikið að vonirnar spruttu upp í hug- anum eins og skógurinn upp úr jörð- unni. Mismunurinn var þó sá að skógurinn var áratugi að spretta en vonirnar aðeins augnablik. En oss hættir svo viö að villast í þessum vonskógi. Hverjar eru þá vonir vorar? Hvaö er það sem fyrir oss vakir? Sumir vilja safna auði, aðrir verða ráðherrar eða eitthvað annað vold- ugt — einhverntíma. Háminigj- unni sé lof fyrir þær vonir. En hvorki efnin né völdin koma spáss- erandi upp í fangið á manni sjálf- krafa. Gæsirnar fLjúga ekki steikt- ar upp í mann. En vér vonum margt fleira. Að leggja eitthvað til hins andlega lifs þeirrar þjóðar sem vér búum með. Að eitthvað af þessum íslenzku nöfn um sem svo óþjál eru á tungu hér- lendra manna, verði einhverntíma sett í samband við háleitar hugsjón- ir hér. Að vér verðum fremur veit- andi en þiggjandi bæði í líkamlegum og andlegum efnum.: Aö landar nemi og yrki “preriuna” og fái rikulega uppskeru. Aö þeir eignist andleg heimilisréttarlönd, yrki þau af kappi og uppskeran verði dýrðleg. En vér vonum fleira. —Að verða ávalt góðir Islendimgar. Að sannist 2. vísa Gests Pálssonar á oss. Og aö Is- landi megi stafa eitthvað gott af oss. Enn ein von: Nýgift hjón eiga eina von sem skýtur greinum sínutn um allan þeirra vonaskóg, og vex utan um hann hvað stór sem hann verður. Það er vonin um að þeim komi alltaf vel saman. Það er svo mikið gott í oss, svo mikil þrá eftir sannleik og vizku og réttlæti að oss er vel borgið ef við getum alltaf fundið þaö bezta hvor í öörum. Eg ætla ekki að biðja yður aö hrópa húrra fyrir Vestur-íslendinga. En éig ætla að biöja ykkur að hrópa húrra fyrir því að blessuð Ameríku- sólin sem í dag skin svo fagurlega, megi sem oftast hella geislum sínum yfir oklkur sem góöa Islendinga, góða Ameríkumenn, góða menn, and- ans menn, samhuga menn.” Þessi ræða er svo fögur og hug- myndarík, að mér fannst skylt á þess- ari hátíð, sem er 40 ára “jubil” há- tíð Islendinga hér í sambandi við þennan dag, að minna yður á hana. Slíkar ræður hljóta að finna sam- | hljóm i hverri einustu íslenzkri sál enn í dag. Vonirnar voru margar og eru margar enn (í dag) hjá oss Islendingum. Og vissulega hafa margar þeirra ræzt og enn fleiri eiga eftir aö rætast. Fyrir 40 árum var þess óskað að vér yrðum “samhuga menn,” og það voru síðustu orð ræðumannsins. Hvort ósk þessi hefir orðið að áhrínsorðum skal ég ekki leggja neinn dóm á að þessu sinni. En þrátt fyrir allt má þó segja með sanni að frá því fyrsta hafi Islendinigar ávalt haft fleiri fé- lög innan sinna vébanda en ef til vill nokkur önnur svo fámenn þjóð. Is- lendingar voru ekki fyr stignir á þetta land en þeir höfðu samtök með einskonar “matarfélag;” réðu til sin “cook” og “borðuðu sig sjálfir.” Síðan það var hefir hvert félagið rekið annað. Eg gæti til dæmis minnt yður á stjórnarfyrirkomullag Nýja íslands 1877 með útgáfu Fram- fara, Dagsbrúnar 1893, Svöfu 1896 og Bergmálsins síðar. Þá gróða- félagið 1888, Framfararfélagið, Is- lendinigafélagið, Goodtemplarafélög, Þjóðmenningarfélög í Winnipeg og Menningarfélag í N. 0. 1888. Þá söfnuði og kirkjufélög, eins og allir vita, og siðast má nefna, en ekki sízt Þjóðræknisfélag Islendinga í Vesturheimi, sem á síðari árum hef- ir starfað og gefið út ársrit eins og kunnugt er. 0|g efalaust mætti telja upp mörg fleiri félög hér meðal vor ef að tími leyfði. Og innan margra þessara aðalfélaga hafa síðan myndast önnur smærri félög, eins og smágreinar á hinum stærri. Öll þeási félög hafa að sjálfsögðu haft sín sérstöku markmið að stefna að. Þau hafa öll haft eitt sameigin- legt markmið; það, að sameina kraft- ana. Þau hafíT átt að vera einskon- ar vopn eða vörn gegn öllu því er tefur fyrir eðlilegum framförum hjá mönnum andlega og líkamléga; að líkna sérstaklega bágstöddum íslend- ingum, að leiðbeina viltum, vorkenna breyskum og vanda um við andvara- lausa.— 1 stuttu máli, tilgangur fél- aganna hefir verið sá, að mennta Is- lendinga — gera þá að betri mönn- um, þjóðræknari mönnum, trúrækn- ari mönnum og betri borgurum í iþessu mannfélagi. Vér heyrum Matthías kveða um þetta atriði: “Græðum saman mein og mein Metumst ei við grannann Fellum saman stein við stein styðjum hvorir annan. Plöntum, vökvum, rein við rein, ræktin skapar f-raman. Hvað má höndin ein og ein ? Allir laggi saman.” En hér er auðvitað átt við óeigin- gjarna samvinnu sem tæpast á við oss hér að öllu leyti. Félögin sum hafa, þ-ý miður, oft beðið skipbrot á skerjum flokkadráttar, og tak- maricið, hversu háleitt sem það var, hefir þá orðið bylgjum sundurlyndis að bráð og sokkið til botns í haf óvildar; og enn meiri óvildar. En slíks eru víst manna dæmin. Eg vil þá snúa mér að því að lýsa í fáum orðum, dráttum úr frumbyggja lífi Vestur-Islendinga. Við að lesa það, sem skrifað hefir verið um frumbyggjana íslenzku í Vesturheimi dylst víst engum að hér hafi verið menn og konur með dæmafáan kjark ag þolinmæði, dugnað og vitsmuni. Þetta fólk er að leita ár frá ári að hentugum samastað, ekki fyrir sig sjálfa eingöngu, heldur eru þeir að leita að samastað fyrir alla ó- komna tíð, þar sem eftirkomendur þeirra geti haldið áfram að halda uppi því merki sem feður þeirra og mæður gáfu þeim að arfi. Og í leit þessari munu leiðirnar þó oftast hafa verið æði torsóttar. Vér getum rakið leiðirnar frá Kinmount til Nýja íslands og Nýja Skotlands. Þaðan aftur til North Dakota, Ar- gyle, Minnesota og Winnipeg. Þá Manitobavatnsnýlendan, Sask. og Al- berta nýlendur; og eftir það hafa byiggst upp stór umhverfi Islendinga vestur á Kyrrahafsströnd. A þessu getum við séð hversu mikla hrakn- iniga þessir útlendingar urðu að þola áður en þeim tókst að ná bólfestu í landinu. Og ofan á alla þessa hrakn inga bættust svo drepsóttir og margs- konar raunir sem sagan getur aldrei skýrt frá eins og var. Flóð, engi- sprettur og flugur ráku menn burtu af þeim löndum sem þeir höfðu ætlað að myndi verða framtiðar bústaður þeirra. Erfiðleikarnir voru svo margþættir að tungan á ekki orð til að lýsa þeim öllum svo að myndin verði annað en dauf eftirliking. Nú heyrum vér söigur, sem þá var auð- vitað algengur viðburður eins og það þegar Sigurður Kristófer*son kom fótgangandi alla leið frá Argyle til Winnipeg til að sækja þangað konu og börn sín; og aðrar slíkar sögur, sem vér vitum að voru aðeins dag- legur viðburður á þeim árum. Eg er að minnast V.-Islendirnga nú: en tímans vegna verð ég að fara fljótt yfir sögu og stikla því á nokk- urum atriðum, sem mér finnst eiga við í dag. Eg hefi dregið fram nokkur atriði um baráttu þá sem feður yðar og mæður, afar og ömmur háðu hér í Vesturheimi á frumbýl- ingsárunum. Eg verð að minnast þeirra manna að einhverju sem gerð- ust leiðtogar lýðsins. Af sögunni þekkjum vér séra Pál Thorláksson, föður Dakota nýlendunnar sem ágæt- ann leiðtoga, og var fráfall hans á 33. aldursári eitt hið raunalegasta at- Hin nýjasta allra rafhljóm véla — Victor Radio með Electrola, nýfundin upp er eitt hið merkilegasta á- hald nútímans og ári á undan öllu öðru á markað- inum. Þú þarft að heyra hana til að geta öðlast hugmynd um hina óvið- jafnanlegu hljómfegurð. $375.00 $25.00 niðurborgun og 20 mánaða afborganir Vægustu skilmálar ' í Canada vik í landnámssögu Islendinga í Vesturheimi. Það hefir verið sagt um hann að hann hafi verið einn hinn merkasti Islendingur sem uppi hafi verið á síðari tímum. Hversu mikið hann hefir lagt á sig til þess að hjálpa bágstöddum í nýlefndunni, sjálfur sjúkur og sorgmæddur yfir fátæktinni og óánægju fólksins, getur líklega eniginn gert sér fyllilega grein fyrir. En laun þau sem honum voru goldin (sem voru $202.00 á ári í pen ingUm, 29 bushel af hveiti, 9 bushel af höfrum og 23 dagsverk frá ný- lendubúumj munu hafa gengið til alls annars en að lækna þann sjúkdóm sem dró hann til dauða á unga aldri. Hans ber því að minnast með hlýjum hug og þakklæti fyrir vel unnið starf meðal hinna fyrstu landnema. Eg minnist einnig Jóns Ölafsson- ar sem óneitanlega bar hag landa sinna fyrir brjósti eins og meðal annars Alaska-förin sýndi. Hann vildi að Islendingar héldu hópinn allir og út- veguðu sér nægilegt land {jar sem all- ir Islendingar sem vestur flyttu og fæddust hér gætu haldið áfram að búa. Og í Alaska þóttist hann hafa (Frh. á 5. bls.) STUCC0 sem ábyrgst er The TYEE STUCCO WORKS gefur þér fimm ára ábyrgð á Tyee Stucco þegar notað er samkvæmt þeirra ráðleggingum. Þó ábyrgðin nái aðeins til fimm ára, er auðvitað varan góð alla æfi þína. Skrifið eftir nöfnum þeirra plastrara sem nota það samkvæmt þessari á- byrgð. I=~ I Tyee Stucco Works ST. BONIFACE MANITOBA LUMBER THE McARTHUR LUMBER & FUEL CO.. LTD. Winnipeg — Manitoba ASK FOR LUB DrvGincer Ale ORSODA Brewers Of COUNTKV CLUB BEER GOLDEN GLOW ALE BANQUET ALE XXX STOUT BH EWEBV OSBORN E & M U LVEY-Wl N NIPEG PHONES 41-111 4730456 PROMPT DELIVERY TO PERMIT HOLDERS »

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.