Alþýðublaðið - 12.05.1960, Blaðsíða 2
'i
T
!
■fj 'Ö’tgefandi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánsson.
| Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúar
?! Eitstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson og Indriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri:
i Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14900 — 14902 — 14903. Auglýsingasími:
'jj 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfis-
k c^ta 8—10. — Áskriftargjald: kr. 45.00 á mánuði. í iausasölu kr. 3,00 eint.
Njósnaflugvélin
ÞAÐ er margt í mannlegri sambúð, sem allir
vita, að allir gera, en enginn segir neitt við — nema
það komist upp. Eitt slíkt fyrirbrigði í alþjóðamál-
um'eru njósnir. Það er á almanna vitorði, að allar
þjóSir hafa í frammi viðleitni til að afla sér upp-
lýsiriga á hvaða hátt, sem tiltækilegur er. Stór-
veldin ganga lengst í þessum- efnum, og leggja
ekki minnsta rækt við að njósna hvert um annars
Sierstyrk.
Bandaríkjamenn hafa nú verið staðnir að
verki, þar sem Sovétríkin hafa skotið niður njósna
.flugvéi þeirra, er var á flugi yfir miðri Síberíu.
■Mms og ávallt, þegar slíkt kemst upp, hljóta Banda
• rífcijti að verða fyrir hinu versta ámæli, en vissu-
• J.ega. er iangt gengið, þegar flugvél er send inn yfir
i
résénesfct land. Og stjómendur Sovétríkjanna eru
meiharar í að gera sér áróðursmat úr ýmis konar
-atvtfcum. Þvílíkar áróðursherferðir hefja þeir
...regíuiega í'yrir hvern mikilvægan stórveldafund.
Þefta aívik minnir óþægilega á þá staðreynd, að
jþrátt fyrir batnandi samkomuiagshorfur stórveid-
anra.a er enn á báða bóga háð kalt stríð. Báðar hlið-
ar héa undir skugga þeirra gereyðingarvopna, er
yrðp sennilega notuð í upphafi nýrrar styrjaldar.
er .því skiljanlegt, að Rússar sendi njósnara inn
f. kjarnorkuver Vesturveldanna og rússneskir „tog
arar“ snuðri í kringum eldflaugakafháta úti fyrir
Kew iTork, eða að Bandaríkjamenn sperri eyrun
Viiií» iandamæri Sovétríkjanna. Eins og hið sanna
iastamd alþjóðamála er, verður að telja merkilegt,
að ekki skuli meira af slíkri starfsemi hafa komið
upi? á yfirborðið og valdið erfiðleikum,
En hvað gerist nú?
Bandaríkj amenn eru uppvísir að grófu broti
og þeir hafa, eins og Austurlandabúar kalla það,
„tapað andliti.“ Hitt verður að vona, að stórvelda
íuiidarinn, sem er fyrir dyrum, fjalli um kjarna
míálánna; en ekki aðeins ,andlit‘. Að öðrum kosti er
ekki mikils af þessum fundi að vænta. Eigi fundur
mri aóeins að vera áróðursleikur, þá hafa Rússar
. íxyggí sér góða' stöðu fyrirfram. Eigi hann hins
vegar að vera meira, er enn hægt að gera sér von-
ír utn árangur.
\
[f ifsf of uman nsstaða
Staða skrifstofumanns við bæjarfógeta-
embættið í Hafnarfirði, er laus til umsókn-
ar nú þegar. Laun samkvæmt launalögum.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
12. rnaí 1960
Alþýðublaðið
KJÖR BÆNÐ
Gerðu
aðför aó
M /r ®
AÐALFUNDUR Búnaðarsam-
bands Suðurlands var haldinn
á Selfossi dagana 29.—30. apríl.
Formaður sambandsins, Páll
Diðriksson, bóndi á Búrfelli,
setti fundinn, og kvaddi hann
til fundarstjóra bændurna Þor-
stein Sigurðsson á Vatnsleysu
og Jón Egilsson á Selalæk, og
til að rita fundargjörð Guð-
mund Eyjólfsson á Húsatóftum
og Eggert Ólafsson á Þorvalds-
eyri.
Á fundinum mæta kjörnir
fulltrúar frá búnaðarfélögun-
um á sambandssvæðinu, en tala
búnaðarfélaganna er nú 37 fé-
lög. Dagskrá hófst með því, að
formaður flutti skýrslu um
störf sambandsins á liðnu ári.
Á árinu kom út 50 ára minn-
ingarrit, sem gefið er út vegna
50 ára afmælis sámbandsins
árig 1958. Rit betta er hið vand
afSasta og sambandiiiu til sóma.
Það verður til sölu í bókabúð-
Um mjög bráðlega.
Meginverkefni sambandsins
er að annast leiðbeiningastarf-
semi. ’Sambandið hefur nú í
þjónustu sinni fimm héraðs-
ráðunauta.
Nýrækt á sambandssvæðinu
Landanlr
togara
LANDANIR togara Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur 1. til 8 maí:
A) REYKJAVÍK.
B/v „Ingólfur Arnarson“ land
aði 7. maí 63 tonn af ísfiski og
87 tonn af saltfiski, samtals 150
tonnum. Við mat skiptist sa'lt-
fiskurinn þannig: I. fl.: 62,50%,
II. fl: 21,43%, III. fl.: 16,07%.
Togarinn fer nú í slipp, því að
íyrir dyrum stendur 12 ára
f lokkunarviðger ð.
B/v „Skúli Magnússon“ land
aði 7.-8. maí 310 tonnum af
ísfiski, er aflazt hafði við Vest-
ur-Grænland. — Skipið mun
halda áfram að veiða í ís.
B/b „Þorsteinn Ingólfsson,1
landaði 4.—5. maí 48 tonnum
af ísfiski og 68 tonnum af salt-
fiski, samtals 116 tonnum. Við
mat skiptist saltfiskurinn þann-
ig: I. fl.: 80,00%., II. fl: 15,71%,
III. fl.: 4,29%, og þykir þetta
einstæður árangur. Togarinn
fór síðan á saltfiskveiðar við
Grænland.
B) ERLENDIS
B/v „Hallveig Fróðadóttir“
seldi í Grimsby 168 tonn fyrir
10.521 pund.
B/v „Þorkell Máni“ seldi í
Grimsby 2.—3. maí 241 tonn
fyrir 14.222 pund. Hann er nú
til viðgerðar í Bremerhaven.
nam árið 1959 1419 hekturum,
og eru þáð mestu nýræktar-
framkvæmdir, sem mældar
hafa verið á sambandssvæðinu
í sögu sambandsins. Búnaðar-
sambandi'ð rekur sæðingarstöð
í Laugardælum. Voru sæddar
frá stöðnni 4851 kýr. Auk sæð-
ingarstöðvarinnar rekur sam-
bandið tilraunastöð í nautgripa
rækt í Laugardælum.
Síðari fundardaginn var rætt
um verðlagsmál landbúnaðar-
ins. Framsögu í því máli hafði
Sverrir Gíslason, formáður
Stéttarsambands bænda. Einn-
ig flutti erindi um verðalagsmál
in Arnór Sigurjórissön ritstjóri.
Á fundi þessum kom fram sú
skoðun, að kjör bænda færu
hin síðari ár mjög versnandi.
Byggist það ef til vill fyrst og
fremst á því, hve allár vélar,
sem til bústarfanna eru nauð-
synlegar, hafa hækkað í verði,
án þess að verðlag á afurðum
bænda hafi hækkað í samræmi
við það.
Umræðurnar um verðlags-
málin voru mjög gagnlegar og
til þess fallnar að auka sam-
stöðu bænda á búnaðarsam-
banssvæðinu. Á . fundinum
mættu sem gestir búnaðarmála
stjóri Steingrímur Steinþórs-
son, Halldór Pálsson ráðunaut-
ur og Ásgeir Bjarnason alþing-
ismaður.
Stjórn sambandsins skipa nú:
Páll Diðriksson bóndi, Búrfelli,
formaður; Stefán Jasonarson;
bóndi, Vorsabæ; Sigurjón Sig-
urðsson, bóndi, Raftholti; Egg-
ert Ólafsson, bóndi, Þorvalds-
eyri; S'veinn Einarsson, Reyni,
Hvammshrepni. Framkvæmda
stjóri er Hjalti Gestsson, ráðu-
nautur, Selfossi.
„Lond ljóö~
skáldanna"
NÝLEGA kom út í Moskvu bók,
er ber heitlð „Nútímaljóð frá
Norðurlöndum“. Bókina tóku
saman nökkur sovézk ljóðskáld,
sem fengizt hafa yið að þýða
Norðurlandaljóð. Aðalritstjóri
útgáfunnar er Jevgení Dolmat-
ovskí, og hann hefur einnig rit-
að formála.
í bókinni eru ljóð eftir 94
norræn ljóðskáld, en þar af
fylla kvæði danskra og ís-
lenzkra ljóðskálda meira en
þriðjung bindisins.
í formála sínum kallar Dol-
matovskí ísl'and „land ljóðskáld
anna“. Hann ræður sovézkum
lesendum sérstaklega til að
veita athygli kvæðum Iialldórs
Kiljan Laxness, Jóhannesar úr
Kötlum, Þórbergs Þórðarsonar,
Ólafs Jóh. Sigurðssonar og Sig-
urðar Sigurðssonar frá Arnar-
holti.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ heílur frétt,
að um síðustu helgi hafi tveir
fyrrverandi félagar Jónasar
Árnasonar rithöfundar, í Sósíh
alistaflokknum, gengi'ð á fund
hans til að ræða við hann uffl
úrsögn hans úr Sósíalistaflokkii
um. Leið ekki á löngu unz þessi
heimsókn hi'nna fyrrverandi fé-
laga Jónasar líktist meir aðför
en vinsamlegum orðaskiptum.
Áður en lauk heyrðist hávað
inn í aðkomumönnum út á götu,
en Jónas mun ekki hafa láti'ð þá
eiga hjá sér. í
Úrsögnin hefur eðlilega vak-
ið mikla athygli, og líkur til að
álei'ri fylgi Jónasi eftir.
Alþýðublaðnu er ekki kunn-
ugt.um ástæðurnar fyrir úrsögní
Jónasar, enda hefur hann enga
skýringu gefið á henni opinber-
lega, Hitt leynir sér ekki', að
sósíalistum þykir hart að hafa
misst Iiann. j
Ritgerðar-
samkeppni
FÉLAGIÐ Samtök um vest-
ræna samvinnu hefur ákveðið
að efna til ritgerðasamkeppni
unglinga á aldrinum 13—16 ára.
Mega þátttakendur velja milli
tveggja ritgerðarefni: „Æskau
o<r lýðræðið“ nefnist armað efn
ið, en hitt „Vesíræn samvinna**,
Veitt verða tvenn verðlaun,
og eru þau fólgin í ókeypis 'ferð
til Kaupmanna'hafnar og dvöl J
•sumarbúðum utan vi'ð borgina
dagana 13.—27. ágúst næstkonx
andi. í sumarbúðum þessumi
munu dveljast 28 danksir ung-
lingar og jafnmargir unglingar
frá ríkjum Atlantshafsbanda-
lagsins utan Danmerkur. Munu
tveir unglingar frá hverju landí
valdir til í'ararinnar, og verða
þeir allir valdir með hliðsjón aí
ritgerðarsamkeppni í hverjm
landi um sig.
Ritgerðirnar skulu vera allt
að því þrár venjulegar vélritað-
ar síður að lengd. Upplýsingar
um fullt nafn, aldur og heimil-
isfang fylgi ritgerðum.
Frestur til að skila ritgerð-
um er til 10. júnd næstkomandl
og sé þeim skilað í pósthóll
1096, Reykjavík.