Heimskringla - 11.06.1930, Síða 5

Heimskringla - 11.06.1930, Síða 5
WINNIPEG, 11. JtrNl, 1930. HEIMSKRINCLA 5. BLAÐSIÐA “Sálin hans Jóns mlns”, var leikin Point Roberts fólki í samkomusal F'rikirkjusafnaðar, 1. febrúar 1930, undir stjórn hr. Magnúsar Arnason- I &r, sem þar hefir verið nú um und- anfama mánuði. Milli þátta sungu og Point Roberts menn. Þar var og > Ivarsson með harmoníku sína. Fengu Þeir húsfylli af fólki, fullar hendur fjár og lof svo mikið, að fáir, ef hokkrir, sem hingað hafa komið í samskonar erindum, hafa g?rt bet- ur. Pyrirlestrar tveir ,fluttir sinn af hvorum þeirra, séra K. K. ólafssyni frá Argyle og herra Arna Pálssyni ( frá Reykjavík, sá síðari 10. april, hinn nokkru fyr, eða 27. fe’orúar s.l. Báðir góðir og skemtilegir. Fagnaðarmót hafa verið jhaldin. Þessara minnumst vér að hafa heyrt getið eða vitað af persónulega. 60 ára afmæli herra Jónasar Svan- sonar, 12. október s.l., af nokkrum vinum þeirra hjóna. Heimsókn til hjónanna Halldórs (Sleitustaða Dóra) og Kristínar Johnson, í tilefni af því að þau fluttu nýtt hús á landi þeirra. Mun lúth- erski söfnuðurinn hafa staðið fyrir Þvi. Heimsókn til hjónanna Jóns og Sólínar Peterson í sama tilefni, aí Uokkrum vinum þeirra og félags- systkinum í félaginu Jóni Trausta. Báðar þessar ijeimsóknir mun j hafa átt sér stað í janúar 1930. Silfurbrúðkaup hjónanna óla og Sigríðar Pálsson, 23 .febrúar, stóð lútherski söfnuðurinn einnig fyrir Því. Silfurbrúðkaup hjónanna Rósu og Kristjáns Casper, 7. april 1929. Fyr- ir pví stóðu aðallega séra H. E. Johnson og frú hans Matthildur. Það fór fram í Moose Hall að viðstödd- úm fjölda manns, sumir sögðu nokk- úð á þriðja hundrað. , Var það óefað eitt af þeim vegleg- ústu samsætum þeirrar tegundar, er hér hafs. átt sér stað. Þau hjón hafa veri ðhér svo lengi, síðan 1902. ^erið ágætir félagsmenn, þar sem Þau hafa verið með. Naut lútherski söfnuðurinn lengst starfskrafta þeirra he&gja. Auk þess var og Rósa með 8tofnun beggja elzti’ kvenfélaganna ísienzku hér í bæ, og lengst af for- seti Frainsóknar, svo hét annað fé- fegið, í þau 10 eða 12 ár, sem það starfaði. Auk þess eru þau hjón Sestrisin og hjálpsöm, svo að þau eiga fáa sína líka í því efni, og er Þó víða vel. Eitt meðal annars, sem Þau hjón hafa reglulega, eða árlega gert, er það, að hafa eitthvert fá- t®kt, munaðarlaust gamalmenni að horðum sínum að flestum hátíðum. Slíkt er ekki gert til að sýnast. Kada féll margt hlýlegt orð í garð Þeirra hjóna við þetta tækifæri •— °rð sem áttu djúpar rætur. Margs er venjulega að minnast eftir 25 ára samveru. Allan þennan tima hafa Þau búið í Blaine, og íslenzk félög °g félagslíf vaxið upp með þeim og umhverfis þau, og átt þar aðstoð og hluttekning vísa, er þau voru; alveg eins og einstaklingar, sem slíks hafa Þarfnast. öþarft er að taka það fram, að veitingar voru hinar beztu, sem sJálfboðar gengust fyrir. Borð dekk- u®’ og sátu brúðhjónin auðvitað, er voru heiðursgestir fólksins, við há- horðið. Séra H. E. Johnson stjórn- aði samsætinu og kallaði fram þá er tala vildu, og voru þeir óvanalega toargir, er fundu hjá sér hvöt til að gera það. Þau hjónin svöruðu fyrir si& bæði, og fórst það vel, sem vænta ruátti af þeim. -áuk þess, sem hér er talið, hafa verið kveðjusamsæti af ýmsu tæi. Lútherski söfnuðurinn kvaddi séra Kjört Leó og frú hans s.l. vor, og kandídat Erling ólafsson, eftir nokk- , Urra mánaða prestsþjónustu, getið á : öðrum stað, s.l. haust, og Hjört aftur J í vor, er hann fór austur aftur. Einn- j ig' Fríkirkjusöfnuður þau sr. R. E. ! Kvaran og frú hans, eins og getið er hér að framan. Hiftingar hafa verið þessar: Petrína Johnson Peterson og Thom- as Saunders, 19. október 1929. Rósa Dalman og Mr. Wilson, ein- hverntíma í júlí 1929. Jngersoll S. Benedictsson og Kristí- ana Gróa Johnson, 10. febr. 1930. Til heimilis í Blaine, Wash. Jón Jónsson (Hnjúka-Jón) ekkju- hiaður, og Elízabet Eiríksson, einnig ®hkja, þetta yfirstandandi vor. Heim iii þeirra er í Cloverdale, B. C. Fleiri kunna þó að hafa gift sig á Þessu tímabili, þó oss sé það ókunn- ugt. Dauðsföll: — St. ó. Eiríksson, 12. marz 1929, jarðaður af séra H. E. Johnson tveim dögum seinna. Ingibjörg Sigvaldadóttir Johnson, J6. apríl sama ár. hlr. Sigurður Gíslason varð bráð- kvaddur 23. maí 1929; jarðsunginn af séra H. E. Johnson 25. s.m. (Sjá æfi- feril Sigurðar í Almanaki ó. S. Thor- geirssonar, árið 1928, bls. 73. Ragnheiður Sigmundsdóttur Chris- topherson lézt á mjög sviplegan og sorglegan hátt snemma í júní 1929; jarðsungin af Erlingi K. ölafsson. -áUs þessa fólks mun minnst hafa verið í blöðunum, og skal því ekki Anna Vigfúsdóttir Vigfússon (sjá æfiminning á 44^blaðsíðu) fjölyrða um það hér. Húsbrunar hafa orðið nokkrir í bænum, en engir stórir eða tilfinnan- I legir nema einn. En í því húsi bjó öli Isaksson með börnum sínum. Það brann að næturlagi í kringum 16. eða 17. febrúar s.l. Engu var bjargað af munum, en fólkið slapp ómeitt. Slys af ýmsu tæi hafa orðið mörg á þessu tímabili. Tveir Diokersons- bræður meiddust mjög. Annar var í bíl áleið til White Rock, B. C., að- faranótt 22. jan. s.l., með fólki, sem þangað fór frá Blaine til að sjá og máske reyna til að hjálpa. Þá nótt brann stór hluti af verzlunar- parti þess bæjar. Var skaðinn met- inn um $100,000. Bíll sá, er Dicker- son var í valt um í lausum sandi og fór i mjöl. Flestir sluppu lítið eða ekki meiddir, nema umræddur piltur, hann skarst mjög á höfði og herð- um, en hefir þó fengið fullan bata. Bróðir hans missti þrjá fingur af hægri hendi í sögunarmylnu, þar sem hann vann. Bræður þessir eru góðir drengir og efnilegir menn. Móðir þeirra er íslenzk. Um hana eða uppruna hennar og ætt má lesa í Almanaki ó. S. Thorgeirssonar ár- ið 1929, bls. 40. Agúst Breiðfjörð fékk blóðeitrun í fingur á vinstri hendi síðastliðið sumar, og er enn ekki jafngóður af því. Bjarni okkar Pétursson meiddist á hendi snemma í júní 1929. Skeði það með þeim atvikum, sem hér frá segir. Framundan húsi því, er hann bjó í, og átti, var staur einn, sem ein- hverntíma hafði á verið mjólkur- standur bænda, er þar höfðu verið á undan Bjarna. Standurinn eða pall- urinn var nú farinn, en á staurinn hafði Bjarni neglt póstkassa sinn. t þetta sinn stóð Bjarni ferðbúinn úti á braut og beið eftir flutningsfæri, sem hann átti von á. Nefndur staur stóð svo utarlega, að hann gerði um- ferð á því svæði óþægilega. Hafði Bjami lengi ætlað að færa hann úr stað, og hugsaði sér að nota biðina og gera það nú. Varaði sig ekki á því að staurinn var feyskinn, en meira eftir af burðum sjálfs hans en hann gerði sér grein fyrir. Færist hann nú í aukana, gripur um staur- inn og hnykkir á fast. Við það á- tak brotnaði staurinn, en Bjarni fell- ur endilangur — og hann er langur •— aftur á bak, og staurbrotið á hann ofan, og lendir kassaröndin á hand- arbak hægri handar. Bjarni fann allmikið til, stendur samt upp og hristir sig. Varð honum þá litið á handarbakið, þvi þar fann hann mest til, og séi1 að úr því dreyrði lítið eitt, en áleit þó að ekki myndi af verða. Hætti hann við að bíða eftir flutn- ingi, grípur stafinn góða, er þeir syn- ir hans gáfu honum á gull-brúðkaups- degi, sem frá hefir sagt verið í Hkr., og hélt áfram til Péturs sonar síns, því þangað var förinni heitið. Þegar þar er komið, blæðir ákaft úr hend- inni. Tókst Pétri þó að stöðva blóð- rásina og bindur svo um, og vill þeg- ar taka hann til læknis. En Bjami hélt nú ekki. Slíkar skeinur væru ekki hættulegar, og sat nú við það sem komið var. Næstu nótt svaf Bjarni ekki fyrir verk í hendinni, og nm morguninn var hún öll uppblásin og leit illa út. Bjarni bregður sér til Sigurðar Bárðarsonar, sem vissi strax hvers með þurfti. Samt bar Bjarni hendina í fatla nokkuð lehgi, en er nú löngu síðan albata af því meini. Eins og kunnugt er, hefir Bjarni verið heljarmenni og ekki krympað sig við öllu. Datt því ekki 1 hug að leita læknis fyr en í fulla hnefana. Hann hefir og marga svaðilförina farið, og kann vel frá að segja. Oft hefir hann komist hætt, en oftast klakklaust út úr þeim, nema einni.. Frá þeim viðskiftum gekk hann haltur og hefir aldrei náð sér að fullu síðan. I það skifti átti hann i brös- um við naut nágranna sins. Var hann þá enn í Norður Dakota. Nú er Elli kerling að bregða honum þann hæl- krókinn, sem fyr eða síðar ríður hon- um að fullu. Fyrir flagði því beygja allir kné fyr eða síðar, hversu hraust- ir sem verið hafa, það er að segja þeir, sem ná þeim aldri, að hún telji sér skylt að sýna þeim I tvo heim- ana. En okkur þykir öllum vænt um Bjarna, og höldum í hann meðan kost'- ur er. Seint í júni 1929, var ðungfrú As- birna Líndal fyrir því slysi að festa hár sitt í þvottavél — það hár hefir aldrei verið snoðklippt ■—- en fyrir snarræði hennar sjálfrar varð eigi meira af en svo, að læknir tók eitt eða tvö spor í skinnsprettu á höfði henn- ar. Ungfrú Svava Daníelsson slapp með naumindum frá drukknun á Washing- tonvatni síðastliðið sumar. Hún var á smábáti ásamt enskum pilti, Larry Davis. Bátnum hvolfdi og héngu þau á honum fulla tvo klukkutíma, áður en þeim varð bjargað. Veður var kalt og þau aðfram komin af kulda. Ekki kvað þeim þó hafa orðið meint við þetta kaldabað, sem betur fór. Franklin Johnson meiddist svo að hann var frá vinnu nokkra daga. Hann var á ferð með öðrum manm til Point Roberts. Þessi félagi hans ók. Bilaði gjörð á framhjóli; bíll- inn valt um koll og varð Franklin undir. Hinn slapp með öllu. Þetta var 31. ágúst 1929. Roosevelt, yngsti sonur hjónanna Jóns og Rósu Bergmann, fótbrotnaði seint í september síðastliðið haust. Ralph, annar og eldri sonur þeirra, meiddist í baki, einnig í september. Var hann að brúargerð, og flutti til eða lyfti þungu timbri með öðrum manni. Missti hann snögglega sinn enda, og kom þunginn á Ralph, sem hékk á sínum, og bjargaði þannig hinum frá slysi, en leið sjálfur fyrir. Var um lengri tíma undir lækna höndum, og er enn ekki jafngóður. Jón, elzti sonur Bergmannshjónanna, var skorinn upp við botnlangabólgu. Komst yfir þann uppskurð eins og til stóð, en líður að öðru leyti ekki betur. Auk þess hefir verið meiri og minni lasleiki á heimili þeirra, sérstaklega vorið 1929, og einnig nokkuð þetta vor. Armann Eiríksson (St. ó. Eiríks- sonar) varð fyrir bílslysi síðastlið- ið sumar á leið til Vancouver. Fimm eða sex voru í bilnum. Þeir voru í þann veginn að fara yfir járnbrautar “Crossing”, þegar lest kom á brun- andi ferð, sjálfir munu þeir og hafa verið á hraðri ferð; tókst þó að sveigja bílinn til hliðar, svo lestin hitti hann á hlið, um leið og hún flaug fram hjá, og kastaði honum svo hann kútveltist. Enginn meidd- ist til muna, nema Armann, sem fékk rothögg um leið og bíllinn kastaðist og skarst töluvert á höfði, en er nú löngu síðan jafngóður. Bíllinn fór í mjöl, en Eiríksson fékk annan I stað- inn jafngóðan. Veikindi af ýmsu tæi hafa stungið sér niður hér og þar auk þess sem að framan er getið. Vorið 1929 láu tvær konur um líkt leyti, báðar þungt haldnar, en lifðu það af, og hafa nú náð sér aftur. Konur þessar voru Oddný Eiríksson og Þóra Pétursson. Sú fyrri ekkja St. ó. Eiríkssonar, sú síðari kona Bjarna Péturssonar. Oddný veiktist síðari hluta banalegu manns síns; mun hafa ofboðið kröft- um sínum yfir honum, og var þungt haldin, er hann var jarðaður. Frú Þóra Pétursson var og að hjálpa á heimili Eiríkssons-hjónanna, þegar hún veiktist. Louis Bjamason var skorinn upp við botnlangabólgu á sjúkrahúsi í Bellingham í júlí síðastliðið ár. Hafði hann áður verið lengi lasinn án þess að leita læknis eða vita hvað að var. Morgun einn tók langinn sér bessaleyfi og sprakk svona bara upp úr þurru. Fann Bjarnason það svo glöggt, að það sannfærði hann um, hvað um væri að vera. Kallaði hann þá konu sína og sagði henni, hvar komið var. Símaði hún þá lækni, sem kom samstundis og tók sjúkling- inn með sér til Bellingham, en það voru um 23 mílur. Hér í bæ er ekk- ert sjúkrahús . Þegar þangað kom, var langt leiddur, og vist um skeið tókst vel eftir vonum. En Bjarnason var langt leiddur, o gvíst um skeið vafasamt hvemig fara mundi. En samt fór það svo ,að lífið sigraði, og Bjarnason er nú eins fallegur og hann hefir nokkru sinni verið — og hann er fallegur — mennilegur mað- ur. Af miðskólanum í Blaine útskrif- uðust vorið 1929, eftirfylgjandi ung- menni: Clarence Magnússon, Doro- thy Stevens, Barney Peterson og Bill Hansson. Af Luster High School, Finnur Lín- dal og máske fleiri. Gestir hafa verið óvanalega marg- ir hér á þessu tímabili. Flestir þó um það leyti sem Seattle-fólk hélt Islendingadag sinn að Silver Lake, og um það leyti sem kirkja Fri- kirkjusafnaðar var vígð. Meðal þeirra er vér minnumst eru þessir Sv. Jóhannesson frá Portland Ore.; Sveinn Björnsson frá Ballard; þeir prestarnir Kvaran og Friðriksson að austan, beggja getið hér að framan, og sá síðari væntanlegur í þessum mánuði til að taka að sér Fríkirkju- söfnuð; Jóhann Straumfjörð, forseti Sambandssafnaðar í Seattle; Dr. Comish að austan; Dr. Blake frá Portland; Magnússon-hjón frá Win- I nipeg; Weburt Christie frá Argyle; I frú Þórunn Tait frá Antler, Sask.; Mr. Benedikt Líndal frá Winnipeg og sonur hans, nokkru síðar. Benedikt veiktist snögglega og var fluttur á sjúkrahús í Bellingham, og kom son- ur hans að vitja um hann og dvaldi hér um skeið. Benedikt komst til heilsu og fór austur aftur. Forseti Lútherska kirkjufélagsins, séra K. K. j ólafsson hefir og verið hér af og til; er að sögn væntanlegur hingað vest- | ur til þess að þjóna söfnuði þeirra | lúthersku, er séra Kolbeinn Sæmunds- j son hefir þjónað síðustu árin. Har- aldur B. Narfason ásamt frú sinni J Halldóru Kristjánsson, frá Foam | Lake, og fjöldi af fólki frá nærliggj I andi bæjum og byggðum, flest, eins og fyr segir kom til að vera við kirkjuvígsluna. Og síðar, eftir að séra Kvaran og frú hans komu hing- að og voru hér, kom fólk hvaðanæfa til að hlusta á séra Kvaran, og þótti öllum það borga sig vel. Síðast en ekki sízt er að minnast hr. Áma Pálssonar, sem flutti fyrir- lestur sinn hér 10. apríl s.l. Um sarna leyti var og á ferð hér frú Þorstína Jackson-Walters, í þarfir Cunard línunnar. Frú Walt- ers er viðkynningargóð kona, auk þess sem að henni sópar, og fús að gefa leiðbeiningar til heimfarar, hvort sem menn fara á hennar fari eða annara. Margt fleira mun hafa skeð, sem frásagnar er vert, og eitt af því kem- ur nú í hugann, nefnilega veikindi á heimili Hansenshjónanna. Guðlaug Hansen mun hafa verið meira og minna veik nú í fleiri mánuði — í og við rúmið. Og maður hennar Pét- ur Hansen meiddist allmikið. Það skeði svo, að Pétur var að aka út mjólk (hann er mjólkursali) í hand- kerru. Einhver gapinn kom keýr- andi og fór svo nærri að bíll hans rakst á kerruna og kastaði henni og Pétri með til hliðar. Stóð þó Pétur utan við brautina og beið þess að billinn færi framhjá. Þetta virtist með öllu óþarft. Er illa farið, ef menn gera leik til slysa; nóg er nú samt. Gamli maðurinn fékk engar bætur. ökuþórinn sá ekki eða lézt ekki sjá og hélt leiðar sinnar. Fasteignasala og fasteignabýtti — Vinur vor, Jón Veuði, seldi eða býtt- aði heimili sínu hér utarlega í bæn- um, fyrir annað land meira út við bæjarlínu. Fór heimili hans á $6000. Jón byggði þegar mikið og vandað hænsnahús í viðbót við tvö, sem fyr- ir voru, og mun á þessu vori hafa alið 6000 hænsn. Bjarni Peterson seldi heimili sitt út við bæjarlínu, fimm ekrur og hús, og flutti inn í bæinn. Kaupendur voru Wels-hjónin. Frú Wels er syst- ir Magnúsar kaupmanns Thordar- sonar og Matthildar Johnson. Pétur Finnsson, einn af þeim er til Islandsferðar var talinn sjálfsagð- ur, fékk allt í einu eignartækifæri á landi, sem hann hefir búið á nokkur undanfarandi ár. Hætti hann við heimförina og keypti jörðina, svo nú er hann óðalsbóndi — ennþá einu sinni. Þau hjónin, séra H. E. Johnson og frú hans, býttuðu heimili sinu, góðu húsi I bænum, fyrir hænsnabújörð utar I bænum og ala nú 1000 hænsn — eða hún. Hann vinnur þetta sum- ar hjá fiskifélagi norður í Alaska. Ungu hjónin Ingersoll og Kristi- ana Benedictsson eru að byggja gott hænsnahús á lóðum, sem hann keypti síðastliðið sumar, og búast þau við að ala 1500 hænsn. Benedikt Benson hefir og byggt mikið og vandað hænsnahús og keypt 700 hænur 8 vikna gamlar. Slíkar skepnur seljast á 90c til $1.00 stykkið. Þykir það gott kaup og betra en að kaupa unga, þar sem æfinlega má búast við fullum helm- ingi af hönum (en sú tegund karl- kynsins er minna en lítilisvirði), og þess utan dauðsföllum að minnsta 10%, fyrir utan hitagjafa í 5 vikur, sem að sjálfsögðu skiftir tugum dala, og vinnu, sem engin takmörk hefir fyrstu 5 vikurnar og lengur. Þegar ungarnir eru 8 vikna, séu þeir þá hraustir, eru þeir vanalega taldir úr hættu. Margir, sem hafa pen- inga, byrja á þann hátt. Ýmsir fleiri Islendingar, sem aðrir, eru nú að byrja á þessari atvinnugrein. Er það allmikil áhætta fátækum byrjendum — kostnaður æfinlega mikill — en gefst misjafnlega. Menn verða að taka eitthvað til bragðs, þegar at- vinna bregzt, og atvinnuvegum hér um slóðir fækkar óðum og þrengist um; fækkað mönnum, og vinnutími, þ. e. að daga og mánaðatali *fækkar óðum. Þó vilja þeir, sem vinnuna veita af náð — eða fyrir eigin hags- munasakir — helzt láta vinna 10 klukkutima á dag, og meina víst að svelta fólk til þessarar imdirgefni, hvernig sem fer. / Atvinnumál eru í þvi öngþveiti, að aldrei hefir ver verið, og ekkert út- lit fyrir bót á því þrátt fyrir gumið um góða tima. Það er einkennilegt hvað þessum skrumurum tekst að sannfæra fólk um velgengni — jafn- vel það fólk, sem sjaldan eða aldrei hefir fullan maga. Tiðarfar hefir þessi síðustu ár ver- ið allólikt þvi, sem menn hafa átt að venjast. Mildu rigningarnar, sem varla vættu, en féllu meira eða minna á sólarhring hverjum vikum og mánuðum saman, eru mi ótíðir gestir. Regnfallið minnkar með ári hverju, og þegar að rignir, fylgir þvi oftast kalsi, sem varla þekktist hér. Síðastliðinn vetur voru tveir kulda- kaflar, báðir langir og vondir, eftir því sem hér hefir tíðkast. Frost tók á ýmsum stöðum 18 þumlunga í jörð. Hingað til hefir verið álitið, að vatns- pípum væri óhætt 6—8 þuml. niður. En svona reyndist það nú þenna vet- urinn. Að vísu er tíðin enn mild, borið saman við verulega kulda. Og ennþá er ströndin okkar, hér um slóð ir að minnsta kosti, laus við mann- drá’psský eða regnstorma og storm- sveiflur, sem á ýmsum öðrum stöð- um sópa öllu föstu og lausu í hrúg- ur og rastir á fáum augnablikum. Hvort sem þessi veðurbreyting er að- eins tímabils spursmál, eða byrjun á framhaldandi breytingum til hins verra, vita menn auðvitað ekki, en leiða að því ýmsum getum, eins og gengur. Ýmsir kenna það skógleys- inu, og er þá sízt við bótum að bú- ast. Aðrir vona að Republicanar muni koma á nýju jafnvægi, eins og þeir hafa gert í atvinnumálum og öllu öðru — blessaðir. En hinir segja: “Ja, mikil er trú þin, kona.” Margt er nú til tínt, þó margt kunni að vera eftir; sumt af vilja, af þvi að það er betur gleymt en getið. Sumt af gleymsku. A því biðst hér með velvirðingar. Kvæði. — Eg hefi verið beðin að senda nokkur kvæði til birtingar í Heimskringlu, sem tilheyra sérstök- um atburðum í fréttum þessum. Fyrirsagnirna rskýra kvæðin, og mega þau því birtast hvar og hvenær sem rúm og tækifæri leyfir. Þau koma innan fárra daga. Með kærri þökk fyrir fjölmargt nýtilegt og vel sagt í Heimskringlu allan þennan langa tíma. Stundum kemur það fyrir að mig langar til að setjast niður strax og þakka, svo hrifin þefi eg orðið af heilleik skoð- ana þeirra, er ihún hefir flutt, og drengilegri og hispurslausri fram- setningu. Stundum hefir mig jafnvel langað til að segja orð hér og þar. En letin ræður, og svo hitt. Nú er tími yngri manna og kvenna — timi fyrir mig að leggja árar í bát — og samt • A meðan eg lifi, vil eg vaka og fylgj- ast með því, sem gerist, þó eg geti ekki meira. Með vinsemd og virðingu, M. J. B. A sunnudagskvöldið 1. júnl lögðu af sta ðhéðan úr borginni þau Mr. og Mrs. Jakob Vopnfjörð, til Van- couver og annara staða þar suður með ströndinni. Með þeim hjónum fara tveir synir þeirra Davíð og Hörður. Verða þau hjón í burtu um óákveðinn tima. A laugardagskvöld- ið komu saman á heimili þeirra um 40 vinir og vandamenn til að kveðja þau og óska þeim fararheilla, og var þar glatt á hjalla fram yfi rmið- nætti. óska allir vinir þeirra þeim góðrar ferðar og heillar afturkomu. LÁG FARGJÖLD Daglega frá 15 maí Til 30. sept. CANADIAN PACIFIC Að fáum vikum liðnum geturðu not- _ ið ánægjunnar af að dvelja á hinum undurskemtilegu stöðum í Kletta- fjöllunum, á Kyrrahafströndinni, Al- aska, á vesturströnd Vancouver Is- land, Austur-Canada eða jafnvel fyr- ir handan haf. Á ÞEIM FERÐUM ER MARGT AÐ SJÁ KYRRAHAFS STRÖNDIN AUSTUR CANADA Um.. þrjár.. Ijóniandi landslags- leiðir að fara yfir fjöllin. STAÐIÐ VIÐ A ÖLLUM FRÆG UM SUMARBtrSTöÐUM Engar dýrar aukaferðir nauð- synlegar. Hótel meðfram braut- unum og mjög fagurt útsýni. ALASKA Heimsækið hið dular- fulla norðurland á hinu þægilega Princess skipi Frá Vancouver og til baka. $90 FARBRJEF GETA VERIÐ UM VÖTNIN MIKLU Með $10.00 aukaborgun fyrir máltíðir og rúm. ÞRJAR LESTIR DAGLEGA The De Luxe Trans-Canada Limited The Imperial The Dominion VESTURSTRÖND VANCOUV- ER-EYJAR Ferð sögulega eftir- A ^ . tektarverð og mjög C? ^ O skemtileg. Frá Victoría og til baka LÁG FARGJÖLD Komin aftur 31. okt., 1930 tíl 22. maí tíl 23. sept. BANDARÍKJANNA Látið Pacific Agent gefa upplýsingar. Canadían Pacifíc Steamship Tickets to and from European Countries. ^oeooooooeooooeeoooooocooooooooooooooooooooooeooooooe NEALS STORES “WHERE ECONOMY RULES” NABOB TEA— 1 lb. pkt.................................... JUBILEE FRUJT JUICES—Lime or Cherry 12 oz. Bottles .............................. CARILLON CHEESE— % lb. brick ................................ BUTTER—Pride of the West, Extra Choice Creamery, 2 lbs........................................ SALMON—B.C. Red Cohoe Fancy, y2 lb. tin ................................. EGGS—Fresh Firsts Guaranteed, per doz.....J............................... ASPARAGUS CUTTINGS—ExceUent on Toast, Large No. 22 size tin ................I..... JAM—Wagstaff’s High Quality, Pure Cherry, Large 4 lb. tin (24 oz.) ................... PEAS—Green Giant Fancy, No. 2 size tin ............................. CORN—Golden Sweet, No. 2 size tin, 2 tins ..................................... TOMATOES—Ontario Choice Quality, No. 2 size tin 2 tins ..................................... CALAY TOILET SOAP— 4 bars ..................................... SPAGHETTI—Franco-Amer Cooked in Tomato Sauce with Cheese, No. 1 tin, 2 tins ............. CATSUP—Heinz Pure Tomato, Large bottle ............................... SHORTENING—Domeestic Pure Vegetable Oil, 2 Ibs....................................... PAULIN’S TURKISH DELIGHT—Rose and Lemon flavors per lb...................................... “AND MANY OTHERS” 733 Wellington (við Beverley) 717 Sargent Ave. 759 Notre Dame Ave. 666 Sargent (horni Agnes St.) ----------------1—n--nnnnnnnnrinnonnooonooonnnnii n im;

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.