Heimskringla - 19.01.1938, Síða 8
8. SÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 19. JANÚAR 1938
FJÆR OG NÆR
Sækið messur
Sambandssafnaðar
í Winnipeg á hverjum sunnu-
degi, annaðhvort ensku guðs-
þjónustuna, kl. 11 f. h. eða ís-
lenzku guðsþjónustuna kl. 7 e. h.
eða báðar. Sunnudagaskólinn
kemur saman kl. 12.15. Fjöl-
mennið við guðsþjónusturnar og
sendið börnin ykkar á sunnu-
dagaskólann.
* * *
Vatnabygðir
Sd. 23. jan. kl. 11. f. h. sunnu-
dagaskóli. Kl. 2 e. h. Messa í
Wynyard.
* * *
Messað verður í Sambands-
kirkjunni í Riverton sunnudag-
inn 23. jan. n. k. kl. 2 e. h.
* * *
Magnús Ólafsson bóndi við
Lundar, Man., andaðist 10. jan.
s. 1. sjötíu og átta ára gamall.
Hann var ættaður úr Árnessýslu
á íslandi, hafði búið 34 ár norður
í Lundar-bygð. Hann lætur eft-
ir sig 3 börn uppkomin. Æfi-
minning verður birt síðar.
THEATRE
THIS THUR.—FRI—SAT.
The Greatest Sea Picture
of all time
WALUACE WARNER
BEERY BAXTER
in
“SLAVE SHIP”
Also
“TURN OFF the MOON”
with CHARLIE RUGGI.ES
Cartoon
Ársfundarboð Leikfélagsins
Hér með boðast til ársfundar
Leikfélags Sambandssafnaðar
næstkomandi sunnudag 23. þ. m.
að aflokinni guðsþjónustu í
kirkjunni. Áríðandi að allir fé-
lagsmenn mæti, því mikilsverð
mál liggja fyrir fundi.
Stjórnamefndin.
* * *
Almanak Ólafs S. Thorgeirs-
sonar fyrir 1938 kemur út fyrir
þessi vikulok. Almanakið er með
stærra móti, hið girnilegasta
til fróðleiks, sem fyr, um sögu
íslenzkra bygða. Dr. Rögnvald-
ur Pétursson ritar ítarlega og
ágæta grein um ólaf heitinn
Thorgeirsson. — útgefendumir
Thorgeirsson Company, eru nú
reiðubúnir að taka við pöntun-
um og afgreiða þær um hæl.
* * *
Guðm. Sigurðsson frá Ashern,
Man., kom til bæjarins s.l. mánu-
dag. Hann kvað menn í önnum
við að flytja hey til markaðar og
selja.
* * *
Á mánudagskveldið var 17. þ.
m. lögðu þau hjónin Mr. Peter
Anderson, kornkaupmaður hér í
bæ, og kona hans Vilborg og
dætur þeirra tvær Guðlaug og
Helen, í skemtiferð suður til
Florida. Gera þau ráð fyrir að
dvelja þar fram á vor. Setjast
þau að í bænum Miami, þar sem
Mr. Anderson hefir áður dvalið,
á sínum fyrri vetrarferðum
þangað.
* * *
Hallsteinn Skaptason og Char-
les kaupm. Clemenz frá Ash-
ern, Man., voru staddir í bænum
í gær.
VERIÐ VELKOMIN
Á LAUGARDAGS-SPILAKVÖLDIN
■ SAMBANDSKIRKJUSALNUM
Næsta spilaskemtunin verður laugardagskveldið 22.
jan. Byrjar á slaginu kl. 8.15.
Takið eftir: Spilaðar verða 16 hendur. Þeir sem
of seint koma, tapa þeim höndum, sem búið er að spila;
fá engan uppbótarvinning. Frá þessari reglu verður
ekki vikið.
Verðlaun verða veitt á hverju kvöldi ofurlítil (door
prize) og svo eftir að spilum er lokið.
Að bridge-spiluninni lokinni, verður k^ffidrykkja
og ýmsar skemtanir.
Munið eftir hve vel þér skemtuð yður s. 1. haust á
þessum spilakvöldum!
Inngangseyrir 25c Byrjar á slaginu 8.15 e.h.!
Umsjón þessara skemtana hefir
deild yngri kvenna í Sambandssöfnuði
NÍTJÁNDA ÁRSÞING
Þjóðræknisf élagsins
verður haldið í
Goodtemplarahúsinu við Sargent Ave., Winnipeg
22, 23, og 24., febrúar 1938
DAGSKRÁ:—
1. Þingsetning. 8. Útbreiðslumál.
2. Skýrsla foreta. 9. Fjármál.
3. Kosning kjörbréfa- 10. Fræðslumál.
nefndar. 11. Samvinnumál.
4. Kosning dagskrár- 12. Útgáfumál.
nefndar. 13. Bókasafn.
5. Skýrslur embættis- 14. Kosning embættis-
manna. manna.
6. Skýrlsur deilda. 15. ólokin störf.
7. Skýrslur milliþinga- 16. Ný mál.
nefndar. 17. Þingslit.
Samkvæmt 21. gr. laga félagsins er deildum þess
heimilað að senda einn fulltrúa til þings fyrir hverja
tuttugu eða færri gilda félaga deildarinnar; gefi þeir full-
trúa skriflegt umboð til þess að fara með atkvæði sitt á
þingi og sé umboðið staðfest af forseta og ritara deildar-
innar.
Þing sett þriðjud. morgun 22. febrúar kl. 9.30. Þing-
fundir til kvelds.
Miðvikudagsmorgun þ. 23. kl. 9.30 kemur þing saman
að nýju. Þingfundir til kvelds. Það kveld kl. 8. heldur
deildin Frón sitt árlega fslendingamót. Fimtudagsmorg-
un hefjast þingfundir aftur og standa til kvelds.
Frekari greinargerð fyrir hinum ýmsu samkomum
þingsins verður gerð síðar.
Winnipeg, 19. janúar 1938.
í umboði stjórnarnefndar Þjóðræknisfélagsins.
Rögnv. Pétursson (forseti)
Gísli Johnson (ritari)
Ungfrú Margrét Björnsson,
Winnipeg, lagði af stað s. 1.
mánudag austur til Hartford,
Conn., og gerði ráð fyrir að
dvelja þar um hríð hjá móður-
systir sinni. Á leiðinni dvelur
hún fáeina daga í Toronto.
* * *
Laugardagsskemtanir
Byrjað verður aftur á laugar-
dagskveldið kemur, 22. þ. m. kl.
8.15 á spilaskemtunum þeim er
hinar yngri konur og stúlkur
Sambandssafnaðar hafa veitt
forstöðu. Dálítil breyting verð-
ur með tilhögun og útbýtingu á
verðlaunum sem gefin eru. Verð-
ur hverjum sem kemur afhentur
seðill við dyrnar með númeri á.
Verða seðlar þessir svo allir látn-
ir í kassa og einn dreginn. Er
svo þeim veitt verðlaun $1.00, er
númerið á sem upp kemur í það
skiftið. Koma verðlaun þessi í
stað aðal verðlaunanna er áður
voru veitt við samkomulok að
vorinu. Eins og áður, eru verð-
Iaun hin sömu veitt þeim er hlot-
ið hefir hæstan vinning við hver
samkomulok.
Komið og njótið góðrar kveld-
skemtunar.
Forstöðunefndin.
* * *
The annual general meeting
of the Young Icelanders will be
held in the Jón Bjarnason Aca-
demy Monday February 21, com-
mencing at 8. p.m. All members
are requested to be present.
* * *
ólafur Jónasson, Lundar,
Man., er bjó fyrrum að Otto, dó
s. I. fimtudag. Hann lætur eftir
sig konu og 4 börn, fullorðin. —
Hann var ættaður úr Dalasýslu.
* * *
Séra Guðm. Árnason frá Lund-
ar, Man., er staddur í bænum í
dag.
* * *
Magnús Gíslason úr Framnes-
bygð í Nýja-fslandi kom til bæj
arins s. 1. föstudag og dvaldi hér
fram á mánudag. Hann var að
leita sér lækninga.
* * *
Páll Th. Stefánsson frá Ár-
borg, Man., var staddur í bæn-
um yfir helgina.
* *» *
Fyrir útvarp frá Sambands-
kirkjunni í Winnipeg hafa borist
gj afir frá þessum og sem hér-
með er innilega þakkað:
Albert Breckman, Grass River,
Man., $1.00
Kvenfélaginu á Langruth $5.00
Guðmundi Hjartarsyni, Steep
Rock, Man., $1.00
Til Hkr. ,
Lundar, Man., 10. jan. 1938
Les með áhuga og ánægju all-
ar friðar og sátta tilraunir
hvort heldur í alþjóða eða inn-
byrðismálum, en hið gagnstæða
þegar deilur draga hugsanimar
í ógöngur og á villu vegi.
Þökk fyrir vel unnið starf á
liðnum árum og gott og farsælt
nýbyrjað ár.
A. M.
* * *
Síðastliðinn sunnudag andað-
ist Mrs. E. G. Ingram að heimili
tengdasonar síns Thorkels
Brandsonar, 601 Agnes St. Hún
var rúmlega sjötug.
* # *
Látin á sjúkrahúsi barna í
Winnipeg þ. 13. janúar, Jórunn
Irene, þriggja mánaða gömul
dóttir Mr. og Mrs. Sveinn Mag-
nússon á Eyjólfsstöðum við
Hnausa, Man. Útför hennar fór
fram frá heimilinu á Eyjólfs-
stöðum, þann 15. jan. að við-
stöddu mörgu skyldfólki, vinum
og nágrönnum.
S. ó.
* * *
Fimtud. 27. jan. verður skemti
samkoma í norsku lútersku
kirkjunni á horninu á Victor St.
og Wellington Ave., kl. 8 e. h.
Þar sýnir séra Guðm. P. John-
son 47 íslands-myndir ásamt
fræðandi skýringum, einnig 61
mynd af Noregi, o. fl. skemti-
myndir. — Inngangur ókeypis,
samskota leitað. Allir velkomnir.
Tryggvi Ingjaldsson frá Ár-
borg, Man., kom til bæjarins á
föstudaginn í vikunni sem leið.
Hann var að leita sér lækninga.
* * *
Vill Hkr. vera svo góð að geta
þess, að Mrs. Th. M. Bjarnason
fyrrum að Wynyard, Sask., and-
aðist í Regina 27. okt. 1937. Mrs.
Bjarnason var fædd í La Riviere
í Manitoba árið 1897. Til Wyn-
yndar flutti hún 1916 og átti þar
heimili unz hún flutti til Regina
árið 1932. Hana lifa eiginmaður
og 5 börn á aldrinum frá 6 til
18 ára. Ennfremur faðir henn-
ar, Ámi Einarsson, Lundar,
Man., tveir bræður, Albert og
Geiri og tvær systur, Mrs. H. R.
Bedford, Killarney, Man., og
Mrs. E. R. Finns, Regina.
(Aðsent)
* * *
Silver Tea
og sala á heimatilbúnum mat
verður haldin í salnum á 7. gólfi
í T. Eaton búðinni mánud. 24.
jan. frá 2.30—5.30 undir um-
sjón stórstúku Man. og stúkn-
anna Heklu, Skuld og Brittania,
til arðs fyrir útbreiðslusjóð stór-
stúkunnar. Hinn vel þekti gest-
ur frá íslandi fröken Halldóra
Bjarnadóttir verður þar í þjóð-
búningnum og flytur kveðju frá
íslandi. Einnig verður Mrs. A.
Blöndal í íslenzkum búningi.
Að taka á móti gestum verða
Mrs. A. S. Bardal, Mrs. B. J.
Brandson, Mrs. W. A. Cooper.
Fyrir “Home Cooking” er Mrs.
G. Jóhannson og Mrs. S. Odd-
leifsson.
Umsjón með kaffiborðunum
hafa Mrs. J. B. Skaptason, Mrs.
J. T. Bek, Mrs. J. Magnússon og
Mrs. Jónatansson, Miss S. Eydal,
Mrs. S. Paulson, Mrs. W. J. Bat-
tley, Mrs. E. Carr,
Að skenkja verða: Mrs. R.
Marteinsson, Mrs. G. Breckman*
Mr.s B. B. Jónsson, Mrs. P. M.
Pétursson, Mrs. A. Blöndal, Mrs.
Á. P. Jóhannsson, Mrs. S. Gísla-
son, Mrs. H. Geddes, Mrs. Paul
Bardal Mrs. O. Stephenson, Mrs.
J. A. Comba, Miss M. Lambert.
ALMANAK
ÓLAFS S. THORGEIRSSONAR
fyrir árið 1938
er komið út og verður til sölu
22. JANÚAR
á prentsmiðjunni
Thorgeirsson Company
Útgefendur
674 Sargent Ave., Winnipeg
ÖOOOOOOOOOOOOCCCOOOOOOBOÖ©
Ársfundur Heimilisiðnaðarfé-
lagsins verður haldin miðviku-
dagskvöldið 12. jan. á heimili
Mrs. J. T. Markússon, 989 Dom-
inion St. Tekið á móti nýjum
meðlimum.
* * *
TIL ISLENDINGA
um allar sveitir og bæi -
Rétt nýlega voru mér send til
sölu nokkur eintök af Söngbók
stúdenta í Reykjavík (prentuð
1934). Þetta er skemtileg bók
fyrir þá sem hafa yndi af söng.
Verð í sterku bandi — $1.00
Ennfremur “Heimir”, söng-
málarit karlakqra á íslapdi, kem-
ur út 4. hefti á ári. Þrír ár-
gangar komnir út. Verð ár-
gangsins er $1.25, nema fyrsti
árg. er var aðeins tvö hefti. —
Hann kostar 65 cent. “Heimir”
flytur nóterað lag í hverju hefti
og færir mikinn fróðleik úr heimi
söngsins.
Nú næstu daga sendi eg frá
mér reikninga til allra þeirra er
skulda mér fyrir tímarit og bæk-
ur, og vona eg að hlutaðeigendur
snúist drengilega við að borga
þær kröfur.
MAGNUSPETERSON
313 Horace St., Norwood, Man.
* * *
Heimilisfang séra G. P. John-
son verður framvegis að 533 Ag-
nes St., sími 24 483.
MESSUR og FUNDIR
( kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegi
Kl. 11 f. h. á ensku
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Safnaðarnefndin: Funtilr 1. föstu-
deg hvers mánaðar.
Hjálparnefndin: — Fundlr fyrata
mánudagskveld l hverjum
mánuðl.
Kvenfélagið: Fundlr annan þriðju-
dag hvers mánaðar, kl. 8 að
kveldinu.
Söngæfingar: Islenzki söng--
flokkurinn á hverju fimtu-
dagskvöldi.
Enski söngflokkurinn &
hverju föstudagskvöldi.
Sunnudagaskólinn: — A hverjum
sunnudegi, kl. 12.15 e. h.
Pianokensla
R. H. RAGNAR
Kenslustofa:
518 Dominion St.
Phone 36 312
Dr. A. B. Ingimundson verður
staddur í Riverton þriðjudaginn
25. þ. m. í lækningaerindum.
* * *
fslenzk messa í Vancouver
fslenzk messa verður haldin í
dönsku kirkjunni á horninu á
19th Ave. og Burns St. sunnu-
daginn 23. jan. Allir fslendingar
í nágrenninu eru beðnir að út-
breiða þessi messuboð.
K. K. ólafsson
* * *
Kensla hefir verið byrjuð af
Y.W.C.A. fyrir atvinnulausar
stúlkur, sem um tilsögn kæra sig
í svo sem saumi eða sérstökum
hússtörfum. Kennarar eru Miss
Elva Humphries og Miss Mary
Clements—sem báðar eru út-
skrifaðar af hússtjórnarskóla.
Féð til þessarar kenslu er veitt
af Sambandsstjórninni.
Þeir sem færa vildu sér þetta í
nyt, eru beðnir að skrásetja sig
þessa viku. The Young Wo-
men’s Christian Association, 447
Ellice Ave., Winnipeg.
* * *
Guðsþjónustur og samkomur
með myndum
Sunnud. 23. jan. prédikar séra
Guðm. P. Johnson að Langruth
kl. 2 e. h. og kl. 7 e. h. Ensk
guðsþjónusta með skýringu á 90
ljómandi fræðandi, ritningarleg-
um skuggamyndum, sem fjalla
aðallega um kenningu Jesú
Krists ásamt ýmsum kraftaverk-
um er Drottinn gerði. Einnig
verða sýndar nokkrar fræðandi
myndir bæði af fslandi og Nor-
egi eitthvert vikukvöldið, og
verður það nánara auglýst á
staðnum.
* * *
Bækurnar eru til fróðleiks og
skemtunar. Góðar bækur eru
dýrmæt eign. Látið þær einn-
ig vera til prýðis í bókaskápnum
yðar, með því að senda þær í
band til Davíðs Björnssonar á
“Heimskringlu”. Verkið vel af
hendi leyst.
Ráðuneytið á Tyrklandi skaut
á aukafundi s. I. viku og sam-
þykti þar að biðja þingið að
veita aukin útgjöld til herútbún
aðar, svo að nema $35,000,000.
Legðu aldrei mikið erfiði á þig
til þess að elta strætisvagn æða
stúlku. Hvorttveggja kemur von
bráðar aftur.
— Ef þú sérð mann á götunni
í tölulausri skyrtu og götóttum
sokkum, þá eru, til aðeins tvö
ráð, sem þú getur gefið honum.
— Og hver eru þau?
—Að hann skuli annaðhvort
gifta sig eða skilja við konuna
sína.—Dvöl.
Mál spekinnar
Þýzka orðið “Frau”, sem þýð-
ir eiginkona, er myndað úr orð-
unum “froh” og “weh”, sem
þýða gleði og angur.—Alþbl.
Tólf þúsund fangar í Sovét-
Rússlandi hafa verið látnir laus-
ir vegna starfs þess, sem þeir
hafa unnið í þágu ráðstjórnar-
ríkjanna við að leggja tvöfalda
járnbrautarlínu á Síberíujárn-
brautinni norðan við Manchu-
kuo.
LJóÐMÆLI
St. G. Stephanssonar
Á þessum vetri koma út síð-
ustu kvæði hans er fylla bindi á
stærð við þau sem út eru komin.
Tækifærið er því nú, að eignast
4 og 5 bindið fyrir þá sem eiga
hin fyrstu þrjú og vera við því
búin að fylla kvæðasafnið, er
þetta síðasta kemur á markað-
inn.
Andvökur IV. og V. eru nú
seld með affalls verði á $4.25
bæði bindin.
Sendið pantanir til
Viking Press og
íslenzkra bóksala hér í bæ
Kaupið Heimskringlu
Borgið Heimskringlu
Wonderland
THEATRE
Fri. Sat. & Mon. Jan. 21, 22, 24
“WEE WILLIE WINKLE” .
SHTRLEY TEMPLE
VICTOR McLAGLEN
“FAIR WARNING”
Betty Furncss—John Payne
Cartoon
“Wild West Days”—Chap. 4
(Fri. night & Sat. Mat. only)
Mon.—Country Store Night,
20 Prizes
Tue. Wed. & Thu. Jan. 25, 26, 27
“TOPPER”
Constance Bennett—Cary Grant
“HER HUSBAND LIES”
Ricardo Cortez—Gail Patrick
Paramount News
Thursday—Country Store Night
20 Prizes
Notið
ARÐMIÐANA
SPARIÐ YÐUR FJÉ
Símið 37 261
PERTHS
Cleaners—Dyers—Furriers
DANCE
Under Auspices of
“The Young Icelanders”
PICARDY’S SALON
Monday Jan. 31st
s Admission 35c
Commencing 9.00 p.m.