Heimskringla - 04.09.1929, Page 4
4. BLAÐSIÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 4. SEPT., 1929
Heinrðkrin0la
(StofnuO 1886)
Kemur út á hverjum miðvikudegi.
Eigendur:
THE VIKING PRESS, LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg
Talsími: «6537
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist
fyrirfram. Allar borganir sendist
THE VIKING PRESS LTD.
SIGPÚS HALLDÓRS írá Höfnum
Ritstjóri.
Utanáskrift til Maðsins:
Manager THE VIKING PRESS LTD.,
853 Sargent Ave., Winnipeg.
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA
853 Sargent Ave., Winnipeg.
"Heimskringla” is published by
The Viking Press Ltd.
and printed by
THE MANITOBA MINER PRESS
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man.
Telephone: 86 537
WINNIPEG, 4. SEPT., 1929
Gresjutröllið.
íFrh.)
Skipulagningin því nær kraftaverk
Hér skulu nú talin nöfn þeirra
manna, er eiga sæti í stjórnarnefnd Hveiti
samlagsins. í»eir eru ellefu' talsins, og
hafa umráð yfir fjórðungshluta af sam-
þjóðlegum hveitibirgðum veraldarinnar..
Þessir ellefu menn stýra stórkostlegustu
viðskiftastarfsemi sinnar tegundar í öll-
um heiminum, og selja mest hveiti á
heimsmarkaðinn, allra manna. Þessi
stórkostlega ráðsmennska gefur þeim í
hendur einstætt vald, innan endimarka
allra hveiti og kornviðskifta um víða ver-
öld. Og þar af leiðandi eru þeir jafningj
ar voldugustu viðskiftahölda, hvar sem
leitað er á guðs grænni jörð. En þeir
bera það ekki utan á sér. Framganga
þeirra ber því aftur á móti ótvírætt vitni,
að þeir hafa ötulum höndum um frjómold-
ina farið. Árið sem leið báru þeir á-
byrgð á $323,000,000 viðskiftaveltu. Og
til þess að hafa saman þessa óneitanlega
laglegu fúlgu, er þeir svo skifta á milli
bænda í Vestur-Kanada seldu þeir hveiti
í tuttugu þjóðlöndum, víðsvegar í fjórum
heimsálfum..
Þessir ellefu menn eru: E. B. Ram-
say, aðal framkvæmdarstjóri og ritari
Hveitisamlags Kanada; H. W. Wood, for-
maður Alberta-samlagsins og vara-for-
maður Hveitisamlags Kanada; A. J. Mc-
Phail, formaður Saskatchewan-samlags-
ins og formaður Hveitisamlags Kanada;
C. H. Burnell, formaður Manitoba-sam-
lagsins; Brooks Cotton, Saskatchewan;
Paul Bredt, Manitoba; C. Jensen, Alberta;
L. C. Brouillette, Saskatchewan; R. A.
McPherson, Alberta; og George Miclnvor,
Manitoba, sölustjóri.
Enda þótt slík fjármagnselfa streymi
um greipar þessara manna, þá geta þeir
þó ekki auðmenn talist, á mælikvarða
samtíðarinnar.
Nöfn þeirra eru ekki skrásett á mann
talslista yfirstétta né oddborgara, og það
er vafasamt hvort þeir hafa nokkurn.
tíma skrýðst kjól og silkihatti. Þeir eru
bændur, og eru stoltir af stétt sinni, þess-
ir menn, sem stýra þeirri viðskiftastarf-
semi, sem á fimm árum aðeins hefir lagt
undir sig meira en helming af allri hveiti-
framleiðslu í Kanada, og rutt risalíkama
sínum tii rúms á hveitimarkaði heimsins.
Hvernig er nú varið viðskiftastarf-
semi samiagsins? Hvernig er hún skipu
lögð? Með öðrum orðum: Hvernig er
samvinna bóndans lengst norður í Peace
River dal og bróður hans samlagsbóndans
í suðausturhluta Manitobafylkis — í 1,-
200—1,300 mílna fjarlægð — er þeir selja
hveiti sitt í Yokohama, Cape Town, Aþenu
og Hamborg í dag, til dæmis, og í Helsing-
fors, Genf, New York og Vladistock á
morgun ?
Það má manni vel skiljast, að hér er
margs að gæta; mörg hjól knúin í þessu
gangverki, og það heldur ekki auðvelt við-
fangs. Fyrst og fremst er hér ekki að
ræða um tvo samvinnuaðilja heldur eitt
hundrað þrjátíu og þrjú þúsund sam-
vinnuaðilja, er dreifðir eru um landflæmi
er nemur mörg hundruð þúsundum fer-
hyrningsmílna. Auðvitað hafa langflest-
ir þeirra aldrei sézt, og sjást aldrei. Það
eitt fyrir sig, að koma þeim í það sam-
band að þeir selja korn sitt sem einn mað-
ur er risaverk. Þetta hefir samlagið
gert; komið á þessu skipulagi meðal
þeirra.
Og þá starfið, sem í því felst að flytja
um 250,000,000 hveitimæla af sextán milj-
ón samlagsekrum, til fjörutíu til fimmtíu
miljón neytenda í fjórum heimsálfum.
Mætti manni ekki virðast, sem þetta
gengi kraftaverki naast?
Til þess að greiða fyrir skilningnum,
verður maður að reyna að gera sér sem
gleggst grein fyrir því, hvílíkt landflæmi
er um að ræða þar sem gresjan er; hugsa
sér svo tröllaukinn blævæng, þar sem all-
ir fjaðurstafirnir geislast frá einu hand-
fangi í Winnipeg út yfir gresjuna, og svo
annaii blævæng þar sem allir fjaðurstaf-
irnir geislast frá einu handfangi í Winni-
peg yfir til Evrópu og Afríku og alla leið
austur í Asíu. Samlíkingin er þó á
ýmsa lund eigi svo heppileg sem skyldi,
ekki sízt fyrir þá sök, að víða greinast
fjaðurstafir út frá sérstökum miðdepils.
kerfum, sem eru einskonar sjálfstæð
kerfi í hinni yfirgripsmiklu heild. En í
aðalatriðum getur maður þó hugsað sér
viðskiftakerfi samlagsins í líkingu við
þessa tvo aðalblævængi.
Hugsaðu þér svo þrennskonar höfuð-
strauma er falla eftir fjaðurstöf. þessara 2
blævængja: hveitistrauminn, er fossar inn
til Winnipeg eftir fjaðurstöfum gresjublæ-
vængsins, og síast þaðan aftur eftir fjaður
stöfum hins blævængsins er austur ligg-
ur, alla leið austur um haf; annan straum
af viðskiftaskjölum: kvittunum, járn-
brautarsfeírteinum, afgreiðsluskírteinum:
straum af allskonar skírteinum og kvitt-
unum, er fellur í sömu átt og hveitistraum
urinn, og svo þriðja strauminn, peninga-
strauminn er fellur í gagnstæöa átt við
hina tvo.
Hugsaðu þér svo 1435 samlagskorn-
lyftur, dreifðar um því nær jafn margar
járnbrautarstöðvar og þorp, er liggja hér
og þar á fjaðurstöfum gresjublævængsins.
Og hrekkur þó ekki til, því í raun réttri
verður maður að hugsa sér langt um
fleiri kornlyftur dreifðar um þessa fjað-
urstafi, því svo risavaxið sem kornlyftu
kerfi samlagsins er, þá rúmar það þó ekki
í einu nema um 60% af öllu samlagskorn-
inu.
Það er nú ekki svo erfitt að gera sér
í hugarlund hveitistrauminn, er fossar svo
miljónum mæla skiftir gegnum þúsundir
af misjafnlega stórum kornlyftum inn í
járnbrautarvagnana og með þeim til hafs.
Viðskiftaseðlastrauminn er erfiðara að
gera sér í hugarlund og rúmið leyfir held-
ur ekki nákvæmari greinargerð. Þá full-
yrðing verða menn að láta sér nægja, að
eitt hið dásamlegasta við allt samlags-
kerfið er sú nákvæmni er ræður á mið-
stöðvum sveitahéraðanna um þau straum-
skifti til allra átta, frá aðaluppsprettunni:
sölumiðstöðinni.
Reynum svo að draga augnabliks-
mynd fyrir hugskotssjónum vorum af sam
lagsstarfseminni, þegar þreskingartíminn
er í garð genginn. Þá streyma kornhlöss
in svo hundruðum skiftir, eftir öllum þjóð-
vegum að kornlyftunum sem vega og
flokka þessar tugþúsundir kornhlassa
víðsvegar af gresjunni og demba þeim
svo í stóreflis bingi, er skifta þúsundum
Allan guðs langan daginn og langt fram
á nótt heyrist komvagnaskröltið, endi-
marka gresjunnar á milli, eins og stöðug-
ur æðasláttur, og rennur saman við másið
og hvásið, véladynkina og hjóldunurnar
frá þúsundum járnbrautarvagna, er æða
yfir gresjuna með sinn dýrmæta farm.
Þar er allt á hvíldarlausri fljúgandi ferð,
því fimm miljónir samlagsmæla urðu að
bíða fermingar í dag, og það er eins og
dropi í hafið af þeim straum er á morgun
og hinn daginn fer sömu leið, meðan
þreskingin stendur yfir.
En aldrei verður straumflóðið eftir
fjaðurstöfum blævængsins svo stórkost
legt, að ekki sé hver mælir af samlags-
hveitinu skrásettur í viðskiftabókum sam
lagsstöðvanna.
Fjárreiður samlagsins
Árið sem leið fékk samlagið $65,000,-
000 að láni hjá sjö stórbönkum í Kana-
da.
Fjárreiður samlagsins væru efni f
langa sögu og sérstæða, sem ekki er rúm
fyrir hér. Það nægir til skýringar, að
áður en hveitistraumurinn byrjar að
streyma frá þreskivélunum, snúa forstjór-
ar samlagsins sér til bankanna og skýra
þeim frá því hve mikið fé þeir þurfi til
þess að standa straum af viðskiftunum
það árið. Bankarnir sjá þeim fyrir nauð
synlegu fé, svo að samlagið geti staðið í
skilum með fyrstu afborgun á hveitinu
um leið og bóndinn ekur korni sínu til
héraðskornlyftunnar. í ár nam fyrsta
afborgun fyrir No. 1 Northern, miðað við
Fort William, 85 centum. Þrjú árin þar
á undan var hún $1.00. Eftir nokkurn
tíma snýr peningastraumurinn aftur til
bankanna, svo áður en lýkur er samlagið
orðið lánardrottinn bankanna, en ekki
skuldunautur þeirra.
.Og þá komum vér að síðasta atriði
þessa kafla, því atriðinu, sem ef til vill er
séreinkennilegast við samlagskerfið:
Áður en hveitisamlagið kom til sög-
unnar, fékk bóndinn andvirði hveitisins
greitt í einu lagi. Hveitisamlagið greið-
ir meðlimum sínum andvirðið í fjórum af-
borgunum. Fyrstu borgunina fær bónd
inn um leið og hann ekur og afhendir
kornlyftunni korn sitt; aðra í marzmán-
uði, rétt áður en vorannir byrja; þríðju
rétt fyrir kornskurð, og fjórðu og síðustu,
þá er lengra kemur fram á haustið, þegar
gerðir hafa verið upp ársreikningar sam-
lagsins.
Stjórnvitringur er leiðtogi samlagsins
Meðal yfirráðsmanna hveitisamlags-
ins er einn maður, er sérstaklega mætti
stjómvitring kalla í líkingu við helztu
stjórnmálaskörunga hinna ýmsu þjóðfél-
aga. Sá maður er Henry Wise Wood, for-
maður hveitisamlags Albertafylkis, og
varaformaður Hveitisamlags Kanada.
Wood er einn af þeim fáu mönnum, er telj-
ast mega til frumlegra hugsunaskörunga.
Hann er ættaður frá Missouriríki, í Banda
ríkjunum. í fjórtán ár samfleytt hefir
hann verið formaður hins sameinaða
bændafélags Albertinga (United Farmers
of Alberta). Hann var meðlimur Hveiti-
nefndarinnar og fékk þá færi á því, að
beita hagfræðikenningum sínum við raun
veruleikann, í glímunni við hin miklu hag-
fræðislegu viðfangsefni ófriðaráranna.
Margir fylgismenn hans líta til hans sem
sannarlegs spámanns, og ekki að ástæðu-
lausu.
Tvisvar sinnum hefir Wood staðið til
boða forsætisráðherrastaðan í Alberta, og
manna á meðal hefir hann hlotið heiðurs-
nafnið “hinn ókrýndi konungur Alberta-
fylkis.” Að heyra hann prédika evangel-
íum samvinnustefnunnar gengur mönn-
um aldrei úr minni. Hann var maðurinn
er með hugviti sínu beizlaði ákafa geðs-
hræringu alþjóðar 1923, og virkjaði hana
til hagrænna samtaka. Og ef nokkur
á skilið nafnið “faðir Hveitisamlagsins,”
þá er sá maður Henry Wise Wood.
Bækur.^
STEFNIR
Tímarit um þjóðmál og fleira
Ritstj. Magnús Jónsson
•Þetta nýja tímarit leggur úr hlaði
með svofelldum orðum til lesendanna:
“Stefnir ætlar ekki aö hafa mörg formálaorö
til þess aö kynna sig. Er meira undir því komiö,
aö hann kynni sig vel með starfi sínu.
En þó mun ekki veita af að færa rök fyrir
því meö fáeinum orðum, hvaða erindi hann á,
vegna þess, hve mikiö er fyrir af timaritum í
landinu. Tilgangur Stefnis er sem sé alls ekki
sá, aö taka frá neinu þeirra, eöa ganga inn á
þau sviö, sem þau hafa helgað sér.
En það er nú svo, að þrátt fyrir allan tíma-
ritafjöldann, eru ákveðin verkefni, alveg nægi-
leg fyrir stórt og öflugt timarit, sem ekkert þeirra
vinnur, nema þá aö mjög litlu leyti. Skal
nefna hér þau verkefni, sem Stefnir vill vinna.
1. 'Stefnir v'ill ræöa þjóömál og fræða um
þau, frá sjónarmiði einstaklingsframtaks og at-
hafnafrelsis. Þetta er nú sú stefna, sem ráöið
hefir undanfarandi. Sú stefna hefir á fremur
skömmum tima borið mannkyniö áfram til stór-
stigari framfara í verklegum efnum og rneiri auö-
sældar og velmegunar, en nokkur önnur stefna
hefir gert. Það mætti þvi ætla, aö hana væri
óþarft aö ræöa. Hún sæti föst i sessi og þar
væri ekki fræðslu þörf.
En sannleikurinn er sá, að hér er langt frá
aö svo sé.
Mennirnir eru breytingagjarnir. Þegar eitt
hvaö hefir staðiö um tíma, vilja menn skifta
um og fá annað. Er þá oft og einatt hrapað
aö breytingum, sem leiða til óláns og ófarsældar.
Alltaf eru einhverjir til óánægöir. Þeir
hafa ekki fundið það, sem þeir leituöu aö, og vilja
því breyta til. Þjóöskipulagið og atvinnumálin
eru engin undantekning frá þessu. Þeir, sem
ekki hafa fundið þá grænu grein, kenna trénu
um og vilja láta höggva þaö upp og bera á bál.
Og alltaf eru opin eyru fyrir nýjung-
um, sem reynslan hefir ekki fenigið
að hreinsa í deiglu sinni.
'Stefnir vill ræða þessi mál viö les-
endur sína. Hann vill sýna fram á,
aö atvinnufrelsi og einstaklingsfram-
tak er ekki úreltir hlutir, sem menn
eru að verja af einhverri fastheldni
og þráa, 'heldur miklu fremur takmark,
sem barist hefir veriö fyrir um lang-
an tima, og hefi rekki náðst enn til
fulls. Hann vill leitast viö aö gera
mönnum þann sannleika ljósan, aö all-
ar takmarkanir á framleiðslu og höml-
ur á viðskiftum eru takmarkanir á
sjálfsbjargarviðleitninni og leiöa al-
veg óhjákvæmilega til þess, að þjóö-
in verður fátækari og ver stödd.
Stefnir vill ræða öll þessi mál án
æsinga og illinda, án flokkadeilna eöa
ágreinings um dægurmál. Hann
vill ná tali af greindu og gætnu
mönnunum, sem vilja vita og skoða, í
því óbifanlega trausti, að það muni
sigra, sem stenzt fyrir dómi þeirra.
2. Hitt aðalerindið, sem Stefnir
vill rækja, er þaö, sem er að gerast
úti í löndum, hvað þar er aðhafst,
ritað og hugsað og hvaða áhugamál
og vandamál eru þar á dagskrá.
ísland liggur svo fjarri alfaraveg-
um, að hér er mjög hætt við einangr-
un. Jafnvel 'þótt margt sé nú kom-
ið, sem dregur úr þeirri einangrun,
sem áður var, er þó langt frá því, að
hingað berist nema veikur niður af
því lífi, sem ólgar úti i stóru þjóð-
löndunum. Vonar Stefnir, að hon-
um takist smám saman að komast upp
á lag með, að færa lesendum sínum
nokkrar frásagnir af þessu, og verða
þeim sá leiðsögumaður, sem þeir
jafnan bíði með óþreyju.
3. Loks mun svo Stefnir flytja
bæði greinir og sögur og myndir til
fróðleiks og skemtunar. Hann er
svo stór, að hann igetúr flutt mikið
af hverju þessu, og ef honum tekst
að eignast svo marga og góða vini
út um land allt, mun honum enn vaxa
styrkur og megin til þess að rækja
starf sitt, sér og þeim til ánægju.
Stefnir er ráðinn í því að verða ekki
gróðafyrirtæki, heldur láta alla vel-
gengni, sem honum kynni að hlotn-
ast, koma fram í meiri stærð, betri
frágangi og yfirleitt því, að verða æ
betri og betri gestur, hvar sem hann
kemur.”
Eins og sjá má af þessu, er
einkum ætlast til, að Stefnir
ræði stjórnmál og vitanlega er
hann einnig flokksrit. En það
sakar eigi, ef hann ræðir öll
mál "án illinda og æsinga,”
eins og hann lofar í formála. Á
margan hátt væri það æskileg-
ast, að stjórnmál væri fremur
rædd á þann hátt í tímaritum,
heldur en með upphrópunum og
þrasi í dagbloðunum. Málin
yrðu þá rædd í stærra yfirliti
og betra að átta sig á þeim.
Um nokkurra ára bil hafa sam-
vinnumenn á íslandi átt sér öfl-
ugt tímarit. Samvinnu og sam-
eignarmenn annað: Rétt. Nú
hafa þeir, sem hallast fremur
að frjálsri samkeppni hleypt
hinu þriðja af stokkunum, og
er það vitanlega ekki nema
gott og blessað í augum allra
hleypidómlausra manna, að
málin verði þannig rædd frá sem
flestum hliðum. Það er jafn-
an svo, þegar margir deila, að
allir hafa til síns máls nokkuð,
en skjátlast einnig að einhverju
leyti. Ætti því í slíkum tíma
ritum, að vera hægt að taka
málin til alvarlegri íhugunar,
og sníða allar umræður betur
við hæfi athugulla og skyn-
samra lesenda, en venjulegast
er gert í æsingaskrifum dag-
blaðanna. Myndi það koma
pólitízkri heilsu íslendinga í
giftusamlegra horf.
Og eins og af formálanum
má sjá, er Stefni einnig ætlað
að flytja íslendingum sem
gleggstar fregnir af þeim at
burðum, sem í umheiminum ger
ast og öllu því helzta, sem þar
er hugsað. Það er mjög
þarft verk og gott, því að frétta
snapir blaðanna eru venjulegast
svo sundurlausar og tínings-
legar að erfitt er af þeim einum
að átta sig að nokkru ráði á
rás sögunnar. Og margt af
Æfiminning.
Jóhanns Péturs Abraham'
sonar
Þess hefir ekki áður verið igetið í
Heimskringlu, að látist hafi heiðurs
bóndinn Jóhann Pétur Abrahamson.
að heimili sínu nálægt Sinclair, Man.,
þann 29. október síðastl. og var hann
jarðsunginn af séra K. K. Ölafssyni
þann 31. sama mánaðar að viðstödd-
um flestum Islendingum í þessu bygð-
arlagi og mörgu innlendu fólki. For-
eldrar Jóhanns sál. voru Abraham
Hallgrímsson og Friðrika Jónsdótt-
ir, bæði eyfirsk. Hann var fæddur
i Hlíðarhaga í Eyjafirðinum 28.
ágúst 1851, var einn af 13 systkinum
og voru þau öll, er á legg komust,
myndarleg, mikið í þau spunnið, enda
komin af góðum ættum.
Jóhann sál. flutti til Ameríku sum
arið 1883. Var fyrst í Winnipeg
en flutti brátt þaðan ofan til Nýja
Islands i Víðinesbyggðina, og var þar
í 8 ár. Eitt ár var hann í íArgyle-
byggð, en flutti þaðan fyrir 36 árum
í hina þá nýju Pipestone-byggð, tók
heimilisréttarland og lifði á því til
dánardægurs.
Jóhann var þríkvæntur. Fyrsta
kona hans hét Guðrún Magnúsdótt-
ir. Eignuðust þau tvö börn; stúlku,
því, sem helzt er á dagskrá úti
í heimi fer algerlega framhjá
íslandi, þrátt fyrir allan rita
og blaðakostinn þar. Þess vegna
er það ágætt að fá rit, sem tek-
ur sér það fyrir hendur, að
fræða sem greinilegast um allt
þetta, og veita hugsunum um-
heimsins heim til íslands. Auk
þess á Stefnir að flytja marg-
víslegan fróðleik og sögur til
skemtunar. Er því viðfangs-
efni ritsins mikið og má vel
fara, ef vel er af höndum leyst.
En það er ekki að efa, því að
ritstjórinn, prófessor Magnús
Jónsson, er bæði víðfróður og
fjölgáfaður, og skrifar . manna
skemtilegast um hvað sem er.
í þessu fyrsta hefti, sem út
er komið, er mjög veigamikil
og snjöll grein eftir Jón Þor-
láksson fyrverandi ráðherra er
hann nefnir: “Milli fátæktar og
bjargálna.’’ Þar er “fréttabréf’
frá Reykjavík og upphaf þing-
sögu 1929 eftir ritstjórann, og
eins og búast má við, með við.
eigandi pólitízkum áherzlum.
Þá koma ýmsar greinar frá út-
löndum, skemtilega skrifuð
grein um New York, þýdd grein
eftir Campbell um trúarlíf og
loks saga með myndum.
Vel get ég trúað því að Stefn-
ir verði vinsælt og útbreytt rit
á íslandi og eigi aðeins á meðal
sinna flokksmanna heldur fleiri
ef hann heldur áfram að flytja
margháttaðan og skemtilega rit
aðan fróðleik og aðeins veiga-
miklar og vel rökstuddar stjórn
málagreinar.
Undirrituðum hafa borist
nokkur eintök af þessu nýja
riti og má panta það hjá hon-
um, ef einhver ágirnist það í
þessari álfu. Ritið er mjög ó-
dýrt $2.50 um árið. Stærð sex
stór hefti á ári, minnst 36 ark-
I ir.— 1 dollar 3 hefti til ára-
móta.
Benjamín Kristjánsson.