Heimskringla - 04.09.1929, Qupperneq 3
WINNIPEG, 4. SEPT., 1929
HEIMSKRINGLA
3. BLAÐSIÐA
koma haegar hraeringar að nýju, eftir-
kippurinn. Margir menn hafa tekið
eftir þessari greiningu í kipp þeim
hinum snarpa, sem hér varð á þriðju
daginn var, en oft verða menn ekki
hennar varir, því að ef jarðskjálft-
inn er lítill, finna menn ekki forkipp
né eftirkipp, þó að jarðskjálftamælir
sýni þá skýrt. Jarðskjálftamaelir. —
Hvernig mæla menn jarðskjálfta?
Það gera menn þannig að þeir láta
jörðina sjálfa rita hreyfingar sínar
á blað. Vitanlega má blaðið ekki
hreyfast með jörðinni, og mönnum
kann að finnast það torvelt að halda
því kyrru, þegar jörðin skelfur. En
það hefir tekist með einföldu bragði.
Lesandinn má sjálfur reyna að hugsa
það upp. —
Jarðskjálftamælingarnar hafa leitt
í ljós margt, sem áður var hulið, um
eðli jarðskjálftans. Þær sýna, að
jarðskjálftar eru miklu tíðari en
menn höfðu áður ætlað,, því að jarð-
skjálftamælirinn finnur hverja hrær-
ingu, þó að hún sé svo lítil, að eng-
inn maður verði hennar var. Þær
sýna og, að jarðskjálftar ná venjulega
yfir miklu stærra svæði en áður þótti
líklegt. Og þær sýna loks, úr
hvaða átt jarðskjálftinn kemur og hve
langt er til upptaka hans.
í flestum menningarlöndum eru nú
stundaðar rannsóknir og mælingar á
jarðskjálftum. Hér á landi eru til
tveir jarðskjálftamælar, og eru þeir
geymdir í stýrimannaskólanum hér í
Reykjavík. Þeir löskuðust báðir í
jarðskjálftanum i fyrra dag.
II.
Upptök jarðskjálftanna eru aldrei i
yfinborði jarðar. Þau eru ætíð
niðri í jörðinni, stundum skammt
niðri, en stundum djúpt, jafnvel inni
í iðrum jarðar. Frá upptökunum
berst svo ölduhreyfingin upp gegnum
jarðlögin og síðan eftir þeim út til
allra hliða. Yfir upptökunum er
hreyfingin ætíð sterkust. Nefnast
þar yfirupptök (epicentrum). Öldu-
hreyfingin er þar lóðrétt, en verður
æ meira samhliða yfirborði jarðar,
því lengra sem dregur út þaðan. Að
sama skapi þverr máttur hennar, unz
hún týnist að síðustu fyrir mótstöðu
jarðlaganna. Því dýpra, sem upp-
tökin eru, því stærra er jarðskjálfta-
svæðið. Vægur jarðskjálfti hefir
fundist um alla jörðina. Upptök
hans lágu djúpt í iðrum jarðar.
Ymsir jarðskjálftar, sem valdið hafa
stórtjóni á fé og fjörvi manna, hafa
aðeins náð yfir lítið svæði. Upp-
tök þeirra lágu skammt niðri.
III.
Þegar jarðskjálftar ganga hér á
landi, verður mörgum að líta með
ótta og ugg til eldfjallanna. Jarð-
skjálfti og jarðeldur eru náskyld hug- !
tök í vitund manna hér. Flestir mun
ætla, að jarðskjálftinn stafi af um-
brotum jarðareldsins, að hann sé hríð -
ir jarðarinnar við fæðingu nýrra
fjalla. Þessi skoðun er ekki alls
kostar rétt. Að vísu fara jarð-
skjálftarnir venjulega á undan eld-
gosum, en alls ekki ætið. Mikil eld- !
gos hafa orðið svo, að engar hrær-
ingar hafa fundist í jörðunni á undan i
þeim né eftir. Aftur er hitt alkunna,
áð stórkostlegir jarðskjálftar hafa |
geisað í löndum, þar sem ekkert eld- |
f jall er til, og hér á okkar Iandi hafa j
skaðvænlegustu jarðskjálftarnir ekki i
staðið í neinu sambandi við eldgos.
Orsakir jarðskjálfta eru taldar j
þrennar: jarðföll, eldgos og landsig. .
Stór jarðföll eru ókunn hér á
landi. Þau verða helzt í löndum |
og héruðum, sem gerð eru úr kalki. j
Regnvatnið sígur þar niður i hið j
gljúpa kalk og grefur um sig í jörðu
niðri. Skapast þannig stórir hellar,
er vaxa, unz efstu lögin, þökin, falla
niður. Verða þá jarðskjálftar,. er
geta orðið allsnarpir, en ná ætíð yfir
lítið svæði, því að upptökin eru
skammt niðri.
Eins og áður er sagt, eru jarð-
skjálftar oft samfara eldgosum.
Stafa þeir af því, að sprengiefni skap
ast niðri í eldkötlum þeim, sem liggja
undir eldfjöllunum, inniluktir í jarð
skorpunni. Þegar sprengiefni þessi
springa, brjóta þau eldleðjunni leið
upp úr jörðunni, en af sprenging-
unni kemur jarðskjálftinn. Ef eng-
in slík sprengiefni skapast, bræðir
eldleðjan sér leið upp í gegnum lög
þau, sem ofan á henni eru, unz hún
nær yfirfleti jarðar. Slíkum gosurn
fylgir enginn jarðskjálfti — og engin
j aska, því að askan skapast þegar
, sprengingarnar tæta sundur berg-
ið.
Jarðskjálftar þeir, sem stafa af
eldgosum, eru oft allsnarpir, en ná
venjulega yfir lítið svæði, því að upp-
tök þeirra eru skammt niðri. Þannig
hafa jarðskjálftar frá Heklu-gosum
I sjaldan gert usla, nema í þeim sveit-
i um, sem næst liggja fjallinu. Hér
I við Faxaflóa hafa þeir naumast fund-
I ist, þó að næstu bæjum við Heklu
hafi legið við hruni. Menn hafa veitt
því eftirtekt, að því nær sem líður
eldgosinu, þvi snarpari verða kipp-
irnir, en þrátt fyrir það verður jarð-
skjálftasvæðið æ minna. Þetta virð
ist stafa af því, að upptök jarðskjálft
anna færast ofar og ofar.
Eandssig valda flestum jarðskjálft-
um, og hinir ægilegustu og mann-
skæðustu jarðskjálftar, sem sögur fara
af, virðast stafa af þeim. Þetta
gildir og um íslenzka jarðskjálfta.
Landsskjálftar eru fátíðir í sumum
löndum jarðarinnar, en algengir í
öðrutn. Rannsóknir hafa leitt það í
ljós, að jarðskjálftahéruðin eru mjög
sprungin. Langar gjár og sprungur
skifta þar jarðskorpunni í geisistóra
jaka, líkt og ís á vatni, sem brotinn
er fyrir báru. Þessir jarðjakar urg-
ast saman, hefjast og hníga fyrir
ýmsum römmum öflum, en af árekstr-
um þeirra verða jarðskjálftar. Upp-
tök þesskonar jarðskjálfta liggja ein-
att djúpt niðri, og þeir ná því yfir
stór svæði. Oft verða þeir ægilega
harðir og skaðvænlegir, því að sú
orka, sem fær raskað hinni miklu ró
jarðlaganna, á ójafnan leik við hrófa-
tildur mannlegra handa.
Vera má, að umrót í iðrum jarðar
geti og valdið jarðskjálftum. Virð-
ast nokkrar líkur vera til þess, en um
þá hluti alla eru menn harla ófróðir.
En muna verður það, að jarðskorpan
er ekki þykkri hlutfallslega en skurn
á eggi, og að undirdjúp jarðarinnar
búa yfir huldum öflum Og óráðnum
gátum.
IV.
Fræðimenn skifta jarðskjálftunum
1 10 stig, eftir styrk þeirra. Tvö
fyrstu stigin eru svo væg, að menn
verða þeirra ekki varir, en jarð-
skjálftamælar sýna þá skýrt. Fimmta
stigið er allsnarpur jarðskjálfti. Hús-
gögn og aðrir lauslegir munir taka
þá að riða. Tíunda stigið er hinn
ægilegasti og skaðlegasti jarðskjálfti.
Hús hrynja þá til grunna, jörðin
springur sundur, og engum er stætt,
kirkjuklukkur hringja ákaflega, og
himinháar haföldur falla langt upp á
land. Þá er ógurlegt um að litast,
sem færi að hinn efsti dómur. Grimm
legur gnýr fyllir loftið, og myrk
moldarský hvíla yfir jörðunni, en
upp af rústuðum borgum og bæjum
stíga brennandi logar, og angistaróp
frá urðuðum mannabrjóstum.—
1 jarðskjálftum fara venjulega
margir kippir saman, og eru þeir
ætið ólíkir að styrk. Þegar miklir
jarðskjálftar geisa, fær enginn mað-
ur vitað, hvenær undrunum létti af,
og það, sem þessi kippurinn þyrmir,
verður einatt bráð hins næsta.
Veraldarsagan greinir frá mörgum
hræðilegum jarðskjálftum. Þannig
herma sagnir, að í fornöld hafi jarð-
skiálfti fnikill gengið yfir Mesópóta-
míu, og er mælt, að hann hafi orðið
allt að 200,000 manna að fjörtjóni.
í næstliðnum öldum hafa ógnir jarð-
skjálftanna dunið yfir blómleg lönd
og borgir og lagt allt í rústir. Nægir
að minna á jarðskjálftana í Lisabon,
Carracas í Suður-Ameríku og San
Francisco. Hver þeirra varð mörg-
um þúsundum manna að bana.
Á þessari öld hafa stórkostlegir
jarðskjálftar igeisað víða um heim.
Tveir þeirra eru nafnkunastir: jarð-
skjálftinn í Messína 1908 og jarð-
skjálftinn í Yokohama árið 1923,
Mörg hundruð þúsundir manna týndu
lífinu í jarðskjálftum þessum og enn
fleiri biðu limatjón og eigna. Þær
sögur eru hræðilegar, er frá þeim
greina.
ísland er eitt hið mesta
jarðskjálftaland í heimi. Ekki svo
mjög af því, að jarðskjálftar séu hér
svo tíðir, sem víða annarsstaðar,
'heldur af hinu, að hér hafa komið
m'argir geysilegir jarðskjálftar með
10. stigs styrk. — Fámenni veldur
þvi, að í þeim hafa færri menn farist
en sumum hinum erlendu.
Þrjú jarðskjálftasvæði eru hér á
Iandi: Suðurlandsundirlendið, sveit-
irnar upp frá Faxaflóa og Suður-
Þingeyjarsýsla. I öðrum héruðum
lands vors eru jarðskjálftar fremur
fátíðir og ekki skaðvænlegir.
Hinir mestu jarðskjálftar, sem
gengið hafa yfir landið, eiga rót sína
að rekja til jarðrasks og landsiga,
enda eru jarðskjálftasvæðin sigið
land og sprungin mjög.
Suðurlandsundirlendið er mesta
k ndskj ál ftahérað landsins. Þar hafa
komið að minr.sta kosti tíu stórkost-
legir jarðskjálftar og fjöldamargir
minni. Vorið 1339 urðu þar mikl-
ir jarðskjálftar, svo að hús féllu,
fénaði kastaði til jarðar og jörðin
rifnaði víða. Á 18. öld varð þar
skammt milli ægilegra jarðskjálfta.
Mestur varð jarðskjálftinn árið 1784,
enda er það að líkindum hinn ógur-
'egasti jarðskjálfti, sem orðið hefir
á Iandi hér; siðan sögur hófust. Ár-
ið eftir Skaftárelda, á hinni miklu
hungurvöku þjóðarinnar, kom þessi
hroðalegi náttúruviðburður. Þá varö
margt undra. Fjöllin hristust “eins
og hundar af sundi” svo sem einn
sögumaður kemst að orði. Þá féi!
fjöldi bæja. Þá féll Skálholtsstað-
ur, og reis aldrei að fullu úr rústum
eftir það.
Árið 18% urðu hinir miklu jarð-
skjálftar á Suðurlandi, sem mörgum
er enn í fersku minni. Hirði ég
eigi að greina frá þeim hér, enda má
margt um þá lesa í ritum Þorvalds
Thoroddsens.
Við Faxaflóa hafa orðið margir
jarðskjálftar, og mjög er hér ókyrt
nú hin síðari árin. Huggun er það
nokkur, að jarðskjálftarnir hafa
sjaldan orðið skaðvænlegir til muna.
1 héruðunum upp frá Skjálfanda
hafa oft geisað harðir jarðskjálftar
og hættulegir. Nafnið bendir og
til þess, að þar muni skolfið hafa
þegar á landnámsöld. Mestir urðu
jarðskjálftarnir á síðustu öld, árið
1872 og þó einkum 1885. Þá féllu
þar hús, fénaður týndist og jörðin
brast í sundur.
V. ‘
Jarðskjálftar þeir, sem nú ganga
hér, hafa ekki orðið næsta snarpir né
skaðvænlegir að þessu, og er það von
andi, að þeim sé lokið um sinn. Hinn
snarpasti kippur mun teljast til 6.
sti'gs. Svæði það, er hann náði
yfir, var allstórt, og virðast þvi upp
tökin liggja djúpt í jörðu. Líklega
eru þau ílöng og sennilega bogin.
Um það verður þó ekki sagt að sinni
með neinni vissu. Víst er, að jörð-
in undir fótum vorum er hvergi
nærri svo föst og óhagganleg sem
mönnum er títt að trúa. Enginn
veit, hvenær næsti kippur kemur eða
hve mi'kill hann verður.
(Frh. á 7. siðu)
þér setn
notiS
T I M B U R
KA UPIÐ
AF
The Empire Sash & Door Co., Ltd.
Birgðir: Henry Ave. East Phone: 26 356
Skrifstofa: 5. gólfi, Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ANÆGJA.
HÁTÍÐAFERÐIN TILISLANDS 1930
Nú er búið að ákveða HÁTIÐISDAGANA Á ÞINGVÖLLUM fyrir Alþingisbátíðina, —
26. TIL 29. JÚNf að báðum meðtöldum.
ÞAÐ ER ÞVI RJETT ÁR TIL STEFNU, OG SÁ TÍMI LÍÐUR FLJÓTT, ÞANGAÐ TIL
LAGT VERÐUR AF STAÐ FRÁ WINNIPEG TIL REYKJAVIKUR. Það veitir því ekki af
að fara að búa sig undir ferðina. Hin hagkvæmustu kjör viðvíkjandi fargjöldum, fyrir
væntanlega heimfarendur, með hinum ágætu járnbrautarlestum og skrautlegu skipum
CANADIAN PACIFIC
félagsins, fást nú með örlítiili niðurborgun er menn ættu nú að tryggja sér sem fyrst.
$245.80 FRÁ WINNIPEG TIL REYKJAVÍKUR OG TIL BAKA AFTUR.
Farbréfagildi til árs.
ÞETTA VERÐUR EINA TÆKIFÆRI ÆFINNAR fyrir fjölda marga íslendinga að
heimsækja æskustöðvar, frændur og vini, og samfagna með þjóðinni á þessum einstak-
asta og söguríkasta hátíðisdegi hennar. Húsnæði, fæði og þjónustu, hefir Heim
fararnefnd Þjóðræknisfélagsins samið umfyrir ferðaliópinn þegar heim kemur.
NEMUR SÁ KOSTNAÐUR AÐEINS $52.801 HÁLFAN MÁNUÐ meðan á hátíðahaldinu
stendur á Þingvöllum og í Reykjavík.
Skrifið yður fyrir farbréfi sem fyrst og sendið niðurborgun. Peningarnir verða
geymdir og afhentir yður ef eitthvað kemur fyrit svo þér getið ekki farið.
Eftir kaupum á farbréfum, upplýsingum og öllu
aðlútandi ferðinni snúi menn sér til
W. C. Casey, General Agent, Canadian
Pacific Steamships.
R. G. McNeillie, General Passenger Agent,
v Canadian Pacific Railway.
Eða
J. J. Bildfell, formanns Heimferðarnefndarinnar,
708 Standard Bank Bldg., Winnipeg.
NAFNSPJOLD
j
{ ÐYEKS .Y CLEANERS CO., ITD.
i ffjöra þurkhreinsun samdœgurs
Bæta og gjöra viö
= Slmi 37061 Wlnnipeg, Man.
[Bjömvin Guðmundson
| A.R. C. M.
| Teacher of Music, Gomposition,
Theory, Counterpoint, Orchei- j
HEALTH RESTORED
| Lækningar án lyfja
j DR. S. G. SIMPSON, N.D., D.O., D.C.
Chronie Diseases
Phone: 87 208
j Suite 642-44 Somerset Blk.
jwiNNIPEG —MAN. j
tration, Piano, etc.
555 Arlington SL
SIMI 71621
Jacob F. Bjarnason í
—TRAN SFER—
RaKgage and Fnrnltnre Hnvlnf j
668 ALVERSTONE ST.
SIMI 71 898
Eg útvega koi, eldiviö me«
sanngjörnu vertii, annast _
ing fram og> aftur um bæinn.
st flutn- i
bæinn.
— II j
A. S. BARDAL
"1
j selur líkkistur og annast um útfar-
I ir. Allur útbúnaöur sá bezti.
j Ennfremur selur hann allskonar
j minnisvaröa og legsteina.
. 843 SHERBROOKE ST.
| Phonei Sö 607
WINNIPEG
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldff.
Skrifstofusími: 23674
í Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
| Er at5 finna á skrifstofu kl 10—12
f. h. og 2—6 e. h.
Heimili: 46 Alloway Ave.
TaUfmi: 33158
I
DR. K. J. AUSTMANN ] f
Wynyard —Sask.
j W ynya
WALTER J. LINDAL
BJÖRN STEFÁNSSON
Islenzkir lögfræðingar
. 709 MINING EXCHANGE Bldg
j Sími: 24 963 356 Main St.
j Hafa einnig skrifstofur aS Lundar,
! Piney, Gintli, og Riverton, Man.
r j
! DR. A. RL0NDAL
602 Medlcal Arts Bldg. ;
Talsimi: 22 296
Stundar sérstaklega kvensjúkdóma j
og barnasjúkdóma. — Aó hitta: [
kl. 10—12 f. h. og 3—6 e. h.
Heimili: 806 Victor St. Simi 28 130 j
|------------------------------
LæknafivÍManlr — Elnkaleyfls
metlöl
j ARLINGTON PHARMACY
LIMITED
j 800 Sargent Ave. Slml 30120
• Takiö þessa auglýsing meí yBur
] og fáiS 20% afslátt á met5ölum,
ennfremur helmings afslátt
Rubber vörum.
Dr. J. Stefansson
! 216 MEDICAL ARTS BLDG.
i Horni Kennedy og Graham
i Stundar elngi>nKu hukIiih- eyma-
nef- ok kverka-sjúkdómn
! Er aö hitta frá kl. 11—12 f. h
( og kl. 3—5 e, h.
Tnlsfml: 21834
| Heimili: 638 McMillan Ave. 42691
DR. B. H. OLSON
216-220 Medlcal Arts Bldg.
j Cor. Graliam and Kennedy St.
{ Phone: 21834
Viötalstími: 11—12 og 1_5.30
Heimili: 921 Sherburn St.
* WINNIPEG, MAN.
Talafmt: 28 880
DR. J. G. SNIDAL
i
TANNLÆKNIR
014 Someraet Block
G. S. THORVALDSON
B.A., L.L.B.
Lögfræðingur
702 Confederation Life Bldg.
Talsími 24 587
Telephone: 21613
J. Christopherson,
Islenzkur Lögfræðingur
845 SOMERSET BLK.
j Winnipeg, :: Manitoba.
Canadian Pacific
Umkringir jörðina
Portaue Avenue
WINNIPEG
MARGARET DALMAN
TEACHER OF PIANO
854 BANNING ST.
PHONE: 26 420
TIL SÖLU
A ÓDfRU VERÐI
“FURNACE” —bæt51 vUBar og t
| kola “furnace” litiö brúkaD, er {
s til sölu hjá undirrttuTSum. "
{ Gott tæklfærl fyrir fðlk út á
í landi er bæta vllja hitunar-
! áhöld á helmlllnu.
GOODMAN & CO.
786 Torouto St. Sfml 28847
Í
ii
j'
j DR. c. J. HOUSTON
]DR. SIGGA CHRISTIAIS
SON-HOUSTON
j GIBSON BLOCK
Yorkton —Sask.
MESSUR OG FUNDIR
í kirkju Sambandssafnaðar |
Messur: — á hverjutn sunnudegi\
kl. 7. e.h. j
Safnaðarnefndin: Fundir 2. og 4. í
j fimtudagskveld í hverjum j
| mánuSi. ^
\Hjálparnefndin: Fundir fyrsta j
j mánudagskveld í hverjum j
j mánuöi. jj
\ Kvenfélagið: Fundir annan þriCju j
dag hvers mánaSar, kl. 8 aSj
kveldinu. j
Söngflokkurinn: Æfingar á hverju j
fimtudagskveldi.
Sunmidagaskólinn:— A hverjum
sunnudegi kl. 11—12 f. h.
Þorbjörg Bjarnason
L.A. B.
Teacher of Piano
and Theory
726 VICTOR ST.
StMIi 23130
5101
FRÁ ÍSLANDI
Þurkarnir undanfariö hafa reynst
dýrmætir, bæöi til lands og sjávar.
TöSr hafa hirst eftir hendinni og
saltfiskur, sem áður lá undir skemd-
um á fiskreitunum hefir þornað og
komist í hús. Eitthvað mun hafa
sólsoðnað af fiski heitustu dagana.
E. G. Baldwinson, L.L.B.
L ttg f r ætt I n jgu r
Renlilence Phone 24206
Offlce Phone 24963
708 Mlninff Exchanffe
356 Main St.
WINNIPEG.
| 100 herbergi meó e5a án b&ðs
j SEYMOUR HOTEL
verS sanngjarnt
Slml 28 411
C. G. HUTCHISON, elgnndl
Market and Klng St.,
Winnipeg —:— Man.
1