Heimskringla - 09.08.1939, Síða 1
Phone 96 361
9^
^ Country Club
EEKB
“famous for flavor”
PELISSIERS
Country
Club
Beer A
Phone 96 361
LIII. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MIÐVIKUDAGINN, 9. ÁGÚST 1939
NÚMER 45.
HELZTU FRÉTTIR
______________________
Skemtilegur
fslendingadagur
Þjóðminningardag'urinn, sem
haldinn var á Iðavelli við
Hnausa s. 1. laugardag, var hinn
ánægjulegasti í alla staði. í
fyrsta lagi var dagurinn bjartur
og sólríkur. í Winnipeg var
hitinn að vísu um 90 stig (á
Fahr.), en hátíðargestum háði
það ekki. Þeir sátu í þrúðgum
lundi sígrænna himin hárra
trjáa og í skugga sólar, en
austan af Winnipeg-vatni lagði
svalan blæ þangað, svo menn
vissu ekki af hitanum. Winni-
peg gestir dagsins trúðu ekki að
hitinn hefði verið eins mikill og
þeim var sajft, er heim kom.
Ákjósanlegri stað var ekki hægt
að hugsa sér og fyrir þjóð-
minningardagshátíð, er hann
öllum stöðum betur valinn. —
Skemtiskráin hófst með ávarpi
forseta, dr. Sveins E. Björns-
sonar, prýðilegri ræðu að máli
og hugsun, er hinn ákjósanleg-
asta svip setti á hátíðina. Henni
fylgdi söngur Karlakórsins und-
ir stjórn Ragnars H. Ragnar og
hver ræðan og ávarpið af öðru,
alt sniðið eftir því, sem við tæki-
færið átti, íslenzkt, fagurt og
svipmikið í anda —- og í sjón
einnig, eins og hið tignarlega
málverk frá íslandi í baksýn við
ræðupall Fjallkonunnar og Miss
Cariada, svo að maður naut jafn-
framt ræðunum og söngnum ís-
lenzks útsýnis.
Fjallkonan var frú Andrea
Johnson frá Árborg er las ávarp
það, er birt er á öðrum stað í
þessu blaði, en Miss Canada var
ungfrú Valgerður S. Sigurðs-
son; las hún og prýðisvel hið
fallega ávarp, sem einnig er
birt í þessu blaði. Gestir frá
íslandi voru á hátíðinni hr. Árni
G. Éylands og frú hans. Flutti
hr. Eylands ræðu og vék í henni
að erindi sínu vestur, sem er
að athuga hvað í búnaði hér
væri framkvæmanlegt á íslandi.
Væri gaman fyrir bændur hér
og búfræðinga að ræða um
þessa hluti við hr. Eylands. —
Hann flutti og kveðjur frá ís-
landi. Var að ræðu hans gerður
góður rómur. Aðrar ræður, svo
sem Minni íslands og Minni
Canada, fluttu séra Jakob Jóns-
son og Heimir Þorgrímsson. —
Mun Hkr. birta þær ræður við
hentugleika. En minnni fyrir
íslandi og Canada í ljóðum
fluttu bræðurnir Páll S. og
Kristján Pálssynir, sem báðir
eru kunnir sem skáld og hugs-
uðir.
Sín til hvorrar hliðar við
Fjallkonúna sátu tvær meyjar.
ungfrú Sigrún Johnson frá Ár-
borg og ungfrú Valdína Ingj-
aldson frá Winnipeg, en við hlið
Miss Canada: ungfrú Dorothy
Thompson frá Riverton og ung-
frú Eleanor Johnson frá River-
ton.
Þá ávörpuðu þeir Joseph
Thorson, K.C., og Jón J. Sam-
son, forseti íslendingadagsins á
Gimli, gesti dagsins.
Á milli ræðanna söng Karla-
kórinn frá eitt til þrjú lög í
hvert sinn og var að söngnum
gerður góður rómur. Karlakór-
inn má eiga það, að það er mik-
ill munur en áður oft á almenn-
um skemtunum sem þessum, að
eiga von á söng frá æfðum söng-
mönnum, og með því öryggi, að
unun er ávalt vís að söngnum.
IVIargháttaðar íþróttir fóru
farm á íslendingadeginum og
verðlauna-dans, en fróttir af úr-
slitum og kepni í þeim, eru ekki
en við hendina.
Við ræðustólana voru hljóm-
nemar, er fluttu áfcieyrendum
hvert orð sem talað var, hvort
sem nær eða fjær voru ræðu-
pallinum. Eftir skemtiskrána
undu menn sér að því að heilsa
upp á kunningjana og spjalla
saman.
Forstöðunefnd íslendingadags-
ins á Iðavelli á þakkir skilið
allra gesta dagsins fyrir hina
alíslenzku skemtun, er þeir nutu
á Iðavelli þennan dag.
Skeyti frá
forsætisráðherra íslands
Eftirfarandi skeyti las Grettir
Jóhannsson konsúll á íslend-
ingadeginum á Gimli 7. ág. Það
var sent Þjóðræknisfélaginu
auðsjáanlega í tilefni af 50 ára
afmæli íslendingadagsins:
Reykjavík, .1 ág. 1939
Icelandic National League,
45 Home St., Winnipeg.
Vegna íslenzku þjóðarinnar
sendi eg íslendingum í Vestur-
heimi hugheilar þakkir fyrir
hálfrar aldar þjóðræknisstarf-
semi og trygð við gömlu ætt-
jörðnia. Óska að þessi tímamót
megi marka upphaf að enn nán-
ara samstarfi allra fslendinga
báðu megin hafsins.
•Hermann Jónasson,
forsætisráðherra
ÁVARP
FJALLKONUNNAR
á Iðavelli, 5. águst 1939
Ástkæru börnin mín:
Það er mér stórkostleg ánægja
að bera ykkur börnum mínum
vestan hafs beztu kveðjuóskir
að heiman. Fyrir rétt mánuði
síðan héldum við okkar fyrsta
Vestmannadag á Þingvöllum
með hér um bil fjórum þúsund-
um manna til að minnast ykkar
og með því skapa traustari vin-
áttu milli þjóðarbrotanna
beggja. Var mér það unun að
sjá viðhafnarstúkuna skreytta
canadiska, ameríska og íslenzka
fánunum og að hafa Miss Ame-
ríku og Miss Canada sitt hvoru
megin er eg steig í stólinn til að
ávarpa mannfjöldann.
Þessi síðari ár hafa fært ykk-
ur nær mér. Þegar þið létuð
frá landi, til þess að sigla yfir
hafið og leita gæfunnar í öðrum
heimi, fanst mér þið vera mér
algerlega horfin. Eg sá ekki þá
að þið mynduð ryðja ykkur til
rúms með mestu menningarþjóð-
um heimsins; að synir mínir og
dætur í Vesturheimi ættu eftír
að fylla hinar þýðingarmestu
stöður, að starf ykkar og atorka
mundi skrá nöfn ykkar í sögu
landsins.
Hafa heimsóknir frá ykur átt
drjúgan þátt í því að færa ykkur
nær og vildi eg óska að þær
gætu aukist. Stúdentaskiftin
við háskólann heima og Colum-
bia mun gefa mér tækifæri að
kynnast yngri kynslóðinni og er
mér það mjög kært.
Sérstaklega vil eg minnast á
útvarpið héðan, heim til okkar
1. des. á 20 ára afmæli fullveldis
íslands; hefir það stuðlað stói'-
lega að því að styrkja bræðra-
böndin og breyta hugsunarhætt-
inum heima.
Því næst vil eg minnast
heimssýninguna í New York og
BISKLTPS VIGSL A
Á ÍSLANDI
Sigurgeir Sigurðsson
bisk,up fslands
Sunnudaginn 25. júní síðast-
liðinn fór fram biskupsvígsla í
Reykjavík. Um hana hefir þeg-
ar verið getið hér í blaðinu.
Blöð að heiman geta þess, að
athöfnin hafi verið bæði fögur
og tilkomumikil. Fleiri prestar
voru þar samankomnir en nokk-
urntíma fyr, eða um 80 að tölu.
Komu þeir saman í Alþingishús-
inu, og gengu þaðan í skrúð-
göngu til Dómkirkjunnar, allir
skrýddir hempum. f kirkjunni
hófst athöfnin með söng, bæna-
lestri og ávarpi frá Fitlðriki
prófasti Hallgrímssyni, sem las
upp æfisögu hins nýja biskups.
Vígslan sjálf var framkvæmd af
fyrverandi biskupi, dr. Jóni
Helgasyni. Fyrir altari voru
ásamt honum varabiskupar Hóla
og Skálholts, þeir Friðrik Rafn-
ar og Bjarni Jónsson. — Bisk-
upsþjónar voru tveir yngstu
prestar landsins. Við vígsluna
sjálfa aðstoðuðu fjórir prófast-
ar.
Hið ytra er vígsluathöfnin fög
ur. Vejdur þar skrúði biskupa
og presta, ljósadýrð kirkjunnar,
söngur og tón. T. d. fer fram
vixeVsöngur milli biskups og
söngflokks, og er eitt lagið að
minsta kosti mjög sérkennileg
íslenzk tónsmíð, margra alda
gömul. En hið innra ber öllum
saman um að athöfninni hafi
fylgt samúð, hrifning og hlý-
leiki.
Ekkert embætti er tignara í
augum íslenzkrar alþýðu en
biskupsembættið. Kirkjan fær
sínar aðfinslur á fslandi eins og
annars staðar, en virðing henn-
ar fer nú vaxandi með þjóðinni
og framfarahugurinn verður æ
sterkari meðal kirkjunnar
manna. Er það góðs viti. ís-
lenzka kirkjan hefir verið og ír
sú stofnun, sem Sitendur næst
allri alþýðu manna, og snertir
líf einstaklinganna meira og
minna frá vöggu til grafar. Hún
er hvetjandi til hverskonar
menningar og fræðslu. Þess
vegna finst mönnum mikið í
húfi, að hinn æðsti prestur henn-
ar sé maður, sem fái notið virð-
ingar og álits. Enginn vafi er á
því, að af hinum nýja biskupi
er alls góðs vænst. Herra Sig-
urgeir er glæsilegur maður að
þakka ykkur þann höfðingsskap,
er þið sýnduð með stuðningi
yðar við að koma upp líkneski
Leifs Eiríkssonar til útbreiðslu
þeirri staðreynd að íslendingur
varð fyrstur til að finna Ame-
ríku. Hefir sýningin verið ís-
lendingum vestan hafs og austan
til stórsóma og sýnt hvers virði
samvinnan er. Þakka ykkur
innilega hjálpina við þetta.
Megi þessi dagur verða ykkur
öllum til blessunar, og megi þið
vernda sem 'lengst þjóðmenn-
ingu ykkar og tungu sem er
oss öllum svo kært.
Andrea Johnson
vallarsýn, söngmaður með af-
brigðum ,hlýr í ræðustóli, sam-
vinnúþýður á fundum og lipur-
menni í viðkynningu. Fer orð af
því, að á ísafirði, þar sem hann •
var prestur, hafi honum verið
mjög sýnt um að ná hylli yngra
fólksins. I
Sigurgeir biskup hefir nú þeg-
ar sýnt það, að hann hefir löng-
un til þess að varðveita sam-;
bandið milli vor Vestur-fslend- j
inga og móðurkirkjunnar. Áj
Vestmannadeginum á Þingvöll-
um 2. júlí gat hann þess, að
þjóðkirkjan hefði áhuga á sam-
starfi við bæði kirkjufélögin
vestan hafs.
Vestur-íslendingar óska hin-
um nýja biskupi allrar blessunar
og óska þess af alhug, að störf
hans verði til heilla hinni ísl.
kirkju.
Jakob Jónsson
Vilhjálmur Þór kominn
Síðast liðinn sunnudag kom
hr. Vilhjálmur Þór kaupfélags-
stjóri á Akureyri, kona hans og
þrjú börn til Winnipeg. Þau
komu sunnan frá New York, en
þar hefir hr. Þórs haft með
höndum rekstur íslandssýning-
arinnar. Norður kemur hann
til að kynnast Vestur-íslending-
um. Hr. Þór er eyfirskur að
ætt, sonur Þórarins Jónassonar
frá Sigluvík og konu hans Ólafar
Þorsteinsdóttur. Er hér margt
Eyfirðinga, sem fýsa mun að
kynnast drengnum sem sumir
þeirra ef til vill muna eftir, en
sem nú er stjórnandi stærsta
kaupfélags íslands, Kaupfélags
Eyfirðinga og sem honum á vöxt
og viðgang sinn seinni árin mjög
að þakka. Kona hr. Þórs er
Rannveig Jónsdóttir Finnboga-
sonar. Var faðir hennar hér
vestra um skeið og var Rann-
veig dóttir hans þá með honum;
hún er því að heimsækja hér
gamla átthaga; Jón er bróðir
Guttorms Finnbogasonar í þess-
um bæ og á heimili hans dvelja
Þórs-hjónin meðan hér er staðið
við. Á morgun heldur Þórs-
fjölskyldan vestur til Eston,
Sask., til að heimsækja Óskar
Finnbogason bróður frú Rann-
veigar Þórs.
Skeyti frá Thor og
Ágústu Thors
Eftirfarandi skeyti las Grettir
Jóhannsson konsúll á íslend-
ingadeginum á Gimli 7. ág.:
New York, 1. ág. 1939
Icelandic Consulate,
910 Palmerston Ave., Wpg.
Áður heim förum biðjum þig
flytja íslenzku blöðunum og fs-
landsdegi, Gimli, innilegar þakk-
ir og allar beztu óskir. Hitt-
umst heil.
Ágústa og Thor Thors
Skeyti frá Seattle
Seattle, Wash., 7. ág.
Jón J. Samson,
Chairman Icelandic Celebration
Committee, Gimli, Man.
Congratulations and best
wishes on your fiftieth Icelandic
celebration.
J. H. Straumfjörð,
Chairman Seattle Celebra-
tion Committee
Skeyti frá Islandi
Reykjavík 1. júlí
The President,
Celebration Committee,
Gimli, Man.
The first Vestmannadagur irt
Iceland, sends all guests gath-
Ávarp Fjallkonunnar
að Gimli, 7. ágúst 1939
Eg heilsa’ ykkur börn mín. Eg ann ykkur æ!
Sjálf eilífðin fær ekki slitið vor hjörtu,—
og ást ykkar var ekki varpað á glæ,
því vorið og sólin og næturnar björtu
er’ verndari lífsins gegn vetri og snæ
og vonleysi, kvíða og myrkrunum svörtu.
Þó margt sé að vísu, sem bilaði og brást,
og bylurinn norðlægi kalt hafi andað,
þá vitið það börn mín, hin íslenzka ást
er auður, sem mölur og ryð fá ei grandað.
Og merki þess glöggar og glöggar hér sjást,
að guð hafi til þess í upphafi vandað.
Eg kveð ykkur börnin mín blessuð í dag
og bið þess, að alfaðir veg ykkar greiði
og láti’ ykkur snúast hvert lífs-starf í hag
og Ijós ykkar manndáða skína í heiði,
svo þið verðið landi’ ykkar dag eftir dag
hin dýrðlega blómkróna’ á alþjóða meiði.
Páll S. Pálsson
>red at Gimli and all I^elanders
tcross the sea sincere greetings
tnd good wishes on the fiftieth
aaíniversary of- the Iþielandic
ælebration day in Canada.
Sigfús Halldórs frá Höfnum
President
Islendingadagurinn á Gimli
Á Gimli safnaðist saman múg-
ur og margmenni — um 3000
eða meira, síðast liðinn mánu-
dag (7. ág.) á xþjóðhátíðardegi
Winnipeg-manna, er um leið
mintist 50 ára afmælis íslend-
ingadagsins. Var veður bjart
og sólarhiti að morgni og fram
yfir miðjan dag. Á góðri og
langri skemtiskrá var byrjað
laust eftir kl. 2, en um kl. 4V4
e. h. skall á dynjandi rigning
er hélzt uppihaldslaust að heita
mátti í 3 til 4 klukkustundir.
Miklu af dagskránni var lokið,
er rigna tók, en þó var óflutt
landnemaminnið, sem Friðrik
Sveinsson listmálari ætlaði að
flytja, og sem var önnur aðal
ræða hátíðarinnar. Ræðumaður
var aðeins byrjaður, er rigning-
in skall á og flúði þá hver sem
betur gat inn í danssalinn og
veitinga-tjöldin eða hömuðu sig
undir greinastærstu trjánum.
En þar varð sér ekki til lengdar
þurrum haldið og veitingatjöld-
in tóku einnig að leka og vatn
að fljóta um borðin. Af dag-
skránni þeirri er prentuð var,
voru eftir óflutt, auk áminstrar
ræðu, kvæði fyrir minni land-
nema, ort af V. J. Guttorms-
syni. Af skrúðgöngu til land-
nema minnisvarðans varð held-
ur ekkert, og þá áttu horna-
flokkurinn og karlakórinn einn-
ig ósungið nokkuð. En ávörp
öll: forseta, fjallkonu og gesta,
voru flutt og mörg lög sungin
áður en óveðrið datt á; alls
var lokið við um 17 númer á
skemtiskránni, svo menn fóru
síður en svo alls gamans á mis.
Dagurinn var hinn skemtileg-
asti, sem undanfarin ár, þar til
rigna fór.
Á hátíðinni ávörpuðu tveir
fulltrúar frá íslandi samkomu
gesti: Vihljálmur Þór og Árni
G. Eylands. Er ávalt skemtun
og nýlunda að hlýða á ræðu-
menn að heiman, og reyndist
það svo í þetta skifti. Flutti
hr. Eylands í lok ræðu sinnar
langt mál í ljóðum, skynsamlega
ort og kom mörgum til að segja
eins og þar stendur: “Og hann
er skáld, mannskrattinn!”
í þetta sinni söng Fjallkonan
ávarp sitt er ort hafði Páll S.
'Pálsson. Og Miss Ameríka og
Miss Canada fluttu ávörp sín
mjög áheyrilega og án þess að
líta á blöð sín. Er það mjög til
fyrirmyndar.
Að ræðum forseta og séra
Valdimars Eylands var góður
rómur gerður. Og svo má um
öll þau gesta ávörp er þarna
voru flutt einnig segja. Skemti-
skráin var í hei}d sinni góð.
Af nýjum gestum á íslend-
ingadegi má nefna þama Mrs.
Salverson og Guðm. dómara
Grímsson, er bæði ávörpuðu
samkomugesti.
En gamanið fór af þegar fór
að rigna. Frá klukkan 4Vfc og
þar til fyrsta lest fór til Win-
niþeg kl. 7.20 var langur tími að
bíða og þurfa að standa í dans-
skálanum. En- það versta var
þó að geta ekki komist á járn-
brautastöðina án þess að verða
holdvotur. Það varð hlutskifti
flestra er með lestinni voru og
það var fjöldi manns.
En slíkt verður oft á sæ. f
íþetta skifti endurtóít sig 50
ára saga fslendingadagsins, því
svo er frá skýrt í Heimskringlu
af fyrsta íslendingadeginum, að
hætta hefði orðið við íþróttir og
fleira þann dag vegna rigningar
og fresta um viku tíma.
Heimskringla mun síðar gera
grein fyrir íþróttum dagsins;
hefir formaður íþróttanna lofað
henni því. Ennfremur eru á-
vörp og kvæði fyrirliggjandi, er
bíða verða næsta blaðs.
ÁVARP MISS CANADA
á Iðavelli, 5. águst 1939
Once again, I, who am Can-
ada, salute you. Canada, reach-
ing from the sea of the sunrise
on the east to the sea of the
sunset on the west; land of
great lakes and deep rivers;
land of a sea of mountain
ranges; land of an ocean of
forest, land of broad valleys and
fertile plains; land of a thou-
sand tall chimneys and countless
deep mines; land of a myriad of
races and tongues; land of peace
and good will; Canada, the home
of a free people. Once more I
thank you for your tribute of
loyalty, of love and affection.
Again I acknowledge to you the
cultural and spiritual heritage
brought to my shores by your
Fathers.
You came to my bosom more
than sixty, more than fifty,
more than fortiy) yeatrs ago.
You came not with wealth; you
brought only yourselves. But
with yourselves you brought the
self-reliance of the Viking
spirit; you brought a passion to
Frh. á 8. bls.