Heimskringla - 08.10.1930, Qupperneq 5
WINNIPEG 8. OKTÓBER 1930
HEIMSKRINGLA
5. BLAÐSIÐA
að leitt guðsríki yfir jörðina, þrátt
fyrir allt sitt gum og gaspur. Þetta
er veruleikinn, sem menn horfasl
stöðugt i augu við, þrátt fyrir allt.
Frá þessu sjónarmiði verður heldur
eigi sú hugmynd nein fjarstæða, að
einn stjórnmáiaflokkur ráði betur
þetta árið, en annar hitt.
T. d. er engin skynsemi í að ímynda
sér, að hátolla eða lágtollastefna
eigi alltaf jafnan rétt á sér. Þetta
fer allt eftir straumum og stefnum
á heimsmarkaðinum, verðsveiflum
og iðnaðarmagni landa og þjóða. Vel
má það t. d. vera, að lágtollastefna
liberala hafi einhverntíma átt rétt á
sér, þótt nú sé hún skaðsamleg og
hættuleg Canada, þegar hátollastefn-
an er að fara sigurför um heim all-
an og löndin keppast við að girða um
sig tollmúr. Vel mætti það og vera,
að ef atvinnumál Canada hefðu verið
í betra horfi, að þá hefði eigi þurft
að grípa til hátollastefnunnar. En
eins og málin horfa nú við, er það
nauðsynlegt.
Hver timi þarfnast sinna sérstöku
stjórnaraðferðar, og það finnur jafn-
vel alþýða manna ósjálfrátt betur
en flokksratarnir, með pví að hylta
úreltum og ónýtum stjórnum úr sessi.
Það er neyð þjóðanna, sem rekur á
eftir og hefir vit fyrir þeim í þessu.
að velta hverri stjórn, þegar hún hef
ir á einhvern hátt leitt þjóðina á villi-
götur, eða fyllt mæli synda sinna.
* * *
Það er svo ótal margt, sem hinir
ofstækisfullu flokksglópar ekki skilja
eða ekki vilja skilja, vegna þess, að
þá skortir manndóminn til að sjá
villu síns vegar og kannast hrein-
skilnislega við yfirsjón sína, þegar
þeir eru komnir á villigötur. Alveg
eins og t. d. dr. Sig. Júl. Jóhannes-
son var ritstjóri að liberal blaði og
hefir verið í liberal flokk, að þvi er
hann segir sjálfur, þrátt fyrir það
þótt hann dáist mér að kommúnist-
um og öll samúð hans sé með þeim.
alveg á sama hátt gæti t.d. ritstjóri
Heimskringlu verið jafnaðarmaður,
þótt hann litit eftir conservatív blaði
ÞO getur
STAÐIST ÞAÐ
Litil niðurborgun og þér hafið
þessa ágætis Westinghouse I
húsi yðar, eldhúsinu til prýði
og vinnu yðar til léttis. Og með
dálítilli upphæð, svo lítilli þó
að þú tekur ekki eftir því, er
á neyzlu miðann er bætt á mán-
uði, borgar vélina að öllu á
stuttum tíma.
Westinghouse
“FLAVOR ZONE”
Antomatic Range
eldar máltíð yðar, snýr orkunni
á eða af, sparar raforku, á
meðan þér eruð í burtu.
Heimsækið aðal á^tningar sal
vorn og látið Mrs. Lenton sýna
yður áhöld vor. Og sjáið hið
ágæta rafvöflujárn, sem við
sem stendur gefum í kaupbætir
með Cabinet Model Westing-
house Range.
Cfty ofWfnnfpeg
HydroItotncSijstem,
55-59 XyJ" PRINCESS ST.
án þess að vera nokkuð verri maður
en dr. Sigurður . Eigi kæmi oss það
til hugar, að líkja dr. Sigurði við
skækju ,eins og hann gerir með rit-
stjóra Heimskringlu, fyrir þessa sök
eina, að hann fylgdi liberal flokknum
og var ritstjóri við liberal blað, án
þess að vera að öllu flokknum sam-
þykkur í hjarta sínu. Hefði verið
hægt að ímynda sér, ef maður hefði
ekki þekkt doktorinn, að hann liti
þannig á, að kommúnistar hefðu
ekkert tækifæri í landinu, og þá væri
þó stefna liberala skárri af tvennu
illu, og mætti heldur finna henni ein-
hvfer rök, og hún mundi í bráðina
hjálpa landinu betur áfram en ann-
að, þegar um það “ideala” þjóðfélags-
skipulag væri alls ekki að ræða* —
Þetta má kalla að fylgja "röngu”
máli með hreinum og hlutlausum
hug. En nú hefir doktorinn marg-
sinnis sýnt fram á það, að þannig
hafi hann ekki hugsað. Málagang-
a hans hjá liberala flokknum virð-
ist hafa verið til þess eins
gerð, að fiska eftir þingsæti. Hins
vegar er flokksofstæki hans svo m1k-
ið, og hugmyndir hans frumstæðar
um pólitík, að honum finnst hann
þurfa að sækja um það, að fá að
hafa persónulega sannfæringu! —
Þetta stappar einmitt nær hinum
venjulega hugsunarhætti skækjunn-
ar. Hún selur sig fyrir ágóða. Hún
er hundslega undirgefin og dettur
ekki í hug, að hún hafi rétt á að hafa
nokkurn vilja. Hins vegar er henni
ótryggðin runnin í blóðið, svo að j
hún gripur hvert tækifæri, sem hún
getur, til að svíkja þann, sem hún á j
kaup við. Fyrir flestum fer þess
vegna eins og hinum vitra Salómon.
að þeir reka hana út úr húsi sínu
með andstyggð.
• • •
Svo að vér þá snúum oss aftur að
þessu, sem doktorinn ekki skilur, að
menn með óháða dómgreind geti
stjórnað blöðum, án þess að vera
nokkur flokksþý sjálfir, þá liggur
auðvitað lausn þess í því, að hver
flokkur eða stefna hefir jafnan til
sins máls nokkuð, og er það verk-
svið hvers flokksblaðs, að leita hinna
ítrustu röksemda frá sinni hlið, og
þetta er sanngjörnum mönnum auð-
velt að gera með hreinum hug og á
drengilegan hátt. Flokksofstækið
getur það ekki og skilur það ekki, og
af því skapast öll stjómmálaspilling.
En t. d. málaflutningsmepnirnir
skilja það. Hin opinbera réttvísi
skilur það, og gerir það að einum
ríkum þætti í málafærslu sinni. —
Þess vegna tókum vér hið auðvelda
dæmi um lögmanninn Hjálmar Berg-
mann, sem dr. Sigurður, röksemdum
sínum samkvæmt, reynir meðal ann-
ara að klína portkonunafninu á i
sinni ósmekklegu ritgerð. Hefir
þessi ágæti lögfræðingur átt öðrum
kveðjum að fagna úr þeirri átt. Auð-
vitað getum vér nú naumast verið
að halda þvi fram, að hann hafi
kannske mannbætt sig mikið á því,
að vinna mál minna hlutans af Tjald-
búðarsöfnuði forðum, aridstætt þvi
er hann varði mál Þingvallasafnaðar
nokkrum árum áður. I það mái
virðast hafa blandast of persónuleg-
ar ástæður, til þess að hægt sé að
búast við því, að þar hafi verið unn-
ið af hlutlausum hug. En hitt vit-
um vér, að .hann hefir tekið að sér
að forða glæpamörinum frá hengingu
og þykir oss sennilegt, að þar hafi
ráðið mannúðarhvatir, fremur en fé-
græðgin ein. Yfirleitt á allri skipun
réttvísinnar að vera þannig fyrir
komið, að þar ráði sahnleiksástin
frekar en nokkuð annað. Og blaða-
mennskan, ef hún er nokkurs nýt, þá
á hún að vera einskonar málafærsla
flokkanna, flutt af skynsömum mönn
um til itrustu málsbóta hverri stefnu.
• • •
Vér viljum því enn halda þvi fram,
að menn með málaflutningshæfileika
og hlutlausri dómgreind, séu miklu
hæfari til ritstjórnar en ofstækisfull-
ir flokksratar, sem aldrei sjá i hjarta
sínu nema eina hlið á nokkrum hlut.
“Tanglefirí’
Fish Nets
“Catches the Fish”
linnen and cotton netting for all manitoba
LAKES IN STOCK HERE.
LAKE WINNIPEG:—Sea Island Cotton and Natoo for Tulibee
fishing in 30, 32, 36, 40 and 45 meshes in 60/6, 70/6 and 80/6.
LAKES MANITOBA, WINNIPEGOSIS AND PAUPHIN:—-
Lmnen and Cotton Netting in all standard sizes.
Sideline:—Seaming Twine, Floats and Leads.
We seam Nets to specifications.
Call and see us or write for Price List and Samples.
FISHERMENS SUPPLIES LTD.
132 PRINCESS ST., Cor. William and Prineess, Winnipeg.
PHONE 28 071
Af eðlilegum ástæðum hefir dr. Sig.
Júl. Jóhannesson játað það, sem vér
getum svo mæta vel ráðið af lítilleg-
um orðaviðskiftum, sem vér höfum
átt við hann áður, að hann skildi þetta
ekki. Vér gerum heldur ekki ráð fyr-
ir því, að hann skiiji mikið af því,
sem að ofan er ritað, og skrifum það
þess vegna ekki hans vegna, heldur
annara, sem gaman kynnu að hafa
af að hugsa út í það, sem hér er rit-
að. Til þess að gera misskilning
sinn og skilningsleysi sitt ekki eins
lýðum ljóst og í síðasta tölublaði
Lögbergs, viljum vér ráðleggja dr.
Sigurði að tala ekki meira um þetta
mál. Oss þykir vænt um, að dokt-
orinn er þó kominn það langt í sannri
vizku, að játa og finna til skilnings-
leysis síns. Ef hann heldur áfram
því auðmjúka og barnslega hugar-
fari, þá er ekki vonlaust um, að síðar
kunni honum að opinberast hin æðri
spektin. Þess vegna þökkum vér hon-
um líka fyrir einlægnina.
VÍSINDI og TRÚ
(Frh. frá 1. síöuj.
hafa áður eða ekki — sú afstaða er
hið stærsta verðmæti nútímalífsins,
sem við getum fundið, ef við lítum
yfir heildarsvið mannlegrar þekking-
ar.
Afleiðingamar af þessari breyttu
afstöðu eru ekki ávalt sem viðkunn-
anlegastár. Sú hugsun, að vísindi
og trú séu andstæð hvort öðru, ger-
ir viða vart við sig nú á dögum. —
Sumir menn vilja algerlega snúa baki
j við trúnni sem uppsprettu ljóss og
leiðsagnar og leita í vísindunum að
svörum við öllum spurningum. Það
er að verða okkur stöðugt ljósara,
að visindin séu að umskapa þenna
heim. Allmargt fólk leitar nú til
vísindamannsins fremur en til trú-
mannsins eftir leiðbeiningu á þessum
tímum erfiðra viðfangsefna og mik-
illa vandamála.
Sjálfur er eg á þeirri skoðun, að
það sé rangt álit að mestu leyti, að
vísindi og trú séu þær andstæður,
sem oft er haldið fram að þau séu.
Sumir menn segja, að yísindin séu
grundvölluð á þekkingu, en trúin sé
ekki annað en trú. Vísindin, sem
stöðugt skírskota til þess, sem er
þekkt og unnt er að þekkja, hljóta
því vissulega að veita betri leiðsögn
en trúin, sem er grundvölluð á hinu
óþekkta og óþekkjanlega. Vísindin
geta stært sig af því, sem þau hafa
afrekað; trúin hefir ekkert nema
vonir að bjóða.
Enn eru aðrir, sem mundu setja
mótsetninguna fram í allt öðrum orð
um, en eru jafn hlutdrægir trúnni í
vil og andstæðir visindunum. Þeir
mundu segja: “Við treystum trúar-
brögðunum með þeirra óskeikulu op-
inberun sannleikans, fremur en vís-
indunum, sem breyta niðurstöðum
sínum á hverjum áratug, og hljóta
þess vegna að vera óáreiðanlegur
leiðarvísir. Vísindin hafa oft ákveð-
ið einn daginn, að það sé skynsamlegt
að trúa þessu eða hinu, en hafa svo
ákveðið næsta dag, að það sé skyn-
samlegt að trúa því gagnstæða.” Því
er stundum haldið fram, og það er
mjög mikill sannleikur í því, að vís-
indunum hafi farið fram á liðnum
árum, og sé að fara fram, eftir þvi
sem ein vitsmunavillan sé leiðrétt
með annari. Sé það satt, þá eru vís-
j indin blindur leiðtogi, sem leiðir blinda
út í fen og foræði.
En fullkomið yfirlit á báðum þess-
um sviðum rannsóknar og íhugunar,
leiðir í ljós að hvortveggja þessi sam-
anburður sé rangur. Bæði í vísind-
um og trúarbrögðum er margt, sem
er vafasamt, og margar niðurstöð-
ur eru ekkert annað en staðhæ^ing-
ar um það, sem menn trúa. A hvoru-
tveggja sviðinu er margt, sem við
getum ekki fengið neina úrslita úr-
lausn á spurningum okkar í; en á
báðum er líka meira eða minna, sem
fullnægjandi niðurstöður hafa feng-
ist í. Það er sýnilega ósanngjarnt
bæði gagnvart vísindunum og trúnni,
að bera saman þróun annars og full-
gerðan árangur hins. Hinn eini rétti
grundvöllur samanburðarins er, að
bera saman fullgerðan árangur
beggja og þróun beggja. A þeim
grundvelli finnum við, að vísindin
hafa lagt skerf til framfara trúar-
bragðanna á margan hátt; sumt af
því er augsýnilegt, en sumt kemur
þá fyrst í ljós, er við leitum dýpra.
Vísindin eru sýnilega í þjónustu
trúarbragðanna. Eitt aðal atriðið í
öllum meiri háttar trúarbrögðum er
að láta sjúka læknast, augu blindra
opnast, óviðunandi hagsmunalegar
aðstæður breytast til batnaðar, og að
gefa þeim, sem enga möguleika hafa
til að sýna hvaða manndómi þeir
búa yfir, tækifæri til að njóta sín.
Að lækna sjúka og að hjálpa bág-
stöddum, — þetta eru mikils verð
atriði í öllum meiri háttar trúar-
brögðum. Er það ekki bersýnilegt,
að í þessum atriðum hafa trúarbrögð
in notið góðs af þeirri þekkingu, sem
vísindin veita?
Sannleikurinn er sá, að meiri
verk eru framkvæmd nú á dögum 1
spítölum, líknarfélögum og hjálpar-
stofnunum af ýmsu tæi, í þá átt að
bæta úr böli mannkynsins, heldur en
unnin voru á bökkum Genezaret
vatnsins i Galíleu fyrir 2000 árum,
vegna þess að trúarbrögðin hafa
notað sér áhöld þau, sem vísindin
leggja upp í hendur nútímamannsins.
Trúin afrekar meira í þessum prak-
tísku, hversdagslegu hlutum nú á
dögum, heldur en hefir verið afrek-
að nokkurntíma á liðnum öldum.
Vitanlega er það öllum ljóst, að
vísindin fást við þessa hluti án til-
lits til afleiðinganna. Verkfæri þau,
sem vksindamennirnir rétta_ að okk-
ur, standa öllu skynsömu fólki til 1
boða, hvort heldur er til góðs eða |
ills. Flugvélin, sem flytur bréf og
velvildar-kveðjur yfir löndin og höf- j
in, er líka nothæf til þess að láta |
eiturgasi og sprengiefni rigna niður
á ófriðartímum; áhöld, sem eru bú-
in til í þvi skyni að gera hendur
mannanna færari til afreka, má nota
annaðhvort til þess að hjálpa mann-
kyninu eða til þess að gera því
skaða, eftir því sem menn vilja;
verkfæri, sem eru til reiðu fýrir hinn
göfugasta mann, er vill vel og hefir
hinn bezta tilgang, eru líka til reiðu
hinu versta og eigingjarnasta smá-
menni í landinu. '
Vísindin, sem fá okkur í hendur öfl-
ugri vélar og betri aðferðir til þess
að fást við praktísk úrlausnarefni, eru
í mjög mikilsverðum skilningi blind
Trúin verður að velja takmörkin, er
aðferðir vísindanna geta hjálpað okk-
ur að ná. Trúin verður að segja fyrir
um hina hærri notkun þessara stöðugt
fjölgandi verkfæra. Hér í liggur meira
en bending um mismuninn á vísind-
um og trú og þörfina fyrir hvort-
tveggja.
Þegar vísindin eru notuð til þess
að fá yfirlit yfir hið raunverulega,
verður afar mikil bylting í huga hins
trúhneigða manns. Fyr á tímum voru
trúarbrögðin hæli, sem menn gátu
leitað í, á flótta sínum frá heiminum.
Þeir flúðu frá náttúrunni til ein-
hvers, sem þeir héldu að veitti sér
meiri fullnægingu en náttúran sjálf.
En ef við eigum að nota aðferð vís-
indanna til þess að eignast yfirlit yf-
ir hinn raunverulega heim, þá verðum
við hiklaust að sætta okkur við nátt-
úruna. Hugur þess manns, sem verð-
ur fyrir áhrifum frá visindum nútím-
ans, getur ekki umflúið náttúruna. Sú I
trú, sem er hæli eða örugg höfn, sem :
menn geta flúið í, og snúið baki við j
náttúrunni, er ekki lengur fullnægj- j
andi trú. Trúin hefir komið niður af
himninum í skýjlim landafræði eða |
sálarfræði til jarðar, sem á mikið
skylt við landafræði og sálarfræði.
Meiri bylting en þetta er ekki mögu-
leg í hugum þeirra manna, sem hugsa
grandgæfilega um trúmálin.
Menn hafa á margan hátt reynt
að flýja frá náttúrunni; þeir hafa
gengið eftir ýmsum vegum, þegar
1 þeir hafa verið að reyna að finna
ráð til þess að komast undan lögum
þeim, sem náttúran þrengir upp á
hugi og hjörtu mannanna.
Einn flóttavegurinn er sá, sem
margir heimspekingar hafa gengið
eftir. Kant*) t. d. flýði eftir vegi
hinnar hreinu hugsunar inn í innstu
tylgsni vitsmunanna. Aðrir hafa
fiúið eftir vegi tilfinninganna inn í
innstu fylgsni hjartans, til þess að
finna þar frelsun frá örðugri reynslu
j hins ytra lífs. Sumir hafa fundið
þar frelsun, i bili að minnsta kosti,
| er þeir hafa snúið sér inn á við i
j leitinni eftir sannleikanum, og haft
hinn ytri hlutlæga heim að baki sér.
Nú á dögum eru þeir margir, sem
finna flóttaveg með því að neita
veruleika hins skynjanlega heims, er
visindin lýsa fyrir okkur, en halda
fram veruleika innri reynslu, annars
hetms, sem þeir segja, að sé hinn
eini verulegi heimur.
Annar flóttavegurinn er sá, sem
sumir nútíma húmanistar** og marg-
ir nútima vísindamenn fara eftir.
Bertrand Russell er meðal þeirra
fremstu, sem neita veruleika hinnar
innri reynslu og halda þvi fram, að
enginn veruleiki sé til nema hinn
ytri heimur, sem við fáum skynjað.
Þeir finna ekkert nema^ ósjálfrátt
starf í öllu því, sem við getum
skynjað umhverfis ókkur. Við end-
ann á þeim vegi liggur sú bölsýnis-
þrungna og dapurlega niðurstaða, að
almáttugt efni, eins og Russell segir,
hrærist ósveigjanlega og óaflátan-
lega áfram, og velti sér eins og gufu-
vélar bákn, yfir allt, sem á vegi þess
verður.
Þriðji flóttavegurinn er gefinn í
skyn af andlegum leiðtogum eins og
Santayana*** og Freud****, er snúa
þér sem
notiff
TIMBUR
KA UPIÐ
AF
The Empire Sash & Door Co., Ltd.
BirgSir: Henry Ave. East Phone: 26 356
Skrifstofa: 5. gólfi, Bank of Hamilton
VERÐ GÆÐI ANÆGJA.
UNIVERSITY OF MANITOBA
EXTENSION COURSES
in
COMMERCIAL SUBJECTS
Bookkeeping and Accounting
Auditing
Business English
Office and Secretarial Practice
Mathematics
Politica! Econonmy Commercial Law
Classes open on various dates #during
the week of October 6th. Booklet out-
lining them supplied on request by
THE REGISTRAR,
CNIVERSITY OF MANITOBA
Telephones: 21 979
21 939
sér frá heimi hins skynjanlega veru-4
leika að heimi imyndunarinnar, heimi
hugarflugsins og draumanna. Þeir
játa, að þetta sé líklega aðeins hugar-
flug, en þeir finna i því bót við gæfu-
snauðum aðstæðum og erfiðum breyti
leik lífsins.
Að flýja frá náttúrunni nú á dög-
um er ómögulegt. Vísindin neyða
okkur til þess að sætta okkur við
náttúri^na. Það er eins og taka
rósarunn í fang sér; það eru bæðt
þyrnar og blóm á runnunum. Að
sætta sig við náttúruna og aðhyllast
hana, er að fela í faðmi sínum það,
sem særir, ekki síður en það, sem
lyftir upp hug og hjarta, hugsanir,
,gem draga úr dáð okkar, jafnt seir*
hugsanir, sem visa okkur veginn ttl
nýrrar og hærri viðleitni.
ÞETTA UNDRA TILBOÐ STENDUR ENN ! !
HEFIRÐU ENN-
Þ Á F E N G I Ð
PERLU YÐAR?
Vit5 Wum fengit5 miklar birgftir af þess-
um pRemiums og þú getur enn fengi?5 eina
af þes'fcum f g:ru 60 þumlunga festum, sem
fyllilega eru $1.00 virbi.
TVEIR MIÐAR AF
Royal Crown Flaked Lye
OG 25c
Kaupit5 2 könnur af Royal Crown Lye af kaup-
manni yöar, sendib 2 Vnit5a og 26c, skrifit5 nafn
ybar greinilega. Perlunnar vert5a sendar met5
nwsta pósti, fritt. Náit5 í yt5ar met5an birgt5ir
endast.
THE ROYAL CROWN SOAPS LTD.
• WINNIPEG
*) Immanuel Kant, frægur þýzkur
heimspekingur, sem var uppi á 18.
öld og ritaði margar bækur um heim
spekileg efni, sem hafa mikið gildi
enn í dag. — Þýð.
**) Húmanistar eru næs1;a óákveð-
inn flokkur, og nafnið hefir ýmsar
merkingar, eftir því, hvort átt er við
bókmenntir, heimspeki eða trúmál.
— Þýð. ,
***) Prófessar George Santayana.
merkur heimspekingur og rithöfund-
ur, hallast mjög að skáldlegu hugsæi.
*•**) Próf. Sigmund Freud, nafn-
kunnur sálkönuður, sem hefir ritað
margt um eðli drauma og uppruna
þeirra. — Þýð.
Oktober 5 til 11
Eld-
varnar
vlka
ES
Eld-
varnar
vika
£3
SKRIFSTOFA VERKAMÁLA
OG ELDSVARNA
ELDUR
er orsök ótéljandi skaða
ELDSTAP MANITOBA
FYRIR 1929
Fjörutíu og þrjú
[43]
MANNS LÍF
$2,652,497
í EIGNUM
EYBILÖGBUM
Það getur hver maður hjálpað til að
koma í veg fyrir þetta með því
að vera varkárari.
Issued by authority of
HON. W. R. CLUBB
Minister of Public Works
and Pire Prevention Branch
E. McGRATH,
Provincial Fire Commissioner
Winnipeg