Heimskringla - 02.12.1931, Side 2
2. BLAÐSÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPBG 2. DES. 1031.
ENDURMINNINGAR.
Eftir Fr. Guðmundsson.
Frh.
Þar hvarf eg frá seinast, að
við ungu hjónin vorum komin
heilu og höldnu að framtíðar-
bústað okkar, Syðralóni á
Langanesi. Hér verð eg eins og
að taka hendinni aftur fyrir
mig, því þar sem við vorum
nú að hverfa heim að vetur-
nóttum, þá höfðu þó foreldrar
mínir og eg ásamt þeim, flutt
búferlum að heimili þessu um
vorið næst áður, 1883. Eg hafði
því verið á þessu heimili um
sumarið, þangað til haustkaup-
tíðin byrjaði og eg snerist að því
að slá tvær flugurnar í einu:
Lána kaupfélaginu krafta mína
hálfan annan mánuð eða svo, og
gifta mig heitmey minni. Þó eg
nú væri þarna á sjávarbakkan-
um um sumarið, þá gat eg naum
ast heitið höfuð konunnar. í
sjávarsveitaþekkingu vorum við
alls ófróð bæði um sæstranda-
lífið og búskapinn; hún fædd
og uppalin í Mývatnssveit, en
eg á Hólsfjöllum, á báðum stöð-
um álíka langt frá sjó.
Nú ætia eg að segja eina smá
sögu frá heimleiðinni að Syðra-
lóni. Við riðum sunnan með
sjónum í góðu veðri og sól-
skini, höfðum Brekkufjall á
aðra hönd, en fjörurnar og sjó-
inn á hina. Þar sat stór grár
fugl á sæblautum steini frammi
á sjónum. Þetta var mjög áber-
andi og fögur sjón. Fuglinn
stóð upp á endann, og sneri
brjóstinu á móti sól og héít
nokkuð út kreptum vængjun-
um, olnbogar vængjanna voru
aðeins lægri höfðinu. Vegurinn
þarna upp af steinnum, sem
fuglinn sat á, var seinfær og
vondur. Við vorum því lengi
að fara þarna framhjá, en all-
an þann tíma sat fuglinn hreyf-
ingarlaus, eins og hann ætiað-
ist til að tekin væri af sér
mynd. Konan mín spurði mig,
hvað þessi fugl héti. Eg hafði
einhverntíma gefið konu minni
það í skyn, að dr. Þorvaldur
Thoroddsen héldi heil mikið
upp á mig fyrir sérstaka hæfi-
leika til náttúrufræðisnáms, og
yfir höfuð hætti mér við að
geta um það við hinn næsta,
ef eg þekti grös eða steina með
nafni. “Ja, fuglinn heitir Him-
brimi eða Lómur,” svaraði eg
loksins. “Nú er það ekki sami
fuglinn?’’ segir hún. “Nei, nei.”
Við ræddum málið fram og aft-
ur, og eg var kominn að þeirri
niðurstöðu með sjálfum mér, að
hún væri mikið meiri náttúru-
fræðingur en eg. Ekki varð
okkur þetta að sundurlyndi, því
eg sá að sléttasti og beinasti
vegurinn var að viðurkennast.
Af henni lærði eg nöfn á mörg-
um grösum og hugþokka til
grasanna. Það held eg að ekk-
ert gras eða blóm hafi verið til
í Slúttnesi, sem er eyja á Mý-
vatni skamt frá Grímsstöðum,
a,ð hún ekki þekti það með
nafni, og það er þó talinn
einna fjölgrösugasti blettur á
landinu. Það er varasamt að
ætla konunni sinni að líta upp
til sín fyrir einhverja kosti, sem
ekki tilheyra manni..
Eitt er að fara frá íslandi til
Ameríku, annað að flytja sig
búferlum ofan af Hólsfjöllum
og út á Langanes. En ólíkari
búnaðarhætti er naumast hægt
að hugsa sér, í sama landi, og
þar sem ekki er lengra á milli
sveita en sem svarar 40 mílum
enskum. Einhversstaðar gat
eg um það, að eitt vor á Gríms-
stöðum, fengum við 12 geml-
inga úr landléttri sveit. Tíðin
var góð og gemlingunum var
slept á auða jörðina. Við sáum
til þeirra heiman af bænum, og
það, að þeir voru altaf að
standa upp og leggjast aftur.
F'aðir minn sagði mér að vita,
hverju þetta sætti. Eg sá strax
að þeir voru búnir að eta hvert
I einasta strá á blettinum, sem
j þeir voru á, en talsverður sand-
, kragi var alt í kringum blett-
^ inn, tveir til þrír faðmar á
j breidd. Enginn þeirra bjó yfir
þeirri útþrá, sem leyfði slíka
langferð, því aldrei höfðu þeir
búið að öðru eins sælgæti, eins
og bletturinn lét í té á meðan
hann entist. Eg varð með harðri
hendi að færá þá úr stað. Þessu
gagnstætt var nú ástandið með
(ærnar okkar fyrsta sumarið á
Syðralóni, þær stóðu og jörm-
uðu ráðalausar, og fundu hvergi
æta tuggu nema í túninu, og þá
lítilsháttar uppi á hálsinum eða
heiðinni. Það leit út fyrir, að
þær grétu alla daga frá morgni
til kvölds. Altaf voru augun á
þeim full af vatni, og þó aldrei
nema fyrsta sumarið. Og ekki
láði eg þeim það, því sjálfur
var eg vitlaus af óyndi.
Um vorið sendi faðir minn
mig norður í Syðralón mánuði
fyr en hann bjóst við að geta
farið með móður mína og
yngstu börnin. Hafði eg með
mér vinnumann og vinnukonu.
Ytti eg einkum að undirbúa
baðstofubyggingu, því húsa-
kynni öll á Syðralóni voru all-
mikið minni og óvistlegri en
á Grímsstöðum, og þó í góðu
meðallagi eftir því sem alment
gerðist í sveitum. En einkum
var það baðstofan, sem var of
Iítil fyrir það fólk, sem okkur
tilheyrði. Átti eg úr rekavið, er
við keyptum af fráfaranda, að
saga og höggva grindarviði í
viðauka þenna.' Ómögulegt er
að kjósa ' sér ástúðlegri eða
mannúðlegri viðtökur, en eg
og mitt fólk naut af þeim, sem
á jörðinni bjuggu og ætluðu
sér að vera kyrrir þar, þangað
til að faðir minn kæmi alfarinn.
Alt var mér velkomið, sem fólk-
ið gat í té látið, og viðmót yf-
irboðara og undirgefinna und-
ur vel viðeigandi og vinsam-
legt. Vorið var byrjað að gera
sína skyldu, bræða snjóinn úr
búfjárhögunum út við sjóinn,
og þúsundir fugla flyktust að
landinu, syngjandi segjandi sín
tíðindi og sínar tilfinningar frá
morgni til kvölds alla daga. Bát-
unum var raðað fyrir á sjón-
um, sem voru ýmist knúðir af
árum eða seglum. Menn voru
að koma eða fara ýmist á sjó
eða landi, og allir höfðu eitt-
hvað að segja. Fyrir ungan,
frískan og framgjarnan mann,
sýnist að þessar viðtökur af
mönnum og náttúrunni í aðdá-
anlegu samræmi, hefðu mátt
duga til að friða hug minn og
hjarta, sem hafði sloppið frá
gaddinum, söngradda- og við-
burðaleysinu ofan af Hólsfjöl!-
um. En hvernig fór ekki? Eg
stoppaðist dag eftir dag af and-
legri ólyfjan, eins og úttroðinn
fuglshamur, eða eins og maður
líkamlega stoppast af ólífvænu
kvefi, þangað til líkaminn veikt-
ist líka og eg fór í rúmið. Ekki
kunni eg við að segja neinum
nanni frá þessu andlega ástandi
mínu, taldi líka sjálfum mér trú
klæddur nærgætni og meðlíð-
an, og hélt hann að eg væri
að fá lungnabólgu, því dálítill
hiti var í mér, og eg hafði
hóstakjöltur. Vildi hann láta
sækja læknirinn, Guðrúnu
Björnsdóttur á Sauðanesi, sem
var smáskamtalæknir, en eg
maldaði í móinn; lét sem mér
væri að skána. Þá hvarlaði
hann frá í bráðina, en Sigur-
jón kom inn til mín hlæjandi.
“Ætlarðu að byrja á því að
deyja, þegar hingað er komið?
Það þarf nú að fara að setja
hræður í varpið, lónið er að
losna og fuglinn er kominn. Það
er enginn tími til að liggja, og
því síður að deyja. Lofaðu mér
annars að sjá þig. Jú, þú ert
lasinn, og eg sæki læknirinn.”
“Eg held það þurfi ekki,” svar-
aði eg, “mér er að skána. Við
skulum tala um það, þegar eg
kem aftur,’’ sagði hann og fór.
Eg kallaði, því eg kveið fyrir
því að fá lækni, bjóst við að
þá kæmist það í hámæli að eg
væri sinnisveikur. Einhver kom
inn til mín, en þá var Sigurjón
farinn, og enginn á bænum, sem
náð gæti honum. Hann var
tveggja manna maki í öllu. Það
var komið fram á miðjan dag.
Eg var altaf í huganum heiema
á Grímsstöðum, og vildi ekkert
annað en hætta við jarðakaup-
in og fara alfarinn heim aftur.
Ef eg spurði sjálfan mig, hvað
bagaði, þá gat eg enga skyn-
samlega grein gert mér fyrir
því. Mér þótti sjórinn glæfra-
legur, jafnvel þó logn væri, þá
á litinn eins og illa þvegin
svunta, breidd á jörðina, en
þess á milli vitlaus ofsinn, að
drepa mennina. Svo fór eg að
selja upp, ef eg kom ofan
fjöruna. Nei, á sjó skal eg þó
aldrei koma. Þá voru þó myrk
dimm sandveöur, þó í sólskini
væri, miklu yndislegri. Nú, það
var lítið í það varið að hafa
fallega fugla einhversstaðar úti
hvass norðan stormur. Þá lét |
eg vinnumann minn ná hesti
mínum og leggja á hann hnakk.
Fólkið bað mig og ráðlagði mér
að fara ekki á fætur og allra
sízt út í þann kuldastorm. En
þá var eg gersamlega viðþols-
laus af hugarkvölum og tók
engum sönsum. Eg fór á fætur
og var klæddur í alt, sem eg
átti, og þar að auki nokkuð af
því skjólbezta, sem aðrir höfðu
til að lána mér, og svo reið eg
inn í Gunnarsstaði, hér um bil
5 enskar mílur. Þar bjó frænd-
fólk mitt, sem eg þekti vel. —
Þegar eg kom þar, var mér ekk-
ert kalt og miklu hressari fyrir
rótið. Þar var staddur lágur
maður rauðskeggjaður, séra
Guttormur Vigfússon á Sval-
barði, framúrskarandi auðveld-
ur, viðmótsþýður, ræðinn og
orðheppinn karl. Fólkið hafði
frétt, að eg væri veikur og vildi
drífa mig strax ofan í rúm. Bún
ingurinn kom upp um mig, að
það væri eitthvað grunsamlegt
við mig. Nú var eg þægur, og
fór ofan í rum þarna hjá fólk-
inu í baðstofunni, át og drakk
eins og aðrir almennilegir menn
og talaði við prestinn. Séra
Guttormur tók mikið í nefið,
það var þá heldri manna siður.
Hann gekk altaf um gólf, þó
ekki eins og aðrir menn, held-
ur ruggaði hann út á hliðarnar,
eins og hann væri að saxa tó-
bakið sitt um leið og hann
gekk. Hann hafði skýrann og
VISS MERKI
kemur af þvl að nýrun hreinsa ekki
eitraðar sýrur úr blóðinu. Gin Pills
veita lækningu með þvi eyðileggja
sýrur þessar og koma nýrunum aftur
til að starfa eðlilega. — Kosta 50c
í öllum lyfjabúðum.
að byrja sjálfur. Hann var vin-
sæll, bæði sem maður og prest-
ur, en fremur lítið virtur. Var
sem öllum fyndist þeir standa
honum jafnfætis, þangað til í
kirkjuna kom. Afskifti hans af
daglegum viðfangsefnum voru
svo óákveðin og barnaleg, að
þar var flestum öðrum sýnna
um. Eigingjarn var hann í hófi,
en ekki ágjarn. Mikið gaman
hafði hann af viðburði, er hafði
átt sér stað í hans prestakalli
nokkrum árum áður en hann
kom þangað. Hval rak á fjöru
að Sjóarlandi í Þistilfirði, og
fór fréttin eins og eldur í sinu
út um alt Norðurland. Að vörmu
spori komu móðir sendisveinar
kirkjunnar úr öllum áttum heim
að Svalbarði með erindisbréf til
prestsins um, að þessi kirkja og
hin ættu samkvæmt löglegum
fallegan málróm, og sykraði . , ^ , .
sitt hvað af öðru með “algognum hlut i hvalnum, sem
var við það, og að þetta hugar
ástand mitt væri eftirköst af
því. Það var eins og allir á heim
ilinu liðu með mér. Eg svaf
frammi í stofu, og þangað kom
hver af öðrum til að spyrj:
hvernig mér liði. Tvíbýli var á
jörðinni, gamall maður, Jói
Benjamínsson, látinn fyrir
nokkrum árum suður í Dakota
og tengdasonur hans Sigurjón
Jóhannesson, líka í Dakota, og
látinn fyrir fjölda mörgum ár
um. Jón kom fyrst til mín, í
‘Chatelaine”
bendir a
Athugií5 þetta vörumerki
á hverjum bauk. f»aö er
trygging gegn því aö í
Magic er hvorki álún eöa
önnur skaöleg efni.
Hérna er ljúffeng og ein-
fold mat-skrá sem Chatel-
aine Institute í Toronto
hefir útbúiC, sem hefir
þann tvöfalda kost að vera
bætSi lokkandi og ódýr.
Reyniö hana, og geymió
hana svo til vara fyrir
framtífcina. Hún getur kom
ió sér vel hvenær sem þér
þurfið ab framreióa í flýti
ánægjulegan mibdag eöa
#kveldvert5.
MATSKRA
Lima Bean en Casserole
Heitar te-kökur
Nibursotiin jaróber
Magic Hermits^
Chase & Sanborn’s Te eCa
Kaffi.
“GóB bakning byggist á góCum forskriftum og góSu efni,’’
segir Miss Helen G. Campbeil, forstötSukona viö Chatelaine
Institute. "Þessi forskrift hefir veriö reynd og gefist vel í
Chatelaine Institute eldhúsinu.’’
*MAGIC HERMITS
** boili af smjörl Walhnetum mjöll
1 b0,IÍ af Púöur. 1 bolii af skornum % teskeiö af Magic
sykrl döölum Baking Powder
2 eee 1 teskeiö af Vanilla % teskeiö af Magic
1 bolli skornum % teskeiö af nutmeg Soda
rúsínum 1 teskeiö M' kanil 2 matskeiöar af
1 bolli af skornum 2 bollar af hveiti- mjólk eöa vatni
Blandlö saman hinu þurra efni.
Meö smjörinu, blandiö saman
sykrinu, eggjunum veí þeytt-
um og^vanilla legirtum. Látiö
IáAG
Balting V°
® 3 be«ef baW
cn*u
um, að eg hefði sjalfsagt veikst ... *
- . ... , . . , . . á sjo, sem maður naði þo aldrei
fyrst likamlega, þo eg ekki yrð; ,, , . , „
016 J og allar kmdur ljotar 1 kring
um sig á landinu. En þá voru
dyrnar opnaðar og inn kom
með miklu fasi, svo stórhöfð
ingleg og skínandi falleg ung
stúlka. Þetta var þá læknirinn
Eg held mér hafi snöggvast
dottið i hug, að það gæti verið
óþægilegt að vera trúlofaður
Hún settist á rúmstokkinn hjá
mér, tók aðra hönd mína og
fór að þreifa eftir æðinni, hvort
eg hefði hita. Mæli hafði hún
víst engan, en fulljTti að það
væri mikill hiti í mér, en eg
sagði henni strax að það væri
ekkert að marka, eg hefði orð-
ið svo hrifinn, þegar hún kom
inn, að alt hefði farið af stað
Hún hló að því, en heimtaði
fullan bolla af köldu vatni, tók
upp hjá sér glas og lét leka úr
því þrjá dropa í bollann, hrærði
langa stund í bollanum, rétti
mér hann svo og bauð mér að
súpa af honum einn munn-
sopa; láta svo líða þrjá klukku-
tíma, taka þá annan sopa úr
bollanum, og þannig koll af
kolil þangað til tíúið væri úr
honum. Eg gaf það í skyn, að
jetta myndu vera hættulausar,
en lfklega áhrífalitlar inntök-
ur, en þá roðnuðu eyru hennar
og safnaðist mikið af tvíræðum
hnyklum á augabrýrnar. Það
leyndi sér ekki, að henni mis-
líkaði, en stilti sig þó, og fór
að spyrja mig ítarlega um stingi
eða sársauka, hér eða þar í
líkamanum. En eg fann hvergi
til. Hún skildi ekkert í þessu,
gekk um gólf og fór að bölva,
svo eg fór að verða hálfhrædd-
ur við hana. Hún hélt víst, að
eg væri að stríða sér, er eg
lóttist hvergi finna til. En þá
sagði eg henni eins og var, að
eg væri vitlaus í óyndi og hefði
líka hálfvont kvef. Hún gerði
gys að mér fyrir óyndið, og svo
aðdáanlega tókst henni að
mylja úr mér heimskuna, að
eg var hálfu bressari þegar hún
fór, en hún uppálagði mér að
liggja í rúminu nokkra daga,
þangað til mér batnaði kvefið.
Daginn eftir var kaldur og
svo einn þriója af mjöl blönd-
unni ávöxtunum os: hnetunum
saman viö þetta. BætiÖ svo í á
víxl, mjól blöndunni, og legin-
um unz alt er upp notaö.
Hræriö alt vel saman. Látiö
soppuna meö skeiö á fituborna
pönnu, og bakiö viö meöal
hita yfir 15 til 20 mínútur.
Kaupiö vörur er framleiddar eru í Canada
mál
hnyttinyrðum og smeygði ó-
missandi atriðum inn í frá-
sögn sína. Hann þótti hestur í
latínu og grjsku, og WendL
fjölda mörgum piltum undir lat-
ínuskólann, og þóttu þeir bezt
undirbúnir, sem hann kendi.
Harin þótti ræðumaður með af-
brigðum og bar þær svo vel
fram. í eitt skifti jarðsöng
hann þrjú lík í sömu gröf. Það
var andvana fætt barn, það
voru bein af manni, sem orðið
hafði úti fyrir mörgum árum,
og það var lítils metinn og ef
til vill hvimleiður karl, sem
enginn gaf sig fram til að
syrgja. Yfir þessari gi’öf neyddi
séra Guttormur alla viðstadda
til að gráta fögrum tárum, eins
og allir ættu þar ástvinum á
bak að sjá. Þarna í baðstofunni
á Gunnarsstöðum, var eins og
séra Guttormur væri að setja
mig inn á æðra tilverustig. Eg
reyndi lengi vel ekki að segja
orð, það urðu eins og svartir
blettir á hvítum dúk, og eg
fann mér til lífsgleði, hvernig
hann losaði af mér óyndisull-
ina, eins og rökuð væri sauð-
argæra með beittum hníf. —
Hann var svo röksemdaríkur,
og þó hann nefndi mig hvergi,
þá óx mér ásmegin í allar átt-
ir. Hann hafði kent mér að
finna hitann í sjálfum mér, eng-
an kvefhita, en kraftana til að
vera eiginn maður, húsbóndi
og gagnlegur félagsmaður í
sveit, hvernig sem mér lukkað-
ist að láta þessa læki falla
frjálsa og tæra í högum mín-
um í framtíðinni. Séra Gutt-
ormur var hvergi mikill nema
sem prestur, og kennari í viss-
prestinum var treyst til að inn-
heimta kirkjunnar vegna. Og
þangað til bárust heimildirnar
að hvalnum, að krafist var níu
áttundu parta, eða einum átt-
unda parti meira en heill hvalur,
en guð hafði gleymt að senda
þann aukabita með, eins og
hann seinna gleymdi að láta
snjóa í Alberta, kringum Steph-
an G. Með þessu hefi eg minst
á séra Guttorm, en líklega kem-
ur hann meira til greina seinna.
Þegar hann seint um daginn fór
frá Gunnarsstöðum var eg orð-
inn hálfu kjarkmeiri að horfa
fram á komandi tíð. Næsta dag
var eg um kyrt hjá frændum
mínum, en þó friskur á fótum,
og á öðrum degi sneri eg aftur
heim að Syðralóni, með endur-
nýjað áræði til framkvæmda.
Lóan kom og spóinn, fífill í
túnið og fiskur á miðin, og eg
sættist óðum við náttúruna.
Við hræddum upp varplandið
fyrir æðarfuglinn, við unnum á
túninu,, og undirbjuggum bað-
stofuviði, einsmikið og okkur
var hægt að koma við. Mér
brá við þetta fjölbreytilega ann-
ríki sem altaf stóð fyrir stafni,
í staðinn fyrir fjárhyrðinguna
að mestu leiti aðal verk karl-
manna á vordaginn upp á Hóls-
fjöllum.
Þórshöfn er vogur úr innsta
hluta Þistilfjarðar, sem kallað-
ur er Lónafjörður og skerst
vogur þessi upp í strendur
Syðralóns, og tilheyrir því höfn-
in Syðralóni. Á þessum tíma
var þar engin verzlun á landi
rekin, en fór fram á verzlun-
arskipum út á hpfninni. Vorii
skip þessi stundum þrjú í einu,
um greinum. Félagsmaður varlsitt frá hverju félagi, og var þá
hann fremur ótrúr og lítilvirk-
ur, vildi engum rangt til gera
og láta heldur alt afskiftalaust.
Búmaður var hann enginn, en
tafði fyrir forkunnar góðri bú-
konu, sem hann eignaðist, Þór
unni Sigurðardóttur frá Harð-
bak á Sléttu, systur Sigvalda
Sigurðssonar, eitt sinn smiðs í
Winnipeg — veit ekki hvar
hann er nú. — Séra Guttormi
)ótti gott í staupinu, en þoldi
ekki nema ósköp lítið, varð þá
ilt og hlaut að hætta, en kátur
var hann ofurlítið kendur. t
brúðkaupsveizlum mælti hann
ætíð fyrir minni brúðhjóna og
fórst það snildar vel. Þá söng
hann og skelfing hátt, en ekki
fagurt, hafði stirðan róm, en
reyndi þó að fylgjast jmeð.
margt um manninn á tímum
þeim sem verzlunin var rekin.
Margt af þessu fólki karlar og
konur kom í Syðralón, og fór
eg nú hröðum skrefum að
þekkja fólkið eftir að verzlun-
arskipin voru komin. Margir
höfðu orðið til að segja okkur
að Langnesingar væru langt á
eftir tímanum jafnvel hálfgerðir
skrælingjar, og átti þá eftir því
að vera þægilegt að aðhafast
þar allann skollann, og verða
þar mikill höfðingi, — en mér
fór fljótlega að lítast annan
veg á þetta. Þeir bárust með
launstraumi að sama úthafinu
og hástæðari og háværari hlut-
ar sýslunnar. Þó var það nokk-
uð sem gerði þá sérkennilega, í
mínum augum og það voru skó-
Vildi helzt altaf syngja “Bros-jsíðu duggufrakkamir, í sjálfu
andi land”, og var þá til með sér verðmætustu föt, en fóru