Heimskringla - 21.09.1938, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 21. SEPT. 1938
HEIMSKRINGLA
7. SÍÐA
GULLBRÚÐKAUP
Eiríks og ólafar Jóhannsson
í Árborg, Man.
Sunnudaginn 28. ágúst, er var
einn af hinum indælu sólríku
dögum þessa útlíðanda sumars
fjölmenti fólk mjög til samfagn-
aðar með ofangreindum hjónum
í samkomuhúMi Goodtemplju’ai
hér í Árborg. Það jók mjög á
fögnuðinn að öll börn hinna
öldruðu hjóna voru viðstödd,
voru sum ásamt frændkonum
þeirra komin úr fjarlægð. Sam-
sætið hófst með því að sóknar-
prestur, er var falin veizlustjórn
lét syngja sálm, las ritningar-
kafla, en bæn flutti séra Rún-
ólfur prófessor Marteinsson. Á-
varpaði forseti því næst saman-
safnaða gesti, og las upp skeyti
til heiðursgesta. Því næst var
sungið af viðstöddum: “Hvað
er svo glatt, sem góðra vina
fundur.” — Því næst mælti Mrs.
Hermann von Renesse fyrir
minni gullbrúðarinnar. Var því
næst sungið “Fósturlandsins
freyja” o. s. frv. Fyrir minni
brúðgumans mælti Mr. Björn I.
Sigváldason bóndi í Árborg. Var
þá sungið af fólkinu “Þú blá-
fjallageimur með heiðjökla
hring” o. s. frv.
Því næst flutti séra Rúnólfur
Marteinsson ræðu, og ávarpaði
hjónin bæði, en sér í lagi Eirík
bónda. Mr. B. Lífmann ávarp-
aði heiðursgesti fyrir hönd
lestrarfélagsins “Fróðleikshvöt”.
Sóknarprestur las ávarp frá Ár-
dalssöfnuði í Árborg, en í þess-
um nefndu félögum hafa hin
öldruðu hjón verið starfandi og
trúfastir meðlimir. Næst voru
gjafir afhentar: blóm frábarna-
börnum, er lítil sonardóttir
heiðursgestanna, Anna að nafni,
bar fram; frá börnum þeirra:
vegleg brjóstnæla og styrkur
stafur og frá frændkonu gull-
brúðarinnar, Mrs. Mehari í Win-
nipeg peningabudda, frá bygð-
arfólki peninga upphæð. Sig-
mundur sonur heiðursgestanna
bar fram þakklætisorð einkar
vel völd fyrir hönd foreldra
sinna. Ræður þær er fluttar
voru sköpuðu hugarstefnu móts-
ins og gerðu það yndislegt. —
Ræða Mrs. von Renesse var
einkar hlý í anda og orðum.
Minni Mr. Sigvaldasonar var
mjög ítarlegt og lýsti félagslífi
frumbýlingsáranna og afstöðu
heiðursgestsins og hugarstefnu
hans, en glöggri félagskend og
skilningi félagsmála hjá ræðu-
manni. f ávarpi sínu dvaldi
séra Rúnólfur við sögu liðins
tíma, snertandi fyrstu kynningu
af hjónunum sem verið var að
heiðra. Virtist þeim er þetta
ritar að þær séu næg efni til frá-
sagna — margþætt reynsla land-
nemalífsins — og prestanna er
þá og síðar hafa starfað. En
hvenær verða þær sagnir bók-
festar ? Erindi séra Rúnólfs var
einkar fagurt og skáldlegt
erindi.
Jóhannsson hjónin eru bæði
norðlenzk að ætt'; Eiríkur er
æ^aður frá Héraðsdal, dvaldi
INNKOLLUNARMENN HEIMSKRINGLU
I CANADA:
Amaranth...............................J. B. Halldórsson
Antler, Sask..........................K. J. Abrahamson
Árnes................................Sumarliði J. Kárdal
Árborg................................G. O. Einarsson
Baldur................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville..............................Björn Þórðarson
Belmont...................................G. J. Oleson
Bredenbury.............................H. O. Loptsson
Brown.....................’..........Thorst. J. Gíslason
Churchbridge__________________________H. A. Hinriksson
Cypress River............................Páll Anderson
Dafoe...............................?....S. S. Anderson
Ebor Station, Man....................K. J. Abrahamson
Elfros...............................J. H. Goodmundson
Eriksdale..............................ólafur Hallsson
Fishing Lake, Sask.....................Rósm. Árnason
Foam Lake..............................H. G. Sigurðsson
Gimli................................... K. Kjernested
Geysir............................. Tím. Böðvarsson
Glenboro.................................G. J. Oleson
Hayland...............................Slg. B. Helgason
Hecla..................................Jóhann K. Johnson
Hnausa.................................Gestur S. Vídal
Húsavík................................John Kernested
Innisfail............................Ófeigur Sigurðsson
Kandahar............................... S. S. Anderson
Keewatin...............................Sigm. Björnsson
Langruth..................................B. Eyjólfsson
Leslie...............................Th. Guðmundsson
Lundar........................Sig. Jónsson, D. J. Líndal
Markerville.................:...... Ófeigur Sigurðsson
Mozart .............................. —S. S. Anderson
Oak Point...-.........................Mrs. L. S. Taylor
Oakview....................................S. Sigfússon
Otto.....:...,............................Björn Hördal
Piney....................................S. S. AndersoD
Red Deer............................Ófeigur Sigurðsson
Reykjavík...........................................Árni Pálsson
Riverton...........................................Björn Hjörleifsson
Selkirk.............................Magnús Hjörleifsson
Sinclair, Man.......................k. J. Abrahamson
Steep Rock........................................Fred Snædal
Stony Hill................................ Björn Hördal
Tantallon ............................Guðm. Ólafsson
Thornhill...........................Thorst. J. Gíslason
Víðir..................................'..Aug. Einarsson
Vancouver..^...,......■».............Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis.....................Finnbogi Hjálmarsson
Winnipeg Beach..........................John Kernested
Wynyard ...............................S. S. Anderson
I BANDARÍKJUNUM:
Akra................................ Jón K. Einarsson
Bantry................................. E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash..................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash...................Séra Halldór E. Johnson
Cavalier...............................Jón K. Einarsson
Edinburg....................................Jacob HaU
Garðar....................................
Grafton.................................Mrs. E. Eastman
Hallson................................Jón K. EJinarsson
Hensel..................................J. K. Einarsson
Ivanhoe.............................Mlss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St.
Mllt°n.....................................S. Goodman •
Minneota............................Miss C. V. Dalmann
Mountain...............................Th. Thorfinnsson
National City, Calif......John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts..........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash..........j j. Middal, 6723—21st Ave. N. W
Svold................................... K. EinarssoB
Upham..................................... J. Breiðfjörö
Vskiitg Press
Winnipeg Manitoba
hann þar og síðar á Hofgríms-
stöðum í Tunguscveit í Skaga-
fjarðarsýslu. Átta vertíðir reri
hann á Suðurlandi og þjálfaðist
hann í þeim ferðalögum eins og
þau þá voru og í sjóróðrum
sunnanlands. Ólöf kona hans er
Ingólfsdóttir, fædd að Hnaus-
um í Húnaþingi, er ætt hennar
að nokkru skagfirsk. Þau voru
gift á Reykjum í Tungusveit, 4.
sept. 1887, af séra Jóni Sveins-
syni, sóknarpresti að Mælifelli.
Er þau fluttu vestur um haf
settust þau fyrst áð í Húsavík-
ur umhverfi sunnanvert við
Gimli, en síðar um hríð í Min-
erva bygð, en hurfu þaðan eftir
stutta dvöl og námu land vest-
anvert við Árborg og bjuggu
þar um mörg ár, en síðar austan
Árborgar á takmörkum Árdals
og Geysisbygðar, en nú búa.þau
í Árborg, í grend við Sigmund
son sinn.
Börn þeirra á lífi eru: Ingólf-
ur fiskimaður í Riverton, kvænt-
ur Júlíönu Helgadóttir Ásbjarn-
arsonar í Mikley. Margrét gift
John Bedford Thompson, búa
þau í Alberta fylki. Jóha’nna
Sigurlín kona Ingimars Thor-
varðarsonar bónda í grend við
Árborg. Sigmundur trésmiður í
Árborg, ,kvæntur Kristínu
Hallsdóttir Thorvarðarsonar í
Geysisbygð. Barnabörri hinna
öldruðu hjóna eru 14 talsins á
lífi. Eiríkur Jóhannsson og Ólöf
kona hans hafa barist góðri
baráttu og notið samstiltra
krafta á sigurbraut. Hann fjör-
maður hinn mesti og ágætum
gáfum gæddur, með óþrotlega
lestrar og fróðleiksfýsn, hún
.staðföst og styrk og þróttlund-
uð. Heimilið hefir altaf verið
mjög íslenzkt í anda og grand-
gæfilega fylgst með öllul er ís-
land og giftu þess og gengi
snertir. Engan mann hefi eg
fyrirfundið á réttri 36 ára veg-
ferð vestan hafs, er betur
fylgdist með því sem var að
gerast heima á ættjörðinni en
einmitt hann. Það var ljúft
hlutverk að heiðra þessi góðu
hjón og samgleðjast þeim og
mannvænlegum og velg|bfnum
börnum þeirra og afkomendum.
Fólk naut sín vel og eðlilega.
Söngvar voru sungnir milli
þess að ræður voru fluttar. —
Miss Josephine S. Ólafsson
kenslukona lék á hljóðfæri. —
Konur úr kvenfélagi Árdals-
safnaðar framreiddu ágætar
veitingar. Fólk fann að stund-
inni hafði verið vel varið, í
samfögnuði með ástvinum
þeim er hér áttu hlut að máli,
og árna þeim sameiginlega in-
dælla stunda og fagurs æfi-
kvölds, og ástvinum þeirra
gæfu og gengis.
Sigurður ólafsson
SÖNGUR DIMITTENDA
1938
Út gekk maður að sá.
Auður akurinn lá.
Svipur andvana grúfði yfir
löndum.
En á döggvaða rein
fræin fögur og hrein
hnigu fislétt úr sáðmannsins
höndum.
Greinast rætur um svörð.
öxin bylgjast um börð,
full af blómlegum næringar
auði.
Það er sáðmannsins pund,
að með leikandi lund
skóp hann líf, þar sem áður
var dauði.
Nú er knýjandi þörf
fyrir strengileg störf,
til að styrkja þann andlega
gróður,
vekur drengskap og dug
sem í æskunnar hug
og þær dygðir, sem auka vorn
hróður.
Megi skóla vors starf
skapa andlegan arf
og þann akur á sálnaiina rein-
um,
þar sem skynsemin grær
og sá mjötviður mær,
sem ber menningu og þroska á
greinum.
Hugur fyllist af þökk,
og sú kveðja er klökk,
sem er komin úr þakklátu
hjarta.
— öll þín framtíðar spor,
ylji vinhugur vor,
ást og virðingu hlýja og bjarta.
Magnús Kjartansson |
Hér á undan er birt fallegt
kvæði eftir pilt, sem lauk stúd-1
entsprófi á síðastliðnu vori. Og
þó er kvæðið ekki fyrst og
fremst birt fyrir það hve fall-
egt það er, heldur af því, að i
það virðist bera vott um breyt- 1
ingu á afstöðu nemendanna til
þessarar merku og mikilsverðu
stofnunar.
Framfarir á sviði uppeldis-!
mála hafa orðið miklar í seinni \
tíð. ' Mentaskólinn hefir verið
erfiður skóli og er það enn. En
afstaðan milli skólastjórnar og
kennara annarsvegar, en nem-
enda hinsvegar, er að breytast,
og óefað til bóta.
Vandað er til kenslu og náms
eigi síður en áður. En sam-
búðin mun orðin með nokkuð
öðrum hætti en áður fyr.
Til þess benda meðal annars
námsferðir, íþrjóttaferðir og
skólaselið, sem nú er að rísa.
Er gott til alls þessa að vita.
Og þess þá að vænta, að þeim
fækki óðum, sem vitni um að
þá hafi “kalið á hjarta” í skóla
þessum.
Kvæði Magn. Kjartanssopar
er merkisviðburður, ef það er
svo, að nemendur Mentaskól-
ans í Reykjavík eru farnir að
finna til líkt og hann. En sá
hlýtur að vera megintilgangur
skólans, að fóstra fólk, sem
finnur þörfina á því að skólan-
um takist að styrkja gróður,
sem í hug æskunnar vekur til
dáða og drengskapar.
En að Magnús sé ekki einn
til vitnis um að skólanum sé
að hepnast þetta betur en um
sinn, má marka af því, að ann-
ar námsmaður við skólann,
Helgi Þorkelsson, samdi lag við
kvæði Magnúsar, og var hvort-
tveggja flutt á kveðjufundi,
þegar sjálfu náminu var lokið
á síðastliðnum vetri og upplest-
ur undir lokapróf hófst.
Loks verður það að tqljast
góðs viti í þessu sambandi, að
piltur sá, sem kvæðið samdi,
lauk einu hinu glæsilegasta
stúdentsprófi, sem saga Menta-
skólans greinir.
En viðhorfið gagnvart skóla,
sem dvalið er í við erfitt nám
á æskuárum, setur svipmót á
viðhorfið til Viðfangsefnanna,
þegar út í lífið kemur.
—N. Dbl. 16. ág. G. M.
EARL (ERLENDUR)
ERLENDSON
Earl (Erlendur Erlendson
sem í fjörutíu ár hefir verið í
þjónustu Great Northern járn-
brautar félagsins, dó á heim-
ili sínu í Grafton, N. Dak., 17.
ágúst, 58 ára að aldri. Hann
hafði :átt við heilstutylun að
stríða um nokkurt undanfarið
skeið, t. d. mikinn blóðþrýst-
ing, ásamt veikluðu hjarta, en
heilablóðfall varð banameinið.
Hann var fæddur á Jökli í
Eyjafirði. Foreldrar hans voru
Jóhann Erlendsson Ólafssonar
bókbindara í Kaupangi og
aeinna meir á Altureyri, og
konu hans, Sigurbjargar Guð-
laugsdóttur Eiríksonar frá
Steinkirkju (í P’njóskadal.
Aðeins sex ára að aldri kom
hann með foreldrum sínum til
Vesturheims. Það sem eftir
var sumarsins 1886 og næsta
vetur voru þau hjá skylduliði í
grend við Glaston, en fluttu
svo til Garðar, óg þar voru þau
þrjú ár, eða þar til þau fluttu
norður og austur til Akra, á
land það sem Arngrímur heit-
inn Jónsson (bróðir Thos. H.
- NAFNSPJÖLD -
=r aaU
Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldg. Skrifstofusiml: 23 674 Stundar sérstaklega lungnasjúk- dóma. & að finnl á skrifstofu kl. 10—1: f. h. og 2—6 e. h. Heimlli: 46 Alloway Ave. Talsimi: 33 15* g". s. THORVALDSON B.A., LL.B. Lögfrœðingur 702 ConfederaUon Liíe Bldg. Talsími 97 024
Orrics Phonb Res Phonv 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 10» MEDICAL ARTS BUILDING OrncK Hours: 12 - 1 4 r M. - 6 p.m »ND BY APPOINTMENT w. J. LINDAL, K.C. BJÖRN STEFÁNSSON tSLENZK 1R LOGFRÆÐINQAR á öðru gólfi 325 Main Street Talsimi: 97 621 Hafa einnlg skrifstofur að aA Glm11 eru þar að hJtta, fyrsta miðvikudag 1 hverjum mánuði.
Dr. S. J. Johannes u»n 218 Sherburn Street Talsimi 30 877 ViOtalstími kl. 8—6 e. ht M. HJALTASON, M.D. ALMENNAR LÆKNINQAR Sérgrein: Taugasjúkdómar Lœtur úu meðöl < viðlögurf VIBtalstímar kl. 2 4 « n 7—8 að kveldinu Sími 80 867 666 vlctQr 8t
J. J.* Swanson & Co. Líd. RBALTORS Rental, Insurance and Financtal Agents Slmi: 94 221 600 PARIS BLDG.—Wlnnlpeg A. S. BARDAL selur Ilkklstur og annast um útfar- V. Allur útbúnaður sá besti _ Ennfremur selur hann allskonar mlnntsvarðá og Iegsteina. 843 SHBRBROOKE ST Phone: 86 607 WINNIPEQ
Gunnar Erlendsson Planokennari Kenslustofa: 701 Victor St. Síroi 89 535 thl watch shop Thorlakson Baldwin Diamonds and Wedding Rings Agents f°r Bulova Watches Marnage Licenses Issued 699 Sargent Ave.
Jacob F. Bjarnason —TRANSFER— Baggage and Furniture Moving 591 SHERBURN ST. Phone 35 909 Annast ailskonar flutnlnga fram og aítur um bæinn. Rovatzos Floral Shop ^Ofl Notre Danie Ave. Phone »4 »54 Freah /Cut Flowers Daily Plants íd Season We specialize in Wedding * Concert Bouquets & Funeral Design8 Xcelandlc spoken l
Johnson, ráðherra) yfirgaf. —
Þar naut Elli (því svo var
hann ávalt nefndur) aíþýðu-
skólamentunar, og var mest í
foreldrahúsum, þar til 1898, að
hann tók fyrir sig ^ímritara
nám hjá G. N. járnbrautarfé-
laginu í Edinburg, N. Dak. í
tuttugu ár var hann í þjónustu
félagsins sem símritari, á ýms-
um stöðvum í N. Dakota og
Minnesota. Árið 1918 var hann
skipaðpr gjaldkeri félagsins í
Grafton, og þá miklu ábyrgðar-
stöðu fylti hann með alveg sér-
stakri alúð og samvizkusemi
sem orð var gert á.
Árið 1922 gekk hann í
hjónaband og giftist Kathryn
Feick, af þýzk-skoskum ættum.
Þau eignuðust þrjú börn, öll
stúlkur, Patricia, sú elsta af
börnunum er 15 ára, June 9. og
Jean mistu þaninnan eins árs.
Útförin fór fram frá heim-
ilinu og Sambandskirkjunni í
Grafton, að viðstöddu fjöl-
menni. — Til söngs og allrar
kirkjulegrar viðurhafnar er
sjaldan svo efnt, eins og nú var
var gert, því svo mikil var vin-
sæld hans, að alla dróg nær, og
helstu borgarar í Grafton
fylgdu honum til grafar.
Hann var lagður til hvíldar í
Neche, þar sem litla stúlkan
hans var grafin fyrir 10 árum
síðan.
Foreldrar hans eru dánir
fyrir nokkrum árum en syst-
kyni á hann á lífi, Mrs. J. H.
Norman, Hensel, N. D., Eggert,
Grafton; J. J. Erlendson, Frið-
rik og Tryggva, Hensel.
MARGARET DALMAN
teacher of piano
S54 BANNINQ ST
Phone: 2« 420
ÁTTHAGAR
Átthagána, — árin blíð
ennþá man eg liðin
fjárhópana, fjallahlíð,
fagra svanakliðinn.
Sérhver þánar þela-brún
þar, og ránin linna,
íslands fáni hátt við hún
hér skal lánið finna.
Ættfeðranna rækjum rún
raun þó banni og stritið,
sannar manndóms máttinn hún,
met og sanna vitið.
Móðurjarðar mentalán
mannsins varðar brautir,
gegnum harða heimsirís þján
heimskugarð og þrautir.
Því það eyðir þoku-hríð,
þroska greiðir sporin
æfiskeiðin ung og fríð
áframleiðum borin.
Ljóðin spinna land og sær,
lista tvinnuð böndum
sem að finnum fjær og nær
á fjarðarmynna ströndum.
Fram um daga, ár og öld
er vor saga runnin
úr átthaga fræða-fjöld
fræga bagan spunnin.
Sagna spjöldin rituð rétt,
ráð og völdin sæma,
sem frá öldum eru sett
og þín gjöldin dæma.
Mistur hylur fortíð fjær
föngin til er sækjum,
aldrei dylur úrlausn nær
ef vér skilin rækjum.
Og af hróður ótæmd sézt
einkaþjóðar myndin,
instu glóða eðli fest
íslenzk gróðurlindin.
M. Ingimarssoi