Heimskringla - 06.11.1929, Page 1
Agætustu nýtízku litunar og fatahrein*-
unarstofa í Kanada. Verk unniB 4 1 degi.
Wlnotpeg —x— Man.
Dept. M.
XLIV. ARGANGUR
-t' '• '
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 6. NÓV., 1929
NÚMER 6
HELZTU FRÉTTIR
KANADA
^—■ ----------------------Ý
Sú gleöitregn barst hingað til Win-
nipeg á mánudagsmorgun, að Mc-
Alpine ofursti og þeir félagar átta
sanian, er týndir hafa verið í tvo
mánuði, séu nú fundnir heilir á húfi
allir saman. Höfðu þeir villst um
150 niílur af flugieið sinni frá Bever-
ley Lake, þar er síðast spurðist til
l>eirra, til Bathurst Inlet, og orðið
að lenda við Norður-Ishafsströnd-
ina suður af Victoria Island. Rákust
þrír Eskimóar á þá þar, og fóru með
þa norður til Victoria Island. er haf-
þök voru komin, norður til útibús, er
Hudson’s Bay félagið hefir þar við
Cambridge flóann.
“National Research Coúncil” er nú
önnum kafið við að finna einhver ráð
til þess að setja undir gaslekann mikla
í Turner Valley, þar sem 250 miljön
teningsfet af “methane”-gasi brennur
a hverjum sólarhring, og hefir lengi
gert, án þess að nokkru tauti væri
hægt við að koma. En þetta me-
thane-gas er það, sem eftir verður,
þegar búið er að vinna gasolíuna úr
Turner Valley gaslindunum. Vill
“N. R, C.” reyna að hagnýta á ein-
Evern hátt þau feikna auðæfi, er
þarna fara stöðvunariaust til ónýtis,
því hitamagn þessara 250 miljón ten-
ingsfeta af' gasi, er brenna þarna á
hverjum sólarhring samsvarar hita-
magni 10,000 tonna af harðkolum.
Segir dr. J. W. Shipleý, aðstoðar-
prófessor i efnafræði við Manitoba-
háskóla, sem er meðlimur “N. R. C.,”
að þetta sé svo langsamlegasta hin
mesta sóun náttúrufríðinda, er
eigi sér stað i Kanada, og fari þarna
jafn mikig gas til ónýtis, og fari á
hálfu hinum víðlendu olíulindasvæðum
í allri Kaliforníu. — Vill ráðið annað
Iivort reyna að nýta hitamagn gass-
ins, eða þá nota það til þess að fram
leiða áburð sýrstaklega “ammonia
sulphate.” —Eldsúlan er myndast við
gasbruna þenna í Turner dalnum,
sézt úr 50 mílna fjarlægð að nætur-
lagi,—
Atvinnunefnd Winnipegborgar kom
saman á fimmtudaginn, til þess að
reyna að koma sem mest i veg fyrir
atvinnuneyð í vetur. Aður hefir
bærinn ekkert létt undir með ein-
hleypum mönnum, atvinnulausum, á
veturna. Nú var ákveðið að koma
upp skrásetningarstofnun, þar sem at-
vinnuleitendur geta fengið nöfn stn
°g vinnuhæfileika skrásetta. Enn-
fremur kosin nefnd: McLean borgar-
stjóri, séra William McCloy, Simp-
kin og Flye, öldungaráðsmenn, og
F- B. Russell, ritstjóri O. B. U., til
þess að leita eftir því hjá D. G. Mc-
Kenzie, námaráðherra, hvern þátt
fylkið myndi vilja taka í því, að
veyna að koma í veg fyrir atvinnu-
leysi í vetur. — Bent var á, að vinna
myndi fást við að ryðja fyrir orku-
leiðslu City Hydro frá Þrælafossaver
inU og gæti bærinn að því leyti létt
undir með atvinnuleysingjum. — Enn-
fremur var samþykkt að fara þess
a leit við alla yfirverkstjóra bæjar-
ins, að láta ekki starfsmenn sína
vinna yfirvinnu, heldur láta atvinnu-
leysingja sitja fyrir henni, nær sem
vinna þyrfti aukatíma.
Ymsar fréttir verða að bíða næsta
blaðs, sökum þrengsla. Þar á meðal
fréttabréf frá Islandi, frá sendiherra
Bandaríkjanna á Finnlandi, dr. Pear-
son, er Heimskringlu hefir góðfús-
lega verið léð til birtingar.
1-----—-----------------------*
BANDARiKIN
*----------------------------—*
Heimskringla gat þess um daginn
að Albert B. Fall, fyrverandi utan-
ríkisráðherra, hefði verið stefnt fyrir
dómstólana, sakaður um að hafa þeg-
ið mútur ($100,000) frá E. L. Do-
lieny, olíuhákarlinum nafnkunna, fyr-
ir því nær átta árum síðan, í sambandi
við Elk Hills olíuhneykslið mikla,
þar sem fram fór einn aðalþáttur
allrar þeirrar hneykslissögu.
Nú hefir kviðdómur fundið Fall
sekan. En um leið lagði kviðdóm-
urinn til, að honum yrði sýnd öll
möguleg linkind því hann er mað-
ur gamall og farinn heilsu. Hefir
hann hvílt í sjúkrastól við réttarhöld-
in með lækni og hjúkrunarkonu sér
við hlið, og auk þess hefir Doheny
fornvinur hans oftast verið hjá hon-
um til þess að veita honum siðferðis
legan stuðning. Getur oltið á tölu-
verðu fyrir Doheny um þessi úrslit,
því ekki er ósennilegt, að hann fái
nú einnig á sig sektardóm, þar eð hon
um hefir líka verið stefnt fyrir að
hafa boðið og borgað mútur. Fall
var dæmdur í eins árs fangelsi og í
$100,000 sékt, jafngildi mútunnar, er
hann þá af Dohenv.
Kosnir fulltrúar Banda-
ríkjanna til Islands.
Svohljóðandi símskeyti barst
Heimskringlu í gærdag frá Guð-
mundi dómara Grímssyni í
Rugby, N. D.:
Norbeck Burtness O P B
Jacobson of Minnesota and
Sveinbjorn Johnson appointed
Stop Fifth probably from
East
Þýffing:
Norbeck, Burtness, O. P. B. Jac-
obson frá Minnesota og Sveinbjörn
Johnson skipaðir. Fimmti sennilega
að austan.
¥ ¥ ¥
Blaðið “Minneapolis Tribune,” j
flutti þá fregn 1. nóvember, að Hoo-1
ver forseti hefði skipað Peter Nor- |
beck, öldungaráðsmann frá Suður- i
Dakota, formann fulltrúa-sendinefnd-
i
ar Bandaríkj-anna á þúsund ára af- |
mælishátíð Alþingis að sumri og tii j
þess að færa íslandi að gjöf styttu:
af Leifi Eiríkssyni. — Að Burtness
þingmaður og Sveinbjörn Johnson j
prófessor myndu verða skipaðir í j
nefndina, höfum vér lengi talið nokk |
urnvegin víst. Mr. Jacobson frá
Minneapolis könnumst vér ekki við.
Ekki höfum vér heldur hugmynd um
hver fimmti maðurinn verður, sá er
sennilega verður valinn frá austur-
ríkjunum, að því er símskeytið lierm-
ir.
Norbeck öldungaráðsmaður er vel
kunnur merkismaður syðra. Er hann
einn af hinum svonefndu óháðu öld-
ungaráðsmönnum i Washington.D.C.
Rétt er blaðið var að fara í prentun
barst nýtt símskeyti, að fimmti maður-
inn væri Mr. Friðrik Fljózdal, for-
seti alþjóðasambands járnbrautar-
þjóna, í Detroit.
Brazilía.
______
Eitthvert mesta framtíðarland ver-
aldarinnar er vafalaust Brazilía.
Landið er gríðarstórt; mun stærra en
Bandaríkin (að undanskildu AlaskaJ
eða 3,298,870 fermílur, og íbúatala
(árið 1926) 38,872,972.
Þarlend nefnd, skipuð sérfróðum
mönnum um landbúnað, iðnað og við-
skifti, hefir nýlega sent frá sér fróð-
lega sþýrslu um landshagi í Brazilíu
og framtiðarhorfur þar. Telur nefnd-
Séra Hafsteinn Péturs-
son látinn.
Hr. A. C. Johnson, varakon-
súl, barst nýlega símskeyti, er
tilkynnti að látist hefði í Kaup-
mannahöfn 31. okt., séra Haf-
steinn Pétursson. Jarðarförin
m
fór fram á mánudaginn.
in að eftir sextíu ár. eða 1990 muni
fólksfjöldi í Brazilíu nema 240,000,-
000 manna. Er þetta bygt á mann-
fjjölgun þeirri er varð á síðasta mann-
talstimabili (10 árum). Ef mann-
fjöldi heldur áfram að aukast í sama
hlutfalli, — og til þess eru miklar
líkur þar eð Brazilía mun vera með
allra frjósömustu löndum á jörðinm
— þá' ætti að vera 42.000.000 manns
þar árið 1930; 56,000.000 árið 1940;
76.000.000 árið 1950; 120.000,000 ár-
íð 1960; og 240.000.000 árið 1990.
Brazilía er nú að fólksfjölda tíunda
ríkið í veröldinni, og annað í Amer-
íkunum báðum. Frá 1900 til 1920
jókst mannfjöldinn um 70 prosent.
I Brazilíu eru 220 dagblöð gefin út,
og er hún að því levti hið sjötta í
röðinni af öllum löndum i heimi.
Að undantekinni Gullströndinni í
Afríku framleiðir Brazilía meira
kókó en nokkurt annað land.Og aðeins
Indland, Argentína, Bandar. og Rúss-
land hafa fleiri nautgripi. Sömuleið
is er hún fjórða mesta svína- og hesta
framleiðsluland i veröldinni.
I rikinu Sao Paulo einu (Brazilía
samanstendur af 20 ríkjum, er heit."
einu nafni Bandaríki BraziliuJ eru
árlega -framleidd 600,000 pund af
silkipúpum, er gerir hana að einu
mestu silkiframleiðslulandi heimsins,
og það ríki flutti út vörur fyrir $180,-
983.120 árið 1927, samanborið við
$32.897.640 árið 1915.
Árin 1926 og 1927 flutti Brazilía
út demanta fyrir $1,148,873. Sykur-
framleiðsluland er hún fjórða mest
í heimi. Nernur framleiðslan nú um
850,000 tonn af sykureyr á ári og fer
sívaxandi. Brazilía framleiddi eitt
sinn mest togieður (“rubbe.r”) allra
landa í heimi. Er þar lieimkynni
Hevea trésins (Hevea Brasiliensis) er
gefur frá sér mjólkursafa þaitn, er
því nær allt togleður er unnið úr.
En trén hafa að þessu aðeins verið
töppuð þar sem þau standa í frum-
skáginum. Og síðan farið var að
rækta Heveatréð á Malayaskaga, og
Austur Indlandseyjum fyrir 50 árum
siðan, en þar er loftslag mjög svipað
því sem er í Brazilíu, hefir fram-
leiðslan þar aukist svo stórkostlega,
sérstaklega á Málaya, að togieðurs-
framleiöslu Brazilíu hefir gætt mjög
lítið á heimsmarkaðinum, síðas^a ald-
arfjórðung. En nú er Brazilía að
koma skipulagi á Hevearæktina, og
má þá búast við að hún nái aftur
öndvegissætinu áður en langt líður,
því hvergi i veröldinni eru önnur eins
flæmi. sem hentugust fyrir þá grein
landbúnaðar.
En frægust er Brazilía fyrir kaffi-
rækt. Ríkin fjögur, Sao Paulo, Rio
de Janeiro, Esperite Santo og Minas
Geraes framleiða árlega fjóra finuntu
hluta allrar kaffiuppskeru í heimin-
um. Árið 1927 voru fluttir út 15,-
115,000 sekkir og seldir fyrir $304,-
555,397. Meira en helmingurinn af
þessu kaffiflóði rann til Bandaríkj-
anna.
Dorcasfélag fyrsta lúterska safn-
aðar hefir ákveðið að halda “nýjunga-
bazaar” i sunnudagsskóla lútersku
kirkjunnar á Victor stræti, föstudag-
inn 6. desetnber næstkomandi. Verða
þar á boðstólum nijög fallegar jó1a-
gjafir, til dæmis klæddar brúður, til-
valdar jólagjafir fyrir börn, og ým-
islegt annað fvrir eldri og yngri, og
allt á mjög sanngjörnu verði.
Fáránlegur bæklingur
um Island
Bæklingur á enskri tungu, er ný út-
kominn um Island og Alþingishátíð-
ina að ári. Rit þetta heitir: “1930
Millennial Celebration of the Icelandic
Parliament.” Neðst á vinstri hand-
arhorni, á framsíðu stendur: “Mon-
treal to Reykjavík via Cunard.” Mun
þvi mega ætla að rit þetta sé gefið
út af Cunard félaginu og svonefndum
“Sjálfboðum,” því nöfn þeirra eru
öftust á síðustu síðu og reka lestina.
Rit þetta er boðsbréf, Cunardfél-
agsins og “iSjálfboða,” til væntan-
legra hátíðargesta, íslenzkra og hér-
lendra, er i hyggju hafa að ferðast
til íslands að sumri, og svo á það að
fræða þá um Island, er ekkert þekkja
þar til.
Bæklingurinn byrjar á að segja frá
því að “6, júní sigli hið nvja og
fríða Cunard skip Andania frá Mon-
treal í Canada beina leið til Reykja-
víkur á íslandi.” Þetta sé aukasigl-
ing er ráðstafað hafi verið til þess að
flytja farþega á þúsund ára hátið
hins íslenzka alþingis (“special voy-
age arranged to carry passengers to
the Míllennial Celebration of the Ice-
landic Parliament”). Ekki er þess
þarna getið, hverjir hafi ráðstafað
þessu og mætti eins vel álíta að Há-
tíðanefndin á Islandi hefði gert það —
eftir orðalaginu að dænta. En sú
skýring kernur seinna, þó ekki fvr en
síðast, og er á þessa leið: “Cunard
l'tnan liefir verið valin sem hin em-
’.'iettislega flutningalina fyrir islenzkn
þúsund ára hátiðina af Sjálfboðancfnd
Amerískra og Canadiskra Islendinga.”
(“The Cunard Line has been selected
as the Official Carrier for the Ice-
landic Millennial Celebration by the
Volunteer Committee of American(')
and Canadian Icelanders”). Hvaðan
hin undirritaða sjálfboðanefnd, Am-
erískra! og Canadiskra Islendinga
hefir þegið embœttislegt wnboff til
þess að velja nokkurt línufélag sem
cnibœttislegt fUltningafélag fyrir is-
Icnaku þúsiind ára hátiffina er ekki
sagt, enda svo framt sem mönnum er
kunnugt, er um ekkert slíkt umboð að
ræða. En eftir orðalaginu að dæma
er helzt að álykta að nefndin sem fyrir
hátíðahaldinu stendur á Islandi, eða
þá stjórn íslands, hafi falið þessum
“sjálfboðum” að annast þessa útvaln-
ingu. En nú vita allir að svo er
ekki. Hvaðan er þá þetta umboð
“to select official carrier for the Ice-
landic Miliennial Ceiebration.” Ekk;
hafa þeir umboð frá nokkuru félagi,
því engir hafa kosið þá til þessa verks,
enda hefði þá sá félagsskapur átt að
vera nefndur. Auglýsing þessi er
því hvorki meira né minna en blekk-
ing, í frammi höfð til þess að varpa
einhverri embættislegri tign yfir ferða
lagið, í augum þeirra er ekkert þekkja
til.
Þá er frá því skýrt að Andania,
“which has been chosen as the Cunard
Ambassador to the Millennial Cele-
bration,” (“er kosin hefir verið sem
Cunard Sendiherrann til þúsund ára
hátíðarinnar”), sigli ekki alveg tóm,
“Miss Thorstina Jackson, Cunard
Line Representative and wett known
author and lecturer on Iceland, will
sail in her and the passenger list will
include Vilhjálmur Stefánsson, re-
nowned Arctic Explorer, Sir William
and Lady Craigie, Professor Caw-
ley of Harvard and many others, ’
(“Miss Thorstina Jackson, Cunard
fulltrúi, vel þekktur rithöfundur og
fyrirlesari um Island siglir með
henni, og á farþegaskránni verða Vil-
hjálmur Stefánsson frægur Norður-
heimskautakönnuður, Sir William og
Lady Craigie, Professor Cawley frá
Harvard og margir fleiri”).
(Framh. á 4. siðu).
JONAS J. HÚNFORD
Fæddur 1. nóvember 1847—Dáinn 21. júní 1929
Braut er gengin 511 til enda
eilíf fengin hvíld og ró.
Þannig allar öldur lenda
inn í höfn af tímans sj'ó.
Endurminning ástrík lifir
atvikanna sæld og neyð,
Meðan valdið öllu yfir
okkur bendir hærri leið.
“Jónas Húnford” látinn liggur.
Landnemanum hljómar þökk.
Merkið fallið, drengur dyggur,
drúpir bygðin hjarta klökk.
Þannig óðum felur foldin
Frumherjanna lúin bein;
Arfur niðjum giidur goldin
gyllir frægan Bautastein.
Gef mér íslenzkt afl í þrautum
okkar dýran feðra sjóð.
Það er sigursól á brautum
segulstál við hjarn og glóð.
Þetta vinur var, þitt merki
veginn allan fram að gröf,
dyggur laukstu’ lífs þíns verki
liðinn yfir tímans höf.
Börn þín kær af bljúgu hjarta
beygja kné að þinni gröf,
• Þakka ástúð unaðs bjarta
æfidagsins hæstu gjöf.
Minning þín í ljósi lifir
letruð helgum geislastaf,
húm og tíma hafin yfir,
Honum lof, er oss þig gaf.
—M. Markússon.
Fyrir hönd barna og vina hins látna.
Fjær og nær
Séra Þorgeir Jónsson messar aff
Gimli nœstkomandi sunnudag 10. þ. m.
kl. 3 e. m,
Næstkomandi sunnudag, 10. nóv.
mcssar séra Friffrik A. Friðriksson
aff Wynyard, kl. 11 f. h. — Spurn-
ingar: Wynyard, laugardag, kl. 11 f.
/).; Mosart, laugardag, kl. 2 e. h, (aff
J. Arngrímssonar); “Mitti Vatna”
sunnudag, kl. 2 e. h., og jólaœfingar
kl. 3, (að A. GiUis’).
Sérstaka “Thanksgiving” og “Ar-
mistice Day” guðsþjónustu heldur
“Unitarian Church of Winnipeg” á
sunnudaginn 10. nóvember, kl. 11 f.
h í Sambandskirkjunni á horni Ban-
ning og Sargent stræta. Guðsþjón-
ustan fer fram á ensku að vanda, og
messar cand. theol. Philip 'M. Péturs-
son. Mr. Bartley Brown, er áður
söng í St. Stephens kirkju á Broad-
way, syngur viíl messuna. Eru allir
hjartanlega velkomnir.
Séra Jóhann Bjarnason flytur messu
í efri sal Goodtemplarahússins á
Sargent á sunnudaginn kentur, 10.
þ. m., kl. 3 síðdegis. Eru menn
beðnir að taka með sér sálmabækur.
Alrtr eru velkomnir.
Sú sorgarfregn barst nýlega ætt-
ingjum og vinum, að látist hefði á
berklahælinu í Dunseith, N. D., Mrs.
Elvira Reinholt-McGavin, systur-
dóttir Guðmundar Grímson dómara.
Hafði hún legið á sjúkrahælinu t
allt sumar. Hún var búsett í Ford-
ville, N. D. Maður hennar, af
skozkum ættum, fórst af slysi fyrir
tveimur árum siðan. Tveir ungir
synir þeirra hjóna eru á lífi. Hin
framliðna var dóttir Friðriks og
Steinunnar Reinholt, er búsett eru í
Grand Forks. — Heimskrin^la vott-
ar aðstandendum dýpstu hluttekningu
sína.—
Kvenfélag Sambandssafnaðar held-
ur haustbazaar sinn seinni hluta þessa
mánaðar. Verður það nánar aug-
lýst síðar, og eru lesendttr beðnir að
hafa það í huga.
Góð Skemtun
Tombóla, Whist Drive og Dans
verður í Riverton-Hall mánudaginn
11. nóvember n. k. . .Ágœtir “þrísar”,
mjög góðir drœttir, góð músík. Veit-
ingar seldar. Skemtun byrjar kl. 9
siðdegis.
Jóns Sigurðssonar félagið heldur
fund næst að heimili Mrs. Thorpe,
Suite 8, Alhamíira Apts., miðviku-
daginn 13. nóv., kl. 8.30 síðdegis.