Heimskringla - 11.06.1930, Page 1

Heimskringla - 11.06.1930, Page 1
 XLIV. ÁRGANGUR WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 4. JÚNÍ, 1930. NÚMER 3ÉP DYERS & CLEANERS, LTD. Er fyrstir komu upp vnni a?5 afgreit5a verkitS sama daginn. Lita og hreinsa fvrir þá sem eru vandlatir. W. E. THURBER, Mgr. Sími 37061 DYERS & CLEANERS, LTD. SenditS fötin yöar met5 pósti. Sendingum utan af landi sýnd somu skil og úr bænum og á sama vert5i. W. E. THURBER, Mgr. 324 Young Str., Winnipeg. Heimfararnefnd Vestur-Islendinga er fer með stióra IhóprMim á s. s. Montcalm frá Mont?eal Þ>* Mr. Asmundw Jó&iaffiinssoKi ©g| «Sr. K,ö^nval€Í^o.r Fét^arssoi^ era Romiair Iheirni a injtidan. Rögnvaldur pétursson, d.d. gjaldkeri Heimfararnefndarinnar SÉRA RAGNAR E. KVARAN ritari Heimfararnefdarinnar SÉRA JÓNAS A. SIGURÐSSON forseti Þjóðræknisfélagsins ARNI EGGERTSSON fulltrúi Canada á Alþingishátíðinni GUNNAR G. BJÖRNSSON skattanef ndarf ormaður Minnesotar ríkis og fulltrúi þess á Alþingishá- tíðinni. ' JÖN J. BILDFELL formaður Heimfararnefndarinnar ASMUNDUR JÓHANN SSON fasteignasali W. H. PAULSON fylkisþingmaður Fulltrúi Saskatchewanfylkis 4 hátiðinni. FRÉTTABRÉF FRÁ BLAINE Sál mín er eins og sálmur Sál mín er eins og sálmur og syngjandi englahjörð og hugurinn helgar tíðir er til himinsins stíga af jörð. og blóðið í æðum bunar sem bænir af dýrlings vör, og andinn hins æðsta leitar sem önd manns á himnaför. Og heimurinn heilagur verður og himnaríki á jörð, því ástin er æðstiprestur við allsherjar þakkargjörð. Og þó eg elski þig eina, eg elska hvem volaðan mann. í ást minni til þín einnar eg öðlaðist kærleikann. Eg helgaðist við þitt hjarta» — og hreinleikans merki ber. Hver andardráttur er dreginn til dýrðar guði og þér. Magnús Á. Árnason Point Roborts, Wash. 12. apríl 1930. Frh. frá síðasta blaði SögiUegir atburðir, tveir eða má- siíe þrír, tilheyra Fríkirkjusöfnuði sérstaklega á þessu ári. Það er: 1. Lagning hornsteinsins að kirkju hans, Opnun kirkjunnar, og 3. Kirkju- v*&slan, sem hvort fyrir sig hafði sérstaka þýðingu fyrir hann og fór al>t myndarlega fram. Við horn- steinslagninguna voru ekki margir, enda vont veður, og ekki aðrir prest- ar en séra H. E. Johnson, þá þjón- andi prestur safnaðarins, er stýrði Þeirri athöfn, og séra Albert E. Kristjánsson. Þetta skeði 25. marz 1929. i hornsteininn var látið það sern hér segir: Ræður prestanna H. Johnson og A. E. Kristjánssonar, fluttar við þetta tækifæri. Avarp eftir öldunginn okkar blinda Magnús Jónsson frá Fjalli — þar lesið upp af G. Johnson. Nýja Testamentið. Trú 0g þekking, eftir séra Friðrik Bergmann. ódauðleika«annanir, °g 1. hefti af Straumum, með sið- Ustu páskaræðu Haraldar Níelsson- ar og mynd af honum, og stutt yfir- yfir kirkjulega starfsemi í Blaine eftir M. J. B. Auk þess talaði og forseti safnaðarins, Mr. Jón Veum, uokkur vel valin orð við þetta tæki- faeri. , Annað: Opnun kirkjunnar sunnu- daginn 26. mai 1929. Hófst sú at- höfn kl. 11 f. h. með guðsþjónustu, Buttri af presti safnaðarins, séra H. Johnson, sem við það tækifæri Butti eina af sínum ágætis ræðum. Auk þess fermdi hann sjö börn og skírði eitt. En séra Albert E. Krist- jánsson frá Ballard flutti bæn. Kirkj- an var troðfull af fólki, sem flest eða allt var þar komið til að sam- fagna Frikirkjusöfnuði með hið nýja °g vandaða heimili hans. Að guðs- Þjónustunni lokinni, eða kl. 1.30, fór hópurinn ofan í samkomusalinn. Þar v°ru þrjú borð eftir endilöngum sal Uieð fannhvítum dúkum. Settust eestir að borðum og neyttu góðrar öiáltíðar, sem fallegustu stúlkur safnaðarins báru fram. Að lokinni fnáltíð kallaði forseti fram þessa *nenn til ræðuhalda: Herra Smith, enskan fasteignasala og einn af helztu borgurum þessa bæjar; séra Sjeffern, prest Congregationalista hér í bæ, frjálslyndan og góðan dreng. Höfðu þeir margt gott að segja um Islendinga og sérstaklega þennan nýja félagsskap og kirkju hans. Þá kallaði Veum fram hvern á eftir öðrum, þá prestana H. E. Johnson og Albert E. Kristjánsson frá Ballard. Fóru allar þessar ræð- ur fram á ensku máli. Sjálfur hélt Jón Veum gagnorða og viðeigandi ræðu á ensku. Kl. 8.30 s.d. hófst síðasti þáttur þessa eftirminnilega dags með venju- legri guðsþjónustu, sem prestur safn- aðarins stýrði. En séra Albert flutti ræðuna — eina af hans mörgu merki- legu ræðum. Ekki er hér rúm eða timi til að taka útdrátt úr þeirri ræðu, og var hún þó vel þess virði. En hér verður þó staðar að nema. Þriðja var kirkjuvígslan, sem fór fram 25: ágúst 1929, og hófst kl. 11 f. h. Athöfn sú var hin veglegasta. I henni tóku fjórir prestar þátt. Séra Ragnar E. Kvaran stýrði þeirri at- höfn og fluttl aðalræðuna, framúr- skarandi góða. Séra Friðrik A. Friðriksson, Wynyard, Sask., flutti eina þá hjartnæmustu bæn, er eg minnist að hafa heyrt. Þeir séra H. E. Johnson og séra A. E. Kristjáns- son töluðu einnig við það tækifæri. Auk venjulegs söngs, sem söngflokk- urinn leysti ágætlega af hendi, venju- fremur jafnvel, þó syngi vanalega vel; söng hann og ný vígsluljóð eftir þau Jakobínu Johnson og séra Fr. A. Friðriksson, ort sérstaklega fyrir það tækifæri. Eg held að það séu engar ýkjur, að þetta hafi verið lang veglegasta athöfn af nokkru tæi eða við nokkurt tækifæri, sem fram hefir farið meðal Islendinga í Blaine. Þeir lúthersku mega og minnast þessa árs, sem merkisárs í sögu þeirra. Þeir hafa bjargast með presta eins og fyr segir; ekki haft fastan prest nema tíma og tíma. En fjármál þeirra hafa gengið afburða vel, svo að við árslok 1929 höfðu þeir mikið í sjóði. Stingur það mjög í stúf við það sem áður verið hefir, og sýnir að einnig þeim hefir klofn- ingurinn verið til ávinnings. Þeir hafa lært aS treysta sjálfum sér, og fundið það traust á góðum rökum byggt. Þegar menn fara svo mjög að finna til þarfarinnar á hverju sem er — sé það ekki beinlínis illt — að þeir eru fúsir að leggja mikið á sig fyrir það, þá fyrst eiga þeir skil- ið að öðlast það og halda því. Vér álítum klofninginn báðum málsaðilum fyrir beztu, úr því að þeir gátu ekki komið sér saman um einn prest og eina kirkju. Þó svo, að vingjamleg samvinna eigi sér stað um þau mál, er öllum ættu að vera sameiginleg. Og einhvern tíma kemur að því. Einnig því, að allir geti átt eina kirkju og hlustað á sama kennimanninn, hvort sem hann þá kallast prestur eða eitthvað ann- að. En það á langt í land, en kem- ur þó. Einstakt mun það í sögu Vestur- Islendinga að konur taki sig sam- an til þess að heiðra eina systur sina. En það skeði þó, og átti upp- tök sin í Blaine undir forystu frú Rósu Casper, sem var fmmkvöðull þess, og með aðstoð nokkurra ann- ara kvenna. Þessar konur gengust fyrir stórkostlegri fjársöfnun í því augnamiði að gefa umræddri systur sinni fé til Islandsferðar, til þess að hún megi verða sjónar- og heymar- vottur {)úsund ára afmælis þingræð- is islenzku þjóðarinnar, sem haldið verður hátíðlegt í júní 1930. Guð blessi þessar stórhuga konur. Almennar fréttir: — Arið 1929 mætti og kalla sam- komuár, að því er Blaine-Islendinga snertir. Aldrei í sögu þeirra hafa verið svo margar samkomur. Má sama segja um það, sem af er þessu ári. Stafar það af tvennu. Fyrst af því, að fleiri menntamenn hafa komið til Blaine á þessum tíma en undanfarandi ár, og flestir eða allir hafa haft samkomur, eina eða fleiri hver. I öðru lagi stafar það af fé- lagafjölda, sem öll streitast við að lifa af almenningi. Auðvitað eru J>au almenningsafkvæmi, og eiga því hjá honum uppeldisrétt, að svo miklu /eyti sem þau miða til góðs, og það gera þau öll, hvert eftir sinni stefnu og vitsmunum leiðtoga sinna. Þau eru ef til vill þyngsta skattabyrði fólks, þegar alt kemur til alls, vegna þess að sú byrði, þ. e. þarfir félag- anna, eiga engin takmörk, eru aldrei fylltar. En samkomurnar eru yfir- leitt mun betri, en áður tiðkuðust þær, og er það góðs vilja vert. Fé- Jagafjöldinn skapar samkeppni, sem knýr fram beztu krafta þeirra. Enda oft meiri völ á nýjum kröftum og góðum, sem eðlilega stafar af að mjög miklu leyti heimsóknum fyr- nefndra menntamanna, og aukinm samvínnu milli Blaine og nærliggj- andi byggða og bæja. Félögin okkar í Blaine eru sem fylgir: Fríkirkjusöfnuður; og innan hans vébanda, Safnaðar kvenfélagið, Ung- mennafélag, söngflokkur og leikfé- lag, sem kallast Iceland. Lútherskur söfnuður og innan hans vébanda, kvenfélag, ungmennafél, söngflokkur og máske fleiri. Sjálfstæð félög: SIGFCrS HALLDÓRS frá HöFNUM ritstjóri Heimskringlu GUÐMUNDUR GRIMSSON dómari Fulltrúi N. Dakotaríkis á Al- þingishátíðinni. Lestrarfélagið Harpa og Lestrarfé- lagið Jón Trausti. Samkomur: Frikirkjusafnaðarfólk lék 17. desember s.l. “Syndir annara” undir stjórn séra Ragnars E. Kvar- ans, og með aðstóð frú Þórunnar Kvaran, er annaðist um búninga og útlit leikenda með manni sínum; í samkomusal bæjarins og siðar að Point Roberts. Aðsókn góð á báðum stöðum. Um meðferð flokksins á leiknum fórust séra Kvaran orð í þá átt: “að hann hefði ekki séð annars- staðar í Vesturheimi þetta leikrit jafn vel leikið. Einstöku persónur hefðu annarsstaðar verið betri, hvergi slikur jöfnuður”. Skal þetta nægja. Enginn efar dómgreind Kvarans, sem oft hefir æft þenna leik áður og séð hann leikinn. Síðar, þ. e. eftir að Kvaran fór austur, lék sami flokkur þennan leik aftur í Blaine, en hafði lé- lega aðsókn Þá var flokkurinn búinn að stofna leikfélagið Iceland. Mun hafa haft tvo nýja menn eða persónur í leiknum, í stað tveggja, sem gengu frá, er félagið var stofnað. Síðan hef- ir nefndur flokkur haft tvær sam- komur, þ. e. þetta yfirstandandi ár, og leikið “Arna á Botni”, kýmnis- leik eftir Jón Jónsson frá Múnka- þverá, og nú nýlega ítalskan leik á ensku. I bæði skiftin var ágætur söngur á milli þátta, bæði af bæjar- fólki og aðfengnu. Aðkomandi menn í síðara skiftið voru þeir herrar Gunnar Matthíasson frá Seattle, Júl. Samúelsson og Magnús Arnason frá Point Roberts. Sá síðartaldi las upp og lék nokkur kvæði eftir sig og Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, afburða vel. I fyrra skiftið var og ívarsson frá Bellingham með harm- oníku sína. Er hann og hljóðfæri hans æfinlega velkominn gestur á öllum samkomum. I bæði skiftin hafði flokkurinn ágæta aðsókn, og gerði víst flesta ef ekki alla ánægða. . Síðari leikurinn var leikinn í safn- aðarþarfir, og telst því til safnaðar- ins, þ. e. Fríkirkjusafnaðar. Ungmennafélag sama safnaðar hefir haft þrjár samkomur siðan það myndaðist A tveim þeim fyrri smá- leiki, ræður, söng og upplestur. Síð- (Framh. á 4. síðu)

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.