Heimskringla - 16.02.1938, Blaðsíða 3

Heimskringla - 16.02.1938, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 16. FEBR. 1938 HEIiVlSKRINGLA 3. SÍÐA mestur allra flokka í stjórnmál- um Þýzkalands á dögum lýðveld- isins. Hann var leystur upp af Hitler, eins og allir aðrir stjórn- málaflokkar, fáum mánuðum eft- ir að hann komst til valda. f samningi milli Vatíkansins og þýzka ríkisins gaf páfinn eftir, að ríkið hefði rétt til að leysa upp allan kaþólskan félagsskap, sem hefði pólitíska stefnuskrá, eða jafnvel aðeins pólitískan blæ. Kaþólskum prestum var bannað að tala um stjórnmál eða taka þátt í þeim. Aftur á móti skuld- batt stjórnin sig til að virða rétt kirkjunnar, einkanlega í uppeld- ismálum. Þrátt fyrir þennan samning, hafa Nazistarnir stöðugt aukið afskifti sín af kirkjuskólunum og mentun kaþólsks æskulýðs. í júlí 1935 var öllum kaþólskum æskulýðsfélögum bannað að taka þátt í íþróttum eða almennum félagsmálum og fræðslustörfum. Ennfremur var öllum bannað, að vera bæði í feskulýðsfélögum Hitlers og 1 kaþólskum ung- mennafélögum. Á þennan hátt hafa Nazistar rænt kaþólsku ungmennafélögin flestu því, sem gerir þau aðgengileg fyrir ungl- ingana^ og með því tælt þá inn í sín félög. Margir kaþólskir menn hafa verið ofsóttir af Nazistum, þrátt fyrir samninginn. Allmargir, nafnkendir, kaþólskir menn voru meðal þeirra, sem drepnir voru í flokkshreinsuninni 30. júní. — Kaþólsk blöð hafa verið undir strangri ritskoðun og útkoma þeirra hefir verið bonnuð. Með lögsóknum á hendur nunnum, munkum og prestum fyrir að hafa brotið Nazista lög, hefir stjórnin reynt að sanna þýzku þjóðinni, að kaþólskir le'ðtogar séu óvinir ríkisins. Kaþólskir prestar hafa fundið sig knúða til að andmæla opin- berlega árásum Nazista á biblí- una og ýmsu því helsta í trúar- skoðunum þeirra, þar á meðal lögunum um aðgerðir á mönnum til að gera þá ófrjóa (stenhza- tion). út af þessu hefir slegið í harða baráttu milli Nazista em- bættismanna og Vatíkansins. — Nazistar segja, að kaþólsku prestarnir noti vald það sem staða þeirra veiti þe;m, í pólitísk- um tilgangi, þar sem þeir setii sig upp á móti ráðstöfunum stjórnarinnar. Kirkjan mótmæl- ir aftur vaxandr afskiftum af trúarbragðalegri starfsemi prest anna, af kaþólskum leikmanna- félögum og frelsi kaþólskra blaða. Páfinn talar. Á pálmasunnudag 1937 sendi páfinn umburðarbréf til ka- þólskra biskupa á Þýzkalandi. í því harmar hann hina vaxandi' baráttu milli ríkis og kirkju á Þýzkalandi, en gefur um leið þá viðvörun, að kirkjan ætli að berj- ast fyrir rétti sínum og kenning- um. Hann dró sérstaklega at- hygli að hinu hörmulega ástandi þar eins og það lýsti sér í “opin- berum árásum á kirkjuskólana, sem þó voru verndaðir með samningi, og með því að komið sé í veg fyrir, að þeir sem hafi rétt til að fá kaþólska mentun, geti fengið hana.” Hann lét enn- fremur sorg sína í ljós út af því ástandi yfirleitt, sem gerði ka- þólskum mönnum erfitt að halda hollustu sinni við kirkjuna. “Með opinberri og leynilegri þvingun, með hótunum, með lof- orðum um hagsmunaleg em- bættisleg og önnur hlunnindi er hollustu kaþólskra manna við trú sína, einkanlega þeirra, sem eru í þjónustu stjórnarinnar, lát- in mæta árásum, sem eru ólög- legar og ómannúðlegar.” Síðan ræðst hann á tilraunina að setja trú þjóðernisins í stað- inn fyrir kristna trú, og neitar ákveðið kenningu Nazistanna um það að hvað sem er gott fyrir þjóðina sé rétt. “Þau mannleg lög, sem eru al- gerlega andstæð náttúrlegum réttindum, eru svo gölluð frá byrjun að þau verða ekki gerð rétt með hótunum eða nokkru ytra valdi. Á þennan mælikvarða' á að mælast reglan: “Það er rétt, sem er þjóðinni gagnlegt.” ” Hitler svarar Þrettánda apríl sendi þýzka stjórnin mótmæli til Vatíkans- ins gegn umburðarbréfi páfans. Svarið lætur í ljós undrun yfir því, að páfinn skuli taka sér fyrir hendur að finna að innan- lands ástandi á Þýzkalandi og tekur fram, að ríkið geti ekki þolað neina afskiftasemi um inn- anlands málefni. Jafnvel ennþá ákveðnara svar bæði til kaþólskra og lútherskra j manna var gefið af Hitler í ræðu, j sem hann hélt til þýzks verka- lýðs Maídaginn í vor. í ræðu þessari lýsti hann aðstöðu sinni til trúarbragðalegra stofnana á þessa .leið: “Eg mun ekki láta það við gangast, að valdi hinnar þýzku þjóðar sé boðið byrginn úr nokkurri átt. Það á fyrst og fremst við kirkjurnar. Meðan þær binda starfsemi sína ein- göngu við trúarbragðaleg mál- efni, mun ríkið láta þær í friði. En ef þær revna að sölsa undir sig með yfirlýsingum og um- burðarbréfum eða í verki, vald, sem tilheyrir ríkinu, þá munum vér reka þær aftur að þeirra eigin verksviði andlegra og þjón- ustusamlegra starfa.” “Og ekki munum vér heldur láta viðgangast aðfinnslur við siðgæði ríkisins, þar sem nægar ástæður virðast vera fyrir menn að hugsa um sitt eigið siðgæði. Vér tökum á oss alla ábyrgð fyr- ir siðgæði ríkisins og þess fólks.” Hann hélt svo áfram í enn ákveðnari tón, að setja fram kröfu Nazistanna um alger yfir- ráð yfir mentun unglinganna, sem vitanlega er undirrót deil- unnar: “Fyrst og fremst byrjuðum vér með æsku þjóðarinnar. Það eru enn á meðal vor gamlir í- haldsseggir, sem eru ekki orðnir að nokkru liði. Eftir lund sinni, eru þeir ýmist til hægri eða vmstri, og ganga hver fram hjá öðrum eins og hundar og kettir. En þetta raskar ekki ró vorri hið minsta. Vér munum taka börn þeirra og ala þ.au upp og menta svo að þau verði nýir Þjóðverjar. Vér munum ekki leyfa þeim að hverfa aftur til hms fyrri hugsunarháttar, held- ur venja þau til fulls. Vér tökum þau þegar þau eru tíu ára gömul og ölum þau upp sameiginlega þangað til þau eru 18 ára. Þau skulu ekki sleppa; þau ganga i flokkinn og svo í herdeildir hans eða í verksmiðjurnar og skrif- stofurnar. Svo koma tvö ár af herþjónustu. Hver vogar ser að segja, að þetta uppeldi mum ekkr framleiða þjóð?” Yfirráðin yfir samvizkunni. Markmið Hitlers stjórnarinn- ar er: ein þjóð, eitt ríki, ein trú, grundvölluð á kenningunni um' blóð, ætt, jörð og upphafn- ingu ríkisins sem stofnunar, er Guð sjálfur hefir birst í. Við að reyna að koma þessari stefnu- skrá í framkvæmd hafa Nazist- arnir lent í harða baráttu bæði við prótestanta og kaþólska. Það er barátta um yfirráð yfir sam- vizku og viljaþreki þjóðverjans. ’Leiðtogar kirkjunnar, eins og leiðtogar hins fallna lýðveldis, hafa verið seinir að gera sér grein fyrir hættunum, sem eru samfara hugsunarstefnu Nazist- anna. Nú eru þeir umluktir af hindrandi stjórnarráðstöfunum og umsetnir af Nazista liði, svo að þeir eiga mjög erfitt með að veita nokkra verulega mót- spyrnu. Þeir geta jafnvel ekki gert fólki sínu ljóst, hvað á milli ber. Og á meðan er ný kynslóð að vaxa upp, sem að líkindum fær aldrei að vita sannleikann um kristindóminn. G. Á. þýddi MRS. JóHANNA JóHANNSON Minningarorð. Ljúfar endurminningar skapa unað. Ákjósanlegt er að lifa þannig, að maður skilji eftir sem mest af ljúfum endurminnmg- um. Margir ná þessu takmarki hjá fáeinum mönnum, nánustu ástvinum, eða þá einhverjum ör- fáum vinum. Sumir aftur ná víðtækari sveiflum ekki vegna þess að þeir séu að auglýsa sig, ekki fremur en stjarnan sem tindrar á næturhimni. Hún þarf ekki að sýnast, því hún er ljós. þannig er því farið með suma jarðneska vegfarendur. Þeir skilja eftir Ijúfar endurminning- ar, ekki einungis hjá nánustu skyldmennum heldur einnig hjá mörgum öðrum samferðamönn- um með því að vera ljósið sem Guð tendrar. Ein slík kona, Mrs. Jóhanna Jóhannson andaðist í Selkirk- bæ, 30. júlí síðastliðinn. Hún var ættuð úr Þingeyjar- sýslu á íslandi. Nokkra liði úr sfett hennar skal hér tilgreina. Semingur Jónsson bjó að Húsavík á Tjörnesi í áður- nefndri sýslu en var ættaður af Vesturlandi. Börn hans voru þessi: Jón Semingsson, Marsibil, móðir Bólu-Hjálmars og Guð- björg móðir Ólafs er kallaður var stúdent. Jón Semingsson bjó að Ytri- tungu á Tjörnesi, en kona hans var Guðrún Sigurðardóttir, bónda að Fjöllum í Kelduhverfi. Móðir Guðrúnar, konu Sigurðar að Fjöllum var Guðrún Ketils- dóttir prests í Húsavík en móðir hennar var Guðrún Magnúsdótt- ir prests í Húsavík og systir Skúla landfógeta. Þau hjónin, Jón Semingsson og Guðrún Sigurðardóttir áttu þessar dætur: Guðrúnu, Ásu og þóru. Guðrún átti Einar nokk- urn, en hann dó úr mislingunum miklu árið 1846. Börn þeirra voru: Jón Einarsson, bóndi í Breiðuvík á Tjörnesi; Einar og Þóra. Þóra átti Jóhannes Ein- arsson bónda og smið á Meiða- völlum í Kelduhverfi og víðar þar í sveit. Jóhannes var fædd- ur í Hólsseli á Hólsfjöllum. Þar bjó Einar Jóhannesson faðir hans, bróðir Þorvaldar Jóhannes- sonar, langafa próf. Richard Beck. Jóhannes og Þóra voru for- éldrar Jóhönnu, hinnar látnu merkiskonu, sem nú er minst. Hún var fædd að Sultum í Keldu- hverfi 12. júlí 1862, og ólst upp með foreldrum sínum. Þau fluttu síðar að Meiðavöllum, sem er mjög nálægt hinu fræga Ásbirgi. En seinna fluttu þau að Hrapps- stöðum í Vopnafirði í Norður- Múlasýslu. Þar bjuggu þau lengi góðu búi. Þar í sveit giftist Jó- hanna Runólfi Magnússyni, 12. maí 1886. Var hann bróðir Páls Magnússonar sem um mörg ár hefir verið kaupmaður í Selkirk- bæ í Manitoba. önnur systkini þeirra nú á lífi, eru: Mrs. Stef- anía Benson í Selkirk og Sveinn Magnus í Minneapolis, í Minne- sota-ríki. Þau Runólfur og Jóhanna bjuggu að Felli í Vopnafirði og fluttu þaðan af fslandi árið 1893 og settust að í Selkirk. Þangað fluttu einnig foreldrar Jóhönnu og dóu þar fyrir nokkrum árum. Runólfur og Jóhanna eignuðust 6 börn, 4 þeirra fædd á íslandi. — Aðeins eitt þeirra er nú á lífi: Mrs. Bergþóra Graham, til heim- ilis í Selkirk. Eftir fjögra ára dvöl í þessu landi misti Jóhanna mann sinn. Sorgin sótti hana oft heim. Yngsta son sinn misti' hún árið 1928, af átakanlegu slysi, og gekk það ef til vill næst henni af öllu því erfiði sem á dagana dreif en hún var frá- bærlega stilt og fátöluð um harma sína. Árið 1905 giftist Jóhanna Gunnlaugi Frímanni Jóhanns- syni. Hann er ættaður úr Svarf- aðardal á fslandi, hafði áður verið kvæntur Elínu Jónsdóttur úr Eyjafirði, en verið ekkju- maður nokkur ár. Þrjú börn þeirra eru á lífi: Mrs. Anna Skaptason í Ashern, Man., Mrs. Snjólaug Goodman í Winnipeg og Jóhann Tryggvi Jóhannson í Edmonton í Alberta-fylki. Sam- fárir þeirra Gunnlaugs og Jó- hönnu voru hinar ákjósanleg- ustu; snemma í hjúskap þeirra reistu þau sér heimili, rétt við íslenzku lútersku kirkjuna í Sel- kirk. Var það mjög myndarlegt hús og þar áttu þau heima það sem eftir var æfi hennar. Höfðu þau, meðal annars, unun af því að vera svo nálægt kirkjunni sem þau bæði elskuðu. Sambúð þeirra varð 32 ár. Þegar þau áttu silf- urbrúðkaup var þeim haldið veg- legt samsæti. Fimm systkini Jóhönnu eru á lífi: Jón, er nefnir sig Hrapp- sted í Swan River héraðinu; Magnús Jóhannesson að Vogar, Man., og svo þrjú í Selkirk: Aðalbjörg Halldóra, Jóna og Ein- ar (öll Jóhannesson). Hin síðari ár var Jóhanna all- mikið biluð á heilsu. Samt mun hún hafa að mestu sint störfum sínum. Hún hafði sína venju- legu heilsu þegar maður hennar síðastliðið vor lagði á stað norð- ur á Winnipeg-vatn þar sem hann hefir stundað frskiveiðar í mörg ár. Dauðinn hafði svo lítinn fyrirvara, að maðurinn hennar ga.t ekki náð til hennar áður en hún andaðist. Grunntónninn í lífi Jóhönnu var kristindómurinn. Hjá henni var hann sannur og lifandi. Af því flýtur eðlilega gott líferni, ást og umhyggja fyrir þeim nán- ustu kærleiksrík breytni i hvers- dagslífinu, ráðvendni í hugsun, orði og verki, lifandi þátttaka í guðsþjónustum og starfi kirkj- unnar, og einlæg trúmenska við æðstu hugsjónir lífsins. Alt þetta hafði hún til að bera. Meirihluti manna á hræðilega mikið af ó- samræmi. Skoðanir eru stund- um í áberandi mótsögn við breytnina og skoðanirnar stund- um í styrjöld hver við aðra. Það er því hvíld og hressing þegar við eigum kost á því að athuga mannslíf sem eiga fegurð sam- ræmisms. Það hygg eg að hafi einmtit verið tilfellið með Jó- hönnu Jóhannsson. “Var líf hennar lilju skærra, hreinn lofsöngur og hjartnæm bæn.” Mesta starfsvið hennar, utan heimilisins,. var kvenfélag Sel- kirk-safnaðar. Hún gerðist þar meðlimur skömmu eftir stofn- fund þess árið 1897 og var í því félagi til dauðadags. Hún var ritari þess meir en 8 ár og for- seti þess var hún 1919—1923. í félagsstarfinu var hún einlæg, áhugasöm, ósérhlífin, umburðar- lynd og frábærlega stilt. Vann hún þar, með trúmensku, sem aldrei brást, að því að efla hag kirkjunnar, í samræmi við hinar háleitu hugsjónir hennar. Gæði hennar og trúmenska, á sviði félagsstarfsemmnar í kirkj- unni, átti' ekki síður heima hjá henni í sambandi hennar við ást- vinina. Ljós hennar lýsti þar með guðlegum fegurðarljóma. Traust hennar á Guði' fegráði alt hennar líf. Hún hafði yl algæzk- unnar og veitti hann fuslega heimilinu sínu. Hún annaðist /C,^^MEWMDDERN / W GLA55WARE/ PLATE A BEAUTIFUL PIECE IN EVERV PACKAGE OF QUICK QUAKER Crystal ‘Wedding 0AT5 • Buy Quick Quaker Crystal Wed- ding Oats today — for delicious economical health break- fasts. Start now to collect the smart beautiful rose-tinted glassware pack- ed in every package! það með alúð og umhyggjusemi. Kristin trú var henni atkeri í öllum erfiðleikum lífsins en líka bjarmi sem breiddi birtu og blessun yfir heimili og ástvini. Guð blessi minnnig þessarar góðu konu. Það eru margar ljúf- ar endurminningar um hana, ekki sízt í íslenzka mannfélaginu í Selkirk. Það fer vel á því að enda þessi fáu minningarorð með upphafi sálmsins sem hún lét syngja oft- ar en nokkurn annan er hún var forseti kvenfélagsins, því þar hafa verið einkunnarorð æfi hennar: “Sú trú, sem fjöllin flytur, oss fári þyngstu ver; ei skaða skeyti bitur, þann skjöld ef berum vér; í stormum lífs hún styður og styrkir hjörtu þreytt; í henni er fólginn friður, sem fær ei heimur veitt.” R. M. VOR SAMEIGINLEGA NORRNÆA ARFLEIFÐ Eftir W. J. Líndal, K.C. Ræða sem hann flutti í viðvarpið í Winnipeg, 30. janúar, 1938 Efnið sem eg ætla að ræða í kvöld er: “Vor sameiginlega, norræna arfleifð.” Þegar rakin er saga vorrar sameiginlegu norrænu arfleifðar er það óhjákvæmilegt, að leiða hugi yðar til þeirra þjóða, sem bygðu norðurhluta Evrópu fyrir rúmum þúsund árum. Miðdep- ill þess svæðis er Jótlandsskag- inn. f norðurátt voru Norð- menn og bygðu þeir suðurhluta skandinaviska skagans. Á sjálfu Jótlandi og næst fyrir sunnan það bjuggu Englar, Saxar og Jótar. Lengra suður voru Lág- lendingar (Þjóðverjar í þeim hluta Þýzkalands) og í suðvestur Fríslendingar; nú er það svæði kallað Niðurlönd. Jafnvel þótt orðið norrænn í þess víðari merkingu nái yfir þá Þjóðverja, sem bygðu efri hluta Þýzkalands (Hálendinga), þá er svo lítið sameiginlegt með þeim og því fólki, sem eg hefi minst á að óhætt er að ganga fram hjá þeim í því, sem hér verður sagt. Vor norræna arfleifð nær ekki til þeirra. f upphafi þessa máls mætti spyrja þessarar spurningar: Hvað var það — ef það annars var nokkuð — sem þessar þjóðir áttu sameiginlegt ? Hvað var það, sem einkendi þær sérstak- lega frá þeirri þýzku grein nor- ræna fólksins, sem Hálendingar nefndist eða jafnvel frá öðrum þjóðflokkum Norðurálfunnar? Þeir voru einstaklingssinnar og þoldu ekki ofríki, voru eirðar- lausir og æfintýragjarnir. Frels- isást og sjálfræðis, réttur hvers einasta manns til þess að sigla sinn eigin sjó og skapa sína eigin framtíð, hugsanafrelsi og at- hafna — alt þetta myndaði bæði ívaf og uppistöðu í lyndisein- kunn þessara norrænu þjóða. En samvafið þessu sjálf- stæði er þráin til þess að vinna sameiginlega og almenningsheill og eindregin mótstaða gegn því að leggjast undir algert kúgun- arvald, hvort heldur var einveldi eða ofríki í einhverri annari mynd. í stuttu máli sagt má finna hjá þessum þjóðum frum- rætur eða frjóanga þess lýðræð- is, er vér þekkjum nú á dögum. Frh. á 7. bls. All-Canadian victory for pupils of DOMINION BUSINESS COLLEGE at Toronto Exhibition Pupils of the DOMINION BITSINESS COLLEGE, Winnipeg, were awarded FIRST PLACE in both Novice and Open School Championship Divisions of the Annual Typing Competition. Miss GWYNETH BELYEA won first place and silver cup for highest speed in open school championship with net speed of 92 words a minute.. Mr. GUSTAVE STOVE won first place and silver cup for highest speed in Novice Sec- tion of typing contest. His net speed was 76 words a minute. Miss HELEN BRIX, another D. B. C. pupil, won second place for accuracy in the novice division! Miss DOROTHY MAXWELL, a D. B. C. student, came fourth in the open school championship section! The Dominion sent four pupils to Toronto and they won two firsts, a second and a fourth place! The contest officials announced at the Coliseum before an audience of 9,000 people that the Dominion Business College, Winnipeg, had the best showing of any com- mercial school in the competition! There were 107 contestants! ENROL NOW DOMINION BUSINESSCOLLEGE WINNIPEG FOUR SCHOOLS: THE MALL— ST. JAMES — ST. JOHN’S — ELMWOOD

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.