Heimskringla - 03.07.1935, Síða 1
XLIX. ÁRGANGUR
WINNIPRG, MIÐVLKUDAGINN, 3. JÚLÍ 1935
NÚMER 40,
Bardagi og blóðsúthellingar
á strætum Regina-borgar
Regina, 2. júlí — í gærkveldi
sló í bardaga milli lögreglunnar
í Regina og atvinnuleysingj-
anna frá British Columbia.
Einn lögreglumaður var drep-
inn, en alls meiddúst 42 menn,
voru 9 af þeim löreglumenn en
33 atvinnuleysingar.
Frá orsökum uppþotsins er
sagt á þá leið, að atvinnuleys-
ingjar hefðu boðað til fundar og
safnast saman á Market
Square. Höfðu þeir byrjað á
ræðuhöldum, en bæjarlögreglan
kom þar á vettvang. Þegar
tveir ræðumenn, og hét annar
þeirra J. M. Toothill, verka-
mannasinni og bæjarráðsmanns
efni í komandi bæjarkosning-
um, höfðu lokið máli sínu
laust í bardaga.
Tók fylkis- og landslögreglan
brátt þátt í honum. Varaði bæði
lögreglan og atvinnuleysingjar
almenning við, að vera ekki
nærri. Að einstöku manni und-
anteknum hörfuðu íbúarnir til
heimila sinna.
Atvinnuleysingar stöðvuðu
bílaumferð og hrintu sporvögn-
um út af spori. Búðargluggar
voru og brotnir. Grjótkast var
mikið og skotum var tíðum
skifst á. Loft var blandað tára-
gasi.
Þegar á þessum ólátum hafði
gengið um hríð, tvístraðist hóp-
ur atvinnuleysingja og æðinu
linti. Evans leiðtogi atvinnú-
leysingja ásamt 26 öðrum voru
hneptir í varðhald.
BRÉF TIL HKR.
Á Atlantshafinu,
15. júní 1935.
Herra ritstj. Hkr.:
Svo sem mig hefir oft hent
um æfina, er eg búin að lofa
fleiri vinum mínum að skrifa
þeim í sumar, en góðu hófi
gegnir, eða auðvelt mun að
efna. — Vil eg því biðja þig
svo vel að gera, að ljá mér
stöku sinnum rúm í blaði þínu.
—lofa þér í staðinn, að langorð
skuli eg hvergi verða.
Vestur-ströndin, og Vestur-
Canada er mér svo vinlega
kunnugt — og viðdvöl mín í
Winnipeg svo unaðsleg og hlý,
að mér finst eg ekki fyllilega
vera farin að heiman, eða lögð
í langferð, fyr en eg skildi við
vini og vandamenn í Wpg. um
kvöld þess 5. júní, og lestin til
Montreal tók fyrsta kippinn. —
Eg sat æði tíma sem í leiðslu
— tók snemma á mig náðir —
og dreymdi börnin mín. — Já,
“eg á sjö börn í sjó”, o. s. frv.
— og hamúrinn falinn um
stund.
Næsti dagur virtist langur.
Landslag, um gluggann, mest
klappir og skógur, — lestin
brunar áfram — regn ef út er
komið. — Það var því með
feginleik að eg fékk mér her-
bergi í Montreal, fyrir sólar-
hring, fastráðin í að fá mér
göngutúr — skrifa svo ibréfin
sem biðu næðis — og búa mig
undir að sigla næsta dag. —
Eg gekk og gekk — en eg reyni
ekki að lýsa neinu sem eg sé
aðeins í svip. — En í andrúms-
loftinu varð eg greinilega vör
við tvent — frönskuna og ka-
þólskuna. — mér virtist kven-
þjóðin vel búin, en ekki skraut-
lega og minna um máluð andlit,
en maður tekur eftir á svipaðri
göngu um verzlunargötur stói-
borganna vestur á strönd.
Fysti dagurinn um borð á
skipinu Duchess of Bedford,
var hlýr og sólríkur. Flestir
stóðu úti, til að njóta sem bezt
grænskóga og glæsi-útsýnis á
bökkum hins volduga St. Law-
i*ence fljóts. Um kl. 6 leytið
vorúm við í Quebec, og • send
um frá okkur síðustu bréfin
heim — til vesturheims heim.
Næsta morgun brá mér í
rence fljótinu þennan s.dags
morgun. — En sannarlega var
samspil hljómsveitarinnar bjart-
ur og eftirminnilegur sólstafur
dagsins. — Og samskotin, 45
dollarar, gefnir í hljálparsjóð
sjómanna.
í dag var það sem við áttum
að lenda í Glasgow, en erum
tvo sólarhringa á eftir áætlan.
— Þokunni hefir aldrei létt
upp — og í grend við nýfundna
land var haf-ís á sveimi — og
fleiri skip að þræða, ör stilt, út1
eða inn. Stundum var algjör
stanz — og lúðurinn hvein.
Er út úr haf-ís hroðanum kom,
færðist meira skrið á okkur —
en það var svo drungalegt og
kalt úti, að eg settist að við |
skriftirnar mínar, og hefi reynt
að nota tímann — svo heppin
að vera heilbrigð — enda hefir
aldrei verið mikið rót.
Allur viðurgerningur er hinn
ágætasti, og auðvelt að láta
fara vel um sig. Það er hljóð-
færasláttur og hreyfimyndir,
dans og spil og útileikir, fyrir
þá sem vilja taka þátt í slíku;
einnig bækur til láns. — Eg
varð forvitin við að heyra
skozka samferðakonu segja frá
íað næsti jlandstjórl Clanada,
John Budhan, værfi skozkur
rithöfundúr — fann sögu eftir
hann — smellna skemtisögu —
ef maður hefði tíma fyrir þess-
konar.
Dagblað er gefið út, um borð.
Það flytur gott yfirlit yfir
“heimsfréttir” — Þar sé eg að
Evrópa hefir nánar gætur á því
sem Mussolini bruggar — t.d.
á orði að leyfa honum ekki
flutning hers um Suez o. s.
frv. — Aftur á móti sé eg ekk-
ert um nýjasta glæpinn í
Bandaríkjunum. — Hverskonar
blaðamenska er þetta — húgsa
eg sem hefi búið sunnan “lín-
unnar” í 26 ár.
Nú rofar fyrir sól — og um
leið glaðnar yfir öllum. — Eg
stenzt ekki þetta inniloft leng-
ur — en fer út að ganga, og
læra að berast ögn með
straumnum!
Kærar, innilegar kveðjur, til
allra vina minna fyrir vestan
haf!.
Vinsamlegast,
Jakobína Johnson
brún — þokuhjúpur yfir öllu,
og mjög lítið skrið á skipinu.
Þoku-lúðurinn blés í sífellu. Eg
hafði ætlað mér þennan dag úti,
og að setjast ekki við neinar
skriftir fyr en út á haf væri
komið. en öðruvísi fór,—-Morg-
unmessa, engelsku kirkjúnnar,
var auglýst — þangað barst eg
með straumnum. — Kom þaðan
með þeirri tilfinning að þoku-
loft mýndi víðar en á St. Law-
SÍMSKEYTI FRÁ
EIMSKIPAFÉLAGINU
Árni Eggertsson fékk skeyti
frá Eimskipafélaginu s. 1. viku
um að hann hefði verið endur-
kosinn til tveggja ára í stjórn
félagsins. Ennfremúr, að fjög-
ur prósent verði greiddir af
hlutum félagsins fyrir starfsárið
1934.
LIBERALAR VINNA ALGERAN
SIGUR f FYLKI3K0SNINGUN-
UM í NEW BRUNSWICK
St. John, 28. júní — í fylkis-
kosningunum sem fóru fram í
New Brunswick í gær, unnu
liberalar stórkostleggn sigur.
Af 48 þingsætum alls, náðu
liberalar 43, en conservatívar 5.
í fylkinu voru conservatívar
við völd. Fáir eða engir ráð-
gjafanna náðu endurkosningu;
svo ákveðinn var sigur liberala.
Sá er við völdum tekur af
fyrv. frsætisráðherra L. P. D.
Tilley, heitir A. A. Dysart.
Með þessum kosninga-úrslit-
um, er þá conservatíva-stjórn
eftir í aðeins einu fylki lands-
ins, Prince Edward Island.
Sigri þessum fagna liberalar
auðvitað og þó aðallega vegna
þess, að þeir ætla að hann boði
gott í sambandskosningunum
sem fara í hönd.
En upp úr því er auðvitað
ekkert leggjandi því hið sanna
er, að stefna Dysart og Kings
eru sitt-hvað. Annar trúir á
framfarir, en hinn á aðgerða-
leysi. Það sem Tilley tapaði
aðallega á, var hans aðgerða-
leysi. Því unir ekkert fylki nema
Manitoba.
Eftir kosningarnar 1930, var
tala þingmanna Tilley-stjórnar- um á «mliðnu ári, en hver smá-
lest kostaði 6 dali og 30 cent.
Sú upphæð sem bændur fengu
súrheyið, aðferð hans er merkt
stöfunum A. T. V., er nú reynd
í mörgum iöndum og þykir hafa
kosti fram yfir aðrar aðferðir
til súrheysgerðar, einkum þá,
að fóðrið skemmist ekki, hvern-
ig sem viðrar, ef henni er ná-
kvæmlega fylgt.
¥ ¥ ¥
I East York í Toronto bilaði
brú á fljóti einu í gær. Var um
40 manns á gangi yfir brúna og
meiddust 24 af þeim og voru i
sendir á sjúkrahús. Alvarlega
er ekk-i sagt að neinn hafi
meiðst. Á meðal þeirra er
meiddust voru bæði konur og
börn.
¥ ¥ ¥
Að tilhlutun landbúnaðar
ráðuneytisins í Ottawa verða
haldnar sýningar á hrossum;
svínum, alifuglumí nautgripum
og sauðfé í júlímánuði, á 'þess-
um stöðum: Portage la Prairie
og Dauphin, Man., Yorkton og
Melfort, Sask., Red Deer og
Camrose, Alta. Tvær fyrstú
vikur ágústmánaðar fara sömu
sýningar fram í Lloydminster,
Sask. og Fort William, Ont.
Fréttir af kirkjuþingi
hins sameinaða kirkjufélags
Þeir sem stunda sykurgerð í
Canada kejgptu meir en 400
miljónir smálesta af sykurróf-
innar 31 en liberala 17.
í hlut flokkana féllú atkvæð-
in þannig í þessum nýafstöðnu
kosningum, að liberalar hlutu
320,659, en conservatívar 228,-
024. Atkvæðamunurinn sýnir
eins og oft áður, að kosninga-
fyrir þennan
$2,599,833.60.
*
garðamat, nam
1 Ontario sækir maðkur á tó-
baksakra, svo þá verður að
sigurinn er ekki eins eindreginn verja með ýmsu kostbæru móti.
og ætla mætti af þingmanna í Quebec gætir ormanna ekki.
tölunni dæma. * * *
FREGNSAFN
Evans og Black, leigtogum
atvinnuleysingjanna í Regina
var neitað um lausn úr fangelsi
Um 450 manns, sem til Win- g6gn vegi f ibæjarréttinum í Re-
nipeg komu fyrir nokkru útan gina ■ gær
úr relief camps í Manitoba, * * *
tóku mathöllina á Princess og „ .. „ , ,
Ross heyrskyldi s. L laugardag, chewanfylkig j G Gardiner lét
en þar eru máltíðir veittar at-
vinnuleysingjum bæjarins. Þeg-
ar lögregla bæjarins og lands-
stjórnarinnar skárust í leik,
urðu þeir auðvitað að láta af
hendi herfang sitt. Hefir síð-
an orðið að sætt, að þeim séu
reist tjöld í gamla sýningargarði
bæjarins til að hafast við í fyrst
um sinn.
¥ ¥ ¥
Met í þolflugi, settu nýlega
tveir bræður, Fred og Alex Key,
sem heima eiga í Meridian í
Missouri-ríki. Flugið tóku þeir
4. júní og því lauk ekki fyr en
í gær eftir 27 daga, 5 klst. og
33 mínútur. Flugfar þeirra heit-
ir “Ole Miss”.
¥ ¥ ¥
Á Frakklandi má
bóndi sá hveiti í
tvö ár í senn.
¥ ¥ ¥
blaðið Free Press hafa langa
romsu eftir sér með fréttinni af
uppþotinu í Regina, er öll laut
að því, að kenna Mr. Bennett
um það, en smeygja sjálfum sér
undan allri ábyrgð á því. Ef
það er ekki ósvikið dæmi af
skítlegri flokksframkomu, væri
gaman að vita hvar þess er að
leita.
Þrettánda ársþing kirkjufié-
lagsins var haldið í Wynyard,
Sask., dagana 28. júní til 1.
júlí. Um 50 fulltrúar safnaða,
kvenfélaga og sunnudagaskóla,
sátu þingið. Erindi voru flutt
af séra Philip Péturssyni ^m
dvöl sína við háskóla íslands,
af séra Jakobi Jónssyni um
skriftir og sálgrenslan. Guðs-
þjónusta var flutt sunnudaginn
30. júní. Prédikaði dr. Rögn-
valdúr Pétursson, en séra Jakob
Jónsson aðstoðaði.
Á þingi kvenfélaga-sam-
bandssins, sem haldið var- þ. 29
júní, flutti erindi frú María
Björnsson frá Árborg um upp-
^ldismál og frú Ólafía Melan
frá Riverton um friðármálin.
Frú Guðrún Skaptason las upp
erindi eftir ungfrú Lilju Thor-
darson, sem ekki gat verið við-
lagssambandið fyrir almennri
samkomu. Flutti þar ungfrú
Helga Árnason erindi um nú-
tíma listir. Skemtiskráin var
fjölbreytt og tóku þátt í henni
meðal annara Karl Fredericks-
son, W. Johnson, Árni Sigurðs-
son og P. S. Pálsson. öll erindi
sem flutt voru fengu einróma
lof áheyrenda.
Þrátt fyrir miklar rigningar
og slæma færð, var þingið á-
gætlega sótt af bygðarfólki,
öðru hvoru húsfyllir. Viðtökur
ágætar af hálfu bygðarfólks.
Flestir er kirkjuþingið sóttu
héðan að austan, komu til baka
í gærkvöldi. Kváðu þeir færð
hafa verið slæma. Ár flóðu víða
yfir brýr og vegi. En ferða-
lagið gekk samt slysalaust.
Fundargerningur þingsins
stödd um sjúkdómsvarnir. Aðjverður birtur, sem að úndan-
kvöldi fyrsta júlí, stóð kvenfé- íförnu í Heimskringlu.
FRA fSLANDI
Aukinn mjólkurmarkaður
Dr. Jón E. Vestdal hefir ný-
lega látið í ljós þá skoðun sína,
að hægt sé að auka sölumögu-
leika mjólkur á innlenda mark-
aðinum um meira en 2 /2 milj.
sama akur lítra á ári með því að framleiða
mjólkurduft og lögskipa síðan
enginn
að nota það í öll brauð.
Prófessor virtanen í Finn-1 Aðalástæðan til þess, að dokt-
landi hefir umbætt súrheysgerð,; orinn ber fram þessa stórmerku
rneðal annars með því að itillögu er þó ekki sú, að auka
stökkva vatnsblandaðri sýru á með þessu sölu á aðalframleið-
Útgjöld Rooseveltsstjórnarinnar
áætluð $8,000,000,000 á n.k. ári
Washington, 2. júní — Áætl-
uð útgjöld Bandaríkjastjórnar
á komandi fjárhagsári er byrj-
aði 1. júlí, nema rúmum 8 bil-
jónum dollara (8,520,000,000).
Að síðast liðnu ári undan-
skyldUj. hafa
‘V
afa
útgjöld stjórnar-
innar aldrei verið neitt svipað
því eins mikil og þetta. En þá
námu þau $7,258,000,000. Og
tekjuhalli ársins, sem lauk s. 1.
Rúmum helming af þessari sunnudag Var nærri 3|/2 biljón
fjárhæð (eða $4,582,000,000) á
að verja til atvinnubóta og
•beins framfærslustyrks.
Tekjur ársins býst stjórnin
við að verði $3,991,000,000. —
Verður þá tekjuhalli ársins
1936 $4,528,000,000.
dollarar.
Skuld landsins nemur nú alls
rúmum 28 biljónum dollara. —
Þegar Roosevelt tók við völdum
nam hún nærri 21 biljón. Fyrir
stríðið var hún rúmar 15 biljón-
ir.
sluvöru bænda, heldur engu
síður hitt, að það hefir komið í
ljós við fæðurannsóknir hans,
að skortur er á svonefndum
“mineralefnum” í fæðu okkar
íslendinga. Mjólk er auðug af
þessum efnum, og er því hægt
að slá tvær flugur í einu höggi
með því að tryggja meiri og al-
mennari neyzlu hennar.
—Skutull.
¥ ¥ ¥
Norðfirði 4. júní
Afli
hefir verið dágóður hér á
Norðfirði undanfarna daga en
beituskortur er. Dálítið hefir
veiðst af síld í reknet en ekki
svo að fullnægi þörfum.
¥ ¥ ¥
4. júní
Ti| Hornafjarðar
kom í fyrradag 8 smálesta
vélbátur, frá Svíþjóð “Golv-
strömmen” frá Stokkhólmi. —
Bátsmenn eru fjórir. Hafa þeir
gengið á jökla hjá Hoffelli.
¥ ¥ ¥
Norðaustan ofviðri
Trillubátar sökkva á Ólafsfirði
Vélbáta rekur á land
Ólafsfirði 10. júní
Aðfaranótt hvítasunnudags,
um kl. 5, herti snögglega á
norðaustan veðri, sem hafði
staðið undanfarið, og rokhvesti
með krapahríð. Flestir bátar
lágu þá á höfninni hér í Ólafs-
firði, eða alls um 18 trillubátar
og 9 stærri vélbátar. Þegar
leið á morguninn, herti stöðugt
á veðrinu og brimið jókst. Á
níunda tímanum sukku fyrstu
trillubátarnir, en stærri báta
tók að reka, og áður en langt
um leið, hafði 5 stærri báta
tekið á land og 13 trillubátar
sokkið. Einn stærri bátanna,
“Sævaldur”, er gjörónýtur og
tveir aðrir, “Þór” og “Kári”
mikið brotnir. Allmörgum
trillubátum var bjargað á land.
Sumir eru gjörónýtir, aðrir mik-
ið brotnir. MÖrgum hafði ekki
verið bjargað, er síðast fréttist,
en búist er við, að þeir séu ó-
nýtir.
Öll fjaran við kauptúnið var
j þakin rekaldi. Tjónið er feikna
mikið og margir hafa mist al-
eigu sína.
¥ ¥ ¥
Vinsla og útflutningur vikurs
Akureyri 8. júní
Sveinbjörn Jónssonýbygginga
meistari, er nýkominn hingað
til Akureyrar, austan úr Axar-
firði, frá því að athuga skilyrði
til þess að ná vikri úr Jökulsá
og skipa honum út í Búðlunga-
höfn. Telur hann aðstoðuna
betri en hann hafði búist við,
góðan botn og 7 metra dýpi
örstutt frá landi. Ennfremur
góð aðstaða til rafvirkjunar. —
Horfur um sölu á vikri til út-
landa fara batnandi, og er ætl-
unin, að gera dálitla tilraun með
fleytingu vikurs í Jökulsá og
útskipun í Búðlungahöfn í sum-
ar.
FYRSTI KVENLÖGFRÆÐING-
UR fSLANDS
Nýlega lauk úngfrú Auður
Auðuns embættisprófi í lög-
fræði við háskólann. í tilefni
þess hitti fréttaritari Mbl. hana
að máli.
— Fyrest af öllu er nú að
jafna sig eftir prófið og njóta
þess að það er velyfirstaðið,
sagði Auður Auðuns, er eg hitti
hana, glaða í vinahóp, nýslopna
frá prófborðinu.
— Já þér gekk vel prófið,
fékst góða I. einkunn?
—• Já, eg er a. m. k. ánægð
með það.
— Og þú hefir áhuga fyrir
lögfræðinni?
— Það getur maður vel sagt.
Reyndar held eg að fáir lög-
fræðinemar séu mjög hrifnir af
faginu fyrst í stað, en það kem-
úr. Og eftir því sem maður
kemst meira inn í leyndardóma
lögfræðinnar, vex áhuginn —
það er mín reynsla.
— En---------
— í guðsbænum ekkert
blaðaviðtal, segir Auður hálf-
skelkuð, nú fyrst verður henni
það ljós, að hún er að tala við
fréttaritara.
Eg sé að kunningjarnir bíða
óþreyjufullir eftir að fá Auði —
sóma íslenzkra kvenna — í
hópinn, og flýti mér að segja:
Nei, nei, ekkert iblaðaviðtal.
Mig langar aðeins til að vita,
hvað lögfræðingurinn, okkar
fyrsti kvenlögfræðingur ætlast
nú fyrir?
— Það er ekkert ákveðið
enn þá, það eru líka tæplega
liðnar 15 mínútúr síðan eg losn-
aði frá prófborðinu. En eg mun
gefa mig að lögfræðisstörfum
með tímanum. En eins og eg
sagði áðan, ætla eg fyrst að
njóta lífsins og safna kröftum,
unz eg tek til starfa.
— Og þegar þú ert orðin
sýslumaður — ekki njjög langt
— upp í sveit, kem eg aftur og
heimsæki þig í nafni Morgun-
blaðsins.
— Vertu velkomin, segir Auð-
ur blátt áfram og alúðlega, eins
og henni er lagið, en þó glettn-
islega, og með það kveð eg
okkar fyrsta íslenzka, efnilega
lögfræðing.