Heimskringla - 08.01.1930, Side 1
FATALITUN OG HREINSUN
Elllce Avc. and Simcoe Str.
Sfml 37244 — Ivær llnur
Hattar hrelnHatSir cndnrnýjaTSir.
Betrl hreinnun Jafnódýr
Ágætustu nýtízku litunar og fata-
hreinsunarstofa í Kanada. Verk
Dept. H.
XUV. ARGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 8. JAN., 1930
NÚMER 15
KANADA
*-----------------------*
AfráðiS er nú, að fylkisþingið í
Alanitoba komi saman á þriðjudaginn,
21- janúar. Tvö þingsæti eru óskip-
uð. sæti Robson dómara og sæti dr.
úieghorn frá Baldur. — Búist er við
a8 aukakosningar fari bráðlega fram
1 þesum kjördæmum.
Samkvæmt yfirlýsingu frá dr. H. C.
Hodgson, forseta Manitoba konserva-
tlva, býður enginn konservatívi sig
fram í Brandon á móti Hon. T. A.
Crerar hinum nýskipaða samgöngu-
rnálaráðherra Kanada.
Frá Brandon var símað í gær, að
á ársfundi U. F. M. þar í bænum, er
haldinn var í gær, samþykktu full-
truar þeir er þar voru samankomnir,
forstjórar þeirra skyldu greiða
atkvæði með fríviljugri þátttöku
bænda í hveitisamlagshreyfingunni, en
slgerlega gegn skylduþátttöku.
Haft er eftir einum bæjarfulltrúa,
a® um 1500 ungir menn og fullfrísk-
lr seu nú hér í bæ, er hvergi hafi
getað fengið atvinnu og líði því
ney®- — Víst er um það að 695 upp-
Sjafahermenn hafa þegar sagt sig- til
atvinnuleysisskrifstofunnar, og og
rrtun, fylkisstjórnin ætla að gera ein-
ftverja gangskör að því hið bráð-
asta, að þessum mönnum verði eitt-
ftvað líknað, með styrk eða atvinnu.
Hike nokkur Baruk setti $3,000 veS
fyrir George nokkurn McKenzie, 18.
febrúar 1928, hér i Winnipeg. Mc-
Kenzie hafði brotið sæfingarmeðala-
fögin og strauk jafn harðan og veð-
kom fyrir hann og hefir ekki síð-
an sézt. I janúar 1929 krafðist
Hysart dómari veðsins af Burik, sem
átti þá ekkert er til kom, og hafði
a'drei þekkt McKenzie, heldur sett
þetta veð fyrir hann að beiðni lög-
tttanns McKenzie’s, er kynni að hafa
þóknað Mike eitthvað fyrir þessa
Sreiðvikni. En nú er Mike í tugt-
^túsinu, og virðist mega dúsa þar það
Sern eftir er æfinnar, ef hann ekki
Setur skafið upp þessa $3,000. Því
Hysart dómari kveðst svo skuli venja
srnápilta af að ganga í ábyrgð fyrir
S'spamenn, án þess að eiga rauðan
eyri í ejgu sinnj sjálfir.—
Herman Strandber.g, vel þekktur og
rrt'kilsvirtur sænskur bóndi við Tyn-
Man., varð svo óður af heift
Vl® konu sína, að hann skaut hana
hnifstakk til bana, og tengdamóð-
Ur sina sömuleiðis, er ásamt annari
konu ætlaði að hjálpa dóttur sinni.
^trandberg var 65 ára að aldri, kona
hans 54, en tengdamóðir hans hálf-
áttræð.
, Hanadiskir flugmen hafa tekiS þátt
1 Hitinni að Carl Ben Eielson norsk-
anteríska flugmanninum fræga, er
týndist um daginn fyrir norðan Sí-
eríustrendur. Hafa flestir þeirra
P° snúið aftur, því sífeldar þokur hafa
h'ndrað flug þeirra, og er nú talin
h'l von til ,þess að Eielson sé lífs.
^rá 1. janúar 1930 verða engar gift
ar konur teknar í stjórnarþjónustu
er 1 Manitobafylki, svo framarlega
Seni fenn þeirra hafa atvinnu. Þó
nta veita undantekningu frá þessu,
sannanlegt er að konan verður aS
Standa straum af einhverjum nákomn-
um- Sem stendur eru 18 konur í
stJórnarþjónustu hér, ,að því er sagt
Einar H. Kvaran
sjötugur
Einar H. Kvaran skáld' og rithöf-
undur átti sjötugsafmæli hinn 6. fyrra
mánaðar.
Mest liggur eftir hann þeirra skáld-
sagnahöfunda er á íslenzku rita, og
sennilega er hann vinsælastur núlif-
andi höfunda. Lengst munu ýmsar
smásögur hans halda nafni hans á
lofti, og þyrfti varla annað til þess
að nefna en “Vonir,” það ágallalausa
meistaraverk, þótt auk hennar hafi
hann margar fleiri afbragðssögur rit-
að, til dæmis “Litli Hvammur,”
“Þutfkur”, “Viðskifti,” “Vitlausa
Gunna,” o. s. frv. List hans hefir
aldrei náð jafn föstum tökum á
stærra forminu í skáldskapangerð,
þótt hinar stærri skáldsögur hans
hafi ef til vill aflað honum almenn-
ari vinsælda.
Eina ljóðabók hefir Einar H. Kvar-
an gefiS út fyrir löngu síðan, svo-
lítið kver, en ýms kvæði eru þar, er
líkur eru til að mjög lengi munu endast
sem veruleg prýði í íslenzkum bók-
menntum. Sakna þess margir “mat-
vandir” nienn, áð Kvaran skyldi ekki
hneigjast til meiri ræktar við ljóð-
gáfu sína.
íslenzka leikritagerð hefir Kvaran
auðgað með “Lénharður fógeti” og
“Syndir annara,” sérstaklega hinu
síðarnefnda. En bæði hafa þau náð
afar miklum vinsældum meðal al-
þýðu manna eins og önnur skáldverk
hans, þótt eigi verði þau hlutfalls-
lega talin jafngild þvi bezta í smá-
sagna og ljóðagerð hans.
Viö ritstjórn blaöa og tímarita
hefir Kvaran fengist frá unga aldri,
er hann hóf þá starfsemi hér vestra,
allt til þess dags, og lagt mjög mikiö
er. Er mjög óvíst að þær haldi
starfinu allar.
Mál Bronfmans, þess er tekin var
höndum í desember og fluttur til
Regina, ákæröur um vínsmyglun,
vitnamútur og mútutilraunir við em-
bættismenn ríkisins, kom fyrir í Re-
gina 19. og 20 desember.
Aðalvitniö á móti Bronfman var
William Denton, er sór þaS fyrir
réttinum, að hann hefði þagið og
persónulega tekiö á móti $1,500 af
Bronfman til þess að koma í burtu
vitnunum D. W. Readman og Her-
bert Clement, af valdsviöi dómstólsins
er hafði með höndurn kæruna gegn
Bronfman fyrir vinsmyglun 1922.
Ennfremur kveðst Denton hafa feng-
ið $2,250 borgun hjá Bronfman fyrir
að hafa komið þessurn vitnum und-
an; $600. á St. Regis gistihúsinu i
Winnipeg, hjá bróður Bronfmans og
$300. á Bell gistihúsinu í Winnipeg.
Ennfremur bar Denton þaS, að
það er hann hefði lagt til við for-
mann stjórnarvínsölunnar í Sask. að
handsama aðal mennina í smyg.glunar
hringnum, þá hefði hann svaraö:
“Við getum ekki unnið bug á Mr.
Bronfman, en Mr. Robinovitch getum
við kleimað svo hann þurfi ekki
meira.” (Robinovitch var sagður
dálítið minni háttar bootlegger en
Bronfman).
iSamuel Tadman, fyrrum félagi
Gallaman’s í “Southern Exporters
Liquor” vöru'húsinu í Moose Jaw, sór
fyrir rétti að Bronfman hefði sagt
sér, að þaö hefði kostaö sig $8,000,
að ná Clements og Readman úr landi,
svo að þeir gætu ekki boriö vitni á
móti Gallaman.
Ennfremur bar Denton því vitni að
í þessurn smygglunaPhring Bronf-
mans árið 1921 hefðu verið “Regina
Wine and Spirits Company; Domin-
ion Distributors, Southern Exporters;
vínsölustjórar stjórnarinnar; Beau-
vain-Wilson félagiS og eitt félag
• enn frá Broadview.
til ýmissa opinberra mála. Hvort
sem menn hafa veriö honum sam-
mála í þeim efnum eða eigi leika þó
ekki tvímæli á því meöal skynbærra og
sanngjarnra manna, að snilldarbragur
hefir aö jafnaði verið á þeirri starf-
semi og aS nijög margt þarft og vitur-
legt hefir hann lagt til opinberra mála
bæði hér vestra og á íslandi.
Kvaran er afbragðs stílsnillingur,
um sumt máske hagastur þeirra, er
vér höfum átt, sannfærandi, rökfim-
ur og hittinn, þótt hvorki sé stíllinn
sérlega litsterkur né fjölskrúðuigur,
og verði stundum til lenigdar dálítið
“feminine” og þreytandi í fábreytni
orðavalsins. En víst er um það að
margir af þeim sem nú rita, og rita
| vel, eiga stíllist hans töluvert að
þakka.—
Sálræn tilraunastarfsemi íslenzk á
sjálfsagt Einari Kvaran mest að
þakka allra manna. Hann var frum-
herji þeirrar starfsemi á íslandi og
þar hefir aðal barátta hans staðið
út á við. Hann ’hefir skrifað rnjög
| mikið um þau efni; allt skemtilega
og margt mjög viturlega, jafnvel að
áliti þeirra, er ekki eiga samleið með
j honum í þeim efnum. Hann hefir
getiS sér orðstír víða utanlands, sem
innan, fyrir skrif sín um þau efni,
eins og skáldrit sín. — Þó viröist
enginn efi á því að íslenzkar bók-
menntir hafa beðið tjón við þá kapp-
samlegu starfsemi, er Kvaran hefir
; helgað þessum málum, þótt vafalaust
í ntuni hann aldrei hafa talið hana eft-
ir, né séð eftir henni.—
—S. H. f. H.
* * *
Einar H. Kvaran var mjög hylltur
á sjötugsafmæli sínu í öllum íslenzk-
um blöðum og með mannfagnaöi.
Fer hér á eftir umgetning um veizl-
una, er helztu og elztu vinir þeirra
hjóna bjuggu þeim í Reykjavík, og
ræða sú, er dr. Guömundur Finnboga-
son hélt þar fyrir minni heiðurs-
gestsins.
Afmæli Einars H.Kvaran
Gestirnir byrjuðu að koma kl. 9
að morgni og straumurinn hélzt fram
undir leikhústíma að kveldinu. Með-
al gestanna var sendinefnd frá nokkr-
urn vinum hans, sem færðu honum
höfðinglega peningagjöf. Aðrar af-
mælisgjafir voru miklar og fagrar
og undir kveldið voru stofurnar full-
ar af blómum.
Kveðjur í símskeytum og spjöldum
og bréfum munu 'hafa verið hátt á
annað hundrað. Þau komu hvaðan-
æfa af landinu, frá Danmörku og
Vesturheimi, frá mönnum úr öllum
stéttum. Þessi félög og stofnanir
sendu kveSjur; Bandalag ísl. lista-'
manna, Gagnfræðaskólinn á Akureyri,
Ungmannafélag Laugaskóla, Stúd-
entafélögin bæði í Reykjavík, Stúd-
entafélag Akureyrar, Leikfélag Ak-
ureyrar, Leikfélag Reykjavíkur, Stór-
stúka íslands, Umdæmisstúkan á Ak-
ureyri, Lestrarfélag kvenna og Frí-
múrarastúkan Edda. Sumar kveðj-
urnar voru í ljóSum. Frá Sálar-
rannsóknarfélagi Islands kom skjal,
sem tjáði hann kjörinn heiöursfélaga
þess.
Frá sýningunni í leikhúsinu hefir
Morgunblaðið þegar skýrt. Sam-
komuna á eftir sátu um 90 manns;
fyrir fleiri var ekki húsrúm, en marg-
ir fleiri óskuðu aö taka þátt í þessari
samkomu. Þorsteinn Gíslason bauð
menn velkomna, en ræður héldu;
Indriði Einarsson, Guðmundur Finn-
bogason, séra Kristinn Daníelsson og
heiðursgesturinn. Samkvæmiö var
hið fjörugasta og sérstaka gleði
vakti það, þegar séra Kristinn Dan-
íelsson söng erindi, sem hann hafði
sungið á leiksviði fyrir 49 árum, í
fyrsta leikriti, sem heiðursgesturinn
I hafði samið.—Mhl.
Ræða
dr. Guffm. Finnbogasonar á sjötugs-
afmceli Einars H. Kvaran. Flutt
í lcikhúsinu 6. desember, 1929.
Háttvirtu áheyrendur!
Við, sem komum hingað í kveld,
til að sjá einn vinsælasta sjónleik-
inn, sem hér hefir verið sýndur, kom-
um jafnframt til að votta skáldinu
■ Einari Hjörleifssyni Kvaran virðingu
okkar og þakkir á sjötugsafmæli hans.
Þegar mér nú veitist sú sæmd aö
segja hér nokkur orð í þessu skyni,
þá veit ég, að ykkur er öllum ljóst,
aS ég á örfáum mínútum fæ ekki
sagt nema fátt af því, er okkur býr
í brjósti og þið munduð óska,, aS
sagt væri viS heiðursgestinn. Einar
Kvaran hefir nú um hálfrar aldar
skeið lagt svo mikinn og merkilegan
skerf til íslenzkrar menningar, að
engin tök eru á aö lýsa því í skjótri
svipan. Við vitum öll að hann hefir
verið ritstjóri blaða, vestan hafs og
austan, um 20 ár, stjórnað um lengri
eða skemmri tíma sumum merkustu
timaritum vorum og þar á meöal tekið
þátt í flestum málum, er verið hafa á
dagskrá þjóðarinnar. Aldrei hefir
sést grein frá hans hendi, er eigi bæri
mark ritsnillings, enda hafa greinar
hans veriS lesnar. Hann hefir skrif-
að fjölda af skáldsögum, smáum og
Sftórum, sumar hreinar gersemar.
Hann er 1 jóðskáld og hann er leik-
skáld, og hefir unnið íslenzkri leik-
list stórmikið gagn. Ætíð hefir það
veriS ómengað yndi aö heyra hann
flytja erindi eða lesa upp skáldrit.
Og loks hefir hann veriS brautryðj-
andi hér á landi í rannsókn dular-
fullra fyrirbrigða og fræðslu um þau
efni. Þegar við nú í kveld færum
honum þakkir fyrir það, sem hann
hefir gert, hefir hver fyrst og fremst
í huga það sem honum er kærast af
starfi hans. En öllum er það ljóst,
að það, sem honum hefir auðnast að
gefa þjóð sinni, er svo mikiö, og
margt af því ágætt, að vér vildum
með engu móti án þess vera og gæt-
um ekki hugsað til þess að hafa ekki
átt það. Og þaS er ég viss um, að
gæti skáldiö nú séð hvað hann á
inni í hugum manna svo víða sem
íslenzkar bókmenntir eru lesnar, þá
myndi hann verða þess vís, að hann
er auðugur maöur — auðugur af því,
sem dýrmætast er, en það er hlýr
hugur og þakklæti þeirra, sem hann I
hefir glatt og vermt og styrkt með
ritum sínum og viðkynningu.
Ekkert finnst mér einkenna mann
betur en það, að hverju hann spyr.
Spurningin sýnir, að hverju hann
leitar, en í leitinni birtist þrá manns-
ins og í þránni eöli hans. Þegar
ég hugsa um Einar Kvaran, kemur
mér löngum í hug eitt smákvæSi hans,
sem ég tel meö perlum íslenzkra
ljóða. Það er “Sjötta ferð Sind-
baðs.”
Ygldan skolaöist Sindbað um sjá,
uns síðasta skipbrotið leið hann.
Hann molaði fleyið sitt Feigs-
bjargi á,
og fádæma hörmungar beið hann.
Svo lagði hann inn í ægileg göng,
er af tók að draga þróttinn;
þar drúptu gljúfrin svo dauðans
þröng
og dimm eins og svartasta nóttin.
Þá förlaðist kraftur og féll hann
í dá.
í ferlegum dauðans helli.
—En hinum megin var himin
að sjá
og hlæjandi blómskrýdda velli.
—Svo brýt ég og sjálfur bátinn
minn
og berst inn i gljúfra veginn. —
Við förum þar loksins allir inn. —
En er nokkuS hinum megin ?
Þetta er hin mikla spurning heið-
ursgestsins okkar. Hún hefir snemma
komið úr djúpi sálar hans og gefið
lífi hans og viðleitni ákveðna stefnu.
En hvers vegna hefir einmitt þessi
spurning orðið svo rík í huga hans?
Það mun vera af því, að hann hefir
ekki horft köldum og skilningslausum
augum á “sigling lifsins,” heldur meS
lifandi samúð þess manns, sem finn-
ur, að jafnvel hið lítilmótlegasta far
fleytir farmi, sem er of dýrmætur til
að sökkva að fullu og bótalaust í
dauðans djúp. Því dýpri og inni-
legri sem tilfinningin er fyrir gildi
hverrar mannssálar, þrátt fyrir alla
ófullkomleika, sy»d og böl, því heit-
ari verður hjá flestum þráin eftir
framhaldi • lífsins og þeirri fullkomn-
un og þroska, sem ekki fæst hérna
megin. Einiar Kvaran hefir haft
eins glöggt auga og hver annar fyrir
því sem illt er og öfugt í fari
manna, hann hefir ef til vill betur
en flestir fundiö misfellur mannlífs-
ins og allt það böl, sem leiðir af
blindni mannanna og illkvitni eins
og hún birtist oft á yfirborðinu. En
han hefir einnig þá spurt: Er nokk-
uð hinum megin? Skyldi ekki bak
við hrjóstrin, þegar kernur inn úr
þessum “ferlega dauðans helli” sál-
arinnar, vera “himin að sjá og hlæj-
andi blómskrýdda velli ?” Hann hef-
ir spurt, hann hefir leitað og fund-
ið. Hann hefir í skáldritum sínum
leitt oss fyrir sjónir, að jafnvel í sál
þeirra manna, sem virðast mestir
hrottar og hirðulausastir um annara
hag geta leynst fræ, er þroskast mega
til æðra lífs ef sól kærleikans nær til
þeirra með geislum sínum. Hann
trúir því, sem gamla dæmisagan sýn-
ir, að sólin sé sterkari en stormurinn.
Hann trúir orðum meistarans, að
takmark vort sé að reynast börn föð-
ur vors, sem er á himnum, því að
hann lætur sól sína renna upp yfir
vonda og góða og rigna yfir rétt-
láta og rangláta. Hann veit, að
kærleikurinn, ástúðin er gróörarskil-
yrði þess, sem gott er í mannssálun-
um, sól þess og regn, og að hverjum
manni er ætlaö að vera ofurlitil sól
er stafar ljósi og yl á hvern, sem
fyrir verður hverja stundina, eins og
sólin án afláts sendir geisla sina
jafnt í allar áttir út um kaldan geim-
inn. — Þetta er engin fjarstæða.
Hver góö móðir er eftir veikum
mætti slík sól fyrir börnin sín, fyrir
mann sinn og heimili, fyrir alla, sem
móðureðli liennar nær til. Hver ung
og elskuleg stúlka er slik sól fyrir
hvern sem sér hana, aðeins með því
að vera það sem hún er. Einar
Kvaran hefir margoft, meðal annars
í sjónleik þeim sem vér fáum að sjá
hér í kveld, sýnt okkur mátt slíkra
kvenna til að glæða falin fræ góð-
leikans í brjóstum mannanna, sýnt
hvernig hrottaskapurinn og ástríöurn-
ar
“þoka fyrir ljúfu lyndi,
líkt og barnið teymi Ijón.”
En það bezta er, að vér finnum, aö
sögurnar eru sannar.
Hin vermandi lífsskoðun, sem al-
staðar kemur fram í skáldritum heið-
ursgestsins, hefir ásamt list hans í
' meðferð allri gert hann svo ástsælan,
sem hann er. Hann hefir borið and-
legu lífi þjóðar vorrar birtu og yl,
sem lengi mun glæða heilbrigðan
gróður.
Fyrir allt þetta leyfi ég mér nú,
Einar Kvaran, að þakka þér í mínu
nafni og allra þeirra sem þú hefir
verið og munt verða til yndis og
þroska. 0,g við þá þökk vil ég bæta
þeirri einlægu ósk, að þú megir í
fullu fjöri njóta með ástvinum þín-
um þeirra ára, sem þú átt eftir að lifa
vor á meðal, og helzt af öllu verða
við þeirri áskorun minni og niargra
annara að skrifa endurminningar
þínar. Þinn næmi og djúpi skiln-
ingur á eöli þeirra manna, sem þú
hefir kynst um dagana, myndi verða
bókmenntum vorum ómetanlegur
gróði.—Visir.
Hið indælasta veður var hér um
hátíðarnar. Nú hefir aftur kólnað
og verið um -20° F. síðan um helgi
og stormbylur á sunnudagskveld og
mánudagsnótt, svo að víða tepptust
vegir hér í fylkinu. I nótt sent
leið var kaldast er verið hefir á þess-
um vetri, um -35°F hér í miðjum
bænum.
Sunnudaginn 22. desember voru þau
Ólafur Brandson, frá Winnipeg, og
Eirikka Guömundson, frá Lundar,
gefin saman í hjónaband af séra Rún-
ólfi Marteinssyni, að 493 Lipton St.
Heimili þeirra verður í Winnipeg.
Oh
!
i ▼
ÁRSFUNDUR
Viking Press, Limited
Ársfundur hlutafélagsins, The Viking Press,
Lt., verður haldinn fimmtudaginn 16. janúar, 1930 á
skrifstofu félagsins, 853.Sargent Ave., Winnipeg, kl. 2
e. h.
Ársskýrslur félagsins verða þar lagðar fram til stað-
festingar; embættismenn kosnir fyrir í hönd farandi ár,
og mál þau er félaginu koma við, verða rædd og af-
greidd.
Skorað er á alla hluthafa að mæta eða senda umboð
sín þeim félagsmönnum, er fundinn sækja.
Winnipeg, Man., 7. janúar, 1930.
M. B. HALLDÓRSSON
forseti
RÖGNV. PETURSSON
skrifari
►<o