Alþýðublaðið - 12.05.1960, Blaðsíða 7
NATTURUVERMÐ'AR-
RÁÐ hefur ákvegí© laÖ
friðlýsa Eldey ut af-
Reykjanesi, sem fríðlísiid.
I fréít frá ráðinu seg.b'
,Þar sem telja vercÍBS’
leik-
Stúlkan stendur við áfyllingarvélina.
sfram
FYRIR skömmu hóf Mjólkur-
s'amsalan framleiðslu á „Emm-
ess“ rjómaís. Þeir, sem standa
að framleiðslu þessa íss, eru
mjólkursamlögin sunnau og
norðanlands. Vöruheitið Emm-
ess ís er skammstöfun á orðinu
„mjólkurs!amlögin“,
Aðstaðan í Mjólkurstöðinni
til þessarar ísframleiðslu er
mjög góð. Nýjar og fullkomnar
vélar hafa verið fengnar til
framleiðslunnar, og fagmenn
vinna að framleiðslunni.
FJÓRAR TEGUNDIR
í fyrstu verða framleiddar 4
tegundir af rjómaís: Vanilluís,
ís blandaður ávöxtum, nougat-
ís og íspinnar. ísinn verður seld
ur út í pappakössum, og stærð-
i'rnar eru: Einn lítri, ihálfur lítri
og einn íijórði lítra. Einnig verð
Ur hann seldur í tíu lítra um-
búðum. Verðið á ísnum er 7,50
fyrir einn fjórða lítra, 14 kr.
fyrir hálfan lítra og 26 kr. fyrir
1 lítra.
Ráðgert er að framleitt verði
seinna meir skreyttur veizluís
og ístertur. Tilgangurinn með
framlei'ðslu þessa íss er sá að
rjómaís geti orðið á borðum
hvers manns eins og aðrar
m j ólkurafur ðir.
Helztu efnin í rjómaís eru
rjómi, mjólk, þurrmjólk og svo
bragðefni ýmis konar. Þessi efni
gera það að verkum að ísinn er
ákailega næringarefnaríkur og
hollur. ísinn hefur þá kosti að
næringarefni' og bætiefni 1
mjólkinni og rjómanum varð-
veitast við ísframleiðsluna.
Næringargildi íssins rýrnar
ekki við frystingu.
Rjómaís þessi mun koma í
verzlanir um og eftir næstu
helgi. Til flutninga á ísnum hef
ur Mjólkursamsalan fengið
frystibíl, og annast hann alla
dreifingu þar sem því verður
viðkomið
í ÁLYKTUN, sem var gerð á
fundi Kvenfélags Alþýðuflokks
ins í fyrrakvöld, er þess óskað
frekari framkvæmdir verði
gerðar í leikvallamálum Reykj:a
þar eð úrbóta sé þörf.
U.M.S. Skaga-
fjatðar 50 ára
SAUÐÁRKRÓKI, í maí. —
Ungmennasamband Skaga-
fjarðar er 50 ára á þessu ári
og hélt afmælishóf s. 1. laugar-
Var það haldið í félags-
heimilinu Bifröst og var fjöl-
sótt af ungmennafélögum víðs
vegar að úr liéraðinu. Til
skemmtunar var samdrykkja,
ræður, söngur, upplestur, leik-
þættir og dans.
Þá gaf ungmennasambandið
út minningarrit í tilefni af af-
mælinu. Fyrstu stjórn skipuðu:
Brynleifur Tobíasson, Árni Haf
stað og Jón Sigurðsson. Af
stofnendum eru fjórir á lífi,
þeir Árni Hafstað, bóndi í 'Vík,
Jón Sigurðsson, bóndi á Reyn-
isstað, Ólafur Sigurðsson, bóndi
á Hellulandi og Þórarinn Sigur-
jónsson, fyrrv. bóndi í Garði.
Voru þessir allir kjörnir heið-
ursfélagar U.M.S.S. í afmælis-
hófinu, auk S'igurðar Ólafs-
sonar, fræðimanns á Kárastöð-
um, sem verið hefur lengst
allra í stjórn sambandsins.
Sambandinu bárust margar
gjafir og heillaóskir, m. a. frá
Í.S.Í., U.M.S.Í. og íþróttafull-
trúa ríkisins. Viðstaddir voru
Benedikt G. Waage, forseti í.
S.Í., Skúli Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri U.M.F.Í. og Árni
Guðmundsson, skólastjóri á
Laugarvatni, sem fluttu heilla-
óskirnar.
Á laugardag og sunnudag var
aðalfundur sambandsins hald-
inn. Formaður er Guðjón Ingi-
mundarson og hefur hann ver-
ið formaður þess síðan 1944. —
Fréttaritari.
Petrína Jakobsson, fyrrver-
andi bæjarfuiltrúi var gestur
íundarins og flutti hún erindi
um lei'kvallamál. Fundurinn
var mjög fjölsóttur.
Eftirfarandi ályktun var gerð:
„Fundur Kvenfélags Alþýðu-
flokksins haldinn 10. maí 1960
þakkar bæjarstjórn Rvíkur
framkvæmdir hennar á síð-
ustu árum í leikvallamálum.
Fundurinn telur þó enn brýna
þörf á að haida áfram frekari
framkvæmdum og leggur sér-
stak'a áherzlu á að fjölgað
verði stórlega gæzluvöilum.
smábarna svo að þeir fyrir-
finnist í öllum bæjarhverfum
og leikvellir fyrir stálpuð
börn verði búnir mikið fjöl-
breyttari tækjum en mú er.“
Caribou kemur
við á fslandi
KANADÍSK de Havilland Cari-
bou farþegaflugvél er væntan-
leg hingað til lands 20.—23. maí
næstkomandi og verður þá at-
hugað, hvort líklegt sé að slík-
ar flugvélar henti vel í innan-
landsflugi hér á landi. Höfuð-
kosíur þeirra fram yfir eldri
flugvélar er sá, að þær munu
aðeins þurfa 3—500 metra flug-
brautir, en Dakotavélar þurfa
til dæmis 1000—1500 metra.
Reynist þessar.flugvélar hent
ugar við íslenzkar aðstæður og
verði þær keyptar til landsins,
mikilvægt, að friðlýsá Elci'
ey sakir sérstæðs fragla-
lífs, er hér með Iagt terna
við því að ganga á eyma á.u
leyfis náttúruvemdarráðs
svo os að ræna þar
raska nokkrum hiut,
Jafnframt eru öll* s'fcel
bönnuð nær eynni en 2
km, nema nauðsyn b&rb
til, og banað er a®
eyna að skotmarki, iuvort
heldur er af landi, sjó
úr lofti.“
Græna flyftan
á laugardaginn
mundi kostnaður við flugvall-
argerð lækka stórkostlega.
Sigurvin Einarsson skýrði frá
þessu í greinargerð fyrir til-
lögu, er hann hefur flutt á al-
þingi um athugun þessara'flug-
véla. Vitað hefur verið, að þess
ar vélar væru á reynslustigi,
en ekki fullreyndar. í boðsflugi
Loftleiða með marga fyrirmenn
til Finnlands nýlega sáu gestir
félagsins Caribou flugvél á
flugvelli í Osló, og leiddi það
til beiðnar til verksmiðjanna
um að senda slíka vél hingað
LEIKFÉLAG RVÍKUR frum-
sýnir gamanleikinn „Grænu
Iyftuna“ (Fair and Warmer)
eftir Avery Hopwood næstkom
andi laugardagskvöld kl. 8,30 í
Iðnó. Þýðinguna hefur Sverrir
Thoroddsen gert, leikstjóri er
Gunnar Róbertsson Hansen, en
ljósameistari Gissur Pálsson.
Með aðalnlutverkin fara Árni
Tryggvason og Helga Bach-
mann, en önnur hlutverk Sig-
ríður Hagalín, Steindór Hjör-
leifsson, Guðmundur Pálsson,
Guðrún Ásmundsdóttir, Bryn-
jólfur Jóhannesson og Valdi-
mar Lárusson. — Leiktjöld mál
uðu þeir Gunnar Róbertsson og
Steinþór Sigurðsson eftir mód-
elum leikstjóra. HúSgögn hefur
Öndvegi h.f. lánað.
Höfundur „Grænu lyftunn-
ar“, sem er ósvikinn garnan-
leikur, er fæddur í Ohio árið
1882. Hann lauk BA-prófi við
Michigan-háskóla og hóf blaða-
mennsku. Samdi Hopxvood 18
velheppnuð leikrit á 15 árum
og voru t.d. eitt sinn 4 leikrit
eftir hann sýnd samtínrisjí Wew
York, öll meðal hinna vrnKæl-
ustu.
Fjalakötturdnn sýndi „Qrænw
Iyftuna“ fyrir 12 árum me&
þeim Alfreð heitnum Andrés-
syni og Ingu Þórðardóttur i að-
alhlutverkunum. Þá heíur þýzk
kvikmynd verið sýnd hér meÖ
Heinz Rúhmann í aðalhi utverki
leiksins.
„Græna lyftan“ er 2.54. við-
fangsefni Leikfélags Reykja-
víkur. Frumsýningin á laugar--
dagskvöld er 98. sýning, jaessa.
leikárs, sem er hið 63. í róðmni,
Hefur starfsemi L.R. gengifS.
ágætlega í vetur.
í kvöld er 96. sýning á „Det-
er.íum Bubonis“ og senniiega sú
síðasta- í bænum, en þessi leik-
ur hefur slegið öll met 1 að~
sókn, Leikurinn verður sýndur
í nágrenni Reykjavíkur síðar í
mánuðinum, en víðar út um
land í júní.
„Gestur til miðdegisvei’ðar‘i
verður sýnt í 30. og síðasta sinn
nk. sunnudagskvöld.
SUMARFAGNAÐUR FYRÍR
ELDRA FÓLK í IÐNÓ \
I
KVENFÉLAG AlþýSuflokksins gengst fyrir sumarfagnaíá fyrw
eldra fólk nk. mánudagskvöld 16. þ. m. kl. 8 í Iðnó. Skemmfwnm
verður með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár. Skemanfi-
atriði verða auglýsf sfðar. Upplýsingar og aðgöngumiðar fást
hjá eftirtöldum konum: Pálínu Þorfinnsdóttur, Urðarsjíg 10,
sími 13249, Oddfríði Jóhannsdóttur, Öldugötu 50, sími 11609 OK
Guðrúnu Sigurðardóttnr, Hofsvallagötu 20, sími 17826. .
Áiþýðublaðið — 12. maí 1960 *