Heimskringla - 03.07.1935, Side 7
WINNIPEG, 3. JÚLÆ 1935
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA.
THOMAS LAWRENCE
hjnn ókrýndi konungur Arabíu
Thomas Edward Lawrence—
hinn ókrýndi konungur Arabíu
lézt um daginn, eða svo er
sagt, í Sýrlandi. Hann var ein-
hver mesti æfintýramaður þess-
arar aldar og víðkunnur af
starfi sínu í Arabíu í ófriðnum
mikla. Hér fer á eftir ágrip af
æíiatriðum þessa merkilega
manns.
Thomas Edward Lawrence er
nafnið á æfintýramanni, sem
innan við þrítugt hafði skapað
veraldarsögu, unnið orustur
stofnað konungsríki og skipað
konunga og hafnað aðalstitli,
hershöfðingjatitli og Victoríu-
krossinum. Og meðan aðrar
hetjur stríðsins sóluðu sig í
heiðursmerkjum, fékk Lawrence
sér stöðu undir gerfinafni sem
flugvélaverkfræðingur; því að
hann sagði, að það eina, sem
hann hefði áhuga á væru vélar.
Svo mikils virði var hann í
heimsstyrjöldinni, að Tyrkir
lögðu eina miljón króna til höf-
uðs honum. Mörg heiðursheiti
voru honum gefin, svo sem:
“Hinn ókrýndi konungur Ar-
aba”, “Slyngasti njósnari Eng-
lands”, og nafnið, sem Tyrkir
gáfu honum: “1 Orens, vélaspill-
irinn”.
Lawrence er fæddur í Wales,
en er Iri að ætt og uppruna.
Hann var 47 ára gamall, þegar
hann dó, en frægðarverk sín
inti hann af hendi, áður en hann
varð þrítugur. Hann var stú-
dent frá Oxford og fór árið 1910
fótgangandi um Sýrland til þess
að rannsaka byggingalist frá
krossferðatímunum. Næsta ár
tók hann þátt í fornfræðaleið-
angri um sömu héruð. Hann
hafði sérstaká leikni í því að
nema arabiskar mállýzkur (það
var álitið að hann kynni tíu
arabiskar mállýzkur), og auk
þess var hann ágætur vísinda-
maður, sem lagði einkum rækt
við fornfræði, sögu og tungu-
mál. Auk þess hafði hann sér-
staka hæfileika til skipulagn-
inga og hafði sérstakt lag á að
vinna traust Araba.
Svo kom heimsstyrjöldin
1914. Lawrence vildi fara í her-
inn sem sjálfboðaliði, en var
U j.hu
MAIL THIS COUPON TO-DAY!
To tKo Secrotory :
Dominion Bunnot
Winnipog. Monitoiio
WitKout obUgtkm. picoso mo fuU porticulan
of youx coursci oa‘*Stro—iKno** Kusxncn tr*min*.
&*/?eDominion
BUSINES^ COLLEGE
O'-l THt mm! • WINMPEG
gerður afturreka, sakir þess,
hve lítill hann var. Hann var
aðeins fimm fet á hæð. Þá datt
engum í hug, að áður en stríð-
inu lyki hefði hann unnið sinn
sérstaka sigur. Aftur á móti
var hann sendur með landfræð-
ingasveit til Kairo. Þar kom
það að góðum notum, hve
kunnugur hann var arabiskum
staðháttum.
I þessari stöðu var hann um
tveggja ára skeið. Hann stóð í
stöðugu sambandi við hina ara-
bisku kunningja sína, og þeg-
ar Sheik Hussein árið 1916 hóf
uppreisn gegn Tyrkjum, bað
hann leyfis að mega fylgja
þeim til “Arabisku skrifstof-
unnar” í Djiddah, sem heyrði
undir enska utanríkisráðuneyt-
ið. Þar bað hann um 14 daga
leyfi til þess að heimsækja Fei-
sal emír úti í eyðimörkinni.
Hann kom aldrei aftur úr þeirri
leyfisferð. Yfirboðar hans urðu
fegnir að losna við þennan
unga mann, sem “alt vissi” og
ríðandi á kameldýri fór hann
út á eyðimörkina, til þess að
heimsækja Feisal emír, hinn
hyggna og duglega son Hus-
seins. Hann borðaði geitakjöt
og drakk svart, sætt kaffi í
tjaldi hans og sagði við hann:
— Hvenær kemst her þinn til
Damaskus?
Feisal baðaði út höndunum
og sagði:
— Það veit enginn, nema
Allah, en eg held, að borgarhlið
Damaskus séu jafnfjarri og port
himnaríkis.
En Lawrence hafði dottið dá-
lítið sniðugt í hug. Hann vissi,
að Hussein-ættin var komin af
Fatima dóttur Muhameds. —
Hann þekti ættarsitolt Arab-
anna, og þótt hann sæi, að hinn
litli her Feisals hefði vonlausa
aðstöðu og væri án skotfæra-
birgða, og yrði að lifa á engi-
sprettum og hunangi, en aftur
á móti voru Tyrkar og Þjóð-
verjar velbirgir að skotfærum,
sá hann þó að hér gat verið um
möguleika að ræða.
Lawrence varð brátt leiðandi
maður í arábisku uppreisnar-
baráttunni. Þessi litli maður,
sem var fæddur vísindamaður.
gerðist hinn ágætasti herfor-
ingi. Hann fór á milli ættar-
höfðingjanna, sat hjá þeim við
bálið, þáði af mat þeirra og
ræddi við þá um forn frægð-
arverk Arabanna og núverandi
þrældóm þeirra, svo að hin
flauelsbrúnu augu þeirra leift-
ruðu af hrifningu, og hatri gegn
Tyrkjum. Og Arabarnir álitu
að hann væri sendiboði Allah.
Hið ótrúlega skeði. Hann gat
fengið Araba til þess að gleyma
innbyrðis deilum og taka þátt í
uppreisninni gegn Tyrkjum.
Það leið langur tími, áður en
hann fékk nokkra aðstoð frá
Englendingum. Um langt skeið
hafði hann ekki annað skot-
vopna en tvær litlar fallbyssur,
gegn fjandmannaher, sem hafði
á að skipa þýzkum liðsforingj-
um, hafði gnægðir skotbirgða
og flugvéla.
Lawrence þekkti landið betur
en Tyrkir og þess naut hann nú.
Hann sprengdi 79 brýr í loft
upp og 25 járnbrautarlestir. —
Þetta varð til þess að hann
hlaut nafnið “vélaspillirinn”.—
Aðferð hans var jafnan sú, að
hann lagði dynamitsprengju
undir vélavagninn. Síðan rændi
hann lestina að matvælum og
skotfærum. Hann virtist alt af
vita, hvenær von væri á eimlest.
Lawrence l’agði ætíð sjálfur
dynamitsprengjuna á sporið og
dulbjó sig sem Bedúina. Hann
kærði sig ekkert um að kenna
Aröbum þessa list. Hann áleit
að þeir myndu ekki geta lagt
niður þetta “sport”, þegar
stríðið væri úti.
Herinn jókst og árið 1917 var
Lawrence, sem þá var 29 ára
gamall, orðinn æðsti rnaður
hers, sem taldi nokkur hundruð
þúsundir manna. Það var fjöl-
mennasti her, sem stofnaður
hefir verið í Arabíu um síðast-
liðin 500 ár. Um sama leyti
fékk Allenby yfirstjórn brezka
hersins í Sýrlandi. Nú varð
samvinnan betri og nú hepnað-
ist að sigrast á Tyrkjum. Loka-
sigurinn var það þegar Dama-
skus var yfirunninn. Og þegar
Allenby kom til Damaskus var
Lawrence kominn þangað og
hafði tekið völdin í sínar hend-
ur.
Þegar stríðinu lauk hafði
Lawrence öðlast nærri því ótrú-
lega frægð, og um hann gengu
mjög rómantískar sögur. Með
óberstnafnbót tók hann þátt í
friðarsamningunum ásamt Fei-
sal. Hann hafði í nafni Eng-
lands lofað .Aröbum því, að
Ara'bar skyldu vera ein þjóð
með Damaskus sem höfuðborg.
Ríkið átti að ná yfir Sýrland,
Palestínu og Mesopotamíu (ír-
ak), en Frakkar knöfðust Sýr-
lands, Englendingar Mesopota-
míu, og Palestína var lofuð
Gyðingum. í fyrstu heppnað-
ist að fá Frakka til þess að
láta sér nægja að vera vernd-
arar strandborganna á Sýrlandi,
og þar var stofnað konungsríki,
þar sem Feisal var konungur,
en Hussein varð konungur í
Hedjas.
Lawrence varð hryggur yfir
því að hann fékk ekki að halda
loforð sín og afþakkaði öll
metorð. Hann vildi ekki að
fomvinir hans, Arabarnir,
skyldu álíta, að hann hefði selt
þá fyrir metorð og titla. Alt
skipulagið fór út um þúfur.
Frakkar tóku Dasaskus og tóku
iSýrland, Ibn Saud sigraði Hus-
sein og náði völdum í Arabíu,
án þess að Englendingar gerðu
nokkra tilraun til hjálpar. Harð-
stjóm Husseins gerði hann ó-
færan til höfðingja. Árið 1921
var Lawrence um stutt tímabil
skipaður í utanríkisráðuneytið
til þess að reyna að greiða
vandamálin í austurlöndum, og
það var hann, sem kom því til
leiðar, að Feisal var gerður að
konungi í írak.
En síðan dró Lawrence sig
til baka og fékk stöðu sem flug-
vélaverkfræðingur. Hærri stöðu
vildi hann ekki. Vélar, sagði
hann, að væri það eina, sem
hann hefði áhuga á. Enda þótt
hann hefði nú tekið sér nafnið
Shaw, var hann þó svo frægur,
að hann fékk hvergi að vera í
næði. Þar til fyrir skömmu síð-
an var hann vélaverkfræðingur
og smíðaði Speed-vélar í South-
ampton. Frægð hans var hon-
um til byrði. í Þýzkalandi,
Frakklandi og mörgum öðrum
löndum fékk hann ekki lands-
vistarleyfi, sakir orðróms þess
að hann væri slyngasti njósn-
ari Englendinga. Hans eigin
frásögn um uppreisnina í eyði-
mörkinni er kominn út á ótelj-
and tungumálum og saga hans
eftir Lowell Thomas er uppseld.
Lawrence reit fyrstu bók sína
árið 1919 o gvar hún full bitur-
leika vegna þeirra vonbrigða,
sem hann hafði orðið að þola.
Einnig svifti hann ofan af ýms-
um deilumálum innan herstjórn-
arinnar í Egiftalandi, en ferða-
tösku með handriti og ýmsum
skjölum var stolið frá honum.
Orðrómur barst út um það, að
stjórnin hefði staðið á bak við
stuldinn, en sennilegra er, að
þar hafi aðeins verið um venju-
legan þjófnað að ræða. Eftir
minni skrifaði Lawrence bókina
aftur.
Nú hafði þessi vísindamaður,
sem kringumstæðurnar gerðu
að hermanni, dregið sig til baka
og bjó í litlu húsi í Suffolk.
Engir titlar eða heiðursmerki
eru tengd nafni hans. Austur-
landapólitík hans var hrunin til
grunna; þetta mál, sem hann
hafði fórnað eldlegum gáfum
sínum, fjölhæfni og starfskröft-
lim, færði honum aðeins von-
brigði. En minningin um frægð-
arverk hans mun lifa og gera
hann að æfintýralegri persónu.
Ský-ringin á slysinu: að hann
ætlaði að komast hjá því að
aka yfir lítinn drenghnokka,
sem hljóp í veg fyrir hann, og
allur sá huliðshjúpur, sem virt-
ist hvíla yfir atburðinum, er
hann slasaðist, hefir til hins
síðasta haldið skírum þeim
æfintýraljóma, sem alt af hefir
hvílt yfir þessum manni.
—Alþbl.
NORÐURLÖND ERU STÓR-
VELDI EF ÞAU VINNA SAMAN
Undanfarið hefir mjög verið
unnið að því að auka samvinnu
Norðurlanda, og hafa jafnaðar-
mannastjórnirnar í Danmörku
og Svíþjóð unnið sérstaklega
ákveðið í þá átt, og síðan jafn-
aðarmenn í Noregi tóku við
völdum hafa þeir einnig unnið
að því. Enda er nú svo komið,
að samvinna Norðurlanda eykst
með hverjum mánuði sem líður.
Hefir þessi aukna samvinna
komið fram í ýmsu, meðal ann-
ars nú síðast, er utanríkisráð-
herrar Noregs og Svíþjóðar
lýstu því yfir, að þeir og stjórn-
ir þeirra væru algerlega sam-
þykkar þeirri afstöðu, er P.
Munch, útanríkisráðherra Dana,
tók á fundinum í Þjóðab^nda-
lagsráðinu, þegar rætt var um
herskylduákvarðanir Þjóðverja.
Á fundi, sem haldinn var í
Stokkhólmi fyrir nokkru um
samvinnu Norðurlands, var
mikið rætt um það, að auka
þyrfti samvinnu þeirra í verzl-
unarmálum, því að þó að hvert
Norðurjandanna stæði illa að
vígi í verzlunarsamningum við
hin stóru ríki ,þá væru þau
sterk ef þau stæðu saman,
veittu hvert öðru upplýsingar
og hjálpuðust að í markaðs-
löndunum.
Norðurlönd hafa samtals 16,3
milljónir íbúa, en utanríkis-
verzlun þeirra nam árið 1933,
þegar verðlagið var þó það
lægsta, sem það hefir orðið á
kreppuárunum yfir 2 miljarðar
króna. Innflptningur þeirra
allra var 2750 milljónir króna
og útflutningurinn 2225 miljón-
ir króna.
ítalía, sem hefir 42 miljónir í-
búa, hafði sama ár aðeins 2200
miljón króna innflutning og
1800 miljón króna útflutning.
Sovét-Rússland með 160 milj-
ónir íbúa hefir ekki nándar
nærri eins mikla utanríkisverzl-
un og Norðurlönd öll, og er
verzlun þess þó veitt miklu
meiri athygli á heimsmarkaðin-
um.
Atriði, sem vert er að veita
athygli, er einnig það, að Norð-
urlönd kaupa sérstaklega mikið
af stóru ríkjunum (Bretlandi,
Þýzkalandi, Bandaríkjunum),
svo að vérulegur hluti af út-
flutningi þeira ríkja fer til
N orðurlanda.—Alþbl.
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldg.
Skriístofusími: 23 674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er að finni á skrifstofu kl. 10—1:
f. h. og 2—6 e. h.
Heimili: 46 Alloway Ave.
Talsími: 33 158
Dr. J. Stefansson
216 MEDICAL ARTS BLDG.
Horni Kennedy og Graham
Stundar eingöngu augna-eyrna-
nef- og kverka-sjúkdóma
Er að hitta írá kl. 2.30—5.30 e. h.
Talsími: 26 688
Heimili: 638 McMillan Ave. 42 691
SAMVINNA TYRKJA
OG RÚSSA
London 22. maí
Frá Angora í Tyrklandi er
símað, að Tyrkir verði nú að-
njótandi margskonar aðstoðar
frá Rússum, en aðallega á fjór-
um sviðum, þ. e. iðnaöar, land-
búnaðar, flugmála og hljómlist-
ar. Ekki er talið, að Tyrkir
hafi leitað aðstoðar Rússa
vegna þess, að þeir sé svo
hlyntir hinni kommúnistisku
stefnu, og það er jafnvel full-
yrt, að þeir sé yfirleitt andstæð-
ir kommúnisma. Hvað sem því
líður, er hin besta samvinna
með Tyrkjum og Rússum í
ýmsum málum, og hefir verið
undangengin ár. Þannig er þess
getið, að Rússar sendu fyrir
nokkru til Tyrklands einhvern
frægasta hljómlistarstjóra sinn,
sem starfað hefir við akadem-
iska leikhúsið, rússneska
(Grand Academie Theatre) og
fjölda marga söngmenn og
söngkonur, til þess að kynna
Tyrkjum rússneska sönglist og
danslist, og verða á ýmsan hátt
til leiðbeiningar á þessu sviði í
Tyrklandi, einhverju hinu mesta
framfaralandi nú á dögum.
— — — En í þessu sam-
foandi er vert að geta þess,
að Tyrkir hafa að undanförnu
gert ráðstafanir til þess að út-
rýma austurlenzkri músik í
löndum sínum og þroska smekk
Tyrkja í þessum efnum og gera
Rovatzos Floral Shop
206 Notre Dame Ave. Phone 94 951
Fresh Cut Flowers Dally
Plants In Season
We specialize in Wedding &
Concert Bouquets & Funeral
Designs
Icelandic spoken
Dr. S. J. Johannesson
218 Sherbum Street
Talsími 30 877
ViOtalstími kl. 3—5 e. h.
Orricí Phon*
87 293
Res. Phone
72 409
Dr. L. A. Sigurdson
109 MEDICAL ARTS BUILDING
OrricE Hovrs:
12-1
4 r.M. - 6 p.m.
AND BT APPOINTMENT
THE WATCH SHOP
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding
Rings
Agents for Bulova Watches
Marriage Licenses Issued
699 Sargent Ave.
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Insurance and Financial
Agents
Siml: 94 221
600 PARIS BLDG.—Winnipeg
hann þjóðlegan og skapa þjóð-
lega tyrkneska músik, og það
er þess vegna, sem þeir hafa
fengið Rússa til sín, til þess að
læra af þeim. — Ennfremur
hafa Rússar fyrir nokkru sent
fjölda marga flugmenn til Tyrk-
lands og flugvélar, til þess að
æfa unga tyrkneska flugmenn i
fallhlífarstökkum og svifflugi.
Hafa Rússar smíðað mikið af
svifflugvélum í seinni tíð og
hafa flutt nokkrar þeirra til
Tyrklands, til þess að kenna
Tyrkjum sviffluglistir. — Tyrk-
ir hafa komið sér upp nýtísku
baðmullarverksmiðjum í Cae-
saera , Anatoliu og eru þær
reknar af ríkinu og eign þess.
Voru þær smíðaðar að fyrir-
sögn rússneskra verkfræðinga
og undir eftirliti þeirra, og tyrk-
neska verkafólkiö í verksmiðj-
unum er æft af æfðu rúss-
nesku verkafólki. Rússneskir
verkfræðingar eru nú að koma
upp nýrri verksmiðju samskon-
ar fyrir Tyrki í Nailli. Þá hafa
rússneskir sérfræðingar í land-
búnaðarmálum aðstoðað Tyrki
á margan hátt. Fyrir þeirra til-
stilli hafa Tyrkir komið betra
skipulagi á landbúaðarmál sín
og hafið ræktun ýmissa jurta,
sem þeir hafa ekki fengist við
ræktum á áður. Meðal annars
rækta þeir nú >te.—Vísir.
LesiS Heimskringlu
Kaupið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
G. S. THORVALDSON
B.A., LL.B.
Lögfrœðingur
702 Confederation Life Bldg.
Talsími 97 024
W. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFÁNSSON
ÍSLENZKIR LÖGFRÆÐINGAR
á öðru gólfi
325 Main Street
Talsimi: 97 621
Hafa einnig skrifstofur að
Lundar og Gimli og eru þar
v‘“- —mlðV:' ■
að hitta, fjTsta .
hverjum mánuði.
ðvikudag í
M. HJALTASON, M.D.
ALMENNAR LÆKNINGAR
Sérgrein: Taugasfúkdómar
Lætur úti meðöl í viðlögum
ViStalstimar kl. 2—4 e. h.
7—8 atS kveldinu
Simi 80 857 665 Victor St.
A. S. BARDAL
selur likkistur og annast um útfar-
ir. Allur útbúnaður sá besti. —
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legstelna.
843 SHERBROOKE ST.
Phone: 86 607 WINNIPEG
RAGNAR H. RAGNAR
Pianisti oa kennari
Kenslustofa: 683 Beverley St.
Phone 89 502
MARGARET DALMAN
TEACHER OF PIANO
854 BANNING ST.
Phone: 26 420
Dr. A. V. JOHNSON
tSLENZKUR TANNLÆKNIR
212 Curry Bldg., Wlnnlpeg
Gegnt pósthúslnu
Simi: 96 210 Heimilis: 33 328
Jacob F. Bjarnason
—TRANSFER—
Baggage and Furniture Moving
591 SHERBURN ST.
Phone 35 909
Annast allskonar flutnlnga fram
og aftur um bæinn.
J. T. THORSON, K.C.
tslenzkur lögfrceðingur
Skrifstofa:
801 GREAT WEST PERMANENT
BUILDING
Sími: 92 755
Dr. K. J. AUSTMANN
Wynyard
Sask.
Talsimi: 28 889
Dr. J. G. SNIDAL
TANMLÆKNIR
614 Somerset Block
Portage Avenue WINNIPEG
VIKING BILLIARDS
og Hárskurðar stofa
696 SARGENT AVE.
Knattstofa, tóbak, vindlar og
vlndlingar. Staðurlnn, þar sem
Islendingar skemta sér.