Heimskringla - 28.12.1938, Qupperneq 7
WINNIPEG, 28. DES. 1938
HEIMSKRINCLA
7. SÍÐA
Þetta ár mögulegt er, fjósið var svo full-
MIN FYRSTU JóL OG
NÝÁR 1 AMERÍKU
Eftir Kristínu í Watertown
Vér vonum að sumum þyki
gaman af að líta í anda inn í
gömlu nýbyggjara húsin og
heyra samtalið, gömlu söngvana,
sögur og samræður, sem þá voru
haldnar. Fólkið stóð á einskon-
ar vegamótum tímans, menn
hugsuðu svo hjartanlega hlýtt
til gamla landsins. Nýja landið
var bjart og ríkt af framtíðar
vonum. Margt af ungu fólki
flutti þá af gamla landinu til að
leita sér fjár og frama eins og
þar stendur; Fjölskylda gamla
landsins of stór fyrir efnahag-
inn, stundum þröngt í búi og
þröngt í sæti, svo bezt er að
reyna lukkuna í Vesturheimi. -—
Ný glæsileg heimsálfa var svo
máluð á yfirborð framtíðarinn-
ar, með veðurblíðu, auðsæld,
frelsi og mentun. Þetta var eins
og opinberun í huga mínum.
Guð hefir í náð litið til smæl-
ingja sinna og ætlar að gefa
þeim land, sem flýtur í mjólk
og hunangi, eins og Israel forð-
um.
Allir sjá þetta var engin von-
ardraumur. En aldrei skal eg
því veðursæld og frelsi og hitt
og annað gott mun þá líka koma.
Með þessum hugsunum kvaddi
eg ættjörð mína og kom til nýja
landsins, settist að hjá foreldr-
um mínum fyrsta árið.
færði mér vonbrigði, það var ó-
tíðarveturinn mikfi 1880'—81,
sem gekk yfir heim allan^ fann-
koma og frost mikil, svo að
segja á hverjum degi frá miðj-
um október til apríl, alt fenti í
kaf, allar samgöngur teptust;
menn reyndu að ferðast á skíð-
um og þótti erfitt. Ekki er nú
alt gull sem glóir, hugsaði eg.
Eg sem bjóst við sólskini og
blómum árið um kring í Ame-
ríku, hélt að alt landið væri
eins og vesturríkin, rósarunnar
og rúsínuflekkir alstaðar.
Foreldrar mínir, Þorkell og
Sigríður, bjuggu í nýbyggjara-
húsi á sléttunni, sextán mílur
vestur af Minneota, í hinni svo-
kölluðu íslendinga-bygð í Minne-
sota. Þau höfðu landspildu sem
nýbyggjarar vanalega tileinka
sér, hundrað og sextíu ekrur af
landi, dálítin gripastofn, mat-
jurtagarð, hænsni og svín. En
hveiti'akur var ekki komin til
sögunnar, því þetta var fyrsta
búskaparár á landinu. Flestir
landar í bygðinni voru af Aust-
urlandi, nokkrir af Suður- og
Vesturlandi.
Þótti mér gaman að heim-
sækja landa, sem ætíð eru frjáls-
ir og gestrisnir. Faðir minn
bygði gripahús; um haustið voru
því svo að segja nótt og dag, for
á fætur í birtingu og vann þar til
dimt var orðið á kvöldin. Mér
finst, sagði hann að eg þurfi að
koma verkinu af sefti fyrst að
gert þann 12. okt. Kýrnar gengu
á bása sína. Eg sagði pabba að j
kussur væru með gleðibrosi því
kalt var orðið úti á nóttum, héla!
lagðist yfir jörðina. Hænsnin
höfðu nú gott herbergi í einu
horni fjóssins. Við vorum glöð
og þakklát; nú höfðu skepnurn-
ar gott skýli.
Tveim dögum seinna byrjaði
að snjóa, blása og frysta og sá
yfirgangur nátúrunnar hélst við
lengi vetrar. Síðan hefi eg álitið
að árvekni og ástundun sé and-
leg manndáð, sem hafi blessan í
för með sér. Svo leið að bless-
uðum jólunum, og þá ótíðin
krefti að, með marga örðugleika,
voru allir glaðir. Nú voru jólin
komin; fólkið söng jóla sálmana
sína og las lestrana og fann í
hjarta sínu, að í dag er oss frels-
ari fæddur. Og velþóknan Guðs
er yfir mönnunum. Sú dýrðlega
saga er ætíð ný á hverjum jól-
um, með nýja huggun og von
um og Krists kræleikskraftur
afmái um síðir alt ílt og mót-
drægt, syndir og sársauka.
Mamma bjó til laufakökur og
jólabrauð, hafði heitt á könn-
unni og alt var með jólablæ. —
Pabbi sagði okkur fagrar jóla-
sögur, einkum þar sem göfug-
lyndið var hjálp og gleði fátækra
og börnin sáu himnastigan og
englana koma með gleði boð-
skapinn, sem veitt hefir mestan
fögnuð á jörðunni. Eftir hátíð-
ina hlýnaði veðrið dálítið og
minni snjókoma; tóku þá bygð-
armenn sig saman með að hafa
skemtisamkomu um nýárið, í
húsunum á mis. Var svo til
ætlast, að slík samkoma væri
hjá okkur á gamlárskvöld, og
önnur hjá Gunnlaugi frænda á
nýárskvöld. Leið nú vikan fram
á gamlársdag, en við vorum að
undirbúa alt eftir föngum. Dreif
nú fólkið að seint á degi og ent-
ist skemtunin til næsta morguns.
Um kvöldið var slegið upp
veislu mikilli, eftir þeirrar aldar
sið, og ekkert tilsparað sem
fyrir hendi var. Tóku menn nú
að gleðjast, sögðu þá sumir sína
skemtisöguna hver frá æsku-ár-
unum og æsku-stöðvunum; fanst
mér þeim sögum fylgja einhver
angurblíð viðkvæmni, eins og
indæll söngur í gleðisal snertir
það blíða og hreina í hjartanu;
menn geta ekki varist tárum.
Sumir komu með skrítlur og enn
aðrir með eitthvað eftir skáldin.
Fallegi Stefán, sem kallaður var,
ungur piltur í bygðinni. kom í
samsætið og tók þátt í gleðinni.
Hann var af kunningjum sínum
kallaður fallegi Stebbi, þótti
mér vænt um komu hans, svo
við gátum sýnt honum gest-
risni. Eg mundi hvað vinsam-
lega hann tók okkur löndum sín-
hm um sumarið, er við komum
frá íslandi, verður þess getið á
öðrum stað. Var ekki frítt að
við ungu stúlkurnar litu til hans
hýru auga, en ekki þarf að kalla
alt ástarauga. Það er öllum
eðlilegt að líta á það sem fallegt
er.
Eldri mennirnir fóru þá að
spáuga við Stefán; nú væri tími
kominn fyrir hann að giftast,
en hann tók því fjarri, sagði
sér kæmi ekki gifting í hug þar
til pyngjan væri þyngri. Þetta
fanst mér auka á sæmd manns-
ins að hann var forsjáll með
fríðleiknum.
Eftir að borð voru upptekin,
byrjaði aðal skemtunin; var þá
farið að spila á spil, syngja
fögur kvæði, kveða saklausar
gleðivísur. Þar var komin
harmonika. Það var nú kanske
gaman að heyra spilað á það
yndislega hljóðfæri, enda var
það teygt sundur og saman alla
nóttina. Munnhörpur spiluðu,
hljóðpípur blésu, lúðrar þeytt-
ust, en unga fólkið dansaði eftir
hljóðfallinu. Já, það dansaði í
litlu húsunum, sem voru eitt
herbergi, kannske 18 fet á hvern
kant, fyrir utan loft, og lítið
sumar-eldhús og öll búslóðín
þar saman komin. Og sannaðist
INNKÖLLUNARMENN NEIMSKRINGLU
I CANADA:
Amaranth...............................J. B. Halldórsson
Antler, Sask...........................K. J. Abrahamson
Árnes.................................Sumarliði J. Kárdal
Árborg...................................G. O. Einarsson
Baldur............................................Sigtr. Sigvaldason
Beckville................................Björn Þórðarson
Belmont.....................................G. J. Oleson
Bredenbury...............................H. O. Loptsson
Brown.................................Thorst. J. Gíslason
Churchbridge_________________________,...H. A. Hinriksson
Cypress River.............................'...Páll Anderson
Dafoe.....................................S. S. Anderson
Ebor Station, Man.....................K. J. Abrahamson
Elfros................................J. H. Goodmundson
Eriksdale................................ólafur Hallsson
Fishing Lake, Sask.......................Rósm. Árnason
Foam Lake.............................. H. G. Sigurðsson
Gimli......................................K. Kjernested
Geysir.................................Tím. Böðvarsson
Glenboro....................................G. J. Oleson
Hayland.................................Slg. B. Helgason
Hecla...................................Jóhann K. Johnson
Hnausa...................................Gestur S. Vídal
Húsavík..................................John Kernested
Innisfail.............................Ófeigur Sigurðsson
Kandahar..................................S. S. Anderson
Keewatin.................................Sígm. Björnsson
Langruth................................... B. Eyjólfsson
Leslie.................................Th. Guðmundsson
Lundar.........................Sig. Jónsson, D. J. Líndal
Markerville......................,... Ófeigur Sigurðsson
Mozart....................................S. S. Anderson
Oak Point................................Mrs. L. S. Taylor
Oakview...............................................S. Sigfússon
Otto...................................... Björn Hördal
Piney ....................................S. S. Anderson
Red Deer.............................ófeigur Sigurðsson
Reykjavík...........................................Árni Pálsson
Riverton..............................Björn Hjörleifsson
Selkirk.......................... Magnús Hjörleifsson
Sinclair, Man.........................K. J. Abrahamson
Steep Rock..........................................Fred Snædal
Stony Hill.........................................Björn Hördal
Tantallon...............................Guðm. ólafsson
Thornhill.............................Thorst. J. Gíslason
Víðir....................................-Aug. Einarsson
Vancouver ............................Mrs. Anna Harvey
Winnipegosis....................................Finnbogi Hjálmarsson
Winnipeg iteach..........................John Kernested
Wynyard..................................S. S. Anderson
í BANDARIKJUNUM:
Akra....................................Jón K. Einarsson
Bantry..................................E. J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash...................Mrs. John W. Johnson
Blaine, Wash.....................Séra Halldór E. Johnaon
Cavalier.............................. Jón K. Einarsson
Crystal.................................Th. Thorfinnsson
Edinburg...............................Th. Thorfinnsson
Garðar.................................Th. Thorfinnsson
Grafton................................Mrs. E. Eastman
Hallson.................................Jón K. Einarsson
Hensel................................. J. K. Einarsson
Ivanhoe..............................Miss C. V. Dalmann
Los Angeles, Calif....Thorg. Ásmundsson, 4415 Esmeralda St.
Milton.......................................S. Goodman
Minneota.............................Miss C. V. Dalmann
Mountain...............................Th. Thorfinnsson
National City, Calif.......John S. Laxdal, 736 E 24th St.
Point Roberts..........................Ingvar Goodman
Seattle, Wash..........J. J. Middal, 6723—21st Ave. N. W.
Svold..................................Jón K. Einarsson
Upham....................................E. J. BreiðfjörO
The Viking Press Limited
Winnipeg; Manitoba
gleyma að biðja Drottinn að
blessa litla landið mitt og gefa menn einyrkjar og vann hann að
Orncs Phohi Res. Phons
87 293 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
109 MEDICAL ARTS BUILDING
Ornci HOUS8
12 - 1
4 r.M. - 6 F.M.
and by APPonrrmNT
þar að þröngt mega sáttir sitja.
íslendingar voru þá ekki farnir
að halda ræður á samkomum
eins og nú gerist, nema einstaka
maður. Ekki voru menn þá
farnir að kalla sig mister eða
mistress nema þegar menn ad-
dressuðu sig. Allir voru nefnd-
in sínu skírnar-nafni og kendir
við bæinn, sem þeir bjuggu á
síðast á gamla landinu. Líka
kölluðu margir heimili sín eftir
heimilum gamla landsins. —-
Þannig voru þar í bygðinni bæ-
irnir: Grund, Breiðamýri, Engi-
dalur, Brattahlíð, Háahlíð, Búa-
staðir, Grímsstaðir og margir
fleiri, svo sem Hlíðarendi.
Eg nefndi bæ kokar Möðru-
velli; þar átti eg heima síðustu
árin á íslandi. Milli dansanna
var talað um alla heima og
geima, ýms plön í framtíðinni.
Já, einn bóndinn ætlaði nú að
kaupa hestapar með vorinu^ en
sélja uxana; þeir voru svo stirð-
ir í snúningunum.
Þá skal nú kvenfólkið fá að
keyra í fallegum vagni; við verð-
um að bíða eftir kerrunni í
nokkur ár, sagði kona hans bros-
andi.
Gráu hestarnir hans Jóns
Hoff^ það eru fallegar skepnur,
sagði Jón Jósephsson frá Hofi,
enda Voru þeir ekki gefnir,
sagði annar. Ef það borgar sig,
sagði Jón, þeir eru afbragð. Nú
vildi eg hann Jarpur minn væri
kominn, sagði Gunnlaugur
frændi; falleg var sú blessuð
skepna, fleyg vakur; oft hafði
eg gaman af að láta hann spretta
úr spori á gamla landinu. Já,
það var gaman að blessuðum
hestunum á íslandi, sagði Jón á
Grímsstöðum; faðir minn átti
gráan reiðhest sem kallaður var
Snúður, Ijómandi skepna, og
góðgengur. Eg veit hann sakn-
ar hans stundum. Það gengur^
svona sagði Ölveig frænka, kona
Gunnlaugs. Aumingja gamla
fólkið hugsar um liðna tímann
með söknuði, en unga fólkið lít-
ur framtíðina með von og gleði.
Þetta er eðlilegt. Eg er nú þarna
mitt á milli sagði Gunnlaugur
frændi, eg vil ekki gleyma því
gamla og góða, það er okkar
móðurarfur. Hann er dýrmætur,
hvað sem okkur hepnast í fram-
tíðinni er ávöxtur af okkar þjóð-
areinkennum, en ætíð er vonin
bundin við framtíðina; og vissu-
lega hafa börnin betra tækifæri
með að mentast og mannast hér
en heima. Og margir flytja af
gamla landinu vegna barnanna.
Konur og stúlkur töluðu um
tilvonandi barnaskóla í bygðinni,
kvenbúninga og ameríska mat-
reiðslu. Mamma sem var hann-1
yrða og saumakona sýndi nú í
handverk sín, prýðisvel tilbúin
rúmteppi, ábreiður o. fl? sett
saman úr ræmum og stykkjum,
smekklega fyrir komið; líka
hafði mamma komið með kvenn-
búning frá Winnipeg; það var
yfirpils og kvennvesti, alt perlu-
lagt, einskar fagurt á sinni
tískutíð. Sögðu konur vesti þetta
raritet mikið og fallegt yfir
ljósum kjólum.
Gaman verður þegar börnin
fara að ganga á skóla, sagði
ein knoan, hefðum við nú haft
dálitla skólamentun á gamla
landinu hefði það hjálpað okkur
hér að einhverju leyti, en því
var nú ekki að heilsa á okkar
uppvaxtarárum. Jæja sagði
mamma, eg lærði nú samt að
skrifa af sjálfri mér, en lengi
gat eg ekki klórað staf nema á
kné mínu, svoleiðis lærði eg það.
Maður er nefndur var Árni
Sigvaldason, búsettur í bygðinni
ágætismaður og gáfum gæddur,
skemtinn og glaðlyndur; var
helzti leiðtogi bygðarmanna, vel
að sér í ^nska málinu. Leituðu
menn ráða til hans um marga
hluti, einkum viðskifta við ann-
ara þjóða menn, ýms lög í hér-
aðinu og fleira því um líkt. —
Kona Áma var Guðrún Aradótt-
ir, valkvendi og sæmdar kona,
var einkar skemtilegt að heim-
sækja þau hjón. Ámi var hér
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldg.
Skriístofusími: 23 674
Stundar sérstaklega lungnasjúk-
dóma.
Er að flnni á skrifstofu kl. 10—l:
f. h. og 2—6 e. h.
Heimili: 46 Alloway Aye.
Talsimi: 33 lSt
G. S. THORYALDSON
B.A.. LL.B.
LögfrœOingur
702 Confederation Liíe Rldg.
Talsími 97 024
W. J. LINDAL, K.C.
BJÖRN STEFANSSON
tSLKNZKlR LÖGFRÆÐINGAR
á öðru gólfl
325 Main Street
Talsími: 97 f21
Haía etnnig skriístofur að
Lundar og Gimli og eru J>ar
að hitta, fyrsta miovikudag 1
hverjum mánuði.
Dr. S. J. Johannesvon
272 Home St.
Talsimi SO 877
ViOtalstimi kl. 8—6 e. h
M. HJALTASON, M.D.
ALMENNAR LÆKNINGAM
Sérgrein: Taugasjúkdómar
Lœtur úti meðöl 1 vlðlögum
ViBtalstímar kl. 2—4 • k.
7—8 aB kveldlnu
Síml 80 857 665 Vietor 8t.
J. J. Swanson & Co. Ltd.
REALTORS
Rental, Insurance and Financtal
Agents
8iml: 94 221
600 PARIS BLDG.—Winnipeg
A. S. BARDAL
selur llkkistur og annast um útfar-
lr. Allur útbúnaður sá beeti. _
Enníremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina
843 SHERBROOKE 8T.
Phone: S« 807 WINNIPBG
Gunnar Erlendsson
Pianokennari
Kenslustofa, 796 Banning St.
Sími 89 407
THL WATCH SHOP
Thorlakson Baldwin
Diamonds and Wedding
Rings
Agents for Bulova Watches
Marriage Licenses Issued
699 Sargent Ave.
Jacob F. Bjamason
—TRANSFER—
Baggage and Furniture Moving
591 SHERBURN ST.
Phone 35 909
Annast allskonar flutninga fram
og aftur um bæinn.
Rovatzos Floral Shop
206 Notre Dame Ave. Phone 94 864
Freah Cut Flowers Dally
Plants in Season
We specialize in Wedding 9l
Concert Bouquets & Funer&l
Designs
Icplandic spoken
DR. A. V. JOHNSON
DENTIST
506 Somerset Bldg.
Office 88124 Res. 36 888
MARGARET DALMAN
TEACHER OF PIANO
S5« BANNING ST
Phone: 26 420
hinn kátasti að syngja kvæði,
koma með spakmæli og spurn-
ingar. Mörg var gleðistundin á
gamla landinu, sagði Árni, en
svo vona eg líka að framtíðin
færi okkur margar glaðar stund-
ir í þessu nýja landi. Þetta
rættist þegar félagslíf glæddist
í bygð og borg. Meðal landa var
Árni þar ætíð lífið og sálin í öll-
um samkomum, en mest kvað að
honum í hinum kristilega fé-
lagsskap; þar kom hann fram
sem hreinhjartað göfugmenni
og hans heitasta ósk var að sjá
alla komast á guðs veg.
Nú skulum við syngja kvæðið
góða og gamla, sagði Árni, sem
öllum er svo kært og aldrei
fyrnist og getur átt við mannlíf-
ið frá fyrstu tímum og jafnvel
náð yfir takmörk tímans, það er
að segja, fyrsta versið í kvæð-
inu. Nú skuluð þið geta hvaða
ljóð þetta er. Já, eg veit það
sagði pabbi, það getur kanske
veriþ það fyrsta, sem manni
kemur til hugar, þegar við eftir
vetrarnæðing lífsins komum
heim í sumarblíðu Drottins.
Gunnlaugur frændi, allgóður
söngmaður kirjaði nú: Hvað er
svo glatt; alt kvæðið var sungið,
en svo er nú eitt versið, sem eg
þarf að gera athugasemd við,
sagði pabbi, það er þetta: Lát-
um því vinir vínið andann hressa
og vonarstund vér köllum þenn
an dag.Var það ekki mikið að Jón
as Hallgrímsson fegurðarskáldið
góða, skyldi halda af víninu og
nautn þess; hann hefði átt að
kveða það niður eins og gömlu
rímurnar og fleira, sem er gróf-
gert og ófagurt. Menn geta
verið glaðir þó ekki hafi þeir
vín til að æsa sig með; eg held
ekki af ofdrykkju, sagði Gunn-
laugur, en lítil vínnautn er mein-
laus. Þetta er það sem mér
finst, sagði annar bóndinn, vínið
glaður sinnið og heldur manni
heitum þegar kalt er. Það er
svikul gleði sagði Árni, sem ger-
ir mann slæptan og kulsælan
eftir áf svo kallar vínlöngunin
eftir meira víni; svo best er að
vera bindindismaður í anda og
sannleika, að hafa góðvild til
allra, gefur manni notalegheit og
gleði. Bindindi er ágætt og
sjálfsagt, sagði Siggi Sigvalda-
son, en eg vil ekki taka vínið
burtu, heldur að menn taki sig
frá víninu.
Framh.
Á heimssýningunni í New
York verða sýndar ýmsar nýjar
uppfyndingar. Ein þeirra er
fólgin í því, að lækna ölvaða
menn. Er höfuð sjúklinganna
látið í sérstakt áhald, og er það
andrúmsloftið og loftþrýstingur-
inn þar, sem eyðir áhrifum ölv-
unarinnar á skömmum tíma. Um
40 slík áhöld verða höfð á sýn-
ingunni, því að gert er ráð fyrir
að þurfa að nota þau meira en
til sýnis.
Lesið Heimskringlu
V