Heimskringla - 04.09.1929, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 4. SEPT., 1929
HEIMSKRINGLA
7. BLAÐSIÐA
Mr. og Mrs. Brynjólfur
Jósephson heiðruð.
Mr. og Mrs. Brynjólfur Jósephson,
sem heima eiga í Hólabyggöinni í
Cypress sveitinni, noröaustur frá
Glenboro, uröu fyrir óvæntri heim-
sókn, sunnudaginn 16. júní síöastl.
Heimsóttu þau þá allir byggöarbúar
og fyrverandi byggöarbúar, sem nú
eiga heima í Glenboro, og nokkrir
vinir þeirra úr austurhluta Argyle-
'byggöarinnar. Voru á þessu vori
liÖin 40 ár frá því að þau tóku sér
bólfestu á þessum stöðvum. I til-
efni af því, og í tilefni af því að
þau hafa í 40 ár, tekiö leiðandi þátt
í félagslifi byggðarinnar, var þessi
heimsókn gerö af öllum þessuni mörgu
vinum þeirra.
Veöur var heitt en hiö indælasta;
var skógarlundur skammt frá heim-
ilinu kosinn fyrir samkomustaö.
Settust allir þar að í forsælunni, en
heiðursgestunum var skipaö sæti í
miöjum hringnum. Var þá einum
rómi sungið: “Hvað er svo glatt,”
en þegar allir voru búnir aö jafna
sig kvaddi G. J. Oleson sér hljóðs
og ávarpaði þau Mr. og Mrs. Jóseph-
son, bauö þau velkomin þarna i skóg-
arlundinn; lýsti tilgang þessa fagn-
aðarmóts; sagöi frá því að byggðar-
fólk hefði lengi borið þakklæti í
Ihuga og hjarta til þeirra fyrir langt
og dyggilegt starf í þarfir byggðar-
innar og íslenzkra félagsmála og
frjálsra hugsana. — Til þess væri
hópurinn nú kominn þangaö, og
allir vildu votta þakklæti á þessari
stundu fyrir það liðna og óska þeint
gleöi og rólegheita á árunum sem enn
eru framundan.
Herra Tryggvi Ölafsson flutti þeim
hjónum þá kvæöi þrungið hugsun og
kærleiksþeli. Hefir hann veriö ná-
búi þeirra í heilan mannsaldur. Af-
henti hann þeim fyrir hönd fólksins
peningasjóö, sem heiöursgjöf og lít-
iö vinarmerki frá öllum viðstöddum.
Hr. Jósphson, sem í gegnum nærfelt
80 ára stríö hefir oft þurft að berj-
ast við mótlæti og erfiðleika og rang
læti mannanna og æfinlega gengiö til
víga með hlátur í hug, sem norræn
hetja, þoldi ekki meðlætið eins vel.
Enda gæti hann kannske kveðið eins
og St. G.:
“Eg átti í æfinni oftast nær vetur,
einn fleiri en sumrin mín hvernig
sem fer.”
Sökum igeöshræringar treysti hann
sér ekki til að ávarpa fólkiö, en fyrir
hans hönd var þakkað, samkvæmt ósk
hans, af einlægum hreinum hug.
Að þessu loknu voru bornar fram
hinar beztu veitingar. Hafði að-
komufólk með sér nóg af kaffi og
kryddbrauði og öðru sælgæti. Sátu
menn svo og skemtu sér við samræð-
ur, og áður en blásið var til burt-
farar voru nokkrir söngvar sungnir.
Var þetta samsæti hið ánægjulegasta
í alla staði. Allir þeir, sem í því
tóku þátt gerðu það af innstu hjart-
ans hvöt, að sýna hinum öldruðu
heiðurshjónum vinahót og viðurkenn-
ingu. Og sú viðurkenning er verð-
skulduð. Sá, sem þessar línur skrif
ar, hefir verið þeint samferðamað-
ur í 35 ár, og getur um það borið.
Brynjólfur Jósephson er ættaður af
Hólsfjöllum í Norður Þingeyjar-
sýslu. Foreldrar hans voru fátæk og
ólst hann upp á vegum hins nafn-
kunna ágætismanns Björns Gíslason-
ar, er síðar fluttist til Minnesota og
dó þar. Björn bjó þá á Grímsstöð-
um á Fjöllum.
Brynjólfur flutti vestur um haf ár-
ið 1887. A þeim árum var harðæri
mikið um Norðurland og tækifæri
lítil fyrir félausa menn að bjargast,
enda lítið greitt fyrir þeim frá hærri
stöðum. Svo margir voru hreint og
beint neyddir út úr landinu. Brynj-
ólfur, eins og margir fleiri Islending-
ar sem vestur fluttu, höfðu sjálfstæðis
löngun og fór að ráði forfeðranna,
sem kusu heldur að slíta ættjarðar-
Iböndin en að sleppa sjálfstæðinu, og
sigldi vestur um haf í leit eftir meira
frjálsræði, enda er æfintýralöngunin
rótgróin í eðli Islendingsins. öhd-
vegissúlur hans bar að strönd hér í
Hlólalbyggðmni, og héir hefir hann
lifað frjálsu, farsælu lífi í 40 ár þó
oft ætti hann í vök að verjast og við
örðugleika að stríða framan af árum.
Hann stofnaði Hólabyggðina, ásamt
þeim J- J- Anderson, J. Gíslason og
Sigurjóni Stefánsson, en það má með
miklurn sanni kalla Brynjólf föður
'byggðarinnar, því hann hefir vakað
yfir velferð hennar og áhugamálum
hennar frá fyrstu tíð, og staðið í
fylkingarbroddi í félagsstarfsemi, og
það æfinlega af hreinum hvötum, en
aldrei til þess að afla sér orðstírs eða
frama, því maðurinn hefir æfinlega
verið heill. Hann er sannur Islending
ur og ann öllu því góða, sem er þjóð-
areinkenni, en hatar yfirdrepskapinn
og það öfuga, sem í fari þeirra
finnst. Hann tók snemma ástfóstri
við þetta land og er igóður þegn þessa
farsæla og mikla ríkis, og hefir, þó
útlendingur sé, verið lifandi kvistur
á meið þessa þjóðfélags. I stjórn-
málum ihefir hann fram að síðustu
verið ákveðinn fylgismaður liberala,
en nú mun hann fremur hallast að
stefnu framsóknarflokksins. Brynj-
ólfur er greindur maður og frábæri-
lega skemtilegur heim að sækja; ræð-
inn og með afbrigðum gestrisinn.
Var heimili hans um langt skeið mið-
stöð íslendinga í byggðinni og rnanna
hjálpsamastur hefir hann verið við
fátæka eða nauðstadda. Var hann
þá oft mjög höfðinglyndur.
Brynjólfur var burðamaður mikill
og ramur að afli; reyndi hann sig
oft í aflraunum á fyrri árum hér, sér-
staklega við hérlenda menn, en eng-
inn stóð honum á sporði, og var það
um skeið, aö mikið orð fór af honum,
' aflraunum hans og knáleika, og lék
mörgurn hugur á þvi að leggja hann
Brewers Of
COUNTRY CLUB*
BEER
GOLDEN GLOW
ALE
BANQUET ALE
XXX STOUT
BR E W E R.'V
OSBORNE&MULVEY-WINNIPEG
PHONES 41-111 41-30456
PROMPT DELIVERY
TO PERMIT HOLDER6T
að velli en hann gekk ávalt sigri hrós-
andi af hólmi, eins og góðra Islend-
inga er siður.
Kona Brynjólfs er Guðný Sigurðar-
dóttir Sigurðssonar, frá Katastöðum
í Núpasveit; framsýn og dugleg á-
gætiskona, sem aldrei hefir legið á
liði sínu. Hefir heimilið æfinlega
prýtt fyrirmyndar samkomulag sem
eftirbreytnisvert er. Þeim hjónum
hefir ekki orðið barna auðið, en þrjár
stúlkur hafa þau alið upp, sem um-
komulausar voru og farist við þær
eins vel og ef þær hefðu verið þeirra
eigin dætur.
Brynjólfur fékk slag fyrir nokkr-
um árum síðan, en náði sér furðu
fljótt aftur, þó ekki yrði hann vinnu-
fær. Búa gömlu hjónin nú í róleg-
heitum á landareign sinni með lífs-
glöðu sinni og bíða kveldsins.
Óska allir vinir þeirra þeim gleði-
ríkra og farsælla stunda síðasta á-
fangann, með þakklátum huga fyrir
samferðina.
G. J. Oleson,
Glenboro, Man.,
27. ágúst, 1929.
Efnilegur listamaður.
Um rniðjan fyrra mánuð kom hing-
að til lands frá Bandaríkjunum ungur
og efnilegur listamaður, sem heitir
Kristján Magnússon, ættaður frá Isa-
firði, sonur Magnúsar heitins Örn-
ólfssonar skipstjóra.
Kristján fór vestur um haf fyrir
hálfu níunda ári og hefir síðan verið
lengstum í Boston og New York.—
Áður en hann fór frá ísafirði hafði
hann notið nokkurrar tilsa-gnar í
dráttlist og útskurði hjá Guðmundi
Jónssyni frá Mosdal, og kom þá þeg-
ar í ljós, að hann var mjög list-
hneigður. I Boston tókst honum
að komast í listaskóla og stundaði
þar nám af miklu kappi og dugnaði
og lauk ágætu prófi eftir fimm ára
nám. Síðan hefir hann unnið með
frægum málurum, og hefir það starf
einnig verið honunt ágætur skóli.
Undanfarið ár hefir hann unnið með
Mr. Ezra Winter, sem er ráðunautur
Bandarikjastjórnar í fögrum listum
(Commissioner of Fine ArtsJ. Hann
hefir oft sent myndir sínar á sýning-
ar og hlotið góða blaðadóma, eins
Og getið hefir verið í Vísi fyrir nokk-
urum missirum.
Þegar Kristján kom héim í fyrra
mánuði, fór hann fyrst í kynnisför
til Isafjarðar, en síðan norður til
Mývatns og málaði þar um stund.
Eftir það fór hann aftur til Isafjarð-
ar og hélt þar sýningu á málverkum
sínum 24. og 25. þ. m. — Nú er hann
hingað kominn og ætlar austur í sveit
ir til þess að mála þar, en að því
búnu kemur hann hingað aftur og
ætlar þá að halda sýningu á málverk
um sínum áður en hann fer vestur
um haf.
Þess þarf varla að geta, að Kristj-
án fór héðan félaus með öllu, en
hafði (auk unglingafræðslu) notið
nokkurrar aukatilsagnar i ensku o. fl.
hjá cand. Hans Einarssyni kennara
á ísafirði, og voru það fararefni
hans út í heiminn. En góðar gáf-
ur, dugnaður og staðfesta þessa ung.i
manns hafa sigrast á fátækt og örð-.
ugleikum í fjarlægu landi, og er það
vinum hans mikið gleðiefni, að hann
á nú góðra kosta völ á listbraut
sinni.—Vísir.
Frá Islandi.
Vestm.-eyjum, 30. júlí
Landskjálftakippir fundust hér þ.
233. þ. m., sá fyrsti kl 5.45 síðd.
Var allsnarpur. Ekki heyrist getið
um neinar skemdir af völdum hans.
Fyrri hluta siðustu viku góðir þurk-
ar, en lakari síðustu daga.
Síldveiði í langnet óvenju góð sem
stendur.
Mýrdal 28. júlí
Tíðin hefir verið einmuna góð og
grasvöxtur viðast góður, sumstaðar
með albezta móti. Sláttur byrjaði þvi
almennt fyrr en vanalega og eru því
allmargir nú nærri því búnir með
tún og hafa menn hirt eftir hend-
inni.
Jarðskjálftar.
(Frh. frá 3. bls.)
Gefa má það ráð, ef snöggan og
.hættulegan jarðskjálfta ber að hönd-
um, að flýja til dyra og láta þar
byrir berast. Á þennan hátt hefir
margur bjargað lifinu, því að þök
falla miklu fyr en veggir, og dyra-
umbúningar verjast lengi, þótt úr
veggjum hrynji. Betra ráð er þó
hitt, þeim er hafa kunna, að varð-
veita stillingu sína og karlmannlega
ró, þó að jarðskjálftahryllingur fari
um jörðina. En bezta ráðið gegn
jarðskjálftanum er það að rannsaka
hann, eðli hans og uppruna, unz við
skiljum hann að fullu og getum vit-
að hann fyrir. Rannsóknin er ham
ingjudrýgsta aðferðin í baráttu mann
anna við náttúruöflin.—Alþ.-blaðið.
Pálmi Hannesson.
Frá Gimli.
Að öllum er eitthvað fundið, og
jafnvel að sjálfum kónginum. En
enginn er líklega svo ruddalegur að
finna nokkuð að drottningunni;
skárri væri það nú ósvífnin! —
Nokkrir vinir mínir, bæði munnlega
og skriflega, hafa fundið að því, að
ég hafi nú í nokkur skifti, þegar ég
hafi sagt frá heintsóknum hér á
Betel — ekki getið unt þá með nöfn
um hverjir hafi haldið ræður, eða
talað eitthvað í sambandi við heim-
sóknina. Þeir hafa viljað sjá þá
hina sömu í anda, um leið og þeir
lásu um heimsóknina. Eg er þess-
um vinum mínum þakklátur fyrir að-
finnsluna, og skal nú reyna að bæta
það ráð mitt framvegis, á meðan ég
nokkuð segi í blöðunum héðan frá
Betel. — Nú í dag (þann 29. ágúst)
var hér á Betel heimsókn. Kvenfél-
ag Bræðrasafnaðar í Riverton-póst-
héraði kom hingað fjölmennt, og eins
og vant er um slí'k félög, með kaffi
og tilheyrandi góðgæti. Og fylgdu
því, eins og vant er, nokkrir heið-
ursgestir, bæði til að aðstoða kven-
félagið á leiðinni, og einnig eftir að
hingað væri 'komið. Varð Mr. S.
Sigurðsson kaupmaður í Riverton
fyrstur til að opna samsætið með því
að lesa upp ávarp til okkar allra,
sent þetta heimili myndum. Og fyrir
hönd okkar, fólksins hér, svaraði séra
S. Ölafsson, einnig með vel völdum
orðum; og stýrði hann eftir það sam-
komunni til enda. Mr. S. Sigurðs-
son söng einsöng. Einsöng sungu
þær einnig Miss Austmann og Miss
Thorbergson frá Riverton og tvísöng
á eftir. Svo voru af öllum sungin
ýms ættjarðarkvæði, sem aldrei fyrn-
ast né leiðast, en einlægt eru ný, eins
og hinir fögru og yndisleigu morgun-
geislar sólarinnar og blíðu og unaðs-
legu kveldgeislar hennar. Mrs. S.
Sigurðsson spilaði fyrir allri söng-
skemtuninni, snilldarlega, eins og
vant er. Kl. 2 kom kvenfélagið, eða
heimsóknarfól'kið. En kl. 6 að
kveldi fór það aftur. Og þökkum
við öll hér á Betel þessa heimsókn,
eins og hinar ýmsu aðrar heimsókn-
ir — kærlega.
Þegar dr. B. J. Brandson bauð
okkur öllum heirn til sín þann 5. ág-
úst, sem áður er frá sagt, gat hann
þess að hinn mikilhæfi söngntaður
og söngkennari, Mr. Stefán Sölvason,
hefði eftir tilmælum sínum ætlað að
vera hjá sér þann dag til að skemta
okkur með harmonikuhljóm, sem
myndi vera okkur kær frá ungdóms-
árunum. En Mr. Sö'lvason var
hindraður frá að geta komið þann
dag. Svo viku síðar kom dr. Brand-
son með hann hingað heim til Betel
og spilaði Mr. Sölvason á sína (300
dollara) harmoniku svo unaðslega,
og undursanilega, mörg þjóðkvæði,
lög og söngva, að yndi var á að
hlusta. Aldrei var klappað, allir
sátu hljóðir, og enginn hávaði nein-
staðar frá. Enginn vildi skemnta
hinar unaðslegu hljóðöldur, er titrandi
og hljómfagrar sveifluðu sér um allt
húsið, (stofuna, sem við vorum í).
Þessa skemtun þökkum við hér á
Betel, þeim báðum, dr. Brandson og
Mr. S. Sölvason. Þó lengi hafi
þessi þakklætisviðurkertning drtgist,
er hún þó vel meint, eins og hinar
ýmsu aðrar þakklætisviðurkenningar
frá okkur hér á Betel. Einnig hefi
ég verið minntur á, eða beðinn, að
geta þess, að séra Rúnólfi Mart-
einsson er vel þakkað fyrir að hafa
komið hingað til Betel tvisvar, til að
messa, án ,þess að vera beðinn þess,
og ekki viljað taka neitt fyrir það.
Gintli, 30. ágúst, 1929.
J. Bríem.
BEZTU MATREIÐSLUKONUR f WINNIPEC NOTA NÚ
Ekkert kaffi er bragðbetra en
“BLUE RIBB0N”
í rauSri könnu með opnara.
l^nlisOnyliW dFofltjjang,
INCORPORATED 2r* HAY 1670.
H.
B.
JAMAICA
og
DEMARA
ROMM
C.
H. B. C.
ROMM
ÞJÓÐKUNNUGT
UM
VESTUR-KANADA
f MEIR
EN HUNDRAÐ
ÁR
Löggilt 1670
Hefir því rekið viðskifti í
259 ár
Hwbsun’s €n.
VERULEGT TÆKIFÆRI!
HINN NÝJI
ROYAL PRINCESS
RAFMAGNSSÓPUR
ásamt gólfvaxi og gljáólíu fyrir
$4950
eða með
$1.00 niðurborgun og $1.00 afborgun á viku
(Má borgast mánaðarlega ef vill)
Lítið álag fyrir vöxtum.
HREINSUNARTÆKI $8.50 AUKREITIS
Skoðið þessa furðulegu vél í
Hycíro Sýningarskálanum, 55 Plincess Str.
WumípeóHi|dro;
65-59
©
PRINCESSSI
Phone
24 669
for
Demonstration