Heimskringla - 25.03.1931, Qupperneq 2
S BL.AÐSS5A
HEIMSKRINCLA
WINNIPEG, 25. MARS 1931
Tólfta ársþing
þjóðræknisfélagsins
12. ársþing Þjóðræknisfélags Is-
lendinga í Vesturheimi var sett í
í Goodtemplarahúsinu á Sangent
Ave., Winnipeg, 25. febrúar 1931,
kl. 10 árdegis, með því að forseti
bað þingheim að syngja sálminn
“Lofið guð’’.
Forseti flutti því næst ávarp sitt
til þingsins.
B. B. Olson bað þingheim að
standa úr sætum sínum til þess að
votta forseta þakklæti sitt fyrir hið
ítarlega erindi. Urðu allir fundar-
menn við þeim tilmælum.
B. B. Olson stakk upp á að for-
seti skipaði þrjá menn i kjörbréfa-
nefnd. Asg. Bjamason studdi og
var till. samþykt. Forseti skipaði
þessa menn: O. S. Thorgeirsson, B.
B. Olson og Bjama Dalman.
B. B. Olson gerði tillögu um að
forseti skipaði þriggja manna dag-
skrárnefnd. Mrs. Byron studdi. Var
till. samþ. Forseti skipaði þessa
menn: Árna Eggertsson, Jónas K.
Jónasson og R. E. Kvaran.
Eftir stutt fundarhlé lagði dag-
skrárnefndin fram svohljóðandi álit:
“Dagskrámefndin leggur til að
þessari dagskrá verði fylgt á þing-
inu:
Skýrslur embættismanna.
Ctbreiðslumál.
Fræðslumál.
Upptaka lestrarfélaga og annara
skyldra stofnana.
Iþróttamál.
Skýrslur milliþinganefnda.
Heimfararmál.
írtgáfa Tímaritsins.
Bókasafnsmál.
Kosning embættismanna, kl. 2 e. h.
siðasta þingdaginn.
Ný mál.
Ami Eggertsson
J. K. Jónasson
Ragnar E. Kvaran.
H. Gíslason lagði til og G. Frið-
riksson studdi að nefndarálitið yrði
samþykt. Till. samþ. í einu hljóði.
Forseti las því næst bréf frá Fal-
con Athletic Association er svo
hljóðar:
Wpg., Febr. 23rd, 1931.
Icelandic National League,
Winnipeg, Man.
Dear friends:—
We the undersigned as members
of the Falcon Athletic Association
take the opportunity of thanking
you for your loyal support in the
past.
Our organization was never more
alive with activity and enthusiasm
than right now. We have had four
team Hockey Leaugue going all Win-
ter, and our indoor sports are going
good.
Glima, Boxing, Wrestling and oth-
er Gymnastics are progressing.
We have 200 members enrolled of
which 130 are fully. paid up and
active members.
You people have made it possible
for us to get this far ,and we hope
that you can see your way clear to
help us to carry on and get our
club so strong with our young Ice-
landic Canadians that they all want
to belong to it. We want to give the
boys a Hockey Cup and also have
one for baseball.
This is the only organization of
its kind in Canada, and we know
you will assist us in our work.
Thanking you again for your
wonderful help in the past,
we remain,
yours sincerely,
W. D. Bjarnason
C. Thorlakson.
H. Gíslasn og R. E. Kvaran lögðu
Hafið þér reyrt að koma á stað
FROSNUM BÍL?
. . . Hafið þér nokkurn-
tima á köldum morgn-
um eytt hálfum kl.tima
í að koma bíilnum á
stað ? Agæt stæling fyrir
vöðvana, . . .' en ná-
grenninu síðar til skemt
unar.
Hefir yður nokkumtima
komið til hugar að klæða
bíl-skúrinn með TEN /
TEST, og verja þannig
nætur frostinn inn? ....
Þér getið það auðveld-
lega. Og tilkostnaðurinn
er smáræði en hugsið
yður munin sem það
gerir!
TEN/TEST er svo létt
að nota. Þá má saga það
og negla sem borðvið.
Fimm-áttundu úr þuml-
ungi, lofthelt og sterkt
og endist æfilangt.
Látið oss sýna yður,
hvemig þér getið breytt
sumar byrginu í vetrar
skýli með TEN/TESTi
til að bréfinu væri vísað til væntan
legrar íþróttanefndar. Samþ. með
öllum atkvæðum.
ó. S. Thorgeirsson skýrði frá störf
um kjörbréfanefndar. Gat hann þess
að aðeins deildin Brúin í Selkirk
hefði sent fulltrúa með umboði. En
væntanlega bættust fleiri við siðar
á þinginu. Gæti nefndin því ekki
lokið verki sínu að svo komnu.
Arni Eggertsson las upp reikning
féhirðis.
Ó. S. Thorgeirsson las reikninga
fjármálaritara og skjalavarðar.
B. B. Olson lagði til að forseti
skipaði fimm manna fjármálanefnd
til þess að fara yfir skýrslurnar og
hafa með höndum fjármálahlið fé-
lagsmálanna á þinginu. B. Dalman
studdi. Var till. samþ. Forseti út-
nefndi þessa: A. P. Jóhannsson, Ing-
var Gíslason, Kristján Benediktsson
og Mr. F. Swanson.
A. P. Jóhannsson bað forseta að
skipa annan en sig sem fyrsta eða
formann nefndarinnar, með því að
hann ætti erfitt, sökum annríkis, að
sinna því verki.
B. B. Olson mæltist til þess við
Á. P. J. að hann tæki þessi tilmæli
aftur, með því að reynsla væri feng
in fyrir þvi á fyrri þingum ,hve
mikið lið væri í honum við þetta
nefndarstarf. Fór svo að lokum að
*•
Á. P. J. tók aftur tilmæli sín.
K. Benediktsson baðst undan kosn
ingu. G. F. Friðriksson var skipað-
ur í hans stað.
Otbreiðslumál voru tekin fyrir.
R. E. Kvaran stakk upp á þvi, að
forseti skipaði fimm manna nefnd
i það mál. B. B. Olson studdi. Till
samþ. Forseti tilnefndi: J. P. Sól-
mundsson, Hjálmar Gíslason, ó. S
Thorgeirsson, Mrs. Ástu Eiríksson,
Miss Hlaðgerði Kristjánsson. H.
Gíslason baðst undan nefndarstörf-
um sökum lasleika. Arni Eggertsson
skipaður í hans stað.
Fræðslumál voru þá tekin fyrir.
Mrs. Jódís Sigurðsson las skýrslu
frá kennurum deildarinnar Frón I
Winnipeg. Bar sú skýrsla með sér
ágætan og mikilsverðan árangur af
kenslustarfinu, en sökum þess að
telja verður þetta fyrst og fremst
mál deildarinnar, er sú skýrsla ekki
tekin inn í þenna fundargerning.
R. E. Kvaran gerði tillögu um að
forseti skipaði þriggja manna nefnd
til þess að fjalla um fræðslumál.
G. F. Friðriksson studdi. Till. samþ.
Forseti skipaði þessa þingmenn:
J. J. Bíldfell, Run. Marteinsson og
Bergþór E. Johnson.
Þegar hér var komið var þing-
fundi frestað til kl. 2 e. h.
Leitið eftir upplýsingum og verðlagi hjá
WESTERN DISTRIBUTOR
The T. R. Dunn Lumber Co., Limited
WINNIPEG, MAN.
FÆST HJA ÖLLUM BETRI TMBURSÖLUMI LANDINU
TD2R
Fundur var settur samdægurs kl.
e. h. Fundargerningur lesinn upp
og samþ. ,
Forseti bað ritara að lesa skýrsl-
ur þær, er borist hefðu frá deildum
Las hann eftirfarandi skýrslur:
I.
Þjóðræknisdeildin Island við Brown
Man., hafði sex góða vel sótta og
skemtilega fundi á liðnu ári (1930)
og gengur starfið yfirleitt mjög vel.
Þann 15. marz þess árs heimsótti
oss góður gestur, hr. Arni Pálsson
frá Reykjavík, og flutti sinn ágæta
fyrirlestur þá um kvöldið fyrir
fullu húsi, því flestir Islendingar í
bygðinni sóttu þá samkomu og voru
allir hrifnir af ræðumanninum og
erindi hans.
Meðlimatala deildarinnar er 36
fullorðnir, 6 unglingar og 11 böm
innan 14 ára aldurs—alls 53. Em-
bættismenn fyrir árið 1931 kosnir
á ársfundi, sem haldinn var í janúar
1931, voru:
Forseti Sigurður ólafsson
Ritari Miss Rannveig Gillis
Féhirðir Tryggvi O. Sigurðsson
Fjármálaritari Mrs. Th. J. Gísla-
son.
Virðingarfylst,
Thorsteinn J. Gíslason.
II.
Arsskýrsla 1930, Deildin Brúin I
Selkirk:
Deild þessi telur nú 85 meðlimi,
af þeim 78 fullorðnir, 4 unglingar og
3 börn.
10 fundir hafa verið haldnir á ár-
inu. Mjög góðan áhuga hafa með-
limir sýnt í öllum málum viðkom-
í íslenzkum söng, undir stjóm hr.
Björgvins Guðmundssonar, og virð-
ist það starf hafa borið mjög góð-
an árangur. Einnig hefír séra Jón-
as A. Sigurðsson kent 12 unglingum
íslenzku á hans eigin heimili, og
þarf ekkl að efast um árangur af
þvi góða og veglega starfi hans.
Nú i vetur hefir verið ráðinn kenn
ari í íslenzku, og taka yfir 80 börn
og unglingar þátt í þeirri kenslu.
Samkvæmt skýrslu féhirðis hafa
tekjur og útgjöld á árinu verið sem
hér fylgir:
Tekjur:
I sjóði frá fyrra ári’ ......$ 47.80
Iðgjöld borguð á árinu ...... 61.Ö0
Inntektir af 3 samkomum .... 202.45
Kenslustyrkur frá aðalfé-
laginu ..................... 50.00
Aðrar inntektir ............... 2.05
Alls ...............$363.30
Útgjöld:
Kostnaður í sambandi við
söngstarf B. G. ...:. 171.00
Meðlimagjöld send aðal-
félaginu .................. 35.00
Styrkur til sjúks deildar-
meðlims ................... 25.00
Kostnaður við skemtisam-
komur ...................... 67.35
Húsaleiga fyrir 3 mánuði ... 18.00
önnur útgjöld á árinu ......... 5.15
Alls .............$327.75
andi islenzku þjóðerai og íslenzkri
tungu. 78 unglingar nutu tilsagnar | við að játa, að engin stórvirki liggja
Afgangs i sjóði 1. jan. 1931 $ 41.55
Th. S. Thorsteinsson.
Skrifari deildarinnar Brúin, Selkirk.
III.
Wynyard, Sask., 23. febr. 1931
Til ritara Þjóðræknisfélags
Islendinga í Vesturheimi.
Kæri herra!
Þ6 Þjóðrækniáfélagsdeildin hér,
Fjallkonan, hafi ekki að þessu sinni
fulltrúa á þingi félagsins, þá lang-
aði oss samt til þess að senda þing
inu og félaginu kveðju og áraaðar-
óskir. Dauðamerki má það teljast,
að deildin okkar skuli ekki hafa sent
neinn á þingið í þetta sinn, og er
það þó fremur fjárhagserfiðleikum
að kenna, bæði félagsins og einstak-
Iiðga, heldur en áhuga- eða skeyting
arleysi félaga, fyrir störfum eða hag
félagsins. Erum við að vona að
þetta verði bæði S fyrsta og síðasta
sinn, sem að deildin okkar sendir
engan á ársþingið.
Allmikill hnekkir var það deild-
inni að missa á þessu síðasta ári
tvo af okkar ágætustu starfsmönn-
um burt úr bygðinni. Voru það þeir
prestarnir séra Karl J. Olson og
Friðrik A. Friðriksson. Höfðu þeir
haft á hendi tvö ábyrgðarmestu
störf deildarinnar, forseta- og skrif-
araembættin, og höfðu ávalt reynst
hinir samvinnuþýðustu og nýtustu
félagar. Var nú eðlilegt að fremur
dofnaði yfir félaginu við burtför
þeirra, en ekki dugði að leggja árar
5 bát. Hafði deildin ærið starf fyr-
ir höndum. Hafði verið samþykt að
hafa hér Islendingadag að vanda
og jafnvel þótti tilhlýðilegt að hafa
hann með meiri þátíðarbrag en vant
væri. Var því ráðist í að bjóða dr.
J. T. M. Anderson, forsætisráðherra
Saskatchewanfylkis, að heiðra okk-
ur með nærveru sinni og ræðu. Tók
hann því boði mjög góðmannlega,
og kvað sér vera hin mesta ánægja
í að þig"’~ Vað. Fór það þó öðru-
vísi en p-”'ð var. Kvöldið áður en
tslendir-adagurinn sj:yldi haldinn
fengum við skeyti frá Dr. Anderson
þess efnis, að vegna ófyrirsjáan-
legra atvika, væri sér ómögulegt að
vera með okkur daginn eftir. Hafði
han nverið kallaður það sama kvöld
til Winnipeg, í mjög áríðandi erind-
um. Þótti okkur nokkuð súrt i broti
— þó bætti það nokkuð úr skák, að
hann bauð að senda í sinn stað
hvem þann af ráðherrum sinum sem
við kysum. Þáðum við eðlilega það
boð, og varð fyrir þvi vali Hon.
Howard McConnell, sveitamálaráð-
herra fylkisins. Var gerður að er-
indi hans hinn bezti rómur, og var
þetta í fyrsta sinn sem ræða hefir
verið flutt á ensku á Islendingadag
hér vestra, þau 22 ár, Sem við höf-
um haldið hér upp á Islendingadag.
Þegar manni verður á að líta til
baka yfir þau 12 ár, sem deildin
okkar hefir verið við lýði, verðum
að baki okkar. Þó finst mér að ekki
hafi verið alveg til ónýtis unnið.
Allmargir skemtilegir fundir hafa
verið haldnir, allmargar opinberar
samkoínur, og mörg ánægjuleg sam-
sæti hafa verið haldin. Hefir alt
þetta haft menningarlegt gildi.
Um tíma gekst deildin fyrir all-
merkum söngæfingum fyrir unglinga.
Féll það niður vegna féleysis, og
vegna áhugaleysis þeirra, sem böm-
in áttu. A nú deildin allstórt bóka-
safn. Ber í því efni að þakka bóka-
félagi Kandahar Islendinga fyrir
rausn þá, er þeir sýndu deildinni
hér, með því að gefa henni bóka-
safn sitt, eftir að það hætti störf-
um.
Fundi hefir deildin einu sinni í
mánuði. Eru þeir oft hinir ánægju-
legustu og á kvenþjóðin eigi litinn
þátt í því, með því að hafa jafnan
rausnarlegar veitingar.
Hefir deildin nú á prjónunum að
efna til samkepni meðal barnk og
unglinga í íslenzkulestri og fram-
sögn á svipaðan hátt og þið eruð
að gera i Winnipeg. Vonumst við
til að það geti orðið allmikil vakn-
ing fyrjr þvi menningargildi, sem
íslenzk tunga hefir i sér fólgið.
Vinsamlegast.
Jón Jóhannsson,
ritari Fjallkonunnar.
IV.
Þjóðræknisdeildin Harpa í Winni-
pegosis, Man., sendir Þjóðræknisfé-
laginu innilegar kveðjur ásamt með-
fylgjandi skýrslu yfir störf sín árið
1930:
3 lögmætir fundir voru haldnir á
árinu.
Aðal ársfundur deildarinnár var
haldinn 14. apríl það ár. Á þeim fundi
fóru fram embættismannakosningar
fyrír deildina, yfirskoðun fjárhags
hennar fyrir árið 1929, og rædd og
samþykt áætlun um störf þau, sem
deildin hefði með höndum yfirstand
andi ár. Þau mál voru þessi: að
haldin yrði samkoma deildinni til
arðs, og að 4 aðrar samkomur skyldu
haldnar á árinu, islenzk börn og ung
lingar látin mæla þar fram vísur
og vers á íslenzku. Þetta var fram-
kvæmt. 30—40 börn og unglingar
hafa tekið þátt í svona framsögn
og farist það yfirleitt vel. Deildin
Harpa biður Þjóðræknisfélagið að
taka vilja sinn fyrir verkið. Hún
er fátæk efnalega, og á óhægt með
þau vikin, sem bezt myndu styðja
að varanlegu íslenzkunámi, svo sem
söngkenslu og lestri.
Winnipegosis 23. febr. 1931,
F. Hjálmarsson ritari.
_y v.
Arsskýrsla deildarinnar Iðunn í
Leslie, Sask.:
Fundir, 3.
Samkomur: Ein arðberandi sam-
koma, ein úti-skemtisamkoma, ein
útbreiðslusamkoma .
Meðlimatala 34 (sem borgað hafa
fyrir 1930).
H. Gíslason skrifari.
VI.
Hr. arl Thorlaksson flutti munn-
lega skýrslu fyrir hönd deildarinn-
ár Frón í Winnipeg, sem bar með sér
að deildarfélagar voru 247 1. febrúar
1931. Tekjur á starfsárinu námu
$630.30. Var gerð grein fyrir starfi
deildarinnar í heild sinni, kenslu,
fundarhöldum, fyrirlestrm o. s. frv.
Var tekið við öllum þessum skýrsl
um samkvæmt tillögu frá B. B.
Olson og J. Húnfjörð.
Upptaka lestrarfélaga og annara
VISS MERKI
kemur af því að nýrun hreinsa ekki
eitraðar sýrur úr blóðinu. Gin Pills
veita lækningu með því eyðileggja
sýrur þessar og koma nýrunum aftur
til að starfa eðlilega. — Kosta 50c
i öllum lyfjabúðum.
skyldra stofnana í félagið var tekið
fyrir.
J. J. Bíldfell tók til máls og reif-
aði málið. Benti hann á nauðsyn
þess að gerðar væru ráðstafanir til
þess að gera slikum félögum kleift
að ganga í félagið, án þess að mik-
ill kostnaður félli á þau. Hefðu kom
ið fram tilmæli í þessa átt frá fé-
lögum og væri nauðsynlegt að sinna
þeim. Taldi hann hentugast að vísa
málinu til þingnefndar. Gerði hann
tillögu um að forseti skipaði þriggja
manna nefnd í málið. J. Húnfjörð
studdi og var till. samþykt.
Forseti skipaði þessa menn:
J. J. Bíldfell
A. P. Jóhannsson
J. Húnfjörð.
Samvinna við Island tekin fyrir.
J. J. Bildfell flutti skörulegt er-
indi um það, hve hugurinn til sam-
vinnu við Island væri miklu sterk-
ari nú en áður hefði verið. Heim-
förin hefði haft mikil áhrif í þessa
átt. En hann kvaðst vænast þess,
I að þetta mál yrði vandlega íhugað
á Þinginu. ,
J. P. Sólmundsson talaði um áhrif
Hudsonsflóabrautarinnar á framtíð
Islendinga í álfunni. Var gerður á-
gætur rómur að máli hans.
I nefndina voru skipaðir:
Rögnv. Pétursson.
W. Jóhannsson
Stefán Einarsson
Þægileg leíð
til Islands
Takið yður far heim með eimskip-
um Canadian Pacific félagsins.
þá verðið þér samferða mörg-
um Islendingum. Þér mun-
uð njóta ánægjulegrar
ferðar, góðrar þjónust.
Agætra máltíða, og
allra þæginda er hið
volduga flutninga
félag hefir til
/ að bjóða.
Skrifið eftir uppiýsingum um far-
bréfaverð til Evrópu er innifelur
allan kostnað.
Gerið fyrirspurnir til umboðs-
manna á staðnum eða til W. C.
CASEY, Gen. Pass. Agent, C.P.R.
Bldg., Winnipeg, Phones 25 815,
25 816
CANADIAN PACIFIC
STEAMSHIPS
HREINLÁTASTA OG
HOLLUSTUMETSA MJÖLKURSTOFA
I WINNIPEGBORG
Eign Winnipegbúenda og rekin af þeim.
Hreinlæti í meðferð aflra afurða og stjórnsemi.
Veldur framgangi vorum og vexti.
SÍMI 201 101
“Þér getið slegið rjómann
en ekki skekið mjólkina.’’
MODERN DAIRY LIMITED