Heimskringla - 19.07.1939, Síða 1
Beer at its best—
KIEWEL’S
CWhilizSeat'
Phone 96 361
LIII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 19. JÚLf 1939
NÚMER 42.
HELZTU FRETTIR
Dr. ólafur Stephensen dáinn
Dr. ólafur Stephensen, fyrsti
íslenzki læknirinn í Canada, 74
ára gamall, dó s. 1. mánudag
(17. júlí) að heimili sínu, 162
Sherburn St., Winni^eg. Hann
hafði stundað lækningar hér í
bæ frá 1896 og þar til fyrir 10
árum, að hann tók sér hvíld
frá störfum. Hann var gáfu og
hæfleikamaður og tók mikinn
þátt í þjóðlífi landa sinna hér á
fyrri árum, og var einn af kunn-
ustu og merkustu mönnum í hópi
Vestur-íslendinga.
Hann var fæddur og uppalinn
á íslandi, kom til Canada 1893.
Mentun sína hlaut hann í Latínu-
skólanum í Reykjavík og frá há-
skólanum í Kaupmannahöfn út-
skrifaðist hann sem læknir. Á
Manitoba læknaskólann gekk
hann eitt ár og útskrifaðist 1895.
Hann innritaðist sem læknir í
herinn í stríðinu mikla og var í
læknisþjónustu í hernum í Ev-
r’ópu frá 1916 til 1918.
Dr. Stephensen lifa kona hans,
fjórar dætur: Mrs. Robert Black,
Mrs. V. J. Percy, Mrs. G. P.
Kennedy og Emelie ógift, allar
í Winnipeg, og þrír synir: Mag-
nús, í Long Beach, Calif.; Stefán
í Vancouver og Frank í Winni-
peg. Tvær systur hins látna eru
á íslandi.
Jarðarförin fer fram á morg-
un (fimtudag) kl. 2.30 e. h.
Prestarnir séra V. J. Eylands og
séra Rúnólfur Marteinsson jarð-
syngja. Líkmenn verða: dr. B.
J. Brandson, dr. W. D. Beaton,
S. W. Melsted, G. L. Stephenson,
S. Stephenson og S. Sigurjóns-
son.
Gyðingar þyrpast
til Shanghai
Gyðingar frá Mið-Evrópu
löndunum flytja hópum saman
til Shanghai. Borgin er enn í
sárum eftir stríðið og innflutn-
ingur þaiigað hefir ekki verið
eins takmarkaður og víðast ann-
ar staðar. Á síðustu þrem til
fjórum mánuðum hafa 9000
Gyðingar sezt þar að; í haust
er búist við að þeir verði orðnir
um 200000. Þeir setjast flestir
að í japanska hluta borgarinn-
ar og hafa, þrátt fyrir stríðið,
komið þar fótum fyrir sig í við-
skiftum. Nýlega var talið að
þessir nýju borgarar í Shang-
hai hafi opnað 29 matsöluhús,
49 fatabúðir, 377 smá iðnaðar-
stofnanir, 194 læknaskrifstofur,
19 matvörubúðir og 92 smábúð-
ir, með allskonar varningi.
Hitler og Danzig
f fréttum frá Evrópu í gær, er
haldið fram að Hitler sé
afhuga því að taka Danzig með
hervaldi að minsta kosti í svip.
Hvað gerast kunni eftir þing
nazista í Nuremberg, sem haldið
er í miðjum september sé óráðið.
En þetta á að boða frið að
minsta kosti um tveggja mánaða
skeið.
Þetta getur nú svo verið, en
hitt er víst að Hitler ætlar sér að
leggja Danzig undir Þýzkaland.
Það getur verið að hann hiki við
það, ef það kostar stríð, en hann
mun einhver önnur ráð hugsa sér
til þess.
Á sama tíma og þessi frétt
berst út, senda Austur-Prússar
40 mótorvagna til Danzig á ein-
um degi, drekkhlaðna vopnum.
Er það ekki einnig friðsamlegt?
Eftir lögum Þjóðabandalags-
Stapp Breta og Japana
Mr. Chamberlain, forsætisráð-
herra Breta, tilkynti þinginu það
ms, er Danzig fríborg, undir s. 1. mánudag, að Brezka stjórn-
vernd Þjóðabandalagsins og er' in breytti ekki um stefnu í utan-
fulltrúi þess þar dr. Karl Burck-
hardt, frá Svissandi. Af því
borgin hefir ávalt þrifist á við-
skiftum Póllands, var stjórn
þess fengin öll umráð borgarinn-
ar í hendur af Þjóðabandalag-
inu. Komi eitthvert misklíðar-
efni upp milli íbúanna og Pól-
lands, á dr. Burckhardt að skera
úr þeim, eða áfría málunum til
Þjóðabandalagsins. Eitt af því
sem ákveðið er í þessum lögum
Þjóðabandalagsins viðvíkjandi
Danzig, er að þangað er bannað
að flytja vopn eða her. Alt þetta
hefir Hitler leyft sér að brjóta
undir nefinu á Þjóðabandalag-
inu. Hann hefir bæði sent her-
menn og vopn til Danzig í stór-
um stíl undanfarna marga mán-
uði.
ríkismálum ,sínum eftir geðþótta
eða skipun Japana.
Alþjóðahverfið í Tientsin er
enn í herkví og sátta tilraun-
irnar, sem enn standa yfir, virð-
ast eiga langt í land. Japanir
fara fram á hvorki meira né
minna en að Bretar og Frakkar
sérstaklega hafi sig burt úr
Kína, eða láti af viðskiftum við
Chiang Kai Shek, kínverska her-
foringjann og skifti í þess stað
við Japani. Það er ekki al- j
þjóðahverfið í Tientsin eitt, semj
hér er um að ræða, heldur altl
Kína.
Bretar segja níu velda samn-
inginn um viðskifti í Kína, ekki
eiga fremur við sig og Frakka
eina, en t. d. Bandaríkin og þeim
samningum verði ekki horfið frá,
án samþykkis allra viðkomandi
þjóða. En Bandaríkjaþjóðina
virðast Japanir með engu móti
vilja styggja.
Hér stendur hnífurinn í kúnni
og umsátrið í Tientsin er ekki
víst að verði Japönum að til-
ætluðum notum.
Umsátrið byrjaði 14. júní í
Tientsin, en ,svo virðist þó, af
orðum Mr. Chamberlains að
dæma, sem heldur hafi verið
slakað á klónni af hálfu Japana
og nauðþurft sé ekki enn í borg-
inni; aðflutningur flestra nauð-
synja sé leyfður.
Enn sem komið er virðist þó
vonin veik um að af sættum
verði milli Breta og Japana og
hnútar umsátursins í Tientsin
verði leystir.
Kærar þakkir, Vökumenn
Ritið “Vaka” gat þess fyrir
nokkru, að Vökumannahreyf-
ingin á íslandi hefði með öðru á
starfsskrá sinni, að útvega ís-
lenzku vikublöðunum vestan
hafs áskrifendur. Þetta áheit
vökumanna, um ljðsinni sitt,
ef Þjóðverjar tækju borgina. En j situr ekki við orðin tóm, því s. 1.
j hversvegna láta þessi lönd ölijviku sendi einn af forsprökkum
Hitler hrúga þangað hermönnum I hreyfingarinnar, Egill Bjarna-
son, Hemskringlu 25 nýja á-
skrifendur.
Heimskringla þakkar innilega
Eins og Danzig er til fyrir við-
skifti Póllands, svo eru- sjávar-
flutningarnir frá Danzig lífæð
viðskifta Póllands. Tapi Pólland
! Danzig, er það banaráð viðskifta
þess.
En hvað á Þýzkaland að gera
við borgina? Hún hefir aðeins
hernaðarlega þýðingu fyrir það.
Ráði Þjóðverjar yfir henni geta
þeir hnekt Póllandi svo með
jþví,. að :það verði að ganga
Þýzkalandi á hönd.
Pólland er eins varnarlaust án
Danzig og Tékkóslóvakía var,
eftir að Sudeten-héraðið var af
hennitekið.
Þrátt fyrir alt þetta, var
skrafað um það á Frakklandi og
Bretlandi í gær, að semja við
Hitler um Danzig á friðsamlegan
hátt.
Og ofan á alt annað, kaus
Þjóðabandalagið þrjár þjóðir til
verndar Danzig. Þessar þjóðir
voru Frakkar, Englar og Pól-
lendingar.
Þær hafa nú að vísu lýst því
allar yfir, að það kostaði stríð,
og vopnum, án þess að mótmæla
því ?
Líkurnar eru til að Hitler eigi
eftir að teyma allar þessar þjóð-
ir á eyrunum o_g láta þær af-
henda sér Danzig ennþá til þess
4ið hann eignist eitt vígið enn.
drenglyndið og áhugann sem
þetta ber vott um hjá Vöku-
mönnum til málefna þeiri’a, er
vestur-íslendingar hafa með
. höndum. Það ber þess ljós
Eitt af því sem Hit er hef,r merki að löndum heima er ant
nú hug á, er að hann fái sig kos-
inn forseta í Danzig sem er auð-
velt með svo mörgum Þjóðverj-
um sem þar eru. Hann er þar
nú þegar heiðursforseti. Verði
þessu ekki mótmælt, hefir Pól-
land lítið að segja í Danzig eftir
það og Þjóðabandalagið. Fyrir
dómstólunum kann að verða deilt
um að bræðraböndin milli þeirra
og íslendinga hér haldist sem
lengst óslitin. Það er og ein
af heitþráðustu óskum Vestur-
íslendinga.
Heimskringla árnar hinum
nýju kaujjendum alls góðs og
vonar að þeir hafi svo mikla
skemtun af að lesa vestur-
™ ,1>ctta; f tcau8‘a íslenzku að þá iðrist aldrei kaup-
þykja astæða til stnðs. Og þo I anna
er það svipað og að innlima
borgina Þýzkalandi
Stríðshættan getur því verið
minni nú í Evrópu en áður. Fái
Hitler alt sem hann vill án
stríðs, er ávalt hægt að afstýra
henni.
Bretar kaupa við í Canada
Stjórnin á Bretlandi hefir á-
kveðið að kaupa allan þann við
Alúðarþakklæti til Egils
Bjarnasonar og annara Vöku-
manna fyrir þessa aðstoð þeirra.
Flugi Japana mótmælt
Japanir hafa ákveðið flug um-
hverfis jörðina með ágústmán-
aðar byrjun. Maður sem Leo
Mahrer heitir og sem er ritan
félags í Vancouver, er fyrir því
berst að öllum viðskiftum við
er með þarf í kolanámum á Eng- ‘ Japani sé hætt af hálfu Canada,
landi af Canada. Til jafnaðar! hefir sent Mackenzie King for-
nema þessi viðarkaup rúmum j sætisráðherra áskorun um að
16 miljón dölum á ári. Breta-|leyfa ekki Japönum þetta flug
stj^rn hefir áður átt þessi kaup yfir Canada. Segir Mahrer að
við Noreg og Svíþjóð og Eystra-
saltslöndin, en telur rétt á stríðs-
tímum, að fá viðinn héðan.
enginn efi sé ú því að flugferð
þessi sé til þess ætluð, að vekja
athygli annara þjóða á flugher
styrk Japans og skjóta þeim
skelk í bringu með því. Hann
telur það mjög fjarri að flug-
skipi Japana sé leyft að lenda
hvar sém ákosið sé í Canada, en
brezkir borgarar séu klæðflettir,
ef út fyrir borgarmúra Tientsin
stíga. í flugskipinu, sem að vísu
er ekk nema eitt, eru 6 úrvals
flugmenn er auga munu hafa á
lendingarstöðum í Canada.
Islenzki þjóðbuningurinn
hlýtur verðlaun á sýningu
Snemma í þessum mánuði
voru “Heimskringu” send ein-
tök af “The Globe and Mail” og
“The Evening Telegram” frá
Toronto Ont., með myndum og
umgetningu um hina árlegu sýn-
ingu lista og iðnaðar, er haldin
var síðustu víkuna í júní mán-
uði í Graphic Arts sýningarhöll-
inni í Toronto. Var þar sér-
staklega haft til sýnis listir,
iðnaður og handavinna þeirra
þjóða, er hafa flutt inn í Canada
víðsvegar að.
Á þessu ári tóku þátt í sýn-
ingunni um 30 þjóðflokkar frá
ýmsum löndum, frá öllum álfum
heims. Var sýningin fjölbreytt
og glæsileg, gott sýnishorn af
því, hvað innfluttu þjóðirnar
geta lagt af mörkum, auðgað
og bætt við menningu hinnar
ungu canadisku þjóðar.
Meðal annara er sýndu lista-
verk þarna voru menn eins og
myndhöggvarinn ágæti Em-
manuel Hahn og listamálarinn
Nicholas Hornyansky. Hahn
sýndi meðal annars, brjóstmynd
af Vilhjálmi Stefánssyni land-
könnuði, sem er talin stórkost-
legt listaverk, var myndin til
sýnis þarna, sem sérstakt virð-
ingarmerki listamnnsins fyrir
Norðurlandaþjóðunum, sem hafa
tekið sér bólfestu í Canada.
Toronto blöðin fóru mörgum
lofsamlegum orðum um sýning-
una, og ekki sízt um litlu ís-
lenzku deildina, er íslenzkar
konur búsettar í Toronto komu
á framfæri þarna. Mrs. Hugh
L. Robson (Bergþóra Johnson)
veitti forstöðu og vann að því
að koma á þessari sýningu á ís-
lenzkum handiðnaði. Með að-
stoð þeirra Mrs. K. Frederick-
son og Mrs. Al. Ford, sem ætíð
eru boðnar og búnar til að
styrkja alt íslenzkt í fámenna
íslenzka hópnum í Toronto og
grendinni.
Landar í Toronto tíndu til
alt ,sem þeir áttu í fórum sínum
af íslenzkum munum og lánuðu
á sýninguna. Það sem blöðin
eystra nefndu sérstaklega til og
luku lofsorði á, var hárfín ullar-
vinna, vefnaður og prjónles úr
silkimjúku handspunnu bandi,
ýmist með sauðarlitum eða
jurtalituðu alt í mjúkum mild-
um litum. Silfursmíði, tréskurð
og útskorið horn, glitvefnað og
ýmiskonar útsaum. Leirmyndir
sýndi María Jónsson, sem á
undanförnum árum hefir stund-
að nám við listaskólann ‘í Tor-
onto , og málverk lánaði Mrs.
Kinton, voru það myndir frá
Þingvöllum, sem hún málaði þar
heima 1930. í sambandi við
málverkin frá Þíngvöllum og það
annað, er þarna var til sýnis,
gaf Mrs. Robson skýringar og
stuttan útdrátt úr sögu lands
og þjóðar, þeim, sem spurðu og
forvitnuðust um ísland.
fslenzku búningarnir þóttu
afar fallegir, var Miss Margrét
Frederickson í upphlut, er Mrs.
John D. Eaton lánaði, en Mrs.
Robson var í sínum eigin skaut-
búningi. Hlaift hún fyrir hann
fyrstu verðlaun, silfurbikar. —
Björg Jónsdóttir Carson
24. ágúst 1875—2. júli 1939
“Þeim fækkar ört, sem fremst á
verði stóðu
á frama, vegs, og manndáðanna
braut,
sem undirstöður okkar giftu
hlóðu
og áttu geymda í hjörtum fagra
sjóðu,
er hver og einn í húsum þeirra
naut.”
Fyrir fáum dögum síðan fluttu vikublöðin íslenzku dánar-
fregn þessarar velþektu og ágætu konu. Nú langar mig ’til að
bæta fáeinum orðum við það sem þar var sagt, þó upplýsingar
um ættir hennar hafi eg ekki nægilegar til þess að gera því
eins góð skil og eg hefði óskað.
Björg var fædd á Gilsárvallahjáleigu í Borgarfirði í
Norður-Múlasýslu 24. ágúst 1875. Foreldrar hennar voru
þau Jón Árnason bóndi þar og ólavía Jónsdóttir. Fluttu þau
hjón til Vesturheims árið 1886 ásamt börnum sínum og
bjuggu hér í Winnipeg um margra ára skeið, og er risna
þeirra og góðgerðasemi enn í minnum höfð.
Þrátt fyrir það að Björg heitin kom hingað vestur að-
eins barn að aldri, tók hún snemma drjúgan þátt í íslenzkum
félagsmálum. Mun hún hafa verið ein af stofnendum Tjald-
búðarsafnaðar hér í borg og vann hún að öllum framfara-
málum þess safnaðar af miklum dugnaði, uns hann hætti að
starfa sem sérstakur söfnuður. Hún var og ein af stofnend-
um Jóns Sigurðssonar félagsins og var sístarfandi að heill
þess félags meðan kraftar hennar entust. Þar að auki tók
hún þátt í margskonar öðrum félagsmálum og lét sér mjög
ant um heill og heiður íslenzka þjóðarbrotsins hér vestra,
enda unni hún íslandi og gladdist yfir hinum miklu fram-
förum þess. Var vinum hennar því mikið gleðiefni að atvikin
höguðu því þannig, að hún gat sótt hina miklu hátíð á Þing-
völlum 1930, og geymdi hún margar fagrar endurminningar
um þá ferð og veru sína heima.
Joseph Carson, eiginmaður hennar, andaðist hér í Winni-
peg í september ipánuði 1938 og lifa foreldra sína þrjár
dætur: Mrs. D. Bruce Murray og Mrs. James Braid Smith,
báðar til heimilis í Winnipeg, einnig Miss Alma V. Carson
til heimilis í Chicago.
Fyrir nokkrum árum misti Björg heitin tvo bræður sína,
Árna lögmann Anderson og Einar Sigurð Anderson. Hinn
síðarnefndi féll í stríðinu mikla á Frakklandi.
Á.lífi eru fjögur systkini hennar: María K. Anderson, í
\ ancouver, Carl J. Anderson, Winnipeg, Gunnl. Anderson,
Winnipeg og Gunnar Anderson, Watson, Sask.
Að hafa kynst þessari látnu merkis-konu er mikill ágóði,
andlega talað. Á þeim sviðum er mest um vert að kynnast
sönnu fólki, fólki sem á hugsjónir sem hvorki mölur né ryð
fá grandað. Þeir sem þannig eru frá guðs hendi á götu vora
settir, hafa ekki einungis bjargað sínu eigin lífi, heldur og
auðgað líf allra þeirra sem gæfu báru til að hafa einhver kynni
af þeim.*
Frá öndverðu var heimili þessarar látnu konu samkomu-
staður hinnar ungu uppvaxandi kynslóðar íslendinga hér.
Hinu umkomulausa og fátæka skólafólki var húm sem besta
móðir og leiðbeinandi í hvívetna. Munu fáir kalla það fleipur
er eg endurtek það sem fyr hefir verið svo fagurlega sagt:
“Að þekkja hana var að elska hana”. Hennar góðverk,
ósérplægni og vinfesta fylgja henni út yfir gröf og dauða.
Hér læt eg þá staðar numið og kveð þessa glæsilegu og
trygglyndu konu með þessum alkunnu orðum:
“Far þú í friði,
Friður guðs þig’ blessi,
Hafðu þökk fyrir alt og alt.”
P. S. Pálsson
Þótti þeim, er um dæmdu, að
íslenzki skautbúningurinn bera
af öllum öðrum þjóðbúningum,
er þarna voru saman komnir.
Af ummælum blaðanna að
dæma sem frétt þessa flytja,
hefir þessi íslenzka sýning
þarna vakið mikla eftirtekt. Það
hefir meira að segja verið vakið
máls á því við Mrs. Robson, sem
fyrir þessu hefir staðið, að ís-
lendingar tækju þátt í þjóð-
sýningu er að ári verður haldin
í Ontario-fylki. En hvað sem
um það verður, á þessi unga, hér
mentaða, listræna og áhugasama
kona fyrir því sem íslenzkt er,
Mrs. Robson, miklar þakkir skil-
ið fyrir það sem hún hefir að sér
lagt við að kynna fsland og ís-
lenzka þjóð á sýningunni í Tor-
onto og gert það með svo góðum
árangri, sem að ofan er lýst. —
Þeim til fróðleiks sem ekki
þekkja neitt til Mrs. Robson,
skal þess getið að hún er héðan
úr Winnipeg og er dóttir Gísla
Jónsson'ar prentsmiðjustjóra og
Guðrúnar skáldkonu Finnsdótt-
ur konu hans.