Heimskringla - 18.12.1929, Blaðsíða 6
o. BLAÐSÍÐA
HEIMSKRINCLA
WINNIPEG, 18. DES., 1929
Kosningin
Kýmnissaga eftir Stcphcn Leacock
Islenzkað hefir Stefán Einarsson
Spurðu miif ekki að hvaða kosning
það var. I>að getur hafa verið sam-
bands- fylki's- ríkis- eða airikiskosn-
ing fyrir öllu seni ég veit um það.
Að líkindum hefir hún verið háð
víða um land; þó var mér ekki af
sjón og reynd kunnu'gt um það nema
i Missinabahéraði eða í bænum
Mariposc, sem var miðstöð héraðs-
ins, og þar af leiðandi sjálfkjörinn
brennipunktur kosninga-skothríðarinn-
ar.
Hitt er mér aftur ljóst, að kosning-
in var mikilsverð og að á úrslitum
hennar ultu sum mikilvægustu mál
þjóðarinnar, eins og ti! dæmis það,
hvort Mariposa ætti að verða hluti
af Bandarikjunum, hvort fáninn, sem
svo hundruðum ára skifffhafði blakt-
að við hún á Tecumseh skólahúsintt,
ætti að vera troðinn undir fótum út-
lends ránslýðs, hvort Bretar ættu að
verða þrælar, hvort Canadamenn ættu
að verða Bretar, hvort bændastéttin
myndi nú sýna sig seni sanna Cana-
damenn—og ótal mörg önnur mál
þessu lik.
Og samfara þessu var svo mikill ys
og þys og fánaburður og blysfarir
Og trumbusláttur, að þó eitthvað svip-
að hafi veriö að gerast annarsstaðar,
hlaut það að vera smávægilegt og
einskisvert, borið saman við undir-
búninginn og viðhöfnina i Missinaba-
héraði.
I'ar sem þetta er nú allt um garð
.gengið, getum við i ró og næði hugs-
að um það. Við vitum með %rissu,
því það dylst nú engum, að kosningin
í Canada barg brezka ríkinu, að Mís-
sinaba barg Canada, aö atkvæða-
greiðslan í Tecumseh kjördæmi barg
Missinaba, og þeir af okkur, sem
voru sigursins megin— já, um það er
óþarft að orðlengja. Við viljum
ekki gera neitt meira úr þvi en það
var. Sé enn á það minnst, er það
með gætni og hæg'ð gert og mjög
blátt áfram og sjaldnast oftar en
þrisvar til fjórum sinnum á dag.
En kosningu þessa skilurðu ekki til
hlítar, hvorki allan undirbúninginn.
fundarhöldin, tilnefninguna og at-
kvæðagreiðsluna, nema því aðeins, að
þú fyrst kynnist hinu einkennilega á-
Hljómuiinn hæsti
Ótal raddir hljóma þér í hug
hefjast upp og lækka síðan flug.
Ýmsar þeirra eru fals og tál—
eiturdropar fyrir þína sál.
Hlusta vel — og heyra muntu þá
hljóm, er streymir loftsins bylgjum frá.
Yfir stígur allan jarðarglaum,
ómur sá, og hafsins voðastraum.
Ómur þessi, undur hreinn og skær,
instu hjartastrengjum þínum nær.
Strax er alt sem öðlast þú, í vil,
engin sorg í brjósti þínu til.
Ómi þeim fær engin tunga lýst,
er hann gegn um 'sálarveldið brýzt.
Enginn þekkir hámark þessa hljóms,
hulið valdi guðlegs eigindóms.
Maður sá, er heillast hljómi þeim,
hlýtur dýrsta tilverunnar seim:
ódauðleikans elsku, trú og von
öðlast fyrir Jesúm Drottins’ son.
Himna söngur, herrans náðar ljóð
hræri, næri, styrki þjóðablóð!
Helgur logi herrans kærleiksarns
hlúi neggi sérhvers jarðarbarns!
—Jóh. örn Jónsson.
—Manufacturers of—
Lager
Red Fox
Stock Ale
SHEA’5
WINNIPEG BREWERY LTD.
Colony -r- Brydges Ave.
Skrifstofa: 901 Main St.
Sími 37 011 — — Sími 55 622
Gleðileg Jól og Farsæls Nýárs
óska öllum viðskiftavinum
sínum
5HEA’S
sigkomulagi stjórnmálanna í Mari-
posa.
I Mariposa er hver einasti maður
annaðhvort íhaldssinni eða frelsis-
sinni. Telji hann sig hvorugt, er
hann vanalega hvorutveggja. En
svo mikið er vist, að sumir hafa alla
æfina fylgt sama flokkinum. Eru
þeir stundum kallaðir hinir “ólækn-
andi.” I>eir hafa einu sinni fyrir
allt lært landsmálafræðin sin svo vel
i flokksskólanum, að þeir geta greitt
úr hvaða vandamáli sem er á fjórum
sekúndum’. Um leið og þeir hafa
fest hendur á blaðinu sínu í morgun-
póstinum, geta þeir ráðiö umsvifa-
laust hverja stjórnrnálalþraut ^em
fyrir þá er lögð. Svo eru aftur
aðrir, sem hafa sett sér það mark
og mið að vera víðsýnir og andlega
sjálfstæðir og greiða þeir atkvæði
með ihaldssinna i dag en frelsissinna
á morgun, allt eftir því hvernig i
segl andlega sjálfstæðisins blæs. F.í
viðsýnið segir þeim að þeir hafi hag
af því að greiða frelsissinnunt at-
kvæði sitt i einhverju máli, þá gera
þeir það. Sé engin hagur í því af-
segja þeir að vera þrælar nokkurs
flokks eða flokksleiðtoga. I’ing-
mannaefnum er á náðir flokksfylgis-
ins’ leita, er því fyrir beztu, a'ð halda
sig fjarri þeim.
í Mariposa verða allir að hafa
einhverja stjórnmálaskoðun. Undan
þvi kaupir sig enginn. Auðvitað get-
ur staðið svo á, að það komi sér illa,
að sýna stjórnmálaspilalitinn, og verð-
ur þá ekki við því gert. Frá þess-
ari reglu, eins og flestum öðrum regl-
um, verða því nokkrab undantiekn-
ingar. Tökum Trelawney gamla.
póstmeistara, til dæmis. Hann hlaut
fyrir mörgttm árum atvinnu sem póst-
ur hjá MacKenzie stjórninni sælu.
Nokkru seinna fékk hann stöðu hjá
Macdonaldstjórninni við að lesa :
sundur þréf t pósthúsinu. Og loks
^erði Tupper stjórnin hann að frí-
merkja-stimplara. Trelawney sagði
alltaf, að hann hefði enga stjórn-
málaskoðun. Sannleikurinn var 5á,
að hann bjó yfir þeim helzti mörg-
um.
Svipað var því farið með prestana
í Mariposa. Þeir höfðu enga stjórn
málaskoðun ----- allsendis enga. Eigi
að síður auglýsti Drone Baptista-pró-
fastur ávalt um það leyti er kosning-
ar fóru fram, texta á þessa leið : "Sjá !
er ekki einn réttlátur maður til í Is-
rael ?” Eða : “Ö, er ekki breyting-
apna tími enn í r.áncí?” Flestir
frjálslyndu kaupsýslumennirnir vissu
hvað klukkan s!ó og týndust þá einn
Og einn út úr kirkjunni meðan a
messunni stóð.
í Presbýtérakirkjunní var þessu
eins farið. Presturinn sagði að
vísu, að hin helga köllun sín leyfði
sér ekki að taka neinn þátt í stjórn-
málum og fjarir væri sér sem drott-
ins hirði, að mæla köld orð í garð
nokkurs kristins bróður. En þegar
svo sé komið, að hinum óguðlegu sé I
hampað og hossað upp í æðstu stöð-
ur í þjóðfélaginu (þ. e., að íhalds-
maður hafi verið tilnefndur sem þing-
tnannseínij þá ætli hann ekki að láta
starf sitt í víngarði hins æðsta, aftra
sér frá, að segja álit sitt um það.
Þegar hér er komið ræðunni, eru
sæti íhaklsmanna flest orðin auð í
kirkjunni, svo presturinn heldur áfram
að sýna með innvitnunum í biblíuna,
að hinir gömlu góðu Hebrear hafi
allir verið frjálslyndir, að þeim ein-
urn undánskildum, er drukknuðu í flóð
inu og þeim, sent fórust—og ekki með
öllu að óverðskulduðu—á eyðimörk-
inni.
Eins og tekið var fram er ekki
hart tekið á því þó vissir menn, svo
sem skrifstofustjórar, prestar, kenn-
arar og gistihúsastjórnendur, segist
skoðanalausir í stjórnmálum. F.n
haldi nokkur annar því fram í Mari-
posa er undantekningarlaust og undir-
eins litið á hann sem bragðaref, og
menn fara að grufla út í og furða
sig á hvar fiskur liggi undir steini
til að beita öngulinn fyrir.
Bærinn og héraðið spriklar af
stjórnmálaáhuga. Og þeir sem að-
eins hafa séð stjórnmálasamkundur í
neðri deildinni í Westminster eða
efri málstofunni í Washington, en
hafa aldrei verið á fundum íhalds-
eða frelsissinna í Tecumseh skólanum,
rista ekki djúpt í stjórnmálaþekk-
ingu.
Það má því nærri geta hvernig
mönnum varð við það í Mariposa, er
sú fregn barst út að Georg konung-
ur hefði leyst upp þingið i Canada,
og hefði sent íbúum Missinaba-héraðs
skiflega beiðni unt að kjósa fyrir sig
annan þingmann en John Henry
Bagshaw vegna þess aö hann nyti
ekki trausts stns lengur.
Kontingtirinn er auðvitað vel þekkt
ur og ekki nema að góðu einu í
Mariposa. Það mundu allir eftir
því þar er hann heimsótti bæinn á
ferð sinni um Canada og nam nokkra
stund staðar á járnbrautarstöðinni í
Mariposa. Þó að hann væri þá að-
eins prins, safnaðist hópur manna
niður að járnbrautarstöðinni, og allir
fttndtt til þess, hvílik skömtn það var,
að prinsinn skyldi ekki hafa tíma til
aö sjá meira af bæniim en járnbraut-
arstöðina og viðarhrúgttrnar um-
hverfis hana, sem auðvita'ð gæfu mjög
ranga hugmynd um bæinn. Eigi að
síöur kontu allir niður á stöðina og
íhalds- og frelsissinnar voru þar hver
innan um annan og hegðuðu sér sem
vinir og jafningjar, svo að prinsinn
yrði ekki var neins flokkarígs hjá
þeim. Hann varð heldur ekki neins
slíks var. Þeir lásu honum ávarp
um spekt og friðsemi þegna hans og
hollttstu þeirra við rikið. Á hitt
forðuðust þeir að minnast, rifrildið
sem varð út af bæði bryggjusmtð-
inni og því hvar nýja pósthúsið var
reist. Þeim fannst óþarft og ósann-
gjarnt a'ð raska nú ró og gleði prins-
ins með því. Seinna, sem konungur,
yrði hann auðvitað að fá að vita allt
ttm það. En nú var mest utn vert, að
hann færi þaðan með þá hugsun, að
óslitin ást og eindrægni rikti hjá þeim.
Að öðru leyti var ávarpið svo vel
orðað, að það varð prinsinttm til ó-
blandinnar gleði að hlýða á það.
Eg held. að þeir skilji konunga æði
vel í Maripósa. I hvert skifti sem
konttngur eða prins kemur þangað,
reyna þeir ailt sem þeint er unt, að
sýna hontim björtu hliðina á hlutun-
unt og lá‘a hann halda, að þeir standi
saman sem einn maður. Pepperleigh
dómari og Dr. Gallagher sem jafnt og
þétt eltu grátt silfur saman út af
stjórnmálum, leiddust nú aftur og
frarn um járnbrautarstöðina eins og
bræðttr, til þess eins að láta prinsin-
uttt líða vel.
Það vakti því engar spurningar hjá
þeim er þeim barst fréttin um það,
að konungurinn hefði misst traust á
John Henry Bagshaw, þáverandi þing
ntanni þeirra. Það var nú það?
Gott og vel! Þá er að kjósa kon-
unginum einhvern annan undir eins.
Já, jafnvel hálfa tylft, ef hann þarf
á þeim að halda. Þeirn stóð á sama.
Þeir myndtt kjósa allan bæinn, mann
fyrir mann, heldur en að láta kon-
ungimt ltafa nokkrar áhyggjur.
Að vísu hafði íhaldssinna svo árunt
skifti stórfurðað á því, að kbnttngur-
Manitoba Co-operative Poultry
Marketing Association Ltd.
Stofnsett 1922. Löggilt undir Provincial Co-operative Association lögunum
frá 1924
Félagatala 1922—719
Félagatala 1929—12500
STÖRF
Að útvega sölu fyrir hænsni, slægtuð eða lifandi, óg á eggjum og að sortéra og
bæta þéssa markaðsvöru.
ÁFORM
Að minnka sölukostnaðinn frá því að varan fer úr höndum framleiðanda og þar
til hún kemur í hendur neytandans. Einnig að bæta vöruna. Og þetta hefir
samlagi þessu heppnast að gera.
HVAI^EGG ERU KEYPT
Brandon, Carman, Lundar, Neepawa, Winnipeg
UMSETNING FYRIR ÁRIÐ 1929
Af eggjum 174 járnbrautarvagnlilöss, slægtuðum liænsnum 80 vagnhlöss, lif-
andi hænsnum 14 vagnhlöss.
Þessi félagsskapur höndlar vörur sínar ódýrara en nokkur annar félagsskapur
af sama tæi. Vér bjóðum yður velkomin í félagið. Verðið herra yfir yðar eigin
vöru.
Skrifið eftir upplýsingum til-
Manitoba Co-operative Poultr y
Marketing Association Ltd.
185 MARKET ST. E. —
WINNIPEG