Heimskringla - 30.10.1929, Síða 5
WINNIPEG, 30. OKT., 1929
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSIÐA.
Frá Islandi.
Dr. Jón Helgason biskup hefir sam-
iö stutt aefiágrip Jóns Eirikssonar
konferensráös og hefir dansk-islenzka
félagig gefið hana út með öörum smá-
ritum sínum.
Reykjavík 2. okt.
Menntaskólinn
var settur kl. 1 í gær, og voru gest-
ir með fleira móti. Hinn nýi rekt-
or Pálmi Kannesson þakkaði fyrir-
rennara sínum Þorleifi H. Bjarnason
fyrir góða skólastjórn og samvinnu,
en áheyrendur stóðu upp í virðingar-
skyni við Þ. H. B. Nýr kennari
hafði verið ráðinn að skólanum,
Barði Guð.mundss®n sagíifræðingur,
sem nýlega lauk magisterprófi í
Kaupmannahafnarháskóla.—Vísir.
30 ára kennara-afmæli.
frú Margrétar Rasmus forstöðukonu
málleysingjaskóla ns
R’vík. 2. okt.
í mánaðarbyrjun núna á frú Mar-
grét Rasmus, forstöðukona Málleys-
ingjaskólans, 30 ára kennaraafmæli.
Það var í októberbyrjun 1899, að hún
réðist til skólans, sem þá starfaði á
Stóra-Hrauni í Arnessýslu. Þar
starfaði hún sem kennslukona, þar til
1908 að skólinn fluttist til Reykja-
vikur. Gerðist hún þá forstöðukona
skólans, og hefir gegnt því starfi
síðan.
Fæstum er kunnug starfsemi Mál-
leysingjaskólans, enda starfar sá skóli
með mjög ólíkum hætti því, sem
menn eiga að venjast. Er frú Mar-
grét kom að skólanum voru kennslu-
aðferðir ófullkomnar og aðbúð skólans
ill. Síðan hefir margt breytzt til
batnaðar og skólinn tekið miklum
framförum. Þær framfarir eru eng-
um meir að þakka en frú Margréti,
enda hefir hún lengst af verið sú, sem
bezt skyn ihefir borið á slíkt.
Tíðindamaður blaðsins heimsótti
frú Margréti i Málleysingjaskólann
í gær. Spurði hann meða lannars
hvernig kennslu væri hagað í skólan-
um.
—Öll kennsla mín er nú orðin inni-
falin í þvi, að kenna börnunum að
tala o gskilja málið. Erfiðleikinn
við þetta er ótrúlegur, meðal annars
af þvi, að þau heyra fæst neitt. Það
kostar mikla áreynslu að fá þau til
að gefa frá sér rétt hljóð, laga rödd-
ma og kenna þeim að mynda orð og
setningar, eins og skiljanlegt er, þar
sem eyrað hjálpar ekki til.
Frúin 'gierir nú boð fyrir unglings-
pilt, 14 ára að aldri. Hann er fædd
ur heyrnarlaus og hefir ekkert talað,
anum. Hann hefir hægt eftir það,
sem hún segir við hann og svarar
þeim spurninguní, sem hún leggur fyr-
ir hann. Tiðindamaður blaðsins
leggur líka fyrir hann spurningar,
og svarar hann þeim greiðlega, eftir
því sem hann hefir þekkingu til.
Hann hefir verið sex vetur i skólanum
og er með efnilegustu nemendum.
—Fæstir læra svona fljótt, bætir
frúin við. Hu’gmyndin um að tala
er börnunum að öllu leyti ókunn,
þegar þau koma i skólann. Þau
skilja ekki hvers vegna er heimtað
af þeim að læra þetta og áhugi fyrir
náminu kemur venjulega ekki fyr en
eftir 2 til 3 ár frá þeim yngri.
—H ve lengi hafið þér kennt tal i
skólanum'?
—Siðan haustið 1922. Fyr hafði
ég ekki tækifæri til að kynna mér
nýjustu kennsluaðferðir. Síðan hefi
ég kennt með þessari aðferð nær ein-
göngu, og hafa nokkrir nemendur
minir gengið undir fullnaðarpróf með
varamáli.
Frú Margrét hefir allan sinn
kennslutíma getið sér hið bezta orð,
sem natin og umhyggjusöm kennslu-
kona. Hún hefir alla tíð verið
börnum þeim, sem 'hjá 'henni hafa
lært, sem hin bezta móðir, jafnt eft-
ir að þau hafa lokið námi og meðan
þau voru i skólanum. Það er því full
ástæða til, að óska henni til hamingju
með langt og ötult starf i þágu þeirra
barna, sem rænd eru hæfileikanum
til að gera sig skiljanleg við aðra.
—Mbl.
Reykjavík 2. okt.
Háskólasetning fór fram i gær að
viðstöddum flestum kennurum skól-
ans og allmörgum stúdentum.
Einar Arnórsson, sem nú er rektor
magnificus, bauð menn velkomna.
Snérist ræða hans aðallega um utanfar
ir íslenzkra stúdenta og menntamanna
að fornu og nýju. Rakti gögn að
því, að allt frá hinni fyrstu kristni
fram til síðasta hefði rnargir klerklegir
höfðingjar farið utan til náms og þá
stundað það víða um lönd. En hin-
ir fyrstu, sem sögur fara af, stunduðu
nám i Þýzkalandij þeir feðgar Isleifur
og Gissur biskupar.
Eftir siðskifti fór nám í Kaupmanna
höfn fyrst að tiðkast, en þó einkum
eftir að íslendingar fengu garðstyrk,
i lok 16. aldar, síðan og allt fram
til 1918, er sambandslögin afnámu
garðstyrk, mátti svo kalla, að Danir
hefðu algerða einokun á hinni æðri
menntun Islendinga. Nú má oft sjá
íslenzka menntamenn lofsyngja Kaup-
mannahafnarháskóla sem andlégri
fóstru Islendinga og þakka honum
hver maður hefir orðið úr ýmsum
aldir. Ekki tók prófessor Einar
þátt í þessum lofsöng. Kvað námið
í Höfn að visu hafa orðið Islending-
um gaignlegt á ýmsa lund, en agnúar
þess hefði þó verið margir. Eink-
um nefndi hann tvennt til, að nám-
ið hefði aldrei verið sniðið sérstak-
lega eftir íslenzkum staðháttum eða
við Islendinga hæfi í neinu, og hina
andlegu einangrun, sem af því hlaust,
að þjóðinn sótti alla æðri menntun á
einn stað.
Er rætt var um stofnun háskólans
hér heima, kvað Einar marga hafa
spáð því, að hann yrði til að auka
einangrun menntamanna og myndi
verða til ills eins. Þessar hrakspár
þótti honum nú að engu orðnar. I
lögum, íslenzkum fræðum og guð-
fræði rækir skólinn starf sitt svo, að
kandídatar, er útskrifuðust frá hon-
um, væri upp og ofan færari til að
taka að sér embætti eða önnur störf
í sinum 'greinum hér á landi en áður
var, meðan menn lærðu erlendis..
Læknar myndu ekki standa ver að
vígi, er þeir hefði siglt nokkra hríð
til framhaldsnáms, eins og tíðkanlegt
er. ÍJr einangruninni er reynt að-
bæta með því að styrkja prófessora
og kandídata frá skólanum til dvalar
erlendis og er hún nú ekki framar
bundin við neitt sérstakt land.
Er Garðstyrkur var afnuminn
spáðu sumir, að nú mundi svo að
segja enginn stúdent fara til náms, og
einangrunin margfaldást frá því sem
áður var. Þetta þótti Einari hafa
afsannast við reynsluna. Rikissjóður
hefði nokkuð reynt að bæta úr missi
Garðstyrks, með þvi að styrkja all-
marga stúdenta til utanfara. Og
þetta hefði orðið til þess, að íslenzkir
stúdentar væri nú farnir að stunda
nám i ölluni helztu menningarlönd-
um. Hefði þeim vitanlega fækkað,
sem sækja til Danmerkur, og nú væri
svo komið að i vetur myndu fleiri
verða við nám i Þýzkalandi en Dan-
mörku. — Þótti Einari þetta næsta
gleðilegt, ekki fyrir þá sök, að Kaup-
mannahafnarháskóli væri ekki góður
háskóli, heldur sakir hins, að fjöl-
breyttari menningarstraumar bærist
til landsins, og vegna þess, hver nauð
syn þjóðinni er að eignast menn, sem
fullfærir sé í tungum menningarþjóð
anna.—Vísir.
Framfarir vísindanna
árið 2029.
Álit Birkenheads jarls
Vonir vísindanna hafa aldrei verið
eins miklar og máttugar og nú á
dögum og trú þeirra á mátt og meg-
in sjálfra sín aldrei eins örugg. Eða
svo var að minnsta kosti til skamms
tíma, að náttúruvísindunum áttu að
vera allir vegir færir. Þau áttu að
geta skapað nýtt líf á jörðunni. Vís-
indamenn siðustu tíma hafa leikið sér
að því að bregða upp ýmsum mynd-
um af vísindum framtíðarinnar og
áhrifum þeirra Qg hefir Lögrétta sagt
frá ýmsu þvilíku (til dæmis skoð-
unum Haldanes í bókinni Daedalus).
En þvi er ekki að leyna að margir
fræðimenn líta nú orðið enganveginn
vongóðum augum á framtíðinni í
ljósi vísindanna, ekki vegna þess að
möguleikar visindanna séu ekki undra-
verðir, heldur vegna hins, að lík-
urnar séu litlar fyrir því að mögu-
leikarnir verði aðeins hagnýttir til
góðs Góðir rnenn þykjast hafa alla
ástæðu til að ætla, að vísindin muni
ekki síður verða tekin i þjónustu voð-
ans og vitfirringarinnar, manndráp-
anna og menningarspjallanna. Bert-
rand Russel, (sem lesendum Löigréttu
er vel kunnur af ýmsum frásögnum
um hann), hefir skrifað um þessi efni
merkan bækling (Icarus) og ýms
ummæli í lika átt hefir Lögrétta rak-
ið áður. En allt um það þreytast
menn ekki á þvi að spreyta ímyndun-
arafl sitt á því að lýsa undrum þeirr-
ar framtíðar, sem vísindin geti skap-
að. Nýlega hefir einn af kunnustu
stjórnmálamönnum heimsins, Birken-
head jarl, lagt sinn skerf til þessa og
mun mörgum þykja fróðlegt að kynn-
ast áliti hans. 'Hann er ekki sjálf-
ur náttúrufræðingur, heldur lögfræð-
ingur, einn af merkustu lögfræðing-
um Bretaveldis, fyrrum dómsmála
ráðherra og Indlandsráðherrá, en
hann fylgdist vel með og hefir lifandi
áhuga á mörgum málum og fjörugt
ímyndunarafl. Hann er einn af ann-
áluðustu ræðumönnuni Breta, óvæg-
inn og mesti “skammakjaftur” eins
og hér er sagt.
Eftir eina öld, árið 2029, hafa vís-
indin gerbreytt öllu lífi mannanna,
segir jarlinn. Einhver mikilvægasta
breytingin verður í því fólgin, að
menn hafa lært nýja og betri orkuhag-
nýtingu. Kol og olía verða horfin
úr sögunni. Kolanámur verða forn-
gripir úr furðulegri þrældómsmenn-
ingu. Nú er ekki hægt að vinna
nema eitt hestafl á einum tíma úr einu
kolapundi. En í atómunum í einu
vatnspundi er bundin orka, sem sam-
svarar tiu miljónum hestaflsstunda.
Þessa orku munu menn læra að hag-
nýta sér á næstu öldinni. Menn geta
þá komið 600 hestafla vél fyrir í á-
haldi á stærð við lindarpenna. Or
álíka niiklu vatnsmagni og stórt haf-
skip ryður frá sér á siglingu, má
vinna orku, sem gæti haldið hita-
beltisloftslagi á norðurpólnum i þús-
und ár, eða slitið upp Vestmanna-
eyjar og dregið þær lanigt suður í
höf. Svo er atomorkan afskapleg.
Efnafræðingar munu framleiða öll
matvæli og gera þau mjög ódýr. Nú
er matvælaframleiðsla mannsins dýr
(Frh. á 8. síðu).
McLAUGHLIN
M0T0R CAR CO.
LIMITED
Direct Factory Branch
USED CAR
DEPARTMENT
VeljiS yður endurbygSan, not.
aSan bíl fyrir fjölskylduna.
Bændur og borgarmenn
kaupa núorSiS notaSa bíla til
heimasnúninga fyrir fjöl-
skylduna. ÞaS er spamaSur
í því og stór þægindi fyrir kon
urnar.
HJER ER REGLULEGT
TÆKIFÆRI AÐ SPARA
OG
peningar sparaSir, eru pening
ar sem nota má til aS njóta
gagnsins af kaupunum.
TaliS um þaS viS fjölskylduna
og hún mun segja ySur, aS ef
kaupin eru gerS viS McLaugh-
lin sé hún ánægS, og þér fáiS
sama sem nýja bíla á afar
mikilli niSurfærzlu.
Vér höfum miklar byrgSir af
betri bílategundum, endur-
smíSuSum sem vér seljum
viS afar lágu verSi frá $50.00
til $1500.00.
ÞaS borgar sig fyrir ySur aS
heimsækja notaSra - b í I a
stöSvar vorar og skoSa hvaS
vér höfum:
1926 McLaughlin Buick .... $895.
Aðeins nafnið “Buick” vekur upp
í huganum mynd þess sem er af-
bragð * og einstæðrar tegundar.
Þessir sérstöku bílar eru án alls
vafa einhverjir hinir beztu, hvað
sem verði liður.
Það er svo létt að stjórna því, að
óað má sjaldgæft heita með notaða
bíla og sem honum fylgir sýnir hve
vel hefir verið farið með hann.
1927 McLaughlin-Buick
Sport Roadster ...... $750
Þetta er yndislega fallegur bíll
Þetta er yndislega þægilegur bíll,
fóðraður ósviknu leðri, fögurlituð
Duco áferð, reglulega snydtilega
búinn í bezta standi; þig fýsir að
kaupa hann ef þú sérð hann.
1926 Paige Sedan ......... $875
Paige 6 cylinder gerðin er í frem-
sta flokki þeirra bíla, er menn eru
ánægðastir með. R eynslan ein
getur kennt manni að meta beztu
eiginleika hans. Hann er öðru-
visu prúðbúinn, en menn eiga að
venjast, og rennur svo létt »g
liðugt, ekki verður frekar ókosið
hvernig sem kringumstæður eru.
TAKIÐ EFTIR STÖÐUNUM':
Utistöðvar fyrir notaða bíla;
203 Main St.
Sýningarskáli fyrir notaða bíla:
216 Fort St.
Útistöðvar fyrir notaða bíla:
Maryland og Portage.
McLaughlin Motor
Car Company
Limited
BEINT FRA VERKSMIÐJUNNI
I BUÐINA
>’r en hann byrjaði á að læra í skól- beztu mönnum vorum hinar síðustu
Undirstaðan fyrir ylirburdum
Holt*Rcnfrcw loðkápanna er
“staÖfest haldgæði.”
Verðið þýðir ekkert ef efnisgæðin eru
engin. — Snið og stíll er nauðsynlegur,
en svo er stíll ekkert ef engin er endingin
og slit-úthaldið ekkert. Hinar fullkom-
nustu loðkápur eru þær sem sameina,
Móð, Efni, og Verðgæði------með öðrum
orðum — Holt Renfrew loðkápur.
Lítið inn hjá oss og skoðið byrgðir vorar,
þér undrist verðið sem þær eru seldar fyrir
Látið gjöra við Loðfatnað yðar strax
til þess að tryggja yður að þér fáið
hann áður en kuldarnir byrja. Holt
Renfrew, skraddarar tryggja yður
verkið svo þér verðið ánægðir með
það. Lóðkápur fóðraðar að nýju
fyrir $15.00 og þar yfir.
Uoli J^nfrew &Co.
Limitec)
Canadas Largest Furriers
Stórar Voðfeldar
Vetrar Yfirhafnir
Tegund sú sem veitir skjól og þægindi,
Klæðir vel og eru hinar réttu Fit Rite
Tailored Yfirhafnir.
Verð $29.50 upp í $100.00
Stiles & Humphries
Winnipeg’s Smart Men’s Wear Shop
261 Portage Avenue — Next to Dingwall’s
Ti!...,
GAMLA LANDSINS
um
J0LIN
Svefnvagnar beint frá aðalstöðvum
vestra, í sambandi við
Sérstakar Lestir að Skipshlið
Fer frá
Winnipeg 10.00 f. h.
NOV. 24
DEC. 3
DEC. 9
DEC. 11
DEC. 15
I sambandi við Siglir
S.S. MINNEDOSA NOV. 26
DUCHESS OF ATHOLL DEC. 6
S. S. MONTCALM DEC. 12
DUCHESS OF RICHMOND DEC. 14
DUCHESS OF YORK DEC. 18
Odýr Fargjöld Til Sjávar
DESEMBER
Sjáið yður nú þegar fyrir úrvals farrými hjá
City Ticket Office, Cor. Portage and Main, Phone 843211—12
Depot Ticket Office, Phone 843216—17.
A. Calder and Co., 663 Main Street, Phone 26313.
H. D’Eschambault, 133 Masson St., St. Boniface, Phone 201481.
Canadian PaciSic
HJÁLFIÐ TIL AÐ
BÆTA OR SKORTI
0G NEYÐ
Tuttugu og fimm hjálparstofnanir hafa verið
að vinna mikið og þarft mannúðarverk á
meðal fátæklinga í bænum. í>au bæta úr
neyð og skorti auðnuleysingja, án tillits til
þjóðernis eða skoðana.
Þessar hjálparstofnanir hafa mestan sinn
stýrk frá samskotasjóði Winnipeg-bæjar,
sjóði sem safnað er til um allan Winnipeg
bæ og í grendinni. Styrkið þá sem ekki
megna að bjarga sjálfum sér. Gefið
rausnarlega og með glöðu geði, í sjóðinn
Winnipeg
Community
Fund
Administered by
The Federated Budget Board, Incorporated