Heimskringla - 20.08.1930, Blaðsíða 8
8. BLAÐSIÐA
heimskringla
WINNIPEG, 20. ÁGírST 1930.
Fjær og Nær
íslendingur, með margra ára
reynslu við verzlun, óskar eftir vinnu
í “General Store” ,helzt hjá Islend-
ingum úti á landi. Allar upplýsing-
ar hjá ritstjóra Heimskringlu.
* * *
Þrifin stúlka, vön húshaldi og mat-
reiðslu, getur fengið vist á barn-
lausu heimili í bænum. Gott kaup.
Sími 26 570.
• • »
Melwin S. Yeo, einn af nemendum
prófessor S. K. Hall, hlaut hæsta
vitnisburð af 10 manns sem luku
prófi í “Teachers Course” við Tor-
onto Conservatory of Music.
Mr. Yeo hefir kennslustofu að 391
Kennedy St., þar fiem hann tekur á
móti nemendum.
* * *
Islandsbréf á Jóhann Sigurðsson
Björnsson á skrifstofu Heimskringlu.
og hr. Karl Thorfinnsson, 668 Alver-
stone St.
* * «
Hingað kom í dag til borgarinnar
Þórir Björnsson frá Blaine, Wash, úr
Islandsferð. Hafði hann dvalið
nokkra /daga hjá kunningjum i Dul-
uth, Minn., á leiðinni að austan. A-
leiðis vestur heldur Mr. Bjömsson á
morgun. f
* * *
Skemtifundur verður haldinn 1
stúkunni Skuld miðvikudaginn 27. á-
gúst. Vandað prógram. Nokkrir
Islandsfarar verða þar og segja frá
förinni. Kaffiveitingar áeftir. All-
ir Goodtemplarar velkomnir.
* * *
Agæt og ódýr herbergi til leigu
fyrir einn eða tvo karlmenn eða kon-
ur, að 620 Alverstone St., hjá Mr. og
Mrs. B. M. Long. Sími í húsinu.
Gnfskrift.
Nú er Asgeir fallinn frá,
fátt við um það tölum.
— Eflaust býr hann öndum hjá
í þeim gullnu sölum.
Svona margur drengur dó
frá dýrstu sigurvonum;
Ýmsu því hann yfir bjó
undir stormgtuggonum. *)
. *) Hinn “fráfallni” gengur með
gleraugu. — Höf.
S. K. HALL
PIANO and THEORY
Studio, 15 Asquith Apts.
Phone 89 834
THOMAS JEWELRY CO.
trrsmiði er ekki lærð á einu eða
tveimur árum. 25 ára reynsla
sannar fullkomna þekkingu.
Hrenslun $1.00 Fjöður $1.00
Waltham Pr $12.00
Póstsendingar afgreiddar tafar-
laust.
CABL THOBLAKSON
úrsmiður.
627 Sargent Ave., Winnipeg
MRS. THOR BRAND
726 VICTOB STBEET
WINNIPEG
tekur á móti sjúklingum (con-
valescent patients)og annast um
þá á heimili sínu.
Talsími: 23130
J. A.
JOHANNSON
Carage and Repair Service
Banning and Sargent
Sími 33573
Heima sími 87136
Expert Repair and Complete
Garage Service
Gas, Oils, Extras, Tires,
Batteries, Etc.
Hér á jörðu var hans val
vörn, til hinstu þrautar,
— Hart á móti hörðu skal,
hvað sem skér og tautar.
Angurgapi víst hann var,
væri því að skifta;
lítils virti flótta-far
flökkulýðs — og skrifta.
Víst var það, að átti oft
ýmsu stríði að fagna,
fannst þá syrta und Svörtuloft
sinna beztu gagna.
Hvar sem íslenzkt lyftist lín,
leit hann hýrt til vinar.
—'Honum þótti þjóðin sín
þeim mun betri en hinar.
Beiskt og heitt var blóðið hans
bæði daga og nætur.
-----Það má láta á leiði manns
lífsins skaðabætur.
Nú er æfi-nóttin stytt
notin fá til svifa;
gröfin þögul gleypir sitt,
— gaman er að lifa!
Margir þekkja þetta stig, —
— það er gömul saga,
að þú færð að eiga þig
eftir þreytu-daga.
Fá eg ætla að falli tár
fyrir vininn þeginn.
Þér á, lagsi, að líða skár
á landinu hinumegin.
T. T. Kalmann.
(
Herbergi til leigu að 752 Victor
Stræti.
Ný
rannsókn
á flugleiðinni yfir norðanvert Atlants-
haf, milli Evrópu og meríku með
viðkomustöðum á lslandi og
Grænlandi.
l'pphaf að pólrannsóknunum miklu
árið 1932—1933.
Rvík 29. júlí.
I gærmorgun kom hingað norskt
selveiðaskip, “Grande”, frá Alasundi
í Noregi. Er það 67 smálestir að
stærð og hefir 75 hestafla hreyfil.
Skipstjórinn heitir Hido.
Skip þetta er. á lei ðtil austur-
strandar Grænlands með 5 leiðang-
ursmenn, sem eiga að athuga þar ýms
skilyrði fyrir því, hvernig sé flugleið
in um norðanvert Atlantshaf, milii
Evrópu og Ameríku, með viðkomu-
stöðum í Færeyjum, á Islandi, Græn-
landi og Labrador. En jafnframt er
ROSE
THEATBE
Phone 88 525
Sargent and Arlington
Thur., Fri., Sat., This Weék~~
The Most Entertaining Picturc
of the Year.
J.ACK EGAN; MABIE SAXON
“THE BROADWAY
HOOFER’’
PASSED
GENERAL
Talking
AT I Singing
1 Dancing
Tears and Laughter Delight-
fully Combined With Music
and Dance
Musical Drama that is
Different
Added
Tarzan; Comedy;
Mickey Mouse
Childrén"”any time except
NrkAicrSaturday Nights Ifír
O W&Holiday Nights » U w
B.ARGAIN SITPPER SHOW
Adults Daily to 7.00 p.m.
Z5C
Mon., Tues., Wed., Next Week
NOBMA TALMADGE
in Her First Talking Picture
“NEW YORK
NIGHTS”
With
GILBERT ROLAND
Romance Under The Bright
Lights of Broadway
Gripping! Colorful! Unusuai!
(Passed General)
Talking Comedy — Fox News
Heitt vatn og heilbrigði!
Heitt vatn er eitt af fyrstu skilyrðunum fyrir heilbrigði.
Með okkar “Optional Gas Water Heater” taxta er kostnað-
urinn stórkostlega færður niður.
Símið; 842 312 eða 842 314.
Winnipeg Electric Company
“Your Guarantee of Good Service”
Four Stores: Appliance Dept., Power Bldg., Portage and Vaughan;
• 1841 Portage Avenue, St. James
Marion and Tache, St. Boniface.
511 Selkirk Avenue.
för þessi farin til imdirbúnings al-
þjóða rannsóknum á veðráttu í pól-
arlöndunum og þar i grend á árun-
um 1932—33.
Formaður þessa leiðangurs er rúm-
enskur prófessor og doktor, Constan-
tin Dumbrava að nafni. Hinir leið-
angursmennirnir eru amerískur loft-
skeytafræðingur ,sem Bassett heitir,
franskur blaðamaður frá “Le Jour-
nal”, Le Fevre að nafni, og tveir
franskir kvikmyndatökumenn, Rene
Ginet og Filippinet.
Morgunblaðið náði tali af dr. Dum-
brava í gær ,og spurði hann um fyr-
irætlanir með leiðangri þessum. —
Sagðist honum svo frá:
Ferðinni er heitið til austurstrand-
ar Grænlands, og í grend við Scores-
bysund ætlum við að reisa timbur-
hús, sem við höfum tilhöggvið með
okkur hér á skipinu. Leiðangurinn
kostar franska blaðið “Le Journal”
í París, kennslumálaráðuneyti Rúm-
ena og rúmenskur blaðahringur. Auk
þess hefi eg lagt fram nokkurt fé frá
sjálfum mér, og veðurstofan belgiska
hefir gefið öll veðurathuganaáhöld,
sem við höfum með okkur. Það er
gert ráð fyrir að þessi rannsóknar-
för kosti 600,000 franka.
Húsið, sem við flytjum með okk-
ur, er franskt og er smíðað eftir því
hvemig veðrátta í Austur-Grænlandi
er. Væntum við þess, að það reynist
vel, og verði framvegis veðurathug-
anastöð. Til þess að halda sambandi
við umheiminn, höfum við með okk-
ur 0.4 kw. loftskeytastöð af sömu
gerð og Byrd hafði á Suðurpólnum.
Er tilgangur farai^nnar aðeins sá.
að rannsaka veðráttu norður þar?
Þessari spumingu svaraði dr.
Dumbrava þannig:
Veðurfræðingum er það löngu
ljóst. að undir veðráttunni við heim-
skautin er komin góð eða vond
veðrátta um allan heim. Þess vegna
færa þeir sig æ lengra norður og suð-
ur á bóginn til rannsókna. Eg hefi
haft mikinn áhuga fyrir rannsókn-
um við heimskautin síðan eg var
drengunr og las ferðasögur hinna
fræknu heimskautafara.
Arið 1919 komst eg fyrst í kynni
við heimskautalöndin, því að þá
dvaldi eg á Svalbarða og síðar í Sí-
beríu um 6 mánaða skeið. Veturinn
1927—28 var eg í Grænlandi, skamt
frá Angmagsalik og gerði þar veð-
urfarsrannsóknir, og nú ætla eg að
halda þeim áfram og undirbúa hinar
miklu alþjóðarannsóknir, sem fram
eiga að fara í pólarlöndunum og þar
í grend árið 1932—33. Verða þá
gerðir út vísindaleiðangrar margra
þjóða og vinna þeir saman á ýmsum
rannsóknasviðum. Þá á meðal ann-
ars að setja á fót veðurstöðvar hring
inn í kringum pólinn, og eiga þær
að senda athuganir sínar til stöðvar
minnar, og verður hún því nokkurs-
konar miðstöð þessara rannsókna.
Og þess vegna hefi eg með mér fjög-
ur senditæki og fjögur móttökutæki.
En fyrst í stað reyni eg að halda sam-
bandi við loftskeytastöðina í Ber-
gen og loftskeytastöðvar á Frakk-
landi og í Ameríku.
I sambandi við veðurathuganir,
ætla eg einnig að gera vísindalegar
athuganir um loftleiðina milli Ev-
rópu og Ameríku yfir norðanvert At-
lantshaf.
Eftir þeirri reynslu að dæma, sera
eg fékk meðan eg var á Grænlandi,
er eg viss um það, að flugleiðin um
Færeyiar, Island og Grænland er
eins trygg og nokkur önnur leið milli
j Evrópu og meríku, ef gerðar eru góð
ar flughafnir og reistar nógu marg-
ar loftskeytastöðvar á þessari leið.
Eg geri ráð fyrir, að það þurfi sex
loftskeytastöðvar (með hér um bil
600 enskra mílna millibili), eina á
Færeyjum, aðra í Reykjavík, þriðju
á austurströnd Grænlands, fjórðu á
vesturströnd Grænlands, fimtu á Re-
! solution Island og sjöttu á Seven Is-
j lands. Eg hefi átt tal um þetta við
franska flugfræðinga, og virtist mér
; þeir hafa mikinn áhuga fyrir því, að
þeissi flugleið væri notuð. Og verði
Frakkar fyrstir til, þá leggja flug-
vqlarnar sjálfsagt leið sína um Eng-
land og Island; en verðt stofnað al-
heims flugfélag til að halda uppi
samgöngum þessa leið, álít eg bezt
að endastöð þeirra flugferða austan
'hafs verði í Bergen.
Við förum héðan i kvöld eða fyrra-
málið, mælti dr. Dumbrava ennfrem-
ur. Þegar við komum til Grænlands,
byrjum við á því að reisa húsið og
j bíður skipið á meðan — líklega 12
til 14 daga. Þá f^r það heim aftur
og með því kvikmyndamennimir og
blaðamaðurinn, en við Bassett loft-
skeytafræðingur verðum einir eftir
og höfum þar vetursetu. Við höfum
með okkur vélbát og búumst við að
geta notað han ntil þess að skreppa
til mannabyggða, annaðhvort til An-
gmagsalik eða Scoresbysund fram í
septembermánuð, ef okkur liggur á.
Én í september kemur ísinn og þá
verðum við inniluktir fram í maí.
* • •
Dr. Dumbrava gat þess ennfremur
að hann væri í samvinnu við franska
vísindamanninn, dr. Charcot á “Pour-
! qouis Pas” ( ?), sem hér er mörgum
| að góðu kunnur. Ætlar dr. Chorcot
! að sigla til Grænlands í vor og sækja
þá dr. Dumbrava.
Hinni fyrirhuguðu pólrannsókn,
sem dr. Dumbrava getur um, verður
stjórnað af sérstakri alþjóðanefnd,
og formaður hennar er La Cour, veð-
urstofustjóri Dana. Veturinn 1932
—33 ætlar dr. Dumbrava að hafa
aðra vetursetu á Grænlandi, og verða
þá með honum tveir vísindamenn.
(Mbl.)
Leiðrétting.
Athygli blaðsins hefir verið vakin
á því, að í grein, er birtist í Heims-
kringlu 6. ágúst 1930, á blaðsíðu tvö
og þrjú, séu viss ummæli gerð af
höfundinum, Mr. A. Björnsson, og
sömuleiðis I bréfi frá Mr. Paul Reyk-
dal, sem feli í sér alvarlega rang-
sleitni gagnvart yfirskoðunarmönn-
um Manitoba Co-operative Fisheries
Limited, eða sem venjulega er nefnt
Fiskisamlagið, nefnilega þau ummæli
þar sem komist er svo að orði, að
bækur félagsins hafi verið “cooked”,
eða á annan hátt óreiðulega með þær
farið.
Heimskringla vill því hér með taka
það fram, að áðurnefnd grein var birt
án þess að eftir' því væri tekið, að í
henni fælust meiðandi orð eða um-
mæli um yfirskoðunarfélagið Miller,
Macdonald & Co., og er henni Ijúft að
lýsa yfir þvi, að hún álítur að slik
ummæli gagnvart yfirskoðunarmönn-
unum Miller, Macdonald & Co., í
sambandi við Fiskisamlagið hafi ekki
verið á nokkrum rökum byggð.
Kappreiðar I Flóanum.
A sunnudaginn fóru fram kapp-
reiðar á nýjum skeiðvelli, sem Flóa-
menn hafa gert á Hestaþingflöt í
Hróarsholtsklettum. Skeiðvöllurinn
er að visu ekki alveg fullgerður enn
(er ekki nema 280 metra langur), en
honum er ágætlega fyrir komið. Er
hann í laut og grasigrónar brekkur
báðum megin við hann, þar sem á-
horfendur eru, og getur hver maður
glögglega séð hvert hlaup frá upp-
hafi til enda.
24 hestar voru reyndir þarna: 11
fullorðnir stökkhestar, 7 folar og
6 skeiðhestar.
Dómnefnd skipuðu Eggert Bene-
diktsson í Laugardælum, Tómas Guð-
barndsson frá Skálmholti og Sigurð-
ur Gíslason lögregluþjónn i Reykja-
vík.
Crrslitin urðu þau, að fullorðnu
stökkhestunum sigraði “Lýsingur”
Bjarna Guðbrandssonar að Læk í
Flóa og fekk 1. verðlaun.
2. verðlaun fekk “Bleikur” Gísla
á haugi (sá sem fekk 5. verðlaun á
kappreiðum á Bólabási) og 3. verð-
laun fekk “Sleipnir” Jóns Gíslasonar
í Brandshúsum.
1 folahlaupinu sigraði “Ospakur”
Jóns i Hraunsgerði á 19.1 sek., önnur
verðlaun fekk “ögn” Arna Tómas-
sonar í Bræðratungu (19.9 sek.) og
þriðju verðlaun fekk “Mósi” Andrés-
ar í Syðri-Gröf (20.1 sek.).
Hlaupvöllurinn var 250 metrar, og
er þetta ágætur tími hjá folunum.
Skeiðið fór þannig að þrír hestar
lágu, en hinir hlupu upp. Enginn
hestur náði þó þeim tíma að hann
fengi 1. verðlaun, en 2. verðlaun fekk
“Hringur” Bjarna Eggertssonar í
Laugardælum (25.1 sek.). Hvorugur
hinna náði þvi að fá 3. verðlaun.
Um 300 manns kom til þess að
horfa á kappreiðarnar og skemtu
menn sér hið besta, enda var veður
hið ákjósanlegasta og staðurinn sem
sagt hinn skemtilegasti. Fóru kapp-
reiðarnar og vel fram.
PRESERVING-TIME
HELPFUL SUQQESTIONS MODERATELY PRICED
Ring top sealers— dozen sma* 90 c
medium dozen $1.10
large dozen $1.55
Spring top sealers— 4 QP small, dozen tpljDO
medium, dozen $1.65
large, dozen .. $2.15
Rubber Bings, packet 7e
Metal Rings dozen 20c
Glass tops, dozen 20c
Mason tops, rft
Jelly Jars /J »
dozen ................. DC
Half-gallon crocks for 4 J*„
pickles, each ....... I DC
One-gallon crocks for Q B
pickles, each ......... uUu
Flve-gallon crocks, ^ 4 rtA
each 4> I .UU
Canning racks to fit »
Hold 8 sealers
Preserving kettles, aluminum
and granite, various sizes,
$1.20° $2.60
Large strainer for washing fruit
handle or colander style
50c,ní 65c
Jar wrench for tightening tops,
15e ““ 25c
Ever-ready strainer set, col-
lapsible; it fits any kettle
$1.50
Blanching Baskets, 25c
Jar Filler (enamel) 35c
—Housewares Section,
Third floor, Portage
Printed fruit labels, assorted 144 in book, 3for 25c
Fancy labels, 25 in box 10c
Plain gummed labels, 4 100 in box £ lfor 25c
Waxed paper, Bradshaw’s 50c
1 lb. continuous rolls
Doilies for jelly jars, packet 10c
Plain white shelf paper,
10sheets 25c
Colored shelf paper, 4 yards in fold 4 I" .
2 folds ..................... I DC
Semi Waterproof Porcelain n r feet
Shelf Paper, ....... Uw
Colored Border paper, ^ yards i| Qq
—Stationery Section,
Main Floor, South
30c
^T. EATON C9
LIMITED
The Viking Press, Limited, gerir prentun smáa og stóra, fyr-
ir mjög sanngjarnt verð. Ábyrgjumst að verkið sé smekklega
. og fljótt og vel af hendi leyst. Látið oss prenta bréfhausa
yðar og umslög, og hvað annað sem þér þurfið að láta prenta.
Bækur og stærri verk gerð eftir sérstökum samingi.
THE VIKING PRESS LTD. i
I
853 SARGENT Ave., WINNIPEG !
I
^ ^ímmi Sö~537 ^ j
►04H»04