Heimskringla - 04.09.1929, Side 8
8. BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 4. SEPT., 1929
Fjær og nær
Messur í Sambandskirkju á
sunnudaginn kemur 8. þ. m.,
verða sem hér segir:
Kl. 11 f. h. Rev. Geo. F. Pat-
terson D D. frá Boston, préd-
ikar. Honum til aðstoðar verð-
ur prófessor Smith, fyrverandi
kennari við Wesley College. Að
kveldinu á venjulegum. tíma
(kl. 7) ‘prédikar séra Ragnar
E. Kvaran. Að lokinni prédik-
un ávarpar Dr. Patterson safn-
aðarfólk og flytur því kveðju
frá The American Unitarian As-
sociation. Að lokinni guðsþjón-
ustunni fara fram kaffiveiting-
ar í samkomusalnum, til þess
að gefa öllum er við kirkju verða
tækifæri til að kynnast Dr. Pat-
terson. Vonast er til að safn-
aðarfólk fjölmenni.
Hirtg-aS kom á mánudaginn var,
séra Ragnar E. Kvaran vestan frá
Blaine á Kyrrahafsströnd, þar sem
hann hefir dvaliö um tíma í embættis-
erindum. Með honum kom einnig
frá Blaine til Wynyard séra Friðrik
A. Friðriksson. Höfðu þeir verið
við kirkjuvigslu fyrsta sambands-
safnaðar í Blaine, 25. ágúst, og
hafði mikill mannfjöldi verið þar
samankominn.— z
Þau hjón, Mr. George Salverson,
lestaskiftastjóri C. N. R. í Fort Wil-
liam og skáldkonan frú Laura Good-
man Salverson komu hingað til bæj-
arins á miðvikudaginn var, í kynnis-
för til ættingja og vina. Dvelja
þau hér fram undir lok þessarar
viku.—
Hingað kom á laugardaginn var,
Mr. Hjörtur Lárusson frá Minneapo-
lis og dvelur hér í orlofi sínu fram
i næstu viku, hjá mági sínum og
systur, Mr. og Mrs. Steindór Jak-
obsson, 676 Agnes stræti. Hitti
hann einnig annan mág sinn og syst-
ur hér, þau Mr. og Mrs. Salverson,
frá Fort William, sem hér eru stödd
um þessar mundir, eins og getið er
á öðrum stað í blaðinu. Mr. Lárus-
son er meðlimur Minneapolis sym-
fóniuhljómsveitarinnar miklu.
Hingað kom á laugardaginn Har-
aldur kaupmaður ólafsson frá Moun-
tain, N. D. Hélt hann heimleiðis
aftur á mánudaginn.
Fundarboð
Með 'því að íslendingadagsnefnd-
inni hafa borist raddir um það að
efnt muni verða til hátíðahalda hér
vestra um sama leyti og þúsund ára
minningarhátið Alþingis stendur yf-
ir heima á Islandi, þá álítur hún
skyldu sína að boða til fundar í
Good Templarahúsinu 12. septemiber,
kl. 8 e. m., til að leggja þetta mál
fram fyrir almenning. Nefndin vill
því /biðja alla íslendinga, sem áhuga
hafa fyrir þessu máli, að mæta á
fundinum, svo hægt verði að taka
ákvarðanir til undirbúnings sem allra
fyrst.
Æskilegt væri ef Islendingar í
nærliggjandi byggðum sem hefðu löng
un til samvinnu um hátíðahaldið
1930, sendu erindisreka á þenna fund.
J. J. Samson, forseti.
/. /. Björnsson, ritari.
Hingað komu á föstudagskveldið
frá Detroit Mrs. J. J. Bildfell, er
þar hefir dvalið í sumar með dætrum
sínum og Miss Sylvia Bildfell, er
verður hér í orlofi sinu um viku, á-
samt Mr. J. J. Bildfell, er brá sér
þangað nú um mánaðamótin.
Hingað kom á föstudaginn snögga
ferð, í viðskiftaerindum, hr. Egill
Egilsson, kaupmaður frá Brandon.
Kvað hann uppskeruhorfur þar um
slóðir betri en vonir hefðu staðið til
fyrir mánuði síðan. Væri útlit fyrir
allt að því meðalár.
Frú Steina Kristjánsson, 788 Ing-
ersoll str., kom í fyrri viku vestan
frá Wryt>yard þar sem hún hefir dval-
ið um tveggja mánaða tima ásamt
tveim börnum þeirra hjóna hjá mág-
afólki og tengdaföður, Mr. og Mrs.
Árna Sigurðsson og Mr. Friðriki
Kristjánsson.
Mr. Tryggvi Björnsson píanóleik-
ari frá New York, efnir til hljóm-
leika i fyrstu lútersku kirkju á þriðju
dagskveldið kemur, 10. þ. m. — Mr.
Björnsson hefir farið víða um byggð-
ir íslendinga í sumar og allstaðar
orðið við þeim vonum, er vinir hans
höfðu gert sér um hann sem lista-
mann. Og þeir, sem hlustuðu á
hann í fyrstu lútersku kirkju, við
hljómleikana, er hann hélt til ágóða
fyrir Jóns Bjarnasonar skólann,
mánudaginn 27. ágúst, eru einráðnir
í því að hlusta nú á hann aftur og
hvetja kunningja sína til hins sama.
Mr. Gunnar Erlendsson píanókenn-
ari, sem dvalið hefir í Wynyard í
sumar, er nýlega kominn hingað til
bæjarins. Mun hann dvelja hér t
vetur við píanókennslu og tekur hann
nú þegar við nemendum.
Hingað komu billeiðis frá Grand
Forks, N. D. á laugardagskveldið
Mrs. og dr. G. J. Gíslason, ásamt
Mrs. og dr. Guðm. Thorgrímsson,
Mr. og Mrs. H. Halvorson og Mr.
og Mrs. Vold. Komu þau aðeins
snögga ferð, fóru heimleiðis aftur á
sunnudagskveldið. Sæmilegar horf-
ur sögðu þau þar syðra, liti út fyrir
betri uppskeru en vonir hefðu stað-
ið til.
og Mrs’. S. Sigfússon og Mr. og Mrs.
O. Eiríksson. Heimsóknin og sam-
sætið var i alla staði svo ánægjulegt
að við munurn seint gleyma þeirri
stund. Yfir 50 manns tóku þátt í
heimsókninni víðsvegar úr byggð-
| inni í kring.
i Annað samsæti var okkur einnig
I haldið af þremur fjölskyldum á
| heimili þeirra Mr. og Mrs. Einars
, Sigurðssonar. Voru það auk Sig-
urðssons hjónanna. þau Mr. og Mrs.
Sk. Sigurðsson o g Arnljóts Gísla-
son fjölskyldan. Þar voru okkur
^ einnig gefnir mætir ntunir.
| Fyrir allt þetta þökkum við af al-
! hug öllum þessum vinum okkar og
| finnum sárt til þess hversu óverðskuld
j að það er. Við höfum dvalið í
Oak View byggðinni um 23 ár og er-
um nú flutt til Winnipeg, en þakklátur
hugur hvarflar þangað norður og
gleymir ekki neinu ykkar þ.ar,
Mr. og Mrs. Eyjólfur Svcinsson.
*Flutti eftirfylgjandi erindi:
Vertu sæl, ástkæra vinkona mín,
vertu sæl ásamt með karlinum þín
karlinum trúfasta og trygga;
börn ykkar kveð ég í kærleika hér
kærleikans faðir þau taki að sér
hvert sem að leiðin kann að liggja.
Hingað kom á laugardaginn frá
Calgary, Alta., snögga ferð til heim-
ilis síns, hr. Þorsteinn Borgfjörð
byggingameistari. Snýr hann vestur
aftur undir vikulokin.
Hirtgað kom á föstudaginn var, Mr.
Sumarliði Hjaltdal frá Langruth,
Man., í heimsókn til barna sinna,
tveggja dætra og tveggja sona, er hér
eru búsett, dvelur hér til miðvikudags,
að hann heldur vestur til Burns Lake,
B. C., þar sent hann verður í vetur
við fiski, hjá Mr. J. H. Johnson, er
hefir þar mikla útgerð og hefir meðal
annars byggt þar frystihús. —
Stúkan Skuld nr. 34, I. O. G. T.
efnir til sinnar árlegu tombólu fyrir
sjúkrasjóð st. sem haldinn verður
mánudaginn 23. þ. m. Allir með-
limir stúkunnar eru bróðurlega á-
minntir um að aðstoða nefndina, sem
kosin hefir verið til að standa fyrir
tombólunni með allri hjálp og lið-
veizlu, sem hver og einn getur veitt.
Nánar auglýst síðar um alla þá kjör-
drætti og kjörkaup, sem verða á
Skuldartombólu 23. september næstk.
M'unið eftir deginum — 23. þ. m.
—Nefndin.
Hin árlega tombóla til arðs fyrir
sjúkrasjóð stúkunnar Heklu verður
haldin mánudagskveldið 7. október
næstkomandi. Munið eftir degin-
um. Nánar auglýst síðar.
WONDERLAND
Myndin sem sýnd verður þar
þessa viku er hin mikla ásta og töfra
mynd “Abie’s Irish Rose.” Mynd
þessi hefir verið sýnd í samfíleytt
fimm ár í New York og hlotið afar
mikla aðsókn. Jean Hersholt og
Charles Rogers leika ástapersónurn-
ar af mikilli snilld. Með þeim eru
skarar af frægustu kvikmyndaleik-
urum er koma fram á sjónarsviðið,
hver í sínu hlutverki. Svo er sagt
að ekki sé til sá rikisstjóri í Banda-
ríkjunum, er ekki hafi séð myndina,
svo hefir hún verið vinsæl meðal
hærri sem Iægri.
Þakklæti
Fjórða ágúst var okkur hjónum
boðið heim til þeirra Gísla Hallsonar
og konu hans til miðdagsverðar;
fluttu þau okkur heim aftur á bif-
reið og brá okkur heldur en ekki í
brún þegar við komum til baka. Var
>á kominn fjöldi fólks á heimili okk-
ar og hafði flutt með sér allskonar
borðbúnað. Allt var tilbúið til veg-
legrar veizlu og við látin setjast til
borðs meðal þessara sjálfboða gesta.
J. K. Jónasson frá Vogar var for-
ingi heimsóknarinnar; flutti hann á-
varpsræðu til okkar hjóna og afhenti
okkur $56 í peningum. Auk hans
töluðu þau Sigurður Sigfússon, Mar-
grét Sigfússon,* Mrs. Guðrún Hall-
son og lýstu allar ræðurnar meiri hlý-
hug og vináttuþeli en við áttum skil-
ið. Auk peningagjafanna gáfu þau
okkur sína ferðatöskuna hvoru Mr.
Vatnavöxturinn á
Skeiðarársandi.
Búist við hlaupi
Frézt hefir, að vatnavextir miklir
hafi verið á Skeiðarársandi að undan-
förnu, en sagnir um það hafa verið
fremur óljósar og eigi sem áreiðanT
legastar. Vísir hefir því snúið sér
til A. J. Johnson’s bankagjaldkera,
sem er nýkominn austan úr Öræfum,
og beðið hann að skýra frá ástæðum
þar eystra. Honum segist svo
frá:
Þegar við samferðamennirnir, —
sem voru 4 austur í Öræfi, en 2 til
baka — komum austur í Fljótshverfi,
fréttum við að nýtt vatnsfall væri að
koma á Skeiðarársand austarlega.
Við fengum svo beztu vatnametln-
ina, sem til voru í Fljótshverfi, þá
Stefán á Kálfafelli og Hannes á
Núpsstað, til að fylgja okkur, með
því að hvorugur vildi gera það einn,
og virtist okkur það benda á eitthvað
óvenjulegt, því báðir eru mjög vanir
vötnunum; hafa verið póstar um lang
an tíma, og oft séð skammt á milli
lífs og dauða, þegar hlaup hefir ver-
ið á ferðinni, og sjálfsagt oftar.
Voru okkur sagðar margar sögur af
viðureign þeirra við vötnin og hlaup-
in, sem báru vott um fádæma snar-
ræði og huigrekki. Hjá þeim feng-
um við og níu vana vatnahesta, því
að eigi þótti okkur gerlegt að ríða
okkar hestum yfir vötnin.
Þegar við komum skammt austur
fyrir Núpsvötnin, tók Hannes eftir
þvi, — hann hafði farið yfir sandana
fyrir hálfum mánuði, — að skrið-
jökullinn, að vestanverðu, hafði
breyst mjög mikið á þeim tíma;
hafði allur hækkað, og var mjög
sprunginn. Var hann allt annað en
fagur ásýndum, kolsvartur, og hver
sprungan við aðra. (Til skýringar
ókunnugum er rétt að geta þess, að
þessi skriðjökull, sem öll hlaup koma
úr, og kemur frá landsins höfuð-
fjanda, Vatnajökli, nær yfir þveran
Skeiðarársand, milli Núpsvatna að
vestan og Skaftafells að austan, er
ca. 40—45 km. á lengd, og á ca. 10
km. svæði að vestan, var hann hækk-
aður og sprunginn, og bar öll ein-
kenni þess, að hann myndi hlaupa
þá og þegarj. Þegar við höfðum
riðið yfir tvo þriðju hluta sandsins
(i 4 tíma) komum við að nýju vatni,
sem fylgdarmehn okkar kölluðu Há-
öldukvísl, og er sæluhúsið, sem er á
sandinum, skammt fyrir austan hana.
Lét hátt í henni því hún rennur í tals
verðum halla, en hreidd hennar þá
hefir líklega verið nálægt 300 metr-
ar. Sögðu fylgdarmennirnir að
þetta nýja vatnsfall hefði komið á
rúmri viku, því áður hefði Háöldu-
kvísl verið næstum þur. Mér fannst
þeir setja þetta nýja vatn í sam-
band við hlaup.
Vel gekk okkur að komast yfir,
þótt bæði væri alldjúpt og straum-
hraði talsverður, því að Stefán og
■Hannes kunnu að velja beztu “brotin.”
En illa leizt þeim á þetta nýja vatn,
og héldu það vera í vexti, svo sem
raun varð á. Milli háöldukvislar
og Skeiðarár fengum við það mesta
þrumuveður, sem ég hefi verið úti í
hér á landi. Stóð það látlaust upp
undir klukkutíma, en þó sáum við
altlaf til sólar, og regn fengum við
sama og ekkert. En sorti og skúrir
voru yfir jökultánni, og vestur með
ströndinni. Fannst mér fylgdar-
mennirnir setja þrumuveðrið i sam-
band við hlaup úr jöklinum, sem ég
skildi þá ekki í bili, en skildi síðar.
Og austur í Hornafirði og vestur á
Síðu, þar sem þrumurnar heyrðust,
var talið víst, að nú væri Skeiðará
að hlaupa. Þetta varð þó ekki í það
sinn. Þegar austur á Skeiðará kom
reyndist vatn í henni talsvert minna
en venja er til.
(Framh.J
Eiríkur Kjerúlf og Straummælir
hans
(Frh. frá 5. bls.)
lausn á því vandamáli, að geta siglt
í straumi á opnu hafi án þess að
þurfa að óttast að ókunnur straum-
ur reki skipið af leið.
Eg þarf eikki að taka fram, að
lausn þessa vandamáls hefir stórkost-
lega þýðingu, og ég fæ ekki betur
séð, en að uppfinning (Opfindelse)
læknisins, eða öllu heldur uppgötv-
un (Opdagelse) verðskuldi að henni
sé afar rækilega sint og gaumur gef-
in*.”
Þess ummæli frá slíkum manni ern
mjög merkileg, því að í Damjiörku
eru gerðar meiri kröfur til þekking-
ar manna, sem veittar eru ábyrgðar-
miklar stöður, heldur en að þeir hafi
gengið í samvinnuskóla.
Hlutafélag hefir þegar verið stofnað
til þess að hagnýta uppgötvun Kjer-
úlfs og koma einkaleyfi á hana i
ýmsum löndum. Kostnaður er þegar
orðinn rúmlega 20 þús. króna, en
meira fé þarf, líklega um 15 þúsund-
ir. Geta þeir sem vilja leggja í
fyrirtækið, skrifað sig fyrir hlutum
hjá gjaldkera Morgunblaðsins.
Kjerúlf er það mikið áhugamái
að uppgötvunin verði viðurkennd
sem íslenzk uppgötvun og að Islend-
ingar hafi hagnaðinn af henni. Myndi
honum hafa verið í lófa lagið, að
selja uppgötvunina ytra, en það vill
hann ekki. Er það drengiiega hugs-
að, að láta þjóðina hljóta heiður af
uppgötvuninni, og það er henni heið-
ur, ef erlend skipafélög fara að keppa
um það að útbúa skip sín með straum
mæli Kjerúlfs. En hjá því getur
ekki farið, þegar reynsla er komin
á mælirinn, og er líklegt, að vátrygg
ingarfélög setji það sem skilyrði, að
skip hafi straumniælirinn, því að
öryggi þeirra verður mörgum sinn-
um meira en nú er og miðunarstöðvar
jafnvel óþarfar. Þá er og líklegt að
| vátryggingargjöld öll af skipum og
farmi, lækki stórum, þegar þau hafa
fengið straummæli, og hefir það
stórkostlega þýðingu fyrir oss Is-
lendinga, sem eigum samgöngur vor-
ar við umheiminn kontnar undir
sig'lingum. Uppgötvunin getur því
orðið til stórgróða fyrir land og lýð,
jafnframt því sem húix eykur hróður
þjóðarinnar um allan heim.
—M.orgunblaðið.
W0NDERLAND
Cor. Sargent & Sherbrooke
THUR.—FRI.—SAT. (This Week)
GLEN TRYON IN
“IT CAN BE DONE”
MONTE BANKS IN
“Flying Luck”
Comedy — “FISHING FOOL"
MON.—TUES.—WED., Next Week
NANCY CARROLL
BUDDY (Chas.) ROGERS
in Anne Nichol’s
“ABIE’S IRISH ROSE”
“Manchu Love”
(In Natural Colors)
REVIEW
BÚLAND TIL SÖLU
Eða leigu, gott tækifæri fyrir dugleg-
an mann er vill stunda skepnurækt, og
koma sér þar fyrir er hann getur rekið
hana í stórum stíl. Óþrjótandi haga
ganga, uppsprettuvatn og fyrirtaks
engi er á landinu. Landið er einnig
gott til akuryrkju. Upplýsingar um
söluskilmála veitir undirritaður eig-
andi.
SIGURJÓN BJÖRNSSÓN,
1060 Dominion St., Winnipeg.
Sími 38 138.
*Opfindelse á dönsku þýðir ný hag-
nýting kunnra staðreynda, en Opda-
gelse hagnýting staðreynda, sem
menn hafa ekki komið auga á áður.
ROSETHEATRE
Sargent &
THUR.—FRI.—SAT. (This Week)
DON’T MISS
“IN OLD ARIZONA”
100% Talking Featurette
with
EDMUND LOWE
WARNER BAXTER
Björg
1
f
j Frederickson |
píanókennari
byrjar aftur kennslu 4. sept.
Nemendur búnir undir próf.
PHONE: 35 695
—Special Added Attraction—
SAT. MATINEE ONLY
Tom Mix
“SkyHigh”
SERIAL COMEDY
Arlington
MON.-TUE.-WED. (Next Week)
—A BIG SPECIAL—
—Starring—
JACK HOLT
DOROTHY REVIER
—in—
“FATHER and SON”
A TALKING FE ATURETTE
—A picture no one can afford
to miss.
COMEDY
NEWS
SUMAR OG YETUR
ættu þér heilsu yðar vegna að geyma allan mat á réttu
kælustigi.
Heilsan er fyrir öllu, en svo er líka þess að gæta sem er
næstum jafn nauðsynlegt að þér sparið peninga með því
að verja matinn fyrir skemdum í
KELVINATOR REFRIGERATOR
Hann borgar sig fljótt.
Skoðið hann í nýja sýningarskálanum, í
Power Byggingunni — Portage og Vaughan st.
Fæst með vægum afborgunum.
WIHNIPEG BLECTWIC^COMPANY
“Your Guarantee of Good Service”
THREE STORES: Appliance Department, Power Building; 1841 Portage
Ave., St. James; Cor. Marion and Tache, St. Boniface.
Ragnar H. Ragnar, Pianoieikari
Nemendur er óska að njóta kennslu hjá Ragnar H.
Ragnar í píanóspili geta byrjað nú þegar.
Nemendur búnir undir öll próf bæði byrjendur og
A. T. C. M.
Ragnar H. Ragnar var fyrrum kennari við Pálsson
Academy og stundar nám hjá Eva Clare.
KENNSLUSTOFA
693 Banning Street
Phone 34 785
soooQcooocoQeoeccososoooQosoceoosooooocosooooeoososoooooosoooeoscoooooeoosoc
Business Training Pays—
especial/y
Success Training
More than 2700 employment calls for our graduates were
registered with our Placement Department during the
past twelve months and more than 700 in May, June
and July of this year.
FALL TERM NOW OPEN
DAY AND EVENING CLASSES
If you cannot enroll then you may start at any time.
Our system of individual instruction makes this possible.
WRITE, PHONE OR CALL
CORNER PORTAGE AVE. AND EDMONTON St.
WINNIPEG
MANITOBA