Heimskringla - 07.10.1936, Síða 6
6. SIÐA
HEIMSKRINCLA
WINNIPEG, 7. OKT. 1936
Jói trúði því fastlega að ástin gæti breytt
mönnum, enda var hann dygguí kaupandi og
lesandi hinna vikulegu tímarita, sem lýsa hinu
hugðnæma efni, ástinni fyrir almenningi. Oft
hafði hann hugsað um ,það hvenær Ian Heath,
sem að öllu leyti var hinn álitlegasti maður,
mundi falla fyrir skeytum ástaguðsins, sem
alla leggja að velli, alt frá konunginum til fisk-
salans á götunni. Dorrance hafði jafnvel gengið
svo langt að veðja við sjálfan sig um þetta, 5 á
móti einum og síðar, rétt áður en Ian hafði
farið til meginlandsins, aðeins 3 á móti einum,
vegna þess, að hann hafði raulað með sjálfum
sér meðan hann baðaði sig. En ,þrátt fyrir það
hafði ekkert komið fyrir og eins og vant var
hafði Jói neyðst til að borga sjálfum sér.
Hann var á báðum áttum í þessum atrið-
um. Hann kannaðist við, að mál væri komið,
að Ian Heath staðfesti ráð sitt, en hinsvegar
mundi það ljúka enda á veru hans þarna, sem
húsráðanda hafði fallið svo vel öll þessi síðustu
5 ár. En þrátt fyrir það fanst honum að Ian
ætti að kvongast, þó ekki væri nema fyrir
eiaa ástæðu. Hann hafði frétt það hjá mági
sínum, sem var leynilögregluþjónn að Ian
Heath væri njósnari stjórnarinnar og það var
hættulegt starf, sem konan hans mundi sjá
um að hann legði niður.
Þegar Ian Heath kom í leikhúsið varð
hann gripinn um stund af hinni almennu hrifn-
ingu, sem þar rikti. Það sem vakti þessa
hrifningu var vinsælasta leikritið, sem þá var á
dagskrá í höfuðborginni. Hvert sæti var selt
með afar verði, þau voru öll full, og þóttist.
hann heppinn, að hafa fengið frían inngang.
Hann ákvað að njóta gleðinnar meðan hún
gafst. Einhver sagði einhversstaðar að ekkert
væri eins hrífandi og eftirvæntingin. Þegar
hann var að starfi sínu erlendis, og hafði farið
huldu höfði, hafði hann lesið hið háværa lof
blaðanna um leik þennan og lofað sjálfum sér
því, að fara að sjá hann, ef hann kæmist lif-
andi heim. Jæja, þarna var hann og þurfti ekki
að hugsa um neitt annað næstu tvær stund -
irnar, en þennan eftirtektaverða leik.
En þegar tjaldið drógst frá, horfði hann
samt ekki á leiksviðið, heldur starði hann á- |
fjáðum augum til vinstri handar. Það sem
hann sá, voru tvær konur, sem komið höfðu
seinast og voru nú leiddar til sætis af þjónin-
um, tveimur sætum fram undan Ian, og þótt
ljósin væru dauf þá sá hann að önnur konan,
var stúlkan, sem hann hafði næstum rutt um
koll á stöðvarpallinum eitthvað þremur tímum
áður.
Hann var í efa um að hann sæi rétt, en
samt var hann sannfærður um að svo var eigi.
Það var ekki um það að villast. Þetta var
sama stúlkan með gulljarpa hárið, sem hann
hafði séð áður um daginn.
Það marraði í sætinu um leið og Heath
færði sig til. Starfið, sem hann stundaði hafði
gert hann talsvert hjátrúarfullan. Skáldsagna-
dómarar kunna að gera lítið úr neti hending-
annna, en hann átti ætíð í höggi við raunveru-
leikann, og þessi hending fanst honum tals-
vert skrítin. Setjum svo að leikritið væri af-
bragð, sem alla leikhúss unnendur langaði, að
sjá, en samt var það undarlegt, að á meðal
allra miljónanna sem streyma um stórborgina,
að leiðir stúlkunnar og hans skyldu liggja á
sömu stund í sama staðinn þetta kvöld, og í
annað sinni þennan dag.
Einkennilegt og truflandi. Auðvitað hafði
þetta enga þýðingu. En návist þessarar ungu
stúlku gerði hann órólegan. órólegan vegna
þess, að hann hafði það á tilfinningunni að
forlög þeirra lægju saman á einhvern hátt.
Hann gat ekki gleymt þessum augum
hennar, sem brostu og lýstu ótta í senn. Hann
gat ekki gleymt þeim. Þau ásóttu hann síðan
hann sá þau fyrst.
Þrátt fyrir lófaklappið gat hann eigi ein-
angrað hugann við leiksýninguna, heldur
starði á stúlkuna. Hann fór að brjóta heilann
um hana. Hver var hún? Hvað hét hún? Því
var hún hrædd? Mundi hún eiga heima í Lund-
únum? Þannig spurði hann sjálfan sig, og
fann að hann þurfti að fá svar. Ef dæma
mátti af lófaklappinu, sem ætíð rauf þögnina f_
leikhúsinu, þá var leikurinn hrífandi, en Heath
hélt áfram að horfa á stúlkuna, sem sat fyrir
framan hann. Hyíti loðkraginn á kápunni
hennar var hneptur frá og kom þá í Ijós fagur-
lega skapaður háls og herðar. Hún var vel
greidd. Heath komst að þeirri niðurstöðu að
óttinn við fátæktina, sem kvelur svo margar
konur, gæti ekki valdið henni hugarkvíða.
Hún hafði auðsjáanlega látið sérfræðing gera
upp hárið. Hann fann eins og ósjálfrátt til-
ánægju yfir því. Hann var ætíð hrifinn af að
sjá konur vel búnar.
Konan sem með henni var og var rúmlega
miðaldra að útliti, var lí'ka prúðbúin, en að
öðru leyti var hún ekkert frábrugðin öðru fólki,
sem sást í leikhúsum höfuðborgarinnar.
Ian Heath sneri sér að leiksviðinu, því að
hann gerðist óþolinmóður við það, sem hann
kallaði heimskuna í sjálfum sér. Hann ásetti
sér að horfa á leikinn. Aðal leikandinn var nú
að töfra áhorfendurna með sinni alkunnu snild,
en samt hurfu augu Heath’s frá honum að
stúlkunni, sem nú hafði hulið hinn fagra háls
sinn í loðkraganum, eins og henni hefði orðið
‘kalt. Var leikurinn að hafa áhrif á hana? Var
hennar eigin æfiferill eitthvað svipaður leikn-
um, sem stóð yfir? Setti þess vegna hroll að
henni? Þvert á móti ásetningi sínum þá spurði
Ian Heath sjálfan sig að þessu.
“Ekkert sem fyrir hefir komið á liðinni æfi
þinni. Ekkert, sem þú kant að hafa gert —
getur breytt ást minni á þér!” sagði hin tigu-
lega rödd leikandans og um leið féll tjaldið að
fyrsta þáttinum.
Venjulega mundi Ian Heath hafa varið
hléinu milli þátta til þess að reykja vindling út
í göngunum, en nú sat hann kyr í sæti sínu. Sú
hlægilega ósk hafði vaknað í huga hans, að
stúlkan liti við og þehti hann. Hann var afar
óánægður yfir því, hve mjög hann óskaði að
þetta yrði svo,, en samt hélt hann áfram að
óska þess. Hann vonaði að hann væri ekki
að verða rómantískur. Harker Bellamy kærði
sig fremur lítið tum slíka hugarstefnu hjá und-
irmönnum sínum. Þeir máttu eigi vera blaut-
geðja. Lífið er engin skemtisamkoma, var
uppáhalds orðtak hans og hann leit út eins og
hann menti það, sem hann sagði.
Stúlkan horfði beint fram undan sér. Hún
veitti eftirtekt orðunum, sem konan er með
henni var, beindi að henni við og við, annars
virtist hún ekki veita umhverfinu neina at-
hygli. Ef Heath hefði ekki séð hana áður þá
mundi hann hafa litið svo á að hún þjáðist af
lífsleiðindum, sem er mjög algengur sjúkdómur
nú á tímum, þeirra sem á æskuskeiði eru sadd-
ir lífdaga. En þessi stúlka var full af lífi og
fjöri og eftirtekt, og þrátt fyrir óttasvipinn í
augunum þá hafði hann séð að hún var hraust.
Að hún veitti ekki umhverfinu meiri athygli
spratt, að skoðun Heaths af því, að eitthvað oili
henni áhyggju, að einhver óeðlilegur ótti hefði
náð tökum á henni og héldi henni í viðjum
sínum.
Það var ekki fyr en tjaldið fór upp í ann-
að sinn að Heath tók eftir manninum með örið
á hægri vanganum. Örið gat verið eftir sverðs-
högg. Tvent flaug honum í hug í senn. Fyrst
mintist hann hins einkennilega einvígis með
sverðum, ,sem hann hafði neyðst til að heyja í
Feneyjum hálfum mánuði áður, og hitt atriðið
var að hann hefði einhvers staðar rekist á
manninn með örið.
“Hver?” spurði hann sjálfan sig, en svarið
vildi eigi koma. Eftirtekt Heaths var nú tví-
skift, því að þótt maðurinn með örið virtist
ekki hugsa um neitt sérstaklega, þá sá Heath
að hann veitti stúlkunni athygli. Magra, þel-
dökka og hörkulega andlitið hans lýsti óþolin-
mæði, tennurnar nístust saman og sterkleg
hvíta hendin strauk litla yfirvaraskeggið í
ákafa.
Ian Heath hafði varið svo mörgum stund-
um æfinnar að gæta að öðrum mönnum og
veita þeim eftirtekt, að nú kom hann fyllilega
til sjálfs sín. Þetta var starf hans. Annaðhvort
hafði hann hitt þennan mann einhverstaðar,
eða hann hafði heyrt aðra tala um hann. Eitt-
hvað sem sagt hafði verið um hann, dvaldi í
minni hans. Þesskonar maður var auðkendur.
Hann gat verið vel búinn og hann var það,
hann gat borið öll hin ytri merki siðfágunar,
og hann bar þau, en fyrir augum hins reynda
mannþekkjara duldist hann samt ekki, heldur
sagði til sín hver hann var — æfintýramaður,
kaldur og kæringarlaus, maður sem vogaði
miklu til þess að vinna mikið eða tapa öllu
Heath hafði í starfi sínu hitt marga þesskonar
menn.
Slíkur maður, sem vel gat verið heims-
borgari og þorpari gerði ekkent án tilgangs.
Hann hlaut að njósna um þessa stúlku í ein-
hverjum vissum tilgangi. Skyldu það vera
gimsteinarnir hennar? Heath komst fljótlega
á þá skoðun að svo var ekki; því að hún
virtist enga hafa nema hálsband er var lítils
virði.
Ljósin voru dregin niður í áhorfenda-
salnum. Maðurinn sneri sér við, er hann sneri
sér sá Heath enn betur andlit hans. Út úr því
stafaði niðurbæld ástríða, ef til vill var það
fögnuður, það var áreiðanlega einhvers konar
æsing. Heath togaði í flibbann sinn. Hann
var vissulega í skrítnu sálarástandi fyrir mann,
sem fyrir stuttu síðan hafði gert allskonar
heitstrengingar lum frítíma og næði. Nú ósk-
aði hann einskis framar, en finna lausn þessa
leyndarmáls.
Hann kallaði sjálfan sig erkiflón. Skoll-
inn mætti hirða allar stúlkur, sem píndust af
leyndum ótta og menn með örum eftir sverða-
lög á andlitinu. Það sem hann þurfti að
finna og síðan að varðveita var ró og næði. Til
allrar hamingju myndi hann finna þetta úti á
einhverri heiðinni. Þennan næsta þátt píndi
hann sig til þess að horfa á leikinn. Hann lét
það ekki eftir sér svo mikið sem að renna aug-
unum í áttina til stúlkunnar og þegar tjaldið
féll, fór hana eins og hann var vanur úr sæti
sínu og reykti sér vindling.
Er hann settist aftur í sæti sitt neyddist
hann samt til að veita því eftirtekt að súlkan
var nú ein í sætinu. Eldri konan, sem með
henni var áður var nú farin. Án þess að hugsa
frekar um þetta horfði Heath á leiðsviðið. —
Þetta atriði leiksins var mjög hrífandi. Hetjan
í leiknum ætlaði að láta taka sig fastan fyrir
glæp, sem hann hélt að konan sín hefði framið.
Leikendurnir léku ljómandi vel og undir venju-
legum kringumtsæðum mundi Heath hafa
gleymt sér yfir því. En nú furðaði hann sig á
því hversvegna konan kom ekki aftur til stúlk-
unnar. Og þótt hann fengi snuprur fyrir þá
ákvað hann að bjóða ungu stúlkunni samfylgd
sína heim til hennar.
“Þú ert asni,” sagði skynsemin við hann í
hálfum hljóðum, “það ætti að skilja stúlkuna
eftir einsamla,” svaraði önnur rödd, (líklega
hjartans).
Að lokum fór hann milliveginn. Hann
ætlaði ekki að bjóða hjálp sína nema að hennar
þyrfti við. Hann ætlaði að vaka yfir stúlkunni
án þess hún vissi af því, þangað til hún 'kæmist
brott frá leikhúsinu. Þegar hún væri komin
inn í leigubíl eða strætisvagn mundi hún vera
örugg, en ef eitthvað kæmi fyrir áður — þá.
Nú f'éll tjaldið að síðasta þættinum. Stúlkan
sem gekk hratt, fór fram hjá honum. Hún
leit aldrei upp og ekki lét hún sem hún þekti
hann. Þegar hann sneri sér við til að fylgjast á
eftir henni, var hún horfin í mannfjöldann.
Hann braust í gegn um þvöguna eins fljótt
og hann gat án þess að sýna af sér ruddaskap.
Þá byrjaði hljómsveitin að leika þjóðsönginn.
Það þýddi það, að tefjast dálítið, en við því var
ekki hægt að gera. Hann stóð kyr og beið eins
rólegur og honum var auðið. Þegar hann
sneri sér við aftur var stúlkan horfin. Hann
bjóst við þessu. Hún hafði sjálfsagt kornist
niður í göngin áður en þjóðlagið var leikið og
var nú komin út úr leikhúsinu.
Jæja, þá það. Honum þótti vænt um að
forlögin höfðu forðað honum frá frekari af-
skiftum af þessu máli og alla þá stund, sem
það tók hann að troðast út í dyrnar reyndi
hann að sannfæra sig um þetta, að hann væri
glaður að svona fór. En þetta breyttist alt í
einu og hann ásakaði sjálfan sig fyrir að vera
óþokki, því að þarna fór stúlkan. Hún hafði
sveipað að sér yfirhöfninni og reyndi að kom-
ast gegn um nxannþröngina og á eftir henni
maður með örið.
“Fyrirgefið!”
Þeim sem ekki viku úr vegi, hratt hann
frá, vegur hans var ekki rósum stráður heldur
bölbænum, en honum lá á. Hann sá, að stúlkan
var nú komin út úr mannþrönginni og gekk
upp strætið
Þótt árásin væri hvatlega gerð varð Heath
samt nógu fljótur. í sama vitfangi og náung-
inn rétti út hendina og greip í stúlkuna hafði
leynispæjarinn þotið að honum og náð ju-jitsu
ta'ki á hægri handlegg hans.
Urrandi af illsku sneri maðurinn sér við.
Heath herti á takinu og sneri handlegginn
svo að kvölin hlaut að vera hroðaleg. Hann
ætlaði sér að meiða 'hann og gerði það líka.
Svitadroparnir brutust fram á enni náungans.
Augu hans glóðu af illsku.
“Hvað gengur hér á?”
Lögregluþjónn hafði birst rétt eins og á
yfimáttúrlegan hátt.
“Ekkert sem þér þurfið að skifta yður af,
lögregluþjónn,” svaraði Heath. “Þessi náungi
var að ráðast á stúlkuna þá arna og eg er bara
að reyna að siða hann svolítið til.” Að svo
mæltu hratt hann manninum frá sér, maður-
inn, sem steitti fót sinn á gangstéttar brúninni,
féll beint á höfuðið niður í forina. Ásamt
mörgu fleira fólki hafði ökumaður einn stað-
næmst til þess að horfa á uppþotið. Heath reif
upp dyrnar á vagninum hans og kom stúlkunni
upp í vagninn, því næst bauð hann ökumanni
að aka af stað og það tafarlaust, kvaðst mundi
gefa honum heimilisfangið síðar meir. Bíllinn
hélt af stað.
“Voruð þér í leikhsúinu?”
Þetta var undarleg manneskja. Venjuleg
stúlka mundi hafa byrjað á einhverjum vand-
ræðalegum afsökunum. En þessi stúlka leit á
hann og sneri sér beint að efninu. Honum féll
það vel í geð. Honum geðjaðist ætíð að prak-
tísku fólki.
“Já,” svaraði hann, ”eg sat tveimur sætum
aftar en þér í leikhúsinu. Eg var hálft í hvoru
að vonast eftir að þér lituð við,” en svo sneri
hann sér að efninu.
“Hversvegna fór konan sem með yður var
á undan yður?”
“Hún fékk áríðandi hraðskeyti um að
koma á annan stað, og leikurinn var svo dá-
samlegur, að eg vildi sjá hann til enda. Eg
þakka yður fyrir hjálpina. Þessi maður gerði
mig hrædda . . . en — hún lækkaði röddina
eins og hún væri að tala við sjálfa sig, “eg er
nú orðin svo vön við að verða hrædd.”
Ian Heath dróg leðurveski upp úr vasa
sínum. Hann vissi að hún hafði ekki ætlast
til að hann heyrði síðustu orðin, en hann hafði
samt heyrt þau.
“Eg heiti Heath,” mælti hann, “og mér
fellur illa að vita til þess að stúlkur séu hrædd-
ar.” Hann fékk henni nafnmiðann sinn. “Geti
eg hjálpað yður á nokkum hátt þá látið mig
vita.”
Hún þakkaði honum bæði fyrir nafnmið-
ann og tilboðið með hæglæti. Tilraun hennar
að sýnast hressileg mistókst að nokkru leyti,
en Heath hlýnaði um .hjartarætumar er hann
sá hve mjög hún reyndi það.
“Þorparinn reyndi að ræna yður. Og
þegar slíkur maður reynir þvílíkt á mann-
mörgu stræti, þá sýnir það ljóslega eitt, og
það er þetta: Hann hlýtur að hafa knýjandi
ástæður til að fjarlægja yður frá vinum yðar.
Eg held að hann hafi verið að reyna að stinga
nál með deyfandi lyfjum í handleginn á yður,
þegar eg kom að.
Venjulega stúlku mundi hafa hrylt við, en
þessi stúlka kinkaði kolli til samþykkis.
“Já, eg fann eitthvað rispa mig. En það
sem þér sögðuð rétt núna Mr. Heath,, slíkur
maður, við hvað áttuð þér þá? Þekkið þér
hann persónulega?”
• “Nei, eg þekki hann ekki persónulega, en
þegar eg sá hann fyrst í leikhúsinu, þar sem
hann var að gefa yður gætur, þá fanst mér að
eg hefði hitt hann einhverstaðar. En eg þekki
þvílíka menn sem hann. Hann er þorpari sem
flækist meðal allra þjóða heimsins.”
Þsesi skýring virtist koma henni óþægilega
á óvart.
Hún hafði upp hin síðustu orð hans og
reyndi að skilja hvað þau þýddu.
Þau þögðu bæði. Eitthvað í fasi stúlk-
unnar hamlaði Heath að spyrja hana fleiri
spruninga. Ef hún óskaði ekki eftir að segja
honum meira þá ætlaði hann ekki að þvinga
hana til þess. Leyndarmál þessarar dularfullu
strætisárásar var hennar leyndarmál, og þótt
hann vildi hjálpa henni á allan hann, þá varð
hún samt að biðja um þá hjálp.
“Hvert á eg að láta keyra yður?” Hann
leit út um gluggann. Hann sá fólkið koma út
úr leikhúsum og kaffisölum. Alstaðar ljóm-
uðu andlitin af gleði, nema þessi stúlka sem
hjá honum sat og sem einnig hefði átt að vera
glöð og hamingjusöm. Hún var kvalin af
hræðilegum ótta, einhverju draugalegu leyndar
máli. Hann beit á vörina. Lífið leikur marga
menn skammarlega. Þetta væri nógu slæmt
fyrir karlmenn — en fyrir unga stúlku.
“Eg dvel á Clifford hótelinu í Dover
stræti,” svaraði hún.
“Heath gaf ökumanninum heimilisfangið
og beindi hann þá ferðinni þangað. Þremur
mínútum síðar stóð stúlkan á gangstéttinni og
rétti honum hendina.
“Það var einkennilegt að við skyldum hitt-
ast aftur — þakka yður fyrir og kæra þökk
fyrir hjálpina.
“Verið þér sælar,” sagði hann. Rauna-
blærinn í augum hennar og rómi, sem þrátt fyr-
ir það að hún reyndi að leyna honum var auð-
heyrður, skar hann í hjartað. En hún hafði
hafnað tilboði hans um hjálp og þessvegna
gat hann ekkert gert.
iStúlkan sneri sér við og gekk inn f gisti-
húsið.
Hættan ógnar
Þegar hraðlestin rann út frá Paddington
stöðinni leit Cicilía Garrett á mannfjöldann á
stöðvarpallinum, síðan horfði hún á hina þrjá
farþega, sem með henni voru. Þeir sátu sinn í
hverju horni og sýndust all meinlausir, en
eftir það, sem komið hafði fyrir hana kveldið
áður, virtist alt geta komið fyrir. Einn far-
þeganna var búinn sem prestur og sat niður-
sokkinn í blaðalestur, hið sama gerði feiti
maðurinn á svarta frakkanum og röndóttu
buxunum, sem auðsæilega var kaupmaður.
Þriðji farþeginn var miðaldra kona, með litað
hár og sat hún við bréfaskriftir. Þau virtust
öll mjög meinlaus.
Cicilía varp öndinni ánægjulega og
gleymdi þeim öllum, því að hún hafði nóg að
hugsa um og nóg áhyggjuefni. Það var aðeins
mánuður síðan, að hún hafði lent á Énglandi,
en þangað hafði hún komið frá Ameríku. En
þetta hafði verið viðburðaríkasti mánuðurinn
á æfi hennar. Ógleymanleg atriði höfðu komið
fyrir hana á 'þessum tíma. Fyrst stóra og
gamla húsið, sem hún dvaldi í. Það stóð á
þeim eyðilegasta stað ,sem hún hafði nokkru
sinni séð og eins og nærri má geta, þá voru
það mikil viðbrigði, eftir að hafa alist upp í
New York.