Heimskringla - 24.08.1938, Side 7
WINNIPEG, 24. ÁGÚST 1938
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
BRÁÐABIRGÐA
ÚRLAUSN
Þó eg hafi ekki átt þeirri kur-
teisi að fagna frá kunningja mín-
um Mr. S. Guðmundssyni að
hann hafi svarað þeim spurning-
um, sem eg hefi lagt fyrir hann í
þeim orðaskiftum, sem við höf-
um átt út af social credit, þá
vil eg nú gera bráðabirgðar úr-
lausn með þær spurningar, sem
hann beinir til mín í Lögb. 11. þ.
m. Mér er að vísu ekki hægt um
vik að því leiti að eg hefi mjög
takmarkaðan tíma og hefi ekki
ritgerðir hans við hendina því
Lögberg fæ eg lánað til lesturs.
Get eg því ekki að svo stöddu,
tekið upp úr hinum fyrri rit-
smíðum hans máli mínu til
stuðnings. En það bætir nokkuð
úr skák að þetta síðasta skrif
hans inniheldur óyggjandi rök
fyrir þeirri staðhæfingu minni
að hann sé því ekki vaxinn að
skrifa um stjórnmálin í Alberta.
II.
Fyrsta spurning Mr. S. G. er á
þessa leið: “Hvað er það sem er
að gerast í kring um mig á
stjórnmálasviðinu sem eg skil
ekki, eða hefi misskilið? Eg
fullyrði það að þó leitað sé með
logandi ljósi í öllum stjórnmála
skrifum Mr. S. G. þá sjáist þess
hvergi vottur að hann skilji
neitt í eðli eða uppruna social
cerdit hreyfingarinnar í Alberta.
Fyrir þessu gerði eg nokkra
grein í fyrstu ritgerð minni um
þetta mál. Hann hefir frá upp-
hafi talað um hreyfinguna sem
heimskulega trúgirni fáráðlinga,
sem láti leiðast út í ógöngur af
mönnum, sem vísvitandi séu að
draga þá á tálar, því forgöngu-
menn hreyfingarinnar eru eftir
hinum djúpsæja skilningi Mr. S.
G. fífl, svikarar, skrípi, loddarar.
o. s. frv.
En Social Credit hreyfingin í
Alberta er beint áframhald
þeirrar umbótahyggju, sem fram
kom í hinum sameinaða flokki
bændanna. Þessi flokkur varð
svo öflugur að hann hélt völdum
í fylkinu um 14 ára skeið. En
mennirnir, sem flokkurinn fékk
stjórnartaumana í hendur héldu
áfram að reka fylkisbúskapinn
með lánsfé, héldu áfram að
skríða á hnjánum að fótskör
okraranna, og skrifa undir skuld-
bindingu fyrir hönd fólksins. Á-
rangurinn varð svo sá að fylkið
sökk dýpra, dýpra og allar þeirra
umbóta tilraunir svo sem Hveiti-
samlagið o. fl. fór í huhdana.
En vitanlega var credit' fylkis-
ins í bezta lagi meðan blessuð
bændastjórnin skrifaði á línuna
þar sem okrarinn benti til með
sínum volduga en náðarsama
fingri. En fólkið hélt áfram að
trúa Á lafidið sitt, og á “mátt
sinn og megin.” Bændurnir
fundu að þeir bjuggu í frjósömu,
auðugu landi og þeir skildu ekki
að forsjónin hefði skipað svo
fyrir að starf þeirra og strit
ætti að vera til þess eins að festa
síþyngri og harðari skuldaklafa
INNKÖLLUHARMENN HElMSKRINGLU
I CANADA:
Amaranth..............................J. B. Halldórsson
Antler, Sask.........................K. J. Abrahamson
Árnes...............................Sumarliði J. Kárdal
Árborg.................................G. O. Einarsson
Baldur...........................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville........................................Björn Þórðarson
Belmont...................................G. J. Oleson
Bredenbury...............................H. O. Loptsson
Brown............................... Thorst. J. Gíslason
Churchbridge-------------------------H. A. Hinriksson
Cypress River............................Páll Anderson
Dafoe...................................
Ebor Station, Man....................K. J. Abrahamson
Elfros.................................
Eriksdale........................................ólafur Hallsson
Fishing Lake, Sask...............................Rósm. Árnason
Foam Lake..............................H. G. Sigurðsson
Gimli................................... K. Kjernested
Geysir................................Tím. Böðvarsson
Glenboro.................................G. J. Oleson
Hayland...............................Slg. B. Helgason
Hecla................................Jóhann K. Johnson
Hnausa..................................Gestur S. Vídal
Hove....................................Andrés Skagfeld
Húsavík............................................John Kernested
Innisfail......................................Ófeigur Sigurðsson
Kandahar................................
Keewatin...............................Sigm. Björnsson
Langruth............................................B. Eyjólfsson
Leslie...............................Th. Guðmundsson
Lundar........................Sig. Jónsson, D. J. Landal
Markerville.........;............... Ófeigur Sigurðsson
Mozart..................................
Oak Point.......................... Mrs. L. S. Taylor
Oakview.............................
Otto......................................Björn Hördal
Piney...................................S. S. Anderson
Red Deer........................................ófeigur Sigurðsson
Reykjavík..................................Árni Pálsson
Riverton......................................„...Björn Hjörleifsson
Selkirk___________________________ Magnús Hjörleifsson
Sinclair, Man.........................K. J. Abrahamson
Steep Rock.................................Fred Snædal
Stony Hill................................Björn Hördal
Tantallon....;...................................Guðm. ólafsson
Thornhill...........................Thorst. J. Gíslason
Víöir..............................................Aug. Einarsson
Vancouver..............................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis.....................Finnbogi Hjálmarsson
Winnipeg Beach.....................................John Kernested
Wynyard..................................
I BANDARIKJUNUM:
Akra...................................Jón K. Einarsson
Bantry................................ E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash...................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash...................Séra Halldór E. Johnaon
Cavalier...............................Jón K. Einarsson
Edinburg....................................Jacob Hali
Garðar....;............................S. M. Breiðfjörð
Grafton...............................Mrs. E. Eastman
Hallson................................Jón K. Einarsson
Hensel..................................J. K. Einarsson
Ivanhoe............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St.
Milton...................................F. G. Vatnsdal
Minneota...........................Miss C. V. Dalmann
Mountain...............................Th. Thorfinnsson
Natlonal City, Calif......John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts..........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash.........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W
Svold.................................Jón K. EinarssoÐ
Upham................................. E. J. BreiðfjörO
The Viking Press Limiteð
Winnipeg; Manitoba
á hálsi eftirkomendanna. Það
var þetta hugarfar fólksins sem
kom því til að fylkja sér um
social credit stefnuna. Social
credit er vísindaleg aðferð til að
dreifa vinnuarðinum út á meðal
fólksins sem vinnuna leysir af
hendi, í stað þess að sú þjóðhag-
fræði, sem við nú lifum undir
safnar vinnuarðinum í hendur
fárra manna og skulda súpu yfir
höfuð fjöldans. Social credit
flokkurinn Tiefir það markmið
að hætta að safna skuldum og
reka þjóðarbúskapinn á sinni
eigin credit, hætta að skríða upp
að fótskör kúgaranna, til að
biðja um leyfi til að lifa og
njóta sinnar eigin framleiðslu.
Hvort þeim tekst að ná þessu
markmiði verður tíminn að leiða
í Ijós.
III.
Önnur spurning S. G. er á
þessa leið: Hvað er það sem eg
hefi rangfært um athafnir social
credit stjórnarinnar í Alberta?
.Þessari skurningu er nú í
rauninni svarað meðl því, sem að
framan er sagt. Hvernig ætti
maður, sem hvorki skilur eðli
uppruna eða markmið hreyfing-
arinnar að geta dæmt um eða lit-
ið sanngjarnlega á þær tilraunir
sem gerðar eru til að koma hug-
sjónum hreyfingarinnar í fram-
kvæmd. Maður skyldi nú ætla
að Mr. S. G. reyndi nú að forðast
rangfærslu “um athafnir stjórn-
arinnar” í þessari áskorunar-
grein sinni. Þar stendur
meðal annars þessi klausa: “Alt,
sem stjórnin með þessum há-
launuðu “expertum” hefir að-
hafst er að gefa út lög, sem þeir
sjálfir, eins og allir aðrir vissu
að voru ólögmæt, og gætu því
ekki öðlast gildi. Svo alt, sem
þeir hafa aðhafst hefir verið
dæmt dautt og ómerkt.” Mál-
tækið segir: “að fáir ljúgi meir
en um helming.” En hér hefir
þá Sfréttaritaranum í Edmonton
tekist stórum betur. Síðasta
þingið í Alberta afgreiddi yfir 60
lög og lagabreytingar, af þeim
man eg ekki eftir nema 3. sem
neitað var um staðfesting, hin
standa. Og þessu líkt er flest
það sem fréttaritarinn hefir
verið að fræða okkur um, að því
er athafnir stjórnarinnar í Al-
berta snertir.
IV.
Nú kemur þriðja og síðasta
spurningin, sem Mr. S. G. vill
láta mig svara: “Hvar eru þess-
ar blaðalygar að finna í skrifum
mínum um Alberta stjórnina,
sem hann er að staglast á? Mr.
S. G. í Lögb. 11. þ. m.
Strax þegar Aberhart stjórnin
tók við völdum í Alberta, byrj-
uðu auðvaldsblöðin, eins og eðli-
legt var, að úthrópa hana og
níða, svo sem gert er um alt og
alla, sem álitið er að auðvaldinu
stafi hætta af. Orð og gerðir
þeirra sem stjórnina skipuðu
voru rangfærð og rægð, þeir áttu
að vera fífl og skýjaglópar. —
Social credit kenningin átti að
vera óskiljanlegur heilaspuni og
lokleysa, fylgjendur hennar auð-
trúa hugsunarlausir bjálfar, sem
trúðu því að þeir fengi 25 doll-
ara á mánuði fyrir ekki neitt.
Þetta var nú ekki nema það,
sem búast mátti við úr þeirri átt.
Eg hefi lesið flest eða öll skrif
Mr. S. G. og man ekki eftir nema
einu atriði, sem eg ekki áður
hafði lesið í hinum ensku blöð-
um. Af því hefi eg dregið þá
ályktun að auðvaldsblöðin væri
hans fræðslulind, og skrif hans
eru í mínum augum ekkert ann-
að en skilningslaust uppjórtur
þess sem launaðir ritþrælar
hinna ensku blaða skrifa til þess
að vinna sér daglegt brauð, en í
flestum tilfellum móti betri vit-
und. Þetta eina atriði sem eg
inan eftir, í skrifum Mr. S. G., að
eg ekki hefði áður lesið annar-
staðar, var gleðihlakk hans yfir
því þegar Unwin og Powell voru
settir í fangelsi. Eg hafði að
vísu lesið fréttina, en hinir
ensku voru nógu smekkvjsir til
þess að hnýta engum gleðilátum
við hana. \
V.
Á eftir þessum spurningum
sínum skrifar svo Mr. S. G. all-
langt mál til þess allir megi nú
sjá að þarna sé maður, sem sé
því vaxinn að skrifa um stjórn-
málin. Þetta skrif hans er löng
runa af staðhæfingum út í loftið.
Og flestar eru þannig vaxnar að
þó sannar væri, þá sanna þær
ekki það, sem hann ætlast til að
þær geri. T. d. þó það væri satt
að útgjöld og jafnvel skattar
hafi hækkað í Alberta, sannar
það ekki neitt um vanspilun eða
óráðsemi stjórnarinnar. Til þess
að sanna mál sitt verður Mr. S.
G. að koma með rökstuddan
samanburð á stjórnarkostnað í
Alberta og hinum öðrum fylkj-
um, þar sem líkt stendur á. —
Gagnvart útgjöldum verður hann
að sýna fram á að þau sé eyðslu-
fé stjórnarinnar, en ekki nauð-
synleg útgjöld. Gagnvart skött-
unum verður hann að sýna fram
á að þeir sé hærri og einnig
hvernig þeim er jafnað niður á
gjaldendur, í hverju fylki fyrir
sig. Meðan hann gerir ekkert í
þessa átt standa þessar staðhæf-
ingar hans eins og hver annar
vaðall sem fáir taka mak á, og
enginn getur orðið fróðari af að
lesa. Eitt af því sem Mr. S. G.
telur upp og hann segir hafi
valdið “ómetanlegu tapi fyrir al-
menning” er það að stjórnin hafi
“svikist um að borga rentur af
skuldum fylkisins; eftir því ætti
almenningur að græða á því að
borga rentur af skuldum. Eftir
þessari spaklegu kenningu ætti
þá að kappkosta að auka, sem
allra mest skuldirnar svo al-
menningi gefist kostur á að
græða, sem allra mest á því að
borga af þeim vextina. “Hann
veit hvað hann syngur, karlinn
sá.”
En sleppum því. Það sem eg
giska á að Mr. S. G. eigi við er
hann talar um þessa sviksemi
stjórnarinnar, er það að skömmu
eftir að hún kom til valda færði
hún niður vexti á opinberum
skuldum fylkisins. • Þessa “at-
höfn” stjórnarinnar telur Mr. S.
G. “dauða”, en samt er hún svo
lifandi að henni er enn fram-
fylgt í Alberta. Stjórnin borgar
ekki, og ætlar sér ekki að borga,
nema það, sem hún sjálf ákvað
helming vaxtanna og nú er Mr.
S. G. fullur af réttri reiði yfir
því að almenningi sé ekki gefinn
kostur á að græða á því að borga
hinn helminginn. En hann sér j
þó eina vonar stjörnu í gegnum
þetta syndamyrkur, vöxtunum j
I má bæta við höfuðstólinn, svo:
þessi f jársjóður almennings glat-1
j ist ekki. Svo vonar hann að fólk- J
jið fái bráðum stjórn sem hefir:
enga “þrjóáku í frammi, ien
skrifar auðmjúklega og möglun-1
! arlaust undir skuldbindingarnar j
eftir því sem hið náðuga auðvald j
I skipar fyrir, þá er credit fylkis-1
I ins borgið og blessað, fólkið
getur farið að græða á því að
■ borga rentur ogi allir geta orðið
auðugir — með því að taka lán. I
i
VI.
Einnig skýrir Mr. S. G. frá því
að hann hafi áður haldið því
fram að það sé “engin social
credit stjórn í Alberta”. Finst
honum víst að þetta sé afar
djúpvitur athugun, og hefir
sjálfsagt lagt feikna mikið á
sig til þess að “finna þetta út,
því hann segist vera búinn að
grafa upp “ótal rök” fyrir því
að þetta sé rétt. Það er almenn
málvenja að kenna stjórnina við
þann flokk sem setur hana til
valda, þessvegna er Alberta-
stjórnin nefnd social credit
stjórn. Hitt var mér fullljóst
áður að social credit fyrirkomu-
lag er enn ekki komið á í Al-
berta. Svo eg sé ekki að eg
hafi neitt grætt á þessari merki-
legu uppgötvun Mr. S. G.
- NAFNSPJÖLD -
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrlístoíusíml: 23 674 Stundar sérstakjega lungnasjúk- dóma. Er að flnnl & skrifatofu kl. 10—12 f. h. og 3—6 e. h. Helmlll: 46 Alloway Ave. Talsími: 33 15» G. S. THORVALDSON B.A., LL.B. LögfrceOingur * 702 Confederatlon Llfe Bldg. Talsíml 97 024
Omci Phoki Ris. Phoni 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ART8 BUILDINO Omci Hotms: > 12-1 4 r.u. - « r.u uro sr ÁPPonmnin W. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFANSSON ÍSLKNZKIR LOOFRÆÐINOAR 4 öðru gólfl 32$ Main Street Talsimi: 97 621 ' Haía etnnig skrlfstofur að Lundar og Gimll og eru þar að hltta, fyrsta rnlðvlkudag | hverjum m&nuðl.
Dr. S. J. Johannes.ion 218 Sherburn Street Talalml SO 877 VlOtaletlml kl. S—6 e. h. M. HJALTASON, M.D. ALMKNNAR LÆKNINOAR Sérgrein: Taugatjúkdómar Leetur ÚU meðöl t viðlögum VlVtalatfmar kl. 2—4 «. fc. 7—1 >t kveldlnu Slml «0 367 666 Vlctor St
J. J. Swanson & Co. Ltd. RZALTORS- RmUl. Inturane* and Tinancial Attmta 81ml: 94 221 •09 PARIS BLDO.—Wlnnipe* A. S. BARDAL ■elur llkklatur og annaat um útíar- lr. Allur útbúnaður ak hrwli. — Enn/remur telur hann «n.^— minnlBvarða og legiteina. »43 8HERBROOKS 8T. Phone: 16 607 WINNIFBO
r— >
Gunnar Erlendsson Ptanokennarl Kenslustofa: 701 Vlctor St. Simi 89 535 1 THL WATCH SHOP Thorlakson Baldwin Diamonds and Wedding Rings Agents for Bulova Watches Marriagje Licenses Issued 699 Sargent Ave.
Jacob F. Bjamason —TRANSFER— Baggage ani Furnitwre Moving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast allskonar flutnlnga fram og aftur um bselnn. Rovatzos Floral Shop *0ð Notre Dame Ave. Pbone 94 954 Freah Cut Flowers DaUy Planta ln Seaaon We specialize ln Wedding ft Concert Bouquets St Funer&l Deaigna Icelandlc apoken
VII. ■ Þá telur Mr. S. G. upp margt, sem honum finst eg ætti að lesa mér til upplýsingar og þakka eg honum fyrir þá góðvild, sem hann sýnir í þessu. Að uhdan- teknu því sem hann segir að MARGARET DALMAN TKACHKR OF PIANO IS4 BANNINO ST. Pbone: 2« 420
dómararnir í leyndaráði Breta
hafi sagt um Alberta-stjórnina,
hafði eg lesið alt þetta sem hann
telur upp. Meira að segja las
eg það svo vel að eg get bent
honum á að það, sem hann hefir
eftir Major Douglas gefur al-
ranga hugmynd um það sem
hann, sagði, eins og allur hálf-
sannleikur, vanalega gerir. Orð-
in eru að vísu nokkurn vegin
rétt höfð eftir, en Douglas gerði
grein fyrir því sem hann sagði.
Og ástæðurnar voru þessar: Al-
berta stjórnin var kosin á “pro-
test vote”. Það er að segja, fyr-
ir fólkinu vakti það að losa sig
við stjórnina og stjórnarfarið
sem þá hafði ríkt að undanförnu.
Fylkið hefir takmarkað stjórnar-
vald og stjórnin hefir þvi ekki
getað stjórnað eftir sinni vild.
En hann gaf það ótvíræðilega í
skyn að hann vonaðist eftir að
stjórnin mundi áður en langt líð-
ur fá aukið vald og þá geta sett
á stofn social credit fyrirkomu-
lag. Þó eg sé alls ekki sam-
þykkur öllu sem Douglas sagði
að þessu sinni, þá geta allir
séð að það á ekkert skylt við
vaðal Mr. S. G. í því er alt of
mikið af viti til þess að svo gæti
verið. Mér er einnig vel kunn-
ugt það, sem Mr. J. Hargrave
heÆr opinberlega sagt um Al-
berta stjórnina. Hann hefir
aldrei ásakað hana fyrir fals eða
svik eins og Mr. S. G. hefir gert,
en honum sýndist henni vera
ráðfátt í því að koma hugmynd-
um sínum í framkvæmd, með-
fram vegna fjármála örðugleika
og óreiðu, er hún tók í arf þegar
i
hún settist að völdum. Og hann
ráðlagði stjórninni að setja af
stað sitt social credit fyrirkomu-
lag og stjórna samkvæmt því,
hvað sem stjórnarskrá og Ot-
tawa stjórn kynni að hafa um
það að segja, það væri nóg rúm
í ruslakörfunni fyrir bréfin frá
Ottawa.
Mr. S. G. finst auðsjáanlega að
hann sé að vaxa í vitsku og páð
hjá — auðvaldinu — áður hefir
hann látið sér nægja að vera al-
meningurinn í Alberta, nú finst
honum hann vera “Canada þjóð-
in yfirlejtt”. Og hann fræðir
mig um það að “Canada þjóðinni
yfirleitt’’ standi mestur stuggur
af social credit flokknum.
En þó Mr. S. G. haldi nú að
hann sé orðinn svona stór þá er
eg enn svo forhertur að eg leyfi
mér að setja þessa staðhæfingu
hans á bekk með öðru bulli hans.
Social credit flokkurinn hefir
fleiri fylgjendur í Canada nú en
hann hefir nokkurn tíma áður
haft, og af honum stendur eng-
um stuggur nema þeim, sem pen-
ingaráðin hafa og fáeinum and-
legum örkvisum, sem svo eru
svínbeygðir undir auðvalds okinu
að þeir þora ekki að draga and-
ann nema með leyfi frá hærri
stöðum, eru búnir að missa sjón-
ar á frelsi og lýðræði, og sjá of-
sjónir og verða ótfáslegnir ef
þeir mæta nýrri sjálfstæðri
hugsun.
Hjálmar Gíslason
Lesið Heimskrlnglu
Borgið Heimskringlu