Heimskringla - 04.12.1935, Page 1

Heimskringla - 04.12.1935, Page 1
L. ÁRGANGUR NÚMER 10. WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 4. DES. 1935 Aðskilnaðarmenn taka sneið af Norður-Kína Tokio, 25. nóv. — Mestur (hluti fylkjanna Bopei og Ciha- har í NorðuriKína, eða 25 sýsl- ur (oounties), «ögðu sig úr lögum í dag við kínvie'rsku stjómina og lýstu yfir sjálfstæði sínu. Þetta er stór sneið af Norð- austur-Kína. Þar búa um 4 miljónir Kínverja. Var þar svo róstusamt fyrir tveimur leða þremur árum, að vdð ekkert réðist iog í þeim vandræðum, var kínversku stjóminni bann- að að (hafa þar her. Yfir hér- uðin var maður settur, er Yin Ju-Keng heitir. Er það hann, sem upptökin á nú að þessum aðskilnaði við Kínaveldi. Lýsir hann því yfir, að ríkjum þessum sé óumflýjanlegt að hafa samband við Japan Og Manchukou til vemdar sér. Er því auðséð, hvaðan þessi að- skilnaðar-hreyfing er komin og að ihún er eitt atriðið í land- vinningastefnu Japana í Norð- ur-Kína. Kína-veldi ihefir því þarna tapað landi, en það er þó ekki, nema lítið hjá því, sem við hefði imátt ibúast, því það er nú einu sinni orðið ljóst, að Japanir líta alt Norður Kína, norðan Gulu- árinnar (Yellow River) girnd- arauga. Og íbúa-tala þesg hluta Kínaveldis, er um 90 milj- ónir. Japanir liggja með her sinn fyrir norðan Kínamúrinn til þess að vera viðbúnir, ef Nan- kingstjómin (miðstjóm Kína- veldis) skyldi hreyfa ihönd eða fót í þessum héruðum, er slitið hafa sig laus frá Kína. ÍSLENDINGUR STADDUR VESTAN HAFS f VIÐSKIFTAERINDUM Fyrir helgina kom hr. Kristján Einarsson frá Reýkjavík til Winnipeg. Hann skrapp hingað sunnan frá Bandaríkjulm og Cuba, en þar var hann í verzl- unarerindum fyrir útgerðarfé- lög heiman af íslandi. Seldi hann um hálfa miljón pund af þursöltuðum þorski á Cuba og tók pantanir fyrir miklu meira ibæði þar og í Bandaríkjunum. Þessi sölutilraun virðist því hafa gengið greiðlega og verður von- 'andi byrjun til víðtækari við- 'skifta. Saltfiskur heiman af íslandi 'er hér vestra eins fágætur og silkisokkar á Grænlandi, og er samvinnu og viðskiftum Aust- 'ur- og Vestur-íslendinga til lítils lofs. Til þess að kynna vöruna hér, þarf því að líkindum nokk- urn tíma. En það sagði hr. Kristján Einarsson, sem þeir geta ofur vel tekið undir sem um tugi ára hafa orðið að éta hér vatnafisk og alt sem í fiskmynd er, og hafa reynt að telja sér trú um að það væri þorskur frá íslandi, að vörugæði á fiski heiman frá íslandi, hlytu að verða þeim kunn, er einu sinni reyndu hann. Og það væri þessvegna, sem hann vonaði, að viðskifti þessi kynnu að eiga hér framtíð. Fyrir síld heiman af íslandi hélt hann að hér væri yfrinn markaður. Vegalengd hingað taldi hann ekki neitt sérlega aukinn farar- tálma, því að í Evrópu yrði ís- land að sækja markað til ítalíu, sem væri 200 mílum lengra en til New York. Ásgeir Ásgeirsson, fyrv. for- sætisráðherra íslands, sem um tíma hefir verið hér vestra, kvað einnig hafa verið að huga að víðskiftamöguleikum hér fyrir ísland. Það lítur því út fyrir, að íslendingar séu fyrir alvöru famir að gefa viðskiftum við Vesturheim gaum. Hér í Canada eru nokkrir ís- lenzkir fiskikaupmenn. Ættu þeir nú að fara að líta í kring um sig og eiga einhvern þátt í þessum viðskiftum. í rajun réttri hefðu þeir átt að gera það fyrir löngu og hefðu ef til vill getað það flests annars vegna en meðskapaðrar nærsýni. Aberhart forsætisráðherra Albertafylkis tilkynti nýlega, að C. H. DDuglas, höfundur Social Credit-stefnunnar, væri vænt- alnegur til Alberta upp úr ný- ári. NÝTT HVEITISÖLURÁÐ Hveitisöluráðið sem Bennett- » stjórnin stofnað og John I. Mc- Farland stjórnaði, hefir verið afnumið, en annað söluráð ver- ið sett upp og skipað þessum mönnum: J. R. Murray korn- kaupm. forseti, Geörge Mclvor og A. M. Shaw. Breyting þessi var nauðsynleg til þess að stefna Kingsstjórnarinnar nyti sín, og kornfélögunum væri gef- ið svolítið meira tækifæri, en McFarland gerði. Meira um þetta mál síðar. VITINN Calgary, 30. nóv. — í ræðu er Aberhart fors æ t isráðh err a Albertafylkis hélt s. 1. föstudag á ársfundi í félagi stjórnar- þjóna fylkisins, komst hann svo að orði um Social Credit stefn- una, að hún væri viti, sem1 lýsa mundi öllu mannkyni. Aðal-viðfangsefni sitt þessa stundina kvað Aberhart greiðslu að fullu og öllu á skuld fylkis- ins. Áleit hann það eiga að sitja fyrir öðru því það þjóðfé- lag, sem helming allra tekna sinna greiddi 1 rentur einar saman af lánskuldum, eins og segja rnætti að fylkin nú gerðu ætti enga uppreisnarvon. Hann áleit Sambandsstjórn- ina betur af, ef hún semdi um greiðslu nú þegar á öllum fylk- isskuldum landsins og reisti um leið rammar skorður við að þær ykjust aftur. Viðskifti Albertafylkis við fylki og lönd, sem annan gjald- eyrir ihefðu, kvað hann vand- ræðalaus verða af þeirri ein- földu ástæðu, að svo mikið væri selt út úr fylkinu, að það mundi meira en nægja fyrir það, sem inn í það þyrfti að flytja. Hann bjóst við, að af hinum miklu viðskiftum fylkis- ins út á við, yrði ávalt talsvert af vanalegum gjaldeyri lands- ins í veltu í Alberta. Frá Grikklandi Aþenu, 30. nóv. — Constan- tine Demerdjis, prófessor í lög- um og fyrrum ráðgjafi, tók við iforsætisráðherrastöðu á Grikk- landi í dag að ibeiðni George II. er tekinn er þar við ríki. Á Grkklandi er litið á þetta sem kinnhest á fyrverandi for- sætisráðherra George Kondylis, er á móti konungi var í því, að gefa uppreistarmönnum upp sakir. En uppreistarmenn voru konungssinnar. Við kosningum er bráðlega toúist á Grikklandi. Japanir verja helming útgjalda til hers Tokio, 30 nóv. — Rimma hefir staðið yfir í viku um fjár- lög Japans, og sérstaklega út- gjöldin til hersins. Voru þau loks samþykt í dag. Alls nema útgjöldin 2,227,000,000 yen (um $658,590,000). Síðast liðið ár voru þau 2,122,000,000 yen. Af Iþessum miklu útgjöldum á að verja 46.8%, eða nærri helm- ingi til hersins. Dómari sektar sjálfan sig í réttarsalnum var kallað: “Alvah W. Burlingame.” Alvah W. Burlingame var sjálfur dóm- arinn í þessum rétti í New York. Hann tók upp tolöð og las kæru á sjálfan sig fyrir að hafa skilið toílinn sinn eftir, þar sem það var toannað. Hann sagði sjálfum sér að hann væri sekur, minti sjálfan sig á að þetta væri fyrsta brot, sektaði sjálfan sig $1, greiddi ritara penginana og sagði að því toúnu: “næsta mál”. HVAÐANÆFA Undanfarin ár hefir fólksinn- flutningur til Canada mátt'heita bannaður, enda hafa bæði' bæir og sveitir mótmælt honum. — Jámbrautafélögunum hefir þó verið leyft að flytja inn fólk frá Evrópu — um 50 fjölskyldur hvoru — séu þær svo efnaðar að þær geti vel séð fyrir sér. Nú ihefir hinn nýi fólksinnflutninga- ráðherra Hon. T. A. Crerar slak að svo á innflutnings ákvæð- unum, að járnbrautafélögunum er leyft að flytja inn eins marg- ar f jölskyldur og þeim sýnist, ef þær eru sjálfbjarga eða eiga þá hér að, sem sjá þeim borgið. * * * David Lloyd George, fyrrum forsætisráðherra Englands, hef- ir ákveðið að sameinast liberal- flokkinum, ásamt flokksmönn- um sínum, sem eru nú samt sem áður ekki nema 3. Lloyd George var þegar boðin forusta liberala, en hann hafnaði henni. * * ¥ Verkamenn á ítato'u verða að helga síðari hluta hvers laug- ardags heræfingum. * * * ítalir, sem í Ástralíu toúa, eru nú sem óðast að ná sér í brezk borgarabréf. Ótti við stríð og að yerða kallaðir heim til 1- talíu, er ástæðan. * ¥ * Það er haft eftir dr. Charles H. Mayo, hinum fræga skurð- lækni, að innan fimm ára verði fundið upp óyggjandi lyf við lækningu á vitskerðingu. * * * Yfir 500,000 Gyðingar eiga enn heima í Þýzkalandi. Viðtal áttu blaðamenn síðast liðna viku við Hitler. Spurningu þeirra um ástæðurnar fyrir því, að stjórnin hefði ráðist á Gyð- inga, eins og hún gerði með lög- unum, sem gera þá óalandi og óferjandi, svaraði Hitler þannig,> að með þeim hefði tilgangurinn verið sá, að hindra innreið bol- öhevismans. Það hetfðu verið Gyðingar, sem forvígismenn hans hefðu verið í Þýzikalandi, sem í Rússlandi. Og með þrí, að fjöldi manna hefði verið illa haldinn, og margir mentaðir ungir menn atvinnulausir, hefði auðvelt verið, að hrinda af stað byltingu, enda hefði við henni verið búist og fyr en marga eða flesta varði. Að stemma þá á að ósi, hetfði ekki verið kostur, án þess að beinast að Gyðing- um. Þeir hefðu verið fjölmenn- ir í öllum æðri stöðum, svo sem stjórnar-, lögfræðis- og lækna- stöðum og hefðu þessvegna haft geysimikil áhritf. Og þeim var svi'kalaust beitt til þess að gera Þýzkaland að f jórða kommún- . ista ríkinu (4th internationale). I En hefði það tekist, hefði allri | Evrópu verið hætt, þó við það ! | hlutverk þýzkalands, að firra | [ Evrópu þjóðirnar þeim vand-1 ræðum, væri ekki kannast af ■ þeim. | Spurningu tolaðamanna um herstefnu Hitlers, svaraði hann á þá leið, að Þýzkaland væri enn voldugt land og þyrfti vold- ugann her með. En hvað er um nýlendur? spurðu blaðamenn. Þýzkaland gefur aldrei eftir kröfur sínar til nýlenda, var hið ákveðna svar Hitlers við þeirri spurn- ingu. ♦ * * Tvö af hverjum þrem börnum em fæðast í Kína deyja á fyrsta ári. * * * Farþegagjald á öllum járn- brautum í Bandaríkjunum, fyrir vestan Mississippi ána og Chi- cago, hefir verið ákveðið 2c á . míluna. Járnbrautirnar hafa j reynt þetta undanfarin eitt eða tvö ár og segja það hafa aukið fólksflutning til muna. * * * • Sagan “Prince and Pauper” eftir Mark Twain, sem höfund- urinn seldi hreyfimyndafélagi fyrir 25 árum fyrir $500, hefir nú verið seld öðru félagi til að gera talmynd úr fýrir $100,000. * * * Bruno Richard Hauptmann, sem sekur var fundinn um að ihatfa myrt son Lindberghs-hjón- anna, hefir sótt um leyfi til j íhæstaréttar, að mál hans verði rannsakað að nýju. Hæstirétt- ur kvað ætla að gefa svar sitt 23. desember. Ný rannsókn er sagt að standa mun yfir í 2—3 mánuði. Vöggu-vísur Dimt er í loftsölum, drifhvítar höeöir, Drynjandi þeysir frá íshafi ’hún mjöll. Stormhljóðin gegnum hún kveður sín kvæði, Hvíthjúpi íklæðir dali og fjöll. Hvíslar hún: “Sofðu nú barnið mitt blítt Breitt hefi eg lín yfir kofan þinn hlýtt. Hvíldu í ró, — kor-rí-ró, kystu hana mömmu Kvikt er í draumsölum — skemtunin nóg. Víst muntu sjá bæði systir og ömmu Svífa yfir akra og iðgrænan skóg. Sofnaðu, sofðu nú barnið mitt blítt, Blasir við draumlandið ilmríkt og hlýtt. Fannblæan hvílir nú fjöllunum yfir, Frostrós á gluggann þinn letrar sín ljóð, Sóley og fjólan í svefnhöfga lifir Svalan þó kveði eg vetrarins óð. Sofnaðu ástin mín, sofnaðu rótt Sofðu í guðs örmum um komandi nótt. B. P. Ætlar King að stöðva Samkvæmt fregnum frá Ot- tawa í gær, virðast líkur á þrí, að hætt verði vinnu við lok- ræsisgerðina í Winnipeg. Kingstjórnin hefir komist að þrí, að það sem til þessa hefir verið unnið að henni, hafi ekki verið gert á þann hátt sem tekið sé fram að gert skuli í samningi samtoandsstjórnarinn- ar. í samningi Sambandsstjóm- arinnar er einungis aðal-Iok- ræsið nefnt, en ekki kríslar út frá þrí, eins og t. d. skurðurinn á Paulson Ave., sem nú er lengi toúið að vinna að. Telur sam- toandsstjómin ekki hægt að veita féð, meðan svo sé haldið áfram. Háskólinn í Toronto heiðraði Tweedsmuir lávarð, landstjóra Canada, er hann heimsótti borgina s. 1. viku, með nafn- bótinni doctor í lögum. * * * Roosevelt forseti fór nýlega fram á það við bankana, að þeir lækkuðu rentu á lánfé til þess að greiða fyrir viðreisnar- starfinu. Hvað miklu lækkunin nemur, getur ekki um. Roosevelt svar- aði fregnritum, er um það for- vitnuðust ekki öðru en því, að hún mætti vel lækka úr 6%. Svo stóð á að um það leyti er Roosevelt ihreyfði þessu, var bankafélagið að halda fund í New Orleans. Var þar bolla- lagt um að hækka rentu. Við- reisnarstarf Roosevelts var mjög gagnrýnt og ekki sízt lántökur stjórnarinnar til beinn- ar framfærslu fólki. * * * Fyrir fimtíu árum komu 34 hermenn saman úr toorgara- stríðinu í Bandaríkjunum, allir úr B. First Minnesota herdeild- inni, og stofnuðu félag, er þeir nefndu “Last Mans Club” — (klúbb síðasta mannsins). — Þetta gerðist í Stillwater, Minn. Ákveðið var að koma saman einu sinni á ári, unz eikki stæði nema einn uppi. En þá átti ihann að drekka skál allra hinna í víni úr flösku, er keypt var til þess á stofnfundinum og leysa upp klúbbinn. Hét sá Charles M. Lockwood, kapteinn, frá Chamberlain, S. D., er lang- lífastur varð. Fyrir fimm árum, er allir félagar hans voru dánir, hélt hann erfisdrykkju þeirra. Hann setti 34 stóla við borðið og þakti þá alla með svörtum slæðum nema þann sem hann sat í. Vínið hafði súrnað, en 'hann drakk samt af þrí og kvaddi svo félaga sína með fá- einum orðum. í síðast liðnum mánuði dó Lockwood sjálfur og var hann þá 93 ára gamall. FRÁ ISLANDI Ný misgrip í hestaslátrun Fyrir nokkru var sagt frá því hér í blaðinu, að reiðhestur, sem var í hagagöngu í Digra- nesi hafi verið drepinn í mis- gripum fyrir gamla hryssu. Nú hafa slík misgrip átt sér stað að nýju. Maður nokkur, sem á heima á Grímsstaðaholti keypti sér nýlega afsláttarhest upp í sveit. Komið var með hestinn til bæjarins seint um kvöld svo ekki þótti tiltök að slátra hon- um þann dag. Fékk maðurinn því að geyma hann í túni Sveins Ingvarssonar, selml er umsjónarmaður bæjarlandsins. Daginn eftir tók eigandi afslátt- arhrossins, hest, sem var í túni lokræsisgerðina í Wpg. John Queen borgarstjóri sem nú er lí Ottawa, símaði að hann tryði ekki, að þetta yrði til þess að vinnan yrði stöðvuð. Féð telur Kingstjórnin sig ekki hafa vald til að veita, nema samningunum verði breytt. En á þrí er hætt við að geti orðið nokkur bið. Auðsjáanlega er hér ekki um annað en hártoganir að ræða og að Kingstjórnin er að leita allra bragða til að komast hjá þrí að veita féð. Ef þannig á að fara með fleira af þeim fjárveitingum er Bennettstjórnin lagði fram og sem til þessa hatfa stórkostlega ■bætt úr atvinnuleysinu, getur gamanið tekið að grána. LJÚFLINGS LJÓÐ Litli kollur ljúfi minn Læðist nú í kotfan þinn Engill — augum lokar — Draumalandsins dýrðarsal Draumsýn inst í fögrum dal. — Þoku burtu þokar. Þarna stendur hulins höll Þarna eru blómin öll Þarna viltu vera. Barna leikir, barna hjal, Bömin eiga þennan dal, Englar brátt þau bera Alsælunnar inn í lönd Yfir nóttu; verndar hönd Verndar barnið smáa, Verada mun hún alla íslands áa. B. P. Sveins og slátraði honum. — Nokkru seinna kom Sveinn Ing- varsson og þekti þá hána af reiðhestinum sínum á blóðvell- inum, en afsláttar hrossið stóð á beit í túni hans. Sveinn hefir krafist 500 krónur í skaðabætur fyrir hest sinn.—Mbl. « * * Maður fótbrotnar á dansleik Á dansleik, sem Sjómannafé- lagið hélt í Iðnó nýlega lenti piltur einn í ryskingum og fót,- brotnaði rétt fyrir ofan ökla. Var hann fluttur á Landsspítal- an og liggur þar. * * * Horaafirði, 29. okt. Súðin fermdi í gær í Horna- firði 460 tunnur saltkjöts, er 'Skipið flytur til Noregs. Áður voru sendar þangað 70 tunnur. Einnig voru sendir nú 1200 skrokkar af nýju kjöti til Vest- mannaeyja. Slátrun er nú lokið hjá kaup- félaginu í Hornafirði. — Alls var slátrað 2600 dilkum og er það um 1000 dilkum færra en í fyrra. Meðalþungi dilka er meiri nú en í fyrra. Hæstur meðalþungi dilka á heimili var 13l/2 kg. * * ♦ Djúpavogi Á Djúpavogi voru í haust vegnir lifandi tveir tvíleim'bing- ar, hrútur og gimbur, og óg gimbrin 42 ■ kg., en hrúturinn 47£ kg. Ærin, móðir þeirra, og 77 kg. Þórhallur Sigtryggsson á þessar kindur. Sauðfjárslátrun var að enda, er fréttaritari útvarpsins á Djúpavogi skrifar 25. þ. m.: iSauðfé reyndist fremur rýrt, en þó mun vænna en í fyrra. Töðu- fengur á Djúpavogi er nú 1030 hestar en 4730 hestar í öllum Geithellahreppi. Jarðepli voru 195 tunnur, en 430 í öllum hreppnum. Heyafli var nokkru minni nú en í fyrra, en upp- skera úr görðum er svipuð. — Nýlátinn er Árni Antoníusson, bóndi að Hnaukum.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.