Heimskringla - 16.12.1931, Síða 4
12. SÍÐA
HEIMSKRINCLA
WINNIPEG 16. DES. 1931
Hettnskrtngla:
(Stojnue 1S86)
Kemur út á hverjum miðvikudegi.
Eigendur:
THE VIKING PRESS LTD.
*53 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg
Talsími: 86 537 _____
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borgist
íyriríram. Allar borganir sendist:
THE VIKING PRESS LTD.
Ráðsmaður TH. PETURSSON
853 Sargent Ave., Winnipeg
Manager THE VIKING PRESS LTD.
853 Sargent Ave., Winnipeg
Ritstjóri STEFÁN EINARSSON
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA
853 Sargent Ave., Winnipeg.
"Heimskringla” is published by
and printed by
The Viking Press Ltd.
853-855 Sargent Avenue, Winnípeg, Man.
Telephone: 86 537
WIINNIPEG 16. DES. 1931
JÓLA-HUGSJÓNIN.
Ef þú hefir nokkru sinni komið inn í
hús kunningja þíns á aðfangadagskvöld
jóla, þá hafa þér tæplega dulist umskift-
in frá því vanalega. Hvert sem litið er,
að segja má, blasa munir við auganu,
sem ekki voru þar kvöldið áður. Smáir
munir að vísu oft, og í sjálfu sér lítils
eða einskis virði, en nýir munir samt á
þessum stöðum. Og ósjaldan er þá einn-
ig umbúðapappír hnédjúpur á gólfi, sem
þú hefir hvorki fyr né síðar séð fis eða
strá á.
Og allir, ungir og gamlir, eru hýrari
á svip en vanalega. Þeir, sem að jafnaði
eru viðmótsglaðir, ögn viðmótsglaðari,
og þeir, sem eðlilega eru hranalegir, ekki
út af eins hranalegir nú. Alt stafar þetta
af því að það er nýbúið að opna jóla-
bögglana, og allir eru að hugsa um þá,
sem mundu eftir þeim um jólin.
Einstöku menn líta á alt vafstrið og
umstangið, sem þessu er samfara, sem
undur fánýtt, ungæðislegt og óþarft.
Ef til vill getur eitthvað satt verið í þvf.
En að baki því öllu liggur þó sú hug-
sjón, er öllum mönnum er ein hin dýr-
mætasta. Hugsjónin um velvild og sam-
úð og bræðralag allra manna — jólahug-
sjónin.
Það er stundum sagt, að jólin séu há-
tíð barnanna. Og því ber sízt að neita.
En jólahugsjónin hefir lifað og hrærst í
hugum manna um margar aldir og er
orðin óaðskiljanleg eign þeirra og erfða-
fé, eldri sem yngri.
Jólin hafa hátíðleg verið haldin um
langt skeið. Hvað gamall siðurinn er,
geta líklegast færri sagt um. Nú er jól-
unum fagnað í sambandi við fæðingu
Krists hjá öllum kristnum þjóðum. En
svo hefir eigi ávalt verið. Hjá Rómverj-
um, sem með þeim fyrstu byrjuðu að
halda kristin jól, var jólahátíðin, áður en
kristni var lögtekin, haldin í minningu
um hinn mikla Miþra, er upprunalega
mun dýrkaður hafa verið í Asíu. Og sá
jólafagnaður var haldinn 25. desember
eins og nú. Á Norðurlöndum og um Mið-
Evrópu voru og jólaveizlur haldnar ár-
lega, áður en þau lönd tóku kristni, sem
kunnugt er. Jólahugsjónin er því æfa-
gömul hjá mannkyninu. Og það er hún,
sem mest er um vert að lifi. Við hvern
jólin eru kend, eða í hvers minningu þau
eru haldin hjá ýmsum þjóðum á ýmsum
tímum, skiftir ekki máli, þegar á þau ei*
minst frá sögulegu sjónarmiði, en ekki
af trúarlegum ástæðum, hjá mannkyn-
inu í heild sinni.
En jólahugsjónarinnar má mannkynið
ekki án vera. Hún er og hefir verið sál
þess, næring og líf, eins og röðull ársólar
er lífsgróðri jarðar, sem Albert Thorvald-
son hefir af svo mikilli list höggvið mynd-
ina af í stein, og birt er á fyrstu síðu
þessa blaðs.
Það er aldrei meiri þörf slíkra dag-
geisla en einmitt nú. Vegna hinna
erfiðu tíma á margur um sárt að binda.
Og það er mælikvarði þess, hvað ein hin
fegursta og göfugasta hugsjón mann-
kynsins, bræðralagshugsjónin, er djúpt.
gróðursett í hugum og hjörtum manna,
hve mikið þeir leggja sig nú fram um
það og láta sér ant um það á þessum
komandi jólum, að gleðja þá og hjálpa
þeim, sem jólafagnaðarins fara á mis
vegna efnalegs skorts. Og hvað ætti
mönnum í hinum kristna heimi, að vera
ljúfara að gera, en að lifa einu sinni að
minsta kosti á ári, eftir hinni gullnu
kenningu: “Það sem þér viljið að menn-
imir geri yður, það skuluð þér og þeim
gera.’’
Heimskringla á enga betri jólaósk að
flytja lesendum sínum en þá, að þeir
megi lifa og breyta eftir þessari æðstu
hugsjón mannanna, því með því eina
móti geta þeir notið jólafagnaðarins í
fullkomnum og eiginlegum skilningi.
Með það í huga, býður hún einum sem
öllum
Gleðileg jól!
UM ANDRÚMSLOFTIÐ.
Frá þeirri tíð að menn fóru fyrst að
taka eftir umhverfi sínu, hafa þeir þekt
vindinn. Hann var ýmist bölvun eða
blessun. Fróun í hita, en fjandsamlegur
í kulda. Menn fundu til hans og heyrðu
hans þyt, en enginn vissi hvaðan hann
kom eða hvert hann fór. En milli him-
ins og jarðar var hann, undir festing-
unni, sem menn ímynduðu sér að væri
yfir jörðinni, en ofan jarðar. Má nærri
geta að margar og skrítnar hafa verið
getgáturnar um það, hvað hann eigin-
lega væri.
En menn höfðu h'ka tekið eftir því,
að undir vissum kringumstæðum, gætu
þeir ekki náð andanum, jafnvel þó ekk-
ert þrengdi að hálsinum (sem oft kom
fyrir á fyrri tíð og á sér stað enn), svo
sem þegar þeir voru lengi innibyrgðir í
litlum klefa eða á Hkafi í snjó. En ef að
þá komst loft eða vindur að, var þeim
borgið.
Vegna þessa fóru menn að setja vind-
inn í samband við andardráttinn, og kom-
ust svo að því, að með andardrættinum
soguðu menn inn í lungun eitthvert
efni, sem nauðsynlegt væri til lífsviður-
halds, og að vindurinn væri hreyfing í
þessu efni, hvað svo sem það nú væri.
. En með tíma fékk það nafnið andrúms-
loft.
Við þetta sat fram eftir öllum öldum.
En loks tók vitringurinn Galileo (1564
—1642) eftir því, eins og svo mörgu
öðru, að ekki var hægt að lyfta vatni í
dælu meira en 34 fet. Ekki gat hann
útskýrt, hvernig á þessu stóð, en læri-
sveinn hans og eftirmaður sem kennari
í Florence, Torricelii, kom með þá afar-
vitru getgátu, að vatn drægist upp í
dælupípuna af þeirri ástæðu, að and-
rúmsloftið þrýsti því niður á allar hliðar
við pípurnar. Gerði hann nú vísindaleg-
ar tilraunir um þenna þrýsting andrúms-
loftsins, og komst að þeirri niðurstöðu,
sem enn er viðtekin, að hann sé um 15
pund á hvern þverþumlung á yfirborði
jarðar. Þetta var árið 1643.
Þetta komust menn lengst í þessu til-
liti þangað til eftir 1770. En þá er eins
og alt í einu að fortjaldi sé svift til hlið-
ar og mönnunum leyft að skygnast inn
í leyndardóma andrúmsloftsins. 1772
finna vísindamennirnir Rutherford og
Lavosier frumefnið Nitrogen (köfnunar-
efni). Tveim árum síðar, 1774, fann hinn
ágæti vísinda- og kennimaður, Priestley,
frumefnið Oxygen (súrefni). Og aftur
| tveim árum síðar, 1776, enski efnafræð-
ingurinn Cavendish, frumefnið Hydro-
gen (vatnsefni). Og eru þá fundin þrjú
helztu frumefni andrúmslpftsins. Kol-
sýra, sem líka finst í því, og er samsett
efni, en ekki frumefni, var áður þekt. Á
síðustu tíð hafa fleiri frumefni fundist
í loftinu, svo sem Argon, Helium og enn
fleiri. En í daglegu lífi gætir þeirra
ekki.
Sama má segja um vatnsefnið, sem
er svo létt, að það svo að segja flýtur
ofan á lofthafinu. Það er svo létt, að
þyngd allra frumefna er miðuð við þyngd
þess. Til dæmis er köfnunarefnið, sem
langmest er af í andrúmsloftinu, fjórtán
sinnum eins þungt og vatnsefnið, og
súrefnið er sextán 'sinnum eins þungt.
Kolsýran er mikið þyngri, enda finst
hún hvergi nema mjög nærri jörðu og
er jurtafæða, en framleidd með útöndun
og bruna. Frumefnunum í andrúmsloft-
inu er blandað saman, en eru ekki sam-
einuð efnafræðislega. Er alment talið,
að hér um bil fjórir fimtu hlutar þess séu
köfnunarefni, en einn fimti súrefni. Þetta
er þó ekki rétt, nema fjrrstu fáar míl-
urnar upp frá jörðinni. Jafnvel áður en
menn komast upp á hæstu fjallatindana,
svo sem Everett tindinn í Himalayafjöll-
unum, sem er um 29,000 fet, er orðið of
lítið af súrefni til vanalegs andardrátt-
ar. Og ef fara skal hátt í loftförum.
verða menn að hafa súrefnisforða með
sér til þess að geta haldið meðvitund-
inni. Þegar nú þess er gætt, að and-
rúmsloftið nær h'klega 100 mílur út frá
jörðu, eins og nú er álitið að það nái,
verður það augljóst, að súrefnið er að-
eins lítill hluti þess alls. Enda er þess
engin þörf hærra í lofti en fuglar fljúga
hæst. Því verksvið þess er að viðhalda
dýralífi og gera eldinn mögulegan. Leit-
ar líka meira til jarðarinnar, því það er
dálítið þyngra en köfnunarefnið.
Það er einnig sagt að loft verði léttara
og þynnra, eftir því sem ofar dregur, og
og er það satt, að þrýstingur þess verður
minni, en þynnra verður það ekki að
öðru leyti en því, að súrefnið minkar,
svo menn verða mæðnari. En að köfn-
unarefnið minkar ekki, sést bezt á því,
hvað hátt sem loftför hafa komist, er
lyftikraftur loftsins sá sami.
í upphafi var mikið meira af súrefni
í loftinu. En af því að það er mjög ötult
frumefni, sameinaðist það efnum jarð-
arinnar meðan hún var heit svo mjög.
að helmingur yztu laga jarðarinnar er
súrefni.
Köfnunarefnið er þvert á móti mjög
dauft og hlutlaust. Lætur önnur efni í
friði og vill vera óáreitt. Færi ekki vel
ef það væri jafn ötult og súrefnið. Mundu
þau þá fljótt sameinast og mynda svefn-
meðalið Nitrous Oxide. Yrði þá saga lífs-
ins á jörðunni ekki lengri, eins og nærri
má geta. En náttúra köfnunarefnisins
breytist algerlega undireins og það sam-
einast öðrum efnum. Er það þá til í alt.
Engin líftegund er til og ekkert sprengi-
efni er búið til án þess.
Fram að síðustu öldum var jörðin al-
ment álitin flöt, en fastur himinn yfir.
En mjög langt hlýtur þó að vera síðan
einstaka mann grunaði hina réttu lög-
un hennar. Sýnir það meðal annars hið
forna gríska líkneski af guðinum Atlas,
sem jörðinni átti að halda uppi á herð-
um sér. Líkneskið hefir kúlumyndaða
jörð á herðunum, en ekki flata. Má af
því ráða, að ekki hafa allir verið sam-
dóma um að jörðin væri flöt. En eftir
að hin rétta lögun jarðar var fundin og
staða hennar í sólkerfinu, hvarf fest,-
ingin úr sögunni, þangað til rétt nýlega,
að því hefir verið haldið fram, að eftir
alt saman væri fastur himinn í kringum
jörðina — gerður af frosnu köfnunarefni,
og er sagt, að af því sé loftið blátt.
Þetta er nú ekki eins mikil fjarstæða
eins og margur mun halda, því köfnunar-
efnið frýs í 203 stiga frosti, en í auðn-
inni milli hnattanna er talið að vera 450
—500 stiga frost. í fljótu bragði 9ýnist
því spurningin vera, hvort köfnunarefn-
ið nái svo langt út í geiminn, að frostið
sé komið yfir 200 stig.
En ef að því er gáð, að þótt köfnunar-
efnið frjósi í 203 stiga frosti niður við
jörð, þarf þó miklu meiri kulda til þess
að það frjósi langt úti í himingeimnum,
þar sem ekkert þrýstir að. Sízt er fyrir
það að taka, að yztu lög köfnunarefnis-
ins kunni að mynda kristalla líkt og
vatnsgufan myndar snjó í köldu lofti.
En afar ólíklegt er það, að það sé fastur
ís, eins og sagt hefir verið. Og eitt er víst,
að ekkert er því til fyrirstöðu, að litlir
hraunmolar komi utan úr geimnum og
inn í andrúmsloftið, þar sem þeir svo
glóðhitna og springa oftast nær áður
en þeir komast til jarðar.
Afar hátt uppi, nærri yfirborði loft-
hafsins, í heljarkulda og hreyfingarleysi
hvað loftstrauma snertir, er vatnsefnið
að finna. Er það svo létt, að líklegt er,
að það mest mégnis fljóti ofan á, og er
það því langt fráskilið súrefninu. Fer
vel á því sem öðru, því þegar þessum
tveim lofttegundunum er blandað saman
og sterkum rafmagns9traum svo hleypt
í gegn, myndast vat’’. Er ekki gott að
fullyrða, hver afleiðingin gæti orðið, ef
nýtt og nýtt vatn gæti þannig myndast
í hvert sinn, er þrumuveður er úti. Gæti
það orðið til þess að óþægileg flóð kæmu
og jafnvel hækkaði 1 hafinu. En eins og
stendur er vatnsforði jarðarinnar sá
sami ár eftir ár. Sama vatnið fer aftur
og aftur hringferðina, frá hafi og vötn-
um upp í loftið, niður til jarðar í regn-
dropum eða snjó og til baka út- í hafið
eða vötnin í lækjum og ám. Vatnsefni
er afar auðvelt að framleiða.
Á sjálfu yfirborði andrúmsloftsins, þar
sem aðeins örfáar efniseindir finnast
lengur í Ijósvakanum, myndast norður-
ljósin.
Þegar rafmagn hreyfist frá einum stað
á annan í andrúmsloftinu, frá einu skýi
í annað eða milli skýja og jarðarinnar,
myndar það eldingu, sem þruma fylgir.
Ef það fer í gegnum algerða auðn (Va-
cuum), er það ósýnilegt og heyrist ekk-
ert til þess. En það lýsir í gegnum svo
að segja hvaða efni sem er í nánd, þ. e.
verður að X-geisla. Ef nú auðnin er ekki
alger, fá geislarnir þenna alkunna epla-
græna lit, sem norðurljósin hafa. Eftir
því sem efniseindirnar eru fleiri, breyt-
ist litur geislanna og verður
meira og meira fjólublár, og
missa þeir um leið X-geisla-
hæfileikann. Maður getur því
ráðið af litnum hvað utarlega
norðurljósin eru, því grænni,
því utar, því rauðari, því jnn-
ar í andrúmsloftinu. Mjtkllu
meiri kraft þarf til þess að
þrýsta rafmagni í gegnum
auðn, en andrúmsloft. Má af
því ráða hvílíkan ógnar mátt
þarf til þess að ljóma upp alt
norður- eða suðurhvel himins
með norðurljósum. En þeim
sem hefir ráð á að fela í
hverjum bolla af vatni næg-
an kraft til þess að knýja
heila gufulest margar mílur,
ef aðeins væri hægt að nota
hann, verður ekki skotaskuld
úr öðru eins.
Tvenskonar er hreyfing á
eða í andrúmsloftinu:
1. Það snýst með jörðinni í
ljósvakanum frá vestri til
austurs.
2. Loftstraumar eða vindar,
sem aðallega orsakast af mis-
mun hita og kulda.
Öll efni þenjast út við hita
en lofttegundir langmest. Því
er það að í heitu löndunum
þenst loftið mjög mikið og
lyftist upp, en þéttara og kald-
ara loft streymir jafnóðum að
frá heimskautunum niður við
jörðu, en aftur streymir heita
lofið hátt upp til heimskaut-
anna og helzt þannig við jafn-
vægið. Hefir þetta mikil áhrif
til þess að jafna hitann á hin-
um ýmsu breiddarstigum og
gera heimskautalöndin viðunan-
legri. Hið sama gera hafstraum
ar, þar sem þeir ná til. Nú þó
loftið snúist með jörðinni, hef-
ir þó snúningurinn þau áhrif,
að vindarnir norðan og sunn-
an verða að austanvindum í
hitabeltinu, sem blása árið í
kring úr 9Ömu átt. Er ekki rúm
til að fara lengra út í þetta
efni hér, én vindar eru afar
hugðnæmt efni til að fræðast
um, eins og alt annað, sem
loftinu viðkemur.
Síðan flugvélin var fundin
uipp, hafa menn lært mjög
margt um eðli andrúmslofts-
ins, er áður var hulið, en þó má
heita að þekking manna á því
sé enn öll í molum. Þó má geta
þess, að talið er, að loftstraum-
ar eða vindar muni ekki eiga
sér stað hærra í loftinu en 12
—14 mílur frá jörðu, og mun
það ekki fjarri sanni. Að minsta
kosti er það víst, að því harð-
ari er hreyfing bæði á lofti og
legi, því nær sem er yfirborði
jarðar.
Andrúmsloftið er sá hlutur,
sem nauðsynlegastur er allra
hluta til að viðhalda lífi manna
og dýra. Menn geta lifað
nokkrar vikur og jafnvel leng-
ur matarlausir í heitu lofts-
lagi með nóg vatn að drekka
Fáeina daga geta menn lifað
vatnslausir, sérstaklega ef þeir
eru ekki í of miklum hita. En
aðeins örstutta stund lifir mað-
urinn í algerðu loftleysi. Af
því hvað það er afar nauðsyn-
legt, er það mönnum og dýrum
veitt án fyrirhafnar af þeirra
I fullan aldarfjórðung hafa Dodd’s-
nýrna pillur verið hin viðurkenndu
meðul við bakverk, gigt og blöðru
sjúkdómum, og hinum mörgu kvilla,
er stafa frá veikluðum nýrum. —
Þaer eru til sölu í öllum lyfjabúð-
um á 50c askjan eða 6 öskjur fyrir
$2.50. Panta má þær beint frá
Dodds Medicine Company, Ltd., Tor-
onto, Ont., og senda andvirðið þang-
að.
hálfu. Það er alstaðar nálægt
nema í lokuðum hylkjum, svo
sem X-geislapípum, sem það
hefir áður verið dælt úr. Svo
áleitið er það að smjúga í
gegnum hvað litla glufu sem
er, að búið hefir verið til mál-
tæki, 9em segir að náttúran
hati auðnina (Vacuum). Er
það máltæki satt, hvað kring-
umstæður á yfirborði jarðar
snertir. En það gleymir því, að
langmestur hluti alheimsins,
alt rúmið milli hnattanna, er
auð (Vacuum), sem náttúran
horfir á í algerðu ráðaleysi og
reynir ekki einu sinni að fylla.
Þó andrúmsloft sé allsstaðar-
nálægt á yfirborði jarðar, er
hægt, að eyða svo úr því súr-
efninu með öndun dýra og
eldsbruna, að ónógt verði fyrir
hvorttveggja. Hægt er að byrgja
svo hús, að Ijós hætti að geta
lifað í því, og jafnvel skepnur
kafni, og kalla menn það loft-
leysi, sem ekki er satt, því að
það er súrefnisleysi, og lagast
þetta auðvitað óðara og hreinu
lofti er hleypt inn.
B’rá ómuna tíð og fram und-
ir lok síðustu aldar voru menn
afar hræddir við hreint loft.
Þótti það valda kvefi og öðr-
um brjóstsjúkdómum. Kom það
að pokkru leyti af því, að hús
voru oft illa bygð en upphit-
unartæki ónóg, ýmiist ofnar
eða opin eldstæði, sem hvorugt
gefur jafnan hita um alt hús-
ið. Sérstaklega voru menn
hræddir við að hreint loft kæmi
nálægt veiku fólki. Er óliætt
að segja, að margur hefir látlð
lífið fyrir þessa hjátrú.
En fyrir svo sem 40 árum
breyttist þetta. Hreina loftið
varð nú alt í einu hin mesta
nauðsyn, sérstaklega við allri
brjóstveiki, bæði sem vörn og
meðal, og fór nú eins og oftar,
að menn velta sér úr einní
heimskunni í aðra. Ekki það,
að hreina loftiö sé ekki nauð-
syn öllum, jafnt heilbrigðum
sem veikum, þegar það er not-
að með skynsemi, en því er ekki
altaf að svara. Það er nú nokk-
uð dregið úr hreina lofts
heimskuöldu þeirri, er valt yf-
ir veröldina í byrjun þessarar
aldar, en þó er nokkrum öfg-
unum enn haldið fram. Að
minsta kosti er það enn kent
IWCOHXKUTtD »TT KXT I«70l