Heimskringla


Heimskringla - 04.03.1936, Qupperneq 5

Heimskringla - 04.03.1936, Qupperneq 5
WINNIPEG, 4. MARZ, 1936 HEIMSKRINGLA 5. SÍÐA staddir menn úr öllum hinum; þrem íslenzku kirkjum. Hugs-! um oss líka, að höfundar hinna fornu játningarrita væru þar viðstaddir. í kirkjunni yrðu með öðrum orðum hinir ólíkustu menn. Og þó ættu þeir margt sameigin- legt. Allir syngja þeir sálma sína til þesss að veita útrás þrá sinni til guðs, allir tækju þeir þátt í bæninni, hug sínum til styrktar og trúarlífi sínu til efl- ingar. Ef þeir gera það ekki, fer það alls ekki eftir því, hvaða kirkjudeild þeir tilheyra. Allir trúa þeir á guð. Sumir þeirra viðhafa orðalagið þríeinn guð eða þrenning, aðrir ekki. Höf- undur Aþanasiusarjátningarinn- ar mundi krefjast þess, að sá einn yrði talinn hólpinn, sem fylgdi hans útlistun á þrenn- ingunni. Hver sá, sem ekki varðveitir hans trú “heila og ó- mengaða, mun vafalaust að eilífu glatast.” Aftur á móti mundi flestum nútímamönnum þykja viður- hlutamikið að kveða svo ramt að orði. En þó að vér nútíma- menn séum langt frá því að fylgja þessum fornu höfundum í útlistunum sínum á þríeinum; guði, þá trúum vér þó með! þeim á guð. Vér trúum því og með þeim, að í mynd Jesú | Krists birtist oss kærleiksvilji! guðs, því að Kristur var opin- j berun þess fullkomnunartak-1 marks, sem guð setur mönnun- j um. Og ennfremur samein- j umst vér í því að trúa á hinn ósýnilega kraft guðs, anda guðs, verkandi í veröld allri. Þannig mundu menn hver um sig hafa sína afstöðu til kenn- inganna, en veruleikinn, sem þeir leita að, er einn og hinn sami. Ef þessi guðsþjónusta væri jólamessa, mundu menn hafa j ýmsar skoðanir á því, hvemig j Kristur kom í heiminn. Allir mundu hinsvégar fagna komu j hans og telja fæðingu hans hina j mestu hamingju í lífi heimsins. Allir mundu sameinast í því, að hans lífsstefna væri hjálpræð- isleið mannkynsins, að feta í fótspor hans væri að gera vilja guðs. Ef það væri föstudagurinn langi, mundu sumir þakka guði j fyrir þann kærleika að gefa son j sinn sem fórn fyrir syndimar. Aðrir mundu vera þeirri kenn- j ingu andstæðir, að dauði Krists j hefði mýkt reiði guðs. En þeir mundu allir þakka og gleðjast yfir þeirri fórnarlund, sem fram kom hjá Kristi, er hann lagði sjálfan sig, æfi sína, líf sitt í sölurnar til þess að leiða menn- ina inn í guðs ríki með orðum sánum, eftirdæmi og anda. Allir mundu sameinast í þeirri trú, að krossfesting Krists væri staðfesting þess, að til að firelsa heiminn úr myrkri, lyginnar og vanvirðu veikleikans þurfi stöð- j uga fórnfýsi. Eftir því sem Ágsborgarjátningunni farast orð, mundu ekki aðrir af kirkju- gestunum geta orðið réttlættir fyrir guði en þeir sem aðhyltust hina gömu skýringu á kross- dauða Krists. Hinir yrðu ofur- seldir djöflinum og árum hanj.! En eg hygg, að flestir nútíma- j menn mundu frekar halda sér að orðum Krists í dæmisögunni um Pariseann og tollheimtu-1 manninn, að sá fari réttlættur heim til sín, sem á nóga hrein- { skilni og drenglund til að kann-; ast við yfirsjónir sínar í trausti á líknsemd guðs föður. Vér mundum tæplega þora að nota neina skýringu á krossdauða frelsarans til að aðgreina guðs börn og djöfulsins. Sé þessi guðsþjónusta á pásk- um, yrðu einnig skiftar skoð- anir á upprisu Jesú Krists. —j iSumir mundu líta svo á, að hann hefði risið upp í sínum' jarðneska líkama; aðrir að hann hefði birst í andlegum h'kama, líkt og Páll postuli og spiritist-; ar nútímans tala, um. En þeirj mundu verða sammála um það, að Kristur hefði leitt í ljós lífið og ódauðleikann. Að hann hefði á dásamlegan hátt víkkað sjónarhring lærisveina sinna út fyrir þröngan vettvang hins jarðneska. Þannig mætti halda áfram að telja. Alstaðar eru skiftar skoðanir. í flestum atriðum fara menn feira en eina leið hugsunarinnar, og eru ýmist samferða hinum gömlu játn- ingahöfundum eða á móti þeim. En það sem er eftirtektaverð- ast, er það, að ef kirkjugestirn- ir ættu að greiða atkvæði um kenningaratriðin, þá mundu þeir greinast sitt á hvað, ger- samlega án tillits til þess, í hverri af hinum þrem kirkju- deildum þeir eiga heima. Væri aftur á móti leitað álits um það, sem í hverju máli er kjarn- inn, stæðu menn hver öðrum nærri sem bræður, þótt þeir nú starfi eða séu meðlimir í þrem kirkjudeildum, hverri með sínu nafni. Vinir mínir! Af þessu, sem eg nú hefi sagt, verður ekki dregin önnur ályktun en sú, að frjálslyndið og umburðarlyndið hafi sigrað eða sé að sigra í öll- um hinum íslenzku kirkjum. — Sé farið eftir anda en ekki bókstaf, er ástæðulaust að ihalda þeim flokksmörkum, sem hingað til hafa verið. Hvi gæti ekki hin íslenzka kirkja, heima og erlendiss, myndað með sér eitt samiband? Eg sagði áðan, að slíkt spor væri í fullu sam- ræmi við þá hreyfingu, sem nú er efst á baugi í hinum kristna heimi. En fyrir kirkjur Vestur- Islendinga er ástæðan tvöföld. Móðurkirkjan á íslandi hefir verið þjóö vorri menningar- stofnun og dætur hennar hérna megin hafsins hafa líka verið það. Hinar Vestur-iísl. kirkjur eiga fyrir sér að veikjast að því skapi sem íslenzka þjóðarbrotið á erfiðara uppdráttar. Af því leiðir enn meiri nauðsyn á sam- starfi, þrátt fyrir það sem óhkt kann að vera. Skylda kirkjunn- ar gagnvart þjóðinni hlýtur að knýja hana til þess að sinna þessum málum. Það má með fullum sanni segja, að það sé mikið undir kirkjunni komið, ihvernig íslenzkri starfsemi yfir- leitt vegnar á komandi tíð. Guð gefi, að hún reynist þess megn- ug, að vinna verk sitt með prýði, og á þann hátt að allar Ihinar þrjár ísl. kirkjudeildir verði hver annari til stuðnings e*n ekki til hneykslunar. Hans iblessun sé yfir þeim öllum. LAMA-PRESTAR I MONGÓLÍU Framh. m. “Hinn lifandi Búddha” fædd- ist í Tibet. Þegar hann var Ibarn, fóru lama-prestar með hann til Urga, og sögðu, að sér hefði opinbeirast, að hann væri (heilagt bam, sent af guði til Mongóla. Mongólar tóku við Ihonum, og hann var alinn upp í Mongólíu. Prestarnir í Tibet hafa með hjálp hans haft mikil áhrif á málefni Mongólíu. Glað- lyndi hans hreif hjörtu hinna léttlyndu Mongóla; þeir ekki aðeins tiibáðu hann sem guð- dómlega manneskju, heldur gerðu þeir hann að keisara með tímanum. Hin póhtíska aðstaða hans, jafnvel áður en hann var krýndur, var ekki ósvipuð póli- tískri aðstöðu páfanna á mið- öldunum. Fyrstu kynni mín við “hinn lifandi Búddha” sýna, hversu auðvelt það er fyrir útlending, sem ekki skilur málið vel, að verða hlægilegur í landi, sem hann er nýkominn til. Eg kom fyrst til Urga árið 1894 og fór þá strax að keppast við að læra máliá. Eg hafði ágætan kenn- ara. Einn dag, þegar eg var ibúinn að sitja við lexíu mína tvo klukkutíma, fanst mér eg , þurfa að rétta úr mér; lét eg því söðla hest minn og reið út einsamall. Eg hafði ekki farið langt, þegar eg sá hóp af lama-prest- um, sem voru klæddir í flaks- andi, gular skikkjur, koma ríð- andi á fjörugum gæðingum. — Þeir komu eftir veginum, sem eg var á, og stefndu í sömu átt og eg. Alt í einu heyri eg aö einhver hrópar: “Bó!” Eg vissi ekki að “bó” gæti þýtt nokkuð annað en byssa, og þar sem eg hafði enga byssu með \ mér, skifti eg mér ekkert af þessu. En eg tók eftir því, að allir, sem á veginum voru, horfðu á mig og ihrópuðu: “bó! bó! bó!” — Ennþá skildi eg ekki hvað um var að 'Vera, en skrítið fanst mér það, að allir, sem ríðandi voru, nema lama-prestarnir, voru komnir af baki og stóðu hjá hestum sínum. Nú tók einn lama-prestutrinn sig út úr hópnum og kom þeys- andi til mín; hann nam staðar rétt fyrir framan mig og hróp- aði: “ibó!” beint framan í mig. Eg svaraði honum rólega, að eg hefði enga byssu. Bæði hann og þeir sem nærstaddir voru ráku upp skellihlátur. Síöan benti hann á jörðina og gerði mér skiljanlegt, að eg ætti að fara af baki. Eg fór af baki og stóð hjá hesti mínum næsta eymdarleg- ur. Presturinn reið til baka til flokks síns; og svo þeystu þeir allir fram hjá mér hlægjandi, en eg stóð þarna eftir eins og fá- bjáni. Þegar þeir voru farnir, fór eg heim styztu leið og náði í kennara minn. Eg sagði hon- um frá þessu atviki og að mér hefði verið skipað að láta af hendi byssu, þótt eg hefði enga haft. Hann skýrði mér frá, að orðið “ibó” þýddi ekki ávalt það sama, ein merking þess væri ‘‘að fara af baki”. Eftir lýs- ingu minni vissi hann, að prestahópurinn hefði verið með- reiðarsveit “hins lifandi Búdd- ha”, sem einnig hefði verið i útreið, eins og hann væri van-' ur um þetta leyti dags. Hann fræddi mig um það, að það væru lög þar í landi, að hvert mannsbarn færi af baki, þegar hinn guðdómlegi Búddha riði framhjá. Atvik þetta vakti forvitni mína á þessusm manni, sem kennari minn sagði mér að væri tilbeðinn eins og guð af öllum Mongólum og væri haldinn svo heilagur, að hann gæti ekki drýgt neina synd. Eg fór þess- vegna að leggja leið mína um veg, sem lá framhjá höll hans, þegar eg reið út mér til skemt- unar. Dag einn, skömmu eftir að eg sá hann í fyrsta sinn, sá eg mikla mannþröng hjá hölllinni: þar voru nokkrar þúsundir saman komnar af hlægjandi ifólki, sem tróð sér inn í hvern krók og kyma. Eg bjóst við, að sjá hér ein- hverja hátíðlega trúarbragða- lega athöfn. Menn geta ímynd- að sér undrun mína, þegar glugga á efra lofti á höllinni var ihrundið opnum og hlægjandi maður í gullsaumaðri skikkju kom í ljós. Hann hélt á kven- bol í hendinni og kastaði hon- um út í hópinn. Bolurinn flaug rétt fyrir ofan höfuðið á mér og eg greip hann á lofti. Fyrst datt mér f hug, að kasta honum aftur til þess sem sendi mér hann, en áður en eg hafði tíma til þess var hann rifinn úr hönd- unum á mér. Eg er ljós á hár, og höfuðið á mér var þessvegna nokkuð á- berandi innan um alt þetta svarthærða fólk. Maðurinn í glugganum tók eftir þessu og klappaði saman höndunum af kæti. Hann kastaði næst nið- ur stórri ilmvatnsflösku, sem brotnaði um leið og hún kom niður. Þeir sem næstir stóðu þefuðu og grettu sig yfir lykt- inni. Þá kom skæðadrífa af úrum, góðum, svissneskum úrum. Þá varð nú handagangur í öskj- unni — fólkið ætlaði alveg að ærast, menn og konur börðust um og kútveltust hvað innan um annað. En Mongólar eru allra manna geðbeztir og þar að auki sterkir og þola vel hnjask. Til allrar hamingju ^meiddist enginn í þessum látum. Á efitir úrunum komu klukkur. Þær voru flestar smáar og skraut- legar. Ein var þó sitór stofu- klukka, sem gerði dynk mikinn og brotnaði í mask um leið og hún kom niður. Á eftir klukkunum komu lampar og síðan ilmvatnsflöskur enn á ný. Maðurinn fór úr glugganum, ren fólkið kallaði hann aftur fram. Hann kom aftur með fangið fult af kven- kjólum frá Vesturlöndum, og þá náðu fagnaðarlætin hámarki sínu. Hann fleygði nú út kjól- unum, einum í senn. Það voru allskonar kjólar og úr alls kon- arefni. Seinast kom geysistór morgunkjóll, útþaninn eins og flugbelgur. Á eftir kjólunum komu hatt- ar, hattar af öllum gerðum og stærðum. Karlar og konur gripu þá á lofti og settu þá upp utan yfir sín eigin höfuðföt. — “Hinn lifandf Búddha” setti jafnvel einn upp sjálfur — strá- hatt með strútsfjöðrum, og rak svo höfuðið út, áður en hann kastaði hattinum, til mikillar gleði fyrir áhorfenduma. Þá komu skór, hælaháir skór úr leðri og satíni; svo andlits- farði og jafnvel skautar og leik- föng: vindmylna, örkin hans Nóa og lítill bátur með seglum. Skemtunin endaði með því, að hundruðum af smálúðrum. blístrum og jólatrésskrauti var útbýtt. Síðan var glugganum lokað. Mongólarnir æptu, blésu í lúðrana og æptu. Glugginn var opnaður upp á gátt og “hinn lifandi Búddha” rétti út tómar Ihendumar. Fólkið dúeifðist; en það sem eftir var dagsins og langt fram á kvöld lék það sér á strætunum, eins og böm á tyllidegi. Síðar, þegar eg var orðinn vildarvinur “hins lifandi Búdd- ha”, komst eg að því, að hann hafði óseðjandi forvitni á öllum vestrænum hlutum; og þar sem hann mátti ekki fara úr landi burt, sendi hann eftir verðlist- um frá stórverzlunum í Stokk- hólmi, Berlín, Lundúnum, París, Róm og New York. Hann var vanur að panta hveirn hlut, sem hann hafði gaman af, og fékk oft stórar vörusendingar. Þegar hann svo var búinn að skoða Ihlutinn og sjá hvers konar vam- ing véstrænar þjóðir höfðu, fanst honum heimska að vera að geyma þá lengur, enda þurfti að rýma til fyrir nýjum sending- um. Hann lét þá boð út ganga, að einhvern dag ytrði þessum varningi útbýtt gefins úr hall- arglugganum, og fagnandi mannfjöldi safnaðist þar sam- an. At þetta veitti fólkinu góða skemtun, og þá ekki síður gefendanum. Mér þótti líka gaman að því, þegar farið var að biðja mig að hjálpa til við útbýtinguna. Framh. Endurminningar Annað hefti er nú komið út af þessari sjálfsæfisögu Friðriks Guðmundssonar. Fjallar það um ferð hans hingað vestur og það sem á dagana dreif fyrstu árin í Ameríku; uppgang Winnipeg- borgar; íslenzkan félagsskap; frumbýlings árin í Vatnabygð- um o. fl. Hefti þetta er mjög skemtilegt og góðar og glögg- ar athuganir víða. Kostar sama og hið fyrra $1.25 í kápu. Er til sölu hjá höf. að Mozart, Sask., á skrifstofu Heims- kringlu, Ólafi S. Thorgeirsson bókasala og Magnúsi Peterson bóksala. Sent póstfrítt. Lesið Heimskringlu Kaupið Heimskringlu Borgið Heimskringlu ‘MJKIÐ EIGA ÞEIR AÐ ÞAKKA’ í síðustu Hkr. getur einhver K. um samkomu Þjóðræknisfé- lagsins í G. T. húsinu á þriðju- dagskvöldið var, og er þar á- samt öðru minst á kvæði það er hr. Gunnl. Jóhannsson flutti.. eftir skáldið Magnús Markús- son, en einkum þó á skýringu þá eða formála, er hann hafði fyrir kvæðinu. Nú — í sjálfu sér — var það ofur eðlilegt að hr. G. J. mis- mælti sig eða misminti um vís- una “Mikið eiga þeir að þakka”, o. s. frv. En úr því að farið var með það í opinbert blað, get eg ekki stilt mig um að gefa aðra og réttari skýringu. í fyrsta lagi er vísan ekki eftir Sigurbjörn Jóhannsson Argylinga-skáld, í öðru lagi er hún ekki rétt hermd og í þriðja lagi er alls ekki átt við Winni- peg með orðinu Paradís. Vísan er eftir Sveinbjörn Árnason, smið, er lengi bjó hér í borg, var í stríðinu mikla og flutti síðar til Chicago og dó þar fyrir skemstu. Hann var greindur maður meira en í meðallagi, vel lesinn, orðhepp- inn oft og vel hagorður. Hann kendi mér vísuna sjálfur og er hún svona: Mikið eiga þeir að þakka þeim í Paradís, sem yrkja, hlaupa og eiga krakka — alt með fyrsta prís. Allir geta séð að þýðing vís- unnar er blátt áfram þessi: Þeir menn, sem fá fytrstu verðlaun fyrir öll sín verk, eins og t. d. að yrkja, hlaupa og geta börn, eiga forsjóninni sannarlega mikið að þakka. Tildrög vísunnar voru öllum kunn á þeim árum. Magnús Markússon hafði einmitt fengið fyrstu verðlaun á Islendinga- dögum með fárra ára millibili fyrir þetta þrent. Enda var svo fjarri því, að hann þyktist við vísuhöf., því þegar hann heyrði vísuna, varð honum að sögn að orði, að hún ætti líka skilið fyrsta prís — og fór með hann inn á næsta hótel til þess að greiða honum verðaunin. Sveinbjöm orti margar smellnar gamanvísur á þeim ár- um, eins og t. d. biblíuljóðin “Abraham var ekki frí,” þegar sagt var að efnaleg velgengni hér á slóðum hefði gert mörg- um erfitt með að sætta sig við bara eina konu, — og “þegar hann Nói bygði bátinn sinn”, sem sameinar í átta ljóðh'num Nóaflóðssöguna og Darwins- kenninguna. Og þá má ekki gleyma vísunni um “--------andskotann, sem ekki fór í svínin”., J. ISLANDS-FRÉTTIR Skip komast ekki til Búðardals fyrir ís Frá Ljárskógum er símað að norðaustan hvassviðri síðustu daga hafi brotið ísinn af Gils- firði, svo nú sé auður gjór inn fyrir Salthólmavík, verzlunar- stað Saurbæinga. Hvammsfjröður er allur lagð- ur út í eyjar. — Búðardalur, aðalverzlunarstaður suðurhluta sýslunnar, er lokaður frá sam- göngum. Esja átti að koma með vörur til Kaupfélags Hvammsfjarðar 26. þ. m., en varð að skilja þær eftir í Stykk- ishólmi. — Bændur á Fells- strönd og í Klofningshreppi, er verzla mest í Stykkishólmi, fengu nýlega matvöru þaðan sjóleiðis til Skáleyjar og sóttu hana þangað á hestum yfir ís. —Alþbl. 2. feb. * * * óvenjuleg harðind? Rvík. 7. febr. Heiðrekur Guðmundsson á Sandi í Þingeyjarsýslu skrifar Jóni Eyþórssyni veðurfræðingi 29. f. m., að þessi vetur sé það sem af er sá harðasti vetur, sem þar hafi komið í 18 ár. Hann segir ennfremur: Inn til sveíta hér í Þingeyjar- sýslu hefir verið algerlega jarð- laust síðan fyrir veturnætur, og er útlitið þar orðið afar skuggalegt. Sumir bændur í Bárðardal eiga ekki eftir nema mánaðargjöf handa sauðfé sínu og alment heyleysi vofir yfir í sýslunni, ef ekki verður skjótur bati. Brúnum, 6. febr. Víða í Rangárvallasýslu var orðinn tilfinnanlegur vatns- skortur á undan þessum bata. Öll vötn í héraðinu hafa verið ísi lögð um langt skeið og álft- ir voru byrjaðar að falla. — í 7—8 undanfarnar vikur hefir verið þar sífeld norðanátt og bjartviðri og muna menn ekki fegurra skammdegi.—N. Dagbl. .* * & Forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins skipaður E. P. Briem Atvinnu- og samgöngumála- ráðherra skipaði í gær tvo nýja embættismenn ríkisins. Dggert P. Briem var skipað- ur forstjóri Ferðaskrifstofu rík- isins og Ragnar E. Kvaran upp- lýsingastjóri. Eins og kunnugt er, var Ferðatskrifstofa ríkisins sam- þykt með lögum á alþingi 21. des. s. 1. Alþýðublaðið snéri sér í morg- un til Eggerts P. Briem, og sagði hann meðal annars: “Eg veit að það er mikið vandastarf, sem ríkisstjórnin hefir falið mér. Ferðamanna- straumurinn hefir aukist mjög liingað til lands á undanförnum árum, eða síðan 1930, og sýnir það vel hvort landið er ekki til þess fallið að vera ferðamanna- land; þar sem þægindi eru hér af mjög skornum skamti, en ferðamennirnir koma samt. Við þurfum að ráðast í margs konar firamkvæmdir, byggja vtegi, koma upp gistihúsum og greið- asölustöðum, við þurfum að fegra höfuðstaðinn og framar öllu öðru að skipleggja þannig móttöku erlendra ferðamanna, að til sóma sé.” Þér hafið töluverð kynni af þessum málum? “Já, eg vann í 15 ár hjá Eim- skipafélaginu og annaðist mik- ið leiðbeiningar fjrrir ferða- menn. Auk þess hefi eg ferðast töluvert mikið og kynt mér á þeim ferðalögum starfsemi ferðamannaskrifstofa.” Fyrirætlanir yðar? “Um þær get eg ekkert sagt. Eg mun fara varlega. Þetta ár verður reynsluár og eg tel rétt- ara að kynna mér alla mögu leika og aðstæður okkar áður en eg ræðst í mikilvægar fram- kvæmdir. Hinsvegar er mér það mjög vel ljóst, að á starfi minu og skilningi stjórnarvald- anna veltur það, hvort Island geti orðið mikið ferðamanna- land og þjóðin notið góðs af því.” Ragnar E. Kvaran sagði við Alþýðublaðið í morgun: “Starf mitt verður í því fólg- ið samkvæmt lögum um Ferða- skrifstofu ríkisins, að veita fræðslu um landið inn á við og út á við með fræðsluritum, út- varpserindum, — fyrirlestrum, kvikmyndum, auglýsingum og á annan hátt og kynna landið á þann hátt, að menn fái sem gleggsta hugmynd um lands og þjóðar háttu, menningu, at- vinnulíf og framleiðslu. Starfið er því veigamikið, og mun eg þegar undir eins og eg tek við því, sem eg hugsa að verði í marz, fara að undirbúa það.” Og ihvað á starf yðar að heita? “Eg hefi lagt til við atvinnn- málaráðherra, að það heiti land- kynning. Það er ágæt tilbreytni frá öllum stjóranöfnunum.”

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.