Heimskringla - 03.07.1935, Page 8
8. SIÐA.
HEIMSKRINGLa
WINNIPEG, 3. JÚLÍ 1935
FJÆR OG NÆR
Messur í prestakalli séra H.
Sigmars sunnud. 7. júlí:
Brown, Man., kl. 2. e. h.
Mountain, N. D., kl. 8. e. h.
Messan á Mountain á ensku.
* * «
Á leið til kirkju'þings
Til kirkjuþings hins Samein-
aða kirkjufélags íslendinga í
Norður-Ameríku, sem haldið er
í Wynyard, Sask., frá 28. júní
til 2 júlí, streymdu íslendingar
hópum saman upp úr miðri síð-
ast liðinni viku héðan að aust-
an. Við þessa varð Hkr. vör:
Síðast liðinn miðvikudag kom
Sveinn Thorvaldson, M.B.E. frá
Riverton til bæjarins í bíl og
hélt vestur; í för með honum
voru kona hans, séra Eyjólfur
J. Melan og kona hans.
Á fimtudag lagði Dr. S. E.
Björnsson frá Árborg af stað
vestur. í för með honum voru
kona hans og börn, Jóhann Sæ-
mundsson frá Árborg og Mrs.
P. S. Pálsson frá Winnipeg.
Þetta sama kvöld lögðu af
1933
CHEV.
MASTER
COACH
$575
BERIÐ SAMAN VERÐ
CONSOLIDATED
MOTORS LTD.
Chevrolet—Oldsmobile Salar
BETRI BÍLAR
LÆGRA VERÐ
229-235 Main St. Ph. 92 716
stað með járnbrautalestinni frá
Winnipeg til Wynyard: Mrs.
Jakob Kristjánsson og börn
þeirra hjóna, og prestarnir séra
Guðm. Árnason, dr. Rögnvald-
ur Pétursson og séra Jakob
Jónsson.
Á föstudag lögðu þessir sex
bílar af stað úr þessum bæ
vestur: Steindórs kaupmanns
Jakobssonar og vor farþegar:
Páll S. Pálsson, Gunnar Er-
lendsson, Guðm. Eyford, Joch-
um Ásgeirsson.
Jakobs Kristjánssonar og
voru farþegar ungfrú Rósa Ví-
dal, ungfrú Helga Árnason,
Mrs. G. Árnason frá Lundar,
Þorleifur Nelson frá Clarkleigh, i
Man.
Björgvins Stefánssonar og
voru farþegar: Bjöm Björnsson
frá Lundar, ungfrú Ella vHall,
Mrs. Rósa Hjartarson og Mrs.
B. Stefánsson.
Ólafs fasteignasala Péturs-
sonar og voru farþegar: séra
Philip Pétursson og kona hans,
Mrs. Ó. Pétursson og börn
þeirra.
Þorsteins Borgfjörðs og voru
farþegar: Ingi Borgfjörð og
kona hans og Mrs. Þ. Borgf jörð.
Josephs B. Skaptasonar og
voru farþegar Mrs. J. B. Skapta-
son og börn þeirra hjóna.
Ólafs Péturssonar, B.Sc. og
voru farþegar Thorv. Péturs-
son, M.A., Mrs. R. Pétursson,
ungfrú Hlaðgerður Kristjáns-
son, Pétur J. Pétursson og Mrs.
Margrét Markússon.
Til baka var búist vlð að
koma á þriðjudagskvöld.
* * *
“Sameiningin” hefir Hkr. ný-
lega borist. Þetta hefti er al-
gerlega helgað fimtíu-ára minn-
ingu Hins ev. lúterska kirkju-
félags íslendinga í Vesturheimi.
Sögu félagsins skrifar prófessor
Richard Beck. Aðrar ritgerðir
Ekkert
leyndarmál
Mörgum hefir orðið, að rita fagra áætlun um tekjur
sínar og útgjöld, en reynzt hún haldlaus, með undarleg-
um hætti, í framkvæmdinni. Tíu dalir í buddu þinni
freistast oft til að renna á aðrar brautir en þú ætlaðir
þeim.
Ekki viljum vér fullyrða, að “Deposit Acoount”
jafni alt í einu skakkann á milli þeirra útgjalda, sem
þú hefir áætlað og þeirra sem þú greiðir í raun og
veru. Hitt fullyrðum vér að mjög mörgum verður “De-
posit Account” að liði til að fara ekki fram úr áætluðum
útgjöldum. Með því móti má forðast að höndla peninga
í smáum upphæðum. Með sundurliðuðum reikningi er
sýnt nákvæmelga á hverjum mánuði hve miklu þér
hafið varið til fata, til fæðis o. s. frv. þá dylst aldrei
hvert peningarnir hafa farið.
D. A. skrifstofan á þriðja gólfi, Hargrave.
<T. E ATON
GLOBELITE
Bíla Battery
2 Volt Radio “A” Battery
Biðjið um og krefjist
Til sölu hjá og hefir með
mæli frá helztu verzl-
unarmönnum.
Verzlunarmenn—skrifið eftir verðlista
GLOBELITE BATTERIES LIMITED
t
Verksmiðja og aðal skrifstofa:
147 Pacfic Avenue -:- Winnipeg, Canada
Stærsta verksmiðja f Vestur Canada er býr til Bíla,
Radió, og ljósa áhalda batteriur
eru ekki í ritinu. Myndir fylgja
ritgerð dr. Becks af flestum ef
ekki öllum kirkjum og prestum
og stofnunum kirkju'félagsins,
svo sem J. B. skóla og ellihæl-
inu “Betel” á Gimli og ýmsum
kirkjufélagsstólpum. Ritið er um
90 blaðsíður að stærð og prýði-
legt útlits. Grein dr. Becks
höfum vér ekki ennþá haft tíma
til að lesa svo hægt sé að geta
eða athuga innihald hennar, en
fljótt á litið virðist mjög smekk-
lega frá henni gengið, sem
vænta mátti af svo vandvirkum
rithöfundi.
* * *
Gleymið ekki!
Spilakvöldunum í Goodtemp-
larahúsinu á þriðjudögum og
föstudögum. — Góð verðlaun!
Gott músik! Inngangur 25c.
Allir velkomnir.
* * *
Mr. Baldur Pétursson frá
l Gimli og Miss Jennie W. Christ-
opherson frá Baldur voru' gefin
saman í hjónaband af séra E.
J. Melan að heimili hans að
Riverton hinn 17. júní síðast-
liðinn.
* * *
Aukabiti til K. N.
K. N. hefir kveðist á
Við kvöldin löng fyrir morgun-
inn.
Rímlistin og raddhæðin
rökuðu til sín verðlaunin.
Upptökin: Landinn kvaðst á
við myrkrahöfðingjan, sálin
verðlaunin, landinn sigraði. —
Vinni landinn og K. N. æfinlega,
John S. Laxdal
* • *
Gísli Borgfjörð, sonur Mr. og
Mrs. Th. Borgfjörð Winnipeg,
varð fyrir meiðsli s. 1. fimtudag
á byggingu þar sem hann var
að vinna. Hann var ein 30 fet
uppi í ibyggingunni og datt nið-
ur á gólf. Þegar síðast fréttisf
var sagt að honum hielsaðist
etfir vonum.
* * *
Mrs. Ingibjörg Guðmundsson
frá Santiago, Calif., kom til
bæjarins s. 1. fimtudagskvöld.
Ferðina kvað hún hafa gengið
hið bezta og engar hindranir
hvorugu megin landamæranna.
Hún dvelur hér ákveðin tíma
og telur sig hér eiga heima eigi
síður en syðra. Hún biður
“Hkr.” að flytja Californíu-vin-
unum kær kveðju sína og þakk-
læti.
ÍÞRÓTTAYFIRLIT
Einn af mestu sérfræðingum
heimsins á sviði íþrótta- og
líkamsmenningar heldur því
fram að konur leggi miklu
meiri rækt við líkamsæfingar
en karlmenn, nú á síðustu ára-
tugunum. Þær geri alt sem í
þeirra valdi stendur til að þjálfa
líkamann og fegra, og síðan
farið var að útvarpa morgun-
fimleikaæfingum, hafi reynslan
sýnt, að margfalt fleiri konur
en karlar noti þær æfingar. En
konurnar hafa líka grætt á
þessu, bætir hann við, því und-
antekningarlítið er nú konan
um fertugt, eins ungleg og
áður gerðist um þær, sem voru
aðeins tuttugu og fimm ára.
Konan hefir lengt aldur sinn
um 15 ár, án þess að eldast. —
Betra að satt væri.
Á ári hverju keppa háskól-
arnir Oxford og Cambridge sín
í milli í því nær öllum þeim í-
þróttum, sem iðkaðar eru nú á
tímum. Fræg um heim allan,
er kepnin í róðri, sem Cam-
bridge vann nú í 12. sinn í röð.
— EftJrtektarverð er einnig
kepnin í frjálsum íþróttum
vegna þess hve oft fræknustu
íþróttamenn þessara háskóla
hafa sigrað er þeir keptu á
öðrum vettvangi. I Oxford og
Cambridge hafa margir Olymps
sigurvegarar gengið í skóla v.ís-
inda og íþrótta. Má nefna t. d.
Lowe sigurvegarann í 800 m.
hlaupi 1924 og 1928, Hampson
sigurv. í sama hlaupi 1932, Tis-
dall, Lord Burgley o. fl.
í ár fór fram kepni milli O.
og C. í frjálsum íþróttum í 67.
sinn.
A. G. R. Brown (kepti í
fyrsta sinn þarna) sigraði í 440
y. hlaupi (402 m.) og setti nýtt
met 49 sek. — I. C. Stothard og
M. J. K. Sullivan hlupu /r
enska mílu (ca. 804'/2 m.) á 1
mín 55.4 sek. -Virðast Englend-
ingar því vel stæðir til að halda
venjunni og ná sigri á 800 m. á
Olympsleikunum. — I grinda-
hlaupi 120 og 220 y. sigraði A.
G. Pillsbrows á 15.6» og 25.3
sek. Míluhlaupið (1609 m.)
vann Stothard á 4 m. 23.2 sek.
og í 3. mílna hlaupinu sigraði
P. H. D. Ward á 15 mínó 00.1
sek. — Þetta er eftirtektarverð-
ur árangur, þegar þess er gætt
að hlaupið var í mikilli rign-
ingu. Þessir íþróttamenn láta
áreiðanlega heyra frá sér síð-
ar, þess vegna er vert að muna
þá framvegis er þeir fara að
keppa við íþróttamenn annarn
þjóða. — Einkennilegt er pað,'
hve lengi Englendingar eru á
eftir öðrum þjóðum í stökkum !
og köstum. Sigurvegarinn íj
langst. stökk 6 m. 95 cm., há-
stökki 1. m. 73 cm. og í kúlu-
varpi náðust 13. m. 34cm. enda
venjulega fáir keppendur og lít-
ill áhugi fyrir þessum íþróttum.
Cambridge vann með 7 sigrum
gegn 3.
SKRÍTLUR
* * *
— Eg er svo óskaplega hrædd j
um að eg verði grafin lifandi
þegar eg dey, herra læknir.
— Það þurfið þér ekki að
vera hræddar um ef eg stunda
yður þegar þar að kemur.
* * *
— Katrín, myndirðu ekki
heldur vilja giftast mesta bján-
anum í veröldinni, heldur en
verða piparjómfrú?
— Ó, Lárus, þetta kemur svo
óvænt.
♦ * ¥
Árni kemur til Jóa nábúa síns
og biður hann að lána sér reipi.
— Það er mér alveg ómögu-
legt, svarar Jói, því eg þarf að
nota þau sjálfur.
— Til hvers ætlarðu að nota
þau núna?
— Eg ætla að fara að binda
sand.
— Binda sand? Árni starir
agndofa á Jóa og heldur að
hann sé orðinn brjálaður. —
Hvernig getur þú gert það?
— Maður getur notað reipi til
hvers sem vera skal, þegar
maður ekki vill lána þau.
* * *
Presturinn: Eg veit til þess
að menn hafa orðið blindir af
því að drekka áfengi.
Drykkjumaðurinn: Það er al-
veg öfugt með mig, eg sé tvö-
falt, þegar eg drekk.
—Dvöl.
Liðþjálfinn (við nýliðann):
Til þess að þér getið munað
hvað er til vinstri og hvað til
hægri, þá skuluð þér bara setja
það á yður, að á hægri hend-
inni er þumalfingurinn vinstra
megin ,en hægra megin á þeirri
vinstri.
* * *
Móðirin: Mikið er drengurinn
líkur föður sínum, ef maður
tekur frá honum pelann, ætlar
hann alveg vitlaus að verða.
* * *
Húsbóndinn: Heyrðu góða
mín, hvað hefir komið fyrir?
Hversvegna hefirðu plástur yfir
vinstra auganu?
Konan: Plástur? Það er nýi
hatturinn minn.
AÐALFUNDUR
ÚTVEGSBANKANS
MESSUK off FUNDIR
í Mrkju Sambandssafnaöar
Messur: — á hverjum sunnudegi
kl 7. e. h.
Safnaðarnejndin: Funoir 1. föátu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuði.
KvenfélagiS: Fundir annan þrlðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngflokkurinn: Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 11. f. h.
lagði fram endurskoðaða reikn-
inga fyrir árið.
Reikningurinn sýnir, að af-
skrifuð töp hafa á árinu numið
kr. 161,295,05, fasteignir voru
lækkaðar í verði um kr. 174,-
747,73; afskriftareikningur
lækkaði um kr. 250,000,00 Yfir-
fært til næsta árs kr. 376,170,-
41.
Sparisjóðsfé í bankanum nam
við s. 1. áramót 6.9 milj. kr.
Reikningur bankans var sam-
þyktur.
Tveir endurskoðunarmenn
voru kosnir á fundinum, þeir
Björn Steffensen (endurkosinn)
og Ásgeir Ásgeirsson (í stað
Halldórs Stefánssonar). Engin
kosning fór fram í fulltrúaráð-
ið á þessum fundi.<—Mbl.
Islenzkar bækur
til sölu hjá
MAGNÚSI PETERSON
313 Horace St., Norwood, Man.
Canada
Aðalfundur Útvegsbankans
var valdinn í Kaupþingssalnum
9. júní. *
Fulltrúaráðið gaf skýrslu um
starfsemi bankans s. 1. ár og
Pelisslers
Framúrskarandi að
Vinsældum
Tegundirnar eru
Pelissiers Club Bjór
Banquet 01
Fæst í kössum í bjórsölu-
búðunum og í flöskum á
öllum helztu Hótelum.
Engin lyfja efni eða blönd-
unar efni eru notuð
Pelissiers Ltd.
Brewers
WINNIPEG, MAN.
Auglýsing þessi er ekki birt aS bot5i
G. L. C. Commission er ber enga á-
byrgb á því sem sagt er um efnisgæði
vörunnar.
Saga Eiríks Magnússonar
(í kápu) ...................$2.25
Ljóðmæll DavítSs frá Fagraskógi
I og II bindi (i banðl) hver bók 2.00
íslenzk-ensk og Ensk-íslenzk
orCabók eftir G. Zöega, ný út-
gáfa, aukin, i ban^i, alls ..... 8.00
‘‘Þyrnar", ljóðmæli Þorst. Erlings-
sonar, í góðu bandi, nitiursett
verð ......................... 2.00
“Harpa't úrval íslenzkra söng-
ljóða, í bandi ................. 1.50
Ljóðabók eftir Einar H. Kvaran
(skrautband) ................... 3.00
“Gæfumaóur”, eftir Kvaran (í
bandi) ......................... 3.00
“ísiendingar”, eftir D. G. Finn-
bogason ...................... 5.00
‘‘Morgun’’, tímarit dulspekinga,
árgangarnir 1933—1934, hver á 3.50
“Kak”, saga eftir dágbókum hins
fræga norðurfara Vtlhjálms
Stefánssonar, í góða bandi _____ 2.00
“Og björgin klofnuðu”, skáldsaga
eftir Jóhannes úr Kötlum, i
kápu $2.75, í bandi ............ 3.50
“Einn af postulunum’’, skáldsaga
eftir Guömund Hagalín, í 'kápu
$1.75, i bandi ................. 2.25
Framtítiarlíf og nútimaþekking
eftir séra Jakob Jónsson (í
bandi) ......................... 2.50
‘‘Mona’’, skáldsaga eftir Hall
Caine (i kápu) ................. 1.25
“Bööullinn”, skáldsaga eftír Par
Lagerkvist (í kápu) ........... 1.00
‘‘Sýnir’’, eftir Sig. Eggerz (,
bandi) ........................ 2.00
“Nökkvar og ný skip,” ljóðmæli
eftir Jóhannes Freeman (í
bandi) ......................•„.... 1.50
Æfintýraleikir, eftir Ragnheiði
Jónsdóttur (ódýrt band) ....... 1.00
Sögur Tarzans, eftir Edgar Rlce
Burroughs, alls um 1400 bls.... 4.25
1 þessu ofangreinda vertii er meö-
talits flutningsgjald til kaupenda. Þar
sem bækurnar eru fáanlegar bætSi í
kápu og bandi, er betra at5 kaupa
þær innbundnar, því atS slíkt band
fæst hér ekki fyrir þann vertSmun,
eiSa neitt því likt.
» . > V *.V - - ■
rJj|s*>X.
:>• V;v«,í •.» .•••. • • *;• •_ •; • •* '• •;.;
Phone 201101
MODERN DAIRIE'
I____LIMITtD_____
/
Hin vinsæla leið
til
Islands
Islendingar er mikið hafa ferð-
ast liafa orðið þess varir að
þægindi, þjónusta og viður-
gerningur á öllum skipum
Canadian Paeific félagsins cru
langt fram yfir það sem þeir
höfðu frekast búist við.
BEINAR FERÐIR TIL ISLANDS
Skipaferðir tíðar og reglubundnar frá Montreal. Eftir
fullkomnum upplýsingum og bæklingum leitið til næsta
umboðsmanns eða W. C. CASEY, Steamship General
Passenger Agent, C.P.B. Bldg., Winnipeg Símar 92 456-7
CANADIAN PACIFIC
STEAMSHIPS