Heimskringla - 22.03.1939, Side 4
4. SfÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 22. MARZ 1939
íítcimsltrtniila |
(StofnuO 1886)
Kemur út d hverjum mlOvVcudegi.
Eigendur:
THE VIKINa PRESS LTD.
853 oo 855 Sargent Ávenue. Winnipeg
Talsímie 86 537
Verð blaðslns er $3.00 árgangurinn borgtot
tyrirfram. Allar borganlr sendtot:
THE VIKING PRESS LTD.
_______________________________________________________ m
OU viðsUfta bréf blaðinu aðlútandl sendtot:
Kcnager THE VIKINQ PRESS LTD.
853 Sargent Ave.. Winnipeg
RitStjóH STEFAN EINARS30N
Utanáskrift til rítstjórans:
EDITOR HEIMSKRINQLA
853 Sargent Ave., Winnipeg
,-----------.------------------------------------------ n
"Helmskringla” to publtohed
and prlnted by
THE VIKINQ PRESS LTD.
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg Man.
Telephone: 86 537
iiiMiiiiiiiiHiiiiiiiaiiiiuiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiniig
WINNIPEG, 22. MARZ 1939
L
TÍMARIT
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS
Eins og undanfarin ár kom Tímarit
Þjóðræknisfélagsins út meðan á ársþingi
félagsins stóð; mun það því nú komið í
hendur flestra félagsmanna, er fá það
sem uppbót fyrir það að heyra Þjóðrækn-
isfélaginu til; fá þeir vel borgaðan doll-
arinn sem þeir greiða í félagsgjald, þó
ekki væri með neinu öðru en ritinu.
Fremst í þessum tuttugasta árgangi
ritsins, er mynd af hans hágöfgi, Tweeds-
muir lávarði, landstjóra Canada, er ís-
lendingum sýndi þann heiður og hlýhug,
að gerast heiðursverndari Þjóðræknisfé-
lagsins. Er í heiðri þessum, frá svo mik-
ilsmetnum manni og viðurkendum bók-
menta og menningarfrömuði, fólgin mik-
ilsverð viðurkenning á menningarlegri
starfsemi Þjóðræknisfélagsins og um leið
íslenzkrar þjóðar.
“Þjóðræknisfélagið 20 ára”, heitir fyrsta
ritgerðin í ritinu, skrifuð af ritstjóra
þess, dr. Rögnvaldi Péturssyni. Skýrir
hún frá stofnun Þjóðræknisfélagsins,
stefnu þess og minnist nokkra helztu
málanna er félagið hefir látið sig skifta.
Er þar um mikilsverðan sögulegan fróð-
leik að ræða, þó stutt sé yfir sögu félags-
ins farið, en greinin fjalli aðallega um
undirbúning þessara samtaka íslendinga,
sem margir eða flestir íslendingar líta nú
á, sem eitt hið merkasta spor, sem hér
hefir verið stigið í íslenzkum félagsmál-
um.
í ritinu eru annars margar fróðlegar
greinar. Próf. Ágúst H. Bjarnason, skrif-
ar um Björn Gunnlaugsson, “spekinginn
með barnshjartað” fróðlega grein, sem
vænta mátti. Þá er þar framhald ritgerð-
ar dr. Stefáns Einarssonar um “Shake-
speare á fslandi. Um Einar Jónsson mynd-
höggvara ritar sr. Sigurður Ólafsson og
um skáldið Jón Runólfsson dr. Richard
Beck; læsilega ritaðar greinar. Ennfrem-
ur ritar sr. Guðmundur Árnason um land-
nám í Álftavatns- og Grunnavatnsbygð,
góða grein og fróðlega um byrjun ís-
lenzka landnámsins á þessum stöðum. En
er orðið Lundar (nafn á þorpi í Manitoba
sem bæ í Borgarfirði), eins og höf-
undur minnist á, ranglega beygt, fyrir
lundir, í nefnifalli fleirtölu? Getur ekki
orð þetta verið eitt þeirra, sem ýmist
beygist (í n.f. fl.t.) ar eða ir og málvenja
ræður mestu um ? Lundar gæti þá einnig
verið rétt og við nafn bæjarins ekkert að
athuga, eins og það nú er. Síðast en ekki
sízt ber svo að nefna grein dr. jur. Ragnar
Lundborg um Þjóðaréttarstöðu íslands,
niðurlag frá fyrra ári.
Tvær sögur eru í ritinu: “Farandsal-
inn”, eftir J. Magnús Bjarnason og
“Traustir máttarviðir”, eftir frú Guðrúnu
Finnsdóttur Johnson. Er saga skáldkon-
unnar um viðburð í þjóðlífi þessa lands,
eyðilegging uppskeru af hagli; er lýs-
ingin gædd því lífi og sál, sem oftar í sög-
um frú Guðrúnar, að viðburðurinn verður
ógleymanlegur.
Vísur og kvæði eiga þessir í ritinu:
Guðm. Friðjónsson, Guttormur J. Gutt-
ormsson, dr. Richard Beck, ungfrú Mar-
grét A. Björnsson, Jón Kernested og Jóna-
tan Þorsteinsson.
0g síðast er svo fundargemingur árs-
þingsins frá fyrra ári (1938).
Tímaritið hefir verið lífæð Þjóðrækn-
isfélgasins s. 1. 20 ár. Það hefir ekki
einasta inni að halda mikið efni þjóðlegra
fræða, heldur hefir það jafnframt verið
aðal-tekjulind félagsins.
J. C. Landeryou, social credit þ.m. frá
Alberta, benti á ódýrari leið til hervarna
í Canada en þá sem farin væri, við um-
ræður um það mál á sambandsþinginu ný-
lega. Hann kvað það mundi reynast eins
óbrigðul landvörn og nokkuð annað, að
setja upp raflýstar auglýsingar meðfram
ströndum Canada, um þjóðskuld landsins,
tölu atvinnulausra, tölu heimila sem seld
hefðu verið fyrir skatti eða tekin upp í
veðlánsskuldir o. s. frv. — Hann sagði
hvern þann er í hyggju hefði að ráðast á
Canada mundi hætta við það, er hann
fengi vitneskju um þetta.
FRÁ DANMÖRKU
Thorvald Stauning, hinn axiafcreiði, síð-
skeggjaði sósíalista-forsætisráðherra Dan-
merkur fyrirlítur einræði í hvaða mynd
sem er. Fyrir nokkru fór hann að undir-
búa, að gera sitt frjálsa land ennþá frjáls-
ara. Áform hans er að ljúka 10 ára starfi
stjórnar sinnar með endurbót á stjórnar-
skipun landsins á þann hátt, að afnema
landsþingið (sem svarar til lávarðarmál-
stofunnar brezku), en fá fólksþinginu einu
löggjafarvaldið algerlega í hendur (neðri
deild þingsins).
Landsþingið var upphaflega til þess
ætlað, að leggja hömlur á tilraunir verka-
lýðsins að bæta kjör sín með löggjöf; það
var um langt skeið ekkert annað en vernd-
ari auðvaldsins, kvað niður öll lög er lutu
að því að hækka skatta á þeim ríkari, eða
skerða auðsöfnun þeirra á nokkum hátt.
Árið 1936 hepnaðist samvinnuflokkun-
um (sósíalistum og radikölum) að ná í
meiri hluta þingsæta í efri málstofu þings-
ins. Frá þeim tíma hefir landsþingið
mátt heita dauðadæmt, því hinir sigursælu
gátu ekki gleymt framkomu andstæðinga
sinna (íhaldsmanna og svonefndum
bænda-liberölum), er stöðugt reyndust
andvígir vilja almennings.
En þrátt fyrir þetta er ekki eins auð-
velt og ætla mætti fyrir Stauning, að
losna við landsþingið. Stjórnarskráin ger-
ir það bæði langt og flókið mál.
í apríl mánuði á þessu ári fara fram
kosningar til efri og neðri deildar þingsins.
Sigri stjórain, verður hún samkvæmt lof-
orði að afnema landsþingið.
í maí yrði þá atkvæðagreiðsla að fara
fram um land alt um þessa stjórnarskrá-
breytingu. Og síðast almennar kosning-
ar á haustinu sama árið.
En þing Danmerkur hefði efri málstofu
eftir alt þetta, sem nefnd yrði ríkisþing.
En þing það eða ráð, hefði ekkert vald til
að hindra samþykt nokkurra laga frá
neðri deild. Efri málstofan yrði óháð
öllum flokkum; hún yrði nefnd manna,
mikið til sérfræðinga í ýmsum greinum,
er upplýsingar gæfi þingi í sambandi
við hina eða þessa löggjöf. Það ráð yrði
að minsta kosti að helmingi kosið úr hópi
þingmanna í neðri deild.
Stauning er nú hálfsextugur; hann hefir
alist upp með dönsku Sósíalista-hreyfing-
unni. í æsku smíðaði hann hjól á kerrur
með föður sínum, var vikasveinn hjá kaup-
manni og vann í vindla-verksmiðju.
ótrú sína á öllu einræði, sannaði Staun-
ing með því nýlega, að segja af s£r forustu
flokks síns, en gefa hana yngri mönnum
í hendur. Hann telur þörf á “ungu blóði”
í öllu starfi; og í iðjuleysi æskulýðsins
sér hann afturför vísa í þjóðfélaginu. f
stað hans hefir verið kosinn formaður
flokksins Hedtoft-Hansen, 36 ára gamall,
áður ritari jafnaðarmannaflokksins.
(Lauslega þýtt).
Nýlega fór fram atkvæðagreiðsla meðal
60 þúsund skóladrengja í Bandaríkjunum
um það, hvaða persónur væru mest elsk-
aðar í heiminum og hverjar mest hataðar.
f fyrri flokknum hlutu Roosevelt og Guð
flest atkvæði — Roosevetl þó nokkru
fleiri. í hinum flokknum féllu öll atkvæð-
in á Hitler og Mussolini.— (Tíminn).
VERÐ Á SMJÖRI I CANADA
4
Á sambandsþinginu drógu nokkrir þing-
manna liberala frá Quebec og Ontario ný-
lega athygli að hinu lága verði, sem bænd-
ur hefðu verið að fá fyrir smjör og smjör-
fitu á þessum vetri. Við umræðurnar upp-
lýstist, að lágverðið væri að kenna inn-
fluttu smjöri frá öðrum löndum í stórum
stíl á árinu 1938 til að keppa við bændur
þessa lands á þeirra heimamarkaði.
Árið 1937 nam innflutningur smjörs í
Canada aðeins 65,918 pundum frá öðrum
löndum. Á árinu 1938 jókst innflutn-
ingurinn svo, að hann nam 5,231,338 pund-
um. Nærri þrjú miljón pund komu frá
Nýja-Sjálandi. Ástralía sendi nærri hálfa
aðra miljón; hitt eða um ein miljón pund
voru frá Bretlandi.
Nokkur ástæða þykir til þess að ætla
sumt af smjörinu frá Bretlandi hafa verið
canadiskt smjör, sem sent var hingað aft-
ur til þess eins, að hnekkja verðinu í
Canada.
Þingmenn stjórnarinnar frá Ontario og
Quebec hafa fengið svo margar umkvart-
anir út af þessu, að þeir hafa setið öðru
hvoru á fundum og verið að íhuga þetta
mál. Þeim hefir enn ekki tekist að finna
neina lausn á því, sem ekki hefði gagn-
gerða breytingu í för með sér á stefnu
stjórnarinnar og kæmi sér því illa fyrir
hana. Hverjum um þetta er að kenna, er
því ofur augljóst.
Þegar umræður stóðu yfir á þinginu í
Ottawa um hásætisræðuna, deildi Miss
Agnes McPhail mjög á stjórnina fyrir hve
algerlega hún hefði brugðist málefnum
bænda. Á stefnuskrá sinni hafði hún
ekkert, sem nokkur vernd gæti heitið fyrir
sölu mjólkurafurða þeirra. Orð hennar
eru eftirtektaverð um þetta; þau eru
þessi:
“Það hlýtur að vera ánægjulegt fyrir
íhaldsmenn að líta nú til baka til þess
tíma er lögin um sölu á bændaafurðum
(The Ntaural Produce Marketing Act)
voru til umræðu og vega nú ummæli and-
stæðinganna, liberala, á vog reynslunnar
um þessi lög. Þau áttu í einu orði sagt,
að vera óalandi og óferjand. Við sjáum
nú einnig hverjir voru að hafa hag af því
og hverjir óhag, ef slík lög yrðu samþykt.
Eg skal ekki segja, að það hafi verið að
öllu leyti af sömu ástæðu, að leyndarráðið
á Bretlandi taldi þessa löggjöf stjórnar-
skrárbrot, en það sem nú er að koma á
daginn, er þess leiðis, að þar minnir hvað
á annað.”
Nýlega kom til Bandaríkjanna ungfrú
Eve Curie, 34 ára gömul, og yngsta dóttir
Curie-hjónanna, er uppgötvuðu radium.
Ungfrú Curie hefir skrifað æfisögu móður
sinnar og um uppgötvanir hennar. í
Bandaríkjunum gerir hún ráð fyrir að
heimsækja nokkrar borgir og flytja fyrir
lestra um starf móður sinnar og annara
kvenna í þágu vísindanna. í Evrópu var
ungfrú Curie nýlega viðurkend, sem ein
af tíu bezt klæddu konum Norðurálfunnar.
Auk aðalerindisins hefir ungfrú Curie í
huga að kaupa mikið af kvenfatnaði í
Bandaríkjunum og kynna sér “musik”
Vesturálfunnar.
UMMÆLI CANADISKRA BLAÐA
UM SIÐUSTU VIÐBURÐI
í EVRÖPU
Ritstjórar dagblaða þessa lands voru
sagnafáir fyrst 1 stað um viðburðina sem
gerðust í Evrópu síðast liðna viku. Við-
burðirnar gerðust með þeim hraða, að með
þeim varð ekki fylgst. Á þriðjudag var
Tékkóslóvakía hertekin. Á miðvikudag
hafði Hitler formlega gerst “verndari”
lýðríkis Tékkanna. Á fimtudag hafði hann
innlimað Bæheim, Moravia og Slóvakíu
Þýzkalandi. Ungverjaland tók Rutheníu
eða þann hluta Ukraníu, sem tilheyrði
Tékkóslóvakíu. Og svo á föstudag kom
ræða Chamberlains um brot Hitlers á
Munich-samningunum, en sum þessara
ummæla voru þó skrifuð áður en hún var
flutt eða birt.
Calgary Albertan:
Það hlýtur nú að vera öllum ljóst, að
um frið er ekki að ræða fyrir einræðis-
mönnunum. Eina úrræðið til að stöðva
Hitler og Mussolini, er með hervaldi. Lýð-
ræðisþjóðirnar eiga hér eftir ekki um
annað að velja, en stríð, nema því aðeins
að þær loki augunum fyrir landaráni Hitl-
ers í von um að það áhræri aðeins Austur-
Evrópu, en nái aldrei til vestlægu lýðveldis-
þjóðanna; bara að þær ættu ekki eftir að
vakna fyr en þær varir af þeim draumi.
London Free Press:
Hitler er sjáanlega ekki ánægður með
svívirðinguna sem hann hafði í frammi
í Tékkóslóvakíu s. 1. haust. Hann er á-
kveðinn í að mola lýðríkið í agnir. Tár
hans út af kúgun Slóvaka nú undir Prag-
stjórninni, eru krókódíla tár, eins og tár
hans voru út af kúgun Sudeten-Þjóðverj-
anna. Hitler hét eftir Sudeten-árásina,
að ráðast aldrei framar á nokkra þjóð;
sig varðaði aðeins velferð Þjóðverja þar
sem þeir ættu heima. Nú kemur hann
fram sem verndari Slóvaka! Sú eina á-
lyktun sem af því verður dregin, er sú, að
landvinningagræðgi hans eigi sér engin
takmörk og að hann sletti sér inn í mál
annara þjóða, hvenær sem honum gott
þyki.
Calgary Herald:
Það hlýtur nú að vera ljóst Mr. Cham-
berlain og brezku þjóðinni, að
það er misráðið, að reiða sig á
Hitler. Hann lofaði hátíðlega á
síðast liðnu hausti, að seilast
ekki eftir meira landi í Evrópu.
Nú er það ljóst, að hann hefir
haft í fleiri mánuði hóp manna
í Slóvakíu, að æsa íbúa hennar
á móti Pragstjórninni.
Toronto Telegram:
Að Hitler fór aftur að beita
yfirgangi í Tékkóslóvakíu, á ef
til vill rætur að rekja til þess, að
honum þótti ekki árennilegur
garðurinn í vestrinu. Eftir
Munich-samninginn, komst hann
að því, að Pólland og önnur lönd
eystra, yrðu sér ekki auðsveip;
hann hugsaði sér þá að reyna
lukkuna annar staðar. Musso-
lini reyndi að Iblekkja Frakka
með nýlendu-kröfum og Þýzka-
land er sagt að hafi hugsað sér
að stökkva á Holland. Blekk-
ing Mussolinis varð árangurs-
laus og Bretinn kom til sögunn-
ar í Hollandi. í vestrinu var
ekkert að hafa nema með stríði,
en Hitler kærði sig ekki um
stríð. Hann fór því að líta í
austur. Þar getur hann meðan
við smáþjóðiraar er að eiga ef
til vill komið einhverju af á-
formum sínum fram.
Regina Star:
Það er ekki að efa það, að
Varsjá (í Póllandi) og Budapest
(í Ungverjalandi) hafa verið að
ráðfæra sig við Rúmaníu um
hveraig þau gætu veitt Hitler
viðnám. En á meðan á því
stendur, munu þau ekki láta á
neinu bera og jafnvel setja upp
grímu vináttu við Þýzkaland.
Dæmið af því sem gerst hefir í
Tékkóslóvakíu, mun þeim þó
reynast erfitt að hrinda úr huga
sínum. Við hvert fótmál sem
Hitler stígur nú í austurátt,
mun hatrið blossa upp hjá þjóð-
unum, sem í veginum standa.
Ottawa Journal:
England ábyrgðist aldrei
stjórnarfarslegt sjálfstæði
Tékkóslóvakíu. Það var ekki
hægt að búast við, að það gæti
ábyrgst hin nýju landamæri
þess eða að halda við einingu
milli Slóvaka, Rutheninga og
Tékka. Frakkland gat það ekki
heldur. Þeir munu auðvitað til
sem segja nú, eins og s. 1. októ-
ber, og hafa verið að segja síð-
an, að England sé að svíkja
sjálft sig, glata hagsmunum sín-
um og svíkja jafnframt frelsi og
lýðræðishugsjónir héimsins. Ef
England svíkur sjálft sig, er það
þess eigið tap og höfum vér í
þessu landi eða nokkrir aðrir
ekki mikinn rétt til að kvarta
undan því. En sé það frelsið og
lýðræðið í heiminum, sem svikið
er, hversvegna á þá að kenna
Bretum einum um það? Hvað
er um Bandaríkin ? Og hvað er
um Canada? Vér höfum ekki
orðið þess varir, að stórir hópar
manna í Bandaríkjunum hafi
krafist þess, að stjórn þeirra
sendi her til Evrópu til að frelsa
Tékkóslóvakíu. Vér höfum held-
ur ekki orðið þess áskynja, að
þeir séu margir í Canada, sem
krafist hafa þess af Kingstjórn-
inni, að hún færi að hafast eitt-
hvað að í þessu. England hefir,
að því er oss virðist, gert sinn
skerf, og ef til vill nokkuð fram
yfir það, að vera lögregla lýð-
ræðisþjóða heimsins. Það er
ekki nóg, að hlaða byrðinni af
þeirri vernd á eina þjóð. Þess-
vegna fór um Þjóðabandalagið
eins og fór, að það virtist oft
sem til þess væri ætlast, að
Bretar einir gerðu átökin.
Dönsk stúlka segir frá því, að
hún hafi bréfaskriftir við fjórar
ungar stúlkur erlendis. Ein býr
í Noregi, önnur í Sviss, þriðja
í Canada og sú fjórða í Suður-
Ameríku. Það einkennilega við
frásögn hennar er það, að allar
stúlkurnar eru fæddar sama dag
6. febrúar 1920.
BRÉF TIL HKR.
R. R. No. 1, White Rock, B.C.
6. marz 1939
Kæri herra ritstjóri:
Eg hefi verið að hugsa um að
skrifa þér fáeinar línur, meira
að gamni mínu, en af knýjandi
þörf, til að auglýsa skoðanir
mínar.
Þessar fáu línur, sem verða
aðeins sundurlaus þankabrot um
eitt og annað, eru ekki skrifuð
í þeim tilgangi, að deila á neitt,
og heldur ekki í þeim tilgangi
að slá því föstu, að mér sjálfum
geti ekki skjátlað eins og öðrum.
En áður en eg byrja á að skrifa
um ástandið eins og það kemur
mér fyrir sjónir, langar mig að
segja þær fáu fréttir sem héðan
verða sagðar, sem ekki verða
margbrotnar þetta sinn.
Eg ætla þá að byrja á tíðar-
farinu. S. 1. sumar var eitt
það þurrasta sem hér hefir lengi
komið, og þar af leiðandi varð
öll uppskera með rýrara móti,
einkum á þurru og háu landi, og
svo að margir fengu lítið og
sumir ekkert upp úr görðum
sínum, en þar sem uppskera var,
var öll nýting góð og haustið
var alt ein blíðviðris tíð, fram í
byrjun nóv., en þá snjóaði dálítið
en tók fljótt upp, en eftir það til
ársloka var umhleypingasamt,
rigningar og frost á milli, en
aldrei hörð, og snjór vart telj-
andi. Stundum lítið föl, en tók
fljótt upp aftur og síðan um ára-
mót, .hefir veðrið verið líkt. —
8. og 9. febrúar varð all-kalt, fór
þá frost on í 10 fyrir ofan zero
og þá kom nokkur snjór; nú er
komið gott veður og allur snjór
farinn.
Verð á flestu sem selt hefir
verið, hefir verið með lægra
móti, en flest sem keypt er, er
eins hátt og nokkru sinni áður,
og er sagt að það sé flutninga-
tækjunum að kenna. En það
getur 'þó tæpast verið að öllu
leyti, því sumt sem maður sér í
verzlunum frá Evrópu og Aust-
ur-Canada, er engu dýrara en
það sem er framleitt í kringum
bæina, þó bændum sé lítið sem
ekkert borgað fyrir það. Til
dæmis er smjör sem búið er til í
Vancouver, selt á sama verði og
smjör frá Nýja Sjálandi og Al-
berta, og vörur sem eru fram-
leiddar hér í verkstæðupi eru
seldar með sama verði og sams-
konar vörur sem koma annar-
staðar að, jafnvel frá öðrum
löndum; háir prísar á vörum,
sem kaupmenn selja, eru því
ekki að öllu leyti, flutnings-
kostnaði að kenna. En auðvitað
verður ekki við þessu gert, á
meðan sá hugsunarháttur er
ríkjandi, að alt aðfengið sé bezt,
og því betra sem meira kostar
að ná í það.
Atvinnuleysi er alvarlegt í
borgum og bæjum og jafnvel í
sveitum. Hér í þessari sveit,
Surrey, hafði af einhverjum á-
stæðum dregist að greiða fram-
færslustyrk nokkra daga, vegna
þess að stóð á tillagi því sem
fylkisstjórnin á að leggja til, að
því er sveitarstjórnin sagði, en
einn daginn tóku sér sæti 250
manns í fundarsal sveitarráðs-
ins og kröfðust fullrar greiðslu
og neituðu að fara út annars;
heimtuðu sitt afskamtað upp-
eldi, en engar refjar, og fengu
það víst, því Hunter sveitar-
oddviti, fékk ekki sætið sitt með
öðru móti.
Þar sem svona er í fámennri
sveit segir sig sjálft hvað muni
vera í stórborgum, þar sem
fólksfjöldinn er svo mikill, þó
lávarður lávarðanna í Ottawa,
segi alt í góðu lagi. Að vísu
gætu sjálfsagt einhverjir bjarg-
að sér betur en þeir gera, en
hugsunarhátturinn er orðin
breyttur, eins og fleira, frá
fyrstu tíð. Þá var sú hugsun
á flestra huga, að reyna að verða
nýtur meðlimur í þjóðfélaginu
af sjálfsorku, og þá báru menn
svo mikla virðingu fyrir sjálfum
sér, að þeir vildu heldur fara á