Heimskringla - 20.11.1929, Blaðsíða 5
WINNIPEG, 20. NÓV., 1929
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSIÐA.
PILLS
v ' ' .IHl"'*
'■ ..........*
0,.„r. r
rWlh : - _
w
Bakverkir
eru einkenni nýrnasjúkdóms. GIN
PILLS lækna þá íljótt, vegna þess
a8 þær verka beint, en þó mildilega, á
nýrun — og græöandi og styrkjandi
50c askjan hjá öllum lyfsölum.
132
HræSist ei að dreyrinn æða drýpur.
Dauðinn sjálfur lífsins herra krýpur.
Komi allt sem koma vill á jörð”
o. s. frv.
Þessi lýsing mun verða sigild í ís-
lenzkum bókmenntum eigi síður en
kvæði Matthíasar um þá Hallgrim
Pétursson og Guðbrand Hólabiskup.
Þó er kvæði hans um Sigurð skáld
á Öndverðanesi ef til viil ennþá
snjallara. Um Sigurð segir í þjóð-
sögum að hann væri “hagmæltur vel
°g þótti vera kraftaskáld” og á gadda
vetri miklum orti hann lagis frá
Öndverðanesi. Lýsing Jóns er á
þessa leið:
Ströndin lá í dauða dóma.—
Djarfur hóf hann sína raust.
Sungið fram ' sigurhljóma
sérhvert orð frá hjarta braust.
Aflið það sem eldinn kyndir,
eru fólksins hryggðarmyndir.
Kynslóðanna svik og syndir
sveima um hjarnið vakalaust.
Bar hann fram á bænarhöndum
bjargarvana lýð og hjörð,
sem á brints og storma ströndum
staðist fékk ei kjörin hörð.
Eldlegt mál síns anda og ljóða
út hann kvað í geiminn hljóða,
heyra skyldi herrann þjóða
hrópin þau af dauðans jörð.
Síðan lýsir skáldið hlákunni með
miklum tilþrifum:
Austrið var sem eldingum lostið,
æst við trylltan stórviðra-hreim.
Frostið hafði í himninum brostið,
hlákan svall um foldir og geim.
Hátt í lofti hreggbólstrar óku.
Haukar stormsins ferðina jöku,
vörpulegir vængleiði tóku
vestur kaldan öræfaheim.
Hafið snýst í hamstola æði
—hranna rísa blá-gljúfruð fjöll—
Fjötur klakans brýtur í bræði.
Byltast jakar um holboðaföll.
Ægisdrif unt útnesjabríkur
eins og mjöll í sólskini fýkur.
Sunnan djúp og sogandi víkur
sundruð flýja vetrarins tröll.
Aldrei fyrir íslenzkar strendur
ægilegra herflota bar.
Silfurkjölur sóldrifi brenndur
sundur bárumakkana skar.
Hillir undir hásiglu falda.
Hleypur gjálp á súðina kalda.
Jakadrekar Hraðbyri halda.
hópinn vestur rjúkandi mar.
Engir nema snillingar draga upp
slíka mynd og jafn þróttmikla að
orðfæri og samanrekna að líking-
um. Kvæðið HrciSur hcimski er
einnig sígilt listaverk og er ntönnum
það kunnugt hér af Tímariti Þjóð-
ræknisfélagsins. Er skáldið þar efa-
laust að yrkja sína eigin sögu, um
það hvernig hann
“hálfleika hugar
hóf þar leik um virðing og tap”
fyAr kaldrifjaðri hirð almennings-
NEALS STORES
‘WHERE ECONOMY RULES”
BLUE RIBBON TE,
1 pd. pakki ................
PALM OLIVE SOAP,
3 Bars .......................
VICTORY SELECTED QUEEN OLIVES,
Large 20 oz. Jar ................
MATCHES,
Large Box 400's, 3 for........
BLUE RIBBON BAKING POWDER
1 pd. baukur ...............
Green Mountain Fancy Canada No. 1.
POTATOES, 90 Ib. Sack . Jg
Your last opportunity at this price
57c
9c
JOHNSON’S FLOOR WAX,
1 Ib. Tin ..........
LIBBY’S PORK & BEANS,
Medium Tin .....
733 Wellington (við Beverley) 717 Sargent Ave.
759 Notre Dame Ave. 666 Sargent (horni Agnes St.)
Dr. F. E.
Warríner
leyfir sér að þakka íslend-
ingum fyrir ágætan stuðn-
ing, sem þeir veittu honum
í síðustu kosningum, og
treystir því að vinir sínir af því þjóðbroti, geri nú það sama
í yfirstandandi kosningum.
Kjósið hann til SkólaráSsmanns í 2. kjördeild
Greiðið WARRINER atkvæði No. 1
álitsins. Og slík hin sama er einnig
margra annara skálda. Iþróttin er
fyrst eins og frosin í dá og orðin
konja helustorkin og Ijóðvana eins
og frostbrak í frerum, en smá þiðna
af hita tregans, sem brennur undir-
niðri, unz þau fossa fram eins og
elfur í leysingu og streyma loks eins
og ljúfróma lindir undir gróandi
hlyn. — Skáldið er búið að finna
sjálft sig, “kveða sjálfan sig stór-
an.”
Það væri of langt mál, að ætla að
fara hér að tina öll gullkornin úr
kvæðum Jóns Magnússonar. Eg
hefi aðeins tekið þetta sem dæmi.
En mörg önnur mætti einnig nefna.
til dæmis ferðakvæðin: Fylgdin frá
Vors og Rínarströnd, sem hunang að
orðavali:
Æfintýra orpin ljóma,
iðumjúk og draumavær,
sefur Rín á sumaraftni,
sögurik um aldir fjær. o. s. frv.
Einnig má nefna: “Heilög jörð,”
“Áramót,” “Gestir” og kvæðin til
Einars Benediktssonar og dr. Helga
Péturs. Kvæðið "Möðrudalur” er
snilldarfagurt og minnir á Jónas
Hallgrímsson. Höf. leggur út af
máltækinu: “Stuttir eru morgnar í
Möðrudal,” og tekur náttúrufegurð-
ina til vitnis, t. d.:
Yfir fríða
fjalla þyrping
horfir Herðubreið,
hamrabeltuð
himinljómuð
sindruð sólar mistrum.
Dreymdi hana daga
■ dýrðar ríka,
fyr en fólk vissi.
Ófu morgnar
meginbjartir
gull í grænum hliðum.
“Dett'ifoss” er og mjög þróttmikið
kvæði. Enginn smámenni hafa ort
um hann áður, þar sem eru þeir séra
Matthias, Einar Benediktsson og
Kristján Jónsson, og hafa allir gert
það ágætlega, en kvæði J^ns stenzt
þar allan samjöfnuð og er hvergi
bergmál af hinum:
Hátt þér lyftu himinbörni andi!
Hrygð og myrkur vikja burt úr landi.
Um þig loga heilög himinteikn.
Preystu ei að þeyta út í hafið
þelans hrönn, sem fjöllin hefir grafið.
Brjóttu niður gaddsins grimd og
feikn.
Yfir þínu starfi vorín vaka,
vorin þau, sem bræða hjartans
klaka.
Minna ber á ástarkvæðum í ljóð-
mælum Jóns, en titt er að sjá í bók-
um ungra skálda, og sýnir það glöggt
hversu hann kann að stilla tilfinninga-
riki sinu í hóf þar sem hann vill og
hirðir ekki um að busla á neinu
grunnavaði í þeim sökum. En þó
eru þau til, ramaukin að efni og
formi, og hygg ég næstum að flest-
um muni sjást yfir þau fyrir það
hversu torráðin þau eru. Flest eru
þau kveðin i þulu- eða þjóðsagna
stil. Astir karla og kvenna er þjóð-
saga göml og ný, og glóð hamingju
eða harma liggur oft falin undir
fölskva atvikanna, þótt ekki sýnist
þau stórfeld. 1 “Bláskógum,” er
hið einkennilega íagra kvæði: “Töfra-
dalur” og þessi óglevmanlega vísa:
Hnigur sól að ránarrönd;
renna á jökla hvíta
aftangullin geislabönd.
—Gfátin er fold að líta.
Sérhvað i heimi, lýður og lönd
lögmáli guðs skal hlita.
Við skulum kveðjast heitri hönd
og hjörtum súndur slíta.
1 “Hjörðum” er gripið á sömu
efnum í “Sátum við hjá sænum,”
“Sextán komu svanir,” og “Heitur er
sandurinn,” sem er magnað kvæði,
þótt það virðist vera einfalt við
fyrstu sýn. Hver einasta lína er
þaulhugsað líkingamál, seni liklega
enginn skilur til fulls nema höfund-
urinn sjálfur:
Heitur er sandurinn
hlaðhamri undir.
Oft eru sárir
ástvina fundir—
Huldumær fögur
í Hlaðhamri bjó.
Hamarinn opnast
við hálffailinn sjó.—o. s. frv.
Enn eru ótalin mörg kvæði sem ég
1 vildi geta um, en einhversstaðar verð
ur að nema staðar og leyfa ljóðelsk- ,
um lesendum að halda áfram. Það |
er engin tilviljun að Jón yrkir kvæði í
til Stephans G. Stephanssonar, og
Einars Benediktssonar í bók sinni. I
Þeim skáldum er hann andlega skyld- I
astur, án þess þó að hann sé neitt |
bergmál af þeim. Jón Magnússon |
unir sér bezt í samneyti andlegra I
höfðingja. Hann er svo ungur að
aldri að vitanléga hefir hann ekki
afrekað neitt þ'vílíkt sem þessir menn j
ennþá. En gáfur hans liggja á lík- j
um sviðum og lofa miklu í allar átt- I
ir. Ekkert kæmi mér það á óvart!
þótt hann reyndi við skáldsagnagerð
siðar meir og frá penna hans ætti |
eftir að fljóta margt það sem verulega !
væri til sæmdar íslenzkum bók- J
menntum.
Bcnjamin Kristjánsson.
aða “eining andans,” sem þar var
ríkjandi. Þar voru lúterskir, uni-
tarar, guðspekingar, spiritistar, o. fl.,
o. fl., allir sáttir og sammála — sam-
mála um það að ísak og Jakobína
hefðu þannig búiö við landa sína hér
á þessum stað, og þannig prýtt hóp
þeirra, að þeim bæri í fullum mæli
virðing þeirra og, .vinátta.
A. E. K.
Take Out Membership
in Our 17th Annual
Christmas Club
Frá Seattle
Silfurbrúðkattp
Hinn 14. ágúst s. 1. voru yfir 150
Islendingar samankomnir í samkomu-
sal lútersku kirkjunnar hér til að sam-
fagna hr. Isak Jónssyni og konu hans,
frú Jakobfnu, á 25 ára giftingaraf-
mæli þeirra. Salur og borð var
fagurlega skreytt blómum. Borðin
svLgnuðu undir lostætum réttum, sem
íslenzkar konur einar kunna að búa
tih Herra Kolbeinn Þórðarson
stjórnaði samsætinu með rausn og
myndarskap. Þegar menn voru sezt-
ir að borðum ávarpaði hann silfur-
brúðhjónin og veizlugestina nokkr-
um vel völdum orðum og bað síðan
söngflokkinn að syngja hjónavígslu-
sálminn: “Hve gott og fagurt og
indælt er.” Að því búnu tóku menn
óspart til veizlukostsins, og mátti
heyra sætan klið um sal þveran, er góð
vinir mæltust við munna fulla af
pönnukökum og öðru góðgæti. Þeg-
ar menn höfðu matast kallaði veizlu-
stjóri fram ýmsa menn og konur til
að skemta með söng og ræðum. Hr.
Jón Mftgnússon flutti heiðursgestun-
um frumort kvæði, einkar laglegt og
viðeigandi. Þá talaði frú K. F.
Frederickson nokkur orð og las upp.
lír frúin sérlega vel æfð í framsögn
og kennir þá' list. Þá söng söng-
fjokkurinn undir stjórt) Gunnars
Matthíassonar nokkur íslenzk lög.
Hr. Hallur Magnússon flutti þá
ræðu. Var henni aðallega beint til
brúðgumans og ættmenna hans.
Vakti hann upp ýmsar endurminning-
ar, i gamni og alvöru, og var gerður
að hinn bezti rómur. Því næst söng
herra Gunnar Matthíasson einsöng.
Er hér sjaldan svo mannfögnuður
nteðal landa að Gunnar sé ekki beð-
inn að syngja, enda hefir hann eina
hina beztu baritone-rödd, sem ég hefi
heyrt meðal Vestur-Islendinga. Hr.
Sv. Björnsson flutti þar ræðu. Var
hún að mestu endurminningar frá
frumbýlingsárum Islendinga í Seattle.
Er Sveinn einn meðal þeirra landa,
er fyf^tir settust að í þessari borg,
og höfðu menn góða skemtun af að
ifa upp aftur með honum hina góðu
gömlu daga. Þá las frú A. J. And-
erson kvæði. Frú S. Thompson
söng einsöng. Hefir frúin hreina
og fagra soprano rödd og var góður
rómur gerður að söng hennar. Þessu
næst ávarpaði séra A. E. Kristjáns-
son brúðhjónin nokkrum orðum og
afhenti þeim, fyrir hönd vina þeirra,
vandaðan silfurborðbúnað að gjöf.
Þá söng Kári Johnson, sonur heið-
ursgestanna, einsöng. Var það í
fyrsta sinni að hann syngi fyrir al-
menning. Vakti söngur hans mest-
an fögnuð meðal tilheyrendanna, alls
þess er fram fór um kveldið. Kári
hefir bæði þróttmikla og hljómfagra
tenor-rödd. Hann hefir gengið til
söngkennara, og hneigist metnaður
hans mest í þá átt að þroska þessa
gáfu sína. Er það spá þess, sem
þetta ritar, að rödd hans eigi eftir að
heyrast og verða metin víðar en í
Seattle. Að síðustu ávörpuðu silf-
urbrúðhjónin gestina, og þökkuðu
þeim fyrir sæmd þá og vináttu, ér
þeim væri sýnd með þessu samsæti.
StóÖu menn þá upp frá borðum og
óskuðu silfurbrúðhjónunum allra
heilla og langra lífdaga, með hlýju
handtaki og........nei, þeir gömlu og
góðu siðir eru nú, því miður, fyrir
löngu niður lagðir.
Það sem gerði þetta samsæti sér-
] staklega ánægjulegt, var sú óþving-
Commencing Nov. lst
To make it more convenient to select and purchase a PIANO,
RADIO or ORTHOPHONIC VICTROLA, we have made ar-
rangements to accept a limited number of Club Memberships at
OO MAKES YOU A
MEMBER
Join Today and Enjoy These Benefits
1. ANY MODEL Orthophonic Victrola
2. PAYMENTS will be suspended
for a reasonable length of time
while sick or out of work. 6
3. EXCHANGE PRIVI L L E G E S.
Any member may exchange the
instrument selected any time
within a month after delivery for 7
a more expensive model.
4. LIBERAL ALLOWANCES will be
made for your old type phono-
graph or piano and accepted in g
part payment.
4. YOUR GU ARANTEE is the
manufacturers’ trade mark. We
or Radio may be selected.
guarantee every instrument to be
in perfect condition.
SMALL CASH PAYMENT. Pay
off the balance after the New
Year. Terms as low as $1.75 a
week.
THE REASON many are enjoy-
ing music ín their homes today,
is the easy terms allowed in our
Christmas Club payment plan.
OUR MOTTO IS SERVICE. The
best equipped service department
in Western Canada at your com-
mand.
Piano Club
You pay nothing extra through pur-
chasing any piano you may choose. A
few cents a day carries the payments.
For example—
$9 Cash
3 Years to pay the balance on this beau- «Æ
tiful Lesage Piano—or choose a Canada, v
Ennis, Henry Herbert, Mason & Risch,
Steinway, etc.
OrthophonicClub
SPECIAL MODEL 4—30
Simple but beautiful. Finished in American Walnut,
Orthophonic Hom, Attractive Grille, Orthophonic
sound box, automatic record stop. Dimensions 34 in-
ches high. 22 inches wide. 19% inches deep. With
Record Albums, $98.
!$1.00 Weekly Till Christmas
—<5r your choice of any other Orthophonic
Victrola model.
RADIO CLtJB
This latest General Electric Rad-
iola Receiver operates direct from
the light circuit, employs 7 tubes,
is sturdily constructed, has beauty
and substantial volume of tone
and finely balarced sensitivity
and selectivity.
RADIOLA 33
$121.50
AS TABLE MODEL «1 1 1 PJÍ)
WITHOUT LEGS -
Other Radiola Models and Radios
by VICTOR, SPARTON, MAR-
CONI, or DE FOREST CROSLEY,
fron^$159.75 up, and other models
Orthophonic Victrolas rtiay be had
on proportionately small weekly
payments. Come in and let us ex-
plain the advantages of this
special offer.
100
MEMBERSHIP
LIMITED
TO-------------
Come in to our headquarter or
branch store without delay as
we can only accept a limited
number of Club Memberships.
Budget
$1.25
Weekly
Till
Christmas
immi
rn
\!B
Buy from Reliable and Established Specialists
Greiðið Atkvæði með
og Endurkjósið
ALDERMAN
H. Davidson
Sem Alderman fyrir
Ward Two
Merkið atkvæðaseðil yffar þannig: