Heimskringla - 24.08.1938, Qupperneq 5
WINNIPEG, 24. ÁGÚST 1938
HEIMSKRINGLA
5. SÍÐA
af Árna Thórðarsyni og sam-
þykt.
Annar liður. Tillaga séra E.
J. Melans, að þessi liður sé sam-
þyktur eins og lesin, studd af
O. J. Björnssyni. Breytingartil-
laga G. 0. Einarssonar, að orð-
unum “þó eigi minna en einn
dollar á ári hverju” sá slept úr
greininni, studd af Árna Thórð-
arsyni. Nokkrar umræður urðu
um þetta og tóku þátt í þeim
séra E. J. Melan, Ágúst Eyjólfs-
son, séra Jakob Jónsson og G. 0.
Einarsson. Breytingartillagan
var samþykt.
Þriðji liður. All-langar um-
ræður urðu um þennan lið, með-
al þeirra sem tóku til máls voru:
G. O. Einarsson, séra Jakob
Jónsson, Ág. Eyjólfsson, J. B.
Skaptason, Mrs. Renesse, Guðm.
Eyford o. fl. G. O. Einarsson
lagði til, að þessi liður væri fel<^-
ur niður, tillagan var studd af
G. Eyford. Miss Rósa Vídal
gerði breytingartillögu um, að
liðnum væri vísað til nefndar-
innar aftur. Breytingartillagan
var studd af Eiríki Scheving og
samþykt.
Fjórði liður. Lagt til af J. B.
Skaptason, að liðurinn sé sam-
þyktur, stutt af G. Eyford. —
Nokkrar umræður um liðinn, en
tillagan síðan samþykt.
Fimti liður. Tillaga J. Sæ-
mundssonar, að þessi liður sé
lagður yfir þar til þriðji liður
hefir verið afgreiddur, studd af
J. O. Björnsson og samþykt.
Þá var lesið álit Samvinnu-
málanefndarinnar af formanni
nefndarinnar, séra Jakobi Jóns-
syni, og er það á þessa leið :
Kirkjuleg samvinna
Nefnd sú, er f jallar um kirkju-
leg samvinnumál, leggur til, að
eftirfarandi ályktanir og tillögur
verði samþyktar:
1. Þingið telur mjög þýðing-
armikið, eigi aðeins fyrir kirkju-
félagið og starfsemi þess, heldur
og fyrir íslendinga yfirleitt, að
varðveitt sé eftir föngum
menningarlegt ,og kirkjulegt
samband milli Austur- og Vestur
fslendinga, t. d. með gagnkvæm-
um heimsóknum og námsferð-
um.
2. Þingið lýsir ánægju sinni
yfir þeirri tilraun, sem hefir
verið gerð í Vatnabygðum til
samvinnu milli safnaða, sem
sumir eru í Sameinaða kirkjufé-
laginu og aðrir í lúterska kirkju-
félaginu eða utan beggja, og
felur framkvæmdamefnd að
styðja að framhaldi þeirrar til-
raunar. Þó er það álit þingsins,
að allar slíkar tilraunir yrðu
mun auðveldari, ef kirkjufélögin
sjálf kæmu sér saman um ákveð-
ið skipulag á samvinnu sín á
milli.
3. Þingið samþykkir að kjósa
fimm manna milliþinganefnd, er
hafi þetta mál með höndum af
hálfu kirkjufélagsins í samráði
við stjórnarnefndina.
í samvinnunefnd kirkjuþings-
ins 1938.
Jakob Jónsson
Rögnv. Pétursson
J. O. Björnsson
J. P. Sæmundsson
Salóme Baldvinsson
Séra E. J. Melan gerði tillögu
um að nefndarálit þetta væri
samþykt eins og lesið og í heild
sinni. Tillagan var studd af
Guðm. Eyford og samþykt.
Næst var tekið fyrir nefndar-
álitið í ungmennafélaga málinu.
Var nefndarálitið lesið af ritar-
anum, og er það svohljóðandi:
Nefndin, sem sett var til að
íhuga ungmennafélaga málið,
hefir tekið £>að til rækilegrar í
hugunar og leyfir sér að gera
eftirfylgjandi tillögur:
1. Að ungmennafélag sé
stofnað í hverjum söfnuði.
2. Að ungmennafélögin mæti
á vissum stað og tíma til fundar-
halda.
3. Að nauðsynlegt sé að hafa
einhver verkefni fyrir félögin,
svo sem kappræður, leiklist og
fleira af því tæi, til þess að
glæða áhuga félagsmeðlima.
4. Að félögin haf^ útvegi
með að sjá unglingum fyrir
skemtunum, hvert á sínum stað,
í því augnamiði að vernda æsku-
lýðinn fyrir áhrifum óhollra
skemtana.
5. Auk þessara tillaga mæl-
umst við til, að þingið gefi full-
trúum ungmennafélaganna góð
og gagnleg ráð viðvíkjandi starfi
þeirra.
Á kirkjuþingi 1938.
Jónas K. Jónasson
Anna Árnason
Helga Reykdal
Mrs. E. J. Melan gerði tillögu
að nefndarálit þetta væri sam-
þykt eins og lesið; Tillagan var
studd af Mrs. B. E. Björnsson.
Nokkrar umræður urðu um, mál-
ið, og síðan var tillagan sam-
þykt, með þeim skilningi, að
þetta mál yrði ítarlega rætt á
fundi ungmennafélags fulltrú-
anna næsta dag.
Framh.
ÆFIMINNING
Guðrúnar Guðmundsdóttur
Jónasson
Hún andaðist að heimili sínu
við Vogar-pósthús í Manitoba þ.
11. maí síðastliðinn.
Guðrún var fædd 16. júlí árið
1872 á Stefánsstöðum í Skriðdal
í Suður-Múlasýslu.
Foreldrar hennar voru Guð-
mundur Finnbogason fsleifsson-
ar ólasonar frá Geirólfsstöðum í
Skriðdal og Guðlaug Eiríksdóttir
Einarssonar. Bjuggu þau hjón
síðustu tíu árin, sem þau voru á
íslandi, á Þorgrímsstöðum í
Breiðdal. Þegar þau fluttust
vestur, var Guðrún tólf ára
gömul. Þau settust að nálægt
Hensel í Norður Dakota og
bjuggu þar.
Árið 1893 giftist Guðrún Jón-
asi Kristjáni Jónassyni, ættuðum
úr Skagafirði. Bjuggu þau næstu
tvö árin í Dakota, en fluttust
1895 norður til Manitoba og sett-
ust að við Manitobavatn, á Siglu,-
nesi, og bjuggu þar upp frá því
á sama stað í fjörutíu og þrjú
ár. Um það leyti er þau fluttust
þangað norður mátti heita óbygt
meðfram vatninu svo langt norð-
ur. Var það hið mpsta þrekvirki
að flytja sig svo langa leið, hátt
á þriðja hundrað mílur mfeð
skepnur og bústofn; en þetta var
á landnámsárunum, og á þeim
árum létu menn sjaldnast fyrir
brjósti brenna, þó að þeir yrðu
að fara langar leiðir yfir óbygðir
og vegleysur til að komast þang-
að sem þeir ætluðu sér að fara.
Þeim Jónasi og Guðrúnu búnað-
ist vel enda voru bæði dugleg og
fyrirhyggjusöm. Völdu þau sér
fagran stað við vatnið, móti
suðri, þar sem útsýni er einna
fallegast til eyjanna, sem liggja
þar suður undan. Hefir Jónas
nú á síðari árum gefið staðnum
nafnið Fagranes, og ber hann
nafn með rentu. Þarna bygðu
þau upp eitt hið mesta myndar-
heimili þar í sveit og þó víðar
væri leitað, og ólu upp tíu börn.
Var að vísu gott undir bú þar í
héraði, og mörgum hefir
farnast þar prýðilega vel; en
það er ekki ofsagt, að atorka og
framsýni þeirra hjóna hafi ráðið
miklu um, hversu vel þeim farn-
aðist.
Börn þeirra Jónasar og Guð-
rúnar eru þessi: Þóra Björg, gift
Aðalvarði J. Hávarðssyni, bónda
að Clarkleigh, Man.; Guðmundur
Finnbogason, fiskikaupmaður í
Winnipeg, giftur Kristínu John-
son; Ólafur, bílaviðgerðarmaður
í Winnipeg, giftur Jenny Péturs-
dóttur Péturssonar frá Langár-
fossi; Guðlaug, gift Birni Guð-
mundssyni Jónssonar frá Húsey,
bónda við Vogar, Jónína Guðrún,
húkrunarkona, ógift; Vilhelm
Snorri, verzlunarmaður í Winni-
peg, giftur Guðrúnu Hinriksson;
ólpfía Svanhvít, gift Ólafi Jó-
hannessyni Johnson, bónda að
Vogar, Skúli, Jónas Bogi og
Olga, öll ógift heima. Stjúpson-
ur Guðrúnar er Þorfinnur Egill,
til heimilis í Winnipeg, giftur
Guðbjörgu Johnson.
Systkini Guðrúnar, sem á lífi
eru, eru Guðrún, kona Jóns Ey-
jólfssonar á Lundar; Finnbogi,
bóndi við Mozart, Sask.; Guð-
laug, kona Jóns Halldórssonar,
sem lengi bjó á Lundar, nú í
I^Vinnipeg; ólafía, kona Guðm. ís-
bergs á Lundar og Björg, kona
Jóns Hannsesonar, Hallson, N.
Dak. '
Guðrún sál. var ágætiskona,
dugleg, stjórnsöm á heimili, virt
og vel látin af öllum sínum ná-
grönnum og sveitungum; hún
var sómi sinnar stéttar sem
móðir og húsfreyja. Skapgerð
hennar var þannig, að hún var
glaðlynd í viðmóti, einlæg, og
viljaföst. Á allri hússtjórn henn-
ar var myndar- og rausnarbrag-
ur, sem benti bæði á gott uppeldi
og sterka sómatilfinningu. Hún
rækti skyldur sínar sem bezt
mátti verða og var manni sínum
samhent mjög um alt, hollráð og
úrræðagóð, þegar til vandamála
kom. Með henni er gengin til
grafar ein af hinum merkustu ís-
lenzkum konum í bygðum fslend-
inga hér í landi. Síðustu árin,
sem hún lifði, þjáðist hún af
þreytandi og þvingandi sjúk-
dómi, en hún bar alla erfiðleika
með mestu hugprýði. Dóttir
hennar, Jónína, stundaði hana
stöðugt að heita mátti tvö síð-
ustu árin með frábærri alúð og
ástundun.
Guðrún var jörðuð að Lundar
14. maí, að viðstöddu miklu f jöl-
menni, af séra Valdimar Ey-
lands. Daginn áður fór fram hús-
kveðja á heimilinu, og var alt
bygðarfólk að heita mátti, og
sumt lengra að komið, þar við-
statt. Sá sem þessar línur ritar,
flutti þar nokkur kveðjuorð.
G. Á.
HARMUR SILKISIFAR
eða endalok örvar Odds
Hrymur 1 höllu
hljótt er í ranni
fylki frægstur foldu ofar;
að norna ráði nú er sviftur
ástmeyjar armi
og allri gæfu.
Norður til Hrafnistu
nú vilt sigla
með hraustum drengjum
á hröðu fleyi
för verður greið og fagna muntu
æskustöðvar að yfir líta.
Grét eg sáran
er gekst þú til skipa
skrýddur skikkju
af skarlati rauðu
girtur sverði
gulli búnu
með örva mæli
um öxl þvera.
Drotning þín Silkisif
situr stúrin.
,Odd mun hún eigi
aftur líta.
Nornir því valda
að nú er genginn
fylki hinn frægsti
að feigðar ströndum.
Hver mun nú skarð
skjöldungs fylla
er forystu veitti landsins lýði?
Autt er nú hásæti
íturs konungs
er frelsi og gæfu
firðum veitti.
Enginn má örlögum
aftur halda
Skuldar ráði
né skapa dómi
úr Faxa haus
með fítons anda
bitur naðra
bjó þér helju.
Hneit mér að hjarta
er hinstu kveðju
intu mér ýtar
frá öðling frægstum.
Hvílir nú duft þitt
á köldum beði
und bliki sólar
á Berurjóðri.
Jóhanna S. Thorwald
ÍSLANDS-FRÉTTIR
Óhemju síldarhlaup
Mokafli er nú á' Skjálfanda,
Axarfirði og Þistilfirði, og hefir
síldarbræðslan ríkisins á Siglu-
firði borist 8000 mál síldar á
nótt.
Fjöldi skipa hafa fengið ágæt-
an afla, en með því að síldar-
torfurnar hafa verið mjög stór-
ar, hefir frést um 12 skip, sem
hafa sprengt nætur sínar og
neyðst til þess að leita hafnar,
til þess að fá gert við þær.
Vísi hefir borist skeyti í dag
um afla hinna einstöku skipa, en
Eldborgin mun hafa haft mest-
an afla þeirra skipa, sem lögðu
upp hjá verksmiðjunum á Siglu-
firði, eða á 3. þúsund mál. —
Skygni var mjög slæmt á miðun-
um í gær og þoka mikil, en skip-
unum ber saman um það, pð
síldartorfurnar séu bæði óvenju-
lega þéttar og stórar, og gera
menn sér því miklar vonir um
að það taki að rætast úr fyrir
skipunum, þótt þau hafi stórtap-
að undanfarið á útgerðinni
vegna aflaleysis.—Vísir 28. júlí.
* * *
Ingrid krónprinsess
vígir golfvöllinn
Ingrid krónprinsessa vígir
hinn nýja golfvöll og golfskála
næstkomandi mánudag.
Að lokinni vígsluathöfninni
verður, eftir að mönnum hefir
gefist kostur á að leika á vellin-
um, stofnað til hófs fyrir félaga
í golfhúsinu.—Alþbl. 29. júlí.
* * »
Krónprinshjónin vígja
langbylgju stöðina
Á mánudaginn kemur, 1. ág.
verður hin nýja langbylgjustöð
ríkisútvarpsins, sem verið hefir
í smíðum undanfarið, vígð af
ríkiserf ingj ah j ónunum.
Athöfnin hefst kl. 1.58, styður
þá krónprinsessan á hnapp, sem
veitir orku í vélarnar. Síðan
flytja forsætisráðherra og út-
varpsstjóri ræður og útvarpskór-
ið syngur, “Ó, Guð vors lands.”
Nýja stöðin hefir 100 kw. orku
Þér sem notið—
TIMBUR
KAUPIÐ AF
THE
Empire Sash & Door
CO., LTD.
BirgSlr: Henry Ave. Eut
Sími 95 551—95 552
Skrifstofs:
Henry o( Argyle
VERÐ - GÆÐI - ÁNÆGJA
og verður í röð kraftmeiri stöðva
í heiminum. Tvær stöðvar hafa
500 kw. orku, Moskva-stöðin og
WLW í Cinncinnati í Bandaríkj-
unum. Nokkrar hafa 150 og 100
kw.
Þegar endurútvarpsstöðin á
Austurlandi er fullgerð, munu
truflanir frá útlöndum útilokað-
ar og auðveldara að útvarpa til
útlanda en áður.—Alþbl. 3. ág.
— Eg lánaði Jóni hundrað
krónur, en gleymdi að fá kvitt-
un.
— Skrifaðu honum og heimt-
aðu tvö hundruð krónurnar
aftur.
— Eg lánaði honum bara
hundrað.
— Það segir hann líka í svar-
inu, og þá hefir þú kvittun.
* • •
Menn verða ekki vitrir aðeins
með því að verða gamlir.
Clarence Darrow
-N. Dbl.
“HALFT AF HVERJU”
Rétta brauðið fyrir útiskemtanir, gestaboð, o. s. frv.
Meðmæla merki fjölskyldanna ber þetta brauð “Hálft af hverju”,
með sér. Hið tvískifta' bragð þess hefir hertekið heimilin. Svo er líka
gott til þess að vita, að með því að hafa bæði brúnt og hvítt brauð þá eru
hin heilsubætandi efni við hendina, jafnframt sjálfri kraftfæðunni, setn
nauðsynleg eru börnum á uppvaxtarárunum og heilsusamleg einnie fvrir
fullorðna.
Þetta nýja brauð er skorið í þunnar sneiðar og tvívafið svo það geym-
ist hreint og ferskt. Vér mælum sérstaklega með “Hálft af hverju.” Þér
skuluð reyna það, í næsta skifti sem umferðarsali vor kemur til yðar, og
sanna að yður mun geðjast vel að því. Það fæst líka í matsölu-og sætinda-
búðum, sem hafa vörur vorar á boðstólum.
33 604
SIMI
39 017
CANADA BREAD
COMPANY LIMITED
“Efnisgæðin eru fyrir áður en vörumerkið er sett.”
BR0ÐAR-OG AFMÆLIS-KÖKUR eftir pöntunum