Heimskringla - 15.06.1938, Blaðsíða 7
WINNIPÉG, 15. JÚNÍ 1938
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
í KAUPSTAÐ
Frh. frá 6. bls.
heldur lofuðu guð hástöfum en
á tóninum var auðheyrt að þau
voru fúl og gröm yfir naumum
útlátum.
Nú heyrðist lestin blása og
Mill snaraðist út með bréfpoka,
vissi að búðinni var óhætt fyrir
smáþjófum meðan hjónin voru
þar, prófessorarnir og kuklar-
arnir. f sömu svipan bar að
annað ferðafólk, Bigelow fór út
og hjálpaði manninum um gas
en Mrs. Bigelow afhenti aðalfrú
og annari síðri og þrem kökkum
súkkulaði og svaladrykki. Þetta
vellynta og ekki þóttalausa fólk
var að fara þegar Mill kom aftur
með póstpokann, bréf og tímarit
voru afhent, hjónin báru sín og
prófessorarnir, hvort til sinna
herbergja, en kuklarar fengu
ekki neitt. Þeir höfðu aldrei
fengið nein bréf, en þóttust ekki
minna mega gera sinnar sæmdar
vegna, en skálma að vindauganu
og spyrjast fyrir um sendingar
til sín. Sfi ungi fór þá út, keypti
ekki neitt — alveg skildingalaus
— og fékk ekki svo mikið sem
spjald úr póstinum, innan
skamms heyrðist hófadynur og
kveðandi í háum og döprum tón,
er hann reið sína leið.
Dan Silversmith varð eftir.
Andi hans var nú ekki eins ram-
bundinn við tómötur og peaches
eins og við kæliskápinn. Þegar
ísað soda pop fór gutlandi niður
þyrstar kverkar, þá var sérlega
hressandi að heyra það. Pott-
flaskan kostaði tíu cent og hann
hafði dime. En ekkert lá á.
' Steinn gjögti í einu armbandi
hans, hann vissi hvar smíðatólin
voru, spurði stuttrar spurningar
og var sagt að hjálpa sér sjálfur.
Hann gekk aftur eftir búðinni og
hvarf bak við Navaho tjöld þar
sem rennibekkurinn stóð. í sama
mund gætti Mill Hombres þess
að kominn var tími til að bera
salvið á ungviðið, hann hvarflaði
út um dyrnar þær dyr sem vissu
að kerruskála, gleymdi því sem
sjaldan skeði, að loka framdyr-
um búðarinnar, og síðan heyrð-
ust í honum hrópin, er hann kall-
aði á krakka sína. Kíghóstinn
virtist ekki hafa haft aðrar verk-
anir, en örva telpurnar til út-
hlaupa og æfintýra, sem þeirra
eðlisvani var. Allir litlu kropp-
arnir sem smyrsla skyldi voru
horfnir út í búskann.
Dan Silversmith var einn í
búðinni þar til inn komu hjónin
sem hann hafði séð um morgun-
inn, en hann lét ekki á sér bera.
“Hvernig veiztu að það eru
egta turkis-steinar?” spurði kon-
an.
“Sá nokkuð þeim líkt, bara
smærri á safni í Santa Fe. —
Trúðu mér, þeir eru egta.”
j “En þeir eru ekki tvö hundruð
dala virði, ekki líkt því.”
1 “Ekki veit eg það. En eg á þá.
Eg fann þá og gróf upp. Þeir
geta verið gamlir sem fjöll og
bláir eru þeir enn, sem segir til
hörkunnar og þess að það eru
INNKOLLUNARMENN HEIMSKRIN6LU
I CANADA:
Amaranth..............................J. B. Halldórsson
Antler, Sask.........................K. J. Abrahamson
Arnes...............................Sumarliði J. Kárdal
Árborg................................G. O. Einarsson
Baldur...........................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville........................... Björn Þórðarson
Belmont...................................G. J. Oleson
Bredenbury............................ H. O. Loptsson
Brown..............................Thorst. J. Gíslason
Churchbridge_________________________H. A. Hinriksson
Cypress River....................................Páll Anderson
Dafoe...................................
Ebor Station, Man...................K. J. Abrahamson
Elfros.................................
Elriksdale.............................ólafur Hallsson
Foam Lake..............................H. G. Sigurðsson
Gimli................................... K. Kjernested
Geysir................................Tím. Böðvarsson
Glenboro.................................G. J. Oleson
Hayland...............................Slg. B. Helgason
Hecla.............................. Jóhann K. Johnson
Hnausa..................................Gestur S. Vídal
Hove............................................Andrés Skagfeld
Húsavík............................... John Kernested
Innisfail...........................Ófeigur Sigurðsson
Kandahar................................
Keewatin.......................1.......Sigm. Björnsson
Kristnes............................... Rósm. Ámason
Langruth.............................................B. Eyjólfsson
Leslie...............................Th. Guðmundsson
Lundar........................Sig. Jónsson, D. J. Líndal
Markerville........................ ófeigur Sigurðsson
Mozart.................................
Oak Point......................................Andrés Skagfeld
Oakview.............................
Otto......................................Björn Hördal
Piney.................................. S. S. Anderson
Red Deer............................Ófeigur Sigurðsson
Reykjavík..................................Árni Pálsson
Riverton............................Björn Hjörleifsson
Selkirk............................Magnús Hjörleifsson
Sinclair, Man.......................K. J. Abrahamson
Steep Rock.................................Fred Snædal
Stony Hill................................Björn Hördal
Tantallon........................................Guðm. Ólafsson
Thornhill...........................Thorst. J. Gíslason
Víöir............................................-Aug. Einarsson
Vancouver............................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis.....................Finnbogi Hjálmarsson
Winnipeg Beach....................................John Kernested
Wynyard.................................
I BANDARÍKJUNUM:
Akra...................................Jón K. Einarsson
Bantry................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash..................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash...................Séra Halldór E. Johnson
Cavalier...............................Jón K. Einarsson
Chicago: Geo. F. Long, 2428 Hamlin Ave., Logan Square Sta.
Edinburg...................................Jacob Hall
Garðar.................................S. M. Breiðfjörð
Grafton...............................Mrs. E. Eastman
Hallson................................Jón K. Einarsson
Hensel.................................J. K. Einarsson
Ivanhoe............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St.
Milton.................................F. G. Vatnsdal
Minneota./.........................Miss C. V. Dalmann
Mountain...........................................Th. Thorfinnsson
National City, Calif.....John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts.........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold.................................Jón K. Einarsson
Upham.................................E. J. BreiðfJörO
The Viking Press Limited
Winnipeg, Manitoba
i dýrir steinar af réttri tegund. Ef
þeir væru dregnir á band, þá
væri það fallegt sörvi.”
“Skrítið er, að maurarnir
skyldu rogast með einn upp í
dagsljósið og þú svo grafa þar
niður. Hvar skyldi ait fólkið
vera ?”
“Búðarhaldarinn er líklega
farinn til matar og hefir gleymt
að loka á meðan. Helló! Er
nokkur hér?”
Dan Silversmith gaf ekki
hljóð af sér, þótti talið merki-
legt og langaði til að skoða stein-
ana, hafði vit á þeim manna
bezt, vissi líka að steinar sem
komu úr dysum voru furðu dýr-
ir, einkum þeir stóru.
Svo sagði konan: “Legðu þá
hérna á glerið, svo þegar kaup-
maður kemur inn og lítur þá,
getum við séð á honum, hvort
honum þykir mikið til þeirra
koma eða lítið. Hvað eru þeir
margir ?”
“Fjörutíu og níu.”
Nú var að heyra lítið glamur,
er steinarnir komu við glerið.
Dan gægðist út milli tjalda, sá
það sem hann vildi og var á-
nægður. Hann hefði feginn gef-
ið tvö hundruð dali fyrir stein-
ana, en átti ekki nema dime.
Hann hugsaði eftir hvað Mill
Hombres myndi gera og Bigelow,
sú kona var ör og óprúttin til
kaupa.
Hjónin tóku nú aftur tal með
sér, hún vildi vita hvers vegna
hann vildi hafa tvö hundruð dali
fyrir steinana og alls ekki
minna.
Hann sagðist hafa sínar á-
stæður, sagði börnunum að fara
út og setjast í bílinn, þau skyldu
fá gott að borða bráðum og gott
að drekka líka. En er börnin voru
farin, lét konan í ljósi það sem
henni bjó í brjósti, hún hafði
verið á spítala til uppskurðar og
fanst framkoma hans óviðfeld-
in, haun væri breyttur, líkt og
hann væri síður en feginn að
sjá hana aftur og flytja heim.
Hvað kæmi til?
“Þú gazt ekki komist hjá upp-
skurðinum, Millie.”
“Veit eg það, Larry.”
“Nú ertu komin til og getur
farið að vinna ef með þarf.”
“Þú svarar út í hött.”
“Uppskurðurinn* og spítala
kostnaðurinn var dýr.”
“Já, ekki er að spyrja að því.”
“Jæja, eg varð að taka pening-
ana með bessaleyfi, og á fimtu-
daginn kemur eftirlitsmaðurinn.
Ef eg er þá ekki búinn að skila
þeim á sinn stað, þá kemst það
upp.”
“Larry!”
“Eg stal þeim.”
“Handa mér?” Hún varð glöð
við og sviphýr.
“Handa hverjum skyldi eg
stela nema þér og börnunum?”
“Larry!” Hún greip um hann
og hann tók hana í fangið, skifti
um svip, allur kvíði horfinn úr
svip hans, sagði í lágum róm og
þýðum að hann hefði verið milli
vonar og ótta að hún hefði það af
og nú þegar hann héldi henni
svona mintist hann þess sem
hann hefi lesið í bók: “Hang þú
þarna eins og ávöxtur, sála mín,
þangað til tréð deyr.”
Dan Silversmith var horfinn
sömu leið og Mill Hombres, hljóð-
laust á sínum heimagerðu skóm,
gáðu þó ekki að Mill, heldur
stikaði þangað sem Bigelow bjó,
barði ekki heldur gekk keikur
inn í stofu, stansaði á miðju gólfi
og virti fyrir sér bókaskápa og
veggmyndir. Þegar honum þótti
þeim siðum fullnægt, sem áttu
við þetta hátíðlega tækifæri, þá
tók hann sig allan til, talaði ensk
orð gegn sinni eðlisávísun og
segir:
“You come store.”
Þau mintust þess seinna, þegar
þau sögðu frá hvernig þeirra
trausta vinátta hófst við Dan
Silversmith, að þau fóru með
honum eins og hlýðin börn, gátu
þess líka, að þau hafi ekki séð
hvað annað þau gátu gert.
Þegar kom í búðina, benti Dan
Silversmith orðalaust á steinana
og Mrs. Bigelow varð svo hissa
og hrifin að hún hljóðaði lítið
eitt við. Bigelow vissi hvað á
stóð. Konan hans vildi eignast
þessar steintölur. Gott og vel,
þá var að gera gangskör að því.
“Þínir?” spurði hann.
“Já” sagði maðurinn sem
nefndist Larry.
“Til sölu ?”
“Já”.
“Hvað mikið?”
“Get ekki tekið minna en tvö
hundruð dali.”
1 “Tvö hundruð dalir er vænn
skildingur.”
“Já vitanlega, en þetta eru líka
vænir steinar,” sagði Mrs. Bige-
low.
Dan Silversmith hafði horfið
aftur að smíðabekknum, og það-
an heyrðist nú alt í einu enskt
orð eins og goðasvar. Það orð
var: “cheap.”
Dan Silversmith eyddi því sem
eftir var dagsins í búðinni, hann
hafði skilið nærri því alt sem
sagt var og haft bezta tíma. Ekki
sótti hann Bigelow hjónin af því
hann vildi bjarga þessum Larry
frá tugthúsi, hann var heldur á
því, að honum félli kvenmaður-
inn Millie vel í geð en ekki of vel
samt. Fyrir eiginmann konu
eins og Millie, var fangelsið lík-
lega fullgott og meir en það, ef
ekki gálginn. Nei, hann vildi að
Mrs. Bigelow eignaðist steinana
ef hún vildi þá. Og nú átti hún
þá og þar með búið.
Þegar átti að fara að loka,
skrefaði Dan Silversmith að ís-
skápnum og beið þess að Mill
Hombres liti upp. Meðan hann
beið, hugsaði hann eftir og undr-
aðist hvað sá hefði meint sem
gegndi nafninu Larry, þegsar
hann nefndi ávexti hangandi á
tré þar til tréð væri dautt. Hann
sjálfur trúði á það að éta ávexti
undir eins og hvenær sem þeir
voru fullþroskaðir, sérstaklega
ef þeir tilheyrðu öðrum kyn-
kvíslum Indíána. Hvað átti það
að þýða, að bíða þangað til tréð
dæi?
Þegar Mill Hombres leit á
hann þá grýtti hann tíu centa
skildingnum á ísskápinn, eins og
ríkismaður og höfðingi og enn
einu sinni hrutu honum ensk orð
af vörum:
“Soda Pop” sagð’ann.
- HAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldg.
Skrlfstofusími: 23 674
Stundar sérstaklega lungn&sjúlc-
dóma.
Er aS flrml 6 skriíatofu kl. 10—12
f. h. o* 2—6 e. h.
Heimill: 46 Alloway Aye.
Talsimi: 33 lSt
Omci Phorx
87 208
Rxs. Phohx
72 400
Dr. L. A. Sigurdson
100 MKDICAL ART8 BUILDINO
Omcx Houxs:
12 - 1
4 rx. - l r .H.
AHB BT APPOXHTHXHT
Dr. S. J. Johannesion
218 Sherburn Street
Talsiml SO 877
VlOtalstimi kl. S—6 e. h.
ÞRÍR DRAUMAR
í síðustu viku janúar 1938,
dreymdi mig að eg var inni í
stóru herbergi, þar var fleira
fólk, karlmenn og konur, stóðu
allir og horfðu til dyra, sýndist
það ætti von á einhverjum.
Svo kom maður inn og segir
að reikistjarna sem hafi brotn-
að fyrir 20 árum, sé á leiðinni til
jarðarinnar, fari 20 mílur á mín-
útu, og það sveimi mannverur í
loftinu í kringum þá sem úti
eru, sé haldið að þetta séu sVipir
framliðinna vina, er séu að reyna
forða jörðinni undan, svo þessi
stjörnubrot hitti hana ekki.
Einhver spurði hvar það
mundi koma á jörðina, sagði
hann það yrði um miðjarðarlínu,
og á 100 mílna svæði suður, og
100 mílur norur frá því er það
kæmi á jörðina brynni jörðin.
Washington-ríkið yrði utan við
það. En af hita og eiturgasi
eyðilegðist alt líf, og alt til norð-
ur og suður pólanna eyðilegðist.
Eg fór út að sjá þessar mann-
verur, og sá þær sveima fram
og til baka, sýndist þær vera í
fötum líkast þeim er fólk brúk-
aði fyrir 50 til 60 árum á fs-
landi, sá eg að sumar voru í
kvenbúning, væru því konur.
Svo lít eg til norðvestur, sé eg
þá breiða dökka línu, sýndist
mér líkast því er stórfljót eru í
vexti kom hún skáhalt til jarðar
en var langt í burtu, sýndist mér
straumhörð.
Svo heyrði eg talað um að
önnur ísöld kæmi eftir þetta. —
Vaknaði.
26. marz, 1938, dreymdi mig
að inni í húsi er eg staddur. Þá
kemur einhver og segir: Nýjustu
fréttir eru að árið 1942 rekst
J. J. Swanson & Co. Ltd.
RtÁLTORS
Rtntal, Inturanc« and rinancial
ifixtx
Slml: 04 221
606 PARI8 BLDO.—WlnnlpeR
Gunnar Erlendsson
Pianokennari
Kenalustofa: 701 Vlctor 8t.
Síml 89 535
Jacob F. Bjamason
—TRANSFER—
Baggage and Furniture Moving
591 SHERBURN ST.
Phone 35 909
Annaat allskonar flutnlnga fram
og aftur um bœinn.
G. S. THORVALDSON
B.A.. LL.B.
LögfrœOingur
702 Coníederation Llfe Bldg.
Talsíml 07 024
W. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFANSSON
ÍSLENZKIR LÖQFRÆÐINQAR
6 öðru gólíl
325 Uain Street
Talsimi: 97 621
Hafa einnlg skrlfstofur aS
Ijdxidar og Glmll oa eru þar
að bltta, íyrsta miðvlkuda* i
hverjum mónuðl.
M. HJALTASON, M.D.
ALMINNAR LÆKNINQAR
Strgrein: Taugasfúkdómar
Laetur ÚU meðöl 1 viðlögum
VlStalatimar kl. 2_4 a k
7—8 a8 kveldlnu
Sfml 80 867 866 vlctor >t
A. S. BARDAL
aelur likklatur og annaat um útíar-
Jr. AUur útbúnaður sá Þnatl. —
Knnfremur selur hann .n.v___
nilnniavarða og legateina.
643 SHERBROOKB 8T.
Phone: 66 607 WINNIPBQ
thl watch shop
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding
Rings
for Bulova Watches
Marriage Llcenses Issued
699 Sargent Ave.
MARGARET DALMAN
TEACHER or PIANO
664 BANNINO ST.
Fhone: 26 420
stjarna á jörðina. Og svo er
sagt. — Hún er komin. Alt
skelfur. Þetta er voðalegt! Og
nú kemur annar jarðskjálfti, hús
hrundu, og fólk ferst. — Skyldi
sá þriðji koma. Ó, þar kemur
hann! Drottinn minn sú eyði-
legging. Það er sagt að öll jörð-
in sé úr lagi. Panama-skurður-
inn er eyðilagður, alt það mikla
verk. Nú geta öll skip farið þar
án þess að borga, eða biðja um
leyfi.
Japan sokkið í sjó, þeir herja
ekki lengur. Þýzkaland alt úr
lagi, ríkisfjarhirzlan eyðilögð,
og það sem var í henni tóku
þjófar.
Frakkland eyðilagt, álitið að
fjárhirzla ríkisins' hafi sokkið,
hún finst ekki.
Páfahöllin í Róm hrundi. —
Páfinn /aðeins slapp ómeiddur.
Mussolini hvarf. Danmörk er nú
norður í íshafi, þar er voða kalt
nú. ísland hækkaði um 6,000
fet.
England varð fyrir minstum
skaða, sýnist það standa á
traustum grunni.
Engin veit um f járhirzlu U. S.
Er órannsakað hvort hún er ó-
skemd, eða sokkin.
Þessi jörð er sterk að þola
þetta, en er öll úr lagi gengin.
Vaknaði.
Þriðji draumur (í apríl 1938):
Eg kom út og leit til veðurs,
sá þokubakka er var svo þykk-
ur að slíkan hafði ei fyr séð, var
sem hlaðin veggur, lá frá norðri
til suðurs.
Svo sé eg að mannshöfuð er að
koma út úr þessum þokubakka,
datt nú í hug hvort þetta væri nú
Kristur, og nú væri alt búið,
“dómsdagur kominn”. Svo sé eg
að þetta er með húfu líkt og
franskir hermenn brúka, (yfir-
menn). Það kom aðeins höfuð
og hálsinn niður að herðum. sá
eg að þetta mundi Japaníti vera,
hann var á grúfu, sem maður á
Rovatzos Floral Shop
206 Notre Darae Ave. Phone84B54
Freah Cut Flowers Dally
Pl&nts ln Seaaon
We specialize in Weddiny &
Concert Bouqueta & Funer&l
Deslgna
lcelandlc spoken
sundi, leit til beggja hliða, virt-
ist vera hræddur við að fara
lengra.
Nú lít eg til vinstri handar, sé
eg að þar kemur mannsmynd í
ljós í fullri stærð, og var stór og
ljótur, áleit eg þetta vera Satan
sjálfan, svo lítur hann til hliðar
svo eg sá andlitið, þóttist eg
vera viss um að þetta væri
Kínverji. Hann var brosleitur, lá
á grúfu eins og hinn, var í síðum
stakk, berhöfðaður, allur ílla til
fara, hann var kominn lengra
inn í landið og þar var þokulaust
og bjart veður. Hvorugur hreyfði
sig. Eg horfði á þetta um stund
hélt Japinn kæmi út úr þokunni,
en það varð ekki. Vaknaði.
Eg vil biðja eldri fslendinga,
sem komið hafa fullorðnir að
heiman, og álíta að draumar
hafi einhverja þýðingu, hvað
þeir halda um þessa drauma. —
Þeir eru stuttir, maður sá er
dreymdi er ólýgin, segir sig hafi
oft dreymt bert fyrir stórvið-
burðum. Hann sagði eg mætti
senda þá til Kringlu ef ritstjór-
inn vildi gefa þeim rúm í blað-
inu, og svo svari frá spökum
spámanni um hvað þeir álíti þeir
meini.
Með virðing,
S. J. Johnson
fþróttafél. Reykjavíkur
hefir nýlega keypt jörðina
Kolviðarhól á 45 þús. kr. Ætlar
það að stofna þar íþróttaheimili.
Skilyrði til vetrarþrótta eru þar
mjög góð.—ísl. 13. maí.