Heimskringla - 24.05.1933, Síða 3

Heimskringla - 24.05.1933, Síða 3
WINNIPEG, 24. MAÍ 1933 HEIMSKRINGLA 3. SÍÐA. Phone 22 935 Phone 25 237 HOTELCORONA 26 Kooma Wlth Bnth Hot and Cold Water ln Every Room. — $1.60 per day and up. Monthly and Weekly Rates on Request Cor. Main & Notre Dame East WINNIPEG, CANADA BRÉF TIL HKR. Hr. ritstj. Hkr.: I>að hefir verið mér mikið áhugaefin eins og mörgum öðr- um hið fjárhagslega öngþveiti, sem íslenzku blöðin í Winnipeg hafa við að stríða sérstaklega vegna þess að vanskil á hinni árlegu borgun fyrir þau er aðal orsökin. En af því að á úrslit- um þessa máls hvílir sæmd Vestur-íslenzka þjóðarbrotsins í framtíðarsögunni þá treysti eg og tel víst að málinu verði borg- ið á viðunandi hátt. Þessi blöð hafa verið íslenzka þjóðflokkn- um ómetanlegt menningaratriði, og milliliður á félagslífi þeirra. Þekkingar uppsprettu á hinu merkasta, sem er að gerast í heiminum og sem mest er um- vert hafa þau verið aðal að- stoðin í viðhaldi hinnar íslenzku tungu -meðal þjóðflokksins hér vestra. Að því er mig sjálfan snertir hafa þessi umræddu blöð verið mér kærkomnir vikulegir gestir. Þau hafa veitt mér marg- ar ánægjustundir, en það, sem sérstaklega hefir hrifið mig nú í seinni tíð var bréfið úr Skaga- firði, sem Heimskringla birti í vetur. Það bréf var mér sannur ánægjugeisli í myrkrið mitt. í Skagafirði lifði eg æskuna og fyrripart fullorðins áranna. Þá reyndi eg að leggja mönnum og málefnum alt það lið, sem í mínu valdi stóð. Það er mér því mikið gleðiefni að fá að vita um þær andlegu og verklegu framfarir, sem sveit,ungar mín- ir hafa komið í framkvæmd síð- an eg fór frá þeim. En það er þó sérstaklega eitt, sem bréfið skýrir frá, sem mér er nákomn- ast ánægjuefni en það er viður- kenningin um hin menningar- legu afrek búnaðar skólans á Hólum í Hjaltadal, en orsökin til þeirrar náægju er sú að eg var einn af þeim mönnum, sem frá byrjun unnu að því að kaupa jörðina og koma skólanum á fót, og var síðan meðnefndar maður í skólastjórninni þangað til eg fór af landi burt 1887. Allir aðrir, sem unnu við stofn- un skólans munu nú dánir. En fyrsti skólastjórinn mun vera enn á lífi. Ekkert getur verið ánægju- legra fyrir gamalmennið en að eiga þá meðvitund í fórum sín- um að framkvæmdir hans í líf- inu hafi borið góða ávexti, og góðar afleiðingar, og þann á- nægjugeisla meðvitundarinnar getur engin frá mér tekið. Eg er Heímskrínglu þakklátur fyrír að birta þetta umrædda bréf, og þó sérstaklega höfundinum, sem samdi það og kunni að setja sto fjölbreytt efni í svo skiljanlegan og skipulegan búning. Eg sendi svo öllum hlutaðeigendum í umræddu máli mínar beztu ósk- ir og beztu þakkir. Athugasemd: í sambandi við framanritaða grein vil eg bæta þeirri bendingu við hvað fram- tíð hinna umræddu blaða snert- ir þá er auðsætt að þau verða að fylgjast með tímanum og laga sig eftir þeim breytingum, sem altaf eru að gerast í háttum og menning Vestur-íslendinga þar sem þriðji ættliðurinn er nú að taka við völdum í andlegu og verklegu framkvæmdalífi þeirra og þar sem stór hluti hans hefir ekki lært íslenzka tungu virð- ist óhjákvæmilegt að prenta blöðin að einhverju leyti á ensku tungumáli, og á þann hátt geta blöðin verið þessum þriðja ættlið sama aðstoðin eins og þau hafa verið hinum fyrri. Þó hkiir islenzku, framtíðar ætt- liðir hér hætti að nota og skilja íslenzka málið eru þeir samt ís- lendingar. Þeir þurfa því að hafa blöð til að ræða mál sín og halda uppi sæmd þjóðflokks- ins í samkepni afburða mann- anna, sem eru að skapa þjóð. Framtíð blaðanna er algerlega á valdi ungu samtíðar kynslóð- arinnar, hún ætti því að hefjast handa og safna nýjum kaupend- um, taka þau í sína þjónustu og gera þau að miðstöð á starfsvið- um manndóms og menningar, þjóðinni til uppbyggingar og sæmdar. Með virðing og vinsemd, Magnús Jónsson, frá Fjalli. I NAZISTAR OG GYÐINGAR Menn eiga yfirleitt erfitt með að átta sig á því sem gerist í Þýskalandi um þessar mundir. Blöð stjórnarandstæðinga eru annað hvort bönnuð eða undir- gefin ritskoðun. Að eins eitt blað í Þýskalandi, hægrablaðið “Deutsche Allgemeine Zeitung”, getur ennþá leyft sér að láta sjálfstæðar skoðanir í ljósi, og þó aðeins að nokkru leyti. Er- lendir fréttaritarar eiga í hættu, að þeim verði vísað úr landi, ef þeir breiða út fregnir, sem Naz- istum líkar miður. Eitt af stær- stu blöðum Norðurlanda, “Göte- borgs Handelstidning” hefir því kvatt fréttaritara sinn í Berlin heim — “þar sem honum 'var ekki leyft að skýra frá því sem hann vissi að var satt”. Við þetta bætist, að Nazistar þröngva andstæðingum sínum til þess að bera til baka ýmsar fregnir um ástandið í Þýska- landi. Samkvæmt opinberri tilkynn- ingu frá miðstjórn Nazista- flokksins eiga Nazistar að koma því til leiðar, að sérhver Þjóð- verji tilkynni kunningjum sín- um og viðskiftavinum erlendis, að friður og ró ríki í Þýska- landi. Af þessum ástæðum hafa margir Gyðingar í Þýska- landi sent til útlanda skeyti, þar sem þeir fuliyrða, að skelfing- arfregnimar og kvíðvænlegar fréttir um Þýzkaland séu ósann- ar. Þessi svokölluðu “Goebels- skeyti eru flest orðuð eins, að líkindum að undirlagi yfirvald- anna”. Af framangreindum á- stæðum er oft erfitt að greina á milli sannra og ósannra fregna frá Þýskalandi. Frá Þýskalandi hafa að und- anförnu borist hræðilegar fregnir um morð, ofbeldisverk, misþjTmingar á föngum í fangelsunum o. m. fl. Nazista- ráðherrann Göhring hefir að sumu leyti gefið þessum fregn- um byr í seglin. Göhring hefir t. d. sagt opinberlega, að lögregl- an og Nazistaherinn eigi held- ur að skjóta of mörgum en of fáum skotum. Göhring hefir ennfremur sagt opinberlega “að það sé ekki hlutverk lögregl— unnar að vernda 80,000—100,000 fanga í fangejsunum”. Margar af fregnunum um of- beldisverk í Þýskalandi eru vafalaust ósannar. T. d. birtu nokkur blöð þá fregn, að Naz- istar hafi myrt kommúnistfor- ingjann Thalmann í fangelsinu. Nokkru seinna var erlendum fréttariturum gefið tækifæri til að tala við Thalmann og ýmsa aðra fanga. Föngunum bar öll- um saman um það, að fregnirn- ar um misþyrmingar í fangels- unum væru ósannar. Með þessu er þó ekki sagt, að engin ofbeldisverk haff verið framin í Þýskalandi. Áreiðanleg biöð víðsvegar um heim hafa flutt fregnir um líkamlegar mis- þyrmingar og jafnvel morð á andstæðingum Nazista. Þessar fregnir geta ekki allar verið hæfulausar. Þótt hinsvegar alt bendi til þess, að ofbeldisverkin hafi ekki verið framin með vilja stjórnarinnar. Jafnvel “Times” talar um ógnaröld (terrorisma) í Þýzkalandi og flytur nákvæm- ar fregnir um ýms ofbeldisverk af hálfu Nazista. Og “Times” er blað, sem ekki er vant að hlaupa með flugufregnir. M. a. talar “Times” um að margir hafi verið teknir fastir.af “prí- vat” persónum og að þessum mönnum sé haldið í varðhaldi í “prívat” húsum í Berlin. Blað- ið segir að meðal þessara fanga séu heimsfrægir menn. í seinni hluta f. m. birti Hitl- er tilkynningu, þar sem hann segir m. a. að nú verði ofbeldis- verk í landinu að hætta. Dag- inn eftir skrifar hægrablað Deutsctíe Allgem. Zeitung m. a., að síðan þ. 16 marz hafi bæði í berlín og víðar gerst viðburð- ir, sem ríkisvaldið geti ekki þol- að. Blaðið talar um ofbeldis- verk, sem séu ekki síst óþolandi af þeirri ástæðu að þau hafi verið framin af 18—20 ára gömlum skólastrákum. Blaðið ’ætur í ljósa gleði yfir tilkynn- ingu Hitlers og segir að sérhver, sem raski friði heimilanna skerði persónulegt frelsi eða verði sekur um aðrar refsinga- verðar athafnir, verði framve.v- is afhentur lögreglunni. Og nú eigi lögreglan að fá tilkynningu ’im þá staði, þar sem “pólitísk- um föngum”, handteknum af “prívat” persónum, sé haldið i ^arðhaldi. Þannig talar blað, °em er nákomið einum af stjórnarflokkunum í Þýskalandi, nefnil. þýsk-nationala flokknum. Bæði framannefnd tilkynning. Hitlers og ummæli Deutsche Allgem. Zeitungs bera vott um að fregnirnar um ofbeldisverkin í Þýskalandi hafa ekki verið al- gerlega hæfulausar. Nazistar hafa árum saman cáð hatri í garð Gyðinga. Það má því tleja víst að ofbeldis- verkin í Þýskalandi hafi ekki síst bitnað á Gyðingum. Flótti margra Gyðinga frá Þýskalandi bendir til þess að svo hafi ver- ið. — í lok f. m. sagði enski stjórnmálamaðurinn Robert Cecil lávarður í ræðu: “Þýski sendiherrann hefir fullvissað mig um, að stjórn Hitlers ætli að binda enda á ofbeldisverkin gegn Gyðingum”. — Nokkru sðar gerða glöð Naz- ist yfirlýsingu um Gyð- ingamálin í Þýskalandi. Þar er sagt, að “líkamlegar mis- þyrmingar hafi átt sér stað um tíma” en nú sé bundinn endi á þetta. Þarna er vafalaust skýrt rétt frá. Sumstaðar erlendis hefir án efa verið gert of mikið úr Gyð- ingaofsóknunum í Þýskalandi. Samkvæmt Nazistablöðum hafa erlend blöð breitt út þær fregn- ir, að hendurnar hafi verið höggnar af handteknum Gyð- ingum, margir hafi verið myrtir og brytjuð Gyðingalík liggi í hrúgum í Spree. Þessar og svipaðar fregnir eru án efa reif- arasögur. Annars er ekki kunn- ugt í hvaða blöðum Nazistar hafa lesið þessar fregnir. Fregnirnar um Gyðinga of- sóknirnar vöktu mikla gremju meðal Gyðinga erlendis: marg- ir þeirra komu sér saman um að kaupa ekki þýskar vörur. í lok mars, ákvað miðstjóm Nazist-aflokksins þýska að úti- loka Gyðinga í Þýskalandi frá öllum viðskiftum. Flokksstjórn- in skoraði því á alla Þjóðverja, að hætta öllum viðskiftum við Gyðinga, bæði kaupmenn, lækna lögfræðinga og aðra Gyð- inga frá 1. apríl kl. 10 árd, að telja Nazistaflokksstjórnin sagði að þetta væri vamarráðstöfun vegna rógbHrðari'ns um Nazista erlendis. Af Nazistablöðum má þó sjá, að ástæðurnar til þess- ,ara ráðstafana voru að minsta kosti meðfram aðrar. “Öll neyð- in og vandræðin í Þýskalandi eftir stríðið eru Gyðingunum að kenna”, skrifar “Der Angriff”, blað Goebbels, 28. f. m. Að und- anförnu hafa Nazistar hvað eft- ir annað brýnt fyrir þýsku þjóð- inni, að ósigur Þjóðverja í heimsstyrjöldinni, byltingin í Þýskalandi haustið 1918, og öll vandræðin eftir stríðið sé alt saman verk Gyðinganna. í Þýskalandi eru alls um 650 þúsund menn og konur af Gyð- ingaættum, þar af 100 þúsund kristnir. Forfeður margra nú- lifandi Gyðinga í Þýskalandi hafa flust þangað fyrir mörgum manhsöldrum. Nazistar berjast á móti Gyð- ingum fyrst og fremst af þjóð- ernislegum ástæðum. Eitt aðal- atriðið á stefnuskrá Nazista hefir lengi verið það, að ein- göngu fólk sem er þýskt að þjóðerni, geti notið ríkisborgar- rétts í Þýskalandi. Atvinnu- samkepni er önnur aðalástæðan til baráttunnar á móti Gyðing- um. Á keisaratímanum höfðu Gyðingar í reyndinni ekki að- ganga að ríkisembættum, en beir fengu það eftir byltinguna 1918. Nazistar vilja aftur meina Gyðingum aðgang að ríkisem- bættum. Þár að auki vilja Naz- istar draga úr atvinnuleysinu meðal lögfræðinga og lækna, 'em eru þýskir að þjóðemi. Nazistar vilja enn fremur úti- loka Gyðinga frá öðrum at- vinnurekstri, einkum verzlunar- rekstri. Hin stóru Gyðinga- vöruhús eru nefinlega hættuleg- ir keppinautar smákaupmann- anna, en margir þeirra eru fylg- ’smenn Nazista. Viðskiftin við Gyðinga í Þýskalandi voru aðeins stöðvuð einn dag. Svo afturkallaði nokksstjórn Nazista viðskifta- stöðvunina. Það er sagt, að Sdhact ríkisbandastj., Neurath utanríkisráðherra og amerískir fjármálamenn hafi varað Hitler við að halda henni áfram, því að hún mundi valda mikilli truflun í atvinnulífi Þjóðverja, hafa óheppileg áhrif á utanrkis- verzlun og fjármál þeirra og yfirleitt skaða Þjóðverja erlend- is. Það hefir mælst illa fyrir, að Nazistar hafa “æst stórþjóð upp á móti varnarlausum minni hluta”, eins og “Times” kemst að orði. f enska þinginu hefir Sir John Simon, utanríkisráð- herra, lýst yfir því, að öll enska þjóðin fordæmi atferli nýju þýsku valdhafanna gagnvart Gyðingum. Með afurköllun bannsins gegn viðskiftum við Gyðinga í Þýskalandi er barátta Nazista á móti Gyðingum langt frá lokið. Flestum embættismönnum af Gyðingaættum hefir verið vikið frá embættum. Gyðingar rekn- ir frá öllum blöðum og leikhús- um og framvegis mega að eins vera 35 málfærslumenn af Gyð- ingaættum í Berlín (hingað til um 2000). — Og nú á að tak- marka aðgang Gyðinga að æðri skólum. Vafalaust sér Hitler um, að “ekki verði skert eitt hár á höfði Gyðinga”, en smátt og smátt verða þeir sviftir öllum tilverumöguleikum í Þýskalandi. Khöfn í apríl 1933 —Mbl. P. EVRÓPU VÍSUNDURINN Flestir hafa heyrt talað um vísundana í Norður-Ameríku, sem langt fram á 19. öldina reikuðu í miljónatali þar um grassléttumar, en voru skotnir niður á tiltölulega fáum árum, eftir að járnbrautin var lögð vestur, og var þá aldrei hirt nema húðin. Leit um tíma út fyrir að þessari tilkomumiklu en meinlausu villinautategund nyndi verða gersamlega út- "ýmt, en svo varð þó ekki, þvf nokkurar smáhjarðir varðveitt- ust. En um langan tíma var það svo, að þeim gerði hvorki að fjölga eða að fækka. En eftir að þeim voru búin ný friðlönd í óbygðum norður í Canada og flutt þangað hefir þeim fjölgað mikið. Um Evrópu-vísundinn hafa litlar sögur farið, enda hafa ekki verið til af honum á síðari tímum nema smáflokkar, og að eins á tveimur stöðum: í Bía- lovic-skógi í Lituaniu (Lithauz- in) og í óbygðum í Kákasus- fjöllum. Heyrðu hvorir tveggju hóparnir undir veldi Rússakeis- ara fyrir stríð. Var vísundanna gætt vandlega á fyrnefnda staðnum, því þar var veiðigarð- ur keisarans, en sagt er að þeg- ar stríðið geisaði á þeim slóð- um, hafi þeim verið nær útrýmt. En nokkuð er til af vísundum þessum í dýragörðum, því þeir þrífast þar sæmilega og tímgast þar. Má meðal annars sjá þá í dýragörðunum, sem íslendingar helzt heimsækja, sem eru dýra- garðarnir í Kaupmannahöfn og í Edinborg. Evrópu-vísundurinn er nokk- uð minni Aexti en sá ameríski, og ekki með eins mikla kryppu um herðarnar. Er mælt að Ameríkutegundin geti orðið þriggja metra löng (nautið) og alt að 1000 kg. að þyngd. En Evrópu-tegundin er nokkuð minni. Vísunda-kjötið er ágætt átu, og óþekkjanlegt frá nauta- kjöti. í ráði er nú að koma upp frið- landi fyrir Ev’rópu-vísundinn í suðurhluta Bæjaralands í Þýzka landi, en féð, sem til þess þarf, leggur ríkissjóður Bæjaralands Þér sem notið TIMBUR KAUPIÐ AF THE Empire Sash & Door CO., LTD. BirgOlr: Henry Ave. East Sími 95 551—95 552 Skrifstofa: Henry og Argyle VERÐ - CÆÐI - ÁNÆGJA fram að mestu, en sumpart Vís- undafélagið, sem stofnað hefir verið til þess að hrinda þessu í framkvæmd. Hefir land þegar verið ákveðið til þessa, og legg- ur ríkið það til, svo sem timbur til girðinga kringum það og timbur til skjólhúsa og fóðrun- arstöðva. þar sem umsjónar- maður á að búa, og gefa á vís- undunum ef aftök verða. Ekki verður byrjað þarna nema með þremur dýrum, tveimur kúm og einu nauti. Ætlar dýragarðurinn í Berlín að lána aðra kúna, en hin tvö dýrin á að kaupa, ef þau ekki fást gefins eða lánuð, sem sumir gera sér von um. O. —Alþbl. NÝLENDAN í SKORESBY-SUNDI Grænlendingarnir, sem fluttir voru til Skoresbysunds 1924, voru 85 að tölu. Þeim hefir farnast vel í hinum nýju heim- kynnum sínum og eru nú órðn- ir 150. Hafa fáir dáið, en mikið fæðst af börnum. Sagt er að björgulegt sé þarna við Skoresbysund fyrir Grænlend- inga, mikið þar af sel, rostung, náhveli, refum og björnum, og dálítið af sauðnautum, en þau eru friðið. Höfðu Grænlend- ingarnir í fyrstu tekið bannið við að skjóta þau bókstaflega og drápu eitt eða tvö þeirra fyrsta veturinn með því að rota þau. Nokkuð er þarna líka af fugli á sumrin. Sagt er að þarna við Skores- by-sund sé nóg rúm og veiði fyrir all-stóra Skrælingjabygð, enda er þarna um stórt svæði að ræða. Skoresbysund er ekki sund, eins og haldið var þegar því var gefið nafn, heldur geysi- stór fjörður, sem skerst inn í austurströnd landsins. —Aliþbl. “Endurminningar” FriSriks Guðmundssonar eru til sölu hjá höfundinum við Mo- zart, í bókaverzlun ó. S. Thor- geirssonar og á skrifstofu Hkr. Fróðleg og skemtileg bók og afar ódýr. ..Kostar aðeins $1.25. Prentun The Viklng Press, Limited, gerir psentun smáa og stóra, fyr* ir mjög sanngjamt verð. Ábyrgjumst að verkið sé smekklega og fljótt og vel af hendi leysL Látið oss prenta bréfhajusa yðar og umslög, og hvað annað sem þér þurfið að láta prenta. Bækur og stærri verk gerð eftir sérstökum samingi. THE VIKING PRESS LTD. 853 SARGENT Ave., WINNIPEG «ími 86-537 *

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.