Heimskringla


Heimskringla - 23.12.1936, Qupperneq 3

Heimskringla - 23.12.1936, Qupperneq 3
WINNIPEG, 23. DES. 1936 3. SÍÐA EGYPTINN. (Við kaupmann- inn.) Það gleður mig stórlega að þú ert kominn til húsa minna. Velkominn! Þreyttur eins og þú munt vera eftir ferðalagið, vona eg að þú hafir ekki á móti dálítilli hressing? KAUPM. Eg þakka þér kær- lega. Þessi maður er læknir, hann er einn af mínum beztu vinum. Eg kom hingað frá Sýría í mjög áríðandi erinda- gerðum. Okkur er það sérstak- lega mikil ánægja að hafa tæki- færi tií að heimsækja þig. EGYPTINN. (Klappar saman höndunum, kallar). Method! (Víkur sér aftur að gestunum.) — Gerið svo vel að fá ykkur sæti. (Pétur kemur inn, klædd- ur eins og þræll. Þegar hann sér læknirinn, hrekkur hann við og lítur undan.) PÉTUR. Hvað get eg gert fyr- ir þig, herra minn? EGYPTINN. Komdu með dá- lítið af brauði, víni og vínberj, um, handa þessum kærkomnu gestum mínum. Þessir herrar eru samlandar þínir. Þekkir þú þá ekki? PÉTUR. (Hengir niður höf- uðið). Nei. Eg þekki þá ekki. (Fer.) LÆKNIR. (Við húsherrann.) Hefir þú komið til Sýría? EGYPTINN. Já, fyrir hér um bil átta árum síðan. Það var þá, sem eg keypti þrælinn, sem þið sáuð rétt áðan. LÆKNIR. Það hefir þá ver- ið rétt um það leyti, sem hinn mikli atburður gerðist, er setti allan bæinn í uppnám og er enn hin hreinasta ráðgáta. EGYPTINN. Hvað kom fyr- ir? LÆKNIR. Það stóð í sam- bandi við einn af okkar ágæt- ustu mönnum í borginni, Pétur illa að nafni. Hann var eigandi ákaflega mikils landflæmis og garða. En hann hafði það orð' á sér að vera hinn mesti nirfill. En svo var það einn dag, að hann breyttist alt í einu svo undarlega og óvænt. Þannig að augu hans lukust upp fyrir kristilegum kærleika. Hann byrjaði undireins á því að gefa burtu eigur sínar. En þegar kona hans og börn settu sig upp á móti því að hann gæfi svona gegndarlaust til, fátækra er sagt að hann hafi ákveðið að selja sjálfan sig eins og þræl og gefa pepingana til fátækra í borginni. Eftir að þetta alt var um garð gengið, hvarf hann. Og guð má vita hvar hann er nú niðurkom. inn. KAUPM. Konan hans hefir sent út menn til að leita hans. En alt hefir það verið árangurs- laust. Enginn veit hvað orðið hefir af honum. EGYPTINN. Þetta er ,ein- kennileg saga. Hvað var tiann gamall? Hvernig leit hann út? (Rétt í þessu kemur Pétur inn með ávexti og vín.) LÆKNIR. Eg hygg (hann mundi vera inúna eitthvað í kringum fimtugt. Meðalmaður á hæð en frekar grannur og þunn- leitur. Mjög svipaður þessum þræl. (Pétur hylur andlit sitt í flýti og hraðar sér út.) Þetta er einkennilega fallegt andlit á þræl! EGYPTINN. Hann er gim- steinn en ekki þræll. Síðan eg tók hann inn í hús mitt, hafa eigur mínar |margfaldast. Og þó að eg hafi gefið honum fult frelsi, þá vill hann ekki nota sér það. Hann er einn af þeim beztu mönnum, sem eg hefi komist í kynni við, jafnvel þó hann kunni að vera þræll. (Kallar). Method! Method! (Pétur birt- ist í dyrunum og gengur nokkur skref áfram.) LÆKNIR. (Við kaupmann- inn.) Mér sýnist hann vera svo afar líkur Pétri illa. Hvað sýn- ]st þér? Eg hefi ekki á allri æfi minni séð svo náinn svip með mönnum. PÉTUR. (Hleypur til dyra.) Mute! Opnaðu hurðina fyrir mig! (Hurðin opnast og Pétur þýtur út.) Mute. (Kemur inn og seg- ir): Þessi maður er heilagur! Þegar hann nálgaðist ytri dyrn- ar, sá eg geisla-baug yfir höfði hans. Og í því hvarf hann!. EGYPTINN. Við erum hér vitni að miklu kraftaverki. — Mute hefir fengið málið! KAUPM. og LÆKNIR saman. Það er hann! Áreiðanlega er það hann! Pétur illi! Hann flúði til þess að komast hjá hrósi mannanna! Guði ^é lof og þökk! Tjaldið. ENDIR. Davíð Björnsson Jóla og Nýárskveðjur frá King’s Old Country Ltd. 47 HIGGINS AVE. SIMI 92 622 Heilnæmustu drykkirnir STONE GINGER BEER og GINGER ALE Have the Business POINT OF VIEW ? • Dominion Business Coilege students have the advantagí of individual guidance in the all-important factors of business personality, conduct, and approach. No matter liow thoroug’hly you know the details of office work, you mugt be able to sell your services, and this is now just as much a part of Dominion training as Shorthand, Typewriting, Bookkeeping, or any of the other courses in which Dominion leader- ship has been recognized for over twenty-five years. Business is betterl Employment is increasing! Prepare for it. DOMINION BUSINESS COLLEGE On The Mall and at Elmwood, St. James, St. John’s HEIMSKRINGLA ERINDI flutt á 25 ára afmæli Lestrarfé- lagsins “Gimli” á Gimli 14. ágúst 1936. Háttvirti forseti! Heiðruðu afmælisgestir! Það er upphaf þessa máls, að árið 1882 var mjög ólíkt um að litast á Gimli, því sem nú gerist. Þá voru engar stórskipa bryggjur; þá klufu vélabátar eða stærri skip ekki öldur vatns- ins í tugatali;/þá sáust ekki stór- kostlegir vöruskálar beggja meg- in hafnarinnar; þá bárust ekki hvarflandi ljósglampar hafnar- vitans lengst út á öldukvik vatnsins, til að benda hafnleit- andi skipum á frið og næði á ognstafaðri höfninni; þá gnæfðu kirkjuturnar ekki hátt í loft, yfir verzlunarhús kaupmanna og íveruhús borgarmanna; þá var ekki bygður hinn veglegi al- þýðuskóli, né hið virðuglega gamalmennahæli; þá var ekki hinn svipmikli verndarvættur Ný-íslands reistur; þá voru ekki steyptar stein-gangstéttir; þá þustu ekki bílarnir með örvar- skots hraða, eftir strætunum, huldir þykkum rykmekki; þá spýttust ekki kristalstærar vatnsbunur í háa loft og beint upp í þorsta þjáða munna;/ þá sigldu ekki loftskipin með mikl- um gný um “skýjasæinn” hátt - yfir höfðum manna; þá voru ekki til símar, grammófónar né radió; þá gengu ekki menn og konur í stæltum búningum suð- urhafseyjabúa, þeirra er efnis- minstar hafa mittisskýlurnar; þá lýstu ekki rafljós upp stræti bæjarins, og vörpuðu glóbjörtum geislum fyrir fætur sveina og meyja-, er voru á skemtigöngu út í danssalinn í skógarlundunum í skemtigarði bæjarins, ten þar dunaði alt og kvað við af létt- stígu fótataki ástþýðra sveina og brosmildra og berbakaðra yngismeyja, en upp yfir þenna ys og þys, sem einkum er kendur við stórborgirnar hljómuðu heill- andi töfratónar hljóðfæranna, er æstu ímyndunarafl danssveitar- innar, svo hún vaggaðist í ó- minnis ölæði, en úti fyrir í sí- grænum grenitrjánum þaut þýð- lega í hörpu Æólusar, og á mill- um trjánna skutust fagurskap- aðir og flugléttir Cupidar, og skutu örfum af beinskeytum bogum og særðu æskulýðinn, en sú tilfinning segir Sappo að lík- ist “mjúksárum loga”. f stað þess sem nú var sagt frá, var á Gimli nefnt ár 1882, eitt hús sem eg get með vissu greint, það var hús Friðjóns Friðrikssonar, en um sumarið seldi hann húsið Pétri Pálssyni, og var þar gistihús fyrir ferða- menn. Tvo aðra húsráðendur hefi eg einnig heyrt nefnda er bjuggu þá á Gimli og hétu báðir Ásmundar. Þá var Gimli bæjar- landi óskift í lóðir, eður ómælt, og gerðist ekki fyr en mörgum árum síðar eður 1898. Á þessu árabili hafði verið hinn mesti útflutningur af fólki úr nýlendunni, og segir sá óljúg- fróði maður Guðlaugar Magnús- son, að er honum lauk. 'hafi ver- ið eftir aðeins 8—10 búendur í Mikley og 5 í Árnesbygð, en 12 í Víðirnesbygð, en Gimli taldist til hennar. Canada-stjórn þótti því horfa til nýlenduauðnar, nema meira væri aðhafst, og hafði stöðugt úti “legáta” til eflingar innflutningsins og ný- komnum íslenzkum emigröntum beint til Nýja-fslands, svo sem ráða má af orðum Baldvins Baldvinssonar, er hann gerir grein fyrir hvernig hann hafi ráðstafað þeim, “að hávaðinn af gömlu íslands ómegðinni, sem send var vestur 1887, hafi farið til Nýja-íslands. f Víðirnesbygð hafi farið rúmar 30 fjölskyldur allslausar, og til Mikleyjar jafn- margar og fyrir voru” — og um gæði á þessari innfluttu vöru farast honum svo orð á sama stað: “Þeir sendu oss glæpa- menn, drykkjurúta, letingja og vitskerta menn, og allskonar lík- amlega og andlega vanskapn- inga, og þenna vinaskenk frá fósturjörðunni ætluðust sveita- nefndirnar hér (þ. e. íslandi) til, að vér tækjum upp á vora arma og sæum um.”* Eftir því sem fólkinu fjölgaði aftur, og þrátt fyrir alla fátækt- ina, fóru menn að finna til þess, að enginn bókmentalegur félags- skapur ætti sér stað, og upp úr því fæddust svo samtök fárra manna, til að mynda lestrarfé- lag; peningar voru engir fyrir hendi að kaupa bækur fyrir, og skutu menn því saman bókum í bókastofu félagsins. Ekki verður saga þessa fyrir- tækis, sögð eins greinilega og æskulegt hefði verið, því funda- bók þess er nú töpuð, og for- maður þess dáinn fyrir mörgum árum. Þau atriði sem hér verða dregin fram, eru lesin úr fjár- málabók féhirðis sem var Guðni Þorsteinsson póstmeistari hér á Gimli um fjölda ára, hefir hann góðfúslega lánað þessi gömlu skilríki til afnota, þeirra á meðal eru lög félagsins og bókaskrá þess, sýnilega með hendi Gísla M. Tómassonar, sem seinna varð útgefandi “Svöfu” og “Berg- málssnis” — Sögupunktar lestrarfélags þessa sem lesnir verða saman úr bók féhirðis eru þessir: Félagið er stofnað 22. jan. 1887. Lög þess samþykt á fé- lagafundi á Gimli 29. jan. sama mán. 1. gr. hljóðar svo: “Félagið heitir Auróra”. 2. gr. Tilgangur þess er sá, að viðhalda og glæða lestrarfýsn al- mennings yngri sem eldri, og skulu helzt valdar þær bækur fyrir félagið sem eru jafnframt fræðandi sem skemtandi, og við alþýðu hæfi, þó má félagið kaupa vísindabækur, ef þær eru líkleg- ar til að verða nokkrum af fé- lagsmönnum að notum. 3. gr. segir að bókasafn félags- ins skuli jafnan vera á Gimli. 7. gr. ákveður að þrír menn séu í stjórnarnefnd 'félagsins, forseti, skrifari og bókavörður, og kosnir til eins árs. 9. gr. tekur fram, að ekki megi þeir gjald taka fyrir starf sitt. Ársgjald félaga sé 1 dollar um árið. Aðrar lagagreinir félags- ins, sem eru 14 alls, eru svo um almennar reglur og þykir því ekki þörf að taka þær upp frek- ar. Embættismenn félagsins eru að því næst verður komist. Gísli M. Tómasson forseti, Guðni Þor- steinsson skrifari, sem þessar heimildir eru frá, og Magnús Guðlögsson bókavörður. Þeir sem gerast félagar fyrsta starfsár “Áróru” 1887 eru 14.** Af þessum 14 dala tekjum fyrsta árið, er 7 dölum varið til bókakaupa og fyrir bó|kband, hinir 7 dalir eru í sjóði til næsta árs. Þetta má nú teljast álitleg byrjun í jafn fámennum bæ og Gimli var þá, en þetta fyrsta starfsár félagsins reyndist því miður bezta ár þess. — Næsta ár 1888 ,er ársgjaldið fært ofan í 50 cent, og þó ganga úr félag- inu meira en helmingur, og sum- ir þeirra borguðu ekki, samt komu nýir menn og tóku hinna sæti, svo það ár verður félaga- tal 22, en óskilin halda áfram, * úr fyrirlestri höldnum og pr. í R.v. 1893. bls. 26. — Þessi dómur er tekinn ofurlítið til meðferðar í óprentuðum þætti af Baldvin Baldvinssyni. ** Þessir eru nefndir: Jónas Stefánsson, 2. Björn Runólfsson, 3. Magnús Halldórsson, 4. Jó- hannes Hannesson, 5. Jón Guð- mundsson, 6. Sigurður ólafsson, 7. Jónas Leó, 8. Jón Stefánsson, 9. Kristján Guðmundsson, 10. Benedikt Austmann, 11. Hjörtur Jóhannesson, og svo nefndar- mennirnir 3, alls 14. og skulcþr berast á félagið. Árið 1889 eru félagar 15. óinnheimt árstillag $4.25, og félagið komið í $14.05 skuld. — Árið 1890, eru félagar 15. óinnheimt ársgjöld 7 dalir 25 cent og félagið skuld- ar fyrir keyptar bækur og bók- band 12 dali 10 cent. Árið 1891 eru félagar 8. Ársgjöld þeirra og 1.85 f. f. ári, 5.85, eru látnir ganga í skuldina, þá eru eftir ó- borgaðir 6 dalir 25 cent sem skiftast svo: Þér sem notið— TIMBUR KAUPIÐ AF THE Empire Sash & Door CO., LTD. Birgðlr: Henry Ave. East Sími 95 551—95 552 Skrifstofa: Henry og Argyle VERÐ - GÆÐI - ANÆGJA Tomson tapar ..........$1.35 i Guðni ....................90 Bókm.félagið ....f.......4.00 en félagið í óinnheimtum gjöld- um 7 dölum 25 centum. Hefðu allir félagar staðið í skilum, var 1 dollar umfram skuldir. Með óessum hætti réðu vanskilin fé- laginu “Áróru” bana. Fátækt var að vísu mikil, en 50 cent á ári eru ekki tilfinnanleg útgjöld sé viljinn góður, og vitað var um suma þessa menn, að centaráð höfðu, ef þeir þurftu á öðrum óhollari vörum að halda. En hvað varð af bókasafninu ? Félagið hafði starfað frá 29. jan. 1887—30 okt. 1891 eða nær- felt 5 ár og eru á bókaskránni talin 135 bindi; af þeim voru 16 á dönsku. SELECT BEER Phone 96 361 SHEA’S WINNIPEG BREWERY LTD. Colony St., Winnipeg Ekki finnast beinlínis rök fyr- ir því hvar bókaskápurinn var óessi ár, en þegar hans getur næst, er hann hjá Magnúsi Guð- augssyni, og hafði svo verið mörg ár, af því er það með öðru dregið, að hann hafi verið bóka- vörður. Var Magnús hirðumað- ur mikill og vandaður. Þá er með þessum fáu orðum drepið á nokkur atriði úr sögu lestrarfélagsins “Áróru”. Nú verður að taka árin lang- stökkum. Frá árinu 1891—1911 — tuttugu ár. — Það er tímabil, sem í sögu Vestur-íslendinga mætti nefna “Skálmöld”. Kemur hún ekki við þessu ákveðna efni. Bókmentalegt ástand Ný-fs- lendinga árið 1911 rifjar upp í huga mínum setningar úr kvæði nokkru: Nár var þá Njáll og nár var Bergþóra, burtu var Kári, brunninn Grímur, höggvinn Helgi”, því nálega öll tímarit og blöð sem voru uppi á þessu tíma- bili Höfðu látið lífið; þannig lézt Dagsbrún 1896. Lýsing 1899, Bergmálið 1901, Aldamót 1903, Svafa 1904, Baldur 1909, Freyja 1910, Breiðablik 1911 og Heimir var að feta í feigra spor, dó 1913, en þrjú lifðu, Lögberg, Samein- ingin og Heimskringla, þau nutu einnig peningastyrks frá æðri máttarvöldum. — Þetta voru flokksblöð, og unnu mjög hart Frh. á 7. bls. m Stetilaktoetiíur ttl borra mörgu ötna Á ný — með jólin í námunda, f nemum vér staðar í ys og önn jólaviðskiftanna á s í ð u s t u stundu, til þess að árna hinum mörgu, íslenzku vinum vorum í Vestur-Canada . . . verulegra gleðilegra jóla og aukinnar far- sældar á nýja árinu. i'nhsiuts 15«ti (Lompimu. INCORPORATED 2*? MAY r670.

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.