Heimskringla - 16.12.1931, Síða 7
WINNIPEG 16. DES. 1931
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
Á sunnudögum
er sungin messa.
Fólkið kemur
til kirkju og sefur.
En — himna faðirinn
fyrirgefur.
Þá eru “Rottur’’:
“Milli þils og moldarveggja
man eg eftir þeim,
ljótu rottunum
með löngu skottunum
og stóru tönnunum,
sem storka mönnunum,
sem ýla og tísta
og tönnum gnísta,
og naga og naga
nætur og daga.
Fjöldi manna
felur sig á bak við tjöldin,
þeir narta í orðstír nágrannanna,
niðra þeim, sem hafa völdin,
eiga holu í hlýjum bæjum,
hlera og standa á gægjum,
grafa undan stoðum sterkum,
stoltir af sinum myrkraverkum.
• Allar nætur, alla daga
er eðli þeirra og saga
að líkjast rottunum
með löngu skottunum
og naga, naga.’’
“Skriftamál gamla prestsins’’ er kvæði, sem ekki er hægt
að ganga fram hjá. Sjálfsblekkingu allra manna eru takmörk
sett. Hingað og ekki lengra, segir rödd samvizkunnar, og þá
verður ekki lengur hjá því komist að horfast í augu við sann-
leikann:
“Eg lærði til prests með veikum vilja.
Eg var ekki knúinn af innri þörf.’’
Þess vegna verður afleðingin svo eðlileg, þar sem hann síðai
lýsir því yfir meðal annars, að:
“Dýrðina gaf eg þeim guði einum,
sem gæfi þeim frið, er b'reyttu rétt.
En hvað væri rétt, það reyndi eg ekki
að ræða né skýra á nokkurn hátt.
Eg skotraði augum um skipaða bekki.
Eg skildi lítið og vissi fátt.
Eg lézt geta frelsað lönd og álfur
og lýðnum eilífa sælu veitt.
Eg boðaði trú, en var trúlaus sjálfur
og talaði sveittur — um ekki neitt.
“Haust’’ er þunglyndislegt kvæði, fagurt að formi og fram-
setningu, en ekki laust við að lesarann setji hljóðan og honum
finnist að haustað sé að í hans eigin sál. Svo augljósra áhrifa
gætir ekki nema hjá stórskáldum. Eg þarf ekki nema benda á
þessar fáu hendingar:
“Af liminu blöðin fölnuð falla,
fjúk í lofti og veðragnýr.
Skuggarnir vefjast um alt og alla.
Angistin heltekur menn og dýr.’’
Hver von er druknuð í brimi og bárum,
hver bátur settur og lokuð naust.
í dag eru allir svanir í sárum,
sumarið liðið og komið haust.’’
Kvæðið “Gestur” bregður upp skyndimynd af því, að mörg
mannssálin ber í skauti sínu örkuml og hálfgrónar undir, sem
dyljast með öllu á yfirborðinu, og öðrum er ekki ætlað að sjá.
Forvitnisspurningum er beint að “gesti’’, en hann svarar aðeins
til hálfs:
“Spurðu mig ekki, hvaðan eg komi
og hvers vegna eg sé einn.
— Sumum fylgja svipir og vofur,
þó sjái þær ekki neinn.’’
Spurðu mig hvorki um ástir né eiða
né æskunnar fagra vor.
— Sumir hafa þau forlög fengið,
að flýja sín eigin spor.
Spurðu mig hvorki um sár mín né sviða
né svikna æskuvon.
— Sumir óska, að engin móðir
ætti þá fyrir son.’’ •
’«»>
Ást í meinum er allra skálda yrkisefni. “Gullnir hlekkir”.
lýsa tildrögum en ekki afleiðingum. Höf. er enginn uppgerðar
siðferðispostuli. Hann lætur það eftir hverjum öðrum, sem
vill, að setjast í dómarsætið. Kvæðið er hrífandi og stórvel
ort. Svona er byrjunin:
“Ung var eg og glöð meðal yngissveina.
Einn gaf mér hringa og fagursteina.
Eg giftist honum.
Hann sagði eg væri sú einasta eina
af öllum konum.
Úr augum hans sá eg seinna skína
sælu af að horfa á dýrgripi mína.
Sjá festarnar skjálfa.
Hann elskaði skrautið og auðlegð sína,
en ekki mig sjálfa.
Hamingjan brast eins og hörpustrengur
Þó hann vildi sýnast góður drengur
og gæfi mér hringa.
Eg get ekki borið þá bauga lengur.
Þeir brenna. Þeir stinga.
Svo mætti eg þér á myrkum vegi,
mér fanst nóttin verðf) að degi
og frelsið kalla-----------’’
Þá kem eg að síðasta kvæðinu. “Konan, sem kyndir ofn-
inn minn.’’ Hér kemst snild höf., skilningur og tilfinning á
bæðsta stig, og er þá langt til jafnað, því hvert snildarkvæðið
eftir annað er að finna í þessu góða safni. Eg þykist þess full-
viss að þetta látlausa litla kvæði muni skipa einn æðsta sess í
bókmentum íslendinga að fomu og nýju, og verða hverjum
þeim sem les eða heyrir ógleymanlegt meðan íslenzk tunga er
töiuð og skilin.
“Eg finn það gegnum svefninn,
að einhver læðist inn
með eldhúslampann sinn,
, og veit, að það er konan,
sem kyndir ofninn minn,
sem út með ösku fer
og eld að spónum ber
og yljar upp hjá mér,
læðist út úr stofunni
og lokar á eftir sér.
Eg veit að hún á sorgir,
en segir aldrei neitt,
þó sé hún dáuða þreytt,
hendur hennar sótugar
og hárið illa greitt.
Hún fer að engu óð,
er öllum mönnum góð
og vinnur verk sín hljóð.
Sumir skrifa í öskuna
öll sín bestu ljóð.
Eg veit að þessi kona
er vina fá og snauð '
af veraldlegum auð,
að launin sem hún fær,
eru last og daglegt brauð.
En oftast er það sá,
sem allir kvelja og smá,
sem mest af mildi á.
Fáir njóta eldanna,
sem fyrstir kveikja þá.
* * *
Þetta er orðinn langur lestur, enda skal hann ekki lengdur
verulega. Aðeins fáeinar athugasemdir í viðbót.
Vafamál er hvort skörpustu einkenni Davíðs komi ekki
bezt fram í ádeiluljóðum hans. Og því nær öll “hetjukvæði”
hans eru ádeiluljóð. Og í þeim öllum kennir þess ótvírætt, að
bak við ljóðin er höfðingjans skapferli. Enda er það þegar til
lcemur, sama sem andi hins listræna manns. Hann fyrirlítur
múginn, sem engan svip hefir og naumast mannsmynd. Einstakl-
ingurinn er honum alt og fyrir bragðið hefir hann einnig augu
fyrir smælingjunum, sem sorgir lífsins og böl hafa sett á inn-
sigli göfginnar, þótt það sé oft falið undir sótugu andliti og úfnu
liári.
Einkennileg pg hugðnæm eru ástakvæði höf. Fer liann þar
hvergi troðnar brautir né siglir hann í kjölfar kvikmynda
kaupmangara. Hjá honum er ekki verðmætið falið í þeim
unaði, sem nautn ástarinnar veitir, heldur aðallega í þeim auði
tilfinningalífsins, sem ástin skilur eftir sig. Það er sorglegt að
ástir skuli ekki ávalt vera farsælar, en jafnvel sárindin, örin,
harmurinn hefir auðgað manninn og gert hann dýpri og meiri
en ella. ■ . '
Þá eru og náttúrukvæði Davjðs mjög á aðra vísu en maður
á að venjast. Skáldið lýsir náttúrunni sjaldan hennar vegna
sjálfrar, heldur er gripið til fyrirbrigða hennar til þess að varpa
ljósi yfir mannlegt skapferli, örlög og tilfinningar. Tökum t. d.
kvæðið “Nú sefur jörðin.” Skáldið lætur jörðina draga andann
djúpt og rótt, um draumabláa júlínótt og sjá hverja bæn rætast,
og djúpin hníga í dvala hljóð og dreyma öll sín týndu Ijóð, og
“t hverju blómi sefur sál, hvert sandkorn á sitt leyndarmál,’’
o. s. frv.
Það er eitthvað hrífandi fagurt við þannig lagaða ijóða gerð.
eitthvað ógleymanlega unaðsríkt.
Tilgangur minn með erindi þessu, er ekki sá að gagnrýma
skáldskap höf. Um það er eg ekki fær, en mig langaði til að
gera mönnum það ljóst, að andi þessa skálds er fjölrænni heldur
en venja er til, og að mörgu leyti einkennilegri. Það má svo
heita að hvert einasta kvæði sé þrungið einhverskonar segulafli
sem ríg heldur svo huga lesandans, að hann getur ekki lagt
frá sér bókina fyrri en hann hefir lesið síðustu ljóðlínuna.
A Thorough School!
The “Success” is Canada’s Largest
Private Commercial College, and the
finest and best eqoiipped business train-
ing institution in Western Canada. It
conducts Day and Evening Classes
throughout the year, employs a large
staff of expert teachers, and provides
sufficient individual instruction to per-
mit every student to progress according
to his capacity for study.
v »» wH ty-one years, since the founding of the “Suc-
cess’’ Business College of Winnipeg in 1909, approxi-
mately 2,500 Icelandic students have enrolled in this
College. The decided preference for “Success” train-
Ing is significant, because the Icelanders have a keen
sense of educational values, and each year the number
of our Icelandic students show an increase.
Day and Evening Classes
OPEN ALL THE YEAR
The SUCCESS BUSINESS COLLEGE, Ltd.
PORTAGE AVENUE AT EDMONTON STREET.
PHONE 25 843
rc
3E
30
30
30
30
The Manitoba Cold Storage Co.
LIMITED
Síofnaö 1903 .’. 'WsBnnipe^s Man.
PLÁSSIÐ ER 2,000,000 TENINGSFET, EÐA 35,000 TONN
Vér samfögnum hinum íslenzka þjóðflokki og árnum honum hamingju,
í sambandi við þessar hátíðir.
3C^]
Sérfræðingar í öllu,
er lýtur að ávöxtum
nýjum eða þurkuð-
um, smjöri, eggjum,
kjöti, o. s. frv.
10=1.
Því nær allar vandgeymdar Því nær allar vandgeymdar
fæðutegundir fæðutegundir
REKUM VIÐSKIFTI YÐUR TIL SANNGJARNT VERÐ OG LÁG
ÞÆGINDA ÁB YRGÐARG J ÖLD
SKRIFIÐ OSS VIÐVÍKJANDI KÆLIÞÖRFUM YKKAR
THE MANITOBA COLD STORAGE CO.
W’INNIPEG, MANITOBA
4 Sérfræðingar í öll-
um nýjustu kæliað-
ferðurn, sömuleiðis
•) í geymslu fiskjar. ..
nn
ir
in
ir
nr
00
ö
io
ARTISTS — COMMERCIAL PHOTOGRAPHERS — PHOTO-ENGRAVERS
ELECTROTYPES — STEREOTYPES— WAX ENGRAVERS
TELBPHONEi 23 S50-9
2tM) VAUGHAN STREET
I
1
w
$
%
§
I
w
1
s
Óskar öllum Lesendum
Heimskringlu Gleðilegra Jóla
og Farsæls Nýárs
s
1
8
8
8
I
8
|
Halifax; St. John; Quebec; Montreal; Toronto; London; Windsor; Winnipeg.