Heimskringla - 01.08.1934, Side 2
2. SIÐA.
H El MSKRINGLA
WINNIPEG, 1. ÁGÚST, 1934
FRÁ ÁRSÞINGI SAMBANDS-
KIRKJU FÉLAGSINS
Frh. frá 1. blg.
Eins og öllum er ku'nnugt,
hefir Sambandssöfnuðurinn í
Winnipeg verið án fastrar prest-
þjónustu síðan séra Ragnar E.
Kvaran fór frá honum á síðast
iiðnu sumri. Messum hefir
samt verið haldið uppi í kirkju
safnaðarns á hverjum sunnu-
degi síðan í september í haust,
og hafa séra Rögnv. Pét-
ursson, séra Eyjólfur Melan,
séra Philip Pétursson og eg séð
um þær til skiftis. Auk þess
hefir hr. Bergþór E. Johnson
tvisvar prédikað og stjórnað
guðsþjónustum þar á þessu
tímabili. Að öðru leyti hefir
starfsemi safnaðarins gengið
með venjulegum hætti. Það er
að mínu áliti mjög áríðandi að
þessi söfnuður fái sem fyrst
fasta prestþjónustu, en auðvitað
er það hans einkamál og utan
við starfssvið þessa þings að
hlutast til um það. Þegar séra
Ragnar E. Kvaran fór til Is-
lands í fyrra, var hann beðinn
að komast í samband við ein-
hvern álitlegan mann þar
heima, sem fáanlegur væri til
að koma vestur og takast á
hendur prestþjónustu í kirkju-
félagi voru. Gerði hann það og
benti Winnipeg söfn. á eirin
hinna yngri þjónandi presta i
Þjóðkirkju íslands. Ilefir Win-
nipeg söfnuður síðan átt bréfa-
skifti við þennan mann, en‘
samningar munu enn ekki hafa
tekist. Er nú séra Rögnv. Pét-
ursson lagður af stað til íslands,1
og mun hann gera sitt ýtrasta
til að útvega mann þar.
Um starfsemi ahnara safnaða
í kirkjufélaginu er það að segja,
að hún mun hafa gengið með
líkum hætti og að undanförnu.
Skýrslur um starf þeirra í aðal-
dráttunum munu verða gefnar
af fulltrúum þeirra síðar á
þessu þingi. ,
Reynt hefir verið eftir föng-
um að sjá þeim söfnuðum, sem
ekki hafa fasta prestþjónusfcu,
fyrir nokkurri þjónustu, en eðli-
lega hefir hún verið minni en
þurft hefði að vera. Séra Rögn-
valdur Pétursson hefir tvisvar
farið til Wynyard og messað þar
og haldið fundi með meðlimum
safnáðarins þar og átt samtöl
við menn, sem eru sinnandi fé-
lagsmálum vorum í vesturhluta
Vatnabygðanna í Sask. Hafa
ferðir hans þangað vestur verið
til mikilg gagns og uppörfunar
Mjólk, rjómi, smjör og ísrjómi
Fyrir vörugæði og skjóta afgreiðslu
reynið
Modern Dairies Limited
Simi 201101-2-3
‘You Can Whip Our Cream
But You Can't Beat Our Milk”
fyrir fólk þar og félagsskap
vorn í heildinni. Ennfremur
hefir hann nokkrum sinnum
farið til Piney og messað þar,
og sömuleiðis séra Philip M.
Pétursson.
Auk þess sem eg hefi þjónað
söfnuðum mínum á Lundar og
Oak Point hefi eg farið til eftir-
fylgjandi staða og flutt þar
guðsþjónustur, eftir því sem
tími og ástæður hafa leyft —
Langruth, Siglunes og Hayland,
Steep Rock og Reykjavík eða
Bluff. Á öllu'm þessum stöðum
er fólk, sem æskir eftir að
guðsþjónustur séu fluttar þar
af og til af vorri hálfu. í Lang-
ruth var söfnuður, sem nú hefir
neyðst til að leggja niður störf
vegna fámennis, en nokkrar
konur halda þar þó enn uppi
merki með sjaldgæfum áhuga
og dugnaði. Á hinum stöðun-
úm öllum eru menn, sem eru
einlægir fylgismenn stefnu vorr-
ar og hafa þeir lagt á sig tals-
verða fyrirhöfn til þess að mess-
ur þær sem eg hefi flutt, msettu
takast sem bezt að ástæður
hafa leyft. Hefir aðsókn að
þeim yfirleitt verið góð, þegar
tillit er tekið til þess að sumar
þessar bygðir eru fámennar og
víða all-langt að fara til messu-
staðar.
Stjórnar nefnd félagsins hefir
ihaldið fundi á árinu eftir því
sem þörf hefir krafið. Sam-
vinna hefir verið ágæt í nefnd-
inni. Auk þeirra manna, sem
I sæti eiga í henni, hafa þeir séra
i Rögnvaldur Pétursson og séra
jEyjólfur Melan setið á flestum
|eða öllum fundu'm samkvæmt
ósk nefndarinnar. Fjárhagur
félagsins, eins og sjást mun af
skýrslu féhirðis, er stórum lak-
ari nú en hann var í fyrra, sem
stafar af því að talsvert fé hefir
verið lánað út, sem ekki er farið
að koma inn aftur, og í nokkurn
kostnað hefir verið farið, sem
ekki getur endurgoldist nema
með all-löngum tíma. Vitanlega
er það óhjákvæmilegt að félagið
verji þó nokkru fé til ýmsra fyr
irtækja, en tillög til þess frá
söfnuðunum hafa farið mínk
andi sökum fjárhagserfiðleika
þeirra sjálfra. Væntanlega
greiðist nokkuð af því sem fé-
lagið á útistandandi á þessu
komandi ári.
Það þarf naumast að taka það
fram, að enn sem fyr héfir the
American Unitarian Association
stutt starfsemi vora með ríf-
legum fjárframlögum, þrátt fyr-
ir erfiðan fjárhag þess félags
sjálfs. Mætti í því sambandi
minnast á dr. George F. Patter-
son, sem hefir reynst oss hinn
ötulasti og bezti talsmaður í
allri málaleitun vorri við A. U.
A. síðan hann tók við starfi
sínu. Hefir hann heimsótt oss
nokkrum sinnum og þekkir og
skiiur vel allar ástæður hér.
Stöndum vér sem félag í mikilli
þakklætisskuld við hann og
aðra forráðamenn A. U. A. fyrir
hjálp þá, er þeir hafa fúslega
látið oss í té á liðnum árum.
Að endingu vil eg þá bjóða
ykkur öll, fulltrúa og gesti, vel-
komin á þetta tólfta ársþing
vort. Vona eg að dvölin verði
ykkur ánægjuleg þá daga, sem
vér dveljum hér saman. Veit
eg að ekkert verður ógert látið
af þeim, sem hér eiga hlut að
máli, til þess að gera þing þetta
ánægjulégt og dvölina skemti-
lega. Höfum vér mörg áður
notið gestrisni Gimli safnaðar
og minnumst hennar með þakk-
læti. Vil eg biðja alla þá, sem
þetta þing sitja, að gera alt
sem í þeirra valdi stendur til
þess að störf þess geti gengið
greiðlega. Að sumu leyti stönd-
um vér ver að vígi nú en oft
áður með að rækja þingstörfin
vel. Er þar t. d. mjög óheppi-
legt að dr. Rögnvaldur Péturs-
son gat ekki verið hér og að
vér ekki njótum hans góðu' ráða
í þetta sinn. En við því var
ekki hægt að gera, því för sinni
gat hann ekki frestað. Hlýtur
þetta þing að verða því fátæk-
legra sem færri eru til að taka
forystu í störfum þess. Og því
fremur ber oss, sem hér erum,
að gera vort ýtrasta til að þau
fari vel úr hendi. Segi eg þá
þingið sett og bið yður að taka
til starfa.
Guðm. Árnason
i
Fundargerningur 12 árs þings
hins Sameinaða Kirkjufélags
íslendinga í Vesturheimi
Hið tólfta ársþing hins Sam-
einaða kirkjufélags íslendinga í
Vesturheimi var sett í kirkju
Sambandssafnaðar á Gimli,
laugardaginn 7. júlí, 1934, kl. 4
síðdegis.
Forseti félagsins, séra Guðm.
Árnason, setti þingið. Sálmur-
inn nr. 619 var sunginn og því-
næst flu'tti forseti ávarp sitt til
þingsins.
Þá bar Mr. Frank Olson fram
tillögu þess efnis, að forseta sé
falið að skipa þrjá menn í
kjörbréfanefnd. Tillagan var
studd og samþykt. Þessir .voru
settir í nefndina: Guðm. O. Ein-
arsson, Frank Olson og Capt. J.
B. Skaptason.
Eftir að nefndin hafði yfirlitið
kjörbréfin, skýrði hún frá að
þessir embættsmenn félagsins
og fulltrúar væru mættir:
Prestar og stjórnarnefndar-
menn:
Séra Guðm. Árnason, forseti,
Mr. Sv. Thorvaldson, vara-for
seti, séra Philip M. Pétursson,
vara-ritari, séra Eyjólfur J.
Melan, (Dr. Sv. E. Björnsson,
rtiari og P. S. Pálsson, féhirðir,
voru ókomnir þegar þingað var
sett en komu síðar).
Fulltrúar:
Frá Winnipeg söfn.:
Mr. Ólafur Pétursson
Mr. Th. Borgfjörð
Mr. B. E. Johnson
Mr. J. B. Skaptason
Varafulltr. frá Wpg. söfn.:
Mrs. Dorothea Pétursson
Mrs. Ragnh. Davíðsson
Mr. Stefán Scheving
Fulltr. frá Gimli söfn.:
Mr. Jón Guðmundsson
Mr. Frank Olson
Fulltr. frá Riverton söfn.:
Mr. Guðm. Björnsson
Mr. Jón Sigvaldason
Miss Ólína Thorvaldson
(fjnrir Sdsk.)
Fulltr. frá Lundar söfn.:
Mr. Björn Bjömsson
Mr. Ágúst Eljólfsson
Sendið féð með pósti
á banka
Ef þú átt heima fjarri banka, eða
óþægilegt er fyrir þig að fara þang-
að, vildum vér fúsir greiða fyrir því,
að þú gætir sent féð með pósti. Til
þess er bæði einföld og trygg leið.
Skrifið bankastjóranum eftir full-
nægjandi upplýsingum.
T H E
ROYAL BANK
O F CANADA
Varafulltr.:
Mr. Jón Kristjánsson
Mr. Eiríkur Scheving
Fulltr. frá Oak Point söfn.:
Mrs. Nýbjörg Snædal
Fulltr. frá Árnes söfn.:
Mrs. Guðrún Johnson
Mrs. Snjólaug Pétursson
Fulltr. frá Árborgar söfn.:
Mrs. Ólöf Oddleifsson
Mr. Jóh. Sæmundsson
Mr. P. K. Bjamason
Mr. G. O. Einarsson
Ennfermur sátu eftirfylgjandi
gestir á þinginu: Miss Hlaðgerð-
ur Kristjánsson, Miss Guðbj.
Sigurðsson, Miss Guðrún Sig-
urðsson, Mrs. Jóhanna Sigurðs-
son, Mrs. Ingibjörg Bjarnason,
Mrs. Margrét Byron, Mrs. Ásta
Hallsson, Miss Stefanía Pálsson,
Mrs. J. B. Skaptason, Mrs. P. S.
Pálsson, Mrs. Th. Borgfjörð,
Mrs. B. E. Johnson, Mrs. S. E.
Björnsson, Mrs. Guðrún Eyjólfs-
son, Miss Helga Árnason, Miss
Bergþóra Sólmundsson, Miss
Fríða Sólmundsson, Miss Óla
Sólmundsson, Mr. Björgvin
Stefánsson, Miss Thorbjörg Sól-
mundsson, Mrs. Sv. Thorvald-
son, séra J. P. Sólmundsson, Mr.
K. Kjernested, Mr. Jón Ásgeirs-
son, Mrs. Björg Björnsson, Mrs.
Guðbjörg Sigurðsson og ýmsir
fleiri. Nöfn fulltrúa kvenfélag-
anna eru ekki sérstaklega talin
hér, en væntanlega birtast þau
í skýrslu ritara kvenfélaga sam-
bandsins.
J. B. Skaptason lagði til, að
allir varafulltrúar sem mættir
væru, yrðu gerðir réttmætir sem
fulltrúar. P. S. Pálsson studdi
tillöguna og var hún samþykt.
Þá var sett dagskráarnefnd og
var hún skipuð þessum mönn-
um:
Ágúst Eyjólfsson
Stefán Scheving
Canadian Livestock Co-Operative
(Western) Limited
UNION STOCKYARDS, ST. BONIFACE, MAN.
Fyrir hönd þessa félags, hefi eg þá ánægju, að árna
íslendingum, löndum mínum, til hamingju á 60 ára
Þjóðminningarhátíð þeirra og fullvissa þá um, að starfs
þeirra í þágu hérlends þjóðlífs, er minst með aðdáun af
félagi þessu og þeim er hjá því starfa.
WINNIPEG DRUG
COMPANY, LIMITED
H. D. Campbell
Prescription Speciaíists
Þakka íslendingum fyrir veru sína og vinnu
Vesturheimi í s'ðast liðin sextíu ár og
óska þeim allra heilla í framtíðinni
Cor. PORTAGE Ave. and KENNEDY St.
Telephone 21 621 WINNIPEXl
í sambandi við Canadian Livestock Co-Operative Limited
standa eftirfylgjandi gripasamlög í Canada:
Saskatchewan Co-op. Livestock Producers Ltd.
Manitoba Co-op. Livestock Producers Ltd.
United Farmers Co-op Company Ltd.
Co-op. Federee De Quebec
Maritime Livestock Board Inc.
Útsölustöðvar í:
i
Exchange Bldg., Point St. Charles, Montreal.
Union Stockyards, St. Boniface, Man.
Oss langar til að nota þetta tækifæri til þess að þakka
hinum mörgu viðskiftavinum vorum samvinnuna á liðn-
um árum og minna þá jafnframt á, að þetta er hinn eini
samvinnufélagsskapur, sem bændur eiga, er rekur sölu
á kvikfénaði á þessum ofangre(ndu stöðum.
I. INGALDSON, ráðsmaður