Heimskringla - 24.08.1938, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 24. ÁGÚST 1938
HEIMSKRINGLA
3. Si'ÐA
ist við Aqaba. Sá, sem fann stað-
inn, heitir dr. Nelson'Glueck, og
er foringi rannsóknarleiðangurs,
er vinnur að uppgreftri á þessum
slóðum. Aqaba er umgirt háum
granítklöppum og liggur við
þröngan veg við norðurenda
Rauðahafsins. f heimsstyjöld-
inni hertóku arabiskar liðssveit-
ir undir stjóm T. E. Lawrence,
þennan stað, en áður taldist
hann til tyrkneskra landa.
Ástæðan til þess, að höfn Saló-
mons hefir ekki fundist fyr en
þetta, er sú, að hún liggur nú
kílómetra frá hinni núverandi
sjávarströnd. Norðlægir vindar
hafa borið með sér kynstur af
sandi, sem hlaðist hefir þarna
upp. Fundur Gluecks bendir til
þess, að íbúarnir í hafnarbæ
Salómons hafi ekki einvörðugu
starfað að siglingum, skipasmíð-
um og fiskveiðum, heldur og
fengist við málmsmíði og búið
til spjót, sveðjur og öngla. Stórir
bræðsluofnar, sem bygðir voru
með sérstöku tilliti til hins æ-
varandi súgs frá norðri, hafa
fundist.
Menn hafa komið fram með þá
getgátu, að heimsóku drotning-
arinnar af Saba hafi staðið í
einhverju samb. við þessa höfn.
Hún hafi sem sé óttast, að hinar
nýju siglingar Salómons myndu
ríða hinni gamaldags verzlun
sinni að fullu.
* * *
Bernhard Shaw var veikur
fyrir skömmu. Læknarnir buðu
honum að neyta sérstaks lifrar-
réttar. En Shaw er grænmetis-
æta og hefir einskis kjöts neytt í
rúma hálfa öld. Að þessu sinni
varð hann þó að beyja sig fyrir
vilja læknanna og éta lifrarrétt-
inn;
Grænmetisætur hafa félag
með sér og er Shaw félagi þar.
Hann skrifaði nú félaginu og
skýrði frá þessari hrösun sinni.
Félagið skrifaði honum aftur og
lýsti því yfir, að það væri and-
vígt kjötáti. Má því búast við,
að Shaw verði vikið úr félaginu.
* * *
Talið er að fjárhættuspil sé
mjög útbreitt í Rússlandi. G. P.
U. hefir þvi verið falið að sundra
öllum leynilegum spilaklúbbum,
sem verði afhjúpaðir og fang-
elsa þá, sem reynist að hafa spil-
að upp á háar fjárhæðir. — f
Kiev hefir komist upp um stórt
spilavíti, þar sem ýmsir af æðstu
embættismrönnum borgarinnar
höfðu verið tíðir gestir.—N. Dbl.
LÍFVÖRÐUR
EINVALDANNA
(Hér birtist frásögn ameríska
blaðsins New York Times um
lífvörð Mussolinis. Mussolini læt-
ur haga sínum verði mjög á ann-
an veg en aðrir einvaldar, þar
sem hann vill láta sem minst á
honum bera.)
Með Mussolini er farið sem
jafningja ftalíukonungs, hvað
lífvörðinn snertir. Vörður hvers
um sig er 350 leynilögreglumenn
Það er samt mun erfiðara að
vernda Mussolini heldur en kon
unginn, þar sem konungurinn
dvelur lengst af á einhverju af
landsetrum sínum, sem mjög
auðvelt er að gæta, en Mussolini
býr í Róm og hlýtur óhjákvæmi-
lega að fara oft) á dag um fjöl-
förnustu göturnar, þegar hann
er að fara milli stjórnarskrif-,
stofana og heimilis síns..
Mussolini er mjög á móti öll-
um þeim varnarráðstöfunum,
sem skilja hann á áberandi hátt
frá “fólkinu”. Vegna þessa verð-
ur varðmenskan að fara fram í
leynd að sem mestu leyti. Hann
gerir vörðunum einnig erfiðara
fyrir með þeim sið sínum, að
ganga um meðal mannfjöldans
og gefa sig á tal við hvern sem
er. Annað mætti einnig nefna,
sem gerir varðmönnunum mun
erfiðara fyrir, en það er sá siður
Mussolinis að aka á bifhjóli til
hallarinnar Castel Povxiano, en
þar syndir hann næstum dag-
lega. Þá verður að halda vörð á
þrjátíu kílómetra löngum vegi,
og þar er umferðin allmikil.
Við Villa Tordonia, þar sem
Mussolini býr með fjölskyldu
sinni, er haldinn vörður dag og
nótt af einkenniskæddum lög-
reglumönnum og konunglegir
byssuriddarar ganga saman
tveir og tveir meðfram hinum
háa múr, sem umlykur “villuna”.
Það er öllum jafnaði auðvelt
að varna óviðkomandi mönnum
aðgangs að húsinu, þar sem það
er í kyrlátu hverfi, og vekur ekki
neina sérstaka athygli ókunn-
ugra. Lögreglan vill vera VÍS6 í
sinni sök og þessvegna hefir all-
mörgum leynilögreglumönnum
verði komið fyrir umhverfis hús-
ið og halda þeir þar vörð einkum
þó á nóttunni.
Vopnuð deild af Moschettieri
di Mussolini (skotliðar Musso-
linis, sem er lítill einkalífvörður,
valinn meðal fasistiskra her-
manna), heldur vörð við dyrnar
á Palazzo Venezia, þar sem
allstór deild leynilögreglumanna
sér um gæzlu hússins. Það hlut-
verk er allerfitt, þar sem Palazzo
Venezia er í miðri borginni og
umferðin mjög mikil um göt-
urnar í kring, svo að þær eru
þéttskipaðar gangandi fólki
suma dags.
Þessi deild leynilögreglumanna
tekur starf sitt mjög alvarlega.
Ef einhver maður er of lengi á
vakki á götunum umhverfis Pal-
azzo Venecia, koma til hans einn
eða tveir menn og biðja hann að
koma inn um hliðið á hallargarði
Palazzo Bonaparte. Þar er hann
spurður spjörunum úr um ermdi
sitt af lögreglumanni, sem situr
þar í kjallaranum í lítilli skrif-
stofu.
Ef þessi maður getur gefið
fullnægjandi upplýsingar um er-
indi sitt, þá er honum slept með
lítilsháttar aðfinslu og aðvörun
um að tefja ekki að óþörfu á
þessum slóðum. Ef maðurinn
þykir hinsvegar eitthvað grun-
samlegur, þá er farið með hann
til lögreglustöðvarinnar, sem er
ekki langt í burtu. Sama er að
segja um ökumenn, sem halda
sig óviðeigandi lengi í nánd við
stjórnarskrifstofu Mussolinis. Á
hverjum degi eru margir menn
spurðir í þaula af þessum orsök-
um, en þetta gerist alt með svo
rrlikilli leynd, að fæstir Rómverj-
anna taka eftir þeim augna-
fjölda, sem vakir yfir hverri
hreyfingu þeirra, þegar þeir
nálgast Palazzo Venezia.
Annað hlutverk þessarar á-
kveðnu deildar leynilögreglunn-
ar, er að gæta þeirra gatna, sem
Mussolini ekur um á leið sinni
milli Villa Tordonia og Palazzo
Venezia. Mussolini ekur aldrei
sömu leið tvisvar í röð, svo að
það er ómögulegt að vita fyrir-
fram hvar hann muni fara þar.n
og þann daginn.
Leynilögreglumenn í ýmsum
dulbúningum dreifa sér meðal
mannfjöldans og hafa nákvæmt
eftirlit með öllum grunsamleg-
um persónum.
Á ákveðnum tíma dags getur
sá áhorfandi, sem er sérstaklega
eftirtektarsamur, komið auga á
dularfull merki, sem gefin eru
til og frá á gangstéttunum
beggja megin götunnar, og ör-
skammri stund síðar þýtur bif-
reið Mussolinis framhjá á ógur-
legum hraða. Maður getur orðið
var við allmikinn óróa í nokkrar
mínútur, en þetta hverfur mjög
fljótt aftur og umferðin fellur í
sitt eðlilega lag.
Þessi stöðuga barátta lögregl-
unnar við alla þá, sem hún telur
að ætli að myrða Mussolini, hef-
ir leitt það af sér, að varúðar-
ráðstafanirnar eru nú farnar að
verða allvíðtækar. Til dæmis er
skólpræsi borgarinnar athugað á
hverjum degi, af ótta við að þar
kunni að hafa verið komið fyrir
sprengiefnum, /til þess að
sprengja í loft götuna yfir, ef
Mussolini skyldi fara eftir henni
Niðurföllin við gangstéttirnar
eru bygð með svo sterkum grind-
um, að þar er ekki hægt að koma
fyrir sprengjum. Ljóskersstaur-
arnir á götunum eru athugaðir
öðru hvor, síðan að einn slíkur
staur var notaður sem geymslu-
staður fyrir vítisvél, sem var
næstum búin að ráða konunginn
af dögum. íbúunum í þeim göt-
um, sem Mussolini fer um, eru
veittar mjög nákvæmar gætur.
Lögreglan heldur því fram, að
íbúar þessara húsa beri ábyrgð
á öllum þeim ókunnugum mönn-
um, sem gista hús þeirra, og
dyravörðunum er skipað að til-
kynna þegar, ef þeir verði varir
einhvers, sem þeim geti þótt
grunsamlegt.
Pólitíska lögreglan, sem þekt
er undir nafni O. V. R. A., er
einnig mjög svq athafnasöm, og
leitar stöðugt eftir samsærum
gegn Mussolini. Allir ferða-
menn, sem koma yfir landamær-
in, eru yfirheyrðir mjög ná-
kvæmlega, hvort sem þeir eru
útlendingar eða ítalir, enda hefir
lögreglan langar Iskrár yfir
grunsamlegar persónur, sem hún
er skyldug að handtaka svo
skjótt sem framast er unt. Það
er mun hægara fyrir yfirvöldin
að fylgjast með ferðamönnun-
um, vegna þess að hver einasti
ferðamaður verður að koma til
lögreglustöðvarinnar í borg
þeirri, sem hann er kominn til,
innan 24 tíma frá komu sinni j
þangað. Þeir, sem ferðast með
bifreiðum, eiga erfitt með að
komast undan eftirlitinu, þar
sem hver biðreiðastöð er skyld-
ug til þess að. halda dagbók yfir
komu og brottför hverrar ein-
ustu bifreiðar.
Þessar varúðarráðstafanir all-
ar margfaldast vitanlega, þegar
Mussolini tekur þátt í opinberum
hátíðahöldum, og það sérstak-
lega ef vitað er fyrirfram hvaða
leið hann muni halda. Þegar II
Duce fer eitthvað í burtu, er
lögregluforingi látinn sitja í
svefnherbergi hans frá því hann
fer út úr dyrunum að morgnin-
um og til þess er hann kemur
aftur að kvöldinu.
Það er sérstaklega eftirtektar-
vert við allan þenna vörð um
Mussolini, að hann er svo íeyni-
legur sem við verður komið. —
Þegar aðrir einræðisherrar sýna
sig á götunum, eru einkennis-
klæddir og vopnaðir menn alt um
kring, og framferði þeirra sýnir
ljóslega, «hve þeir eru gætnir og
árvakrir á verðinum. Mussolini
ekur um án þess að það sjáist, að
hans sé gætt nokkuð. Hans er
samt vitanlega gætt og það ekki.
síður en annara, þótt ekki beri!
á því. Það hefir ekki verið gerð 1
tilraun til þess að myrða hann
síðan 1926, en til þess tíma höfðu
verið gerðar 4 árásir á hann, en
þær kostuðu hann allar aðeins [
eina litla skeinu á nefið.
—N. Dbl.
Hræðist ekki þótt heimurinn
breytis’t. Hættan er aðeins sú,
að hann breytist ekki nóg.
S. S. P. Codman.
* * *
Þrettán ára gamall józkur pilt-
ur lagðist út nýlega.
Hafði hann verið að lesa Hróa
hött sér til dægrastytingar og
varð svo hrifinn, að hann ákvað
að leggjast út.
Hann náði sér í riffil, nokkur
skothylki, fór frá heimili sínu og
hvarf inn í Roldskóginn. Piltur-
inn heitir Einar Borup.
Sjötíu manns leituðu að hon-
um með lögregluhunda heilan
dag. Undir kvöldið fanst hann í
holu, sem hann hafði grafið sér
í skóginum. Lét hann hið bezta
yfir útilegunni.
* * *
— Fyrir hvað ætti eg að vera
þakklátur? Eg á ekki svo mikið,
að eg geti borgað skuldir mínar.
— Þá geturðu verið þakklátur
fyrir að vera ekki einn af skuld-
heimtumönnum þínum.
Employment Results that Count
425 Placements in 19 Weeks
Between April 1, 1938 and August 12, 1938, our Employment Depart-
ment registered 425 placements of Success College graduates and students.
Directly or indirectly through our Employment Department, almost 1000
1991) Success College applicants secured office positions with 505 local
firms in 12 months, immediately prior to April 15, 1938.
This is a photograph of “Success” College Students assembled in the College Auditorium,
from 12 classrooms. The occasion was an address delivered by a prominent educationalist.
From 1 to 47,069
If you can visualize an army pf 47,069 young men and women márching
down Portage Avenue, you will have some idea of the number of young
people who have trained at the Success Business College of Winnipeg.
To July 25, 1938 (since the college was founded in 1909), exactly 47,069
young men and women have trained. in the Day and Evening Classes of
this College.
To the younger generation we can give no better advice than to follow
m the footsteps of their older brothers and sisters, for we believe that
there is a successful future for business-trained young people.
FALL TERM
NOW 0PEN
RESERVE YOUR DESK EARLY
If you cannot enroll now, you may begin later, as our system
of personal and group instruction permits new students to commence
at any time and to start right at the beginning of each subject. As our
maximum of 500 day school students is frequently reached, we suggest
that jmu reserve your desk for the date on which you desire to commence.
Ask for a Copy of Our
36'Page Prosþectus
Telephone, call or write for a copy of our 36-page illustrated Prospectus,
which contains detailed information regarding our courses and the College.
This book is free, on request.
DAY CLASSES RESTRICTED
TO STUDENTS OF GRADE XI
(supplements allowed)
0R HIGHER EDUCATI0N
Our office is open for consultations and registrations daily from 8 a.m. to
6 p.m., and on Monday and Thursday evenings from 7.30 to 10 o’clock.
Prospective Students and Their Parents Are Invited to Call.
An Appointment May Be Made by Telephoning 25 843.
PHONE 25 843
Portage Avenue at Edmonton Street
WINNIPEG, MANITOBA
PHONE 25 844